fbpx
Flotta stelpur vefur

Sumarskóli FRAM Grafarholti og Úlfarsárdal og sumaræfingatímar í fótbolta

SUMARNÁMSKEIÐ FRAM 2019 Grafarholt og Úlfarsárdalur
Knattspyrnuskóli FRAM og Íþróttaskóli FRAM eru starfræktir í Grafarholti og Úlfarsárdal í sumar. Þar býður félagið upp á öruggt umhverfi og góða aðstöðu í hjarta hverfisins. Námskeiðin fara fram í og við Ingunnarskóla en ef veður er vont þá verða æfingar færðar inn í íþróttahús Ingunnarskóla. Knattspyrnuskólinn verður starfræktur á æfingasvæði FRAM í Úlfarsárdal. Handboltanámskeiðið er haldið í íþróttahúsi Ingunnarskóla.

 ÍÞRÓTTASKÓLI  FRAM
Íþróttaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 5-10 ára sem hafa gaman af íþróttum og útivist.  Farið verður í fjölbreytta og skemmtilega leiki, hinar ýmsu íþróttagreinar kynntar og einnig verður farið í stuttar ferðir.  Skólinn verður rekinn samhliða knattspyrnuskólanum þannig að einstaklingar geta valið hvort þeir eru eingöngu í knattspyrnu eða vilja hafa mikla fjölbreytni.
Hvert námskeið stendur í 2 vikur frá kl. 09:00-16:00 alla virka daga.  Jafnframt er boðið upp á hálfsdagsnámskeið frá kl. 09:00-12:00 og kl. 13:00-16:00. Hægt er að velja fyrir eða eftir hádegi,  einnig knattspyrnuskóla eftir hádegi og íþróttaskóla fyrir hádegi. Ekki verður boðið upp á heitan mat og þurfa börnin að koma með nesti.
Boðið verður upp á gæslu í Ingunnarskóla  frá kl. 07:45-09:00 og kl. 16:00-16:30.

Námskeið 1.  07 -21. júní     09:00-16:00 (9 dagar)
Námskeið 2.  24 – 05. Júlí    09:00-16:00
Námskeið 3.  08 – 19. júlí     09:00-16:00
Námskeið 4.  22 – 26. júlí     09:00-16:00 (viku námskeið).

HANDBOLTASKÓLI FRAM
Handboltaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 6-14 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig.  Námskeiðið stendur í 1 viku, frá kl. 09:00-12:00 (börn fædd 2007-2010) og 13:00-16:00 (börn fædd 2003-2006) virka daga.  Námskeiðið fer fram í íþróttahúsi Ingunnarskóla. Kennarar eru íþróttamenntaðir og handboltaþjálfarar hjá FRAM.

Námskeið 1.   12 –  16. ágúst         09:00-12:00   (börn fædd 2009-2012).

KNATTSPYRNUSKÓLI FRAM
Knattspyrnuskóli FRAM er fyrir stráka og stelpur á aldrinum 5-12 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig. Mikil áhersla er lögð á leikformið hjá yngstu þátttakendunum en meiri sérhæfing og tækni hjá þeim eldri.  Hvert námskeið stendur í 2 vikur, frá kl. 13:00-16:00 alla virka daga.
Boðið er upp á gæslu í félagsheimili FRAM í Úlfarsárdal frá kl.12:15 og er það  innifalið í gjaldinu.

Námskeið 1.  07 -21. júní     13:00-16:00 (9 dagar)
Námskeið 2.  24 – 05. Júlí    13:00-16:00
Námskeið 3.  08 – 19. júlí     13:00-16:00
Námskeið 4.  22 – 26. júlí     13:00-16:00 (viku námskeið).

KNATTSPYRNUÆFINGAR  SUMAR 2019
8. fl. ka og kv.  þriðjud. og fimmtud. kl. 17:10, nánar síðar.
7. fl. ka og kv.  mán-þri-mið og fimmtud. kl. 11:15-12:15
6. fl. ka og kv.  mán-þri-mið og fimmtud. kl. 09:00-10:00
5. fl. ka og kv.  mán-þri-mið og fimmtud. kl. 10:00-11:00
4. fl. ka             mán-þri-mið og fimmtud. kl. 12:45-14:00

Skráning

Skráning hefst  2. maí og fer fram á heimasíðu FRAM www.fram.is. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum Nóra skráningarkerfi FRAM.

Námskeiðsgjald í knattspyrnuskóla og íþróttaskóla ½ dagur er kr. 11.000.-

Íþróttaskóli 09:00-16:00  kr. 21.000.-

Námskeiðsgjald í handboltaskóla er kr. 6000.-  (5 dagar).

Veittur er 10% systkinaafsláttur og einnig er veittur 10% afsláttur ef keypt eru fleiri en eitt námskeið. Innifalið í verði er: Gæsla, bolur, veisla í lok hvers námskeiðs og skemmtilegt námskeið unnið af fagfólki.

Allar nánari upplýsingar um námskeið á vegum FRAM er hægt að fá í síma 587-8800 skrifstofa FRAM í Úlfarsárdal og 533-5600 skrifstofa FRAM í Safamýri milli kl 09:00 og 16:00 og í gegnum tölvupóst  toti@fram.is og dadi@fram.is

Í von um gott samstarf í sumar

Daði Guðmundsson íþróttafulltrúi FRAM  Grafarholti og Úlfarsárdal

Birt með fyrirvara um innsláttarvillur og ófyrirséðar breytingar.

 

 

 

 

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!