Nýtt hjá Fram – Rafíþróttir í samstarfi við Next Level Gaming – skráning hefst 1. jan. 2026.
Rafíþróttir hefja göngu sína í samstarfi við Next Level Gaming.
Fram kynnir með stolti nýtt og spennandi skref – rafíþróttir eru nú að hefjast hjá félaginu fyrir iðkendur á aldrinum 7–16 ára.
Æfingarnar fara fram í samstarfi við Next Level Gaming í Egilshöll og er þar boðið upp á öruggt og faglegt umhverfi þar sem áhersla er lögð á samvinnu, samskipti og góða félagsfærni í gegnum leik.
Rafíþróttir henta bæði byrjendum og þeim sem hafa reynslu og vilja þróa leikni, sjálfstraust og liðsheild. Skráning hefst strax eftir áramót.
Fram hlakkar til að opna nýjan og metnaðarfullan kafla í starfinu og bjóða iðkendum velkomna í rafíþróttir.
Boðið verður upp á æfingar í 3 hópum eftir aldri og áhugasviði. Hægt verður að æfa 1x eða 2x í viku. Æfingar fara fram í Egilshöll. Sjá æfingatöflu.
Æfingar hefjast mánudaginn 12. jan. 2026.