{"id":30029,"date":"2022-05-02T23:24:10","date_gmt":"2022-05-02T23:24:10","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=30029"},"modified":"2022-05-02T23:26:04","modified_gmt":"2022-05-02T23:26:04","slug":"flottur-jakki","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2022\/05\/02\/flottur-jakki\/","title":{"rendered":"Flottur jakki"},"content":{"rendered":"<p>Fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar er ma\u00f0ur sem hugsar miki\u00f0 um kl\u00e6\u00f0abur\u00f0 og st\u00edl, sem kunnugt er. Fatna\u00f0ur hans er \u00fatp\u00e6ldur og tekur einatt mi\u00f0 a\u00f0 a\u00f0st\u00e6\u00f0um og m\u00f3therjum hverju sinni. S\u00e1rasjaldan hefur honum or\u00f0i\u00f0 h\u00e1lt \u00e1 svelli t\u00edskunnar, \u00fe\u00f3tt \u00f3neitanlega hafi \u00fea\u00f0 veri\u00f0 p\u00ednkul\u00edti\u00f0 vandr\u00e6\u00f0alegt um \u00e1ri\u00f0 \u00feegar hann m\u00e6tti \u00ed \u00feverr\u00f6nd\u00f3ttum, gr\u00e6num og hv\u00edtum p\u00f3l\u00f3bol \u00e1 Evr\u00f3puleik Fram og The New Saints fr\u00e1 Wales. \u00cd lj\u00f3s kom a\u00f0 n\u00fdju d\u00fdrlingarnir h\u00f6f\u00f0u teki\u00f0 \u00cd\u00fer\u00f3ttaf\u00e9lag K\u00f3pavogs s\u00e9r til fyrirmyndar vi\u00f0 b\u00faningah\u00f6nnun&#8230;<\/p><p>Minnugur \u00feessa vandr\u00e6\u00f0alega augnabliks um \u00e1ri\u00f0, kom aldrei til \u00e1lita a\u00f0 m\u00e6ta \u00ed gula vestinu g\u00f3\u00f0a \u00e1 leik gegn Skagam\u00f6nnum \u00ed Safam\u00fdri \u00ed kv\u00f6ld. Gr\u00e1r vindjakki utanyfir \u00feunnu gr\u00e1u ullarpeysuna var raunar mun hentugari kl\u00e6\u00f0na\u00f0ur \u00ed nepjunni. Enginn sakna\u00f0i gula vestisins, \u00fev\u00ed allra augu voru \u00e1 flottustu fl\u00edkunum: glansandi f\u00ednu og ofbo\u00f0slega bl\u00e1u j\u00f6kkunum sem Toggi \u00far handboltanum moka\u00f0i \u00fat til gesta og gangandi fyrir leik. Annar hver ma\u00f0ur \u00ed st\u00fakunni skarta\u00f0i \u00feessum ofursv\u00f6lu j\u00f6kkum, sem ver\u00f0a \u00f6fundarefni allra andst\u00e6\u00f0inga okkar \u00ed Bestu deildinni \u00ed sumar. Hl\u00fdtur a\u00f0 vera d\u00e1l\u00edti\u00f0 svekk fyrir st\u00f3rfiskana \u00ed deildinni a\u00f0 n\u00fdli\u00f0arnir s\u00e9u b\u00e6\u00f0i flottastir \u00ed tauinu og um lei\u00f0 miklu \u00feroska\u00f0ri andlega.<\/p><figure class=\"wp-block-image size-large\"><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" width=\"1024\" height=\"683\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Jakki4-1024x683.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-30037\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Jakki4-1024x683.jpg 1024w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Jakki4-scaled-800x533.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Jakki4-300x200.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Jakki4-768x512.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Jakki4-1536x1024.jpg 1536w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Jakki4-2048x1365.jpg 2048w\" sizes=\"(max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/><\/figure><p>Fr\u00e9ttaritarinn kom seint \u00ed f\u00ednumannabo\u00f0i\u00f0, me\u00f0 vara\u00feurrk og sinaskei\u00f0ab\u00f3lgu eftir a\u00f0 hafa kysst ungab\u00f6rn og teki\u00f0 \u00ed spa\u00f0ann \u00e1 al\u00fe\u00fd\u00f0unni \u00ed frambj\u00f3\u00f0andasnatti dagsins. Nonni \u00fej\u00e1lfari var b\u00fainn a\u00f0 kynna byrjunarli\u00f0i\u00f0 og \u00fev\u00ed var ekki anna\u00f0 a\u00f0 gera en a\u00f0 reyna a\u00f0 p\u00fasla saman leikskipulagi me\u00f0 hj\u00e1lp F\u00f3tbolta.net. \u00dev\u00ed ver\u00f0ur l\u00edklega best l\u00fdst sem stranghei\u00f0arlegu 4-4-2, sem vi\u00f0 sj\u00e1um n\u00fa ekki \u00e1 hverjum degi hj\u00e1 Framli\u00f0inu.<\/p><p>\u00d3lafur st\u00f3\u00f0 vitaskuld \u00ed markinu me\u00f0 \u00fe\u00e1 Delphin Thsiembe og \u00de\u00f3ri Gu\u00f0j\u00f3nsson \u00ed mi\u00f0v\u00f6r\u00f0unum. \u00de\u00f3rir lenti \u00f3v\u00e6nt \u00ed \u00feessari n\u00fdju st\u00f6\u00f0u \u00e1 undirb\u00faningst\u00edmabilinu en skilar henni vel. Var traustur \u00ed s\u00ednum a\u00f0ger\u00f0um og kom boltanum vel fram \u00e1 v\u00f6llinn. M\u00e1r og Alex voru \u00ed sitthvorri bakvar\u00f0arst\u00f6\u00f0unni. Hlynur Atli og Indri\u00f0i \u00c1ki voru \u00ed hjarta mi\u00f0junnar, me\u00f0 Albert fyrir framan sig. Fred \u00e1 \u00f6\u00f0rum kantinum og Jannik einhvern veginn mitt \u00e1 milli \u00feess a\u00f0 vera frammi og \u00e1 hinum kantinum og Gummi Magg fremstur.<\/p><p>Valur Nor\u00f0ri var n\u00fdkominn heim \u00far vinnufer\u00f0 \u00ed Port\u00fagal og treysti s\u00e9r ekki \u00e1 v\u00f6llinn. L\u00edklega tekur hann ekki inn n\u00e6gilega miki\u00f0 l\u00fdsi, sem er frekar glata\u00f0 fyrir matv\u00e6lafr\u00e6\u00f0ing. \u00dea\u00f0 var \u00fev\u00ed enginn markapeli me\u00f0 \u00ed f\u00f6r. Fr\u00e9ttaritarinn kom s\u00e9r hins vegar fyrir \u00e1 kunnuglegum sl\u00f3\u00f0um vi\u00f0 mi\u00f0jan v\u00f6llinn og sat \u00e1 milli m\u00f6mmu \u00de\u00f3ris Gu\u00f0j\u00f3nssonar og S\u00e6vars Gu\u00f0j\u00f3nssonar. (H\u00e9r er r\u00e9tt a\u00f0 taka fram a\u00f0 \u00de\u00f3rir Gu\u00f0j\u00f3nsson og S\u00e6var Gu\u00f0j\u00f3nsson eru ekki br\u00e6\u00f0ur. Fr\u00e9ttaritarinn var altso me\u00f0 m\u00f3\u00f0ur \u00de\u00f3ris s\u00e9r \u00e1 h\u00e6gri h\u00f6nd og S\u00e6var s\u00e9r \u00e1 vinstri h\u00f6nd.) Og \u00fear var n\u00fa ekki t\u00f6lu\u00f0 vitleysan. \u00deremur r\u00f6\u00f0um ne\u00f0ar s\u00e1tu Geiramenn, glerf\u00ednir \u00ed n\u00fdju j\u00f6kkunum s\u00ednum. Hefur komi\u00f0 n\u00e6gilega sk\u00fdrt fram hversu flottir jakkar \u00feetta eru?<\/p><p>Leikurinn byrja\u00f0i r\u00f3lega og f\u00e1tt rata\u00f0i \u00ed minnisb\u00f3k fr\u00e9ttaritarans ef fr\u00e1 er tali\u00f0 hr\u00f3s til hins danska Janniks fyrir a\u00f0 spila einn manna \u00ed stuttermabol og st\u00f3rt spurningamerki vi\u00f0 treyju \u00d3la markvar\u00f0ar, sem minnti \u00f3\u00fe\u00e6gilega miki\u00f0 \u00e1 HK-b\u00faninginn \u2013 en au\u00f0vita\u00f0 getum vi\u00f0 ekki unni\u00f0 t\u00edskuslaginn \u00e1 \u00f6llum svi\u00f0um. Sm\u00e1smugulegur eftirlitsma\u00f0ur KS\u00cd g\u00e6ti s\u00f6mulei\u00f0is gert athugasemd vi\u00f0 a\u00f0 Skagamarkv\u00f6r\u00f0urinn var \u00ed keiml\u00edkri treyju og b\u00e1\u00f0ir voru \u00ed rau\u00f0um stuttbuxum og rau\u00f0um sokkum. D\u00f3maratr\u00ed\u00f3i\u00f0 var raunar l\u00edka \u00ed rau\u00f0um sokkum og ger\u00f0i \u00d3skar me\u00f0 hattinn vel \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 vekja athygli \u00feeirra \u00e1 \u00feeirri sta\u00f0reynd me\u00f0 j\u00f6fnu millibili.<\/p><p>Eftir t\u00ed\u00f0indal\u00edtinn fyrsta stundarfj\u00f3r\u00f0ung t\u00f3ku Framarar a\u00f0 b\u00e6ta \u00ed s\u00f3knina. Albert \u00e1tti g\u00f3\u00f0a stungu inn \u00e1 Alex sem var n\u00e6rri kominn \u00ed kj\u00f6rf\u00e6ri og sama ger\u00f0ist sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar \u00feegar \u00de\u00f3rir var n\u00e6rri b\u00fainn a\u00f0 koma boltanum \u00ed gegn \u00e1 Albert. Skagamenn fengu s\u00edn f\u00e6ri og \u00d3li \u00feurftu a\u00f0 verja vel \u00e1 19. m\u00edn\u00fatu.<\/p><p>\u00deegar fyrri h\u00e1lfleikur var akk\u00farat halfna\u00f0ur \u00e1tti Alex g\u00f3\u00f0a sendingu \u00e1 Albert sem st\u00f3\u00f0 utarlega \u00ed teignum og lag\u00f0i boltann umsvifalaust fyrir marki\u00f0 \u00fear sem Gu\u00f0mundur Magn\u00fasson kom a\u00f0v\u00edfandi og skora\u00f0i af har\u00f0fylgi, 1:0.<\/p><figure class=\"wp-block-image size-large\"><img decoding=\"async\" width=\"1024\" height=\"683\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Gummi-Magg-mark-gegn-IA-1024x683.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-30030\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Gummi-Magg-mark-gegn-IA-1024x683.jpg 1024w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Gummi-Magg-mark-gegn-IA-800x533.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Gummi-Magg-mark-gegn-IA-300x200.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Gummi-Magg-mark-gegn-IA-768x512.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Gummi-Magg-mark-gegn-IA-1536x1024.jpg 1536w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Gummi-Magg-mark-gegn-IA.jpg 1620w\" sizes=\"(max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/><\/figure><p>\u00dev\u00ed mi\u00f0ur var eins og botninn dytti \u00far leik Framara vi\u00f0 marki\u00f0. Eftir a\u00f0 hafa veri\u00f0 mun l\u00edflegri t\u00edu m\u00edn\u00faturnar \u00e1 undan virtist li\u00f0i\u00f0 skorta \u00e1kve\u00f0ni og gulkl\u00e6ddir fikru\u00f0u sig framar \u00e1 v\u00f6llinn. \u00de\u00f3tt Framarar \u00e6ttu skyndis\u00f3knir var \u00feunginn \u00ed Skagas\u00f3kninni meiri og j\u00f6fnunarmarki\u00f0 kom ekki \u00e1 \u00f3vart. \u00dea\u00f0 kom \u00feegar um fimm m\u00edn\u00fatur voru eftir af h\u00e1lfleiknum. Alex \u00e1tti gl\u00e6fralega hreinsun sem virtist \u00e6tla a\u00f0 enda me\u00f0 st\u00f3rkostlegu sj\u00e1lfsmarki en f\u00f3r \u00ed horn. \u00dar hornspyrnunni barst boltinn \u00e1 Skagamann sem var gj\u00f6rsamlega \u00f3valda\u00f0ur \u00e1 fj\u00e6rst\u00f6nginni. Hann skaut a\u00f0 marki, \u00d3li henti s\u00e9r fyrir boltann en l\u00ednuv\u00f6r\u00f0urinn mat \u00fea\u00f0 sem svo a\u00f0 skoti\u00f0 hafi fari\u00f0 yfir l\u00ednuna. Vi\u00f0 skulum bara vona a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi veri\u00f0 r\u00e9tt.<\/p><p>Kaffi\u00f0 var drukki\u00f0 st\u00edft \u00ed hl\u00e9i \u00fear sem stu\u00f0ningsf\u00f3lk kepptist vi\u00f0 a\u00f0 n\u00e1 upp kjarnhita. Miki\u00f0 var skrafa\u00f0 um n\u00fdja v\u00f6llinn \u00ed \u00dalfars\u00e1rdal, sem enginn vir\u00f0ist almennilega vita hvort ver\u00f0i tilb\u00fainn fyrir n\u00e6sta heimaleik. Var \u00feetta kve\u00f0juleikur \u00ed Safam\u00fdri e\u00f0a f\u00e6r gamli v\u00f6llurinn eina kve\u00f0juveislu \u00ed vi\u00f0b\u00f3t? Spyr s\u00e1 sem ekki veit.<\/p><p>Framarar m\u00e6ttu \u00e1kve\u00f0nir til leiks eftir hl\u00e9 og eftir nokkurra m\u00edn\u00fatna leik skapa\u00f0ist st\u00f3rh\u00e6tta \u00fear sem Gu\u00f0mundur slapp einn \u00ed gegn eftir sendingu fr\u00e1 Alex, en l\u00ednuv\u00f6r\u00f0urinn t\u00f3k feil \u00e1 \u00ed\u00fer\u00f3ttagreinum og veifa\u00f0i ru\u00f0ning \u00e1 Jannik sem haf\u00f0i hlaupi\u00f0 utan \u00ed einn Skagamanninn. Nokkru s\u00ed\u00f0ar f\u00f3r flaggi\u00f0 aftur \u00e1 loft, a\u00f0 \u00feessu sinni \u00e1 Gu\u00f0mund sem talinn var rangst\u00e6\u00f0ur eftir sendingu fr\u00e1 \u00de\u00f3ri. T\u00e6pt var \u00fea\u00f0. Besta f\u00e6ri\u00f0 kom \u00fe\u00f3 vafal\u00edti\u00f0 \u00e1 52. m\u00edn\u00fatu \u00fear sem Fred f\u00e9kk boltann vel inni \u00e1 eigin vallarhelmingi en skei\u00f0a\u00f0i upp allan v\u00f6llinn, stakk af aftasta varnarmann \u00cdA en var of lengi a\u00f0 l\u00e1ta skoti\u00f0 r\u00ed\u00f0a af og s\u00f3knin rann \u00fat \u00ed sandinn.<\/p><p>Sem fyrr segir er Fram \u00e1 f\u00f6rum \u00far Safam\u00fdri og \u00fev\u00ed ekki kr\u00f3na sett \u00ed vi\u00f0hald \u00e1 vellinum. \u00dea\u00f0 s\u00e1st \u00feegar gera \u00feurfti hl\u00e9 \u00e1 leiknum \u00feegar gat kom \u00ed lj\u00f3s \u00e1 \u00f6\u00f0ru markinu. Um svipa\u00f0 leyti d\u00f3 vallarklukkan og eru allar t\u00edmasetningar upp fr\u00e1 \u00fev\u00ed bygg\u00f0ar \u00e1 lauslegri tilfinningu frekar en n\u00e1kv\u00e6mum m\u00e6lingum. R\u00e9tt eftir a\u00f0 klukkan d\u00f3 settist \u00de\u00f3rir ni\u00f0ur og \u00feurfti a\u00f0 yfirgefa v\u00f6llinn, l\u00edklega eftir einhverja tognun. \u00c9g, mamma hans og S\u00e6var vorum \u00f6ll samm\u00e1la um a\u00f0 \u00fea\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 \u00f3heillaspor. Tryggvi kom inn\u00e1 og Hlynur f\u00e6r\u00f0i sig \u00ed mi\u00f0v\u00f6r\u00f0inn. M\u00edn\u00fatu s\u00ed\u00f0ar \u00e1tti Gummi skot r\u00e9tt framhj\u00e1 Skagamarkinu.<\/p><figure class=\"wp-block-image size-large\"><img decoding=\"async\" width=\"1024\" height=\"683\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Jakki3-1-1024x683.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-30036\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Jakki3-1-1024x683.jpg 1024w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Jakki3-1-scaled-800x533.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Jakki3-1-300x200.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Jakki3-1-768x512.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Jakki3-1-1536x1024.jpg 1536w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Jakki3-1-2048x1365.jpg 2048w\" sizes=\"(max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/><\/figure><p>Magn\u00fas kom inn\u00e1 fyrir Fred \u00feegar 25 m\u00edn\u00fatur voru eftir en um \u00fea\u00f0 leyti var fari\u00f0 a\u00f0 fjara undan leiknum sem var\u00f0 frekar l\u00edti\u00f0 fyrir auga\u00f0 n\u00e6stu m\u00edn\u00faturnar. \u00dea\u00f0 var helst bar\u00e1ttu\u00fereki\u00f0 \u00ed Jannik sem hlj\u00f3p upp og ni\u00f0ur kantinn og bar\u00f0ist um alla bolta sem k\u00e6tti kalda vallargesti. L\u00edklega \u00fe\u00f3 frekar Framarana. Skagastu\u00f0ningsmennirnir skemmtu s\u00e9r hins vegar vi\u00f0 a\u00f0 baula \u00e1 Albert \u00ed hvert sinn sem hann kom n\u00e1l\u00e6gt boltanum. \u00dea\u00f0 er \u00f3\u00fearfa vi\u00f0kv\u00e6mni. \u00dea\u00f0 er l\u00f6ng hef\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 Framarar bjargi ver\u00f0m\u00e6tum af Skipaskaga.<\/p><p>\u00deegar um t\u00edu m\u00edn\u00fatur voru eftir meiddist Alex og virtist s\u00e1r\u00fej\u00e1\u00f0ur. Erfitt var a\u00f0 sj\u00e1 hvort um samstu\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a e\u00f0a hvort hann hafi einfaldlega misstigi\u00f0 sig illa. Vonandi reynast mei\u00f0slin ekki alvarleg en Orri kom \u00feegar inn\u00e1 og um lei\u00f0 leysti Alexander M\u00e1r Jannik af h\u00f3lmi.<\/p><p>S\u00ed\u00f0ustu t\u00edu m\u00edn\u00faturnar voru afar fj\u00f6rlegar. B\u00e6\u00f0i li\u00f0 fengu dau\u00f0af\u00e6ri, en Framararnir \u00fe\u00f3 \u00edvi\u00f0 fleiri. \u00deegar flauta\u00f0 var til leiksloka m\u00e1ttu okkar menn vera svekktari me\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 bara eitt stig. Vi\u00f0 erum \u00fe\u00f3 komin \u00e1 bla\u00f0 \u00ed deildinni og \u00fea\u00f0 \u00ed svona f\u00e1r\u00e1nlega flottum j\u00f6kkum. N\u00e6st er \u00fea\u00f0 Stjarnan \u00ed frystiklefanum sem Gar\u00f0b\u00e6ingar kalla st\u00faku. \u00de\u00e1 er n\u00fa gott a\u00f0 eiga eitthva\u00f0 d\u00fa\u00f0a\u00f0 og t\u00f6ff.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar er ma\u00f0ur sem hugsar miki\u00f0 um kl\u00e6\u00f0abur\u00f0 og st\u00edl, sem kunnugt er. Fatna\u00f0ur hans er \u00fatp\u00e6ldur og tekur einatt mi\u00f0 a\u00f0 a\u00f0st\u00e6\u00f0um og m\u00f3therjum hverju sinni. S\u00e1rasjaldan hefur [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":30034,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[1,11,9],"tags":[],"class_list":["post-30029","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-uncategorized","category-mflkarla","category-fotbolti"],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Jakki2.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/30029","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=30029"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/30029\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":30040,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/30029\/revisions\/30040"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/30034"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=30029"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=30029"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=30029"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}