{"id":18208,"date":"2018-05-12T00:32:53","date_gmt":"2018-05-12T00:32:53","guid":{"rendered":"http:\/\/fram.is\/?p=18208"},"modified":"2018-05-12T00:32:53","modified_gmt":"2018-05-12T00:32:53","slug":"hjartasjuklingur-reytir-haenu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2018\/05\/12\/hjartasjuklingur-reytir-haenu\/","title":{"rendered":"Hjartasj\u00faklingur reytir h\u00e6nu"},"content":{"rendered":"<p>\u00deessa dagana hv\u00edla augu Evr\u00f3pu \u2013 og raunar st\u00f3rs hluta heimsbygg\u00f0arinnar \u2013 \u00e1 Port\u00fagal. \u00c1st\u00e6\u00f0an er vitaskuld S\u00f6ngvakeppni evr\u00f3pskra sj\u00f3nvarpsst\u00f6\u00f0va, me\u00f0 \u00f6llum s\u00ednum glam\u00far. A\u00f0 margra mati liggur fegur\u00f0 keppninnar \u00ed gr\u00e6skulausu gamninu og \u00f6llum hrekklausu og hjartahreinu t\u00f3nlistarm\u00f6nnunum sem flytja bl\u00e1eygt popp me\u00f0 einf\u00f6ldum textum um \u00e1st og heimsfri\u00f0.<\/p>\n<p>Eitt sigurstranglegasta lagi\u00f0 \u00ed keppninni kemur fr\u00e1 \u00cdsrael. \u00dea\u00f0 er flutt af hnellinni konu \u00ed jap\u00f6nskum kl\u00e6\u00f0na\u00f0i sem gaggar eins og h\u00e6na og leggur #metoo-byltingunni li\u00f0 sitt. Ef j\u00far\u00f3visj\u00f3nl\u00f6g v\u00e6ru \u00edslensk f\u00f3tboltaf\u00e9l\u00f6g, \u00fe\u00e1 v\u00e6ri \u00edsraelska h\u00e6nan Knattspyrnuf\u00e9lagi\u00f0 \u00der\u00f3ttur. Meira um \u00fea\u00f0 \u00e1 eftir.<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/Gummi.jpg\"><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/Gummi-300x287.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"287\" class=\"alignright size-medium wp-image-18209\" \/><\/a><\/p>\n<p>Flestir f\u00f3tboltaunnendur tengja hins vegar betur vi\u00f0 Salvador Sobral, port\u00fagalska s\u00f6ngvarann me\u00f0 \u00f3n\u00fdta hjarta\u00f0 sem sigra\u00f0i \u00ed fyrra me\u00f0 f\u00e1heyr\u00f0um stigafj\u00f6lda. \u00dea\u00f0 er \u00fe\u00f3 ekki s\u00f6ngst\u00edllinn sem heillar okkur boltabullurnar, heldur att\u00edtj\u00fati\u00f0. Salvador Sobral er fullkomlega miskunarlaus \u00ed ums\u00f6gnum um \u00f6nnur J\u00far\u00f3visj\u00f3nl\u00f6g. Honum finnst \u00feau drasl. Hann er ma\u00f0urinn sem r\u00fasta\u00f0i keppninni sem hann hatar. A\u00f0eins s\u00e1 sem hefur fylgt \u00edslensku f\u00f3tboltaf\u00e9lagi \u00ed bl\u00ed\u00f0u og str\u00ed\u00f0u \u00ed \u00e1rara\u00f0ir getur til fulls skili\u00f0 fegur\u00f0ina sem \u00ed \u00feessu felst.<\/p>\n<p>Og svo er Salvador Sobral l\u00edka Port\u00fagali eins og f\u00e9lagi Hipp\u00f3l\u00edt\u00f3!<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var fr\u00e1b\u00e6rt ve\u00f0ur og flott m\u00e6ting \u00e1 \u00der\u00f3ttarvellinum \u00ed kv\u00f6ld. \u00deegar vi\u00f0 komumst a\u00f0 lokum upp \u00far \u00feessari deild (7,9,13) \u00e1 \u00feessi fr\u00e9ttaritari eftir a\u00f0 sakna leikt\u00edmanna. F\u00f6studagskv\u00f6ld eru \u00e6\u00f0isleg f\u00f3tboltakv\u00f6ld og ekki spillir fyrir \u00feegar gestgjafarnir eru h\u00f6f\u00f0ingjar heim a\u00f0 s\u00e6kja, me\u00f0 grillmat \u00ed landsli\u00f0sflokki og \u00e1litlega \u00edssk\u00e1pa fulla af drykkjarf\u00f6ngum.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 voru tv\u00e6r breytingar \u00e1 byrjunarli\u00f0inu fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed s\u00f3lskinshaglstormsleiknum \u00e1 m\u00f3ti Selfossi. Dino var meiddur, en \u00feurfti einmitt a\u00f0 yfirgefa v\u00f6llinn s\u00ed\u00f0ast og Mikael Egill var kominn \u00e1 bekkinn. Alex Freyr var hins vegar \u00ed byrjunarli\u00f0inu, en \u00e1horfendur \u00e1 s\u00ed\u00f0asta leik \u00e1ttu allt eins von \u00e1 a\u00f0 hann yr\u00f0i lengi fr\u00e1 vegna mei\u00f0sla.<\/p>\n<p>Atli Gunnar st\u00f3\u00f0 vitaskuld milli stanganna og var me\u00f0 Unnar Stein og Krist\u00f3fer fyrir framan sig, auk Hlyns Atla sem f\u00e6r\u00f0i sig aftur \u00ed mi\u00f0v\u00f6r\u00f0inn og \u00e1tti h\u00f6rkug\u00f3\u00f0an leik \u2013 skalla\u00f0i allt fr\u00e1 sem til hans barst. Alex og Mihaljo, sem kom inn \u00ed byrjunarli\u00f0i\u00f0 hlupu svo upp og ni\u00f0ur kantana. Hei\u00f0ar Geir var aftastur \u00e1 mi\u00f0junni me\u00f0 Tiago fyrir framan sig og Fred me\u00f0 f\u00edna yfirvaraskeggi\u00f0 sitt og Helga hvorn til sinnar hli\u00f0ar. Gu\u00f0mundur a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u fremstur.<\/p>\n<p>Okkar menn byrju\u00f0u vel og n\u00e1\u00f0u \u00feegar upp g\u00f3\u00f0u spili, me\u00f0 m\u00f6rgum snertingum, f\u00ednum gabbhreyfingum og flottum hlaupum. S\u00e1 brasil\u00edski Fred var \u00fear \u00ed lykilhlutverki, afskaplega flinkur og tekn\u00edskur leikma\u00f0ur sem greinilega kann betur vi\u00f0 sig \u00ed bl\u00ed\u00f0vi\u00f0ri en skafrenningi. Framarar virtust a\u00f0 vild geta auki\u00f0 hra\u00f0ann og stungi\u00f0 af svifaseina varnarmenn \u00der\u00f3ttar og skapa\u00f0 st\u00f3rh\u00e6ttu. \u00deegar \u00e1 t\u00edundu m\u00edn\u00fatu n\u00e1\u00f0i Alex a\u00f0 prj\u00f3na sig upp a\u00f0 endam\u00f6rkum og senda fyrir \u00e1 Helga sem skaut framhj\u00e1 \u00far afbrag\u00f0st\u00e6kif\u00e6ri og hef\u00f0i m\u00e1tt gera betur.<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/Fred.jpg\"><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/Fred-204x300.jpg\" alt=\"\" width=\"204\" height=\"300\" class=\"alignright size-medium wp-image-18213\" \/><\/a><\/p>\n<p>Ekki gafst mikill t\u00edmi til a\u00f0 s\u00fdta \u00feessa marktilraun, \u00fev\u00ed \u00e1 t\u00f3lftu m\u00edn\u00fatu fengu Framarar aukaspyrnu vel fyrir utan teig, sem Fred sendi \u00ed fallegum boga beint \u00e1 hausinn \u00e1 Hlyni Atla sem skalla\u00f0i beint \u00e1 Gu\u00f0mund sem afgreiddi boltann vandr\u00e6\u00f0alaust \u00ed neti\u00f0. Mark beint af \u00e6fingasv\u00e6\u00f0inu, en \u00der\u00f3ttarar litu illa \u00fat.<\/p>\n<p>Flautugla\u00f0ari d\u00f3mari hef\u00f0i ef til vill d\u00e6mt v\u00edtaspyrnu nokkrum m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar \u00feegar einn \u00der\u00f3ttarinn var a\u00f0 bolast og \u00fdtti Tiago ni\u00f0ur \u00ed teignum, en \u00feessi d\u00f3mari var sein\u00fereyttur til vandr\u00e6\u00f0a eins og \u00e1tti eftir a\u00f0 koma \u00ed lj\u00f3s.<\/p>\n<p>Mark n\u00famer tv\u00f6 kom undir lok fyrri h\u00e1lfleiksins. \u00dea\u00f0 var l\u00edka eftir aukaspyrnu, sem a\u00f0 \u00feessu sinni var tekin stutt, Fred prj\u00f3na\u00f0i sig \u00ed gegnum v\u00f6rnina og sendi fyrir, \u00fear sem Gu\u00f0mundur beyg\u00f0i sig ni\u00f0ur og stanga\u00f0i \u00ed neti\u00f0. Fram var allt \u00ed einu komi\u00f0 me\u00f0 tveggja marka forystu og \u00f6ll v\u00f6ld \u00e1 vellinum. Li\u00f0i\u00f0 pressa\u00f0i h\u00e1tt \u00e1 vellinum og \u00e1tti au\u00f0velt me\u00f0 a\u00f0 skapa s\u00e9r f\u00e6ri. Heimamenn voru s\u00e1rfegnir \u00feegar flauta\u00f0 var til leikhl\u00e9s, \u00fear sem munurinn hef\u00f0i h\u00e6glega geta\u00f0 veri\u00f0 meiri.<\/p>\n<p>Framstu\u00f0ningsmenn voru k\u00e1tir, en \u00fe\u00f3 \u00f6rl\u00edti\u00f0 tortryggnir \u00ed hl\u00e9inu. \u00der\u00f3ttararnir voru hins vegar fur\u00f0u brattir og gla\u00f0sinna. Pistlah\u00f6fundur Frams\u00ed\u00f0unnar er me\u00f0 \u00fe\u00e1 kenningu a\u00f0 \u00der\u00f3ttarar s\u00e9u betri manneskjur en gerist og gengur \u2013 og l\u00edklega v\u00e6ri heimurinn betri sta\u00f0ur ef fleiri v\u00e6ru eins og \u00der\u00f3ttarar. Ef \u00fea\u00f0 v\u00e6ru fleiri \u00edsraelskar h\u00e6nur \u00ed jap\u00f6nskum \u00fej\u00f3\u00f0b\u00faningum a\u00f0 gagga um \u00e1st og fri\u00f0.<\/p>\n<p>En \u00fea\u00f0 geta ekki allir veri\u00f0 g\u00f3\u00f0ar manneskjur. \u00deess vegna kj\u00f3sum vi\u00f0 flest a\u00f0 brynja okkur me\u00f0 kaldh\u00e6\u00f0ni, sitjum st\u00farin \u00feegar okkar li\u00f0 er a\u00f0 tapa, finnst allt vera drasl og fyllumst \u00f3\u00f6ryggi \u00fe\u00e1 sjaldan okkur l\u00ed\u00f0ur vel \u00ed hjartanu \u2013 viss um a\u00f0 hamingjan geti ekki enst og flj\u00f3tlega muni karma b\u00edta okkur \u00ed rassinn.<\/p>\n<p>Frammista\u00f0an \u00ed fyrri h\u00e1lfleik var s\u00fa besta sem s\u00e1 er \u00feetta ritar hefur s\u00e9\u00f0 fr\u00e1 Framli\u00f0i lengi og mun betra en \u00fea\u00f0 sem bo\u00f0i\u00f0 var upp \u00e1 allt s\u00ed\u00f0asta sumar \u2013 fyrir utan kannski allt nema lokam\u00edn\u00faturnar \u00ed bikarleiknum upp\u00e1 Skaga. H\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 hr\u00f3sa m\u00f6rgum, en ekki ver\u00f0ur komist hj\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 nefna \u00fatlendingana \u00ferj\u00e1 s\u00e9rstaklega. \u00deegar Gu\u00f0mundur f\u00e9kk g\u00f3\u00f0ar sendingar, \u00e1ttu \u00der\u00f3ttarar ekki ro\u00f0 \u00ed hann og Alex \u00e1tti fr\u00e1b\u00e6ra spretti. Bar\u00e1ttan \u00ed Hei\u00f0ari Geir var til fyrirmyndar og svona m\u00e6tti lengi telja. Raunar \u00e1ttu allir g\u00f3\u00f0an leik.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 h\u00f3fum seinni h\u00e1lfleikinn sta\u00f0r\u00e1\u00f0nir \u00ed a\u00f0 verja fenginn hlut. \u00dea\u00f0 reyndist vandr\u00e6\u00f0alaust fyrsta kort\u00e9ri\u00f0, en eftir um klukkut\u00edma leik duttum vi\u00f0 of langt til baka og \u00der\u00f3ttarar f\u00f3ru a\u00f0 skapa s\u00edn fyrstu f\u00e6ri. Hlaupin t\u00f3ku l\u00edka sinn toll og \u00e1 73. m\u00edn\u00fatu  f\u00f3r Fred af velli fyrir Orra, sem er vonandi a\u00f0 n\u00e1 s\u00e9r af mei\u00f0slum.<\/p>\n<p>\u00c1 78. m\u00edn\u00fatu jukum vi\u00f0 forystuna \u00ed 0:3, \u00f6rl\u00edti\u00f0 gegn gangi leiksins. Alex og Helgi splundru\u00f0u \u00fear \u00der\u00f3ttarv\u00f6rninni. Alex var \u00ed f\u00ednu skotf\u00e6ri en sendi kn\u00f6ttinn \u00e1 Orra sem kom a\u00f0v\u00edfandi \u2013 honum t\u00f3kst ekki a\u00f0 hemja boltann og s\u00f3knin virtist \u00e6tla a\u00f0 renna \u00fat \u00ed sandinn \u00feegar Tiago kom a\u00f0v\u00edfandi og k\u00f3r\u00f3na\u00f0i g\u00f3\u00f0an leik sinn me\u00f0 fallegri afgrei\u00f0slu.<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/Fagn.jpg\"><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/Fagn-300x200.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"200\" class=\"alignright size-medium wp-image-18210\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/Fagn-300x200.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/Fagn-scaled-800x533.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/Fagn-1024x683.jpg 1024w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/Fagn-768x512.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/Fagn-1536x1024.jpg 1536w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/Fagn-2048x1365.jpg 2048w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/><\/a><\/p>\n<p>Framarar \u00e1 p\u00f6llunum voru farnir a\u00f0 g\u00e6la vi\u00f0 fj\u00f3r\u00f0a marki\u00f0, til a\u00f0 kvitta fyrir hraksm\u00e1narlegt tap \u00e1 sama velli s\u00ed\u00f0asta sumar, en \u00ed sta\u00f0inn n\u00e1\u00f0u heimamenn a\u00f0eins a\u00f0 kl\u00f3ra \u00ed bakkann, eftir f\u00e1g\u00e6tt einbeitingarleysi \u00ed Framv\u00f6rninni. Undir bl\u00e1lokin voru tv\u00e6r breytingar ger\u00f0ar \u00e1 li\u00f0inu. Tiago f\u00f3r \u00fataf fyrir M\u00e1 og Helgi fyrir Arn\u00f3r Da\u00f0a. Lokam\u00edn\u00faturnar f\u00f3ru svo bara \u00ed a\u00f0 b\u00ed\u00f0a eftir lang\u00fer\u00e1\u00f0um ziggi-zagga, en framherji \u00der\u00f3ttar fann \u00fe\u00f3 t\u00edma til a\u00f0 l\u00e1ta reka sig \u00fataf \u00e1 95. m\u00edn\u00fatu eftir a\u00f0 hafa s\u00fdnt \u00edtreka\u00f0a vi\u00f0leitni til a\u00f0 n\u00e6la s\u00e9r \u00ed rautt spjald. Vel gert!<\/p>\n<p>Topps\u00e6ti \u00e1 markat\u00f6lu! (J\u00e1j\u00e1, \u00e9g veit a\u00f0 \u00fea\u00f0 er bara hluti umfer\u00f0arinnar b\u00fainn.) Framt\u00ed\u00f0in er bj\u00f6rt, bl\u00e1 og port\u00fag\u00f6lsk. Ma\u00f0ur leiksins: Tiago.<\/p>\n<p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/www.flickr.com\/photos\/99255499@N07\/sets\/72157696069485814\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">Fleiri myndir \u00far leiknum m\u00e1 sj\u00e1 h\u00e9r<\/a>.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deessa dagana hv\u00edla augu Evr\u00f3pu \u2013 og raunar st\u00f3rs hluta heimsbygg\u00f0arinnar \u2013 \u00e1 Port\u00fagal. \u00c1st\u00e6\u00f0an er vitaskuld S\u00f6ngvakeppni evr\u00f3pskra sj\u00f3nvarpsst\u00f6\u00f0va, me\u00f0 \u00f6llum s\u00ednum glam\u00far. A\u00f0 margra mati liggur fegur\u00f0 keppninnar [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":6,"featured_media":18210,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[11,10,9,20],"tags":[],"class_list":["post-18208","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-mflkarla","category-frettir","category-fotbolti","category-framiceland"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2018\/05\/Fagn-scaled.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/18208","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/6"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=18208"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/18208\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/18210"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=18208"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=18208"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=18208"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}