{"id":26414,"date":"2021-06-07T23:35:00","date_gmt":"2021-06-07T23:35:00","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=26414"},"modified":"2021-06-07T23:40:21","modified_gmt":"2021-06-07T23:40:21","slug":"a-halum-is","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2021\/06\/07\/a-halum-is\/","title":{"rendered":"\u00c1 h\u00e1lum \u00eds"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"26414\" class=\"elementor elementor-26414\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-4c025a97 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"4c025a97\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-43185ada\" data-id=\"43185ada\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-2ab9fce elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"2ab9fce\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"size-full wp-image-26417 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/06\/Magga-gegn-Sindra.jpg\" alt=\"\" width=\"640\" height=\"960\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/06\/Magga-gegn-Sindra.jpg 640w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/06\/Magga-gegn-Sindra-200x300.jpg 200w\" sizes=\"(max-width: 640px) 100vw, 640px\" \/>Um mi\u00f0jan t\u00edunda \u00e1ratuginn st\u00f3\u00f0 Hollywood frammi fyrir \u00f3v\u00e6ntu vandam\u00e1li. Sov\u00e9tr\u00edkin, sem veri\u00f0 h\u00f6f\u00f0u endalaus uppspretta tr\u00faver\u00f0ugra illmenna \u00ed hasarmyndum af \u00f6llu tagi, hrundu til grunna. Vi\u00f0 t\u00f3k R\u00fassland Jelts\u00edns sem m\u00e1tti heita samfellt ni\u00f0url\u00e6gingarskei\u00f0 d\u00f3lgakap\u00edtalisma og hruns allra samf\u00e9lagslegra innvi\u00f0a \u00e1 me\u00f0an forseti r\u00edkisins var\u00f0 \u00edtreka\u00f0 a\u00f0 athl\u00e6gi me\u00f0 fyller\u00edsl\u00e1tum s\u00ednum \u00e1 opinberum vettvangi. R\u00fassland var a\u00f0hl\u00e1tursefni frekar en \u00f3gn.<\/p><p>Hin \u00f3v\u00e6nta \u00f3vinaleit sem af \u00feessari st\u00f6\u00f0u hlaust t\u00f3k stundum \u00e1 sig skr\u00edtnar myndir. \u00deegar \u00e1kve\u00f0i\u00f0 var a\u00f0 gera framhald af \u00f3v\u00e6ntum smelli Emilio Estevez, um \u00edsknattleiksli\u00f0i\u00f0 Mighty Ducks, voru andst\u00e6\u00f0ingarnir har\u00f0sn\u00fai\u00f0 li\u00f0 \u00cdslendinga undir stj\u00f3rn hinnar har\u00f0sv\u00edru\u00f0u Mar\u00edu Ellingsen. Mighty Ducks 2 sl\u00f3 \u00ed gegn og hefur \u00f6\u00f0ru fremur \u00fdtt undir ranghugmyndir umheimsins um styrk, f\u00falmennsku og svalheit \u00edslenskra \u00edshokk\u00edleikmanna. \u00dea\u00f0 eru ekki s\u00e1larlaus ofurmenni heldur klunnaleg g\u00e6\u00f0abl\u00f3\u00f0 upp til h\u00f3pa.<\/p><p>Fr\u00e9ttaritari frams\u00ed\u00f0unnar spenntist \u00fe\u00f3 allur upp \u00e1 lei\u00f0inni \u00ed Sambam\u00fdri \u00ed kv\u00f6ld til a\u00f0 horfa \u00e1 stelpurnar okkar takast \u00e1 vi\u00f0 Skautaf\u00e9lag Reykjav\u00edkur. \u00c1\u00f0ur en lengra er haldi\u00f0 er r\u00e9tt a\u00f0 taka fram a\u00f0 fr\u00e9ttaritarinn er me\u00f0vita\u00f0ur um \u00fe\u00e1 sta\u00f0reynd a\u00f0 Skautaf\u00e9lagi\u00f0 er EKKI \u00edshokk\u00edli\u00f0 sem skiptir pekkinum \u00fat fyrir bolta \u00e1 sumrin, heldur er \u00feetta venslali\u00f0 \u00der\u00f3ttar Reykjav\u00edkur sem f\u00e6r a\u00f0 n\u00fdta kennit\u00f6lu skautamanna. \u00dea\u00f0 mun \u00fe\u00f3 ekki hindra h\u00f6fund \u00feessa pistils \u00ed a\u00f0 segja alla \u00fe\u00e1 skautatengdu brandara sem honum kann \u00ed hug a\u00f0 koma. \u00deessi t\u00e6kif\u00e6ri gefast bara svo sjaldan!<\/p><p>Hitam\u00e6lirinn \u00ed b\u00edlnum lofa\u00f0i t\u00edu gr\u00e1\u00f0um en \u00fea\u00f0 voru frekar h\u00e6verskar t\u00edu gr\u00e1\u00f0ur. \u00cd \u00f6rl\u00edtilli golu og me\u00f0 sk\u00fdjahulu sem h\u00f3ta\u00f0i s\u00fald \u00ed s\u00edfellu var frekar kalt. Gula vesti\u00f0 f\u00edna \u00feurfti meira a\u00f0 segja a\u00f0 v\u00edkja fyrir s\u00ed\u00f0um frakka og trefli \u00ed leikhl\u00e9i.<\/p><p>\u00de\u00f3ra R\u00fan st\u00f3\u00f0 \u00ed Frammarkinu me\u00f0 Eriku og H\u00f6llu Helgad\u00f3ttur fyrir framan sig og Margr\u00e9ti Reg\u00ednu og Freyju S\u00f3l \u00ed bakvar\u00f0arst\u00f6\u00f0unum. Krist\u00edn Gy\u00f0a, \u00d3l\u00f6f og Gianna \u00e1 mi\u00f0junni. Oddn\u00fd og Halla \u00de\u00f3rd\u00eds hvor \u00e1 s\u00ednum kanti og Hannah fremst. Litlar breytingar fr\u00e1 s\u00ed\u00f0asta heimaleik \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta. SR var stigalaust fyrir leikinn eftir \u00ferj\u00e1r umfer\u00f0ir, en hefur \u00fe\u00f3 veri\u00f0 a\u00f0 skora \u00ed leikjum s\u00ednum og ekki tapa me\u00f0 miklum mun.<\/p><p>Leikurinn byrja\u00f0i afar r\u00f3lega og gaf fr\u00e9ttaritaranum f\u00e6ri \u00e1 a\u00f0 leggja dr\u00f6g a\u00f0 bj\u00f3rkv\u00f6ldi stu\u00f0ningsmanna \u00e1samt Kristni R\u00fanari og \u00c1sgr\u00edmi formanni. Taki\u00f0 fr\u00e1 16. j\u00fan\u00ed! Fyrstu f\u00e6rin sem vert \u00fe\u00f3tti a\u00f0 hripa ni\u00f0ur \u00ed minnisblokkina komu eftir um tuttugu m\u00edn\u00fatur. Framkonur voru \u00fe\u00f3 kl\u00e1rlega sterkari a\u00f0ilinn \u00e1 me\u00f0an gestirnir reyndu a\u00f0 verjast og treysta \u00e1 skyndis\u00f3knir.<\/p><p>Nokkur bjarts\u00fdnisleg langskot Framara, \u00fear \u00e1 me\u00f0al fr\u00e1 Oddn\u00fdju og H\u00f6nnuh (fallbeygir ma\u00f0ur \u00fea\u00f0 ekki svona?) ger\u00f0u l\u00edtinn usla og helsta \u00f3gnin kom eftir tv\u00e6r hornspyrnur. SR \u00e1tti f\u00e1a en \u00fe\u00f3 h\u00e1skalega spretti, t.a.m. komust \u00fe\u00e6r einu sinni \u00ferj\u00e1r \u00e1 m\u00f3ti tveimur varnarm\u00f6nnum Fram en \u00de\u00f3ra markv\u00f6r\u00f0ur bjarga\u00f0i me\u00f0 \u00e1g\u00e6tu \u00fathlaupi.<\/p><p>D\u00f3marinn flauta\u00f0i til leikhl\u00e9s \u00e1n \u00feess a\u00f0 b\u00e6ta neinu vi\u00f0 fyrri h\u00e1lfleikinn. Vi\u00f0 kettlingarnir \u00ed h\u00f3pnum fl\u00fa\u00f0um inn \u00ed f\u00e9lagsheimili til a\u00f0 n\u00e1 \u00ed yl \u00e1 me\u00f0an fullhugar \u00ed h\u00f3pi \u00e1horfenda (sem voru svona 40-50 talsins) g\u00faffu\u00f0u \u00ed sig st\u00f3reflis bakar\u00edssn\u00fa\u00f0a \u00ed kaffisk\u00farnum, d\u00e1vel hvattir \u00e1fram af l\u00edflegum vallar\u00feul. \u00derj\u00e1r sm\u00e1stelpur, r\u00e9tt \u00e1 grunnsk\u00f3laaldri, b\u00f6r\u00f0u \u00e1 bumbu og sinntu hvatningarhr\u00f3pum.<\/p><p>Fram hefur \u00e1g\u00e6tlega brei\u00f0an h\u00f3p og \u00fej\u00e1lfararnir eru ekki smeykir vi\u00f0 a\u00f0 gera skiptingar. Tv\u00e6r litu dagsins lj\u00f3s strax \u00ed upphafi seinni h\u00e1lfeiks. \u00d3l\u00f6f og Freyja f\u00f3ru af velli en Svava Bj\u00f6rk og \u00c1sta komu inn \u00ed sta\u00f0inn.<\/p><p>Leikurinn var r\u00e9tt hafinn \u00e1 n\u00fdjan leik \u00feegar boltinn small \u00ed \u00fatr\u00e9tta h\u00f6nd eins varnarmanns SR inni \u00ed v\u00edtateig. \u00c1horfendur kv\u00f6rtu\u00f0u en d\u00f3marinn d\u00e6mdi ekkert. V\u00edti hef\u00f0i svo sem veri\u00f0 fj\u00e1ri har\u00f0ur d\u00f3mur. \u00deri\u00f0ja skiptingin kom svo eftir fimm m\u00edn\u00fatna leik \u00feegar Margr\u00e9t Selma kom inn fyrir Oddn\u00fdju.<\/p><p>\u00deessar \u00ferj\u00e1r skiptingar virtust hrista upp \u00ed leiknum og s\u00f3knar\u00feungi Framara j\u00f3kst. \u00dea\u00f0 var \u00fe\u00f3 n\u00e1nast upp \u00far engu \u00feegar Framst\u00falkur n\u00e1\u00f0u a\u00f0 skora \u00e1 56. m\u00edn\u00fatu. Vi\u00f0 fengum innkast sem var gr\u00fdtt inn \u00ed teig, \u00fear mist\u00f3kst SR-v\u00f6rninni a\u00f0 hreinsa og boltinn hr\u00f6kk fyrir f\u00e6tur H\u00f6llu \u00de\u00f3rd\u00edsar sem afgreiddi hann fumlaust \u00ed markhorni\u00f0 ni\u00f0ri, \u00f3verjandi, 1:0.<\/p><p>Fj\u00f3r\u00f0a skiptingin kom sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar. Krist\u00edn Gy\u00f0a f\u00f3r af velli fyrir \u00d6lmu D\u00f6gg. \u00c1 65. m\u00edn\u00fatu var Halla \u00de\u00f3rd\u00eds n\u00e6rri \u00fev\u00ed a\u00f0 tv\u00f6falda forystuna eftir g\u00f3\u00f0a stungusendingu en skot hennar f\u00f3r yfir \u00far \u00e1g\u00e6tu f\u00e6ri. Sama ger\u00f0ist sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar \u00feegar Gianna \u00feruma\u00f0i yfir marki\u00f0.<\/p><p>Svo virtist sem Framli\u00f0i\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0 taka \u00f6ll v\u00f6ldin \u00ed s\u00ednar hendur, en li\u00f0 SR reyndist \u00fe\u00f3 sterkt \u00e1 svellinu (\u00f3key, \u00e9g skal h\u00e6tta n\u00fana)&#8230; \u00feegar stundarfj\u00f3r\u00f0ungur var til leiksloka m\u00e1tti engu muna a\u00f0 Laugardalsli\u00f0ionu t\u00e6kist a\u00f0 jafna metin eftir \u00f6rl\u00edtinn vandr\u00e6\u00f0agang \u00ed Framv\u00f6rninni kom l\u00famskt vippa sem stefndi upp \u00ed markhorni\u00f0 en \u00de\u00f3ra var vel vakandi og sl\u00f3 boltann yfir.<\/p><p>\u00deetta \u00f3v\u00e6nta f\u00e6ri hressti SR r\u00e6kilega vi\u00f0 og fengu \u00fe\u00e6r 2-3 g\u00f3\u00f0 markt\u00e6kif\u00e6ri sem v\u00f6rn og markv\u00f6r\u00f0ur n\u00e1\u00f0u \u00fe\u00f3 a\u00f0 verjast. \u00c1 \u00feessum t\u00edmapunkti var eins og botninn dytti d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u00far leiknum. Halla \u00de\u00f3rd\u00eds \u00e1tti l\u00famskt skot \u00ed st\u00f6ng \u00feegar t\u00edu m\u00edn\u00fatur voru eftir, en tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar \u00feurfti nafna hennar a\u00f0 bjarga me\u00f0 g\u00f3\u00f0ri t\u00e6klingu hinu megin \u00e1 vellinum. Enn virtist Halla \u00de\u00f3rd\u00eds \u00e6tla a\u00f0 b\u00e6ta \u00e1 markareikninginn \u00feegar tv\u00e6r m\u00edn\u00fatur voru eftir af venjulegum leikt\u00edma \u00feegar h\u00fan var a\u00f0 sleppa ein \u00ed gegn en l\u00ednuv\u00f6r\u00f0urinn flagga\u00f0i rangst\u00f6\u00f0u sem virtist h\u00e6pinn d\u00f3mur. \u00cd uppb\u00f3tart\u00edma var henni skipt \u00fat af fyrir Gy\u00f0u sem var fimmti og s\u00ed\u00f0asti varama\u00f0urinn. Vallar\u00feulur tilkynnti um vali\u00f0 \u00e1 manni leiksins. \u00dea\u00f0 var \u00de\u00f3ra markv\u00f6r\u00f0ur, sem er vel a\u00f0 \u00fev\u00ed komin \u00fe\u00f3tt fr\u00e9ttaritarinn hef\u00f0i sj\u00e1lfur vali\u00f0 markaskorarann \u00ed \u00feetta skipti\u00f0.<\/p><p>Fleiri ur\u00f0u m\u00f6rkin ekki og g\u00f3\u00f0ur sigur var \u00ed h\u00f6fn eftir \u00f3\u00fearflega spennandi leik \u00fear sem okkar konur hef\u00f0u fyrir l\u00f6ngu \u00e1tt a\u00f0 vera b\u00fanar a\u00f0 drepa leikinn me\u00f0 \u00f6\u00f0ru marki. \u00deetta er erfi\u00f0 deild, einkum \u00ed lj\u00f3si \u00feess a\u00f0 leikin er einf\u00f6ld umfer\u00f0 og \u00fev\u00ed tilviljunum h\u00e1\u00f0 hva\u00f0a li\u00f0 eiga heimaleikjar\u00e9ttinn gegn hva\u00f0a andst\u00e6\u00f0ingum. Til a\u00f0 eiga m\u00f6guleika \u00e1 s\u00e6ti \u00ed \u00farslitakeppninni ver\u00f0a \u00fev\u00ed allir leikir \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 \u00feennan a\u00f0 vinnast. N\u00e6sta vi\u00f0ureign er a\u00f0 Hl\u00ed\u00f0arenda gegn KH, sem er ekki Kaupf\u00e9lag Hnappadalss\u00fdslu heldur venslali\u00f0 r\u00e1nfuglsins. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur h\u00f6rkuleikur!<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Um mi\u00f0jan t\u00edunda \u00e1ratuginn st\u00f3\u00f0 Hollywood frammi fyrir \u00f3v\u00e6ntu vandam\u00e1li. Sov\u00e9tr\u00edkin, sem veri\u00f0 h\u00f6f\u00f0u endalaus uppspretta tr\u00faver\u00f0ugra illmenna \u00ed hasarmyndum af \u00f6llu tagi, hrundu til grunna. Vi\u00f0 t\u00f3k R\u00fassland Jelts\u00edns [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":26415,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[9,12],"tags":[],"class_list":["post-26414","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkvenna"],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/06\/Sindri-FRAM-III.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/26414","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=26414"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/26414\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":26420,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/26414\/revisions\/26420"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/26415"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=26414"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=26414"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=26414"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}