{"id":18284,"date":"2018-05-18T23:44:51","date_gmt":"2018-05-18T23:44:51","guid":{"rendered":"http:\/\/fram.is\/?p=18284"},"modified":"2018-05-18T23:44:51","modified_gmt":"2018-05-18T23:44:51","slug":"best-i-donsku","status":"publish","type":"post","link":"http:\/\/fram.is\/is\/2018\/05\/18\/best-i-donsku\/","title":{"rendered":"Best \u00ed d\u00f6nsku\u2026"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/fram.is\/is\/?attachment_id=18286\"><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"alignright size-medium wp-image-18286\" src=\"http:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/IMG_6835-300x200.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"200\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/IMG_6835-300x200.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/IMG_6835-scaled-800x533.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/IMG_6835-1024x683.jpg 1024w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/IMG_6835-768x512.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/IMG_6835-1536x1024.jpg 1536w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/IMG_6835-2048x1365.jpg 2048w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/><\/a><a href=\"http:\/\/fram.is\/is\/?attachment_id=18287\"><img decoding=\"async\" class=\"alignright size-medium wp-image-18287\" src=\"http:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/IMG_6862-300x200.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"200\" \/><\/a><a href=\"http:\/\/fram.is\/is\/?attachment_id=18288\"><img decoding=\"async\" class=\"alignright size-medium wp-image-18288\" src=\"http:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/IMG_6887-300x200.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"200\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/IMG_6887-300x200.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/IMG_6887-scaled-800x533.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/IMG_6887-1024x683.jpg 1024w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/IMG_6887-768x512.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/IMG_6887-1536x1024.jpg 1536w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/IMG_6887-2048x1365.jpg 2048w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/><\/a>\u00deann sext\u00e1nda ma\u00ed \u00e1ri\u00f0 1983 ey\u00f0ilag\u00f0i P\u00e9tur Rasmussen d\u00f6nskukennslu \u00e1 \u00cdslandi einn s\u00edns li\u00f0s. \u00de\u00e1 kom \u00fat fyrsta t\u00f6lubla\u00f0i\u00f0 af Andr\u00e9si \u00d6nd og f\u00e9l\u00f6gum \u00e1 \u00edslensku. A\u00f0alhvati barna og unglinga til a\u00f0 lesa d\u00f6nsku var \u00far s\u00f6gunni. Me\u00f0 \u00feverrandi \u00e1huga \u00e1 d\u00f6nsku k\u00f3ngaf\u00f3lki me\u00f0 tilheyrandi lestri \u201ed\u00f6nsku bla\u00f0anna\u201c var svo s\u00ed\u00f0asti l\u00edkkistunaglinn rekinn. \u00de\u00f3tt v\u00edsit\u00f6luunglingurinn l\u00e6ri d\u00f6nsku \u00ed sk\u00f3la \u00ed \u00e1tta \u00e1r, n\u00e6r enginn lengur \u00feeirri f\u00e6rni a\u00f0 kaupa s\u00e9r s\u00edgarettupakka e\u00f0a \u00f6lfl\u00f6sku. Helv\u00edti\u00f0 hann P\u00e9tur.<\/p>\n<p>Fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar er af s\u00ed\u00f0ustu kynsl\u00f3\u00f0inni sem l\u00e6r\u00f0i d\u00f6nsku af Anders And-bl\u00f6\u00f0unum. Enn er minnisst\u00e6\u00f0ur fyrsti sk\u00f3ladagurinn \u00ed ellefu \u00e1ra bekk, \u00fear sem m\u00e6tt var \u00ed fyrsta d\u00f6nskut\u00edmann. S\u00e1 er \u00feetta ritar hugsa\u00f0i s\u00e9r gott til gl\u00f3\u00f0arinnar a\u00f0 l\u00e6ra loksins tungum\u00e1l \u00feeirra Andab\u00e6inga til fulls. Mikil var undrunin a\u00f0 f\u00e1 kennslub\u00f3kina \u00ed hendur \u2013 sl\u00e1 upp \u00e1 fyrstu s\u00ed\u00f0u\u2026 og svo upp \u00e1 \u00feeirri s\u00ed\u00f0ustu. Og allt \u00ed einu rann upp fyrir manni lj\u00f3s: \u201e\u00c9g kann d\u00f6nsku!\u201c<\/p>\n<p>Leikurinn \u00ed kv\u00f6ld \u00e1 m\u00f3ti Leikni f\u00f3l \u00ed s\u00e9r svipa\u00f0a opinberun. K\u00e6ru Framarar: vi\u00f0 erum bara helv\u00edti g\u00f3\u00f0 \u00ed f\u00f3tbolta!<\/p>\n<p>Ekki \u00fear fyrir a\u00f0 spilamennskan \u00ed dag var ekki n\u00e1ndar n\u00e6rri eins flott og \u00ed fyrri h\u00e1lfleiknum \u00e1 m\u00f3ti \u00der\u00f3tti. \u00dear l\u00e9kum vi\u00f0 Sambabolta og t\u00e6ttum \u00der\u00f3ttarana \u00ed okkur. En allir geta liti\u00f0 \u00fat eins og Brasil\u00eda \u00ed einum og einum h\u00e1lfleik. Afreki\u00f0 er a\u00f0 n\u00e1 a\u00f0 afgrei\u00f0a veikari andst\u00e6\u00f0inga \u00e1 sannf\u00e6randi h\u00e1tt \u00e1n \u00feess a\u00f0 eiga st\u00f3rleik og \u00e1n \u00feess a\u00f0 gefa \u00e1 s\u00e9r nokkurt f\u00e6ri. \u00dea\u00f0 t\u00f3kst \u00ed kv\u00f6ld.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var fj\u00f6lmennt \u00ed Safam\u00fdri fyrir leik. G\u00f3\u00f0ur h\u00f3pur m\u00e6tti \u00ed kaffi og l\u00e9ttar veitingar \u00ed getraunastofunni og hl\u00fdddi \u00e1 \u00d3la a\u00f0sto\u00f0ar\u00fej\u00e1lfara kynna byrjunarli\u00f0i\u00f0. \u00dear kom n\u00e1kv\u00e6mlega ekkert \u00e1 \u00f3vart \u2013 \u00f3breytt li\u00f0 fr\u00e1 s\u00ed\u00f0asta leik: Atli \u00ed markinu. Varnarl\u00ednan me\u00f0 Unnar, Hlyn og Krist\u00f3fer \u2013 me\u00f0 Hei\u00f0ar Geir fyrir framan sig. Alex og Mihaljo \u00e1 k\u00f6ntunum. Fred og Helgi \u00e1 mi\u00f0junni me\u00f0 Tiago \u00e1 milli s\u00edn og Gu\u00f0mund \u00e1 toppnum. \u00c1 me\u00f0an Dino og Orri eru meiddir e\u00f0a t\u00e6pir vir\u00f0ist \u00feetta okkar sterkasta li\u00f0 um \u00feessar mundir og ver\u00f0ur erfitt fyrir a\u00f0ra leikmenn a\u00f0 sprengja s\u00e9r lei\u00f0 inn \u00ed \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>Og \u00fea\u00f0 voru l\u00edka hamborgarar fr\u00e1 Kj\u00f6th\u00f6llinni, sem b\u00e1ru \u00fea\u00f0 me\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 alv\u00f6ru ferf\u00e6tlingur var drepinn vi\u00f0 ger\u00f0 \u00feeirra. Vesalings fl\u00f3nin sem gera s\u00e9r a\u00f0 g\u00f3\u00f0u drasli\u00f0 sem bo\u00f0i\u00f0 er upp \u00e1 hj\u00e1 flestum \u00f6\u00f0rum. \u00dea\u00f0 er bara t\u00edmaspursm\u00e1l hven\u00e6r Framv\u00f6llurinn f\u00e6r s\u00edna fyrstu Michelin-stj\u00f6rnu.<\/p>\n<p>Fr\u00e9ttaritari F\u00f3tbolta.net l\u00e9t \u00feess geti\u00f0 \u00ed pistli s\u00ednum hversu g\u00f3\u00f0ur andinn v\u00e6ri \u00e1 vellinum og l\u00fdsti \u00feeirri sko\u00f0un sinni a\u00f0 Fram \u00e6tti a\u00f0 leika alla leiki s\u00edna \u00ed Safam\u00fdri. Fyrirli\u00f0inn t\u00f3k \u00ed sama streng eftir leik. Og mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 stemninguna \u00e1 vellinum er erfitt a\u00f0 vera \u00f3samm\u00e1la. Vissulega er vi\u00f0 \u00feungt og \u00f3sveigjanlegt leyfiskerfi KS\u00cd a\u00f0 etja \u2013 en hver s\u00e1 heimaleikur \u00fear sem vi\u00f0 \u00feurfum ekki a\u00f0 \u00feola hina dau\u00f0u h\u00f6nd \u00fej\u00f3\u00f0arleikvangsins er gle\u00f0iefni.<\/p>\n<p>Leiknir er li\u00f0 \u00ed kr\u00edsu. Var sp\u00e1\u00f0 l\u00f6ku gengi fyrir m\u00f3t of haf\u00f0i tapa\u00f0 tveimur fyrstu leikjunum. Pr\u00fd\u00f0ilegur t\u00edmi til a\u00f0 m\u00e6ta \u00feeim. Li\u00f0 \u00feeirra var varf\u00e6ri\u00f0, taugaveikla\u00f0 og haf\u00f0i greinilega enga tr\u00fa \u00e1 verkefninu.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 byrju\u00f0um \u00fe\u00f3 ekki me\u00f0 neinum rakettum. Vorum mun meira me\u00f0 boltann og n\u00e1\u00f0um upp \u00feokkalegu spili \u00fati \u00e1 velli, en li\u00f0i\u00f0 var fjarri \u00fev\u00ed eins beinskeytt og s\u00ed\u00f0ast. \u00dear skipti m\u00e1li a\u00f0 Tiago og Fred h\u00f6f\u00f0u sig mun minna \u00ed frammi en \u00fe\u00e1. S\u00e1 maked\u00f3nski Mihaljo \u00e1kva\u00f0 hins vegar a\u00f0 l\u00e1ta \u00feeim mun meira til s\u00edn taka. Flestar s\u00f3knarlotur Fram \u00ed fyrri h\u00e1lfleik h\u00f3fust hj\u00e1 honum og g\u00f3\u00f0ar stungusendingar fram \u00e1 vi\u00f0 settu Brei\u00f0holtsv\u00f6rnina \u00edtreka\u00f0 \u00ed vanda.<\/p>\n<p>Eftir um tuttugu m\u00edn\u00fatur voru \u00f3\u00feolinm\u00f3\u00f0ir Framarar \u00ed kv\u00f6ldbl\u00ed\u00f0unni nokku\u00f0 farnir a\u00f0 \u00f3kyrrast. St\u00f6\u00f0ulegir yfirbur\u00f0ir \u00e1 vellinum virtust ekki skila s\u00e9r \u00ed markt\u00e6kif\u00e6rum. Fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar seildist \u00ed minnisb\u00f3kina s\u00edna og skrifa\u00f0i: bitl\u00edti\u00f0. Strika\u00f0i tv\u00edvegis undir \u2013 til a\u00f0 gefa \u00feessum gildisd\u00f3mi auki\u00f0 v\u00e6gi.<\/p>\n<p>Enn sanna\u00f0ist a\u00f0 fr\u00e9ttaritarinn er f\u00e1bj\u00e1ni \u00feegar kemur a\u00f0 leikgreiningu, \u00fev\u00ed einungis m\u00edn\u00fatu s\u00ed\u00f0ar kom l\u00f6ng og flott sending inn fyrir Leiknisv\u00f6rnina \u2013 beint \u00e1 Gu\u00f0mund. N\u00edu af hverjum t\u00edu framherjum hef\u00f0u reynt a\u00f0 taka boltann ni\u00f0ur og pu\u00f0ra\u00f0 honum einhvern veginn yfir. Sem betur fer er Gu\u00f0mundur \u00ed 10% h\u00f3pnum (og kominn me\u00f0 3 m\u00f6rk \u00ed deildinni n\u00fa \u00feegar \u2013 annars hef\u00f0i hann alltaf skoti\u00f0 sj\u00e1lfur) svo hann t\u00f3k kn\u00f6ttinn me\u00f0 brj\u00f3stkassanum og beindi fyrir f\u00e6tur Helga sem smellhitti hann \u00ed bl\u00e1horni\u00f0. 1:0 fyrir Fram.<\/p>\n<p>G\u00e6fuleysi\u00f0 f\u00e9ll a\u00f0 s\u00ed\u00f0um Leiknismanna, sem birtist me\u00f0al annars \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 eftir t\u00e6pan h\u00e1lft\u00edma misstu \u00feeir fyrirli\u00f0a sinn af velli \u00f3v\u00edgan eftir skallasamstu\u00f0. A\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti reyndist fyrri h\u00e1lfleikur t\u00ed\u00f0indal\u00edtill, fyrir utan a\u00f0 \u00feremur Fr\u00f6murum t\u00f3kst a\u00f0 n\u00e6la s\u00e9r \u00ed spjald \u2013 \u00f6llum fyrir litlar sakir. \u00cd allt gaf d\u00f3marinn fimm gul spj\u00f6ld, sem er me\u00f0 \u00f3l\u00edkindum \u00ed leik sem var pr\u00fa\u00f0mannlega leikinn og hef\u00f0i h\u00e6glega \u00e1tt a\u00f0 vera h\u00e6gt a\u00f0 d\u00e6ma \u00e1n \u00e1minninga.<\/p>\n<p>En \u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 tali\u00f0 berst a\u00f0 d\u00f3mg\u00e6slu getur fr\u00e9ttaritari ekki hj\u00e1 \u00fev\u00ed komist a\u00f0 l\u00fdsa \u00e1n\u00e6gju sinni me\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 Viatcheslav Titov \u00ed hlutverki a\u00f0sto\u00f0ard\u00f3ma. Hann er vitaskuld br\u00f3\u00f0ir \u00a0go\u00f0sagnarinnar Titovs, besta \u00fatlendings sem leiki\u00f0 hefur handbolta \u00e1 \u00cdslandi \u2013 sem og besta lj\u00f3\u00f0sk\u00e1lds og pitsusendils sem gegnt hefur st\u00f6\u00f0u l\u00ednumanns. Lengi lifi Titov!<\/p>\n<p>Getraunastofan hvellsprakk \u00ed leikhl\u00e9i \u00feegar Framherjar fj\u00f6lmenntu til a\u00f0 drekka sitt kaffi og narta \u00ed s\u00ednar h\u00f6r\u00f0u tebollur. (\u00c1\u00f0ur er lengra er haldi\u00f0 skal vi\u00f0urkennt a\u00f0 fr\u00e9ttaritarinn lag\u00f0i ekki \u00ed r\u00f6\u00f0ina og hefur \u00fev\u00ed enga \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 \u00e6tla a\u00f0 tebollur hafi veri\u00f0 \u00ed bo\u00f0i \u2013 hva\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0 \u00fe\u00e6r hafi veri\u00f0 har\u00f0ar.) Enginn kvarta\u00f0i \u00fe\u00f3 undan kr\u00e6singunum og kaffi\u00f0 var heitt. \u00c9g \u00edtreka fyrri kr\u00f6fu um Michelin-stj\u00f6rnuna.<\/p>\n<p>Snemma \u00ed seinni h\u00e1lfleik m\u00e1tti litlu muna a\u00f0 Leiknism\u00f6nnum t\u00e6kist sj\u00e1lfum a\u00f0 tv\u00f6falda forystu okkar me\u00f0 gl\u00e6silegu skallasj\u00e1lfsmarki, sem vari\u00f0 var \u00e1 markl\u00ednu. M\u00edn\u00fatu s\u00ed\u00f0ar negldi Gu\u00f0mundur \u00ed sl\u00e1na eftir flotta s\u00f3kn. Leiknismenn voru greinilega heillum horfnir og \u00fev\u00ed br\u00fdnt a\u00f0 hamra j\u00e1rni\u00f0 \u00e1 me\u00f0an \u00fea\u00f0 v\u00e6ri heitt.<\/p>\n<p>Mark n\u00famer tv\u00f6 leit ekki dagsins lj\u00f3s fyrr en \u00e1 64. m\u00edn\u00fatu. Mihaljo, sem er \u00f3\u00f0um a\u00f0 ver\u00f0a einn af upp\u00e1haldsm\u00f6nnum \u00feess er h\u00e9r st\u00fdrir lyklabor\u00f0i, l\u00e9k upp a\u00f0 endam\u00f6rkum og sendi fyrir. \u00dear stukku samt\u00edmis upp varnarma\u00f0ur Leiknis og Gu\u00f0mundur Magn\u00fasson. S\u00e1 s\u00ed\u00f0arnefndi hefur teki\u00f0 b\u00e6\u00f0i L\u00fdsi og Sanas\u00f3l og ry\u00f0ur svona sm\u00e1pj\u00f6kkum til hli\u00f0ar eins og ekkert s\u00e9, 2:0 og leikurinn b\u00fainn.<\/p>\n<p>Fyrirli\u00f0inn okkar er \u00feegar or\u00f0inn markah\u00e6stur \u00ed deildinni me\u00f0 fj\u00f6gur m\u00f6rk \u00ed \u00feremur leikjum. \u00deau ver\u00f0a fleiri. Mun fleiri. Hann er miklu sterkari og margfalt grimmari en n\u00e6r allir andst\u00e6\u00f0ingarnir sem \u00ed bo\u00f0i eru \u00ed \u00feessari deild. \u00dea\u00f0 er l\u00edka fr\u00e1b\u00e6rt a\u00f0 sj\u00e1 hva\u00f0 Gu\u00f0mundur, sem vi\u00f0 Framarar h\u00f6fum svo lengi vita\u00f0 a\u00f0 b\u00fdr yfir miklum h\u00e6fileikur, hefur vaxi\u00f0 vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 taka a\u00f0 s\u00e9r fyrirli\u00f0ast\u00f6\u00f0una.<\/p>\n<p>\u00c1 sj\u00f6tugustu m\u00edn\u00fatu skr\u00e1\u00f0i fr\u00e9ttaritarinn fyrsta markt\u00e6kif\u00e6ri gestanna, skot sem Atli \u00ed markinu var\u00f0i \u00f6rugglega. \u00dea\u00f0 er \u00f6rugglega erfitt fyrir markv\u00f6r\u00f0 a\u00f0 hafa ekkert a\u00f0 gera n\u00e1nast allan leikinn a\u00f0 \u00feurfa svo a\u00f0 vera \u00e1 t\u00e1num \u00ed \u00feessar f\u00e1einu sek\u00fandur sem \u00e1 mann reynir. Atli \u00e1tti r\u00f3legan dag en \u00ed \u00feessi \u00f6rf\u00e1u skipti sem hann \u00feurfti a\u00f0 beita s\u00e9r, var \u00fea\u00f0 vel gert og fumlaust.<\/p>\n<p>Fred f\u00f3r af velli fyrir Orra \u00feegar tuttugu m\u00edn\u00fatur voru eftir. Ekki \u00f3v\u00e6nt, \u00fear sem hann vir\u00f0ist yfirleitt farinn a\u00f0 \u00fereytast upp \u00far mi\u00f0jum seinni h\u00e1lfleik. \u00dea\u00f0 er mikill l\u00faxus \u00ed \u00feessari deild a\u00f0 hafa menn \u00e1 kal\u00edberi vi\u00f0 Orra til a\u00f0 skipta inn af bekknum til a\u00f0 sigla leikjum \u00ed h\u00f6fn.<\/p>\n<p>Gu\u00f0mundur var \u00f3heppinn a\u00f0 b\u00e6ta ekki vi\u00f0 markareikninginn me\u00f0 skalla sem f\u00f3r r\u00e9tt framhj\u00e1 eftir f\u00edna sending fr\u00e1 Alex sem \u00e1tti margar g\u00f3\u00f0ar rispur upp kantinn. Einni sl\u00edkri lauk \u00e1 77. m\u00edn\u00fatu me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann l\u00e9k inn a\u00f0 v\u00edtateigsboga og l\u00e9t va\u00f0a \u00e1 marki\u00f0, skoti\u00f0 hr\u00f6kk hins vegar af Orra og \u00ed fallegum boga yfir Leiknismarkv\u00f6r\u00f0inn, 3:0. \u00deeir Orri og Alex ver\u00f0a a\u00f0 sl\u00e1st \u00ed klefanum um hvor f\u00e6r marki\u00f0 skr\u00e1\u00f0 \u00e1 sig. Minn hundra\u00f0kall fer \u00e1 Alex.<\/p>\n<p>Mikill vill meira og margir Framarar \u00e1 vellinum voru farnir a\u00f0 g\u00e6la vi\u00f0 fj\u00f3r\u00f0a marki\u00f0, sem kom \u00fe\u00f3 ekki. Ekki m\u00e1tti \u00fe\u00f3 miklu muna a\u00f0 Helgi b\u00e6tti vi\u00f0 \u00f6\u00f0ru marki s\u00ednu r\u00e9tt vi\u00f0 lok venjulegs leikt\u00edma. \u00c1\u00f0ur haf\u00f0i Arn\u00f3r Da\u00f0i komi\u00f0 inn\u00e1 fyrir Mihaljo og \u00ed bl\u00e1lokin var Mikael skipt inn\u00e1 fyrir Helga.<\/p>\n<p>Ma\u00f0ur leiksins? Tjah, \u00fea\u00f0 v\u00e6ri au\u00f0velt a\u00f0 nefna Gu\u00f0mund \u2013 e\u00f0a einhvern hinna markaskoraranna. Og au\u00f0vita\u00f0 freistast ma\u00f0ur til \u00feess \u00ed \u00feriggja marka sigri. En gle\u00f0iefni kv\u00f6ldsins var kannski miklu frekar hva\u00f0 v\u00f6rnin var \u00fe\u00e9tt og gaf andst\u00e6\u00f0ingunum enginn t\u00e6kif\u00e6ri. \u00a0Hlynur er eins og k\u00f3ngur \u00ed mi\u00f0ju varnarinnar. Unnar er \u00f3tr\u00falega traustur og Krist\u00f3fer Reyes sl\u00f3 ekki feiln\u00f3tu. Pers\u00f3nulegt upp\u00e1hald \u00feess er \u00feetta ritar var \u00fe\u00f3 Hei\u00f0ar Geir. Hann hefur s\u00e9\u00f0 \u00feetta allt \u00e1\u00f0ur og kann \u00feetta allt. Ef \u00e1ri\u00f0 v\u00e6ri 1989 og \u00e9g fengi a\u00f0 r\u00e1\u00f0a, hef\u00f0i Hei\u00f0ar Geir fari\u00f0 heim me\u00f0 geislapl\u00f6tu fr\u00e1 Steinum og \u00fat a\u00f0 bor\u00f0a \u00e1 Lauga\u00e1si.<\/p>\n<p>\u00derj\u00fa : n\u00fall sigur \u00e1 Leiknisli\u00f0i, sem vissulega er ekki \u00fea\u00f0 sterkasta \u00ed deildinni, en er \u00fe\u00f3 ekki alls varna\u00f0. \u00dea\u00f0 er gott. \u00dea\u00f0 er reyndar helv\u00edti gott. Og viti\u00f0i hva\u00f0 krakkar \u2013 vi\u00f0 eigum bara ansi gott f\u00f3tboltali\u00f0. \u00dea\u00f0 ver\u00f0a t\u00f6p og \u00fea\u00f0 ver\u00f0a vonbrig\u00f0i \u00ed sumar, en allt \u00ed einu er \u00feetta t\u00edmabil bara or\u00f0i\u00f0 svo miklu meira spennandi en horfur voru \u00e1 fyrir bara \u00f6rf\u00e1um vikum. Framt\u00ed\u00f0in er bl\u00e1 og me\u00f0 Kj\u00f6thallarhamborgurum.<\/p>\n<p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deann sext\u00e1nda ma\u00ed \u00e1ri\u00f0 1983 ey\u00f0ilag\u00f0i P\u00e9tur Rasmussen d\u00f6nskukennslu \u00e1 \u00cdslandi einn s\u00edns li\u00f0s. \u00de\u00e1 kom \u00fat fyrsta t\u00f6lubla\u00f0i\u00f0 af Andr\u00e9si \u00d6nd og f\u00e9l\u00f6gum \u00e1 \u00edslensku. A\u00f0alhvati barna og unglinga [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":4,"featured_media":18285,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[11,9],"tags":[],"class_list":["post-18284","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-mflkarla","category-fotbolti"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/Gummi-setur-scaled.jpg","_links":{"self":[{"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/18284","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/4"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=18284"}],"version-history":[{"count":0,"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/18284\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/18285"}],"wp:attachment":[{"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=18284"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=18284"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=18284"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}