{"id":26912,"date":"2021-08-05T23:47:42","date_gmt":"2021-08-05T23:47:42","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=26912"},"modified":"2021-08-06T00:00:48","modified_gmt":"2021-08-06T00:00:48","slug":"f","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2021\/08\/05\/f\/","title":{"rendered":"Foreldrar og synir"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"26912\" class=\"elementor elementor-26912\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-7d586996 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"7d586996\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-57e7689f\" data-id=\"57e7689f\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-2945fabb elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"2945fabb\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-26931 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/Fram-Gay-pride-300x225.png\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"225\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/Fram-Gay-pride-300x225.png 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/Fram-Gay-pride-800x600.png 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/Fram-Gay-pride-1024x768.png 1024w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/Fram-Gay-pride-768x576.png 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/Fram-Gay-pride-1536x1152.png 1536w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/Fram-Gay-pride.png 1890w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/><\/p>\n<p>T\u00e1ningurinn \u00e1 heimili fr\u00e9ttaritara Frams\u00ed\u00f0unnar f\u00e9kk h\u00fasi\u00f0 undir sig og vini s\u00edna \u00ed kv\u00f6ld. Ekki til a\u00f0 halda e-pillukn\u00fai\u00f0 reif e\u00f0a k\u00fdla \u00ed f\u00f6tu og hluta \u00ed t\u00e1ningsangistarrokk me\u00f0 lystarstolnum her\u00f3\u00ednsj\u00faklingum. \u00d3nei. Plani\u00f0 var a\u00f0 b\u00faa til gr\u00e6nmetis-dumplings fr\u00e1 grunni og g\u00faffa \u00ed sig undir s\u00f6ngleikjat\u00f3nlist. \u00c6skan er svo heilbrig\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 er skuggalegt.<\/p>\n<p>Fyrir viki\u00f0 var yngri gr\u00edsinn, Valsarinn me\u00f0 lj\u00f3sa bifukolluh\u00e1ri\u00f0 skikka\u00f0ur me\u00f0 \u00ed Sambam\u00fdrina. Litla d\u00fdri\u00f0 er str\u00ed\u00f0ali\u00f0 \u00feessi misserin, haldandi me\u00f0 b\u00e6\u00f0i Val og Manchester City. \u00deegar \u00fe\u00fa ert t\u00f3lf \u00e1ra er s\u00f6guvitundin takm\u00f6rku\u00f0 og \u00e9g \u00e1 s\u00ed\u00f0ar eftir a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra fyrir honum hv\u00edl\u00edkt happ \u00fea\u00f0 hafi veri\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 sitja vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 sj\u00e1lfum P\u00e9tri Ormslev og g\u00faffa \u00ed sig Subway-snittur fyrir leik.<\/p>\n<p>Sumarleyfi, \u00fatileikir og s\u00f3ttkv\u00ed andst\u00e6\u00f0inga gerir \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 fr\u00e9ttaritarinn hefur ekki m\u00e6tt \u00e1 v\u00f6llinn \u00ed h\u00e1a herrans t\u00ed\u00f0. Raunar ekki s\u00ed\u00f0an \u00ed leiknum \u00e1 m\u00f3ti Aftureldingu fyrir margt l\u00f6ngu. F\u00f3tbolta\u00feorstinn var \u00fev\u00ed mikill. Andst\u00e6\u00f0ingarnir ekki af verri endanum: h\u00f6rkugott Fj\u00f6lnisli\u00f0 sem vi\u00f0 m\u00e1ttum hafa okkur alla vi\u00f0 a\u00f0 vinna \u00ed f\u00e1r\u00e1nlegum slagvi\u00f0risleik \u00ed Grafarvogi \u00ed vor. A\u00f0 \u00feessu sinni voru ve\u00f0ura\u00f0st\u00e6\u00f0ur allar hinar bestu. \u00deunn sk\u00fdjahula, hl\u00fdtt og stillt ve\u00f0ur. Gr\u00e1a peysan var notu\u00f0 \u00ed fyrri h\u00e1lfleiknum en stuttermabolurinn eftir hl\u00e9. En var gula vesti\u00f0 me\u00f0 \u00ed f\u00f6r? Ekki spyrja svona kj\u00e1nalegra spurninga!<\/p>\n<p><img decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-26915 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/God-300x261.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"261\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/God-300x261.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/God-scaled-800x696.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/God-1024x890.jpg 1024w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/God-768x668.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/God-1536x1335.jpg 1536w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/God-2048x1780.jpg 2048w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/>Afm\u00e6lisbarni\u00f0 J\u00f3n Sveinsson \u00fatsk\u00fdr\u00f0i \u00e1 hlaupum fyrir leik a\u00f0 margir leikmenn v\u00e6ru t\u00e6pir. Sumir v\u00e6ru \u00fe\u00f3 \u00ed byrjunarli\u00f0i, a\u00f0rir \u00e1 bekknum e\u00f0a utan h\u00f3ps. Breiddin hj\u00e1 Fram er mikil \u00ed \u00e1r eins og fram hefur komi\u00f0 og \u00fev\u00ed var ekki a\u00f0 sj\u00e1 af uppstillingunni a\u00f0 \u00fej\u00e1lfarateymi\u00f0 hafi veri\u00f0 \u00ed vandr\u00e6\u00f0um. \u00d3lafur \u00ed markinu, Kyle og Aron K\u00e1ri \u00ed mi\u00f0v\u00f6r\u00f0um, Halli og Alex bakver\u00f0ir. Aron \u00de\u00f3r\u00f0ur aftastur \u00e1 mi\u00f0junni me\u00f0 Indri\u00f0a \u00c1ka og Albeerrt fyrir framan sig. Fred og Alexander \u00e1 k\u00f6ntunum og \u00de\u00f3rir fremstur.<\/p>\n<p>Fr\u00e9ttaritarinn arka\u00f0i a\u00f0 \u00e1litlegum s\u00e6tum og veitti \u00fev\u00ed enga athygli a\u00f0 s\u00e6taval v\u00e6ri ekki frj\u00e1lst. S\u00e6tin reyndust fr\u00e1tekin fyrir Gauta Laxdal og f\u00e9laga hans. Gauti og fr\u00e9ttaritarinn halda b\u00e1\u00f0ir me\u00f0 Luton Town og var \u00fev\u00ed l\u00edti\u00f0 m\u00e1l a\u00f0 leysa \u00far \u00feessu. \u00deeir hl\u00f6mmu\u00f0u s\u00e9r \u00ed n\u00e6stu s\u00e6ti vi\u00f0 hli\u00f0ina \u2013 sem reyndust vera s\u00e6tin sem fr\u00e9ttaritarafe\u00f0gunum haf\u00f0i veri\u00f0 \u00fathluta\u00f0! \u00cd r\u00f6\u00f0inni fyrir ne\u00f0an sat svo kona sem reyndist m\u00f3\u00f0ir \u00de\u00f3ris Gu\u00f0j\u00f3nssonar. Reyndist h\u00fan vi\u00f0r\u00e6\u00f0ug\u00f3\u00f0 og n\u00e1\u00f0i vel saman vi\u00f0 \u00fafna Valsdrenginn. \u00dea\u00f0 er alltaf gaman og heimilislegt a\u00f0 hitta foreldra leikmanna \u00e1 vellinum.<\/p>\n<p>Okkar menn byrju\u00f0u me\u00f0 l\u00e1tum og \u00e1 fyrstu fimm m\u00edn\u00fatunum litu \u00ferj\u00fa g\u00f3\u00f0 f\u00e6ri dagsins lj\u00f3s, \u00fear sem markv\u00f6r\u00f0ur Fj\u00f6lnis var\u00f0i m.a. yfir fr\u00e1 Aroni \u00de\u00f3r\u00f0i og Alexander M\u00e1r var n\u00e6rri \u00fev\u00ed a\u00f0 skora. Fj\u00f6lnismenn virtust slegnir \u00fat af laginu, l\u00e1gu mj\u00f6g aftarlega og m\u00e1ttu bara \u00feakka k\u00e6ruleysi s\u00f3knarmanna Fram fyrir a\u00f0 lenda ekki 2-3 m\u00f6rkum undir \u00e1 fyrstu tuttugu m\u00edn\u00fatunum. Fyrri h\u00e1lfleikur var n\u00e6rri h\u00e1lfna\u00f0ur \u00feegar fr\u00e9ttaritarinn p\u00e1ra\u00f0i hj\u00e1 s\u00e9r fyrsta h\u00e1lff\u00e6ri Fj\u00f6lnis, en Fram var \u00fe\u00e1 b\u00fai\u00f0 a\u00f0 n\u00e1 6-7 alv\u00f6ru s\u00f3knarlotum.<\/p>\n<p>Leik\u00e1\u00e6tlun gestanna var greinilega a\u00f0 traysta \u00e1 skyndis\u00f3knir og \u00feeim t\u00f3kst \u00ed f\u00e1ein skipti a\u00f0 brj\u00f3ta s\u00e9r lei\u00f0 upp v\u00f6llinn, en mi\u00f0var\u00f0aparinu t\u00f3kst \u00ed hvert einasta skipti a\u00f0 verjast. Aron K\u00e1ri \u00e1 s\u00e9rstakt hr\u00f3s skili\u00f0 fyrir frammist\u00f6\u00f0una \u00ed kv\u00f6ld.<\/p>\n<p>Eftir r\u00e9tt um h\u00e1lft\u00edma leik \u00e1tti \u00de\u00f3ri fr\u00e1b\u00e6ra sendingu \u00e1 Albert sem var einn \u00e1 m\u00f3ti markver\u00f0i en flagga\u00f0ur rangst\u00e6\u00f0ur \u2013 sem virtist \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta afar t\u00e6pt. Um \u00fea\u00f0 vorum vi\u00f0 m\u00f3\u00f0ir \u00de\u00f3ris hjartanlega samm\u00e1la.<\/p>\n<p>Nokkrum m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar \u00e1ttu Framarar flotta skyndis\u00f3kn. Alex Freyr t\u00f3k \u00e1 r\u00e1s upp kantinn og \u00e1tti g\u00f3\u00f0a stungusendingu fyrir marki\u00f0 sem Indri\u00f0i \u00c1ki framlengdi \u00e1fram \u00e1 \u00de\u00f3ri sem var \u00e1 au\u00f0um sj\u00f3 og afgreiddi boltann gl\u00e6silega \u00ed neti\u00f0, 1:0. Tv\u00f6 foreldri og Valsgutti f\u00f6gnu\u00f0u vel. \u00dea\u00f0 sama ger\u00f0u Framarar umhverfis. \u00c1horfendast\u00fakan \u00ed Sambam\u00fdri \u00feessi misserin l\u00edtur \u00fat eins og Hverjir voru hvar-d\u00e1lkurinn \u00ed F\u00f3kus \u00ed upphafi aldar. \u00deannig var gaman a\u00f0 sj\u00e1 stj\u00f6rnusenterinn og Sveitta gangav\u00f6r\u00f0inn Andra Fannar Ott\u00f3sson \u00ed h\u00f3pnum. Lengi ver\u00f0ur \u00ed minnum haft \u00feegar hann lag\u00f0i sk\u00f3na \u00e1 hilluna alltof snemma en ger\u00f0i \u00fea\u00f0 me\u00f0 l\u00e6r\u00f0ri b\u00f3kmenntav\u00edsun \u00ed lagi\u00f0 \u201eA\u00f0eins smekksatri\u00f0i\u201c\u00a0eftir Megas. Vi\u00f0 \u00feurfum meiri Megas \u00ed n\u00fat\u00edmaknattspyrnu.<\/p>\n<p>\u00c1 markam\u00edn\u00fatunni virtist Albert \u00e6tla a\u00f0 tv\u00f6falda forystu Framara en var flagga\u00f0ur rangst\u00e6\u00f0ur. M\u00edn\u00fatu s\u00ed\u00f0ar komst Indri\u00f0i \u00c1ki einn \u00ed gegn en skaut yfir \u2013 \u00ed s\u00f6mu s\u00f3kn virtist Albert togna en n\u00e1\u00f0i \u00fe\u00f3 a\u00f0 halda \u00e1fram, g\u00f3\u00f0u heilli. \u00dea\u00f0 sem eftir lei\u00f0 h\u00e1lfleiks komust \u00de\u00f3rir og Albert b\u00e1\u00f0ir \u00ed \u00e1g\u00e6t f\u00e6ri. Yfirbur\u00f0ir Framarar voru algj\u00f6rir.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var l\u00e9tt yfir mannskapnum \u00ed anddyri Framheimilisins \u00ed leikhl\u00e9i, \u00fe\u00f3tt Framherjakaffi e\u00f0a sjoppurekstur v\u00e6ri ekki \u00ed bo\u00f0i \u00ed s\u00f3ttvarnarskyni. Borgarfulltr\u00fai Samfylkingarinnar var \u00f6llu brattari en \u00feegar hann l\u00e9k Jens \u00ed Kar\u00edusi og Baktusi fyrir \u00f3tal \u00e1rum, enda \u00f3a\u00f0finnanlega tannbursta\u00f0ur. Trymbillinn \u00d3skar er l\u00edka sn\u00fainn aftur af krafti, eftir a\u00f0 hafa veri\u00f0 fremur l\u00edtt virkur seinni hluta s\u00ed\u00f0asta t\u00edmabils og frameftir \u00feessu. \u00d3skar \u00e1 st\u00f3ran \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 Framarar erum ekki bara langbesta li\u00f0i\u00f0 inni \u00e1 vellinum \u00ed \u00e1r, heldur einnig langsni\u00f0ugust \u00e1 p\u00f6llunum. \u00dea\u00f0 eina ergilega \u00ed hl\u00e9i var a\u00f0 forystan v\u00e6ri ekki 3-4 m\u00f6rk.<\/p>\n<p>Seinni h\u00e1lfleikur byrja\u00f0i eins og \u00feeim fyrri lauk. Framarar \u00e1ttu nokkur markskot en engin s\u00e9rlega h\u00e6ttuleg ef fr\u00e1 er tali\u00f0 bylmingsskot \u00de\u00f3ris, sem var fr\u00e1b\u00e6r \u00ed kv\u00f6ld, \u00e1 52. m\u00edn\u00fatu sem Fj\u00f6lnismarkv\u00f6r\u00f0urinn var\u00f0i gl\u00e6silega. \u00de\u00f3 ekki n\u00f3gu gl\u00e6silega til a\u00f0 fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar hir\u00f0i um a\u00f0 v\u00edkja fr\u00e1 \u00feeirri vinnureglu a\u00f0 nafngreina helst enga leikmenn andst\u00e6\u00f0inganna \u00ed \u00feessum pistlum.<\/p>\n<p>Eftir fyrstu t\u00edu til fimmt\u00e1n m\u00edn\u00faturnar var eins og botninn dytti \u00far leik okkar manna. Fj\u00f6lnismenn t\u00f3ku a\u00f0 s\u00e6kja og s\u00edfellt lengra var\u00f0 \u00e1 milli s\u00f3kna Framara. \u00deegar seinni h\u00e1lfleikur var akk\u00faratt h\u00e1lfna\u00f0ur l\u00e1 boltinn \u00ed Framnetinu eftir \u00e1g\u00e6tan skalla Fj\u00f6lnis. Flaggi\u00f0 var hins vegar fari\u00f0 \u00e1 loft til marks um rangst\u00f6\u00f0u \u2013 sem fr\u00e9ttaritarinn er alls ekki sannf\u00e6r\u00f0ur um a\u00f0 hafi veri\u00f0 r\u00e9ttur d\u00f3mur&#8230;<\/p>\n<p>\u00deegar um tuttugu m\u00edn\u00fatur voru eftir ger\u00f0u afm\u00e6lisbarni\u00f0 og A\u00f0alsteinn tv\u00f6falda skiptingu. Albert f\u00f3r af velli fyrir Danny Guthrie. Beint \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 kom svo tv\u00f6f\u00f6ld skipting \u00fear sem Alexander og \u00de\u00f3rir f\u00f3ru af velli fyrir \u00fe\u00e1 M\u00e1 og Gumma Magg. S\u00e1 s\u00ed\u00f0arnefndi var n\u00e1nast kominn \u00e1 bla\u00f0 m\u00edn\u00fatu s\u00ed\u00f0ar eftir g\u00f3\u00f0an undirb\u00faning fr\u00e1 Fred.<\/p>\n<p>R\u00e9tt \u00e1 eftir \u00e1tti Kyle h\u00f6rkut\u00e6klingu sem virtist g\u00f3\u00f0 og gild. Hann uppskar \u00fe\u00f3 gult spjald a\u00f0 launum \u00e1 me\u00f0an gestirnir vildu sj\u00e1 annan lit. M\u00f3therjinn var studdur meiddur af velli. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar \u00feurfti \u00d3li a\u00f0 taka \u00e1 honum st\u00f3ra s\u00ednum \u00ed n\u00e1nast eina skipti\u00f0 \u00ed leiknum \u00feegar hann var\u00f0i vel skot fr\u00e1 Fj\u00f6lnism\u00f6nnum, en flagg a\u00f0sto\u00f0ard\u00f3marans var raunar komi\u00f0 \u00e1 loft.<\/p>\n<p>\u00deegar fimm m\u00edn\u00fatur voru eftir af venjulegum leikt\u00edma skei\u00f0a\u00f0i Indri\u00f0i \u00c1ki upp v\u00f6llinn, var sloppinn einn \u00ed gegn en felldur \u00e1 v\u00edtateigsl\u00ednu. Beint rautt spjald virtist auglj\u00f3s d\u00f3mur en andst\u00e6\u00f0ingurinn slapp me\u00f0 gult \u2013 en haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur n\u00e6lt s\u00e9r \u00ed anna\u00f0 sl\u00edkt me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hrinda Aroni \u00de\u00f3r\u00f0i upp \u00far \u00feurru (v\u00e6ntanlega af hreinni \u00f6fund af \u00fev\u00ed a\u00f0 Aron \u00de\u00f3r\u00f0ur var fr\u00e1b\u00e6r \u00ed leiknum \u2013 og er a\u00f0 ver\u00f0a ein af vanmetnustu hetjum \u00feessa sumars) og Grafarvogsb\u00faar \u00fev\u00ed t\u00edu undir lokin.<\/p>\n<p>\u00deegar komnar voru tv\u00e6r m\u00edn\u00fatur fram yfir venjulegan leikt\u00edma F\u00e9kk M\u00e1r boltann \u00fati \u00e1 kanti, skildi varnarmann Fj\u00f6lnis eftir \u00ed g\u00famm\u00edkurlsrykinu og renndi gl\u00e6silega fyrir marki\u00f0 \u00fear sem Gummi Magg pota\u00f0i \u00ed neti\u00f0 af metersf\u00e6ri, 2:0. Alv\u00f6ru framherjamark og sigurinn \u00ed h\u00f6fn. \u00der\u00e1tt fyrir \u00fea\u00f0 n\u00e1\u00f0u Framarar enn 1-2 s\u00f3knum og heii\u00f0ursskiptingu \u00fear sem Halli og Fred f\u00f3ru af velli fyrir \u00fe\u00e1 Gunnar og Matth\u00edas. Vestfir\u00f0ingurinn var auglj\u00f3slega einv\u00f6r\u00f0ungu settur inn til a\u00f0 geta st\u00fdrt zigga-zagga \u00ed leikslok. M\u00f6gulega er Matti besti zigga-zagga fors\u00f6ngvari fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 J\u00f3n P\u00e9tursson kynnti \u00feennan sigurs\u00f6ng til s\u00f6gunnar fyrir t\u00e6pum 50 \u00e1rum. \u00dea\u00f0 er sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0 krafa a\u00f0 a\u00f0alstj\u00f3rn Knattspyrnuf\u00e9lagsins Fram hefji n\u00fa \u00feegar formlegt ferli til a\u00f0 f\u00e1 zigga-zagga tekinn upp \u00e1 menningarminjaskr\u00e1 Unesco.<\/p>\n<p>N\u00e6sti leikur er \u00ed \u00d3lafsv\u00edk. \u00deanga\u00f0 mun fr\u00e9ttaritarinn vonandi m\u00e6ta me\u00f0 skjaldsveininum Val Nor\u00f0ra og markafleygnum g\u00f3\u00f0a, en labbak\u00faturinn s\u00e1 \u00e1kva\u00f0 eina fer\u00f0ina enn a\u00f0 taka fj\u00f6lskylduskuldbindingar og fer\u00f0al\u00f6g fram yfir leikinn. Lj\u00f3tt, lj\u00f3tt sag\u00f0i fuglinn.<\/p>\n<p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>T\u00e1ningurinn \u00e1 heimili fr\u00e9ttaritara Frams\u00ed\u00f0unnar f\u00e9kk h\u00fasi\u00f0 undir sig og vini s\u00edna \u00ed kv\u00f6ld. Ekki til a\u00f0 halda e-pillukn\u00fai\u00f0 reif e\u00f0a k\u00fdla \u00ed f\u00f6tu og hluta \u00ed t\u00e1ningsangistarrokk me\u00f0 lystarstolnum [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":26913,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[11],"tags":[],"class_list":["post-26912","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-mflkarla"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/THordir-vefur-scaled.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/26912","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=26912"}],"version-history":[{"count":26,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/26912\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":26942,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/26912\/revisions\/26942"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/26913"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=26912"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=26912"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=26912"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}