{"id":30641,"date":"2022-06-14T00:22:46","date_gmt":"2022-06-14T00:22:46","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=30641"},"modified":"2022-06-14T00:23:20","modified_gmt":"2022-06-14T00:23:20","slug":"girdingin","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2022\/06\/14\/girdingin\/","title":{"rendered":"Gir\u00f0ingin"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"30641\" class=\"elementor elementor-30641\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-6694734 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"6694734\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-2e164429\" data-id=\"2e164429\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-6e04b44a elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"6e04b44a\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-30644 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/Ana-240x300.jpg\" alt=\"\" width=\"240\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/Ana-240x300.jpg 240w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/Ana-800x1000.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/Ana-819x1024.jpg 819w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/Ana-768x960.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/Ana.jpg 1166w\" sizes=\"(max-width: 240px) 100vw, 240px\" \/>Vi\u00f0 Klapparst\u00edginn stendur h\u00e1lfskringileg endurger\u00f0 \u00e1 forhli\u00f0 kn\u00e6pu sem \u00fe\u00f3tti hipp og k\u00fal \u00e1 h\u00e1punkti g\u00f3\u00f0\u00e6risins fyrir hrun. \u00deetta er einhvers konar postm\u00f3dern\u00edskur minnisvar\u00f0i um Sirkus, \u00fear sem sv\u00f6lu krakkarnir h\u00e9ngu milli \u00feess sem \u00feau stofnu\u00f0u netb\u00f3lufyrirt\u00e6ki og Bj\u00f6rk greip \u00ed a\u00f0 d\u00eddjeia. Liturinn \u00e1 kofanum var kr\u00fattkynsl\u00f3\u00f0ars\u00e6gr\u00e6nn og er v\u00edst h\u00e6gt a\u00f0 finna \u00e1 litaspjaldi \u00ed Slippf\u00e9laginu.<\/p><p>Vi\u00f0 sem eldri erum minnumst \u00fe\u00f3 \u00feessa h\u00fass \u00feegar \u00fea\u00f0 var hv\u00edtt \u00e1 litinn og h\u00fdsti Grand Rokk. \u00dea\u00f0 var p\u00f6bb fyrir fagdrykkjumenn og afgreiddi hina f\u00ednustu \u00fe\u00fdsku bj\u00f3ra sem hvergi annars sta\u00f0ar voru til \u00e1 krana. Grand Rokk var Mekka sk\u00e1kl\u00edfsins \u00ed b\u00e6num, \u00fat fr\u00e1 sta\u00f0num \u00f3x taflf\u00e9lagi\u00f0 Hr\u00f3kurinn sem pakka\u00f0i saman nokkrum \u00cdslandsmeistaram\u00f3tum \u00fear til Hrafn J\u00f6kulsson missti \u00e1hugann \u00e1 a\u00f0 sl\u00e1tra litlum taflkl\u00fabbum me\u00f0 stj\u00f6rnuli\u00f0i austur-evr\u00f3pskra st\u00f3rmeistara og \u00e1kva\u00f0 \u00ed sta\u00f0inn a\u00f0 l\u00e1ta gott af s\u00e9r lei\u00f0a \u00e1 Gr\u00e6nlandi. Og Grand Rokk braut einnig bla\u00f0 \u00ed \u00edslenskri \u00ed\u00fer\u00f3ttas\u00f6gu \u00feegar hann var\u00f0 fyrsta kn\u00e6pan til a\u00f0 gerast a\u00f0alaugl\u00fdsandi \u00e1 treyju f\u00f3tboltali\u00f0s. \u00dea\u00f0 f\u00f3tboltali\u00f0 var kvennaflokkur \u00c1lftaness!<\/p><p>Grand Rokk-augl\u00fdsingin f\u00edna er \u00fev\u00ed mi\u00f0ur l\u00f6ngu farin af \u00c1lftanesstreyjunni og sannast sagna lag\u00f0i fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar ekki \u00e1 minni\u00f0 hva\u00f0a \u00fej\u00f3\u00f0\u00ferifafyrirt\u00e6ki komi\u00f0 er \u00ed sta\u00f0inn. \u00dea\u00f0 var l\u00edka ekki mikill t\u00edmi a\u00f0 r\u00fdna \u00ed augl\u00fdsingar, \u00fev\u00ed fer\u00f0af\u00e9laginn og Hn\u00edfsdalstrymbillinn Kristj\u00e1n Freyr vildi koma vi\u00f0 \u00ed pylsuvagni b\u00e6jarins fyrir leik. \u00deetta er fr\u00e1b\u00e6r pylsuvagn\/sjoppa og unnu kj\u00f6tv\u00f6rurnar virtust renna lj\u00faflega ni\u00f0ur.<\/p><p>\u00dea\u00f0 bl\u00e9s \u00e1 vellinum. P\u00ednkul\u00edti\u00f0 svekkjandi a\u00f0 m\u00e6ta \u00fat \u00e1 \u00c1lftanes eina dag \u00e1rsins sem b\u00e6rir vind, en \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur ekki \u00e1 allt kosi\u00f0. Vallarst\u00e6\u00f0i\u00f0 er alltaf jafnskemmtilegt, me\u00f0 hrossast\u00f3\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0ra hli\u00f0ina. Milli vallarins og \u00e1horfendabrekkunnar er svo v\u00edgaleg j\u00e1rngir\u00f0ing sem er v\u00e6ntanlega hugsu\u00f0 til a\u00f0 halda \u00c1lftanes Ultras \u00ed skefjum \u00ed grannaslagnum vi\u00f0 FH og Stj\u00f6rnuna. \u00c1horfendur voru f\u00e1ir \u00ed byrjun og meirihlutinn l\u00edklega \u00e1 bandi Framara. Heimaf\u00f3lki fj\u00f6lga\u00f0i \u00fe\u00f3 \u00feegar lei\u00f0 \u00e1 leikinn. Fr\u00e9ttaritarinn, Hn\u00edfsd\u00e6lingurinn og f\u00e9lagi Sigur\u00f0ur Freyr \u2013 sem m\u00e6tir \u00f6rugglega \u00e1 flesta Framleiki \u00e1 \u00e1rsgrundvelli \u2013 rottu\u00f0u sig saman.<\/p><p><img decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-30645 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/Jessica-gegn-Ia-240x300.jpg\" alt=\"\" width=\"240\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/Jessica-gegn-Ia-240x300.jpg 240w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/Jessica-gegn-Ia-800x1000.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/Jessica-gegn-Ia-819x1024.jpg 819w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/Jessica-gegn-Ia-768x960.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/Jessica-gegn-Ia-1229x1536.jpg 1229w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/Jessica-gegn-Ia.jpg 1238w\" sizes=\"(max-width: 240px) 100vw, 240px\" \/>\u00dear sem \u00feetta er fyrsta leiksk\u00fdrsla \u00e1rsins \u00ed kvennaboltanum og talsver\u00f0ar li\u00f0sbreytingar hafa or\u00f0i\u00f0 milli \u00e1ra, var fr\u00e9ttaritarinn \u00f6rl\u00edti\u00f0 ry\u00f0ga\u00f0ur \u00feegar kom a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 uppstillingunni. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur bara a\u00f0 taka viljann fyrir verki\u00f0:<\/p><p>Marissa Zuchetto var \u00fe\u00f3 \u00f6rugglega \u00ed markinu og mi\u00f0var\u00f0apari\u00f0 \u00fe\u00e6r Erika R\u00fan Hei\u00f0arsd\u00f3ttir og Emil\u00eda Ingvad\u00f3ttir. \u00de\u00e6r eru b\u00e1\u00f0ar varnarjaxlar a\u00f0 skapi \u00feess sem h\u00e9r st\u00fdrir lyklabor\u00f0i og \u00e1ttu margar flottar t\u00e6klingar, einkum var Erika grj\u00f3th\u00f6r\u00f0 og bjarga\u00f0i vel \u00e1 mikilv\u00e6gum augnablikum. Kar\u00edtas Mar\u00eda Agnarsd\u00f3ttir og \u00de\u00f3rhildur El\u00edn \u00c1sgeirsd\u00f3ttir voru \u00ed bakv\u00f6r\u00f0unum.<\/p><p>Aftast \u00e1 mi\u00f0junni var L\u00e1ra \u00d3sk Albertsd\u00f3ttir me\u00f0 hina \u00fakra\u00ednsku Irynu Mayborodinu. Ylfa Margr\u00e9t \u00d3lafsd\u00f3ttir og \u00d3l\u00edna Sif Hilmarsd\u00f3ttir \u00e1 k\u00f6ntunum, Ana Da Costa Brai fremst \u00e1 mi\u00f0junni og Jessica Cass Ray uppi \u00e1 toppi. H\u00e9r er amk ekki mj\u00f6g miklu logi\u00f0. Athyglisvert er a\u00f0 allir sj\u00f6 \u00edslensku leikmennirnir \u00ed li\u00f0inu eru f\u00e6ddar eftir aldam\u00f3t.<\/p><p>Framkonur byrju\u00f0u mun kr\u00f6ftugar og flj\u00f3tlega kom \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 aftasta varnarl\u00edna \u00c1lftaness var broth\u00e6tt, til a\u00f0 n\u00fdta s\u00e9r \u00fea\u00f0 til fulls l\u00e9k Framli\u00f0i\u00f0 st\u00edft upp \u00e1 a\u00f0 koma l\u00f6ngum sendingum inn fyrir v\u00f6rnina sem n\u00e1lega \u00ed hvert sinn olli miklum usla. \u00de\u00e1 sjaldan a\u00f0 heimali\u00f0i\u00f0 komst \u00ed s\u00f3knir reyndust \u00fe\u00e6r hins vegar h\u00e1skalegar. \u00c1lftanesli\u00f0i\u00f0 er kornungt (flestar f\u00e6ddar 2005-07) og spr\u00e6kt, en skorti l\u00edkamlega bur\u00f0i.<\/p><p>Eftir h\u00e1lft\u00edmaleik var\u00f0 sannkalla\u00f0ur darra\u00f0ardans \u00ed v\u00edtateig Fram, \u00fear sem \u00c1lftnesingar fengu hvert f\u00e6ri\u00f0 \u00e1 f\u00e6tur \u00f6\u00f0ru \u00e1 me\u00f0an okkar konum t\u00f3kst ekki a\u00f0 koma boltanum fr\u00e1. Skyttunum \u00feremur \u00ed brekkunni st\u00f3\u00f0 ekki \u00e1 sama og sama gilti um \u00f6ku\u00fe\u00f3rinn Hilmar sem var \u00e1 n\u00e6stu gr\u00f6sum. Eftirlitsma\u00f0ur KS\u00cd glotti hins vegar \u00ed kampinn, b\u00edsperrtur \u00ed sambandsmerktum kl\u00e6\u00f0na\u00f0i og svara\u00f0i \u00f6llum spurningum um regluger\u00f0ir var\u00f0andi keppni \u00ed 2. deild kvenna (stutta \u00fatg\u00e1fan er a\u00f0 \u00fea\u00f0 m\u00e1 allt!)<\/p><p>M\u00edn\u00fatu eftir \u00feessa bestu s\u00f3kn \u00c1lfnesinga \u00ed leiknum m\u00e1tti li\u00f0 \u00feeirra hir\u00f0a boltann \u00ed eigi\u00f0 mark. Varnarma\u00f0ur \u00c1lftaness haf\u00f0i komist inn \u00ed sendingu fr\u00e1 Framara og \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 senda boltann aftur \u00e1 eigin markv\u00f6r\u00f0, en sendingin var of laus. Ylfa Margr\u00e9t var eldsn\u00f6gg a\u00f0 hugsa og hlj\u00f3p \u00ed boltann og afgreiddi snyrtilega \u00ed neti\u00f0. Marki\u00f0 vissulega slysalegt en engin \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 taka neitt fr\u00e1 markaskoraranum, 0:1.<\/p><p>\u00c1 markam\u00edn\u00fatunni komst \u00d3l\u00edna ein \u00ed gegn en markv\u00f6r\u00f0ur \u00c1lftaness var\u00f0i fr\u00e1b\u00e6rlega \u2013 sem var kannski eins gott, enda virtist \u00d3l\u00edna kolrangst\u00e6\u00f0 \u00ed f\u00e6rinu. \u00c1 \u00feeim skamma t\u00edma sem eftir lif\u00f0i h\u00e1lfleiks n\u00e1\u00f0u Framkonur \u00fe\u00f3 a\u00f0 skapa tv\u00f6 f\u00edn f\u00e6ri, \u00fear sem \u00d3l\u00edna og Ana komu b\u00e1\u00f0ar vi\u00f0 s\u00f6gu.<\/p><p>\u00cd hl\u00e9i l\u00e1 lei\u00f0in \u00ed f\u00e9lagsheimili \u00c1lftnesinga, sem eru h\u00f6f\u00f0ingjar heim a\u00f0 s\u00e6kja og veittu \u00f3keypis kaffi og \u00f3m\u00e6lt! Skyndilega breyttist samkoman \u00ed \u00e1rsh\u00e1t\u00ed\u00f0 t\u00f3nsk\u00e1ldaf\u00e9lagsins \u00feegar Hn\u00edfsdalstrommarinn, okkar eigin Toggi og \u00c1lftanessstu\u00f0ningsma\u00f0urinn og rokkhundurinn Finni sem kenndur var vi\u00f0 Priki\u00f0 og \u00e1 einhvern haug af stelpum \u00ed \u00f6llum aldursflokkum \u00c1lftaness voru komnir \u00e1 sama blettinn. Vi\u00f0 t\u00f3ku fj\u00f6rlegar og \u00f3\u00fearflega myndr\u00e6nar umr\u00e6\u00f0ur um fr\u00e1fl\u00e6\u00f0isvanda.<\/p><p>Seinni h\u00e1lfleikur var n\u00fdbyrja\u00f0ur \u00feegar \u00c1lftanes komst \u00ed dau\u00f0af\u00e6ri eftir varnarmist\u00f6k \u00ed Framv\u00f6rninni, en h\u00f6rkut\u00e6kling Eriku bjarga\u00f0i m\u00e1lunum. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar f\u00e9kk \u00c1lftanes aukaspyrnu \u00e1 h\u00e6ttulegum sta\u00f0 en Marissa greip skoti\u00f0 eins og flest anna\u00f0 sem til hennar barst, greinilega h\u00f6rkumarkv\u00f6r\u00f0ur.<\/p><p>\u00dea\u00f0 b\u00e6tti heldur \u00ed vindinn. Hrossin kipptu s\u00e9r \u00fe\u00f3 ekki upp vi\u00f0 neitt.<\/p><p>\u00deegar t\u00edu m\u00edn\u00fatur voru li\u00f0nar af seinni h\u00e1lfleik komst Fram \u00ed gott f\u00e6ri sem enda\u00f0i \u00e1 bylmingsskoti \u00d3l\u00ednu en einn \u00c1lftnesingurinn n\u00e1\u00f0i a\u00f0 fleygja s\u00e9r fyrir boltann og \u00feurfti a\u00f0hlynningu \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0. \u00c1 me\u00f0an \u00e1 \u00fev\u00ed st\u00f3\u00f0 ger\u00f0 Fram s\u00edna fyrstu breytingu \u00fear sem Gu\u00f0r\u00fan P\u00e1la \u00c1rnad\u00f3ttir kom inn fyrir L\u00e1ru \u00d3sk.<\/p><p>N\u00e6stu t\u00edu til fimmt\u00e1n m\u00edn\u00faturnar h\u00f6f\u00f0u Framarar talsver\u00f0a yfirbur\u00f0i, en yfirleitt skorti herslumuninn upp \u00e1 a\u00f0 komast \u00ed dau\u00f0af\u00e6ri e\u00f0a n\u00e1 skoti. Jessica slapp \u00fe\u00f3 ein \u00ed gegn eftir g\u00f3\u00f0a sendingu fr\u00e1 Gu\u00f0r\u00fanu P\u00e1lu, sendi kn\u00f6ttinn framhj\u00e1 a\u00f0v\u00edfandi markver\u00f0i en hann small \u00ed st\u00f6nginni!<\/p><p>\u00deegar seinni h\u00e1lfleikur var n\u00e1kv\u00e6mlega h\u00e1lfna\u00f0ur \u00e1tti Erika fast skot yfir og beint \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 var komi\u00f0 a\u00f0 n\u00e6stu skiptingu. Halla \u00de\u00f3rd\u00eds Svansd\u00f3ttir kom inn\u00e1 fyrir Irynu. Beint \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 \u00e1tti Ana &#8211; sem berst um titilinn kona leiksins vi\u00f0 \u00d3l\u00ednu \u2013 fr\u00e1b\u00e6ra stungusendingu sem \u00feeim H\u00f6llu og \u00d3l\u00ednu t\u00f3kst ekki a\u00f0 n\u00fdta.<\/p><p>Eftir \u00feessar s\u00f3knarhrinur t\u00f3ku \u00c1lftnesingar a\u00f0eins a\u00f0 r\u00e9tta \u00far k\u00fatnum aftur og Fr\u00f6murum \u00ed brekkunni var h\u00e6tt a\u00f0 standa \u00e1 sama. En l\u00edkt og \u00ed fyrri h\u00e1lfleik slakna\u00f0i \u00e1 v\u00f6rninni um lei\u00f0 og heimali\u00f0i\u00f0 f\u00e6r\u00f0i sig framar \u00e1 v\u00f6llinn. Jessica \u00e1tti g\u00f3\u00f0a stungu \u00ed gegn \u00fear sem Ana stakk andst\u00e6\u00f0ingana af og skora\u00f0i af \u00f6ryggi, 0:2 og leikurinn \u00ed raun b\u00fainn.<\/p><p>Eftir \u00feetta datt botninn a\u00f0eins \u00fat leiknum. Gu\u00f0laug Embla Helgad\u00f3ttir kom inn\u00e1 fyrir \u00d6nu. \u00deegar fimm m\u00edn\u00fatur lif\u00f0u af venjulegum leikt\u00edma var Jessica auglj\u00f3slega felld \u00ed v\u00edtateignum, sloppin ein \u00ed gegn en d\u00f3marinn \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 l\u00e1ta \u00fea\u00f0 sl\u00e6ta \u00ed anda jafna\u00f0armennsku og me\u00f0alh\u00f3fs. Fj\u00f3r\u00f0a skiptingin kom flj\u00f3tlega \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 \u00fear sem Au\u00f0ur Erla Gunnarsd\u00f3ttir kom inn fyrir Ylfu. \u201eHvernig er \u00fea\u00f0, \u00feurfa skiptingar ekki a\u00f0 vera \u00ed \u00feremur hollum?\u201c spur\u00f0i Sigur\u00f0ur Freyr \u00ed forundran. \u201eNibbs, ekki \u00ed 2. deild kvenna. \u00dear m\u00e1 allt!\u201c \u2013 \u00fatsk\u00fdr\u00f0i eftirlitsd\u00f3marinn kankv\u00edsi&#8230;<\/p><p>Enn reyndist t\u00edmi til a\u00f0 skora eitt mark \u00ed vi\u00f0b\u00f3t \u00ed bl\u00e1lokin. Sakleysisleg sending inn fyrir v\u00f6rnina f\u00f3r beint \u00ed f\u00e6turnar \u00e1 varnarmanni \u00c1lftnesinga sem var of lengi a\u00f0 koma boltanum fr\u00e1 s\u00e9r, Jessica hirti kn\u00f6ttinn og skora\u00f0i au\u00f0veldlega. Frekar billegt mark, en \u00feau telja \u00f6ll. \u00cd heildina teki\u00f0 gefa lokat\u00f6lurnar, 0:3, ekki fyllilega r\u00e9tta mynd af leiknum. Okkar konur voru miklu betri en \u00c1lftanes er ekki gali\u00f0 li\u00f0 og g\u00e6ti alveg stoli\u00f0 stigum a\u00f0 li\u00f0unum \u00ed efri hlutanum. Framarar g\u00e6tu hins vegar ekki veri\u00f0 k\u00e1tari. \u00der\u00edr leikir b\u00fanir, \u00fer\u00edr sigrar og allir \u00ferj\u00fa-n\u00fall. N\u00e6sta stopp: opnunarleikur \u00ed \u00dalfars\u00e1rdal. M\u00e6ti\u00f0 \u00feanga\u00f0 en veri\u00f0 ferningar ella.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Vi\u00f0 Klapparst\u00edginn stendur h\u00e1lfskringileg endurger\u00f0 \u00e1 forhli\u00f0 kn\u00e6pu sem \u00fe\u00f3tti hipp og k\u00fal \u00e1 h\u00e1punkti g\u00f3\u00f0\u00e6risins fyrir hrun. \u00deetta er einhvers konar postm\u00f3dern\u00edskur minnisvar\u00f0i um Sirkus, \u00fear sem sv\u00f6lu krakkarnir [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":30642,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,12],"tags":[],"class_list":["post-30641","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkvenna"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/mfl.kv_.--scaled.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/30641","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=30641"}],"version-history":[{"count":10,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/30641\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":30655,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/30641\/revisions\/30655"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/30642"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=30641"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=30641"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=30641"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}