{"id":26037,"date":"2021-05-01T22:34:43","date_gmt":"2021-05-01T22:34:43","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=26037"},"modified":"2021-05-01T22:36:01","modified_gmt":"2021-05-01T22:36:01","slug":"fjotradur-i-eigin-huga","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2021\/05\/01\/fjotradur-i-eigin-huga\/","title":{"rendered":"Fj\u00f6tra\u00f0ur \u00ed eigin huga"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"26037\" class=\"elementor elementor-26037\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-999d7fd elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"999d7fd\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-59bab3a8\" data-id=\"59bab3a8\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-2eefe9ce elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"2eefe9ce\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-25969 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/04\/Aron-Alberts-300x300.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/04\/Aron-Alberts-300x300.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/04\/Aron-Alberts.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/04\/Aron-Alberts-100x100.jpg 100w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/04\/Aron-Alberts-150x150.jpg 150w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/04\/Aron-Alberts-768x768.jpg 768w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/>Einhver minnisst\u00e6\u00f0asti b\u00f3kard\u00f3mur sem birst hefur \u00ed T\u00edmariti M\u00e1ls og menningar var eftir Trausta J\u00f3nsson ve\u00f0urfr\u00e6\u00f0ing um Rokks\u00f6gu \u00cdslands eftir Gest Gu\u00f0mundsson. \u00d3h\u00e6tt er a\u00f0 segja a\u00f0 Trausti \u2013 sem \u00e1\u00f0ur hefur komi\u00f0 vi\u00f0 s\u00f6gu \u00ed leiksk\u00fdrslum \u00feessum \u2013 hafi fari\u00f0 h\u00f6r\u00f0um h\u00f6ndum um verk f\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0ingsins s\u00e6nskmennta\u00f0a. Teyg\u00f0i n\u00e1tt\u00faruv\u00edsindama\u00f0urinn Gest sundur og saman \u00ed h\u00e1\u00f0i fyrir a\u00f0 vera fastur \u00ed fort\u00ed\u00f0ar\u00fer\u00e1 sinna eigin unglings\u00e1ra og velti \u00fev\u00ed fyrir s\u00e9r hvort \u00fea\u00f0 g\u00e6ti virkilega sta\u00f0ist a\u00f0 h\u00f6fundur hafi akk\u00faratt veri\u00f0 svo l\u00e1nsamur a\u00f0 alast upp \u00e1 \u00fev\u00ed eina t\u00edmabili rokks\u00f6gunnar \u00fear sem t\u00f3nlistargreinin hafi sta\u00f0i\u00f0 \u00ed bl\u00f3ma og n\u00e1lgast t\u00e6rleika \u00ed listsk\u00f6puninni, en \u00e1 \u00f6llum \u00f6\u00f0rum skei\u00f0um hafi \u00f3merkileg marka\u00f0s\u00f6fl spillt og afskr\u00e6mt rokki\u00f0? G\u00e6ti ekki hugsast a\u00f0 fr\u00e6\u00f0ima\u00f0urinn hafi h\u00e9r veri\u00f0 d\u00f3mgreindarlaus \u00e1 \u00e1tr\u00fana\u00f0argo\u00f0 \u00e6sku\u00e1ra sinna en beiti gagnr\u00fdninni hugsun \u00e1 \u00fe\u00e1 sem \u00e1 undan og eftir komu?<\/p><p>\u00c1bendingar Trausta voru hnitmi\u00f0a\u00f0ar og beinskeyttar. Og au\u00f0vita\u00f0 hafa \u00fe\u00e6r gildi \u00e1 miklu fleiri svi\u00f0um en \u00feegar kemur a\u00f0 rokkt\u00f3nlist. S\u00fa h\u00e6tta er \u00e6t\u00ed\u00f0 fyrir hendi a\u00f0 vi\u00f0 horfum um of til m\u00f3tunar\u00e1ra okkar og l\u00edtum \u00e1 \u00fe\u00e1 mynd sem \u00fe\u00e1 blasti vi\u00f0 sem hina einu og r\u00e9ttu \u2013 allt anna\u00f0 s\u00e9 fr\u00e1vik.<\/p><p>A\u00f0 \u00fev\u00ed s\u00f6g\u00f0u vill fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar taka \u00fea\u00f0 fram, a\u00f0 n\u00edundi \u00e1ratugurinn ER hi\u00f0 eina og sanna vi\u00f0mi\u00f0 \u00feegar kemur a\u00f0 \u00edslenskum f\u00f3tbolta. Hin n\u00e1tt\u00farulegu st\u00f3rveldi ERU Fram, Valur, \u00cdA og \u00de\u00f3r Akureyri. KR-ingar eru rau\u00f0h\u00e6r\u00f0ir varnartuddar og li\u00f0 sem liggur \u00ed fiskinetjum. Stjarnan \u00cd Gar\u00f0ab\u00e6 er handboltali\u00f0. K\u00f3rdrengir eru bresk \u00feungarokkssveit og V\u00ed\u00f0ir \u00ed Gar\u00f0i er li\u00f0 sem \u00e1 heima \u00ed h\u00f3pi \u00feeirra bestu. \u00deetta er s\u00e1 h\u00f3ll sem fr\u00e9ttaritarinn er tilb\u00fainn a\u00f0 deyja \u00e1.<\/p><p>V\u00ed\u00f0is\u00e6vint\u00fdri\u00f0 \u00e1 n\u00edunda \u00e1ratugnum er eitt \u00fea\u00f0 skemmtilegasta \u00ed s\u00f6gu \u00edslenskrar knattspyrnu. \u00dea\u00f0 var magna\u00f0 a\u00f0 keyra su\u00f0ur me\u00f0 sj\u00f3, spila \u00e1 gamalli flugbraut fr\u00e1 amer\u00edska hernum \u00ed n\u00e6\u00f0ingi \u00e1 m\u00f3ti li\u00f0i \u00fear sem allir voru Einarssynir og br\u00e6\u00f0ur. V\u00ed\u00f0ismenn \u00ed albl\u00e1u b\u00faningunum s\u00ednum og me\u00f0 L\u00fdsis-augl\u00fdsinguna \u00e1ttu vir\u00f0ingu allra og \u00fea\u00f0 var p\u00ednkul\u00edti\u00f0 s\u00fars\u00e6tt a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 a\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 sl\u00f6kkva \u00ed bikardraumi \u00feeirra um \u00e1ri\u00f0 me\u00f0 5:0 sl\u00e1trun \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0arleikvangnum.<\/p><p>Allar \u00feessar minningar flugu \u00ed gegnum huga fr\u00e9ttaritarans \u00feegar hann \u00f3k \u00e1 s\u00ednum hei\u00f0bl\u00e1a metanb\u00edl \u00ed Gar\u00f0inn. Me\u00f0 \u00ed f\u00f6r voru Kristj\u00e1n Freyr, vestfirskur trymbill og Valur Nor\u00f0ri, matv\u00e6lafr\u00e6\u00f0ingur \u00e6tta\u00f0ur fr\u00e1 K\u00f3paskeri. Skytturnar \u00ferj\u00e1r voru f\u00e6rar \u00ed flestan sj\u00f3 \u2013 e\u00f0a \u00fea\u00f0 h\u00e9ldum vi\u00f0 \u00fear til stigi\u00f0 var \u00fat \u00far b\u00edlnum&#8230;<\/p><p>Knattspyrnuf\u00e9lagi\u00f0 Fram leikur \u00ed Lengjudeildinni \u00ed \u00e1r og me\u00f0al andst\u00e6\u00f0inga eru \u00fdmis li\u00f0 fr\u00e1 n\u00e6\u00f0ingss\u00f6mum st\u00f6\u00f0um, s.s. Grindav\u00edk og Vestmannaeyjum. Til a\u00f0 \u00e6fa sig fyrir \u00feessi verkefni hafa forsvarsmenn f\u00e9lagsins greinilega hnippt \u00ed Gylfa Orrason og be\u00f0i\u00f0 hann um a\u00f0 kippa \u00ed spotta hj\u00e1 KS\u00cd til a\u00f0 rigga upp leik \u00ed Gar\u00f0inum. \u00dea\u00f0 var hv\u00ednandi rok fr\u00e1 fyrstu m\u00edn\u00fatu til hinnar s\u00ed\u00f0ustu. Hendur fr\u00e9ttaritarans ur\u00f0u skj\u00f3tt kr\u00f3kloppnar svo hann t\u00f3k n\u00e1nast enga punkta ni\u00f0ur. Sk\u00fdrslan mun bera \u00feess merki og ver\u00f0ur \u00fev\u00ed l\u00edti\u00f0 um leikupprifjun en \u00feeim mun meira rant um Trausta ve\u00f0urfr\u00e6\u00f0ing og kaffi. F\u00e1tt n\u00fdtt \u00fear svo sem.<\/p><p>Framarar tefldu fram sterku og l\u00edtt breyttu li\u00f0i fr\u00e1 leiknum gegn Har\u00f0arm\u00f6nnum fr\u00e1 \u00cdsafir\u00f0i. \u00d3lafur var \u00ed markinu og \u00ed mi\u00f0v\u00f6r\u00f0unum \u00feeir Kyle og Gunnar, sem vanta\u00f0i \u00ed s\u00ed\u00f0asta leik (v\u00e6ntanlega a\u00f0 taka \u00fat leikbann). Alex og Haraldur voru \u00ed bakv\u00f6r\u00f0unum sem fyrr. \u00c1 mi\u00f0junni var \u00d3skar aftastur, Aron \u00de\u00f3r\u00f0ur, Tryggvi og Albert me\u00f0 Fred og \u00de\u00f3ri fremstan. Bekkurinn var firnasterkur. Fram fer inn \u00ed \u00feetta keppnist\u00edmabil me\u00f0 mj\u00f6g st\u00f3ran og brei\u00f0an h\u00f3p.<\/p><p>\u00dea\u00f0 var \u00e1g\u00e6tlega m\u00e6tt \u00e1 i\u00f0agr\u00e6nan Gar\u00f0sv\u00f6llinn. Heimamenn voru r\u00famlega fimmt\u00edu \u00e1 a\u00f0 giska og l\u00f6g\u00f0u undir sig steypta st\u00fakuna me\u00f0fram annarri hli\u00f0inni, en um \u00ferj\u00e1t\u00edu Fr\u00f6murum var fundinn sta\u00f0ur \u00e1 grasv\u00f6xnum st\u00f6llum hinu megin. Allar s\u00f3ttvarnir upp \u00e1 t\u00edu.<\/p><p>Tv\u00e6r deildir skilja li\u00f0in tv\u00f6 a\u00f0 og \u00fea\u00f0 s\u00e1st strax fr\u00e1 fyrstu m\u00edn\u00fatu. Heimamenn l\u00e1gu til baka og hugsu\u00f0u um a\u00f0 verjast. \u00deeim t\u00f3kst ekki a\u00f0 skapa s\u00e9r nein markt\u00e6kif\u00e6ri sem vert er a\u00f0 telja til fyrr en undir bl\u00e1lokin \u00feegar h\u00e6gt er a\u00f0 tala um 1-2 h\u00e1lff\u00e6ri. Okkar menn h\u00e9ldu hins vegar knettinum mestallan t\u00edmann og reyndu a\u00f0 spila sig \u00ed gegnum varnarm\u00farinn, oftar en ekki til \u00feess eins a\u00f0 sendingartilraunir f\u00e6ru \u00fat um \u00fe\u00fafur vegna strekkingsvindsins sem ger\u00f0i mestalla spilamennsku \u00f3m\u00f6gulega.<\/p><p>Framarar \u00ed grasbrekkunni komu varla upp h\u00f3sta e\u00f0a stunu \u00ed n\u00e6\u00f0ingnum en n\u00e1\u00f0u \u00fe\u00f3 a\u00f0 heimta v\u00edtaspyrnu \u00ed tv\u00edgang \u00e1 fyrstu 25 m\u00edn\u00fatunum. \u00c1 \u00feeim t\u00edma h\u00f6f\u00f0u Safam\u00fdrarpiltar \u00e1tt nokkrar h\u00e6ttulegar s\u00f3knir en \u00fe\u00f3 engin dau\u00f0af\u00e6ri. Eftir h\u00e1lft\u00edma leik t\u00f3kst loks a\u00f0 h\u00f6ggva \u00e1 hn\u00fatinn. Tryggvi l\u00e9k sig \u00ed gegnum V\u00ed\u00f0isv\u00f6rnina, boltinn barst til Arons \u00de\u00f3r\u00f0ar sem \u00e1tti gott skot utarlega \u00far teignum \u00ed markhorni\u00f0, 1:0.<\/p><p>\u00deremur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar \u00e1ttu V\u00ed\u00f0ismenn h\u00e6ttulitla hornspyrnu en \u00ed kj\u00f6lfar hennar hneig Alex til jar\u00f0ar s\u00e1r\u00fej\u00e1\u00f0ur. Hann var f\u00e6r\u00f0ur af velli og ba\u00f0 \u00feegar um skiptingu. Hann var studdur til b\u00faningsklefa \u00ed leikslok, greinilega miki\u00f0 kvalinn. H\u00e6tt er vi\u00f0 a\u00f0 hann ver\u00f0i eitthva\u00f0 fr\u00e1 vegna mei\u00f0sla sem er vitaskuld afleitt. Indri\u00f0i \u00c1ki kom inn \u00e1 sta\u00f0inn.<\/p><p>F\u00e1tt markvert ger\u00f0ist \u00fea\u00f0 sem eftir lei\u00f0 af h\u00e1lfleiknum, a\u00f0 minnsta kosti ekkert sem r\u00e9ttl\u00e6tti a\u00f0 fr\u00e9ttaritarinn t\u00e6ki kalda puttana upp \u00far hl\u00fdjum v\u00f6sunum til a\u00f0 p\u00e1ra \u00ed minnisb\u00f3kina.<\/p><p>Um lei\u00f0 og flauta\u00f0 var til leikhl\u00e9s spruttu fer\u00f0alangarnir \u00fer\u00edr \u00e1 f\u00e6tur og freistu\u00f0u \u00feess a\u00f0 kaupa kaffi af heimam\u00f6nnum. S\u00fa var t\u00ed\u00f0in a\u00f0 \u00edb\u00faar Gar\u00f0sins hiku\u00f0u ekki vi\u00f0 a\u00f0 stela \u00f6llu steini l\u00e9ttara af Kananum, en n\u00fa eru breyttir t\u00edmar og Gar\u00f0sb\u00faar hl\u00fd\u00f0a V\u00ed\u00f0i. Engin veitingasala var \u00e1 vellinum og \u00feurftu hrollkaldir Reykv\u00edkingarnir \u00fev\u00ed a\u00f0 breg\u00f0a s\u00e9r \u00ed b\u00edlt\u00far um bygg\u00f0alagi\u00f0. Bens\u00ednst\u00f6\u00f0varsjoppan Doddakaffi var loku\u00f0 \u00ed tilefni bar\u00e1ttudags verkal\u00fd\u00f0sins \u2013 st\u00e9ttv\u00eds ma\u00f0ur Doddi, en anna\u00f0 var upp \u00e1 teningnum \u00ed kj\u00f6rb\u00fa\u00f0 b\u00e6jarins sem reyndist opin. Fr\u00e9ttaritarinn er s\u00f3s\u00edalisti og dettur a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u ekki \u00ed hug a\u00f0 kaupa neitt \u00e1 1. ma\u00ed \u2013 hins vegar vaf\u00f0ist \u00fea\u00f0 ekki fyrir honum a\u00f0 senda trumbuslagarann og grautarfr\u00e6\u00f0inginn inn til a\u00f0 kaupa fyrir sig kaffi. \u00dea\u00f0 var ekkert s\u00e9rlega heitt e\u00f0a vel \u00fat l\u00e1ti\u00f0, en samt d\u00fdr\u00f0legt og bjarga\u00f0i \u00fev\u00ed sem bjarga\u00f0 var\u00f0.<\/p><p>Me\u00f0 \u00f6rlitla tilfinningu \u00ed fingrunum eftir snertinguna vi\u00f0 volgt kaffim\u00e1li\u00f0 gat fr\u00e9ttaritarinn (er hann Roald Amundsen sinnar kynsl\u00f3\u00f0ar?) hripa\u00f0 ni\u00f0ur skiptinguna \u00ed hl\u00e9i: M\u00e1r kom in \u00e1 fyrir Albert. F\u00e1einum m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar \u00feurfti a\u00f0 grafa upp minnisb\u00f3kina \u00e1 n\u00fd \u00feegar Fred \u00e1tti gott skot yfir V\u00ed\u00f0ismarki\u00f0 eftir a\u00f0 hafa dansa\u00f0 \u00ed kringum nokkra bl\u00e1kl\u00e6dda heimamenn.<\/p><p>Eftir t\u00e6plega klukkut\u00edma leik juku okkar menn forystuna \u00ed 2:0. \u00de\u00f3rir \u00e1tti g\u00f3\u00f0a sendingu \u00e1 Fred sem afgreiddi boltann gl\u00e6silega yfir markv\u00f6r\u00f0inn \u00ed horni\u00f0. Leikurinn var \u00ed raun b\u00fainn og n\u00fa t\u00f3k bara vi\u00f0 bar\u00e1ttan vi\u00f0 sultardropana.<\/p><p>\u00deegar tuttugu m\u00edn\u00fatur voru til leiksloka ger\u00f0i Nonni \u00fej\u00e1lfari tv\u00f6falda skiptingu. Tryggvi og \u00de\u00f3rir f\u00f3ru af velli en Gu\u00f0mundur og Aron Sn\u00e6r komu inn\u00e1. \u00cd kj\u00f6lfari\u00f0 fengum vi\u00f0 nokkur \u00feokkaleg f\u00e6ri en n\u00e1\u00f0um ekki a\u00f0 b\u00e6ta vi\u00f0. Segja m\u00e1 \u00fe\u00f3 a\u00f0 Framarar hafi or\u00f0i\u00f0 \u00f3\u00fearflega k\u00e6rulausir \u00ed seinni h\u00e1lfleiknum sem birtist \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 li\u00f0i\u00f0 n\u00e6ldi s\u00e9r \u00ed \u00ferj\u00fa gul spj\u00f6ld sem var algj\u00f6r \u00f3\u00fearfi \u00ed svo \u00f3j\u00f6fnum leik. S\u00ed\u00f0asta skiptingin kom svo \u00feegar um fimm m\u00edn\u00fatur voru eftir \u00feegar Magn\u00fas kom inn\u00e1 fyrir \u00d3skar.<\/p><p>\u00dea\u00f0 er \u00f3h\u00e6tt a\u00f0 segja a\u00f0 vorbragur hafi veri\u00f0 \u00e1 frammist\u00f6\u00f0unni \u00ed dag, en \u00fea\u00f0 er l\u00edka erfitt a\u00f0 gera miklar kr\u00f6fur til spilamennsku \u00ed roki eins og bo\u00f0i\u00f0 var upp \u00e1. Ekki er \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 taka neina s\u00e9rstaka leikmenn \u00fat fyrir g\u00f3\u00f0a frammist\u00f6\u00f0u og skiljanlega er mannskapurinn me\u00f0 hugann vi\u00f0 deildarleikinn vegn \u00d3lafsv\u00edkingum \u00e1 fimmtudaginn. Fram og \u00dalfarnir ver\u00f0a b\u00e6\u00f0i \u00ed pottinum \u00feegar dregi\u00f0 ver\u00f0ur \u00ed 32-li\u00f0a \u00farslitin. Pant f\u00e1 \u00dalfana \u00e1 Hl\u00ed\u00f0arenda og Framli\u00f0i\u00f0 \u00e1 heimav\u00f6ll gegn Leikni \u00ed n\u00e6stu umfer\u00f0, \u00fea\u00f0 eru \u00e1kve\u00f0in \u00f3\u00fatklj\u00e1\u00f0 m\u00e1l fr\u00e1 s\u00ed\u00f0asta t\u00edmabili&#8230;<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Einhver minnisst\u00e6\u00f0asti b\u00f3kard\u00f3mur sem birst hefur \u00ed T\u00edmariti M\u00e1ls og menningar var eftir Trausta J\u00f3nsson ve\u00f0urfr\u00e6\u00f0ing um Rokks\u00f6gu \u00cdslands eftir Gest Gu\u00f0mundsson. \u00d3h\u00e6tt er a\u00f0 segja a\u00f0 Trausti \u2013 sem [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":23987,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-26037","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2020\/10\/THorir-gegn-Magna-.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/26037","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=26037"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/26037\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":26041,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/26037\/revisions\/26041"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/23987"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=26037"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=26037"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=26037"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}