Knattspyrnufélagið FRAM

FRAM 105 ára | Tvíhöfði í handboltanum | Afmæliskaffi

Karla- og kvennalið FRAM í handknattleik verða í afmælisskapi á heimavelli á 105 ára afmælisdaginn, 1.maí.  Kvennaliðið mætir Stjörnunni í þriðja leik úrsiltarimmunnar um Íslandsmeistaratitilinn klukkan 17.00 og karlaliðið tekur á móti Haukum í öðrum leik Íslandsmeistaraeinvígisins klukkan 19.45.  FRAMarar hefja daginn í afmæliskaffi í FRAMhúsinu klukkan 10.

Afmælisbarnið dafnar vel og full ástæða er til þess að leggja leið sína í Safamýrina til að fagna tímamótunum.  Hátíðarhöldin hefjast með afmæliskaffi í FRAMsalnum klukkan 10 og handboltinn tekur svo öll völd þegar líður á daginn.  Mikið verður um dýrðir og ganga má að því vísu að stemmning og skemmtun verði í hávegum. Stjörnufólk og Haukar munu væntanlega ekki láta sitt eftir liggja - það er pressa á stuðningsfólki FRAM að fagna afmælisbarninu og vonandi ánægjulegri niðurstöðu tveggja frábærra handboltaleikja.

Miðaverð á leikina á morgun er kr. 1.500.-, en miðar á báða leikina eru seldir saman á kr. 2.500.-.  Forsala verður í FRAMhúsinu milli klukkan 11 og 13.

Hamborgarabúllan mætir á svæðið og fírar upp í öllum tiltækum grillum klukkan 18.  Fyrirtaks borgarar og sérvaldi drykkir fást á sanngjörnu verði.

Þetta er dagskrá sem enginn FRAMari má láta framhjá sér fara.  FYLLUM KOFANN – STYÐJUM OKKAR FRÁBÆRA HANDBOLTAFÓLK!  Við eigum möguleika á að vinna tvöfalt í ár – stuðningurinn skiptir öllu máli!

1maí002

Á döfinni

Mán.13.maí | FRAM 1-1 Fylkir
Pepsi-deild karla | Laugardalsvöllur
Fim.16.maí | Valur 1-1 FRAM
Pepsi-deild karla | Vodafonevöllur
Mán.20.maí | FRAM 0-3 BÍ/Bolungvarvík
1.deild kvenna | A-riðill | FRAMvöllur Úlfarsárdal
Þri.21.maí | ÍA 2-0 FRAM
Pepsi-deild karla | Norðurálsvöllur
Fös.24.maí | Kl. 19.15 | Haukar - FRAM
1.deild kvenna | A-riðill | Schenkervöllur
Mán.27.maí | Kl. 19.15 | FRAM - Stjarnan
Pepsi-deild karla | Laugardalsvöllur
Fös.31.maí | Kl. 20.00 | FRAM - ÍR
1.deild kvenna | A-riðill | FRAMvöllur Úlfarsárdal

Samstarfsaðilar

FRAM á Facebook