{"id":47676,"date":"2026-04-17T23:29:26","date_gmt":"2026-04-17T23:29:26","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=47676"},"modified":"2026-04-17T23:29:52","modified_gmt":"2026-04-17T23:29:52","slug":"hannyrdir","status":"publish","type":"post","link":"http:\/\/fram.is\/is\/2026\/04\/17\/hannyrdir\/","title":{"rendered":"Hannyr\u00f0ir"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"47676\" class=\"elementor elementor-47676\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-7c85f85a elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"7c85f85a\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-2ed829d4\" data-id=\"2ed829d4\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-f09abcd elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"f09abcd\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p>\u00deegar fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar var ungur drengur \u00ed grunnsk\u00f3la fyrir hundra\u00f0 \u00e1rum s\u00ed\u00f0an, f\u00f3r hannyr\u00f0akennslan fram \u00ed einni bj\u00f6rtustu og fallegustu sk\u00f3lastofunni \u00e1 su\u00f0urgafli sk\u00f3labyggingarinnar. \u00cd almennu tali voru kennslustundir \u00feessar aldrei kalla\u00f0ar anna\u00f0 en prj\u00f3n. \u00de\u00e6r gengu \u00fat \u00e1 a\u00f0 kenna gr\u00edslingunum a\u00f0 prj\u00f3na undir stj\u00f3rn kennslukonu sem \u00e1tti l\u00edklega vi\u00f0 \u00e1fengisvandam\u00e1l a\u00f0 str\u00ed\u00f0a og var jafnvel ekki vi\u00f0r\u00e6\u00f0uh\u00e6f heilu og h\u00e1lfu kennslustundirnar. Ekki a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi skipt miklu m\u00e1li. Hlutverk hennar var \u00ed raun bundi\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 l\u00edta yfir prj\u00f3nlesi\u00f0 sem okkur haf\u00f0i veri\u00f0 gert a\u00f0 kl\u00e1ra heima vi\u00f0 \u00fe\u00e1 vikuna \u2013 og rekja upp af fullkomnum tilfinningalegum kulda \u00fea\u00f0 sem ekki var tali\u00f0 n\u00e6gilega vel gert, fyrir framan okkur hin. \u00deeir heppnu n\u00e1\u00f0u a\u00f0 kl\u00e1ra trefil. Samviskus\u00f6mu stelpurnar n\u00e1\u00f0u a\u00f0 prj\u00f3na k\u00f6tt.<\/p><p>Hver er tenging \u00feessarar s\u00f6gu vi\u00f0 leik Fram og Keflav\u00edkur \u00e1 Salatinu \u00ed Dal draumanna? J\u00fa, leikmenn fram s\u00fdndu \u00e1 l\u00f6ngum k\u00f6flum mikla f\u00e6rni \u00ed a\u00f0 prj\u00f3na sig \u00ed gegnum Keflav\u00edkurv\u00f6rnina, \u00fe\u00f3tt mj\u00f6g misjafnt v\u00e6ri hverju \u00fea\u00f0 skila\u00f0i. Of sl\u00f6pp tenging? \u00deetta er samt \u00fea\u00f0 besta sem er \u00ed bo\u00f0i \u00e1 f\u00f6studagskv\u00f6ldi.<\/p><p>Fr\u00e9ttaritarinn t\u00f3k lei\u00f0 18 \u00far Hl\u00ed\u00f0unum og \u00feurfti a\u00f0 leggja snemma af sta\u00f0 enda leikt\u00edminn fur\u00f0usnemma, sem bitna\u00f0i \u00fe\u00f3 ekki \u00e1 m\u00e6tingu. 800 manns, \u00fe\u00f3tt gestirnir v\u00e6ru f\u00e1ir. Greinilegt a\u00f0 fj\u00f6lskylduf\u00f3lki\u00f0 \u00ed hverfinu kann a\u00f0 meta \u00feennan t\u00edma, hva\u00f0 svo sem okkur g\u00f6mlu hundunum kann a\u00f0 finnast. Fyrstu gestirnir voru m\u00e6ttir \u00ed f\u00ednumannasamkv\u00e6mi\u00f0 \u00fear sem bo\u00f0i\u00f0 var upp \u00e1 lasagne og l\u00e9ttar veitingar. Fr\u00e9ttaritarinn var h\u00e1lf umkomulaus. Rabbi trymbill var upptekinn og skjaldsveinninn Valur Nor\u00f0ri \u00ed einhverju dagpeningaharki \u00ed \u00fatlandinu. \u00dea\u00f0 var \u00fe\u00f3 einvalali\u00f0 samankomi\u00f0 \u00ed \u00fats\u00fdnisst\u00fakunni. R\u00fanar \u00fej\u00e1lfari m\u00e6tti og sta\u00f0festi \u00fear sem fram haf\u00f0i komi\u00f0 \u00e1 netinu: a\u00f0 byrjunarli\u00f0i\u00f0 yr\u00f0i \u00fea\u00f0 sama og s\u00ed\u00f0ast. Viktor \u00ed marki. Kyle, Sigurj\u00f3n og \u00deorri mi\u00f0ver\u00f0ir. Halli og Kennie \u00ed bakv\u00f6r\u00f0um (nema allir vita au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 Kennie er ekki \u00ed neinni fastri st\u00f6\u00f0u \u00ed li\u00f0inu heldur er hann n\u00e1tt\u00faruafl sem hleypur \u00feanga\u00f0 sem hans er helst \u00fe\u00f6rf hverju sinni). Freyr, Simon og Israel \u00e1 mi\u00f0junni. Vuk og Atli frammi. G\u00f3\u00f0u fr\u00e9ttirnar voru a\u00f0 Fred og \u00c6gir Jarl voru komnir \u00e1 bekkinn og l\u00edklegir til a\u00f0 koma vi\u00f0 s\u00f6gu.<\/p><p>\u00deegar l\u00ed\u00f0a t\u00f3k a\u00f0 leik r\u00f6lti fr\u00e9ttaritarinn ni\u00f0ur \u00ed st\u00faku. \u00dear sem hann var b\u00fainn a\u00f0 hengja sig \u00e1 \u00fe\u00e1 f\u00e9lagana nafna sinn og \u00deorbj\u00f6rn Atla (fr\u00fa Ragnhei\u00f0ur m\u00e6tti sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar) var ekki \u00ed bo\u00f0i a\u00f0 sitja. \u00deorbj\u00f6rn Atli er of stressa\u00f0ur \u00e1 f\u00f3tboltaleikjum til a\u00f0 sitja kyrr, heldur stendur hann gengt mi\u00f0l\u00ednunni. \u00dea\u00f0 er svo sem f\u00ednt sj\u00f3narhorn, en gerir \u00fea\u00f0 erfi\u00f0ara a\u00f0 taka ni\u00f0ur punkta me\u00f0an \u00e1 leik stendur. Hitastigi\u00f0 var f\u00ednt og enginn merkjanlegur vindur. J\u00f3n Sveinsson gat ekki stillt sig um a\u00f0 skj\u00f3ta \u00e1 fr\u00e9ttaritarann fyrir a\u00f0 vera \u00f3venjulega d\u00fa\u00f0a\u00f0ur \u00ed gr\u00e1u ullarpeysunni, en l\u00f6ng reynsla hefur kennt a\u00f0 vi\u00f0sj\u00e1rvert er a\u00f0 treysta apr\u00edlkv\u00f6ldum \u00e1 \u00edslenskum f\u00f3tboltaleikjum.<\/p><p>B\u00e6\u00f0i li\u00f0 fengu nokkur h\u00e1lff\u00e6ri \u00ed leikbyrjun. S\u00f3knarmennirnir virtust m\u00e6ta betur innstilltir en varnarmennirnir. Keflav\u00edk f\u00e9kk fr\u00edan skalla framhj\u00e1 og \u00ed tv\u00edgang skapa\u00f0ist h\u00e6tta eftir darra\u00f0ardans \u00ed v\u00edtateig \u00feeirra. \u00cdsinn var hins vegar brotinn \u00e1 elleftu m\u00edn\u00fatu \u00feegar Vuk f\u00e9kk langa sendingu upp kantinn, sem hann virtist \u00e6tla a\u00f0 missa af, \u00feess \u00ed sta\u00f0 hlj\u00f3p hann upp a\u00f0 endam\u00f6rkum, t\u00f3k varnarmanninn \u00e1, keyr\u00f0i a\u00f0 marki og planta\u00f0i boltanum \u00ed fj\u00e6rhorninu. Vondur varnarleikur gestanna er t\u00e6r snilld fr\u00e1 okkar allra besta Vuk, sem vir\u00f0ist \u00e6tla a\u00f0 taka upp \u00fer\u00e1\u00f0inn fr\u00e1 \u00fev\u00ed fyrir mei\u00f0slin \u00e1 s\u00ed\u00f0asta t\u00edmabili sem einn sk\u00e6\u00f0asti framherji deildarinnar.<\/p><p>N\u00e6stu 2-3 m\u00edn\u00faturnar m\u00e1tti litlu muna a\u00f0 Framarar b\u00e6ttu vi\u00f0 marki e\u00f0a tveimur. \u00cd \u00f6\u00f0ru tilvikinu var\u00f0i Keflav\u00edkusvarkv\u00f6r\u00f0urinn fr\u00e1b\u00e6rlega skot fr\u00e1 Frey. Framarar g\u00e1tu prj\u00f3na\u00f0 sig \u00ed gegnum v\u00f6rn gestanna n\u00e1nast a\u00f0 vild \u2013 en myndi hi\u00f0 mikilv\u00e6ga anna\u00f0 mark l\u00edta dagsins lj\u00f3s? Freyr var \u00ed st\u00f3ru hlutverki \u00e1 \u00feessum t\u00edmapunkti og er hratt a\u00f0 endurheimta form sitt fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed fyrra. Hann t\u00f3k allar okkar hornspyrnur og \u00fe\u00e6r sk\u00f6pu\u00f0u undantekningarl\u00edti\u00f0 h\u00e6ttu. Gestirnir minntu \u00fe\u00f3 reglulega \u00e1 sig og eftir a\u00f0 hafa varla komist yfir mi\u00f0ju\u00a0 \u00ed kort\u00e9r t\u00f3kst Keflv\u00edkingum a\u00f0 bruna upp \u00e1 37. m\u00edn\u00fatu og setja boltann \u00ed Framneti\u00f0, sem var \u00fe\u00f3 d\u00e6mt af vegna t\u00e6prar rangst\u00f6\u00f0u<\/p><p>Flauta\u00f0 var til leikhl\u00e9s og striki\u00f0 aftur teki\u00f0 \u00ed f\u00ednumannast\u00fakuna. Stemningin var \u00e1g\u00e6t \u00ed hl\u00e9i en margir Framarar \u00fe\u00f3 brenndir af \u00fev\u00ed a\u00f0 Keflav\u00edk hefur margoft \u00e1 li\u00f0num \u00e1rum umhverfst \u00ed Brasi\u00edu \u00e1 m\u00f3ti Fram og skora\u00f0 a\u00f0 vild. Hva\u00f0 ger\u00f0ist n\u00fa?<\/p><p>R\u00daV-arinn \u00deorkell Gunnar var m\u00e6ttur me\u00f0 kjarnafj\u00f6lskylduna eftir hl\u00e9. \u00dea\u00f0 hva\u00f0 hann sem fj\u00f6lskyldufa\u00f0ir var peppa\u00f0ur fyrir leikt\u00edmanum ger\u00f0i \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 fr\u00e9ttaritarinn \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 endursko\u00f0a rant sitt um hva\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri glata\u00f0ur t\u00edmi. \u00d6llum bar saman um a\u00f0 Atli \u00de\u00f3r hef\u00f0i veri\u00f0 fr\u00e1b\u00e6r \u00ed framl\u00ednunni fyrir hl\u00e9 en a\u00f0 n\u00fa v\u00e6ri fari\u00f0 a\u00f0 draga allverulega af honum. Hva\u00f0a bjargir hef\u00f0i R\u00fanar \u00e1 bekknum \u00fe\u00e1 \u2013 einkum \u00ed lj\u00f3si leikbanns Bystr\u00f6ms eftir r\u00e9ttarmor\u00f0i\u00f0 gegn Skagam\u00f6nnum?<\/p><p>Bollaleggingar \u00feessar voru snarlega rofnar \u00e1 49. m\u00edn\u00fatu \u00feegar Fram tv\u00f6lfalda\u00f0i forystuna eftir fr\u00e1b\u00e6rt samspil tveggja bestu manna leiksins. Freyr \u00e1tti flotta sendingu \u00e1 Vuk sem skora\u00f0i snyrtilega framhj\u00e1 Keflv\u00edkingum. Sta\u00f0an 2:0 og \u00f6ll g\u00e1tu varpa\u00f0 \u00f6ndinni l\u00e9ttar.<\/p><p>Framarar fengu n\u00e6rri \u00fev\u00ed \u00feri\u00f0ja marki\u00f0 \u00e1 silfurfati \u00f6rsk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar \u00feegar markv\u00f6r\u00f0ur Kef negldi boltanum \u00ed Atla en fr\u00e1kasti\u00f0 skoppa\u00f0i r\u00e9tt framhj\u00e1 markinu. Nokkrum m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar komst Atli svo aftur \u00ed dau\u00f0af\u00e6ri eftir g\u00f3\u00f0an undib\u00faning fr\u00e1 Frey og Vuk.<\/p><p>Fyrsta skipting Framara var eftir klukkut\u00edma leik. \u00c6gir kom inn\u00e1 fyrir Israel og var n\u00e6rri b\u00fainn a\u00f0 skora tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar. Stundarfj\u00f3r\u00f0ungi s\u00ed\u00f0ar f\u00f3r svo framherjapari\u00f0 Vuk og Atli af velli en Fred og Mingi komu inn \u00ed sta\u00f0inn. Gaman var a\u00f0 sj\u00e1 Fred \u00ed svona marks\u00e6knu hlutverki, eftir a\u00f0 hann var\u00f0i mest\u00f6llu s\u00ed\u00f0asta t\u00edmabili sem varnarsinna\u00f0ur mi\u00f0juma\u00f0ur. Ver\u00f0ur 2026 \u00e1ri\u00f0 \u00fear sem vi\u00f0 sj\u00e1um brasil\u00edska t\u00f6framanninn aftur \u00ed fremstu v\u00edgl\u00ednu?<\/p><p>Keflv\u00edkingar h\u00f6f\u00f0u ekki s\u00fdnt minnstu merki um a\u00f0 gera sig gildandi \u00ed leiknum en \u00e1 77. m\u00edn\u00fatu minnku\u00f0u \u00feeir muninn n\u00e1nast upp \u00far engu og Framv\u00f6rnin leit ekki s\u00e9rlega vel \u00fat. Var allt \u00e1 lei\u00f0inni \u00ed skr\u00fafuna? T\u00e6kist okkur a\u00f0 glutra ni\u00f0ur \u00f6ruggri forystu? \u00deegar \u00ferj\u00e1r m\u00edn\u00fatur lif\u00f0u af venjulegum leikt\u00edma f\u00e9kk Freyr loksins hv\u00edldina og Baddi \u2013 Bjarni P\u00e1ll \u2013 leysti hann af h\u00f3lmi. \u00cd uppb\u00f3tart\u00edma \u00e1tti hann eftir a\u00f0 kl\u00e1ra leikinn endanlega me\u00f0 bylmingsskoti \u00ed \u00feakneti\u00f0 eftir snarpa atl\u00f6gu fr\u00e1 Fred. <br \/>Fram 3 : Keflav\u00edk 1. Vi\u00f0 erum li\u00f0i\u00f0 sem skorum alltaf \u00ferj\u00fa m\u00f6rk \u2013 sem \u00e6tti a\u00f0 skila einhverjum stigum \u00ed h\u00fas. <br \/>N\u00e6sti leikur er nyr\u00f0ra, gegn \u00de\u00f3r \u00e1 mi\u00f0vikudag. Fr\u00e9ttaritarinn er \u00e1 b\u00f3lakafi \u00ed kosningabar\u00e1ttu og hefur ekki enn manna\u00f0 sig upp \u00ed a\u00f0 segja kosningastj\u00f3ranum a\u00f0 hann langi a\u00f0 skr\u00f3pa \u00e1 alla kosningafundi en keyra \u00feess \u00ed sta\u00f0 til Akureyrar \u00fear sem n\u00e1kv\u00e6mlega enginn hefur kosningar\u00e9tt til borgarstj\u00f3rnar&#8230; en sj\u00e1um hva\u00f0 setur.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deegar fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar var ungur drengur \u00ed grunnsk\u00f3la fyrir hundra\u00f0 \u00e1rum s\u00ed\u00f0an, f\u00f3r hannyr\u00f0akennslan fram \u00ed einni bj\u00f6rtustu og fallegustu sk\u00f3lastofunni \u00e1 su\u00f0urgafli sk\u00f3labyggingarinnar. \u00cd almennu tali voru kennslustundir \u00feessar [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":47677,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[11],"tags":[],"class_list":["post-47676","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-mflkarla"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2026\/04\/Vug-gegn-Keflavik-.jpg","_links":{"self":[{"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/47676","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=47676"}],"version-history":[{"count":4,"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/47676\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":47681,"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/47676\/revisions\/47681"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/47677"}],"wp:attachment":[{"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=47676"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=47676"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"http:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=47676"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}