{"id":27122,"date":"2021-08-24T23:08:34","date_gmt":"2021-08-24T23:08:34","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=27122"},"modified":"2021-08-24T23:13:20","modified_gmt":"2021-08-24T23:13:20","slug":"blikkid","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2021\/08\/24\/blikkid\/","title":{"rendered":"Blikki\u00f0"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"27122\" class=\"elementor elementor-27122\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-39c244b7 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"39c244b7\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-36bae242\" data-id=\"36bae242\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-3a71bcc6 elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"3a71bcc6\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"alignnone size-full wp-image-23953\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2020\/09\/Alexander-og-Hlynur-gegn-Grindavik-vefur.jpg\" alt=\"\" width=\"799\" height=\"347\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2020\/09\/Alexander-og-Hlynur-gegn-Grindavik-vefur.jpg 799w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2020\/09\/Alexander-og-Hlynur-gegn-Grindavik-vefur-600x261.jpg 600w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2020\/09\/Alexander-og-Hlynur-gegn-Grindavik-vefur-300x130.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2020\/09\/Alexander-og-Hlynur-gegn-Grindavik-vefur-768x334.jpg 768w\" sizes=\"(max-width: 799px) 100vw, 799px\" \/> <img decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-27124 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/Aron-200x300.jpg\" alt=\"\" width=\"200\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/Aron-200x300.jpg 200w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/Aron-800x1200.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/Aron-682x1024.jpg 682w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/Aron-768x1152.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/Aron-1024x1536.jpg 1024w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/Aron.jpg 1153w\" sizes=\"(max-width: 200px) 100vw, 200px\" \/>Snemma \u00e1 \u00e1ttunda \u00e1ratug n\u00edtj\u00e1ndu aldar l\u00e9t athafnama\u00f0urinn Geir Zo\u00ebga b\u00e1ruj\u00e1rnskl\u00e6\u00f0a h\u00fas \u00ed eigu \u00fatger\u00f0ar sinnar vi\u00f0 Vesturg\u00f6tu. \u00dea\u00f0 var fyrsta b\u00e1uj\u00e1rnskl\u00e6dda reykv\u00edska h\u00fasi\u00f0. \u00cdslensk h\u00fasager\u00f0arlist var\u00f0 aldrei aftur s\u00f6m.<\/p><p>F\u00e1ar \u00fej\u00f3\u00f0ir hafa teki\u00f0 b\u00e1ruj\u00e1rni\u00f0 svo r\u00e6kilega \u00ed s\u00edna \u00fej\u00f3nustu og \u00cdslendingar. \u00cd landi \u00fear sem rigning fellur ekki l\u00f3\u00f0r\u00e9tt nema til h\u00e1t\u00ed\u00f0arbrig\u00f0a ur\u00f0u b\u00e1ra\u00f0ar blikkpl\u00f6tur sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0 kl\u00e6\u00f0ning ekki a\u00f0eins \u00e1 h\u00fas\u00fe\u00f6k heldur einnig \u00e1 \u00fatveggi. Innflutt norsk timburh\u00fas voru kl\u00e6dd breskum b\u00e1ruj\u00e1rnspl\u00f6tum sem m\u00e1la m\u00e1tti \u00ed \u00f6llum regnbogans litum. Hin tj\u00f6rusvarta \u00e1s\u00fdnd Reykjav\u00edkur v\u00e9k fyrir bj\u00f6rtum litum. L\u00edfi\u00f0 var\u00f0 pastel.<\/p><p>\u00c1 \u00der\u00f3ttarvellinum \u00ed Laugardal m\u00e1 sj\u00e1 gl\u00e6silegan minnisvar\u00f0a um \u00edslensku blikkhef\u00f0ina \u00ed arkitekt\u00far. \u00c1 me\u00f0an sumir kynnu a\u00f0 nefna H\u00fasav\u00edkurkirkju sem d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 besta og fegursta \u00ed h\u00fasager\u00f0arlist landsmanna myndi fr\u00e9ttaritarinn alltaf nefna blikkvegginn sem gn\u00e6fir yfir leikvangnum. \u00cd gr\u00e1u galvan\u00edseru\u00f0u j\u00e1rninu kallast \u00e1 stu\u00f0labergsform sem minna j\u00f6fnum h\u00f6ndum \u00e1 h\u00f6fundarverk Gu\u00f0j\u00f3ns Sam\u00faelssonar e\u00f0a Aldeyjarfoss annars vegar en Berl\u00ednarm\u00farinn hins vegar. Ekki er a\u00f0 undra \u00fe\u00f3tt verktakinn Stj\u00f6rnublikk augl\u00fdsi stoltur yfir varmannask\u00fdlunum. \u00dearna er hvergi ry\u00f0blett a\u00f0 sj\u00e1.<\/p><p>En talandi um ry\u00f0? Viti\u00f0i hverjir voru fur\u00f0ury\u00f0ga\u00f0ir \u00ed kv\u00f6ld? \u00dea\u00f0 voru hinir n\u00fdkr\u00fdndu Pepsideildarleikmenn Knattspyrnuf\u00e9lagsins Fram \u2013 sem voru ekki enn b\u00fanir a\u00f0 jafna sig eftir sigurh\u00e1t\u00ed\u00f0 s\u00ed\u00f0ustu viku. \u00c1 s\u00ed\u00f0asta t\u00edmabili \u00e1ttu Framarar sinn l\u00e9legasta leik \u00e1 \u00der\u00f3ttarvellinum \u00ed vi\u00f0ureign sem lauk 2:2 me\u00f0 marki \u00e1 fj\u00f3r\u00f0u m\u00edn\u00fatu uppb\u00f3tart\u00edma. (H\u00f6skuldarvi\u00f0v\u00f6run: sagan endurt\u00f3k sig eins og Karl Marx sp\u00e1\u00f0i fyrir um, nema s\u00ed\u00f0ast enda\u00f0i h\u00fan sem farsi, n\u00fa sem harmleikur.)<\/p><p>Fr\u00e9ttaritarinn m\u00e6tti t\u00edmanlega til fundar vi\u00f0 vaska Geiramenn \u00e1 menningarlegri \u00feungami\u00f0ju 104-p\u00f3stn\u00famersins og r\u00f6lti \u00fea\u00f0an \u00e1 v\u00f6llinn. \u00dear sem fr\u00e9ttaritarinn er enginn Gerald Ford gat hann gengi\u00f0, tuggi\u00f0 tyggig\u00famm\u00ed og lesi\u00f0 byrjunarli\u00f0i\u00f0 \u00e1 \u00farslit.net. \u00dea\u00f0 var \u00e1 \u00feessa lei\u00f0: \u00d3lafur \u00ed markinu, Kyle og Hlynur \u00ed mi\u00f0v\u00f6r\u00f0um, Halli og Matti bakver\u00f0ir. Danny Guthrie kom inn \u00ed byrjunarli\u00f0i\u00f0 og g\u00e1tu fr\u00e9ttaritarinn og fleygberinn og skjaldsveinninn sau\u00f0tryggi Valur Nor\u00f0ri k\u00fdtt um \u00fea\u00f0 nokku\u00f0 fram eftir leik hvort hann e\u00f0a Aron \u00de\u00f3r\u00f0ur v\u00e6ru \u00ed st\u00f6\u00f0unni aftast \u00e1 mi\u00f0junni. Fred og Alexander voru \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta hvor \u00e1 s\u00ednum kanti, Albert altunlykjandi fremst \u00e1 mi\u00f0junni og \u00de\u00f3rir upp \u00e1 topp.<\/p><p>Eftir 40 sek\u00fandur kom fyrsta dau\u00f0af\u00e6ri Framara. \u00de\u00f3rir komst einn \u00ed gegn en \u00f3\u00fearflega g\u00f3\u00f0ur \u00der\u00f3ttarmarkv\u00f6r\u00f0urinn var\u00f0i \u00ed fyrsta en fr\u00e1leitt s\u00ed\u00f0asta skipti \u00ed leiknum. Velta m\u00e1 \u00fev\u00ed fyrir s\u00e9r hva\u00f0a fl\u00f3\u00f0g\u00e1ttir hef\u00f0u opnast ef \u00feessi fyrsta s\u00f3kn hef\u00f0i enda\u00f0 me\u00f0 marki.<\/p><p>Eftir t\u00e6par fj\u00f3rar m\u00edn\u00fatur n\u00e1\u00f0u heimamenn a\u00f0 opna Framv\u00f6rnina upp \u00e1 g\u00e1tt og R\u00f3bert Hauksson skora\u00f0i smekklegt mark. Hann var\u00f0 \u00fear me\u00f0 fyrsti ma\u00f0urinn til a\u00f0 skora gegn Fram \u00e1 s\u00ednum eigin heimavelli \u00ed sumar. \u00deetta kallar \u00e1 medal\u00edu e\u00f0a Wikipedius\u00ed\u00f0u.<\/p><p>\u00deetta reyndist eina alv\u00f6ru f\u00e6ri \u00der\u00f3ttara \u00ed fyrri h\u00e1lfleik. Mj\u00f6g rausnarleg talning gefur \u00feeim eina og h\u00e1lfa s\u00f3kn fyrir hl\u00e9. Hinu megin t\u00f3ku Framarar hins vegar a\u00f0 br\u00fdna busana. Framarar h\u00f6ktu \u00ed \u00f6\u00f0rum g\u00edr, en \u00der\u00f3ttarar p\u00f6kku\u00f0u \u00ed v\u00f6rn og hug\u00f0ust haldna fengnum hlut \u00ed 85 m\u00edn\u00fatur. Strax \u00e1 12. m\u00edn\u00fatu virtust varnirnar \u00e6tla a\u00f0 bresta \u00feegar Kyle n\u00e1\u00f0i bylmingsskalla a\u00f0 marki en markv\u00f6r\u00f0urinn var\u00f0i gl\u00e6silega \u2013 auk \u00feess sem flaggi\u00f0 var komi\u00f0 \u00e1 loft. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar \u00e1tti Danny gullna sendingu \u00e1 \u00de\u00f3ri sem framlengdi boltann \u00e1 Alexander en \u00der\u00f3ttarinn var\u00f0i vel. Um mi\u00f0jan h\u00e1lfleikinn komst Fred svo \u00ed h\u00f6rkuf\u00e6ri eftir undirb\u00faning \u00de\u00f3ris en enn \u00e1 n\u00fd haf\u00f0i markv\u00f6r\u00f0urinn betur.<\/p><p>\u00deetta var\u00f0 saga h\u00e1lfleiksins. F\u00e1n\u00fdtt er a\u00f0 telja upp \u00fe\u00e6r 7-8 h\u00e6ttulegu s\u00f3knir sem Fr\u00f6murum t\u00f3kst a\u00f0 byggja upp en allar fj\u00f6ru\u00f0u \u00fat e\u00f0a endu\u00f0u \u00e1 snjallri markv\u00f6rslu. Oftar en ekki enda\u00f0i boltinn fyrir aftan endam\u00f6rk og skyndilega rann upp fyrir fr\u00e9ttaritaranum a\u00f0 leikurinn v\u00e6ri \u00ed raun metaf\u00f3ra fyrir \u00edb\u00fa\u00f0ina sem hann bj\u00f3 \u00ed \u00e1 Hringbraut. \u00dear voru l\u00edka mj\u00f6g m\u00f6rg horn og ekkert \u00feeirra var r\u00e9tt \u2013 en ekkert \u00feeirra var heldur s\u00e9rstaklega h\u00e6ttulegt. Stemningin s\u00farna\u00f0i jafnt og \u00fe\u00e9tt \u00fer\u00e1tt fyrir bumbusl\u00e1tt stu\u00f0ningsmanna.<\/p><p>\u00dea\u00f0 var \u00fe\u00f3 ekki allt unni\u00f0 fyrir g\u00fdg. \u00c1 24. m\u00edn\u00fatu \u00e1tti Halli f\u00ednustu sendingu \u00e1 \u00de\u00f3ri sem framlengdi boltann yfir \u00e1 Alexander sem f\u00e9kk tv\u00e6r tilraunir til a\u00f0 koma honum \u00ed neti\u00f0. S\u00fa s\u00ed\u00f0ari s\u00f6ng \u00ed sl\u00e1nni og inn, 1:1.<\/p><p>Danny og Fred \u00e1ttu flottan samleik \u00e1 39. m\u00edn\u00fatu en enn og aftur var\u00f0i \u00der\u00f3ttarmarkv\u00f6r\u00f0urinn \u2013 a\u00f0 \u00feessu sinni me\u00f0 f\u00f3tunum. \u00c1 \u00e9g a\u00f0 halda \u00e1fram a\u00f0 telja? Nei, h\u00e9lt ekki&#8230;<\/p><p>Jafnt \u00ed h\u00e1lfleik og \u00fear sem bj\u00f3rtjaldi\u00f0 f\u00edna \u00e1 \u00der\u00f3ttarvellinum reyndist fyrsta f\u00f3rnarlamb Covid-faraldursins \u00e1 \u00cdslandi l\u00e9tu fr\u00e9ttaritari og skjaldsveinn s\u00e9r n\u00e6gja a\u00f0 taka \u00fat salernisa\u00f0st\u00f6\u00f0u vallarins. Eftir pisser\u00edi\u00f0 hittu \u00feeir \u00ed\u00fer\u00f3ttafr\u00e9ttamann almanna\u00fatvarpsins sem var \u00e1l\u00edka fr\u00fastrera\u00f0ur og rifja\u00f0i upp h\u00f6rmungarnar miklu \u00ed jafntefli s\u00f6mu li\u00f0a \u00e1ri\u00f0 \u00e1\u00f0ur. Allir h\u00f6f\u00f0u \u00fe\u00f3 tr\u00fa \u00e1 a\u00f0 ekki \u00feyrfti nema eitt mark til a\u00f0 sl\u00f6kkva \u00ed heimam\u00f6nnum.<\/p><p>Framarar byrju\u00f0u seinni h\u00e1lfleik me\u00f0 s\u00f6mu l\u00e1tum og \u00feann fyrri og Alexander var n\u00e6rri \u00fev\u00ed a\u00f0 skora eftir t\u00e6pa m\u00edn\u00fatu. Fimm m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar n\u00e1\u00f0u \u00der\u00f3ttarar s\u00ednu fyrsta skoti \u00e1 mark, fr\u00e1 \u00feri\u00f0jum\u00edn\u00fatuslysinu og \u00d3li var\u00f0i au\u00f0veldlega. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar var gr\u00f3flega broti\u00f0 \u00e1 Albert \u00e1 v\u00edtateigsl\u00ednu, ekkert spjald og aukaspyrnan s\u00f6ng \u00ed varnarveggnum.<\/p><p>\u00cd s\u00ed\u00f0ustu f\u00e6rslu setti fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar \u00fe\u00e1 kenningu a\u00f0 d\u00f3marasamt\u00f6kin hafi \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 Framarar ver\u00f0skuldu\u00f0u ekki fleiri v\u00edtaspyrnur eftir misheppna\u00f0a Panenka-v\u00edti\u00f0 gegn Eyjam\u00f6nnum um daginn. S\u00fa tilg\u00e1ta f\u00e9kk byr undir b\u00e1\u00f0a v\u00e6ngi \u00e1 53. m\u00edn\u00fatu \u00feegar boltinn f\u00f3r auglj\u00f3slega \u00ed \u00fatr\u00e9tta h\u00f6nd varnarmanns \u00der\u00f3ttara sem var\u00f0ist \u00feannig stungusendingu. L\u00ednuv\u00f6r\u00f0ur \u00ed kj\u00f6ra\u00f0st\u00f6\u00f0u veifa\u00f0i ekki og r\u00f6nd\u00f3ttir sluppu me\u00f0 skrekkinn.<\/p><p>\u00deremur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar \u00feurfti \u00d3lafur \u00ed anna\u00f0 sinn \u00ed leiknum a\u00f0 verja a\u00f0v\u00edfandi skot. Hann var hins vegar flj\u00f3tur a\u00f0 koma boltanum \u00ed leik, sendi fram \u00e1 v\u00f6llinn \u00fear sem Albert f\u00e9kk hann a\u00f0 lokum \u00fati \u00e1 kanti, lyfti knettinum fyrir og \u00de\u00f3rir ger\u00f0i afar vel \u00ed a\u00f0 teygja h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 langt aftur en skalla samt af krafti \u00ed markhorni\u00f0, 1:2 og h\u00fanninn virtist unnin.<\/p><p>Vi\u00f0 \u00feetta seinna mark virtust Framarar missa dampinn \u00e1 n\u00fdjan leik. Um mi\u00f0jan seinni h\u00e1lfleikinn f\u00f3ru \u00feeir Danny og Kyle af velli en Gunnar og Indri\u00f0i \u00c1ki komu inn\u00e1. Kyle hl\u00fdtur a\u00f0 hafa kennt s\u00e9r einhvers meins, til a\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ta \u00fe\u00e1 breytingu. R\u00e9tt \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 skapa\u00f0ist \u00edtreka\u00f0 st\u00f3rh\u00e6tta vi\u00f0 \u00der\u00f3ttarmarki\u00f0 eftir hornspyrnu \u00fear sem Alexander og Fred \u00e1ttu b\u00e1\u00f0ir markskot.<\/p><p>\u00c1 73. m\u00edn\u00fatu slapp Albert einn \u00ed gegn em \u00der\u00f3ttarmarkv\u00f6r\u00f0urinn var\u00f0i enn. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar f\u00e9ll Albert enn eitt dau\u00f0af\u00e6ri\u00f0 en hinkra\u00f0i og lengi og varnarma\u00f0ur n\u00e1\u00f0i a\u00f0 komast \u00ed veg fyrir skoti\u00f0. Besta f\u00e6ri seinni h\u00e1lfleiks leik svo dagsins lj\u00f3s \u00feegar t\u00edu m\u00edn\u00fatur voru eftir. Fred \u00e1tti flotta sendingu \u00e1 Alexander sem n\u00e1\u00f0i \u00e1g\u00e6tu skoti sem vari\u00f0 var \u00ed st\u00f6ng og \u00fat.<\/p><p>\u00c1 84. m\u00edn\u00fatu f\u00f3ru Fred og Albert af velli en \u00d3skar og M\u00e1r komu inn og \u00e1 lokam\u00edn\u00fatu venjulegs leikt\u00edma leysti Gummi Magg \u00de\u00f3ri af velli. Kalnir \u00e1 hjarta voru fr\u00e9ttaritarinn og skjaldsveinninn \u00fe\u00f3 fullvissir um hva\u00f0 myndi gerast. \u00de\u00fa kl\u00fa\u00f0rar ekki svona m\u00f6rgum f\u00e6rum \u00ed leik \u00e1n \u00feess a\u00f0 vera refsa\u00f0 \u00ed lokin og \u00feegar \u00der\u00f3ttarar fengu billega aukaspyrnu \u00ed fj\u00f3r\u00f0u m\u00edn\u00fatu uppb\u00f3tart\u00edma vissu allir hva\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0 fara a\u00f0 gerast. Sam Hewson, langbestima\u00f0ur \u00der\u00f3ttara a\u00f0 markver\u00f0inum undanskildum, var alltaf a\u00f0 fara a\u00f0 jafna. 2:2. Og v\u00e6nn skammtur af bl\u00f3tsyr\u00f0um vakna\u00f0i til l\u00edfsins.<\/p><p>Fram hefur sem sagt fengi\u00f0 \u00e1 sig m\u00f6rk \u00e1 \u00fativelli \u00ed sumar og enn mun dragast a\u00f0 gulltryggja meistaratitilinn e\u00f0a sl\u00e1 stigamet \u00d3lafsv\u00edkur-V\u00edkinga fr\u00e1 2015. \u00dea\u00f0 er alltsaman galls\u00fart. Enn ergilegra var a\u00f0 sj\u00e1 langl\u00e9legasta leik okkar manna \u00ed allt sumar og \u00fea\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti andst\u00e6\u00f0ingi sem var \u00ed bullandi v\u00f6rn 95% af t\u00edmanum. En svona er l\u00edfi\u00f0. Gr\u00f3tta um helgina og \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur allt gott aftur.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Snemma \u00e1 \u00e1ttunda \u00e1ratug n\u00edtj\u00e1ndu aldar l\u00e9t athafnama\u00f0urinn Geir Zo\u00ebga b\u00e1ruj\u00e1rnskl\u00e6\u00f0a h\u00fas \u00ed eigu \u00fatger\u00f0ar sinnar vi\u00f0 Vesturg\u00f6tu. \u00dea\u00f0 var fyrsta b\u00e1uj\u00e1rnskl\u00e6dda reykv\u00edska h\u00fasi\u00f0. \u00cdslensk h\u00fasager\u00f0arlist var\u00f0 aldrei aftur s\u00f6m. [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":26913,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-27122","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2021\/08\/THordir-vefur-scaled.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/27122","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=27122"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/27122\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":27127,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/27122\/revisions\/27127"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/26913"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=27122"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=27122"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=27122"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}