{"id":22543,"date":"2020-06-20T20:00:48","date_gmt":"2020-06-20T20:00:48","guid":{"rendered":"http:\/\/fram.is\/?p=22543"},"modified":"2020-06-20T20:00:48","modified_gmt":"2020-06-20T20:00:48","slug":"puttinn","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2020\/06\/20\/puttinn\/","title":{"rendered":"Puttinn"},"content":{"rendered":"<div class=\"wp-block-image\"><figure class=\"alignright is-resized\"><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2020\/06\/FRAMb\u00faningur-2020-krop-890x1024.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-22546\" width=\"271\" height=\"311\"\/><figcaption>FRAM treyjan 2020<\/figcaption><\/figure><\/div><p>R\u00f3mverjinn Gaius Cornelius Tacitius, sem uppi var \u00e1 fyrstu \u00f6ld okkar t\u00edmatals, er einn mikilv\u00e6gasti sagnaritari fornaldar. Hann er grundvallarheimild um menningu og samf\u00e9lag germanskra \u00fej\u00f3\u00f0a \u00e1 sinni t\u00ed\u00f0. \u00dear er tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0um og \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsskipan Germana l\u00fdst n\u00e1kv\u00e6mlega en einnig sagt fr\u00e1 \u00fdmsum sm\u00e1atri\u00f0um \u00ed \u00feeirra h\u00e1ttum. \u00deannig segir Tacitius fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feegar germanskir hermenn st\u00f3\u00f0u andsp\u00e6nis r\u00f3mverskum \u00f3vinum s\u00ednum fyrir orrustu \u00e1ttu \u00feeir til a\u00f0 s\u00fdna \u00f3vir\u00f0ingu s\u00edna me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 haldar h\u00f6ndinni \u00fat fr\u00e1 l\u00edkamanum alla fingur kreppta nema l\u00f6ngut\u00f6ng. \u00deessi si\u00f0ur, a\u00f0 s\u00fdna puttann \u00ed m\u00f3\u00f0gunarskyni, mun \u00fe\u00f3 a\u00f0 mati mannfr\u00e6\u00f0inga vera enn eldri. Langat\u00f6ng er \u00fe\u00e1 auglj\u00f3st re\u00f0urt\u00e1kn en v\u00edsifingur og baugfingur \u00ed beyg\u00f0ri st\u00f6\u00f0u t\u00e1kna hvort sitt eista. Meira um \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0ar.<\/p><div class=\"wp-block-image\"><figure class=\"alignright is-resized\"><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2020\/06\/Samningur-vi\u00f0-GG-Verk-krop-1024x891.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-22547\" width=\"300\" height=\"261\"\/><figcaption>GG-Verk styrkir FRAM<\/figcaption><\/figure><\/div><p>\u00dea\u00f0 v\u00e6ri synd a\u00f0 segja ve\u00f0r\u00e1ttan hafi s\u00fdnt Fr\u00f6murum puttann (of sjoppuleg tenging?) \u00e1 fyrsta heimaleik \u00cdslandsm\u00f3tsins. Rigning \u00ed morguns\u00e1ri\u00f0 hef\u00f0i \u00e1tt a\u00f0 duga til a\u00f0 bleyta almennilega upp \u00ed vellinum, en hann reyndist \u00fe\u00f3 me\u00f0 \u00feurrara m\u00f3ti \u00feegar til kastanna kom. St\u00fakan var \u00fe\u00e9ttskipu\u00f0 og gaman a\u00f0 sj\u00e1 marga F\u00e1skr\u00fa\u00f0sfir\u00f0inga b\u00fasetta \u00e1 m\u00f6linni m\u00e6ta og sty\u00f0ja s\u00edna menn. Fram\u00farskarandi f\u00f3lk Austfir\u00f0ingar og \u00e6ttu allir a\u00f0 vera kv\u00e6ntir einum sl\u00edkum.<\/p><div class=\"wp-block-image\"><figure class=\"alignright is-resized\"><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2020\/06\/Framherja-kaffi--1024x683.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-22548\" width=\"288\" height=\"191\"\/><figcaption>FRAMherja-kaffi<\/figcaption><\/figure><\/div><p>Inni \u00ed Framheimili var allt morandi \u00ed l\u00edfi. \u00dea\u00f0 er \u00fe\u00e1\neitthva\u00f0 anna\u00f0 en \u00ed Mordor \u2013 e\u00f0a \u00fej\u00f3\u00f0arleikvanginum \u00ed Laugardal eins og sumir\nvilja kalla \u00feann sta\u00f0. \u00c9g er strax farinn a\u00f0 kv\u00ed\u00f0a fyrir a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 fara\n\u00feanga\u00f0 til a\u00f0 taka \u00e1 m\u00f3ti \u00feessum bikarmeistaratitli \u00ed haust. \u2013 En \u00ed\nf\u00e9lagsheimilinu voru framreiddir hamborgarar, \u00e1rsmi\u00f0um \u00fatb\u00fdtt og \u00f6rl\u00e1tustu\nstu\u00f0ningsa\u00f0ilarnir fengu s\u00e9rstaka forkynnngu \u00e1 kappli\u00f0i dagsins \u00e1samt\n\u00fatsk\u00fdringum J\u00f3ns \u00fej\u00e1lfara. Svona eiga heimaleikjadagar a\u00f0 vera!<\/p><p>Tv\u00e6r breytingar voru ger\u00f0ar \u00e1 byrjunarli\u00f0inu fr\u00e1\nHaukaleiknum um fyrri helgi. Haraldur sneri aftur \u00far leikbanni en Hlynur er fr\u00e1\neftir axlarbyltuna sem hann f\u00e9kk s\u00ed\u00f0ast. \u00d3lafur var \u00fev\u00ed \u00ed marki og me\u00f0\nfyrirli\u00f0abandi\u00f0. Gunnar og Arn\u00f3r Da\u00f0i \u00ed mi\u00f0v\u00f6r\u00f0unum me\u00f0 Unnar fyrir framan sig.\nHaraldur og Alex \u00ed bakv\u00f6r\u00f0unum. Albert, Hilmar og Fred allir hreyfanlegir \u00e1\nmi\u00f0junni og \u00fat til kantanna og \u00de\u00f3rir fremstur. \u00cd fyrirlestrinum til innherjanna\nvar uppl\u00fdst a\u00f0 \u00e6tlunin v\u00e6ri a\u00f0 s\u00e6kja st\u00edft \u00e1 h\u00e6gri kantinn og gekk \u00fea\u00f0 r\u00e6kilega\neftir.<\/p><div class=\"wp-block-image\"><figure class=\"alignright is-resized\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2020\/06\/Fyrsta-mark-\u00e1rsins-2020-1024x683.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-22549\" width=\"298\" height=\"198\"\/><figcaption>Heimav\u00f6llurinn<\/figcaption><\/figure><\/div><p>Eins og \u00e1\u00f0ur hefur komi\u00f0 fram \u00e6tla Framarar a\u00f0 koma\nandst\u00e6\u00f0ingum s\u00ednum \u00ed opna skj\u00f6ldu \u00ed \u00e1r me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 tileinka s\u00e9r j\u00e1kv\u00e6\u00f0ni og\nbjarts\u00fdni. \u00dea\u00f0 mun pott\u00fe\u00e9tt fokka verulega \u00ed \u00feeim li\u00f0um sem eru v\u00f6n okkur\nl\u00edfslei\u00f0um og bitrum. Hitt leynivopni\u00f0 er hinn f\u00e1r\u00e1nlega flotti n\u00fdi\nFramb\u00faningur sem frums\u00fdndur var \u00ed dag og fer \u00e1 top-5 listann yfir svalar\nFramtreyjur.<\/p><p>\u201eHannes sigra\u00f0i mig \u00e1 gl\u00e6ismennskunni\u201c, sag\u00f0i\nstj\u00f3rnm\u00e1lama\u00f0urinn Valt\u00fdr Gu\u00f0mundsson \u00feegar hann var be\u00f0inn um a\u00f0 sk\u00fdra hvers\nvegna Hannes Hafstein var\u00f0 fyrir valinu sem fyrsti R\u00e1\u00f0herra \u00cdslands en ekki\nValt\u00fdr sj\u00e1lfur. R\u00fa\u00f0ustrika\u00f0ri sagnfr\u00e6\u00f0ingur en s\u00e1 sem \u00feetta ritar myndi kannski\nbenda \u00e1 \u00fdmsar stj\u00f3rnm\u00e1lalegar sk\u00fdringar \u00e1 r\u00e1\u00f0herravalinu a\u00f0rar en \u00fe\u00e6r a\u00f0 Hannes\nhafi sk\u00edtl\u00fakka\u00f0 me\u00f0 strauja\u00f0an flibba \u2013 en punkturinn heldur: \u00fea\u00f0 er erfitt a\u00f0\nkeppa vi\u00f0 menn sem eru flottir \u00ed tauinu. Og \u00fea\u00f0 er l\u00edklega \u00fea\u00f0 sem ger\u00f0ist \u00ed\ndag. Rau\u00f0kl\u00e6ddir Leiknismenn lyppu\u00f0ust ni\u00f0ur \u00feegar \u00feeir s\u00e1u kl\u00e6\u00f0abur\u00f0inn \u00e1\nokkar m\u00f6nnum.<\/p><p>Framarar t\u00f3ku leikinn \u00ed s\u00ednar hendur strax \u00ed upphafi me\u00f0\nlipru spili auk \u00feess sem einstaka menn ger\u00f0u \u00e1hlaup \u00e1 Leiknisv\u00f6rnina og ollu\nmiklum usla. Eina svar gestanna var a\u00f0 brj\u00f3ta af s\u00e9r og uppsk\u00e1ru \u00feeir fyrsta\nspjaldi\u00f0 strax eftir fimm m\u00edn\u00fatna leik. Upp \u00far \u00fev\u00ed sm\u00e1j\u00f3kst \u00feunginn \u00ed\ns\u00f3knarleiknum. \u00de\u00f3rir skalla\u00f0i yfir \u00far \u00feokkalegu f\u00e6ri og Albert \u00e1tti \u00e1g\u00e6tt skot\nsem fr\u00e1b\u00e6r markv\u00f6r\u00f0ur Leiknismanna var\u00f0i vel.<\/p><div class=\"wp-block-image\"><figure class=\"alignright is-resized\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2020\/06\/FRED-gegn-Leikni-F.--1024x820.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-22551\" width=\"304\" height=\"243\"\/><figcaption>Ma\u00f0ur leiksins Fred.<\/figcaption><\/figure><\/div><p>Eftir r\u00e9tt r\u00famlega stundarfj\u00f3r\u00f0ung kom fyrsta marki\u00f0. Fred\nf\u00e9kk boltann lengst \u00fati \u00e1 velli n\u00e6rri endal\u00ednu (\u00e1 h\u00e6gri kanti, hva\u00f0 anna\u00f0!) og\nl\u00e9k s\u00e9r af \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00f3la varnarmann Leiknis, bruna\u00f0i inn \u00ed teiginn og sendi\nkn\u00f6ttinn milli f\u00f3ta markvar\u00f0arins. T\u00f3k dansspor \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 beint af \u00e6fingasv\u00e6\u00f0inu.<\/p><p>\u00datsalan \u00e1 h\u00e6gri kantinum h\u00e9lt \u00e1fram og um mi\u00f0jan h\u00e1lfleikinn\nbraust Alex \u00ed gegn og en skaut framhj\u00e1 \u00far uppl\u00f6g\u00f0u f\u00e6ri. \u00c1 s\u00ed\u00f0asta leik\nkvarta\u00f0i sessunautur fr\u00e9ttaritara Frams\u00ed\u00f0unnar yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 leikmenn li\u00f0sins\nv\u00e6ru \u00f3\u00fearflega svipa\u00f0ir \u00ed \u00fatliti \u00e1 velli, h\u00e1vaxnir og lj\u00f3sh\u00e6r\u00f0ir. Alex hefur\nfengi\u00f0 minnisbla\u00f0i\u00f0 og st\u00e1tar n\u00fa af bl\u00e1um m\u00f3h\u00edkanakambi. Svona ver\u00f0a menn a\u00f0\ng\u00e6ta \u00feess hva\u00f0 \u00feeir bi\u00f0ja um\u2026<\/p><p>Undir lok fyrri h\u00e1lfleiks braut s\u00f3lin s\u00e9r lei\u00f0 milli sk\u00fdja\nog \u00fea\u00f0 sn\u00f6gghl\u00fdna\u00f0i \u00e1 vellinum. Fr\u00e9ttaritarinn \u2013 sem enn haf\u00f0i ekki fengi\u00f0 a\u00f0\ngera markafleygnum g\u00f3\u00f0a skil, \u00fear sem f\u00e9lagi Valur Nor\u00f0ri h\u00e9lt a\u00f0 leikurinn\nv\u00e6ri klukkan tv\u00f6 og kom ekki fyrr en \u00ed hl\u00e9i \u2013 snara\u00f0i s\u00e9r \u00far jakkanum. En\nLeiknismenn s\u00e1u ekki til s\u00f3lar. Li\u00f0 \u00feeirra komst varla yfir mi\u00f0ju, en Framarar\n\u00e1 p\u00f6llunum heyr\u00f0ust tauta e-\u00f0 um a\u00f0 m\u00f6nnum g\u00e6ti veri\u00f0 refsa\u00f0 fyrir a\u00f0 n\u00fdta ekki\nsvona m\u00f6rg f\u00edn f\u00e6ri.<\/p><p>Sk\u00f6mmu \u00e1\u00f0ur en flauta\u00f0 var til leikhl\u00e9s n\u00e1\u00f0i Fred a\u00f0\ntv\u00f6falda forystuna og \u00ed raun drepa leikinn. A\u00f0dragandi marksins var s\u00e9rlega\ngl\u00e6silegur. \u00de\u00f3rir t\u00f3k boltann \u00e1 lofti inni \u00ed v\u00edtateig Leiknismanna \u00e1 gl\u00e6silegan\nh\u00e1tt og l\u00e9t va\u00f0a. Afgrei\u00f0slan var fr\u00e1b\u00e6r og hef\u00f0i ver\u00f0skulda\u00f0 a\u00f0 liggja \u00ed\nnetinu, en markv\u00f6r\u00f0urinn var\u00f0i. Boltinn hraut \u00fat \u00far teignum \u00fear sem Fred kom\na\u00f0v\u00edfandi og skora\u00f0i fallega \u00ed markhorni\u00f0, 2:0.<\/p><p>\u00dea\u00f0 voru s\u00e1ttir Framstu\u00f0ningsmenn sem maulu\u00f0u kaffibrau\u00f0 \u00ed\nh\u00e1t\u00ed\u00f0arsalnum \u00ed hl\u00e9i \u2013 \u00fe\u00f3tt \u00f3neitanlega eigi sumir erfitt me\u00f0 \u00feessa skr\u00edtnu\nsamf\u00e9lagslegu tilraun a\u00f0 vera \u00ed st\u00f6\u00f0ugu JC-skapi eins og Atli \u00ed laginu um K\u00f6tlu\nk\u00f6ldu. Fr\u00e9ttaritarinn f\u00e9ll \u00fe\u00f3 \u00e1 Henr\u00fds Birgis-pr\u00f3finu me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gleyma a\u00f0 gera\nv\u00ednarbrau\u00f0unum skil og nennti ekki a\u00f0 b\u00ed\u00f0a eftir n\u00fdrri upp\u00e1hellingu af kaffinu,\nenda voru \u00feeir Valur og markafleygurinn komnir og t\u00edmab\u00e6rt a\u00f0 gera upp\nb\u00f3khaldi\u00f0.<\/p><p>Seinni h\u00e1lfleikur var fr\u00e1 fyrstu stundu mun dauflegri en s\u00e1\nfyrri. Nokkur g\u00f3\u00f0 f\u00e6ri litu \u00fe\u00f3 dagsins lj\u00f3s sem flest innih\u00e9ldu Fred, \u00de\u00f3ri,\nAlbert e\u00f0a alla framannefnda. \u00deri\u00f0ja og s\u00ed\u00f0asta marki\u00f0 kom hins vegar \u00e1 56.\nm\u00edn\u00fatu eftir farsakenndan varnarleik \u00fear sem boltinn enda\u00f0i \u00e1 a\u00f0 berast til\nAlexanders upp\u00far \u00fev\u00f6gu sem afgreiddi hann \u00ed neti\u00f0.<\/p><p>Um mi\u00f0jan seinni h\u00e1lfleikinn var Alexander hv\u00edldur og Alfre\u00f0\nskipt \u00fataf eftir sm\u00e1 hnjask en M\u00e1s og Aron K\u00e1ri komu inn\u00e1. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar f\u00f3r\nAlex \u00fataf eftir byltu en Matth\u00edas kom \u00ed sta\u00f0inn \u00ed v\u00f6rnina. F\u00e1einum sek\u00fandum\ns\u00ed\u00f0ar f\u00e6kka\u00f0i Leiknism\u00f6nnum \u00e1 vellinum um einn. Svo vir\u00f0ist sem annar\na\u00f0sto\u00f0ard\u00f3marinn hafi tali\u00f0 einn Sp\u00e1nverjinn \u00ed li\u00f0i F\u00e1skr\u00fa\u00f0sfjar\u00f0ar hef\u00f0i\nrifja\u00f0 upp hina \u00e6vag\u00f6mlu germ\u00f6nsku sv\u00edvir\u00f0ingu og s\u00fdnt s\u00e9r phallusart\u00e1kn til a\u00f0\nm\u00f3tm\u00e6la innkastsd\u00f3mi. Lj\u00f3smyndir netmi\u00f0la lei\u00f0a \u00fe\u00f3 \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 s\u00e1 sp\u00e6nski var me\u00f0\nv\u00edsifingurinn \u00e1 lofti. Hann er \u00fev\u00ed anna\u00f0 hvort mj\u00f6g l\u00e9legur \u00ed a\u00f0 senda puttann\ne\u00f0a h\u00e9r var frami\u00f0 skelfilegt r\u00e9ttarmor\u00f0.<\/p><p>Brottv\u00edsunin haf\u00f0i \u00fe\u00f3 engin \u00e1hrif \u00e1 \u00farslitin sem voru l\u00f6ngu\nr\u00e1\u00f0in. B\u00e6\u00f0i li\u00f0 fengu f\u00e1ein h\u00e1lff\u00e6ri, en f\u00e1tt sem tekur sig a\u00f0 telja upp. Fred\nf\u00e9kk hei\u00f0ursskiptinguna undir lokin auk \u00feess sem varama\u00f0urinn M\u00e1r \u00feurfti a\u00f0\nfara meiddur af velli, sem eru ekki g\u00f3\u00f0 t\u00ed\u00f0indi. \u00cd \u00feeirra sta\u00f0 komu Magn\u00fas og\nAron Sn\u00e6r.<\/p><p>H\u00e6tt er vi\u00f0 a\u00f0 Leiknir F\u00e1skr\u00fa\u00f0sfir\u00f0i r\u00ed\u00f0i ekki feitum hesti fr\u00e1 Lengjudeildinni \u00ed sumar, en \u00fea\u00f0 er br\u00e1\u00f0nau\u00f0synlegt a\u00f0 kl\u00e1ra svona leiki fumlaust og gle\u00f0ilegt a\u00f0 hafa haldi\u00f0 hreinu. S\u00ed\u00f0ast \u00feegar Fram byrja\u00f0i \u00cdslandsm\u00f3t \u00e1 3:0 sigri var \u00e1ri\u00f0 2008 og \u00fe\u00e1 komumst vi\u00f0 l\u00edka \u00ed Evr\u00f3pudeildina eins og n\u00fana. \u00deetta er skrifa\u00f0 \u00ed sk\u00fdin! N\u00e6st er \u00fea\u00f0 st\u00f3rleikur \u00ed bikarnum \u00e1 m\u00f3ti \u00cdR \u00e1 einhverjum fur\u00f0ut\u00edma til a\u00f0 \u00fe\u00f3knast sj\u00f3nvarpsst\u00f6\u00f0vunum.<br><br>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>R\u00f3mverjinn Gaius Cornelius Tacitius, sem uppi var \u00e1 fyrstu \u00f6ld okkar t\u00edmatals, er einn mikilv\u00e6gasti sagnaritari fornaldar. Hann er grundvallarheimild um menningu og samf\u00e9lag germanskra \u00fej\u00f3\u00f0a \u00e1 sinni t\u00ed\u00f0. \u00dear [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":4,"featured_media":22545,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[11,9],"tags":[],"class_list":["post-22543","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-mflkarla","category-fotbolti"],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2020\/06\/Fyrsta-mark-\u00e1rsins-2020-vefur-scaled.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/22543","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/4"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=22543"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/22543\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/22545"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=22543"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=22543"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=22543"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}