fbpx
vedís vefur

Védís Gissurardóttir endurnýjar samning sinn við FRAM

Védís GissurardóttirHandknattleiksdeild FRAM og Védís Gissurardóttir hafa endurnýjað samning sín á milli um að Védís leiki áfram með FRAM.  Samningur FRAM og Védísar er til tveggja ára.
Védís er fædd árið 1996 og verður því 19 ára á þessu ári.
 Védís er markmaður og er uppalin hjá FRAM og hefur leikið allan sinn feril hjá félaginu og hefur leikið stórt hlutverk í yngri flokkum FRAM undanfarin ár. Védís kom inní æfingahóp meistaraflokks kvenna síðasta vetur og kom við sögu í fimm leikjum með meistaraflokki í OLÍS deildinni. Védís meiddist um miðjan síðast liðin vetur og fór seinni hluti vetrarins í endurhæfingu. Védís er nú hins vegar að komast á fullt og verður vonandi á fullu með meistaraflokki FRAM næsta vetur.
Það er ánægjuefni fyrir Handknattleiksdeild FRAM að tilkynna að Védís verði áfram í herbúðum félagsins næstu tvö árin og væntum við mikils af henni í framtíðinni.

ÁFRAM FRAM

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0