{"id":21285,"date":"2019-09-21T19:35:40","date_gmt":"2019-09-21T19:35:40","guid":{"rendered":"http:\/\/fram.is\/?p=21285"},"modified":"2019-09-21T19:35:40","modified_gmt":"2019-09-21T19:35:40","slug":"111-medferd-i-lokaumferd","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2019\/09\/21\/111-medferd-i-lokaumferd\/","title":{"rendered":"111 me\u00f0fer\u00f0 \u00ed lokaumfer\u00f0"},"content":{"rendered":"<div class=\"wp-block-image\"><figure class=\"alignright is-resized\"><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2019\/09\/Tiago-1024x683.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-21287\" width=\"385\" height=\"256\"\/><\/figure><\/div><p>Einhver skemmtilegasti leikur sem fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar man eftir \u00ed seinni t\u00ed\u00f0 var lokaleikurinn \u00ed Peps\u00eddeildinni \u00e1ri\u00f0 sem vi\u00f0 f\u00f3rum ni\u00f0ur. Fram li\u00f0i\u00f0 var falli\u00f0 en m\u00f3therjarnir, Fylkismenn, hef\u00f0u tryggt s\u00e9r Evr\u00f3pus\u00e6ti me\u00f0 sigri. Skemmst er fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 segja a\u00f0 Framarar ey\u00f0il\u00f6g\u00f0u part\u00fdi\u00f0 og li\u00f0i\u00f0 \u00ed s\u00fdnileikavestunum gekk ekki hl\u00e6jandi til s\u00e6ngur.<\/p><p>N\u00fa er engum s\u00e9staklega illa vi\u00f0 Fylki. Ekkert vi\u00f0 \u00fea\u00f0 f\u00e9lag megnar a\u00f0 kveikja jafn heitar og hreinar tilfinningar \u00ed brj\u00f3sti nokkurs manns \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 and\u00fa\u00f0 hva\u00f0 \u00fe\u00e1 hatur. En stundum er bara svo skemmtilegt a\u00f0 vera \u00ed hlutverki L\u00e1ka jar\u00f0\u00e1lfs og gera eitthva\u00f0 r\u00e6kilega vont \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 hella rau\u00f0graut yfir kisul\u00f3rur e\u00f0a spilla fyrir Evr\u00f3pu\u00e6vint\u00fdri.<\/p><p>\u00dea\u00f0 var langs\u00f3ttur m\u00f6guleiki \u00e1 a\u00f0 Framarar g\u00e6tu teki\u00f0 a\u00f0 s\u00e9r\nhlutverk L\u00e1ka jar\u00f0\u00e1lfs \u00e1 Leiknisvellinum \u00ed dag. Heimamenn \u00e1ttu langs\u00f3tta von um\n\u00farvalsdeildars\u00e6ti me\u00f0 sigri a\u00f0 \u00fev\u00ed tilskyldu a\u00f0 Gr\u00f3tta misstigi sig \u00e1 m\u00f3ti\nHaukum. Fyrir hef\u00f0arsinna \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 fr\u00e9ttaritarann, sem \u00e1 b\u00e1gt me\u00f0\ntilhugsunina um Gr\u00f3ttu \u00ed deild \u00feeirra bestu, kalla\u00f0i \u00feetta \u00e1 erfi\u00f0ar spurningar\nog mikla tilvistarangist.<\/p><p>\u00dea\u00f0 var ind\u00e6lisve\u00f0ur \u00ed Fellahverfi og fullt af f\u00f3lki \u00e1\nvellinum. Obbinn \u00e1 bandi heimamanna, \u00e6tli Framarar \u00ed st\u00fakunni hafi veri\u00f0 miki\u00f0\nfleiri en \u00ferj\u00e1t\u00edu? Vinalegi mi\u00f0av\u00f6r\u00f0urinn heilsa\u00f0i hverjum einasta vallargesti\nog bau\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 velkomi\u00f0 \u00e1 v\u00f6llinn sem er kenndur vi\u00f0 einhvera fasteignas\u00f6lu. \u00c9g\n\u00e1 m\u00e9r draum um heimav\u00f6ll \u00ed \u00dalfars\u00e1rdal sem vi\u00f0 stillum okkur um a\u00f0 gefa\neitthva\u00f0 f\u00e1bj\u00e1nanafn til a\u00f0 uppfylla styrktarsamning. Sennilega kallar \u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3 \u00e1\nafn\u00e1m kap\u00edtalismans fyrir \u00e1ri\u00f0 2022.<\/p><p>Framarar tefldu fram \u00f6rl\u00edti\u00f0 breyttu li\u00f0i \u00fear sem mest\nmuna\u00f0i um fjarveru Unnars Steins fyrirli\u00f0a sem var \u00ed banni. Efsta l\u00ednan var \u00fe\u00f3\nkunnugleg: Matth\u00edas, Gunnar, Marcao, Haraldur og Hlynur \u00ed markinu. Stef\u00e1n\nRagnar leysi Unnar Stein af h\u00f3lmi aftast \u00e1 mi\u00f0junni. Hann er varnarma\u00f0ur a\u00f0\nupplagi og s\u00e1ust \u00feess merki \u00ed leiknum. Tiago, Fred og J\u00f6kull voru \u00e1 mi\u00f0ju og\nk\u00f6ntum en Alex og Helgi frammi.<\/p><p>Spennustigi\u00f0 var h\u00e1tt hj\u00e1 heimam\u00f6nnum sem virtust afar\n\u00f3styrkir fyrstu m\u00edn\u00faturnar \u00e1 me\u00f0an Framarar pressu\u00f0u h\u00e1tt og n\u00e1\u00f0u upp g\u00f3\u00f0um\nsamleik. B\u00e6\u00f0i li\u00f0 komu mj\u00f6g aggress\u00edv inn \u00ed leikinn og m\u00e1ttu Framarar teljast\nlj\u00f3nheppnir a\u00f0 hafa ekki n\u00e6lt s\u00e9r \u00ed rautt spjald \u00e1 fyrstu t\u00edu m\u00edn\u00fatunum \u00fear sem\nGunnar braut klaufalega af s\u00e9r \u00e1 gulu spjaldi og Stef\u00e1n f\u00f3r \u00ed seina t\u00e6klingu og\nuppskar gult sem hef\u00f0i m\u00e1tt vera \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta bleikt. Fyrstu tuttugu\nm\u00edn\u00faturnar virtist d\u00f3marinn ekki hafa neina stj\u00f3rn \u00e1 leiknum og \u00e1horfendur voru\nsannf\u00e6r\u00f0ir um a\u00f0 leikmenn myndu flj\u00faga \u00fataf h\u00e6gri vinstri.<\/p><p>\u00c1 17. m\u00edn\u00fatu fengu Framarar hornspyrnu sem tekin var stutt\nog Fred skr\u00fafa\u00f0i kn\u00f6ttinn gl\u00e6silega upp \u00ed markhorni\u00f0, \u00f3verjandi og fr\u00e1b\u00e6rt\nmark! Heimamenn voru slegnir \u00fat af laginu og \u00e1 n\u00e6stu 3-4 m\u00edn\u00fatum fengu Framarar\ntv\u00f6 sannk\u00f6llu\u00f0 dau\u00f0af\u00e6ri. \u00dea\u00f0 fyrra \u00fear sem Helgi, Fred og Alex fengu allir\nopin skotf\u00e6ri en \u00e1kv\u00e1\u00f0u allir a\u00f0 senda \u00ed sta\u00f0inn \u00e1 f\u00e9laga sinn. S\u00ed\u00f0ast barst\nboltinn til Tiago sem var l\u00edka hikandi vi\u00f0 a\u00f0 l\u00e1ta va\u00f0a en enda\u00f0i svo \u00e1 a\u00f0\nskj\u00f3ta framhj\u00e1 \u00far kj\u00f6rst\u00f6\u00f0u. \u00deetta sl\u00f3 raunar t\u00f3ninn fyrir leikinn: alltof oft\nkomu Framarar s\u00e9r \u00ed uppl\u00f6g\u00f0 f\u00e6ri en \u00e1kv\u00e1\u00f0u a\u00f0 spila \u00e1fram \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0\nskj\u00f3ta. \u00dea\u00f0 er vond takt\u00edk eins og fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar getur votta\u00f0 eftir\n24 \u00e1ra reynslu \u00ed bumbubolta. Stundum er best a\u00f0 loka bara augunum og negla me\u00f0\nt\u00e1nni!<\/p><p>Alex f\u00e9kk fr\u00e1b\u00e6rt f\u00e6ri \u00e1 20. m\u00edn\u00fatu og Brei\u00f0hyltingar\nvirtust heillum horfnir. Ef \u00f6\u00f0ru f\u00e6rinu hef\u00f0i loki\u00f0 me\u00f0 marki er vi\u00f0b\u00fai\u00f0 a\u00f0\nleiknum hef\u00f0i loki\u00f0 me\u00f0 3-4 marka Framsigri. En \u00fev\u00ed var ekki a\u00f0 heilsa.<\/p><p>Fyrri h\u00e1lfleikur var r\u00e9tt um h\u00e1lfna\u00f0ur \u00feegar broth\u00e6ttur\nd\u00f3mari leiksins gaf heimam\u00f6nnum v\u00edti fyrir heldur litlar sakir. Einn\nLeiknisma\u00f0urinn bakka\u00f0i inn \u00ed Marcao og hrundi \u00fev\u00ed n\u00e6st \u00ed j\u00f6r\u00f0ina. Brasil\u00edska\ntr\u00f6lli\u00f0 gat l\u00edti\u00f0 gert vi\u00f0 \u00feessu, en au\u00f0velda\u00f0i d\u00f3maranum \u00fe\u00f3 \u00e1kv\u00f6r\u00f0unina me\u00f0 almennum\nklunnaskap. Balletdansaraefni er hann \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta ekki.<\/p><p>Vi\u00f0 t\u00f3k kaflaskiptur leikur, \u00fear sem varnarleikurinn \u00e1\nmi\u00f0jum beggja li\u00f0a var svo slakur a\u00f0 \u00feau skiptust \u00e1 a\u00f0 halda boltanum \u00ed\nmara\u00feons\u00f3knum. Framarar n\u00e1\u00f0u oft g\u00f3\u00f0um samspilsk\u00f6flum og f\u00ednum hlaupum upp\nkantana, en voru um lei\u00f0 skelfilega broth\u00e6ttir hinu megin \u00e1 vellinum. Og eins\nog \u00e1\u00f0ur hefur veri\u00f0 sagt: markskotin vanta\u00f0i!<\/p><p>Kaffi\u00f0 \u00ed Leiknissk\u00farnum var \u00feokkalegt en h\u00e1lfleiksspjalli\u00f0\neinkenndist af \u00fev\u00ed a\u00f0 annar hver ma\u00f0ur var me\u00f0 tr\u00fdni\u00f0 on\u00ed fars\u00edmanum a\u00f0 lesa um\nst\u00f6\u00f0una \u00ed \u00f6\u00f0rum leikjum og reikna \u00fat gang m\u00e1la \u00ed fallbar\u00e1ttunni. Gr\u00f3ttumenn\nvoru \u00e1 sama t\u00edma a\u00f0 sigla \u00farvalsdeildars\u00e6tinu \u00ed h\u00f6fn. F\u00e6kkun li\u00f0a \u00ed efstu deild\nni\u00f0ur \u00ed ellefu n\u00e6sta sumar hl\u00fdtur a\u00f0 koma alvarlega til umr\u00e6\u00f0u!<\/p><p>Seinni h\u00e1lfleikur byrja\u00f0i eins og s\u00e1 fyrri enda\u00f0i. Li\u00f0in\nskiptust \u00e1 a\u00f0 pressa en minna bar \u00e1 opnum markt\u00e6kif\u00e6rum. Eftir r\u00famlega\nklukkut\u00edma leik freista\u00f0i J\u00f3n \u00fej\u00e1lfari \u00feess a\u00f0 hrista upp \u00ed spilinu me\u00f0\ntv\u00f6faldri skiptingu. Matth\u00edas og Alex f\u00f3ru \u00fataf og M\u00e1r og Magn\u00fas komu inn\u00e1. Um\nlei\u00f0 var f\u00e6kka\u00f0 um einn \u00ed v\u00f6rninni.<\/p><p>Mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 hina gr\u00fatlinu v\u00edtaspyrnu Leiknismanna \u00ed fyrri\nh\u00e1lfleiknum var skr\u00edti\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 M\u00e1 keyr\u00f0an ni\u00f0ur \u00ed teignum \u00e1 70. m\u00edn\u00fatu \u00e1n \u00feess\na\u00f0 neitt v\u00e6ri d\u00e6mt. Og tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar \u00e1ttu Framarar \u00fea\u00f0 sem virtist endalaus\ns\u00f3kn \u00fear sem \u00f3tal f\u00e6ri g\u00e1fust til a\u00f0 skj\u00f3ta en ekkert ger\u00f0ist. \u00deegar t\u00edu\nm\u00edn\u00fatur lif\u00f0u af venjulegum leikt\u00edma \u00feurfti a\u00f0 gera \u00feri\u00f0ju og s\u00ed\u00f0ustu\nskiptinguna \u00feegar Hei\u00f0ar Geir kom inn\u00e1 fyrir J\u00f6kul sem haf\u00f0i or\u00f0i\u00f0 fyrir\nhnjaski.<\/p><p>M\u00e1r f\u00e9kk s\u00ed\u00f0asta verulega g\u00f3\u00f0a f\u00e6ri okkar \u00ed leiknum \u00e1 83.\nm\u00edn\u00fatu, \u00fear sem hann komst einn \u00ed gegn en n\u00e1\u00f0i ekki skoti. Eftir \u00fea\u00f0 dr\u00f3 hratt\naf bl\u00e1kl\u00e6ddum. Leiknismenn h\u00f6f\u00f0u einfaldlega mun meiri sigurvilja, hvattir\n\u00e1fram af fj\u00f6lmennum h\u00f3pi stu\u00f0ningsmanna. Hlynur h\u00e9lt okkur inni \u00ed leiknum me\u00f0\nnokkrum g\u00f3\u00f0um v\u00f6rslum, en \u00feegar komi\u00f0 var fram \u00ed uppb\u00f3tart\u00edma steinsofna\u00f0i\nv\u00f6rnin og sigurmark Leiknis leik dagsins lj\u00f3s, 2:1.<\/p><p>Ergilegur endir \u00e1 \u00fev\u00ed sem ver\u00f0ur a\u00f0 teljast \u00e1s\u00e6ttanlegt\nt\u00edmabil. \u00de\u00f3tt sj\u00f6unda s\u00e6ti\u00f0 s\u00e9 ekkert til a\u00f0 hr\u00f3pa h\u00farra fyrir er ekki nema\nstig upp \u00ed fj\u00f3r\u00f0a s\u00e6ti\u00f0 og 33 stig er b\u00e6rileg uppskera. Hver hef\u00f0i tr\u00faa\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0\n\u00fea\u00f0 skila\u00f0i s\u00e9r \u00ed betri frammist\u00f6\u00f0u \u00e1 vellinum a\u00f0 skipta ekki \u00fat \u00f6llum\nleikmannah\u00f3pnum vi\u00f0 lok hverrar leikt\u00ed\u00f0ar?<\/p><p>Undirb\u00faningurinn fyrir n\u00e6sta \u00e1r er \u00feegar byrja\u00f0ur og vi\u00f0\ntekur landsbygg\u00f0ardeildin mikla. Nau\u00f0syn \u00feess a\u00f0 vi\u00f0halda Reykjav\u00edkurflugvelli\nhefur aldrei veri\u00f0 auglj\u00f3sari \u2013 og helst endurheimta ney\u00f0arbrautina.\nF\u00e1skr\u00fa\u00f0sfj\u00f6r\u00f0ur, \u00cdsafj\u00f6r\u00f0ur og Vestmannaeyjar eru \u00fe\u00f3 allt \u00e1kj\u00f3sanlegur\nf\u00f3rnarkostna\u00f0ur fyrir a\u00f0 losna vi\u00f0 fer\u00f0ina su\u00f0ur \u00e1 \u00c1svelli \u00ed frystikistuna sem\nnefnist Haukav\u00f6llurinn. Me\u00f0 kl\u00f3kindum hefur Fr\u00f6murum n\u00fa tekist a\u00f0 losna vi\u00f0\nb\u00e6\u00f0i Hauka og Gr\u00f3ttu \u00far deildinni, li\u00f0 sem hirtu af okkur \u00f6ll sex stigin \u00ed\nsumar. Me\u00f0 \u00feeim fyrirvara a\u00f0 fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar er hugv\u00edsindama\u00f0ur og\nm\u00e1ladeildarst\u00fadent vir\u00f0ist \u00feessi t\u00f6lfr\u00e6\u00f0i sta\u00f0festa a\u00f0 \u00fatiloka\u00f0 s\u00e9 anna\u00f0 en a\u00f0\nFramarar fari upp a\u00f0 \u00e1ri. Fagna \u00fev\u00ed allir g\u00f3\u00f0ir menn.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Einhver skemmtilegasti leikur sem fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar man eftir \u00ed seinni t\u00ed\u00f0 var lokaleikurinn \u00ed Peps\u00eddeildinni \u00e1ri\u00f0 sem vi\u00f0 f\u00f3rum ni\u00f0ur. Fram li\u00f0i\u00f0 var falli\u00f0 en m\u00f3therjarnir, Fylkismenn, hef\u00f0u tryggt s\u00e9r [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":4,"featured_media":20937,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[11,9],"tags":[],"class_list":["post-21285","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-mflkarla","category-fotbolti"],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2019\/08\/Fred-gegn-Leikni-vefur.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/21285","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/4"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=21285"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/21285\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/20937"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=21285"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=21285"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=21285"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}