Ólafur Stefánsson og Sigursteinn Arndal þjálfarar U-20 ára landsliðs Íslands karla hafa valið 20 manna hóp til æfinga fyrir EM sem fram fer í Danmörki í júlí og ágúst. Ísland er þar í riðli með Rússlandi, Slóveníu og Spáni.
Við FRAMarar erum stoltir af því að eiga fulltrúa í þessum æfingahópi en Arnar Freyr Arnarsson leikmaður mfl. karla var valinn í hópinn að þessu sinni. Liðið mun æfa saman til 23 júní en 24. júní fer liðið á æfingamót í Sviss, þar sem það mun mæta Auk Sviss, Þjóðverjum og Spánverjum.
Arnar Freyr Arnarsson Fram
Gangi þér vel Arnar
ÁFRAM FRAM