{"id":30257,"date":"2022-05-13T09:19:39","date_gmt":"2022-05-13T09:19:39","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=30257"},"modified":"2022-05-13T09:22:26","modified_gmt":"2022-05-13T09:22:26","slug":"verbudin-vikin-og-verklitlir-vindmaelar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2022\/05\/13\/verbudin-vikin-og-verklitlir-vindmaelar\/","title":{"rendered":"Verb\u00fa\u00f0in V\u00edkin og verklitlir vindm\u00e6lar"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"30257\" class=\"elementor elementor-30257\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-1ad13ac8 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"1ad13ac8\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-28fc93ad\" data-id=\"28fc93ad\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-5b69a414 elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"5b69a414\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-30259 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Fred-gegn-Vikingi-200x300.jpg\" alt=\"\" width=\"200\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Fred-gegn-Vikingi-200x300.jpg 200w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Fred-gegn-Vikingi-800x1199.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Fred-gegn-Vikingi-683x1024.jpg 683w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Fred-gegn-Vikingi-768x1151.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Fred-gegn-Vikingi-1025x1536.jpg 1025w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/Fred-gegn-Vikingi.jpg 1366w\" sizes=\"(max-width: 200px) 100vw, 200px\" \/>\u00deeir fj\u00f6lm\u00f6rgu bl\u00e1kl\u00e6ddu Frammarar sem l\u00f6g\u00f0u lei\u00f0 s\u00edna \u00ed V\u00edkina \u00ed kveld voru p\u00ednu \u00f3\u00f6ruggir og r\u00e1\u00f0villtir til a\u00f0 byrja me\u00f0 er leikt\u00edminn n\u00e1lga\u00f0ist. Ekki skrifa\u00f0ist \u00feetta \u00f3\u00f6ryggi \u00e1 starfslokin hj\u00e1 s\u00f3ttvarnarl\u00e6kni heldur var Stef\u00e1n P\u00e1lsson hvergi sj\u00e1anlegur \u2013 ma\u00f0urinn sem er \u00ed bar\u00e1ttus\u00e6ti hj\u00e1 Vinstri Gr\u00e6num fyrir borgarstj\u00f3rnarkosningarnar n\u00e6sta laugardag. \u00deessi l\u00e9ttkl\u00e6ddi a\u00f0ger\u00f0arsinni sem hefur s\u00e9\u00f0 okkur fyrir listaskemmtilegum leikl\u00fdsingum var a\u00f0 skr\u00f3pa. Reyndar hefur Stef\u00e1n \u00fe\u00f3tt kl\u00e6\u00f0a sig \u00f3venju vel a\u00f0 undanf\u00f6rnu, jafnvel s\u00e9st \u00ed peysu \u00ed sta\u00f0inn fyrir a\u00f0 skarta litr\u00edkum bol me\u00f0 f\u00f3tboltatilv\u00edsun \u00e1 belgnum. L\u00edklega er \u00feetta \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 hann haf\u00f0i lagst endilangur \u00ed r\u00fami\u00f0 me\u00f0 flensu dau\u00f0ans, n\u00fana korter fyrir kosningar. \u00c1 me\u00f0an hann \u00e6tti me\u00f0 r\u00e9ttu n\u00e1 sem flestum knattleikjum \u00edkl\u00e6ddur gula vestinu s\u00ednu, milli \u00feess sem hann arkar um og kyssir b\u00f6rn \u00e1 kollinn, e\u00f0a m\u00e1 \u00fea\u00f0 ekki lengur?<\/p><p>Andst\u00e6\u00f0ingar Fram a\u00f0 \u00feessu sinni voru ekki af verri endanum, tv\u00f6faldir meistarar s\u00ed\u00f0asta \u00e1rs \u00fear sem allt f\u00e9ll me\u00f0 \u00feeim, sem falli\u00f0 gat me\u00f0 \u00feeim, sem \u00ed raun f\u00e9ll me\u00f0 \u00feeim (ekki m\u00edn besta setning \u2013 en h\u00e9r er veri\u00f0 a\u00f0 draga \u00fea\u00f0 fram a\u00f0 \u00fea\u00f0 f\u00e9ll ALLT me\u00f0 \u00feeim sem falli\u00f0 gat me\u00f0 \u00feeim). \u00deetta gekk reyndar svo langt a\u00f0 samt\u00f6k barnab\u00f3kah\u00f6funda s\u00f6g\u00f0u a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri einum of langt gengi\u00f0 \u2013 vi\u00f0 uppgj\u00f6r og endalok \u00e1 s\u00f6gu, t.d. \u00ed me\u00f0alg\u00f3\u00f0ri barnab\u00f3k m\u00e1 ekki allt ganga upp \u2013 bara flest. B\u00f6rn ver\u00f0a a\u00f0 upplifa sm\u00e1 andstreymi endrum og eins til a\u00f0 h\u00f6ndla raunveruleikann. \u00deannig a\u00f0 skilabo\u00f0in eru sk\u00fdr; haldi\u00f0 ykkur vi\u00f0 raunveruleikann V\u00edkingar!<\/p><p>V\u00edkingar m\u00e6ta me\u00f0 svipa\u00f0 li\u00f0 og \u00ed fyrra. Reyndar h\u00e6ttu tveir reynslumestu menn li\u00f0sins og er a\u00f0alstyrkara\u00f0ili \u00feeirra, Voltaren Forte enn a\u00f0 n\u00e1 s\u00e9r. Til a\u00f0 b\u00e6ta gr\u00e1u ofan \u00e1 svart \u00fe\u00e1 n\u00f6ppu\u00f0u \u00feeir okkar eina sanna Kyle McLagan \u00far v\u00f6rninni til \u00feess eins a\u00f0 hafa \u00e1 bekknum hj\u00e1 s\u00e9r, ef ske kynni a\u00f0 Halld\u00f3r Sm\u00e1ri Sigur\u00f0sson af Giljalandi e\u00f0a Oliver Ekroth v\u00e6ru hnjaska\u00f0ir. Reyndar hafa \u00e1hrif Kyle veri\u00f0 svo l\u00edtil hj\u00e1 V\u00edkingum a\u00f0 sumir \u00feeirra hafa rugla\u00f0 honum saman vi\u00f0 leikarann Kyle MacLachlan \u2013 \u00fei\u00f0 muni\u00f0 Dale Cooper \u00far Twin Peaks\u2026\u201eDear Diane\u201c<\/p><p>Undirrita\u00f0ur \u00e1 p\u00ednu erfitt me\u00f0 a\u00f0 skrifa \u00feessa leikl\u00fdsingu, b\u00faandi \u00ed hjarta V\u00edkingshverfisins og me\u00f0 d\u00e6tur sem \u00e6fa hj\u00e1 kl\u00fabbnum og hafandi m\u00e6tt \u00e1 \u00feeirra \u00farslitaleiki \u00ed fyrra (sem b\u00edlstj\u00f3ri barna au\u00f0vita og til a\u00f0 vera gjaldgengur \u00ed hverfispart\u00edin). En V\u00edkingar hafa alltaf, nema hugsanlega \u00ed fyrra, veri\u00f0 okkar litlu systkini sem hafa yfirleitt haldi\u00f0 sig \u00e1 mottunni, \u00ed raun alveg fr\u00e1 stofnun. Systkinah\u00f3pur sem hefur einbeitt s\u00e9r a\u00f0 vinna gl\u00e6sta titla \u00ed bor\u00f0tennis e\u00f0a \u00f6\u00f0rum ja\u00f0arsportum, engum til ama e\u00f0a arm\u00e6\u00f0u. Mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 byrjun m\u00f3tsins vir\u00f0ast V\u00edkingar stefna hra\u00f0byr\u00f0i \u00feanga\u00f0 aftur, \u00fev\u00ed allt leitar jafnv\u00e6gis a\u00f0 lokum.<\/p><p>Undirrita\u00f0ur t\u00f3k ve\u00f0ri\u00f0 r\u00e9tt \u00e1\u00f0ur en haldi\u00f0 var a\u00f0 sta\u00f0 gangandi \u00ed V\u00edkina, suddi og nor\u00f0austan kaldi kalla\u00f0i vissulega \u00e1 ullardress og au\u00f0vita var engin \u00fe\u00f6rf fyrir s\u00f3lgleraugu n\u00e9 derh\u00fafu. Vissulega hitna\u00f0i manni vi\u00f0 a\u00f0 ganga \u00e1 v\u00f6llinn og s\u00ed\u00f0an f\u00f3r s\u00f3lin a\u00f0 sk\u00edna sem aldrei fyrr og allt datt \u00ed d\u00fana logn, \u00fea\u00f0 \u00e1tti eftir a\u00f0 hafa veruleg \u00e1hrif \u00e1 framhald leiksins.<\/p><p>Fyrir leik voru miklar vangaveltur \u00ed f\u00ednukallabo\u00f0i \u00feeirra V\u00edkinga hvernig \u00feessi leikur myndi byrja \u2013 \u00fear sem undirrita\u00f0ur gra\u00f0ga\u00f0i \u00ed sig f\u00f6stum veitingum og skola\u00f0i ni\u00f0ur me\u00f0 \u00f6li. Hvernig byrjar meistarali\u00f0 leik \u00e1 m\u00f3ti li\u00f0i sem er n\u00fdb\u00fai\u00f0 a\u00f0 gefa \u00feeim eftir heimkynni s\u00edn? Hvernig myndu Kyle McLagan og Helgi Gu\u00f0j\u00f3ns \u2013 fyrrum leikm\u00f6nnum okkar ganga a\u00f0 gefa boltann \u00e1 bl\u00e1a skyrtur? Hvernig myndu okkar menn h\u00f6ndla logni\u00f0 \u00ed Fossvoginum? Hvernig myndu \u00e1horfendur h\u00f6ndla \u00fea\u00f0 a\u00f0 koma \u00far Stj\u00f6rnust\u00fakunni \u2013 sem er kaldasta st\u00faka landsins yfir \u00ed heitustu st\u00faku landsins? Spurningarnar voru fj\u00f6lmargar, en sv\u00f6rin duttu eitt af \u00f6\u00f0ru inn \u00feegar lei\u00f0 \u00e1 kveldi\u00f0.<\/p><p>Uppstilling Framli\u00f0sins var nokku\u00f0 hef\u00f0bundin enda J\u00f3n Sveinson hef\u00f0arsinni fram \u00ed fingurg\u00f3ma. Hlynur og Delphin \u00ed mi\u00f0v\u00f6r\u00f0um, Alex og M\u00e1si \u00ed fullb\u00f6kkum. Tryggvi og Indri\u00f0i \u00fear fyrir framan og svo Fred, Albert og Jannik \u00fear r\u00e9tt fyrir framan \u00e1 me\u00f0an Gu\u00f0mundur tyllti s\u00e9r upp\u00e1 topp.<\/p><p>S\u00f3lin skein sem aldrei fyrr \u00ed upphafi leiks og grillm\u00f6kkurinn l\u00e1 yfir vellinum \u00feannig a\u00f0 \u00e1horfendur \u00ed gestahluta st\u00fakunnar \u00feurftu a\u00f0 geta s\u00e9r til hva\u00f0 var a\u00f0 gerast \u00e1 vellinum. Allt leit vel \u00fat \u00ed upphafi \u2013 jafnr\u00e6\u00f0i me\u00f0 li\u00f0unum og vorum vi\u00f0 \u00edvi\u00f0 sterkari ef eitthva\u00f0 var. \u00deessu jafnv\u00e6gi var svo raska\u00f0 strax \u00e1 10 m\u00edn\u00fatu ef einn V\u00edkingurinn f\u00e9kk sendingu \u00e1 fr\u00e6st\u00f6ng til \u00feess eins a\u00f0 skalla fyrir \u00e1 annan V\u00edking sem var einusinni bl\u00e1kl\u00e6ddur og s\u00e1 ger\u00f0i s\u00e9r l\u00edti\u00f0 fyrir og skalla\u00f0i \u00ed marki\u00f0. Hvort h\u00e9r megi kenna grillmekkinum e\u00f0a afst\u00f6\u00f0u s\u00f3lar um \u2013 \u00fe\u00e1 m\u00e1 ekki gleyma \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00f6rnin okkar ekkert a\u00f0 sk\u00edtl\u00fakka \u00ed \u00feessu marki.<\/p><p>\u00c1fram gakk \u2013 \u00e1hangendur V\u00edkings voru svo brattir \u00e1 \u00feessum t\u00edma a\u00f0 \u00feeir hentu \u00ed eitt V\u00edkingaklapp. Upp\u00far \u00feeirri smekkleysu kom n\u00e6sta mark og var \u00fea\u00f0 \u00e1l\u00edka tilkomul\u00edti\u00f0 og fyrra marki\u00f0. \u00dearna f\u00f3ru hlaup og sending saman og skyndilega var ma\u00f0ur einn \u00e1 m\u00f3ti \u00d3la og hann kl\u00e1ra\u00f0i \u00fe\u00e1 st\u00f6\u00f0u nokku\u00f0 vel.<\/p><p>N\u00fa f\u00f3r um alla Frammara \u00ed grillmekkinum og ekki \u00e1tti \u00e1standi\u00f0 eftir a\u00f0 sk\u00e1na. S\u00f3lbar\u00f0ir og grillm\u00f6kka\u00f0ir a\u00f0d\u00e1endur Fram horf\u00f0u \u00fev\u00ed n\u00e6st upp\u00e1 leikmann sinn tapa st\u00f6\u00f0u sinni \u00fear sem einf\u00f6ld sending galopna\u00f0i allar fl\u00f3\u00f0g\u00e1ttir. \u00derj\u00fa n\u00fall eftir 26 m\u00edn\u00fatur og l\u00edti\u00f0 stu\u00f0 n\u00e9 stemming. \u00a0<\/p><p>\u00dearna \u00e1kv\u00e1\u00f0u Frammarar a\u00f0 hefja leik fyrir alv\u00f6ru og settu nokkra pressu \u00e1 V\u00edkingsmarki\u00f0 og var Fred nokku\u00f0 n\u00e1l\u00e6gt \u00fev\u00ed a\u00f0 skora. R\u00e9tt fyrir leikhl\u00e9 f\u00e9kk Alex \u00ed n\u00e1rann og kom Gunnar inn\u00e1 og f\u00f3r Hlynur \u00fe\u00e1 \u00ed bakv\u00f6r\u00f0inn.<\/p><p>H\u00e1lfleikstjatti\u00f0 s\u00e9rist a\u00f0alleg um \u00feessa herfilegu st\u00f6\u00f0u og \u00fe\u00e1 sta\u00f0reynd a\u00f0 V\u00edkingarnir hef\u00f0u n\u00fa ekkert skapa\u00f0 s\u00e9r neitt fyrir utan \u00feessi m\u00f6rk. Nonni var ekkert a\u00f0 tv\u00edn\u00f3na vi\u00f0 hlutina og henti \u00ed tv\u00f6falda skiptingu, Albert og Gummi komu \u00fat og Alexander M\u00e1r og Tiago komu inn. \u00deetta var fyrsti leikur Tiag\u00f3 Manuel Da Silva Fernandes fyrir Fram s\u00ed\u00f0an hann l\u00e9k s\u00ed\u00f0ast me\u00f0 okkur \u00e1ri\u00f0 2019 \u00ed Innkass\u00f3 deildinni fornfr\u00e6gu.<\/p><p>Seinni h\u00e1lfleikurinn var \u00ed meira jafnv\u00e6gi \u2013 V\u00edkingar tuddu\u00f0u nokku\u00f0 \u00e1 \u00feessum t\u00edmapunkti og fengu einhver spj\u00f6ld \u00e1 me\u00f0an vi\u00f0 f\u00f3rum illa me\u00f0 fj\u00f6lmargar \u00e1litlegar s\u00f3knarst\u00f6\u00f0ur. Ekki var Hlynur allskosta \u00e1n\u00e6g\u00f0ur me\u00f0 st\u00f6\u00f0u m\u00e1la \u2013 t\u00f3k vi\u00f0 boltanum \u00e1 mi\u00f0junni og rakti hann eil\u00edti\u00f0 fram \u00e1 vi\u00f0 til \u00feess eins a\u00f0 n\u00e1 fullkomnu skoti \u00ed n\u00e6rhorni\u00f0. Frammarar \u00ed st\u00fakunni ur\u00f0u forvi\u00f0a \u2013 hven\u00e6r hefur Hlynur skora\u00f0 me\u00f0 \u00feessum h\u00e6tti. Var \u00fea\u00f0 ekki \u00e1 m\u00f3ti Vestra \u00ed Borgunarbikarnum 2016 e\u00f0a \u00e1tti hann eitt svona mark me\u00f0 \u00de\u00f3r 2014?<\/p><p>\u00c1 me\u00f0an \u00feessar umr\u00e6\u00f0ur \u00e1ttu s\u00e9r sta\u00f0 ger\u00f0u V\u00edkingar fj\u00f3rfalda skiptingu og vi\u00f0 skoru\u00f0um vafasamt sj\u00e1lfsmark \u2013 Gisp. \u00cd framhaldinu kom Jes\u00fa br\u00f3\u00f0ir bezti inn\u00e1 fyrir Indri\u00f0a og leikurinn fjara\u00f0i \u00fat. V\u00edkingar reyndu a\u00f0 venju a\u00f0 fiska eitt v\u00edti, hafandi ekkert l\u00e6rt af s\u00ed\u00f0asta leik s\u00ednum gegn Leikni. Leikurinn ko\u00f0na\u00f0i svo ni\u00f0ur a\u00f0 endingu og d\u00f3marinn flauta\u00f0i \u00feetta af.<\/p><p>Af \u00farslitum kveldsins m\u00e1 r\u00e1\u00f0a a\u00f0 leikurinn vi\u00f0 Leikni n\u00e6stkomandi m\u00e1nudagskveld er afar mikilv\u00e6gur. \u00deanga\u00f0 m\u00e6ta allir og \u00f6mmur \u00feeirra, sem og kvefs\u00e6knir frambj\u00f3\u00f0endur me\u00f0 kosninga\u00feynnku.<\/p><p>Skjaldsveinninn<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deeir fj\u00f6lm\u00f6rgu bl\u00e1kl\u00e6ddu Frammarar sem l\u00f6g\u00f0u lei\u00f0 s\u00edna \u00ed V\u00edkina \u00ed kveld voru p\u00ednu \u00f3\u00f6ruggir og r\u00e1\u00f0villtir til a\u00f0 byrja me\u00f0 er leikt\u00edminn n\u00e1lga\u00f0ist. Ekki skrifa\u00f0ist \u00feetta \u00f3\u00f6ryggi \u00e1 starfslokin [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":30258,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-30257","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/jannik-vefur.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/30257","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=30257"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/30257\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":30264,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/30257\/revisions\/30264"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/30258"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=30257"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=30257"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=30257"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}