Content

28.2.2010

Bikarhelgin á enda og glæsilegur árangur !! MYNDIR !!

Jæja þá er þessari helgi að ljúka, sunnudagur að kveldi kominn og  við FRAM arar getum sannarlega glaðst yfir þeim árangri sem liðin náðu, sem voru í Bikarúrslitum.
Þau voru;  meistaraflokkur kvenna, 4fl kvenna og 4fl karla.

Í gær laugardag byrjaði flugeldasýningin og FRAMstelpur tóku Valsstelpur í hið heimsfræga bakarí og var munurinn orðinn ein 6 mörk á tímabili, og þær gátu leyft sér að skora ekki mark frá 15 mín seinni hálfleiks til síðustu mínútunnar, en þá var staðan jöfn 19-19, hafði breyst úr 19-14 fyrir FRAM í 19-19.

En ótrúlega útfærð sókn sem gekk út á að reyna að koma Pövlu til að skora, hún hafði ekki skorað neitt í leiknum og eina leiðin að koma boltanum til hennar var að skjóta á markið og láta boltann koma þaðan til baka, Pæja vatt sér inn í teiginn og sló boltann inn, og þegar markið var dæmt löglegt braust út gífurlegur fögnuður og Sigurbjörg hreinlega straujaði Pæju niður í teignum, svo mjög fagnaði hún, og fáir veittu því athygli í látunum að enn lifðu 4-5 sek af leiknum, sem dugði Val til að koma skoti á markið okkar en Íris Björk varði og kórónaði frábæra frammistöðu sína þar með, enda hafði hún varið um og yfir 20 bolta !!

Bikarinn fór því í Mýrina,  upp í Safamýri og um kvöldið var vegleg hátíð og hátíðarkvöldverður, og svo dans á eftir, en menn fóru snemma í háttinn því enn var ekki helgin búin og yngri flokka úrslitaleikirnir eftir á sunnudeginum.

Klukkan 12 á hádegi hófu leik FRAM strákar í 4fl og mættu þeir Aftureldingu, framan af var nokkuð jafnt með liðunum og fínasta spenna, en svo í seinni hálfleik þutu Framstrákarnir framúr og sigruðu með ótrúlegum yfirburðum,  29-17  og nú var annar bikar kominn í hús og meira eftir...  ótrúlega kaflaskiptur leikur milli FRAM og FH í 4fl. kvenna.  Þar fóru Fram stelpur á undan allan leikinn og voru komnar heilum 9 mörkum yfir og hefði maður nú haldið að þetta væri búið, basta og komið... en FH stelpur breyttu um vörn, spiluðu framliggjandi gegn skyttunum, flest fór okkar stelpum þá að ganga í mót, hver mistökin og stangarskotin og eitthvað meira og þegar mínúta var eftir var forskotið farið, eitt mark skildi að liðin og þrátt fyrir tvö tækifæri til að klára þetta í sókninni, þá klikkaði það og því betur hélt vörnin og stelpurnar okkar endurtóku næstum því hinar spennumögnuðu lokasekúndur meistaraflokks kvenna frá deginum áður..

Það tókst að verja þetta litla forskot 25-24 og þegar flautan gall varð gífurlegur fögnuður, nú var þriðji bikartitillinn í höfn hjá FRAM, allir  3 flokkar sem kepptu til úrslita unnu, og því ber að fagna !
  Ekki er að efa hve vonbrigði FH stelpna hafa verið, búnar að vinna upp þennan geysilega mun en vantaði samt örlítið uppá, það er ekkert annað sæti til í Bikar, maður bara vinnur eða ekkert, þannig er það nú bara, liðið sem tapar í bikar tapar bikarnum, og vinnur ekkert, annað sætið gefur lítið nema táraflaum.

4fl karla með Halla Þorvarðar og Bjarka Bóasson sem þjálfara,
4f kvenna með Sigurgeir Sissa Jónsson og Einar Jóns sem þjálfara        við óskum ykkur til hamingju
með Eimskips Bikarinn 2010 !

bbb.


hér koma nokkrar myndir úr leikjunum,  fyrst 4fl karla og svo 4fl kvenna:




















-------------------------------------------------------------------------
























« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l