Handknattleiksdeild Fram hefur gert þriggja ára samning við Katrínu Önnu Ásmundsdóttur, sem kemur frá Gróttu.
Katrín Anna er öflugur hornamaður og átti mjög gott tímabil með Gróttu í Olísdeildinni á liðnu tímabili, þar sem hún skoraði 57 mörk í 21 leik. Hún er jafnframt í íslenska landsliðinu og hefur sýnt stöðugan vöxt og metnað á síðustu árum.
Fram fagnar því að fá leikmann af þessum gæðum í hópinn og hlakkar til að sjá Katrínu Önnu í bláa búningnum á komandi leiktíð.
Velkomin í Fram, Katrín Anna!
