Handboltakrakkar úr 4. og 5. fl. Fram ætla að bjóða íbúum Grafarholts, Úlfarsárdal og Háaleitishverfis að sækja jólatré að hátíð lokinni gegn 1.000,- kr. greiðslu.
Hægt er að senda beiðni á handbolti@fram.is eða í síma 863-1283. Gefa skal upp nafn, heimilisfang og síma. Hægt er að millifæra á reikning Fram 0114-15-380422 kt. 480604-2450 eða að hafa greiðslu til reiðu þegar krakkarnir koma að sækja jólatréð.
Samhliða þessari söfnun munu þessi hressu krakkar safna dósum og flöskum og því tilvalið fyrir fólk að slá tvær flugur í einu höggi og losa sig við bæði auk þess að styrkja gott málefni.
Unglingaráð Handknattleiksdeildar FRAM