fbpx
Róbert gegn FH

Við hlandskálina

Á þessum degi fyrir þrettán árum stóð fréttaritari Framsíðunnar (sem þó var ekki enn orðinn fréttaritari Framsíðunnar) við hlandskálarnar á Laugardalsvelli. Það var hálfleikur í bikarúrslitaleik Fram og Stjörnunnar og staðan var 2:0 fyrir ófétunum. Tveimur skálum frá stóðu tveir kokrosknir Garðbæingar og annar spurði hinn: „hvað er aftur metið fyrir sigur í bikarúrslitaleik?“ Þeir ræddu málið fram og til baka og komust að þeirri niðurstöðu að líklega væri það 4:0 sigur Fram gegn Víði Garði (lokatölur voru í raun 5:0). Í hlaðvarpsútgáfu þessa samtals hefði rödd Veru Illugadóttur drunið úr loftinu og sagt: „Hér fögnuðu Stjörnumenn aðeins of snemma…“ – Við sem lifðum gleymum ekki seinni hálfleiknum, framlengingunni og vítaspyrnukeppninni þar sem Almarr Ormarsson og Ögmundur Kristinsson áttu leik lífs síns og Framarar urðu bikarmeistarar…

Á þessum merkingarþrungna degi fór fréttaritarinn með leið 18 á Framvöllinn og var mættur vandræðalega snemma. Vallarverðir voru rétt að opna hliðin, en Garðar fyrrum sendiráðsbílstjóri var kominn á sama tíma. Í fínumannastúkunni var valinkunnur skríllinn sem horfði á Valsmenn í tómu tjóni á móti Akureyringum og gúffaði í sig snitslel með rauðkáli og grænum baunum. Liðsuppstillingin var kynnt og Fram tefldi fram öflugu lið. Vitkor í marki. Þorri, Sigurjón og Kyle í hafsentum. Kennie og Halli bakverðir. Ægir í sexunni og Freyr og Fred fyrir framan hann á miðjunni. Róbert og Vuk frammi.

Eftir að hafa dröslað sér úr fínumannaboðinu í almenninginn í Bar8unni hitti fréttaritarinn skjaldsveininn og Kristján Frey trymbil. Saman bröltu þeir niður í stúku. Trymbillinn settist innan um Geiramenn en fréttaritarinn og skjaldsveinninn á kunnuglegum slóðum í miðri stúkunni. Þangað mættu líka Rabbi trymbill og yngri sonurinn sem hafði klætt sig í Luton-treyjuna sína gagngert til að gleðja gamla manninn. Börnin í dag eru svo vel upp alin!

Framliðið byrjaði miklu betur og strax á fjórðu mínútu átti Róbert fína sendingu á Fred sem lyfti boltanum inn í teig en Stjörnumarkvörðurinn sló frá. Tónninn var sleginn og atlögur Framara buldu á Stjörnumarkinu. Á níundu mínútu prjónaði Freyr sig upp að endamörkum, sendi fyrir en Vuk vantaði tvö skónúmer uppá að pota boltanum í netið. Mínútu síðar var Fred nærri því að skora. Framarar hefðu hæglega getað verið komnir þremur mörkum yfir eftir tólf mínútur en þá kom loksins fyrsta markið. Kennie átti góða stungu á Fred uppi við endamörk sem sendi fyrir markið og Róbert kom aðvífandi og skaðir, 1:0!

Eftir markið fengu Framarar aragrúa færa til að til að auka forystuna. Hálfeigingjarnt skot frá Fred í stað þess að senda fyrir markið rataði framhjá á fimmtándu míntúm og beint í framhaldinu átti Þorri glæsilega sendingu í gegnum vörnina sem Kennie stökk yfir, boltinn rataði á Fred en skot hans fór naumlega yfir. Rétt í kjölfarið átti Freyr góða sendingu fyrir markið sem Vuk missti naumlega af. Þeir Róbert og Vuk þjörmuðu svo sameiginlega að Stjörnumarkmu á 21. mínútu en  allt kom fyrir ekki. Það var þó ekki eins og gestirnir fengju engin tækifæri því á sömu mínútu small boltinn í þverslá og stöng Frammarksins eftir góða sóknarlotu.

Um miðbiki fyrri hálfleiks virtist Stjarnan vera að koma óþarflega mikið til baka eftir að hafa verið úti á þekju frameftir leik. Engar þessara sókna skiluðu þó nokkrum árangri.

Eftir hálftíma leik reif Vuk sig í gegnum Stjörnuvörnina, var groddalega togaður niður án þess að neitt væri dæmt, en kom boltanum þó á Róbert sem átti hálfmáttlítið skot að marki. Fram hélt áfram að vaða í færum. Á 32. mínútu tók Fred frábæra aukaspyrnu sem virtist ætla að rata beint á Kennie, langfremstan í markteig andstæðinganna, en hann virtist kinksa úr galopnu færi. Kæruleysið í sóknarnýtingunni átti eftir að bíta Framara í rassinn og á 34. mínútu skoppaði hættilítil fyrirgjöf í gegnum vítateig Framliðsins og hrökk þaðan í netið, eftir að markvörður og varnarmenn Fram höfðu gjörsamlega sofnað á verðinum 1:1.

Voru Framarar virkilega að fara að fokka upp gjörunnum leik og gera hann spennandi með augnablikskæruleysi? Þær spurningar urðu áleitnari tveimur mínútum eftir markið þar sem kæruleysislegt samspil Viktors og Þorra var næstum búið að enda með ósköpum. Blessunarlega náði leikurinn aftur að rata á rétt ról. Frábær stungusending frá Vuk yfir á Róbert skilaði glæsilegu marki úr þröngri stöðu á 39. mínútu. Róbert og Vuk áttu báðir frábæran leik í kvöld og verðskulda mesta hrós.

Flautað var til hálfleiks og leiðin lá í Bar8una þar sem rýnt var í svipmyndir. Komið var fram í seinni hálfleik þegar haldið var aftur niður í stúku. Þá hafði Fred lagst á völlinn, líklega örlítið hnjaskaður eftir átökin. Már kom inná í hans stað sem reyndist frábær ráðstöfun. Á næstu mínútum komst Vuk í fínt færi og lagði svo upp fyrir Róbert og Má fáeinum mínútujm síðar.  Á 62. mínútu kom svo þriðja markið. Viktor greip boltann eftir sóknarlotu Garðbæinga, grýtti fram á Vuk sem tók 2-3 snertingar áður en hann stakk inn á Má sem var sloppinn einn í gegn og afgreiddi boltann snyrtilega, 3:1.

Eftir þetta datt botninn hratt úr leiknum. Á 76. mínútu gerði Fram mjög varnarsinnaða skiptingu þar sem Freyr fór útaf fyrir Israel. Hér hefði verið gaman að sjá Kristófer koma inná gegn sínum gömlu félögum. Israel var reyndar hársbreidd frá því að leggja upp fjórða Fram-markið með frábærri sendingu á Kennie sem var kominn einn í gegn en skaut beint í belginn á Stjörnumarverðinum af stuttu færi. Vuk og Róbert, sem báðir verðskulda nafnbótina menn leiksins fyrir frábæra frammistöðu fóru af velli á 88. mín fyrir Badda og Jakob. Það breytti litlu fyrir lokasprettinn.

Einstaklega sannfærandi sigur á Stjörnunni og flestir okkar manna stóðu sig virkilega vel. Það að fá tvö mörk frá Róberti var sérstaklega ánægjulegt, þó ekki væri nema til að kæta Hauk pabba hans. Sextán Framarar hafa nú skorað mörk okkar í Bestu deildinni ef marka má Stúkuna og er það góð sönnun þess hversu langt liðið er komið. Næst er að vinna Blika í Kópavogi – þess óska allir góðir menn.

Stefán Pálsson

 

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!