{"id":26793,"date":"2021-07-09T23:39:01","date_gmt":"2021-07-09T23:39:01","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=26793"},"modified":"2021-07-09T23:40:20","modified_gmt":"2021-07-09T23:40:20","slug":"kjuklingur-i-matreidslurjoma","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2021\/07\/09\/kjuklingur-i-matreidslurjoma\/","title":{"rendered":"Kj\u00faklingur \u00ed matrei\u00f0slurj\u00f3ma"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"26793\" class=\"elementor elementor-26793\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-439f13c9 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"439f13c9\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-48abe779\" data-id=\"48abe779\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-e2829e3 elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"e2829e3\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-26796 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/07\/Oskar-200x300.jpg\" alt=\"\" width=\"200\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/07\/Oskar-200x300.jpg 200w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/07\/Oskar-800x1199.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/07\/Oskar-683x1024.jpg 683w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/07\/Oskar-768x1151.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/07\/Oskar-1025x1536.jpg 1025w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/07\/Oskar.jpg 1341w\" sizes=\"(max-width: 200px) 100vw, 200px\" \/>Ein af \u00f6rf\u00e1um meinsemdum \u00ed al\u00fe\u00fd\u00f0ul\u00fd\u00f0veldi Katr\u00ednar Jakobsd\u00f3ttur er skortur \u00e1 g\u00f3\u00f0u kj\u00faklingakryddi. Einu sinni var h\u00e6gt a\u00f0 f\u00e1 pr\u00fd\u00f0isgott krydd \u00ed st\u00f3rum staukum sem nota m\u00e1tti til a\u00f0 drekkja bringunum \u00e1 p\u00f6nnunni. En \u00fea\u00f0 er horfi\u00f0 \u00far hillum verslananna og \u00fea\u00f0 sk\u00e1sta \u00ed bo\u00f0i er aumkunarver\u00f0ur sm\u00e1staukur fr\u00e1 Knorr sem dugir ekki upp \u00ed n\u00f6s \u00e1 ketti og er einfaldlega ekki me\u00f0 r\u00e9ttu MSG-bl\u00f6nduna.<\/p><p>\u00deessar huglei\u00f0ingar s\u00f3ttu \u00e1 fr\u00e9ttaritarann \u00feegar hann kepptist vi\u00f0 a\u00f0 elda kv\u00f6ldver\u00f0inn \u00ed kapp vi\u00f0 klukkuna. Enginn sem vari\u00f0 hefur jafnmiklum t\u00edma me\u00f0 matv\u00e6lafr\u00e6\u00f0ingnum Val Nor\u00f0ra og s\u00e1 er h\u00e9r st\u00fdrir lyklabor\u00f0i myndi l\u00e1ta s\u00e9r til hugar koma a\u00f0 fullelda ekki ferskan kj\u00fakling. Bringurnar m\u00f6llu\u00f0u l\u00fash\u00e6gt \u00ed matrei\u00f0slurj\u00f3manum \u00e1 me\u00f0an st\u00f3riv\u00edsir eldh\u00fasklukkunnar \u00f3\u00f0 \u00e1fram.<\/p><p>Um lei\u00f0 og holdi\u00f0 breyttist \u00far f\u00f6lbleiku \u00ed mjallhv\u00edtt var matnum skellt \u00e1 bor\u00f0i\u00f0 og sk\u00f3fla\u00f0 \u00ed sig. Kj\u00f6ti\u00f0 brag\u00f0a\u00f0ist eins og g\u00famm\u00ed og hr\u00edsgrj\u00f3nin voru ofso\u00f0in. Ekki \u00fe\u00f3 a\u00f0 fr\u00e9ttaritarinn hafi gefi\u00f0 s\u00e9r mikinn t\u00edma til a\u00f0 sp\u00e1 \u00ed f\u00ednni bl\u00e6brig\u00f0um m\u00e1lt\u00ed\u00f0arinnar, hitaeininga\u00fe\u00f6rfinni var fulln\u00e6gt \u00e1 hlaupum til a\u00f0 missa ekki af neinu. \u00dear skyldi \u00f6llu st\u00e6rri kj\u00faklingum sl\u00e1tra\u00f0 \u00ed Mosfellsb\u00e6, mi\u00f0st\u00f6\u00f0 kamp\u00fdl\u00f3bakterframlei\u00f0slu \u00e1 landinu.<\/p><p>\u00dea\u00f0 var ekki fyrr en komi\u00f0 var upp \u00ed mi\u00f0ja \u00c1rt\u00fansbrekku a\u00f0 \u00fea\u00f0 rann upp fyrir fr\u00e9ttaritaranum a\u00f0 \u00fea\u00f0 l\u00e1 ekki alveg svona miki\u00f0 \u00e1. Leikurinn byrja\u00f0i ekki klukkan sj\u00f6 heldur fimmt\u00e1n m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar. \u00dea\u00f0 var \u00fev\u00ed t\u00edmi til a\u00f0 aka h\u00e6gt og r\u00f3lega framhj\u00e1 \u00fev\u00ed Shangri-La sem Grafarholts- og \u00dalfars\u00e1rdalshverfin eru or\u00f0in. Fegursta bygg\u00f0 Reykjav\u00edkur? \u00dea\u00f0 segja margir \u2013 og eigum vi\u00f0 enn eftir a\u00f0 r\u00e6\u00f0a mannau\u00f0inn!<\/p><p>\u00deessi h\u00e1lfmisheppna\u00f0a t\u00edmastj\u00f3rnun ger\u00f0i \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 fr\u00e9ttaritarinn kom a\u00f0 vallarhli\u00f0inu n\u00e1nast um lei\u00f0 og g\u00f3\u00f0gla\u00f0ir Geiramenn sem h\u00f6f\u00f0u \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 m\u00e6ta snemma og nota fer\u00f0agj\u00f6fina s\u00edna \u00e1 \u00feorpskr\u00e1nni. F\u00f3lk dreif a\u00f0 \u00far \u00f6llum \u00e1ttum. \u00dea\u00f0 var h\u00f6rkug\u00f3\u00f0 m\u00e6ting \u00e1 v\u00f6llinn \u00ed kv\u00f6ld en Framarar \u00ed auglj\u00f3sum meirihluta.<\/p><p>Li\u00f0suppstillingin kom nokku\u00f0 \u00e1 \u00f3vart og fasta p\u00f3sta vanta\u00f0i \u00ed v\u00f6rnina. Alex t\u00f3k \u00fat leikbann en \u00feeir Aron \u00de\u00f3r\u00f0ur og Gunnar voru b\u00e1\u00f0ir \u00e1 bekknum. Heyr\u00f0ist s\u00fa tilg\u00e1ta a\u00f0 Nonni og A\u00f0alsteinn hafi \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 hv\u00edla \u00fe\u00e1 \u00ed \u00feessum leik \u00fear sem b\u00e1\u00f0ir eru \u00e1 \u00feremur gulum spj\u00f6ldum, til a\u00f0 taka enga s\u00e9nsa fyrir Eyjaleikinn mikilv\u00e6ga \u00ed n\u00e6stu viku.<\/p><p>En ma\u00f0ur kemur \u00ed manns sta\u00f0. \u00d3li var vitaskuld \u00ed markinu. Mi\u00f0ver\u00f0ir voru Kyle og Hlynur Atli sem kom \u00e1 n\u00fd inn \u00ed li\u00f0i\u00f0 og t\u00f3k vitaskuld vi\u00f0 fyrirli\u00f0abandinu. Halli og \u00d3skar byrju\u00f0u sem bakver\u00f0ir. Danny Guthrie aftastur \u00e1 mi\u00f0junni Indri\u00f0i \u00c1ki og Albert \u00fear fyrir framan. Tryggvi og Fred \u00e1 k\u00f6ntunum og \u00de\u00f3rir uppi \u00e1 toppi.<\/p><p>\u00der\u00e1tt fyrir st\u00f6\u00f0u s\u00edna sem mi\u00f0st\u00f6\u00f0 h\u00e6nsnfuglaframlei\u00f0slu virtist nautakj\u00f6t uppista\u00f0ann \u00ed hamborgurunum sem heimamenn steiktu af miklum m\u00f3\u00f0. \u00de\u00e6r grill\u00e6fingar f\u00f3ru ekki framhj\u00e1 neinum me\u00f0an \u00e1 leik st\u00f3\u00f0 og reykinn lag\u00f0i yfir \u00e1horfendast\u00fakuna. H\u00fan var annars me\u00f0 l\u00edflegasta m\u00f3ti \u00ed kv\u00f6ld. Mosfellingar eiga mj\u00f6g fj\u00f6rlega stu\u00f0ningssveit sem klappar og syngur allan t\u00edmann. Vissulega var hluti hvatningar\u00f3panna \u00e1 \u00feermistiginu en \u00fea\u00f0 fyrirgefst vegna ungs aldurs. Fr\u00e1b\u00e6rt fyrir \u00feessa l\u00edflegu Aftureldingarstr\u00e1ka a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 l\u00e6ra af Geiram\u00f6nnum bumbusl\u00e1tt og stu\u00f0ningsl\u00f6g. A\u00f0d\u00e1un \u00feeirra var au\u00f0s\u00e6 og f\u00f6lskvalaus. \u00deessir krakkar eiga eftir a\u00f0 b\u00faa a\u00f0 \u00feessu lengi!<\/p><p>Framarar byrju\u00f0u leikinn af meiri krafti og voru mun sterkara li\u00f0i\u00f0 fyrstu tuttugu m\u00edn\u00faturnar en \u00fe\u00f3 \u00e1n \u00feess a\u00f0 skapa s\u00e9r nein verulega afgerandi f\u00e6ri. \u00c1g\u00e6tt spil fyrir framan Aftureldingarv\u00f6rnina rann oftar en ekki \u00fat \u00ed sandinn \u00feegar s\u00ed\u00f0asta sendingin reyndist ekki alveg n\u00f3gu n\u00e1kv\u00e6m e\u00f0a s\u00f3knarmennirnir hugsu\u00f0u ekki fyllilega \u00ed takt. D\u00f3marinn setti snemma \u00fe\u00e1 l\u00ednu a\u00f0 leyfa talsver\u00f0a snertingu og flauta\u00f0i l\u00edti\u00f0 og spjalda\u00f0i n\u00e1nast ekkert. \u00deetta f\u00f3r nokku\u00f0 \u00ed taugarnar \u00e1 sumum leikm\u00f6nnum en var\u00f0 \u00fe\u00f3 ekki til \u00feess a\u00f0 leikurinn leystist upp \u00ed vitleysu svo l\u00edklega ver\u00f0ur a\u00f0 segjast a\u00f0 ma\u00f0urinn me\u00f0 flautuna hafi komi\u00f0 vel fr\u00e1 kv\u00f6ldinu.<\/p><p>Eftir r\u00famlega stundarfj\u00f3r\u00f0ung settist Guthrie \u00e1 v\u00f6llinn og \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku hans var loki\u00f0. Ekki var a\u00f0 sj\u00e1 a\u00f0 um neitt samstu\u00f0 hafi veri\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a, l\u00edklega einhver sm\u00e1tognun. Aron K\u00e1ri kom inn\u00e1 \u00ed bakv\u00f6r\u00f0inn en \u00d3skar f\u00f3r \u00ed sta\u00f0inn inn \u00e1 mi\u00f0juna.<\/p><p>\u00deessi skipting virtist a\u00f0eins ri\u00f0la spili okkar manna, \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta f\u00f3ru heimamenn a\u00f0 gera sig meira gildandi. Framv\u00f6rninni gekk \u00e1 k\u00f6flum br\u00f6sulega a\u00f0 koma boltanum \u00ed burtu og hornspyrnur, sem hafa ekki vafist fyrir okkur \u00ed sumar, reyndust h\u00e6ttulegar. \u00deurfti \u00d3li a\u00f0 gr\u00edpa inn\u00ed \u00ed f\u00e1ein skipti, \u00fear af tvisvar me\u00f0 st\u00f3rgl\u00e6silegum h\u00e6tti. F\u00e1g\u00e6t mist\u00f6k hj\u00e1 Kyla g\u00e1fu svo Aftureldingu sitt h\u00e6ttulegasta f\u00e6ri eftir r\u00e9tt r\u00faman h\u00e1lft\u00edma, en framherji \u00feeirra skaut yfir r\u00e9tt fyrir framan marki\u00f0.<\/p><p><img decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-26797 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/07\/indridi-300x300.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/07\/indridi-300x300.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/07\/indridi-800x800.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/07\/indridi-100x100.jpg 100w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/07\/indridi-1024x1024.jpg 1024w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/07\/indridi-150x150.jpg 150w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/07\/indridi-768x768.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/07\/indridi-1536x1536.jpg 1536w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/07\/indridi.jpg 1577w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/>Framarar \u00e1 p\u00f6llunum voru heldur farnir a\u00f0 \u00f3kyrrast yfir \u00feessari \u00f3fyrirs\u00e9\u00f0u og \u00f3fyrirleitnu m\u00f3tspyrnu. Mark virtist liggja \u00ed loftinu og h\u00e6tt vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gorgeirinn \u00ed Hvolpasveit Mosfellinga myndi aukast um allan helming. Og marki\u00f0 leit dagsins lj\u00f3s, en \u00fea\u00f0 ger\u00f0ist hinu megin \u00e1 vellinum! \u00d3skar f\u00e9kk boltann r\u00e9tt fyrir utan v\u00edtateig og leita\u00f0i a\u00f0 samherja til a\u00f0 senda \u00e1. Enginn gaf sig fram og heimamenn m\u00e6ttu honum ekki af krafti, svo \u00fea\u00f0 var ekkert anna\u00f0 \u00ed st\u00f6\u00f0unni en a\u00f0 spila inn \u00ed teig og l\u00e1ta skot r\u00ed\u00f0a af. Boltinn l\u00e1 \u00ed netinu og Fram komi\u00f0 me\u00f0 forystu, 0:1 \u00e1 35. m\u00edn\u00fatu.<\/p><p>N\u00e6stu m\u00edn\u00fatur fengu heimamenn nokkur f\u00e6ri, sum b\u00fdsna g\u00f3\u00f0, en Framarar voru l\u00edka tilb\u00fanir a\u00f0 refsa me\u00f0 hr\u00f6\u00f0um s\u00f3knum. Albert \u00e1tti gott skot sem markv\u00f6r\u00f0ur andst\u00e6\u00f0inganna var\u00f0i vel. \u00c1 lokam\u00edn\u00fatur h\u00e1lfleiksins dansa\u00f0i Fred hringi \u00ed kringum n\u00e6r alla Aftureldingarv\u00f6rnina og f\u00e9ll loks til jar\u00f0ar inn\u00ed v\u00edtateignum. Kl\u00e1r snerting, \u00fe\u00f3tt l\u00edklega hef\u00f0i veri\u00f0 ansi hart a\u00f0 d\u00e6ma v\u00edtaspyrnu. Gula spjaldi\u00f0 sem brasil\u00edska undri\u00f0 f\u00e9kk fyrir atviki\u00f0 var hins vegar hreint r\u00e9ttarmor\u00f0.<\/p><p>Flauta\u00f0 var til leikhl\u00e9s og vallar\u00feulur Mosfellinga t\u00f3k a\u00f0 blasta klass\u00edsku rappi, Eminem og fleiri g\u00f3\u00f0um m\u00f6nnum. Taktfastur rapptakturinn var \u00ed augnablik rofinn af \u00f3m\u00fe\u00fd\u00f0ri r\u00f6dd okkar allra besta Hreims syngjandi Fram-ball\u00f6\u00f0una \u00f3gleymanlegu. H\u00e9r var ekki \u00e1 fer\u00f0inni s\u00e9rst\u00f6k gestrisni kj\u00faklingab\u00e6nda heldur haf\u00f0i hrekkj\u00f3ttur Framari n\u00e1\u00f0 a\u00f0 tengja sig me\u00f0 Bl\u00e1t\u00f6nninni inn \u00e1 hlj\u00f3\u00f0kerfi\u00f0. Gamani\u00f0 t\u00f3k skj\u00f3tan enda \u00feegar dreyrrau\u00f0ur vallarv\u00f6r\u00f0ur hlj\u00f3p til og sl\u00f6kkti \u00e1 h\u00e1talaranum. Fram 1 : UMFA 0 \u2013 jafnt innan sem utan vallar!<\/p><p>Sumari\u00f0 eftir menntask\u00f3la starfa\u00f0i fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar sem ruslakarl, me\u00f0al annars \u00ed Mosfellsb\u00e6. Hann \u00feekkir \u00fev\u00ed Mos\u00f3 eins og l\u00f3fann \u00e1 s\u00e9r, \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta eldri hverfin. Hann mun \u00fev\u00ed aldrei taka undir me\u00f0 r\u00f3gtungum sem tala illa um Mosfellsb\u00e6 og kalla \u00fea\u00f0 gu\u00f0svola\u00f0an sta\u00f0. Sl\u00edk sj\u00f3narmi\u00f0 ver\u00f0a ekki vi\u00f0ru\u00f0 \u00ed \u00feessum pistlum n\u00e9 birt \u00e1 opinberu m\u00e1lgagni Knattspyrnuf\u00e9lagsins Fram. Mosfellingar eru vinir okkar og ver\u00f0andi n\u00e1grannar. S\u00fa sta\u00f0reynd a\u00f0 allar r\u00edkisstj\u00f3rnir l\u00fd\u00f0veldisins hafi \u00ed 40 \u00e1r haft \u00fea\u00f0 \u00e1 dagskr\u00e1nni a\u00f0 byggja Sundabraut til a\u00f0 losa landsmenn undan \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 keyra \u00ed gegnum Mosfellsb\u00e6 skiptir h\u00e9r engu m\u00e1li og er eflaust tilviljun.<\/p><p>Seinni h\u00e1lfleikur h\u00f3fst og byrja\u00f0i dauflega. Fr\u00e9ttaritarinn f\u00e6r\u00f0i sig \u00far h\u00f3pi Coventry og West Ham-manna \u00ed st\u00fakus\u00e6tunum og st\u00f3\u00f0 \u00feess \u00ed sta\u00f0 hj\u00e1 \u00ed\u00fer\u00f3ttafr\u00e9ttarar R\u00daV \u00e1 fr\u00edvaktinni. \u00dear var n\u00fa ekki t\u00f6lu\u00f0 vitleysan.<\/p><p>F\u00e1tt bar til t\u00ed\u00f0inda fyrsta stundarfj\u00f3r\u00f0unginn en heimamenn voru \u00fe\u00f3 \u00edvi\u00f0 sterkari. \u00cd kj\u00f6lfari\u00f0 kom Gummi Magg inn\u00e1 fyrir Fred. L\u00edti\u00f0 breyttist \u00fe\u00f3 fyrr en \u00feegar um tuttugu m\u00edn\u00fatur voru eftir, \u00fe\u00e1 virtust Framarar vakna til l\u00edfsins \u00e1 n\u00fdjan leik. Haraldur lag\u00f0i upp pr\u00fd\u00f0ilegt f\u00e6ri fyrir Albert en Mosfellingav\u00f6rnin kom boltanum \u00ed horn. \u00dar hornspyrnunni var Kyle n\u00e6rri b\u00fainn a\u00f0 stanga \u00ed neti\u00f0 en markv\u00f6r\u00f0urinn n\u00e1\u00f0i a\u00f0 sl\u00e1 fr\u00e1 \u00e1 markl\u00ednu.<\/p><p>N\u00e6sta hornspyrna reyndist \u00e1rangursr\u00edkari. \u00deegar kort\u00e9r var til leiksloka t\u00f3ku Framarar horn vinstramegin (n\u00fa kynni einhver a\u00f0 spyrja \u2013 vinstramegin fr\u00e1 markver\u00f0inum e\u00f0a s\u00f3kninni? Og \u00fea\u00f0 er g\u00f3\u00f0 og r\u00e9ttm\u00e6t spurning). Hornspyrnan barst utarlega \u00ed teiginn \u00fear sem a\u00f0v\u00edfandi Framari (\u00d3skar?) skalla\u00f0i fyrir f\u00e6tur Indri\u00f0a \u00c1ka sem afgreiddi kn\u00f6ttinn vel \u00ed neti\u00f0, 0:2 og kalk\u00fanninn var sigra\u00f0ur!<\/p><p>M\u00edn\u00fatu s\u00ed\u00f0ar virtist Tryggvi hlaupinn ni\u00f0ur \u00ed v\u00edtateignum en d\u00f3marinn k\u00e6r\u00f0i sig koll\u00f3ttann. Tryggvi og Haraldur f\u00f3ru af velli fyrir Alexander M\u00e1 og Arn\u00f3r Da\u00f0a. Alexander haf\u00f0i varla veri\u00f0 lengur en 15 sek\u00fandur \u00e1 vellinum \u00feegar hann n\u00e1\u00f0i a\u00f0 stinga s\u00e9r \u00ed gegnum v\u00f6rnina en \u00e1g\u00e6tur markv\u00f6r\u00f0ur heimamanna var\u00f0i vel.<\/p><p>\u00deri\u00f0ja Frammarki\u00f0 l\u00e1 \u00ed loftinu en k\u00e6ruleysi Framara bjarga\u00f0i Mosfellingum. \u00deriggja marka sigur hef\u00f0i l\u00edka gefi\u00f0 villandi mynd af leik sem var \u00ed raun \u00ed j\u00e1rnum \u00e1 st\u00f3rum k\u00f6flum. Afturelding er me\u00f0 gott li\u00f0 og skemmtilega umgj\u00f6r\u00f0. Gerir fr\u00e9ttaritarinn \u00fea\u00f0 a\u00f0 till\u00f6gu sinni a\u00f0 \u00fer\u00e1tt fyrir \u00farslit leiksins ver\u00f0i Mosfellingum heimila\u00f0 a\u00f0 ganga \u00e1 \u00dalfarsfell og versla \u00e1 Korputorgi fram a\u00f0 n\u00e6stu vi\u00f0ureign, sem ver\u00f0ur einmit \u00ed lokaumfer\u00f0 m\u00f3tsins.<\/p><p>Fram hefur oft leiki\u00f0 betur en \u00ed dag, en \u00ferj\u00fa stig og hreint net er nokku\u00f0 sem ekki er h\u00e6gt a\u00f0 kvarta yfir. \u00d3li leysti allt sem hann \u00feurfti a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0. \u00dea\u00f0 er au\u00f0velt a\u00f0 gleyma markver\u00f0inum hj\u00e1 li\u00f0i sem vinnur n\u00e1nast alla leiki, en \u00fe\u00e1ttur hans \u00ed sumar er risast\u00f3r. \u00d3skar var mj\u00f6g \u00f6flugur \u00ed dag og l\u00edklega ma\u00f0ur leiksins.<\/p><p>Eins og \u00e1\u00f0ur hefur komi\u00f0 fram \u00e1 \u00feessum vettvangi, nennir fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar ekki a\u00f0 vera me\u00f0 uppger\u00f0arh\u00f3gv\u00e6r\u00f0 e\u00f0a taka \u00fe\u00e1tt \u00ed v\u00e6ningastj\u00f3rnunar\u00e1taki sem gengur \u00fat \u00e1 a\u00f0 tala ni\u00f0ur \u00fe\u00e1 sta\u00f0reynd a\u00f0 vi\u00f0 erum langbestir, langefstir og langflottastir. Lengi megi \u00fea\u00f0 standa. N\u00e6sti leikur er \u00e1 m\u00f3ti \u00cdBV \u00ed Sambam\u00fdri. \u00dear ver\u00f0ur fr\u00e9ttaritarinn fjarri g\u00f3\u00f0u gamni vegna fj\u00f6lskylduskuldbindinga austur \u00e1 landi. Kannski f\u00e1i\u00f0 \u00fei\u00f0 bara leiksk\u00fdrslu me\u00f0 Leikni F\u00e1skr\u00fa\u00f0sfir\u00f0i \u00ed sta\u00f0inn.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Ein af \u00f6rf\u00e1um meinsemdum \u00ed al\u00fe\u00fd\u00f0ul\u00fd\u00f0veldi Katr\u00ednar Jakobsd\u00f3ttur er skortur \u00e1 g\u00f3\u00f0u kj\u00faklingakryddi. Einu sinni var h\u00e6gt a\u00f0 f\u00e1 pr\u00fd\u00f0isgott krydd \u00ed st\u00f3rum staukum sem nota m\u00e1tti til a\u00f0 drekkja [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":26794,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-26793","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/07\/Oskar-vefur.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/26793","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=26793"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/26793\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":26800,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/26793\/revisions\/26800"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/26794"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=26793"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=26793"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=26793"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}