{"id":44829,"date":"2025-07-27T22:54:38","date_gmt":"2025-07-27T22:54:38","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=44829"},"modified":"2025-07-27T23:04:19","modified_gmt":"2025-07-27T23:04:19","slug":"rrb","status":"publish","type":"post","link":"http:\/\/fram.is\/is\/2025\/07\/27\/rrb\/","title":{"rendered":"RRB"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"44829\" class=\"elementor elementor-44829\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-1b8610c4 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"1b8610c4\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-1f1902fe\" data-id=\"1f1902fe\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-4f631e9b elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"4f631e9b\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p>S\u00ed\u00f0ustu misserin hafa vi\u00f0ureignir Fram og V\u00edkinga \u00ed Bestu deildinni gengi\u00f0 undir skammst\u00f6funinni RRB. \u00dea\u00f0 er stytting fyrir R\u00e9ttarmor\u00f0s- og rangleitnisbikarinn og gengur nokkurn veginn \u00fat \u00e1 a\u00f0 Framarar eru betri en V\u00edkingar \u00e1 \u00f6llum svi\u00f0um f\u00f3tboltans, en tapa a\u00f0 lokum eftir a\u00f0 hafa or\u00f0i\u00f0 f\u00f3rnarl\u00f6mb f\u00e1r\u00e1nlegra d\u00f3maramistaka og almennrar \u00f3heppni. Vi\u00f0 h\u00f6fum trekk \u00ed tekk veri\u00f0 hinir m\u00f3r\u00f6lsku sigurvegarar en ekki uppskori\u00f0 neitt \u00e1 stigat\u00f6fluna. \u00cd kv\u00f6ld var kynnt til s\u00f6gunnar n\u00fdtt og \u00f3l\u00edkt skemmtilegra afbrig\u00f0i af RRB. Meira um \u00fea\u00f0 \u00e1 eftir.<\/p><p>Fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar haf\u00f0i bruna\u00f0 um \u00fej\u00f3\u00f0veginn mestallan daginn fyrir leik. Yngri sonurinn var \u00ed sumarb\u00fasta\u00f0 r\u00e9tt fyrir utan Stykkish\u00f3lm um helgina og hj\u00e1lpf\u00fas fa\u00f0ir \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 s\u00e6kja hann og vini hans. R\u00e9tt \u00e1 mi\u00f0ri lei\u00f0 losna\u00f0i p\u00fasti\u00f0 undan b\u00edlnum sem hlj\u00f3ma\u00f0i fyrir viki\u00f0 eins og me\u00f0 trillu \u00ed eftirdragi alla lei\u00f0ina. N\u00e6sta stopp: Smurst\u00f6\u00f0in Kl\u00f6pp.<\/p><p>Verandi b\u00edllaus \u00e1kva\u00f0 fr\u00e9ttaritarinn a\u00f0 sn\u00edkja far me\u00f0 Adda \u00far bankanum, sem m\u00e6tti reyndar ekki \u00e1 happab\u00edlnum en \u00fev\u00ed n\u00e6stbesta. \u00deeir voru komnir \u00ed Dal draumanna \u00ed g\u00f3\u00f0um t\u00edma til a\u00f0 hakka \u00ed sig lasagne og hr\u00e1salati \u00ed f\u00ednumannabo\u00f0inu og b\u00ed\u00f0a eftir R\u00fanari \u00fej\u00e1lfara til a\u00f0 tilkynna byrjunarli\u00f0i\u00f0.<\/p><p>\u00cd lj\u00f3si \u00feess a\u00f0 Vuk er enn\u00fe\u00e1 meiddur eftir a\u00f0 hafa veri\u00f0 bl\u00f3\u00f0ga\u00f0ur af b\u00f6\u00f0lunum \u00far \u00c1lafosskvosinni var uppstillingin nokku\u00f0 sj\u00e1lfgefin. Viktor \u00ed marki. Sigurj\u00f3n, Kyle og \u00deorri \u00ed varnarl\u00ednunni. Kennie og Halli bakver\u00f0ir. Fred, Tibbling og Freyr \u00e1 mi\u00f0junni. R\u00f3bert og Bystr\u00f6m frammi. \u2013 Andst\u00e6\u00f0ingana vanta\u00f0i nokkra lykilmenn vegna leikbanna og mei\u00f0sla, auk \u00feess sem \u00feeir voru h\u00e1lfilla \u00e1tta\u00f0ir eftir langt Evr\u00f3pufer\u00f0alan \u00fear sem \u00feeir t\u00f3ku Gunnar Braga \u00e1 \u00feetta og t\u00fdndu f\u00f6tunum s\u00ednum.<\/p><p>\u00dea\u00f0 var vel m\u00e6tt \u00ed Lambhagasalatsk\u00e1lina \u00ed kv\u00f6ld, ve\u00f0ri\u00f0 milt og almennt fullkomi\u00f0 til f\u00f3tboltai\u00f0kunar \u2013 nema helst fyrir markver\u00f0i li\u00f0anna \u00ed sitthvorum h\u00e1lfleiknum sem m\u00e1ttu berjast vi\u00f0 sterka kv\u00f6lds\u00f3lina \u00ed augunum. Blessunarlega eru derh\u00fafur aftur komnar \u00ed t\u00edsku.<\/p><p>\u00c1\u00f0ur en leikurinn h\u00f3fst kvaddi fr\u00e9ttaritarinn Adda, \u00cdvar Gu\u00f0j\u00f3ns og Kjartan tannl\u00e6kni og r\u00f6lti yfir \u00ed almenninginn \u00ed Bar8unni, sem hefur n\u00fa veri\u00f0 f\u00e6r\u00f0 \u00ed veislusal f\u00e9lagsins til samr\u00e6mis vi\u00f0 gildandi v\u00ednveitingaleyfi. \u00dear voru R\u00daV-starfsmennirnir Kristj\u00e1n Hn\u00edfsdalstrymbill og \u00deorkell Gunnar a\u00f0 kryfja leikinn. \u00deeir s\u00f6g\u00f0u skrifa\u00f0 \u00ed sk\u00fdin a\u00f0 s\u00e6nska t\u00e1ningsundri\u00f0 Bystr\u00f6m myndi skora \u2013 hann skorar alltaf \u00feegar hann er \u00ed byrjunarli\u00f0i!<\/p><p>Handboltakempan R\u00fanar K\u00e1rason var \u00e1 bj\u00f3rd\u00e6lunni \u00ed Bar8unni, en Fr\u00e9ttaritarinn \u00feurfti \u00fe\u00f3 sj\u00e1lfur a\u00f0 gr\u00edpa til gamalla takta \u00far Bj\u00f3rsk\u00f3lanum \u00feegar kom a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 skipta um k\u00fat. \u00dea\u00f0 voru \u00fev\u00ed tv\u00e6r m\u00edn\u00fatur li\u00f0nar af leiknum \u00feegar Fr\u00e9ttaritarinn og R\u00daV-arararnir t\u00f3ku s\u00e9r st\u00f6\u00f0u vi\u00f0 mi\u00f0l\u00ednu, \u00e1samt \u00deorbirni Atla og Rabba trymbli sem var n\u00fdkominn \u00far sundi me\u00f0 synina tvo. S\u00e1 eldri er mikill \u00cdR-ingur og \u00fev\u00ed \u00feegar farinn a\u00f0 sigta \u00fat m\u00f3therja komandi t\u00edmabils \u00ed Bestu.<\/p><p>Fyrsta alv\u00f6ru f\u00e6ri leiksins kom \u00e1 t\u00f3lftu m\u00edn\u00fatu. Aukaspyrna V\u00edkinga \u00e1 h\u00e6ttulegum sta\u00f0 f\u00e9kk a\u00f0 flj\u00faga \u00f3\u00e1reitt \u00ed gegnum v\u00f6rnina og eftir a\u00f0 tveimum gestanna mist\u00f3kst a\u00f0 n\u00e1 til boltans hreinsa\u00f0i Sigurj\u00f3n \u00ed horn. V\u00edkingar voru mun sterkari og boltinn a\u00f0 mestu \u00e1 okkar vallarhelmingi. Skyndis\u00f3knir Framarar g\u00e1tu \u00fe\u00f3 valdi\u00f0 usla. \u00deannig n\u00e1\u00f0i Kennie flottri sendingu fyrir fr\u00e1 endam\u00f6rkum \u00e1 \u00e1tj\u00e1ndu m\u00edn\u00fatu, sem R\u00f3bert var n\u00e6rri b\u00fainn a\u00f0 pota inn, en gestirnir bj\u00f6rgu\u00f0u \u00ed horn.<\/p><p>\u00de\u00f3tt m\u00e6tining v\u00e6ri me\u00f0 \u00e1g\u00e6tum f\u00f3r l\u00edti\u00f0 fyrir stu\u00f0ningss\u00f6ngvum. Helst a\u00f0 V\u00edkingarnir kyrju\u00f0u \u00ed einum k\u00f3r: \u201eV\u00edk-ing-\u00f6hh\u201c, sem hlj\u00f3mar d\u00e1l\u00edti\u00f0 eins og allir rappararnir sem nenna ekki a\u00f0 kl\u00e1ra or\u00f0in s\u00edn. \u00deeir voru l\u00edka me\u00f0 st\u00f3ran f\u00e1na sem l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingurinn og heimspekingurinn Hrannar, gamall sk\u00f3labr\u00f3\u00f0ir Fr\u00e9ttaritarans veifa\u00f0i \u00ed erg og gr\u00ed\u00f0. Hann er nafngreindur, \u00fevert \u00e1 sk\u00fdrar reglur \u00feessara pistla um nafnleysi andst\u00e6\u00f0inga, enda stu\u00f0ningsma\u00f0ur en ekki leikma\u00f0ur. Helgi Gu\u00f0j\u00f3nsson f\u00e6r l\u00edka a\u00f0 koma h\u00e9r fram undir nafni enda okkar eigi\u00f0 hold og bl\u00f3\u00f0. Komdu aftur Helgi! \u00de\u00fa veist a\u00f0 \u00feetta er ekki sta\u00f0urinn fyrir \u00feig!<\/p><p>\u00deegar n\u00e6rri h\u00e1lft\u00edmi var li\u00f0inn af leiknum fengu V\u00edkingar horn eftir a\u00f0 hafa sj\u00e1lfir sent boltann aftur fyrir endam\u00f6rk. RRB-v\u00e6bi\u00f0 l\u00e6tur ekki a\u00f0 s\u00e9r h\u00e6\u00f0a! \u00cd hornspyrnunni \u00e1kv\u00e1\u00f0u Framarar a\u00f0 koma V\u00edkingum \u00e1 \u00f3vart me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sleppa \u00fev\u00ed a\u00f0 valda danska nauti\u00f0 \u00feeirra \u00ed teignum. \u00dea\u00f0 reyndist mj\u00f6g \u00f3v\u00e6nt \u00fatspil, en a\u00f0 sama skapi ekki skynsamlegt og hann stanga\u00f0i \u00ed neti\u00f0, 0:1. Helv. fokk\u00edng fokk.<\/p><p>Eftir marki\u00f0 t\u00f3ku gestirnir \u00f6ll v\u00f6ld \u00e1 vellinum. \u00deeir hlupu \u00ed gegnum mi\u00f0juna okkar a\u00f0 vild og okkur gekk afleitlega a\u00f0 koma boltanum upp v\u00f6llinn. V\u00edkingar fengu 2-3 dau\u00f0af\u00e6ri og \u00ed tv\u00edgang var\u00f0i Viktor fr\u00e1b\u00e6rlega. Hv\u00edl\u00edk sending \u00far Efra-Brei\u00f0holtinu sem \u00feessi drengur er a\u00f0 reynast okkur!<\/p><p>Sta\u00f0an hef\u00f0i au\u00f0veldlega geta\u00f0 veri\u00f0 0:3, en \u00e1 42. m\u00edn\u00fatu \u00e1kva\u00f0 einn V\u00edkingurinn a\u00f0 s\u00fdna af s\u00e9r hroka gl\u00e6pamannsins og reyna a\u00f0 s\u00f3la einhverja \u00ferj\u00e1 Framara \u00e1 mi\u00f0jum vellinum. Tibbling stjaka\u00f0i hressilega vi\u00f0 honum og d\u00f3mari leiksins virtist hallast a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 V\u00edkingurinn g\u00e6ti sj\u00e1lfum s\u00e9r um kennt a\u00f0 hafa komi\u00f0 s\u00e9r \u00ed \u00feetta rugl, Tibbling var flj\u00f3tur a\u00f0 senda \u00e1 Kennie sem skei\u00f0a\u00f0i upp kantinn og sendi svo fyrir \u00fear sem Bystr\u00f6m uppfyllti sp\u00e1d\u00f3m R\u00daV-aranna, gl\u00e6silegt en fullkomlega \u00f3ver\u00f0skulda\u00f0 j\u00f6fnunarmark \u2013 1:1.<\/p><p>Framarar voru brattari en V\u00edkingar \u00ed hl\u00e9i. Nokku\u00f0 almenn samsta\u00f0a var \u00fe\u00f3 um a\u00f0 \u00fea\u00f0 yr\u00f0i a\u00f0 \u00fe\u00e9tta \u00ed g\u00f6tin \u00e1 mi\u00f0junni. Fyrir utan Viktor haf\u00f0i enginn \u00e1tt s\u00e9rstaklega g\u00f3\u00f0an leik, \u00fe\u00f3tt geta ver\u00f0i um hina gr\u00ed\u00f0arlegu vinnslu sem var \u00ed Fred sem endran\u00e6r. M\u00f6guleikarnir \u00e1 bekknum voru \u00fdmsir.<\/p><p>Fram byrja\u00f0i seinni h\u00e1lfleik me\u00f0 l\u00e1tum. Halli \u00e1tti g\u00f3\u00f0a sendingu fyrir marki\u00f0 sem R\u00f3bert n\u00e1\u00f0i ekki a\u00f0 koma t\u00e1nni \u00ed og \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 negldi Kennie \u00ed hli\u00f0arneti\u00f0. \u00deessi g\u00f3\u00f0a byrjun gaf \u00fe\u00f3 villandi fyrirheit um hva\u00f0 koma skyldi. V\u00edkingar r\u00e9\u00f0u fer\u00f0inni og s\u00f3knar\u00feungi \u00feeirra j\u00f3kst eftir \u00fev\u00ed sem \u00e1 lei\u00f0. \u00dea\u00f0 var ekki a\u00f0 sj\u00e1 a\u00f0 Fram v\u00e6ri li\u00f0i\u00f0 sem v\u00e6ri a\u00f0 koma \u00far t\u00edu daga p\u00e1su en gestirnir \u00feeir sem hafa veri\u00f0 \u00e1 faraldsf\u00e6ti og leiki\u00f0 \u00fe\u00e9tt.<\/p><p>R\u00f3bert hef\u00f0i geta\u00f0 komi\u00f0 okkur yfir gegn gangi leiksins \u00e1 63. m\u00edn\u00fatu eftir gullsendingu fr\u00e1 Fred, en hugsa\u00f0i sig of lengi um og unglingurinn \u00ed V\u00edkingsmarkinu n\u00e1\u00f0i a\u00f0 verja \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu stundu. Eftir a\u00f0 seinni h\u00e1lfleikur var h\u00e1lfna\u00f0ur f\u00f3ru st\u00f3rs\u00f3kningar a\u00f0 bylja \u00e1 Frammarkinu. Viktor og varnarl\u00ednan \u00feurfu \u00ed s\u00edfellu a\u00f0 bjarga \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu stundu. Tv\u00e6r risav\u00f6rslur fr\u00e1 Viktori h\u00e9ldu okkur inni \u00ed leiknum en svo kom hi\u00f0 \u00f3umfl\u00fdjanlega: varama\u00f0ur af bekknum kom V\u00edkingum \u00ed 1:2 eftir a\u00f0 v\u00f6rninni haf\u00f0i veri\u00f0 r\u00e6kilega splundra\u00f0. Enginn gat sagt neitt vi\u00f0 \u00feessu.<\/p><p>Beint \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 kom fyrsta skipting Framara. M\u00e1r leysti R\u00f3bert af h\u00f3lmi og einhverjum fimm m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar var\u00f0 tv\u00f6f\u00f6ld skipting me\u00f0 Gumma og Tryggva inn\u00e1 fyrir Frey og Kyle. \u00deessi \u00f3neitanlega s\u00f3knarsinna\u00f0a breyting haf\u00f0i nokku\u00f0 a\u00f0 segja. Fr\u00e9ttaritarinn hefur \u00e1\u00f0ur kalla\u00f0 eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 Tryggvi komi meira vi\u00f0 s\u00f6gu \u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 hann er a\u00f0 jafna sig \u00e1 \u00feessum langvinnu mei\u00f0slum. Hann f\u00e9kk \u00f6rf\u00e1ar m\u00edn\u00fatur \u00e1 m\u00f3ti Aftureldingu og skila\u00f0i s\u00ednu me\u00f0 pr\u00fd\u00f0i. Sama ger\u00f0ist a\u00f0 \u00feessu sinni \u2013 og Gummi var duglegur a\u00f0 sl\u00e1st um skallabolta vi\u00f0 gestina. Flestir fylgdust \u00fe\u00f3 bara me\u00f0 t\u00edmanum renna \u00fat h\u00e6gt og b\u00edtandi. Fram f\u00e9kk f\u00e1einar hornspyrnur en l\u00e9t aldrei reyna \u00e1 unga V\u00edkingsmarkv\u00f6r\u00f0inn. Vi\u00f0b\u00f3tart\u00edminn var fj\u00f3rar m\u00edn\u00fatur.<\/p><p>\u00deegar fj\u00f3r\u00f0a m\u00edn\u00fatan var n\u00e1lega li\u00f0in, \u00e1kva\u00f0 einn V\u00edkingurinn a\u00f0 skynsamlegt v\u00e6ri a\u00f0 hlaupa undir Framara sem kom flj\u00fagandi r\u00e9tt fyrir utan v\u00edtateiginn. Skr\u00edbent F\u00f3tbolta-punkts-nets telur a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi veri\u00f0 Sigurj\u00f3n sem keyr\u00f0ur var \u00ed j\u00f6r\u00f0ina, en fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar punkta\u00f0i ni\u00f0ur nafn Bystr\u00f6ms. \u00dea\u00f0 skiptir \u00fe\u00f3 ekki m\u00e1li. \u00cd\u00fer\u00f3ttaarmi H\u00fasasmi\u00f0junnar var amk st\u00f3rlega misbo\u00f0i\u00f0 a\u00f0 hafa ekki komist upp me\u00f0 \u00feetta ofbeldisverk og \u00e1kv\u00e1\u00f0u V\u00edkingar a\u00f0 ey\u00f0a orkunni fremur \u00ed a\u00f0 tu\u00f0a yfir d\u00f3mnum en a\u00f0 stilla upp \u00ed varnarvegg. (H\u00f6skuldarvi\u00f0v\u00f6run: \u00fea\u00f0 var ekki mj\u00f6g skynsamlegt af \u00feeim.)<\/p><p>Erum vi\u00f0 ekki a\u00f0 fara a\u00f0 skora? Umr\u00e6\u00f0urnar \u00e1 p\u00f6llunum voru \u00e1kafar. Hver \u00e6tti a\u00f0 skj\u00f3ta? Halli? Tibbling var \u00fearna \u00e1 vappinu og \u00deorri l\u00edka&#8230; niii&#8230; var \u00fea\u00f0 ekki alltaf a\u00f0 fara a\u00f0 vera Kennie?<\/p><p>Og au\u00f0vita\u00f0 var \u00fea\u00f0 Kennie sem einfaldlega smeyg\u00f0i boltanum \u00ed gegnum varnarvegginn og markhorni\u00f0 \u2013 \u00f3verjandi fyrir s\u00f3lblinda\u00f0an unglinginn me\u00f0 derh\u00fafuna \u00e1 hausnum. \u00d3 hva\u00f0 vi\u00f0 sungum. \u00d3 hva\u00f0 vi\u00f0 hr\u00f3pu\u00f0um \u2013 og \u00fe\u00f3tt Skjaldsveinninn og markapelinn v\u00e6ru austur \u00e1 landi \u00e1 Br\u00e6\u00f0slunni, \u00fe\u00e1 var hlegi\u00f0 og klappa\u00f0 alla lei\u00f0 heim \u00ed Hl\u00ed\u00f0ar \u00e1 n\u00e6stmesta-lukkub\u00edl Adda \u00far bankanum. RRB getur veri\u00f0 versta keppni \u00ed heimi, en h\u00fan getur l\u00edka veri\u00f0 s\u00fa langskemmtilegasta.<\/p><p>N\u00e6sti leikur er heima gegn Stj\u00f6rnunni. Fr\u00e9ttaritarinn hefur \u00f6\u00f0rum hn\u00f6ppum a\u00f0 hneppa en Skjaldsveinninn \u00e6tti a\u00f0 vera kominn heim fr\u00e1 hipsterarokkt\u00f3nleikunum og getur hripa\u00f0 ni\u00f0ur sk\u00fdrslu.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<br \/><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"alignnone size-full wp-image-44796\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/07\/Viktor-.jpg\" alt=\"\" width=\"799\" height=\"533\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/07\/Viktor-.jpg 799w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/07\/Viktor--300x200.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/07\/Viktor--768x512.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/07\/Viktor--18x12.jpg 18w\" sizes=\"(max-width: 799px) 100vw, 799px\" \/><\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>S\u00ed\u00f0ustu misserin hafa vi\u00f0ureignir Fram og V\u00edkinga \u00ed Bestu deildinni gengi\u00f0 undir skammst\u00f6funinni RRB. \u00dea\u00f0 er stytting fyrir R\u00e9ttarmor\u00f0s- og rangleitnisbikarinn og gengur nokkurn veginn \u00fat \u00e1 a\u00f0 Framarar eru [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":44835,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-44829","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/07\/Kenny-gegn-Vikingi-mark.jpg","_links":{"self":[{"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/44829","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=44829"}],"version-history":[{"count":4,"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/44829\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":44833,"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/44829\/revisions\/44833"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/44835"}],"wp:attachment":[{"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=44829"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=44829"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=44829"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}