{"id":22033,"date":"2020-02-10T08:26:51","date_gmt":"2020-02-10T08:26:51","guid":{"rendered":"http:\/\/fram.is\/?p=22033"},"modified":"2020-02-10T08:26:51","modified_gmt":"2020-02-10T08:26:51","slug":"sigurbergur-sigsteinsson-kvedja-fra-knattspyrnufelaginu-fram","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2020\/02\/10\/sigurbergur-sigsteinsson-kvedja-fra-knattspyrnufelaginu-fram\/","title":{"rendered":"Sigurbergur Sigsteinsson, kve\u00f0ja fr\u00e1 Knattspyrnuf\u00e9laginu Fram"},"content":{"rendered":"<h2 class=\"wp-block-heading\"><\/h2><p>Sigurbergur Sigsteinsson <br>F: 10. febr\u00faar 1948. D: 29. jan\u00faar 2020.<\/p><p>* \u00datf\u00f6r Sigurbergs fer fram fr\u00e1 Grafarvogskirkju\n\u00e1 f\u00e6\u00f0ingardegi hans; \u00ed dag, m\u00e1nudag 10. febr\u00faar 2020, kl. 13.<\/p><p>\u200b\u200b\u200b\u200b\u200b<strong>Kve\u00f0ja fr\u00e1 Knattspyrnuf\u00e9laginu Fram<\/strong><\/p><div class=\"wp-block-image\"><figure class=\"alignright is-resized\"><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2020\/02\/a-Sigurbergur-S.-1-2508x1719-2508x1719.-2-2508x1719-1-1024x702.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-22035\" width=\"329\" height=\"225\"\/><\/figure><\/div><p>Vi\u00f0 fr\u00e1fall Sigurbergs Sigsteinssonar s\u00e9r Fram \u00e1 bak g\u00f3\u00f0um, traustum og litr\u00edkum f\u00e9laga. Sigurbergur, sem \u00f3lst upp \u00e1 Nj\u00e1lsg\u00f6tunni; vi\u00f0 Frakkast\u00edg, var\u00f0 margfaldur meistari me\u00f0 yngri flokkum f\u00e9lagsins b\u00e6\u00f0i \u00ed knattspyrnu og handknattleik. Hann var\u00f0 unglingalandsli\u00f0sma\u00f0ur og s\u00ed\u00f0an landsli\u00f0sma\u00f0ur \u00ed b\u00e1\u00f0um greinum. Sigurbergur l\u00e9k 352 leiki me\u00f0 Framli\u00f0inu \u00ed handknattleik, 1966-1980, og 225 leiki \u00ed knattspyrnu, 1966-1979. Hann l\u00e9k me\u00f0 Fram \u00ed Meistarakeppni Evr\u00f3pu&nbsp; \u00ed b\u00e1\u00f0um greinum.<\/p><p>Sigurbergur var einn af bestu handknattleiksm\u00f6nnum \u00cdslands og fastama\u00f0ur \u00ed landsli\u00f0inu, fj\u00f6lh\u00e6fur leikma\u00f0ur \u00ed s\u00f3kn og \u00f6flugur \u00ed v\u00f6rn; einn besti varnarleikma\u00f0ur landsins. Sigurbergur l\u00e9k 88 landsleiki \u00e1 \u00e1runum 1967-1978. Hann var kalla\u00f0ur, 19 \u00e1ra, fr\u00e1 Laugarvatni, \u00fear sem hann var vi\u00f0 n\u00e1m \u00ed \u00ed\u00fer\u00f3ttakennarask\u00f3lanum, til a\u00f0 leika s\u00edna fyrstu landsleiki gegn T\u00e9kk\u00f3sl\u00f3vak\u00edu \u00ed byrjun desember 1967. \u00deegar \u00cdsland vann hinn fr\u00e6kna sigur \u00e1 D\u00f6num \u00ed apr\u00edl 1968, 15:10, stj\u00f3rna\u00f0i Sigurbergur varnarleiknum; \u00ed s\u00ednum \u00feri\u00f0ja landsleik.<\/p><p>&nbsp;Hann\nvar\u00f0 \u00cdslandsmeistari \u00ed handknattleik me\u00f0 meistaraflokki 1967, 1968, 1970 og\n1972, \u00cdslandsmeistari \u00ed knattspyrnu 1972 og bikarmeistari 1970.<\/p><p>&nbsp;Sigurbergur l\u00e9k sinn eina landsleik \u00ed\nknattspyrnu gegn \u00e1hugamannalandsli\u00f0i Englands \u00e1 Laugardalsvellinum 1971.<\/p><div class=\"wp-block-image\"><figure class=\"alignright is-resized\"><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2020\/02\/a-Sigurbergur-S.-2-3150x4724.-194-_A-04-001-3150x4724.-194-_A-04-001-683x1024.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-22036\" width=\"326\" height=\"488\"\/><figcaption>\u00cdsland &#8211; England (\u00e1h.) 1-3 (1-1), VL &#8211; Reykjav\u00edk, Laugardalsv\u00f6llur 4. \u00e1g\u00fast 1971. \u00deorbergur Atlason, J\u00f3hannes Atlason fyrirli\u00f0i, Sigurbergur Sigsteinsson, <\/figcaption><\/figure><\/div><p>Sigurbergur t\u00f3k \u00fe\u00e1tt \u00ed heimsmeistarakeppninni \u00ed handknattleik \u00ed Frakklandi 1970 og HM \u00ed Austur-\u00de\u00fdskalandi 1974. \u00de\u00e1 l\u00e9k hann me\u00f0 landsli\u00f0inu \u00e1 \u00d3lymp\u00eduleikunum \u00ed M\u00fcnchen 1972. Fyrir leikana var hann lykilma\u00f0ur \u00ed knattspyrnuli\u00f0i Fram sem bar\u00f0ist um \u00cdslandsmeistaratitilinn. \u00de\u00e1 setti HS\u00cd \u201eknattspyrnubann\u201c \u00e1 Sigurberg til a\u00f0 hann g\u00e6ti teki\u00f0 af fullum krafti \u00fe\u00e1tt \u00ed undirb\u00faningu fyrir \u00d3L. Sigurbergur kom s\u00ed\u00f0an tv\u00edefldur fr\u00e1 M\u00fcnchen til a\u00f0 leika \u00e1 n\u00fd me\u00f0 Framli\u00f0inu og fagna meistaratitli me\u00f0 f\u00e9l\u00f6gum s\u00ednum.<\/p><p>&nbsp;\nSigurbergur, sem var einn besti skallama\u00f0ur landsins \u2013 haf\u00f0i yfir a\u00f0\nr\u00e1\u00f0a mikilli skallat\u00e6kni, var\u00f0 bikarmeistari \u00ed knattspyrnu 1970, eftir a\u00f0 hafa\nskalla\u00f0 V\u00edking \u00fat \u00far bikarkeppninni \u00e1 Melavellinum, 3:2. <em>T\u00edminn<\/em> sag\u00f0i\n\u00feannig fr\u00e1: \u201e\u00c1horfendur fengu a\u00f0 sj\u00e1 eitt gl\u00e6silegasta skallamark, sem lengi\nhefur s\u00e9st. Eftir hornspyrnu lyfti Sigurbergur s\u00e9r upp \u00e1 r\u00e9ttu augnarbliki, og\nskalla\u00f0i kn\u00f6ttinn, undir \u00feversl\u00e1nna og \u00fea\u00f0an \u00ed neti\u00f0.&nbsp; Sigurbergur skapa\u00f0i glundro\u00f0a \u00ed\nV\u00edkingsv\u00f6rninni er hann kom \u00feanga\u00f0, og l\u00edti\u00f0 h\u00f6f\u00f0u V\u00edkingar a\u00f0 gera \u00ed hann, er\n\u00feeir s\u00f3ttu hann heim \u00ed Framv\u00f6rnina, \u00fear sem hann bar h\u00f6fu\u00f0 og her\u00f0ar yfir alla.\u201c<\/p><p>Sigurbergur f\u00e9kk oft \u00fea\u00f0 hlutverk a\u00f0 hafa g\u00e6tur \u00e1 h\u00e6ttulegasta s\u00f3knarmanni andst\u00e6\u00f0inganna. Og ger\u00f0i \u00fea\u00f0 vel.<\/p><p>J\u00f3hannes Atlason sag\u00f0i a\u00f0 Sigurbergur hafi veri\u00f0 svakalegur skallama\u00f0ur. \u201eM\u00e9r fannst hann alltaf h\u00f6f\u00f0inu h\u00e6rri en \u00e9g \u00ed leikjum, en vi\u00f0 l\u00e6knissko\u00f0un kom eitt sinn \u00ed lj\u00f3s, a\u00f0 hann var sentimetra minni en \u00e9g!\u201c<\/p><p>&nbsp;Sigurbergur, sem skora\u00f0i 18 m\u00f6rk, flest me\u00f0 skalla, fyrir Fram \u00ed knattspyrnu \u00e1runum 1966-1979, skora\u00f0i einnig eftirminnilegt mark \u00ed handknattleik \u00ed Laugardalsh\u00f6llinni, \u00feegar hann kasta\u00f0i s\u00e9r fram og skalla\u00f0i kn\u00f6ttinn \u00ed neti\u00f0 \u00ed &nbsp;hra\u00f0aupphlaupi.<\/p><p>&nbsp;Sigurbergur var drengur g\u00f3\u00f0ur og leit yfirleitt \u00e1 bj\u00f6rtu hli\u00f0arnar og \u00fe\u00e1 var oftar en hitt stutt \u00ed spaugi\u00f0. \u00dea\u00f0 var \u00e1vallt mikil m\u00fasik \u00ed kringum hann, en Sigurbergur \u00e1tti eitt gl\u00e6silegasta pl\u00f6tusafn landsins. Upp\u00e1haldshlj\u00f3msveit hans var enska g\u00edtarsveitin The Shadows og Cliff Richard. \u00dear var \u00e1tr\u00fana\u00f0argo\u00f0i\u00f0 Hank Marvin. Hann og Sigurbergur \u00e1ttu \u00fea\u00f0 sameiginlegt a\u00f0 leika af fingrum fram, \u00feegar \u00feeir voru \u00ed&nbsp; essinu s\u00ednu. Marvin upp \u00e1 svi\u00f0i me\u00f0 g\u00edtarinn, Sigurbergur inni \u00e1 vellinum, me\u00f0 kn\u00f6ttinn!<\/p><p>&nbsp;Sigurbergur var mikill keppnisma\u00f0ur, \u00f6flugur varnarma\u00f0ur b\u00e6\u00f0i \u00ed handknattleik og knattspyrnu. Hann undirbj\u00f3 sig vel fyrir hverja orrustu \u2013 lag\u00f0i alla krafta s\u00edna \u00ed verkefnin, \u00e1kve\u00f0inn a\u00f0 l\u00e1ta sitt ekki eftir liggja. Hann var \u00fe\u00f3 ekki alls kostar tilb\u00fainn \u00ed s\u00edna s\u00ed\u00f0ustu bar\u00e1ttu, Alzheimersj\u00fakd\u00f3minn, sem svo margir standa berskjalda\u00f0ir frammi fyrir. Jafnvel sterkustu v\u00edgi falla \u00ed sl\u00edkum slag. \u00dea\u00f0 er s\u00e1rt a\u00f0 horfa \u00e1 eftir g\u00f3\u00f0um f\u00e9laga \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt.<\/p><p>&nbsp;\u00dea\u00f0 muna\u00f0i eitt sinn ekki miklu a\u00f0 Sigurbergur missti af Evr\u00f3puleik gegn Partizan Bjelovar fr\u00e1 J\u00fag\u00f3slav\u00edu \u00ed Laugardalsh\u00f6llinni. Hann haf\u00f0i fari\u00f0 \u00ed lj\u00f3s, til a\u00f0 f\u00e1 \u00e1 sig sm\u00e1 lit. Svo \u00f3heppilega vildi til, a\u00f0 Sigurbergur sofna\u00f0i, \u00feannig a\u00f0 baki\u00f0 \u00e1 honum brann og var\u00f0 eins og gl\u00f3andi hn\u00f6ttur. Sigurbergur gaf sig ekki; m\u00e6tti \u00ed \u00e1t\u00f6kin, 16:16. Hann var s\u00e1r\u00fej\u00e1\u00f0ur eftir \u00e1t\u00f6kin og \u00feegar hann kl\u00e6ddi sig \u00far keppnisbolnum, fylgdi skinni\u00f0 af baki Sigurbergs, peysunni.<br>&nbsp;Sigurbergur s\u00fdndi einnig mikla keppnish\u00f6rku \u00feegar hann skora\u00f0i j\u00f6fnunarmark \u00der\u00f3ttar Nes. gegn Selfossi \u00ed knattspyrnuleik 1979.&nbsp; <em>Morgunbla\u00f0i\u00f0<\/em> sag\u00f0i \u00feannig fr\u00e1: \u201eSigurbergur l\u00e9k me\u00f0 skur\u00f0 \u00e1 h\u00f6f\u00f0i og \u00feurrka\u00f0i af og til bl\u00f3\u00f0i\u00f0 af h\u00f6f\u00f0i s\u00e9r me\u00f0 grisju, sem hann h\u00e9lt \u00e1.\u201c J\u00f6fnunarmarkinu, sem kom eftir hornspyrnu, var l\u00fdst \u00feannig: Sigurbergur skalla\u00f0i kn\u00f6ttinn yfir markmann Selfoss. \u201eHafna\u00f0i bl\u00f3\u00f0ugur boltinn \u00ed netinu.\u201c <br>\u200b\u200b\u200b\u200bSigurbergur \u00f3ska\u00f0i eftir \u00fev\u00ed vi\u00f0 samherja s\u00edna og l\u00e6risveina, a\u00f0 \u00feeir leg\u00f0u allt sitt fram \u00ed leiki. Handknattleikskappinni Dagur Sigur\u00f0sson, Val, sem var fyrirli\u00f0i 4. flokksli\u00f0s Vals \u00ed knattspyrnu, sem Sigurbergur \u00fej\u00e1lfa\u00f0i, sag\u00f0i fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed Valsbla\u00f0inu \u00feegar hann rifja\u00f0i upp eftirminnilegustu \u00fej\u00e1lfara, a\u00f0 Sigurbergur hef\u00f0i sagt fyrir einn leikinn, sem f\u00f3r ekki fram vi\u00f0 bestu a\u00f0st\u00e6\u00f0ur. \u201eStr\u00e1kar, \u00fea\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 berjast endalaust \u00ed \u00feessu ve\u00f0ri!\u201c<\/p><p>&nbsp;\u00dea\u00f0 m\u00e1 segja a\u00f0 Sigurbergur hafi alltaf veri\u00f0 \u00e1 fer\u00f0 og flugi. Hann var \u00ed m\u00f6rg \u00e1r afkastamesti \u00fej\u00e1lfari landsins og \u00fej\u00e1lfa\u00f0i meira en eitt kappli\u00f0 \u00ed einu \u00ed handknattleik og knattspyrnu, auk \u00feess a\u00f0 vera leikfimiskennari \u00ed Verslunarsk\u00f3lanum og \u00c1rb\u00e6jarsk\u00f3lanum. <\/p><p>Eftir a\u00f0 Sigurbergur \u00fatskrifa\u00f0ist sem \u00ed\u00fer\u00f3ttakennari fr\u00e1 Laugarvatni 1968 var hann r\u00e1\u00f0inn, 20 \u00e1ra, \u00fej\u00e1lfari unglingalandsli\u00f0sins \u00ed handknattleik. Unglingali\u00f0i\u00f0 var\u00f0 \u00ed \u00feri\u00f0ja s\u00e6ti \u00e1 NM \u00ed Noregi 1969, undir stj\u00f3rn Sigurbergs.<\/p><p>&nbsp;S\u00ed\u00f0an\n\u00e1tti hann eftir a\u00f0 ver\u00f0a landsli\u00f0s\u00fej\u00e1lfari kvenna \u00ed handknattleik 1974-1975, aftur\n1980-1983 og stj\u00f3rna landsli\u00f0inu \u00ed 32 landsleikjum. <\/p><div class=\"wp-block-image\"><figure class=\"alignright is-resized\"><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2020\/02\/a-Sigurbergur-S.-3-1296x2301-001-1296x2301.-1-1296x2301-001-577x1024.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-22037\" width=\"366\" height=\"649\"\/><\/figure><\/div><p>\u00deegar Sigurbergur \u00fej\u00e1lfa\u00f0i kvennalandsli\u00f0i\u00f0 t\u00edmabili\u00f0 1980-1981, \u00fej\u00e1lfa\u00f0i hann einnig kvennali\u00f0 Fram (1. deild) og \u00cdR (2. deild). \u00deegar li\u00f0in m\u00e6ttust \u00ed \u00farslitaleik um Reykjav\u00edkurmeistaratitilinn, \u00e1kva\u00f0 hann a\u00f0 halda sig til hl\u00e9s; s\u00fdna hlutleysi me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 horfa \u00e1 li\u00f0in leika, fr\u00e1 \u00e1horfendap\u00f6llum! Fram vann.<\/p><p>Sigurbergur er eini \u00fej\u00e1lfarinn sem hefur \u00fej\u00e1lfa\u00f0 b\u00e6\u00f0i kvennalandsli\u00f0 \u00cdslands \u00ed handknattleik og knattspyrnu. Hann \u00fej\u00e1lfa\u00f0i og stj\u00f3rna\u00f0i kvennali\u00f0inu \u00ed knattspyrnu \u00ed 8 leikjum 1985-1986. Me\u00f0 li\u00f0inu l\u00e9ku \u00fe\u00e1 fj\u00f3rar st\u00falkur, sem h\u00f6f\u00f0u leiki\u00f0 undir hans stj\u00f3rn me\u00f0 handknattleikslandsli\u00f0inu.<\/p><p>Sigurbergur var \u00e1 st\u00f6\u00f0ugri fer\u00f0 \u00e1 milli \u00ed\u00fer\u00f3ttah\u00fasa og valla, til a\u00f0 kenna og \u00fej\u00e1lfa. \u00cd Safam\u00fdrinni (Fram \u2013 \u00fej\u00e1lfa\u00f0i meistaraflokk karla og kvenna \u00ed handknattleik og yngri flokka \u00ed handknattleik og knattspyrnu. Hann var \u00ed m\u00f6rg \u00e1r sk\u00f3lastj\u00f3ri hins vins\u00e6la Knattspyrnusk\u00f3la Fram), a\u00f0 Hl\u00ed\u00f0arenda (Valur \u2013 \u00fej\u00e1lfa\u00f0i b\u00e6\u00f0i meistaraflokk kvenna \u00ed handknattleik og knattspyrnu, og yngri flokka \u00ed knattspyrnu), \u00ed \u00c1rb\u00e6 (leikfimiskennari) og Brei\u00f0holti (\u00cdR \u2013 \u00fej\u00e1lfa\u00f0i meistaraflokk kvenna \u00ed handknattleik), \u00ed Hafnarfir\u00f0i (Haukar \u2013 \u00fej\u00e1lfa\u00f0i meistaraflokk karla \u00ed handknattleik), \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6 (Stjarnan \u2013 \u00fej\u00e1lfa\u00f0i meistaraflokk kvenna \u00ed handknattleik), hj\u00e1 \u00c1rmanni \u2013 \u00fej\u00e1lfa\u00f0i meistaraflokk karla \u00ed knattspyrnu, hj\u00e1 HK \u00ed K\u00f3pavogi, li\u00f0sstj\u00f3ri, leikma\u00f0ur og \u00fej\u00e1lfari \u00ed handknattleik. Tv\u00f6 sumur f\u00f3r hann austur \u00e1 fir\u00f0i, til a\u00f0 \u00fej\u00e1lfa og leika me\u00f0 knattspyrnuli\u00f0um Leikni \u00e1 F\u00e1skr\u00fa\u00f0sfir\u00f0i (1975) og \u00der\u00f3tt Neskaupsta\u00f0 (1979).<\/p><p>Sigurbergur var r\u00e1\u00f0inn \u00fej\u00e1lfari kvennali\u00f0s Gr\u00f3ttu \u00ed handknattleik 1995, en starf hans var ekki lengi, \u00fear sem Gr\u00f3tta n\u00e1\u00f0i ekki f\u00e1 n\u00e6gilega margar st\u00falkur til a\u00f0 halda \u00fat keppnisli\u00f0i.<\/p><p>&nbsp;\u00deess m\u00e1 geta a\u00f0 Sigurbergur f\u00f3r til Freiburg \u00ed \u00de\u00fdskalandi sumari\u00f0 1982, \u00fear sem hann t\u00f3k \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00fej\u00e1lfarask\u00f3la \u00ed handknattleik \u00e1 vegum \u00fe\u00fdska handknattleikssambandsins.Sigurbergur lenti oft \u00ed kapphlaupi vi\u00f0 t\u00edmann, er hann geystist um \u00e1 milli \u00ed\u00fer\u00f3ttah\u00fasa og valla. Hann f\u00e9kk oft hra\u00f0asektir, \u00ed \u00c1rt\u00fansbrekkunni, \u00e1 lei\u00f0 \u00ed b\u00e6inn e\u00f0a upp \u00ed \u00c1rb\u00e6. L\u00e9t \u00fea\u00f0 ekkert \u00e1 sig f\u00e1; h\u00e9lt r\u00f3 sinni og yfirvegun er hann m\u00e6tti \u00e1 \u00e6fingar. Fer\u00f0ir \u00e1 milli sta\u00f0a t\u00f3k lengri t\u00edma \u00feegar Sigurbergur var b\u00edllaus og fer\u00f0a\u00f0ist \u00e1 milli sta\u00f0a me\u00f0 str\u00e6gisv\u00f6gnum, e\u00f0a jafnvel hlaupandi.<\/p><p>&nbsp;\u00de\u00e1 \u00e1tti\nSigurbergur heima \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6. Hann hlj\u00f3p \u00fea\u00f0an til a\u00f0 stj\u00f3rna \u00e6fingum hj\u00e1 Fram \u00ed\nSafam\u00fdrinni og s\u00ed\u00f0an heim \u00e1 eftir \u00e6fingar. J\u00e1, Sigurbergur var svo sannarlega\nalltaf \u00e1 fer\u00f0 og flugi \u2013 lag\u00f0i sig alltaf allan fram til a\u00f0 sinna s\u00ednum\nverkefnum eins vel og hann gat; og ger\u00f0i.<\/p><p>Knattspyrnuf\u00e9lagi\u00f0 Fram kve\u00f0ur Sigurberg Sigsteinssonn me\u00f0 hl\u00fdju. Eiginkonu hans og fj\u00f6lskyldu eru sendar hugheilar sam\u00fa\u00f0arkve\u00f0jur.<\/p><p>&nbsp;Sigmundur \u00d3. Steinarsson<\/p><p>J\u00f3hann G. Kristinsson hefur teki\u00f0 saman myndir af l\u00f6ngum ferli Sigurbergs og h\u00e9r er h\u00e6gt a\u00f0 sj\u00e1 \u00feessar myndir <a href=\"http:\/\/frammyndir.123.is\/photoalbums\/292938\/\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">http:\/\/frammyndir.123.is\/photoalbums\/292938\/<\/a><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sigurbergur Sigsteinsson F: 10. febr\u00faar 1948. D: 29. jan\u00faar 2020. * \u00datf\u00f6r Sigurbergs fer fram fr\u00e1 Grafarvogskirkju \u00e1 f\u00e6\u00f0ingardegi hans; \u00ed dag, m\u00e1nudag 10. febr\u00faar 2020, kl. 13. \u200b\u200b\u200b\u200b\u200bKve\u00f0ja fr\u00e1 [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":4,"featured_media":22039,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[8,10],"tags":[],"class_list":["post-22033","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-adalstjorn","category-frettir"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2020\/02\/Sigurbergur-vefur.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/22033","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/4"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=22033"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/22033\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/22039"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=22033"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=22033"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=22033"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}