{"id":26229,"date":"2021-05-21T23:11:13","date_gmt":"2021-05-21T23:11:13","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=26229"},"modified":"2021-05-21T23:21:04","modified_gmt":"2021-05-21T23:21:04","slug":"bleikt-og-blatt","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2021\/05\/21\/bleikt-og-blatt\/","title":{"rendered":"Bleikt og bl\u00e1tt"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"26229\" class=\"elementor elementor-26229\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-6f829017 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"6f829017\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-3d90ee39\" data-id=\"3d90ee39\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-363f42b0 elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"363f42b0\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-26231 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/05\/IMG_9991-300x200.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"200\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/05\/IMG_9991-300x200.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/05\/IMG_9991-scaled-800x533.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/05\/IMG_9991-1024x683.jpg 1024w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/05\/IMG_9991-768x512.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/05\/IMG_9991-1536x1024.jpg 1536w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/05\/IMG_9991-2048x1365.jpg 2048w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/>Fyrir m\u00f6rgum \u00e1rum, l\u00f6ngu \u00e1\u00f0ur en \u00fe\u00fasaldarkynsl\u00f3\u00f0in ger\u00f0i \u00fea\u00f0 a\u00f0 f\u00e9lagslega vi\u00f0urkenndri i\u00f0ju og sj\u00e1lfsag\u00f0an atvinnuveg a\u00f0 framlei\u00f0a kl\u00e1m \u00e1 Onlyfans, \u00e1ttu \u00edslenskir d\u00f3nakarlar a\u00f0eins eitt athvarf: t\u00edmariti\u00f0 Bleikt &amp; bl\u00e1tt. \u00dear gaf a\u00f0 l\u00edta berrassa\u00f0ar \u00edslenskar stelpur, innan um uppfyllingarefni sem \u00e1tti a\u00f0 gefa ritinu k\u00falt\u00edvera\u00f0ra yfirbrag\u00f0. Allir s\u00e1u \u00ed gegnum \u00fea\u00f0 trix.<\/p><p>\u00cd einhverri andlitslyftingu bla\u00f0sins var \u00fea\u00f0 endursk\u00edrt b&amp;b og Bj\u00f6rn J\u00f6rundur ger\u00f0ur a\u00f0 ritstj\u00f3ra. D\u00fdpri r\u00f6dd \u2013 sama kl\u00e1mi\u00f0. Fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar var r\u00e1\u00f0inn sem lausapenni, til a\u00f0 skrifa skringigreinar um f\u00f3tbolta og l\u00e9legar v\u00edsindask\u00e1lds\u00f6gur. \u00dea\u00f0 var ekki h\u00e1punkturinn \u00e1 fr\u00edlansferli hins sj\u00e1lfst\u00e6tt starfandi sagnfr\u00e6\u00f0ings.<\/p><p>Og talandi um bleikt og bl\u00e1tt! \u00dea\u00f0 voru einmitt li\u00f0in sem m\u00e6ttust \u00ed bong\u00f3bl\u00ed\u00f0unni \u00ed Sambam\u00fdri \u00ed kv\u00f6ld. Framarar \u00ed hinum s\u00edgildu litum sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isbar\u00e1ttunnar, hv\u00edtum og bl\u00e1um, sem valdir voru af rammp\u00f3lit\u00edskum unglingum \u00far a\u00f0d\u00e1endasveit Hannesar Hafstein. Gestirnir, Akureyrar-\u00de\u00f3r, m\u00e6ttu hins vegar ekki \u00ed hef\u00f0bundnum hv\u00edtum treyjum og rau\u00f0um stuttbuxum \u2013 heldur \u00ed bleikustu bolum sem s\u00e9st hafa \u00e1 bygg\u00f0u b\u00f3li. \u00deeir litu \u00fat eins og framhaldssk\u00f3lanemar sem \u00e1kve\u00f0i\u00f0 h\u00f6f\u00f0u a\u00f0 dimmitera sem bens\u00ednst\u00f6\u00f0 fr\u00e1 Orkunni. Hv\u00edl\u00edkir t\u00edmar, hv\u00edl\u00edkir si\u00f0ir!<\/p><p>Fr\u00e9ttaritarinn m\u00e6tti t\u00edmanlega \u00ed m\u00fdrina f\u00f6gru og ekki einsamall. Til a\u00f0 l\u00e1gmarka vistspori\u00f0 \u00f3ku hann og Kristj\u00e1n Freyr vallar\u00feulurinn ge\u00f0\u00feekki saman \u00ed b\u00edl. Skjaldsveinninn Valur Nor\u00f0ri var s\u00f3ttur \u00ed lei\u00f0inni. B\u00edllinn gekk \u00e1 metani, en far\u00feegarnir \u00e1 etan\u00f3li. Markafleygurinn g\u00f3\u00f0i var loksins me\u00f0 \u00ed f\u00f6r.<\/p><p>Lei\u00f0in l\u00e1 \u00ed veislusalinn \u00ed Framheimilinu \u00fear sem f\u00ednimenni f\u00e9lagsins gr\u00f6\u00f0ku\u00f0u \u00ed sig samlokur me\u00f0 roastbeef og laxi. Nonni \u00fej\u00e1lfari kynnti li\u00f0suppstillinguna og leikplani\u00f0. \u00dea\u00f0 f\u00f3lst \u00ed stuttu m\u00e1li \u00ed a\u00f0 keyra hratt \u00e1 \u00de\u00f3rsaranna \u00ed byrjun leiks \u00e1 me\u00f0an \u00feeir v\u00e6ru enn me\u00f0 har\u00f0sperrur eftir a\u00f0 hafa keyrt Hvalfj\u00f6r\u00f0inn. Gott plan. Li\u00f0i\u00f0 var \u00e1 \u00feessa lei\u00f0: \u00d3lafur \u00ed marki, Kyle og Gunnar mi\u00f0ver\u00f0ir, Halli og Alex bakver\u00f0ir. Aron \u00de\u00f3r\u00f0ur, Indri\u00f0i \u00c1ki og Albert \u00e1 mi\u00f0junni me\u00f0 M\u00e1 og Fred \u00e1 k\u00f6ntunum og \u00de\u00f3ri fremstan. Bekkurinn var mj\u00f6g sterkur. Breiddin hj\u00e1 okkur er sl\u00edk a\u00f0 sterkir menn komast jafnvel ekki \u00e1 varamannabekkinn.<\/p><p>Me\u00f0 allar s\u00f3ttvarnir til fyrirmyndar var fr\u00e9ttaritaranum og skjaldsveini v\u00edsa\u00f0 til n\u00famera\u00f0ra s\u00e6ta r\u00e9tt vi\u00f0 hli\u00f0 sj\u00f3nvarpsmyndav\u00e9larinnar. \u00cd r\u00f6\u00f0inni fyrir ne\u00f0an sat eftirlitsma\u00f0ur KS\u00cd en \u00ed efri r\u00f6\u00f0 voru tveir af \u00feremur Gu\u00f0j\u00f3nssonum. H\u00e9r yr\u00f0i ekki t\u00f6lu\u00f0 vitleysan!<\/p><p>Framli\u00f0i\u00f0 haf\u00f0i greinilega hlusta\u00f0 vel \u00e1 \u00fej\u00e1lfarann og bl\u00e9s til s\u00f3knar fr\u00e1 upphafi. Eftir fimm m\u00edn\u00fatur h\u00f6f\u00f0u tv\u00f6 g\u00f3\u00f0 f\u00e6ri liti\u00f0 dagsins lj\u00f3s. \u00cd b\u00e6\u00f0i skiptin var \u00fea\u00f0 Kyle hinn bandar\u00edski sem var n\u00e1l\u00e6gt \u00fev\u00ed a\u00f0 skora. Hann hefur greinilega \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 gerast \u00c1g\u00fast \u00d3lafsson sinnar kynsl\u00f3\u00f0ar og gera alvarlega atl\u00f6gu a\u00f0 silfursk\u00f3num \u00ed deildinni \u00far st\u00f6\u00f0u aftasta varnarmanns. Vel gert!<\/p><p>Eitt helsta skapger\u00f0areinkenni \u00de\u00f3rsara hefur alla t\u00ed\u00f0 veri\u00f0 hin sterka r\u00e9ttl\u00e6tiskennd f\u00e9lagsmanna. H\u00fan birtist einkum \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00f3tm\u00e6la, tu\u00f0a og kvarta undan hverjum einasta d\u00f3mi. \u00deeirri hef\u00f0 var r\u00e6kilega vi\u00f0haldi\u00f0 fr\u00e1 fyrstu m\u00edn\u00fatu. H\u00f6f\u00f0u gestirnir \u00fe\u00f3 \u00ed raun ekki yfir neinu a\u00f0 kvarta fr\u00e1 hendi A\u00f0albj\u00f6rns Hei\u00f0ars, d\u00f3mara leiksins \u2013 manns sem fr\u00e9ttaritarinn hefur aldrei heyrt um \u00e1\u00f0ur. \u00dea\u00f0 voru s\u00fdnilega margir leikir \u00ed gangi \u00ed kv\u00f6ld og KS\u00cd spl\u00e6sti ekki einu sinni \u00ed d\u00f3mara \u00e1 lj\u00f3saskilti\u00f0.<\/p><p>Leika\u00f0fer\u00f0 \u00de\u00f3rsara var auglj\u00f3s: a\u00f0 liggja dj\u00fapt til baka og treysta \u00e1 skyndis\u00f3knir, sem helst sk\u00f6pu\u00f0ust eftir k\u00e6ruleysislegar sendingar Framara \u00e1 mi\u00f0junni e\u00f0a \u00ed v\u00f6rninni. F\u00e6star sk\u00f6pu\u00f0u \u00fe\u00f3 mikla h\u00e6ttu og gripu varnarmenn e\u00f0a \u00d3lafur \u00ed markinu vel inn\u00ed \u00feegar \u00feurfa \u00fe\u00f3tti. H\u00e6ttan var \u00f6ll hinu megin \u00e1 vellinum. Eftir t\u00e6plega fimmt\u00e1n m\u00edn\u00fatna leik braust Fred upp a\u00f0 endam\u00f6rkum, sendi \u00e1 Albert sem \u00e1tti h\u00e1rn\u00e1kv\u00e6ma vippu inn \u00e1 teiginn \u00fea\u00f0 sem Indri\u00f0i \u00c1ki kom sv\u00edfandi og skalla\u00f0i \u00ed neti\u00f0, 1:0.<\/p><p>Framarar gengu \u00e1 lagi\u00f0 og \u00e1ttu nokkrar f\u00ednar s\u00f3knarlotur \u00ed framhaldi af markinu. Um mi\u00f0jan h\u00e1lfleikinn braust Alex \u00ed gegn og \u00e1tti bylmingsskot framhj\u00e1 \u00ed s\u00f6mu mund og a\u00f0v\u00edfandi varnarma\u00f0ur sparka\u00f0i hann ni\u00f0ur \u00ed teignum. Ekkert var \u00fe\u00f3 d\u00e6mt.<\/p><p>S\u00f3l skein \u00e1fram \u00ed hei\u00f0i og fr\u00e9ttaritarinn leit forvi\u00f0a \u00e1 f\u00f3lki\u00f0 \u00ed kringum sig, \u00edkl\u00e6tt fl\u00edspeysum og \u00fativistarfatna\u00f0i \u00e1 me\u00f0an hann sj\u00e1lfur var \u00ed stuttermabol og f\u00edna appels\u00ednugula vestinu. Vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 standa me\u00f0 \u00edslenska vorinu! \u2013 \u00deessar vangaveltur voru \u00fe\u00f3 trufla\u00f0ar af fyrsta hvatningapeppi vallar\u00feularins fr\u00e1 Hn\u00edfsdal, sem leiddi mannskapinn \u00ed hvatningas\u00f6ng: \u201eFramarar, Framarar, Framarar!\u201c\u00a0\u00deetta var n\u00e1nast eins og Ragga R\u00edkhar\u00f0s v\u00e6ri m\u00e6tt \u00ed st\u00fakuna og \u00e1ri\u00f0 v\u00e6ri 1991.<\/p><p>Fr\u00e1b\u00e6r s\u00f3knarlota \u00e1 34. m\u00edn\u00fatu hef\u00f0i \u00e1tt a\u00f0 tv\u00f6falda forystuna \u00feegar \u00de\u00f3rir og Halli brutust upp v\u00f6llinn og boltinn barst a\u00f0 lokum \u00e1 Albert sem var \u00ed dau\u00f0af\u00e6ri en \u00de\u00f3rsmarkv\u00f6r\u00f0urinn var\u00f0i meistaralega.<\/p><p>\u00de\u00f3rsarinn (getur einhver \u00fatsk\u00fdrt hvers vegna leikmenn Akureyrar-\u00de\u00f3rs eru \u00de\u00f3rsarar en Vestmanneyja-\u00de\u00f3rs eru \u00de\u00f3rarar?) kom hins vegar engum v\u00f6rnum vi\u00f0 \u00e1 40. m\u00edn\u00fatu \u00feegar Framarar fengu hornspyrnu og varnarmenn andst\u00e6\u00f0inganna s\u00e1u enga \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 reyna a\u00f0 valda \u00c1g\u00fast \u00d3lafsson&#8230; \u00e9g meina Kyle McLagan sem f\u00e9kk fr\u00edan skalla \u00e1 markteig, 2:0.<\/p><p>Vi\u00f0 anna\u00f0 marki\u00f0 var \u00f6ll m\u00f3tspyrna gestanna brotin ni\u00f0ur og undir bl\u00e1lok h\u00e1lfleiksins kom roth\u00f6ggi\u00f0: \u00de\u00f3rir og Fred \u00e1ttu g\u00f3\u00f0a s\u00f3knarlotu sem lauk me\u00f0 hornspyrnu. Upp \u00far henni barst boltinn til Fred sem st\u00f3\u00f0 fyrir utan v\u00edtateig og haf\u00f0i n\u00e6gan t\u00edma til a\u00f0 athafna sig og skaut innanf\u00f3tar \u00ed markhorni\u00f0 \u2013 \u00fe\u00f3 ekki fastar en svo a\u00f0 markv\u00f6r\u00f0urinn leit ekki s\u00e9rlega vel \u00fat.<\/p><p>Me\u00f0 g\u00f3\u00f0a forystu og \u00ferj\u00fa stig n\u00e1nast \u00ed h\u00f6fn vappa\u00f0i \u00e1horfendaskarinn \u00ed Framheimili. Af miskunsemi, en m\u00f6gulega \u00ed nokkrum tr\u00e1ssi vi\u00f0 s\u00f3ttvarnarreglur, var gamall vinur og bumbuboltaf\u00e9lagi sem er Skagfir\u00f0ingur sem heldur me\u00f0 \u00de\u00f3r (\u00e9g hef aldrei skili\u00f0 \u00fea\u00f0 heldur) dreginn me\u00f0. Framarar eru vel upp aldir og enginn h\u00eda\u00f0i \u00e1 hann. \u00de\u00f3rsli\u00f0i\u00f0 er ungt og a\u00f0 s\u00f6nnu efnilegt. \u00deeir munu ekki blanda s\u00e9r \u00ed toppbar\u00e1ttuna \u00ed \u00e1r en hver veit hva\u00f0 gerist eftir 1-2 \u00e1r?<\/p><p>\u00cd f\u00e9lagsheimilinu sl\u00f3st g\u00f6mul kempa \u00ed h\u00f3pinn. Eini ma\u00f0urinn sem gat skora\u00f0 fleiri m\u00f6rk en \u00c1g\u00fast \u00d3lafsson \u00ed g\u00f6mlu 2. deildinni fyrir hundra\u00f0 \u00e1rum. Hann var \u00f6rl\u00edti\u00f0 illa \u00e1tta\u00f0ur \u2013 hafandi gert r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 leikurinn byrja\u00f0i klukkan sj\u00f6. Var honum \u00f3\u00f0ara fundi\u00f0 s\u00e6ti vi\u00f0 hli\u00f0 skjaldsveinsins.<\/p><p>Seinni h\u00e1lfleikur h\u00f3fst r\u00f3lega og ekkert dr\u00f3 til t\u00ed\u00f0inda fyrstu t\u00edu m\u00edn\u00faturnar sem ver\u00f0skulda\u00f0i a\u00f0 p\u00e1ra\u00f0 ni\u00f0ur \u00ed minnisb\u00f3kina. S\u00f3l dr\u00f3 fyrir sk\u00fd og \u00feurfti fr\u00e9ttaritarinn jafnvel a\u00f0 breg\u00f0a s\u00e9r \u00ed f\u00ednu gr\u00e1u peysuna s\u00edna um t\u00edma. Ekki \u00fe\u00f3 lengi.<\/p><p>Fyrsta afgerandi f\u00e6ri\u00f0 eftir hl\u00e9 kom \u00e1 56. m\u00edn\u00fatu eftir f\u00ednan undirb\u00faning hj\u00e1 Alberti og Fred, \u00fear sem M\u00e1r \u00e1tti bylmingsskot yfir. Fr\u00e9ttaritarinn, sem er \u00fe\u00f3 me\u00f0 or\u00f0varari m\u00f6nnum, s\u00e1 \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 hripa ni\u00f0ur gildisd\u00f3minn: \u201e\u00de\u00f3rsarar eru \u00fati \u00e1 \u00feekju\u201c eftir t\u00e6plega klukkut\u00edma leik.<\/p><p>\u00deegar fj\u00f3r\u00f0ungur leikt\u00edmans var eftir ger\u00f0i J\u00f3n Sveinsson tv\u00f6falda skiptingu. Aron \u00de\u00f3r\u00f0ur og M\u00e1r f\u00f3ru af velli en Alexander og Gummi Magg komu inn \u00ed sta\u00f0inn. B\u00e1\u00f0ir h\u00f6f\u00f0u sta\u00f0i\u00f0 sig me\u00f0 pr\u00fd\u00f0i \u2013 eins og raunar m\u00e1 segja um allt li\u00f0i\u00f0 \u00ed kv\u00f6ld.<\/p><p>Fj\u00f3rum m\u00edn\u00fatum eftir skiptinguna leit fj\u00f3r\u00f0a marki\u00f0 \u2013 og \u00fea\u00f0 flottasta \u2013 dagsins lj\u00f3s. Fred l\u00e9k neonbleika v\u00f6rn Akureyringa gr\u00e1tt, sendi s\u00ed\u00f0an \u00fat \u00e1 Indri\u00f0a \u00c1ka sem n\u00e1\u00f0i h\u00e1rn\u00e1kv\u00e6mu skoti \u00ed bl\u00e1horni\u00f0 r\u00e9tt fyrir utan teig. R\u00e1nd\u00fdrt mark og sta\u00f0an or\u00f0in 4:0.<\/p><p>K\u00e6ttust n\u00fa Framarar mj\u00f6g \u00e1 p\u00f6llunum og markahr\u00f3kurinn t\u00edmavillti s\u00fdnu mest, enda fleygurinn g\u00f3\u00f0i kominn \u00e1 loft. \u00dea\u00f0 er \u00f3tr\u00faleg gla\u00f0v\u00e6r\u00f0 og k\u00e1t\u00edna sem r\u00edkir \u00ed stu\u00f0ningsmannah\u00f3pnum \u00feessi d\u00e6grin. Gamlir s\u00f3\u00f0akjaftar eru pr\u00fa\u00f0ir og klappa \u00feegar Hn\u00edfsd\u00e6lingurinn hvetur \u00fe\u00e1 \u00e1fram. Vi\u00f0 v\u00e6lum fur\u00f0ul\u00edti\u00f0 yfir d\u00f3murum og S\u00e6var Gu\u00f0j\u00f3nsson \u00e1 \u00fea\u00f0 jafnvel til a\u00f0 hr\u00f3sa m\u00f6nnum a\u00f0 fyrra brag\u00f0i. Hv\u00edl\u00edkir t\u00edmar til a\u00f0 lifa!<\/p><p>Fyrsta f\u00e6ri gestanna sem verulega kva\u00f0 a\u00f0 leit dagsins lj\u00f3s \u00feegar tuttugu m\u00edn\u00fatur voru eftir, en \u00d3li var\u00f0i afbrag\u00f0svel me\u00f0 f\u00f3tunum. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar var \u00de\u00f3rir n\u00e6stum sloppinn \u00ed gegn en einn bleikur og keikur renndi s\u00e9r fyrir hann \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu stundu \u2013 virtist \u00fe\u00f3 handleika kn\u00f6ttinn en komst upp me\u00f0 \u00fea\u00f0.<\/p><p>\u00deegar stundarfj\u00f3r\u00f0ungur var eftir kom stundin sem flestir h\u00f6f\u00f0u be\u00f0i\u00f0 eftir. Nonni ger\u00f0i a\u00f0ra tv\u00f6falda skiptingu. Gunnar f\u00f3r af velli fyrir Aron K\u00e1ra og \u00de\u00f3rir fyrir Guthrie, \u00farvalsdeildarkempuna sem allir f\u00f3tboltanir\u00f0ir landsins hafa be\u00f0i\u00f0 me\u00f0 \u00f6ndina \u00ed h\u00e1lsinum eftir a\u00f0 sj\u00e1.<\/p><p>Stutta \u00fatg\u00e1fan er \u00feessi: Danny Guthrie l\u00edtur \u00fat eins og bekkpressukappi. A\u00f0 s\u00f6gn er hann me\u00f0 svo svera k\u00e1lfa a\u00f0 f\u00e9lagi\u00f0 \u00feurfti a\u00f0 panta sokka \u00ed yfirst\u00e6r\u00f0. Hann \u00e1 talsvert \u00ed a\u00f0 komast \u00ed form fyrir 90 m\u00edn\u00fatur en \u00fea\u00f0 er enginn leikma\u00f0ur \u00ed \u00feessari deild a\u00f0 fara a\u00f0 stugga vi\u00f0 honum \u00e1 velli og \u00feessar 2-3 sendingar sem hann \u00e1tti voru brilljant. M\u00e6ttum vi\u00f0 f\u00e1 meira a\u00f0 heyra!<\/p><p>Alex var n\u00e6rri \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00e6ta fimmta markinu vi\u00f0 \u00feegar t\u00edu m\u00edn\u00fatur voru eftir. Uppgj\u00f6f gestanna var algj\u00f6r. Albert f\u00f3r af velli fyrir Tryggva sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar. Fred hef\u00f0i m\u00e1tt gera betur eftir g\u00f3\u00f0a s\u00f3kn sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar, en \u00e1 \u00feeim t\u00edmapunkti var leikurinn farinn a\u00f0 sn\u00faast upp \u00ed h\u00e1lfger\u00f0a vitleysu.<\/p><p>\u00de\u00f3rsarar minnku\u00f0u muninn eftir f\u00e1g\u00e6tt einbeitingarleysi \u00ed Framv\u00f6rninni \u00ed s\u00ed\u00f0ustu snertingu leiksins, 4:1. \u00deau \u00farslit l\u00e1ta gestina \u00fe\u00f3 l\u00edta of vel \u00fat. Yfirbur\u00f0ir okkar manna voru miklur \u00ed kv\u00f6ld og sex marka sigur hef\u00f0i veri\u00f0 n\u00e6r lagi. Indri\u00f0i \u00c1ki var ma\u00f0ur leiksins en fleiri ver\u00f0skulda hr\u00f3s. N\u00fa m\u00e6tum vi\u00f0 \u00f6ll \u00ed Grafarvoginn eftir viku. Og pl\u00eds \u2013 eigum vi\u00f0 a\u00f0 reyna a\u00f0 m\u00e6ta \u00f6ll \u00ed stuttermabol og vesti? \u00deessar fl\u00edstreyjur er h\u00e1lfvandr\u00e6\u00f0alegar \u00ed s\u00f3lstrandarbl\u00ed\u00f0unni.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fyrir m\u00f6rgum \u00e1rum, l\u00f6ngu \u00e1\u00f0ur en \u00fe\u00fasaldarkynsl\u00f3\u00f0in ger\u00f0i \u00fea\u00f0 a\u00f0 f\u00e9lagslega vi\u00f0urkenndri i\u00f0ju og sj\u00e1lfsag\u00f0an atvinnuveg a\u00f0 framlei\u00f0a kl\u00e1m \u00e1 Onlyfans, \u00e1ttu \u00edslenskir d\u00f3nakarlar a\u00f0eins eitt athvarf: t\u00edmariti\u00f0 Bleikt &amp; [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":26230,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-26229","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/05\/indridi-og-Aron-1-scaled.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/26229","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=26229"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/26229\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":26235,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/26229\/revisions\/26235"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/26230"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=26229"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=26229"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=26229"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}