{"id":12358,"date":"2016-02-12T09:09:52","date_gmt":"2016-02-12T09:09:52","guid":{"rendered":"http:\/\/fram.is\/?p=12358"},"modified":"2016-02-12T09:09:52","modified_gmt":"2016-02-12T09:09:52","slug":"sveinn-halldor-ragnarsson-kvedja-fra-knattspyrnufelaginu-fram","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2016\/02\/12\/sveinn-halldor-ragnarsson-kvedja-fra-knattspyrnufelaginu-fram\/","title":{"rendered":"Sveinn Halld\u00f3r Ragnarsson, kve\u00f0ja fr\u00e1 Knattspyrnuf\u00e9laginu Fram"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2016\/02\/Sveinn-H.-Ragnarsson.jpg\"><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"alignright size-medium wp-image-12359\" src=\"http:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2016\/02\/Sveinn-H.-Ragnarsson-205x300.jpg\" alt=\"Sveinn H. Ragnarsson\" width=\"205\" height=\"300\" \/><\/a>Sveinn Halld\u00f3r Ragnarsson\u00a0F: 25. j\u00fan\u00ed 1927. D: 5. febr\u00faar 2016.<\/p>\n<p>* \u00datf\u00f6r Sveins Halld\u00f3rs fer fram fr\u00e1 H\u00e1teigskirkju \u00ed dag, f\u00f6studag 12. febr\u00faar 2016, kl. 13.<\/p>\n<p>Kve\u00f0ja fr\u00e1 Knattspyrnuf\u00e9laginu Fram<\/p>\n<p>Vi\u00f0 fr\u00e1fall Sveins Halld\u00f3rs Ragnarssonar, hei\u00f0ursf\u00e9laga Knattspyrnuf\u00e9lagsins Fram, sj\u00e1 Framarar \u00e1 eftir afar \u00f6flugum og litr\u00edkum f\u00e9lagsmanni sem setti sterkan svip \u00e1 f\u00e9lagsl\u00edf Fram. Sveinn, sem var ger\u00f0ur hei\u00f0ursf\u00e9lagi Fram \u00e1 90 \u00e1ra afm\u00e6lis\u00e1rinu 1998, lag\u00f0i til \u00f3f\u00e1 handt\u00f6kin til a\u00f0 efla f\u00e9lagi\u00f0. \u00dea\u00f0 er erfitt a\u00f0 rekja s\u00f6gu Fram \u00e1n \u00feess a\u00f0 minnast Sveins \u2013 svo afgerandi spor marka\u00f0i hann \u00ed s\u00f6gu f\u00e9lagsins sem leikma\u00f0ur, \u00fej\u00e1lfari, lei\u00f0togi og fyrst og fremst sem lj\u00fafur f\u00e9lagsma\u00f0ur, sem unni f\u00e9lagi s\u00ednu heitt. Sterk einkenni hans \u00ed \u00f6llum hlutverkum voru n\u00e1kv\u00e6mni, f\u00f3rnf\u00fdsi, dugna\u00f0ur, kraftur og \u00f3drepandi bar\u00e1ttuvilji. Sveinn, sem bj\u00f3 \u00e1vallt r\u00e9tt vi\u00f0 f\u00e9lagssv\u00e6\u00f0i Fram \u00ed Skipholti og s\u00ed\u00f0ar \u00ed Safam\u00fdrinni, h\u00e9lt m\u00f6rgu til haga sem hefur komi\u00f0 Fram afar vel vi\u00f0 a\u00f0 var\u00f0veita s\u00f6gu s\u00edna. \u00c9g leita\u00f0i oft til Sveins, fr\u00e6nda m\u00edns, eftir uppl\u00fdsingum og kom aldrei a\u00f0 t\u00f3mum kofanum hj\u00e1 honum \u2013 f\u00e9kk \u00e1vallt n\u00e1kv\u00e6m og v\u00f6ndu\u00f0 sv\u00f6r. Hann sendi ekkert fr\u00e1 s\u00e9r nema a\u00f0 \u00fea\u00f0 st\u00e6\u00f0ist og v\u00e6ri r\u00e9tt. Sveinn var vandvirkur \u00ed \u00f6llum st\u00f6rfum s\u00ednum.<\/p>\n<p>Sveinn var f\u00e6ddur og uppalinn Framari \u2013 svo mikill Framari a\u00f0 sagt var a\u00f0 bl\u00e1tt bl\u00f3\u00f0 hafi runni\u00f0 um \u00e6\u00f0ar hans. Hann erf\u00f0i Framgeni\u00f0 fr\u00e1 f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum, Ragnari L\u00e1russyni, sem var forma\u00f0ur Fram 1939-1942, s\u00ed\u00f0ar hei\u00f0ursf\u00e9lagi Fram, og \u00e1tti s\u00e6ti \u00ed stj\u00f3rn Knattspyrnusambands \u00cdslands \u00ed 21 \u00e1r. \u00deess m\u00e1 til gamans geta a\u00f0 Sveinn var \u00ed stj\u00f3rn KS\u00cd \u00ed eitt \u00e1r me\u00f0 f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum og eru \u00feeir einu fe\u00f0garnir sem hafa ver\u00f0i saman \u00ed stj\u00f3rn sambandsins.<\/p>\n<p>Eins og margir \u00f6flugir Framarar \u00f3lst Sveinn upp \u00e1 Grettisg\u00f6tunni og var hann virkur li\u00f0sma\u00f0ur \u00ed Fram fr\u00e1 barn\u00e6sku \u2013 keppti b\u00e6\u00f0i \u00ed knattspyrnu og handknattleik.<\/p>\n<p>Sveinn var li\u00f0sma\u00f0ur \u00ed sterku handknattleiksli\u00f0i Fram sem trygg\u00f0i f\u00e9laginu fyrsta \u00cdslandsmeistaratitilinn 1950. Honum \u00fe\u00f3tti alltaf v\u00e6nt um \u00feann \u00e1rangur. Sveinn var valinn \u00ed fyrsta landsli\u00f0sh\u00f3p \u00cdslands \u00ed handknattleik fyrir fer\u00f0 til Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0ar og Danmerkur 1950. Hann dr\u00f3 sig \u00fat \u00far h\u00f3pnum og gaf ekki kost \u00e1 s\u00e9r \u00fear sem hann \u00feurfti a\u00f0 nota gleraugu dags daglega. Sveinn taldi a\u00f0 hann g\u00e6ti ekki leiki\u00f0 af fullum krafti fyrir h\u00f6nd \u00cdslands \u00fea\u00f0 sem sj\u00f3n var ekki n\u00e6gilega g\u00f3\u00f0, \u00e1n gleraugna. Gaf s\u00e6ti sitt eftir \u2013 taldi a\u00f0 r\u00e9tt v\u00e6ri a\u00f0 n\u00fdta sj\u00f3nsterkari leikmenn. \u00dearna er Sveini r\u00e9tt l\u00fdst \u2013 hann vildi a\u00f0 vanda\u00f0 v\u00e6ri til verka og \u00feeir sem v\u00e6ru betur fallnir til verka en a\u00f0rir \u2013 hverju sinni, f\u00e6ru \u00ed verkin.<\/p>\n<p>Sveinn, sem gengdi margv\u00edslegum tr\u00fana\u00f0arst\u00f6rfum fyrir Fram, sinnti f\u00e9lagsm\u00e1lum miki\u00f0 og sat \u00ed a\u00f0alstj\u00f3rn Fram \u00ed 15 \u00e1ra og einnig \u00ed stj\u00f3rnum knattspyrnu- og handknattleiksdeilda f\u00e9lagsins. \u00de\u00e1 sat hann \u00ed stj\u00f3rn Handknattleikssambands \u00cdslands, HS\u00cd, \u00ed sj\u00f6 \u00e1r og KS\u00cd \u00ed eitt \u00e1r, en auk \u00feess \u00e1tti hann s\u00e6ti \u00ed d\u00f3mst\u00f3lum og fj\u00f6lda nefnda. \u00a0Hann var \u00feingforseti \u00e1 \u00e1rs\u00feingum HS\u00cd \u00ed nokkur \u00e1r og \u00e1tti s\u00e6ti um t\u00edma \u00ed stj\u00f3rn Afreksmannasj\u00f3\u00f0s \u00cd\u00fer\u00f3ttasambands \u00cdslands, \u00cdS\u00cd.<\/p>\n<p>Sveinn var fararstj\u00f3ri hj\u00e1 Fram og HS\u00cd \u00ed fj\u00f6lm\u00f6rgum utanlandsfer\u00f0um karla og kvenna og voru tv\u00e6r fer\u00f0ir honum eftirminnilegar \u2013 19 daga fer\u00f0 Framli\u00f0sins \u00ed knattspyrnu til Sov\u00e9tr\u00edkjanna 1961 og fer\u00f0 Framli\u00f0sins \u00ed handknattleik til Danmerkur 1962, \u00fear sem Fram l\u00e9k fyrsta Evr\u00f3puleik \u00cdslands \u2013 gegn Skovbakken. Sveinn \u00e1 hei\u00f0urinn a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 eru til \u00fdmis skemmtileg g\u00f6gn fr\u00e1 \u00feessum s\u00f6gufr\u00e6ga leik upp \u00e1 vegg \u00ed f\u00e9lagsheimili Fram vi\u00f0 Safam\u00fdri. Til d\u00e6mis augl\u00fdsingaplakat fr\u00e1 leiknum, sem lauk me\u00f0 sigri Skovbakken eftir framlengingu \u00ed \u00c1r\u00f3sum, 28:27.<\/p>\n<p>Sveinn var \u00ed fj\u00f6lm\u00f6rg \u00e1r (1948-1965) \u00fej\u00e1lfari kvennali\u00f0a \u00ed handknattleik og yngri flokka kvenna og karla hj\u00e1 Fram, me\u00f0 g\u00f3\u00f0um \u00e1rangri. Sveinn var ekki alltaf me\u00f0 bestu einstaklingana \u00ed li\u00f0um s\u00ednum, en hann lag\u00f0i upp takt\u00edk sem gekk upp \u2013 li\u00f0sheildin og leikkerfi\u00a0 r\u00e9\u00f0i \u00fe\u00e1 \u00farslitum. Hann kom einnig a\u00f0 \u00fej\u00e1lfun yngri flokka \u00ed knattspyrnu. \u00de\u00e1 var Sveinn li\u00f0sstj\u00f3ri karlali\u00f0s Fram \u00ed handknattleik sem var\u00f0 fimm sinnum \u00cdslandsmeistari \u00e1 \u201eGull\u00e1runum\u201c 1962-1968.<\/p>\n<p>Sveinn var s\u00e6mdur gullmerki Fram, gullmerki HKRR, gullmerki HS\u00cd, gullmerki \u00cdS\u00cd, gullstj\u00f6rnu \u00cdBR og Framkrossinum \u00far gulli, sem hei\u00f0ursf\u00e9lagar bera.<\/p>\n<p>Sveinn var h\u00e6ttur a\u00f0 fara \u00e1 v\u00f6llinn s\u00ed\u00f0ustu \u00e1r, en fylgdist vel me\u00f0 keppninsli\u00f0um Fram \u00ed handknattleik og knattspyrnu. Hann var \u00e1n\u00e6g\u00f0ur me\u00f0 \u00fe\u00e1 stefnu handknattleiksdeildarinnar a\u00f0 byggja li\u00f0 Fram upp \u00e1 ungum og upp\u00f6ldnum leikm\u00f6nnum. \u00dea\u00f0 var samkv\u00e6mt hugsun hans alla t\u00ed\u00f0 \u2013 a\u00f0 byggja upp \u00e1 upp\u00f6ldum leikm\u00f6nnum og hl\u00faa a\u00f0 \u00feeim. Sveinn haf\u00f0i mikla tr\u00fa \u00e1 n\u00fdja f\u00e9lagssv\u00e6\u00f0i Fram \u00ed \u00dalfar\u00e1rsdalnum \u2013 s\u00e9rstaklega \u00e1 unglinga- og uppbyggingarstarfi \u00fear.<\/p>\n<p>Sveinn er einn af \u00feeim f\u00e9lagsm\u00f6nnum sem t\u00f3ku ekki kr\u00f3nu fyrir \u00fea\u00f0 sem \u00feeir ger\u00f0u og voru alltaf tilb\u00fanir til \u00e1taka \u00feegar til hans var leita\u00f0 \u2013 til a\u00f0 halda merki f\u00e9lagsins h\u00e1tt \u00e1 lofti. Vi\u00f0 l\u00e1tum umm\u00e6li Karls G. Benediktssonar, fyrrverandi landsli\u00f0smanns og \u00fej\u00e1lfara, sem l\u00fdsa fr\u00e1b\u00e6ru starfi Sveins \u00e1 \u201eGull\u00e1rum\u201c\u00a0 karlali\u00f0s Fram og honum best, vera lokaor\u00f0 kve\u00f0jugreinarinnar \u2013 Karl sag\u00f0i \u00ed 100 \u00e1ra afm\u00e6lisbla\u00f0i Fram: \u201eSveinn var li\u00f0sstj\u00f3ri li\u00f0sins og vann \u00f3metanlegt starf vi\u00f0 a\u00f0 halda allri umgj\u00f6r\u00f0 \u00ed kringum li\u00f0i\u00f0 \u00feannig a\u00f0 \u00f6llum lei\u00f0 vel. Sveinn \u00feekkti manna best hvernig \u00e1tti a\u00f0 taka \u00e1 \u00f6llum m\u00e1lum. Hann \u00feekkti leikmennina afar vel, enda haf\u00f0i hann \u00fej\u00e1lfa\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00ed yngri flokkum.\u201c<\/p>\n<p>Framarar kve\u00f0ja og minnast Sveins me\u00f0 \u00feakkl\u00e6ti fyrir mikil st\u00f6rf \u00ed \u00fe\u00e1gu f\u00e9lagsins. Syni hans Sveini Andra, eiginkonu \u00de\u00f3runni Gr\u00e9tarsd\u00f3ttur og b\u00f6rnum \u00feeirra eru sendar hugheilar sam\u00fa\u00f0arkve\u00f0jur.<\/p>\n<p>Sigmundur \u00d3. Steinarsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sveinn Halld\u00f3r Ragnarsson\u00a0F: 25. j\u00fan\u00ed 1927. D: 5. febr\u00faar 2016. * \u00datf\u00f6r Sveins Halld\u00f3rs fer fram fr\u00e1 H\u00e1teigskirkju \u00ed dag, f\u00f6studag 12. febr\u00faar 2016, kl. 13. Kve\u00f0ja fr\u00e1 Knattspyrnuf\u00e9laginu Fram [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":4,"featured_media":12162,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[8,10],"tags":[],"class_list":["post-12358","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-adalstjorn","category-frettir"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2016\/01\/FRAMh\u00fas-vefur.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/12358","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/4"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=12358"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/12358\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/12162"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=12358"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=12358"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=12358"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}