{"id":30775,"date":"2022-06-20T22:42:03","date_gmt":"2022-06-20T22:42:03","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=30775"},"modified":"2022-06-20T22:47:23","modified_gmt":"2022-06-20T22:47:23","slug":"veislan","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2022\/06\/20\/veislan\/","title":{"rendered":"Veislan"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"30775\" class=\"elementor elementor-30775\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-2f0c7380 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"2f0c7380\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-2839d756\" data-id=\"2839d756\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-1c082780 elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"1c082780\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\">\n\t\t\t\t\t\t\t\t\t<p><\/p>\n<p><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-30770 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/Gummi-magg-THrenna-300x283.webp\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"283\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/Gummi-magg-THrenna-300x283.webp 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/Gummi-magg-THrenna.webp 500w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/>\u00cd \u00cdslendingas\u00f6gunum nennti enginn a\u00f0 bl\u00e1sa til veislu fyrir minna en viku e\u00f0a t\u00edu daga. Veisluh\u00f6ld st\u00f3\u00f0u uns hver deigur dropi var drukkinn e\u00f0a veislugestir b\u00fanir a\u00f0 brenna ofan af s\u00e9r kofann og kenna svo \u00e6ttinni af n\u00e6sta b\u00e6 um brunann, eftir \u00fev\u00ed hvort ger\u00f0ist \u00e1 undan. \u00deannig eiga part\u00fd a\u00f0 vera.<\/p>\n<p><\/p>\n<p>Samf\u00e9lag hra\u00f0a og spennu, me\u00f0 s\u00edminnkandi athyglisspani vegna \u00f3h\u00f3flegrar samf\u00e9lagsmi\u00f0lanotkunar og sm\u00e6ttunar allra tilfinninga ni\u00f0ur \u00ed \u00f6rstutt myndskei\u00f0 hafa gert \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 veislu\u00feol almennings hefur skroppi\u00f0 st\u00f3rkostlega saman. Klukkut\u00edmi e\u00f0a tveir \u00ed mesta lagi og \u00fe\u00e1 kn\u00fdr athyglisbresturinn dyra og vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 leita uppi n\u00e6sta hamstrahj\u00f3l til a\u00f0 halda okkur uppteknum \u00ed stundarkorn. Lj\u00f3tt, lj\u00f3tt sag\u00f0i fuglinn.<\/p>\n<p><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var \u00fev\u00ed gle\u00f0ilegt a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed sleitulausum \u00feriggja daga veisluh\u00f6ldum \u00ed \u00dalfars\u00e1rdal um \u00feessa helgi. Og ekki var tilefni\u00f0 d\u00f3nalegt, Knattspyrnuf\u00e9lagi\u00f0 Fram eigna\u00f0ist alv\u00f6ru heimav\u00f6ll \u00ed fyrsta sinn \u00ed s\u00f6gunni \u2013 og hv\u00edl\u00edkur heimav\u00f6llur a\u00f0 auki!<\/p>\n<p><\/p>\n<p>\u00d6fundsj\u00fakur V\u00edkingur hr\u00f3sa\u00f0i n\u00fdja Framsv\u00e6\u00f0inu me\u00f0 \u00feeim or\u00f0um a\u00f0 \u00fear \u201evirtist vera miki\u00f0 af fersku lofti sem endurn\u00fdjast mj\u00f6g hratt\u201c \u2013 og a\u00f0 sumu leyti m\u00e1tti \u00fea\u00f0 til sanns vegar f\u00e6ra \u00e1 laugardaginn \u00feegar fr\u00e9ttaritarinn og skjaldsveinninn m\u00e6ttu vel t\u00edmanlega fyrir leik Fram og Knattspyrnuf\u00e9lags Hl\u00ed\u00f0arenda \u00ed 2. deild kvenna. Annan leikinn \u00ed r\u00f6\u00f0 m\u00e6ttu Framarar li\u00f0i sem augl\u00fdst hefur kn\u00e6pu \u00e1 keppnistreyju sinni, en KH var eitt sinn me\u00f0 augl\u00fdsingu fr\u00e1 hipsterabarnum Session. Vel gert!<\/p>\n<p><\/p>\n<p>Eftir a\u00f0 hafa villst um endalausa ganga og veislusali \u00ed klukkustund var t\u00edmab\u00e6rt a\u00f0 koma s\u00e9r til s\u00e6tis. \u00dear var rj\u00f3mi stu\u00f0ningsli\u00f0sins samankominn: Sigur\u00f0ur Freyr, Skonrokksbr\u00e6\u00f0ur, Einar K\u00e1rason og Kamilla d\u00f3ttir hans sem er sagnfr\u00e6\u00f0ingur eins og fr\u00e9ttaritarinn og skemmtilegri \u00e1 internetinu en pabbi sinn. \u00d6ll voru \u00ed h\u00e1t\u00ed\u00f0arskapi.<\/p>\n<p><\/p>\n<p>Flestar st\u00fakur vi\u00f0 \u00edslenska f\u00f3tboltavelli eru \u00feeirrar ger\u00f0ar a\u00f0 anna\u00f0 hvort s\u00e9r ma\u00f0ur ekki neitt me\u00f0 blindandi s\u00f3lina \u00ed augunum e\u00f0a kr\u00f3knar \u00far kulda \u00ed skugganum. En ekki \u00e1 n\u00fdja og f\u00edna vellinum okkar! Onei. \u00dea\u00f0 var brakandi s\u00f3l svo mannskapurinn svitna\u00f0i eins og sv\u00edn, en \u00fats\u00fdni\u00f0 \u00f3a\u00f0finnanlegt. \u00dea\u00f0 bl\u00e9s \u00e1 vellinum en \u00ed s\u00e6tunum b\u00e6r\u00f0ist ekki h\u00e1r \u00e1 h\u00f6f\u00f0i. \u00deessi v\u00f6llur er verkfr\u00e6\u00f0iundur! M\u00e6tingin var svo fr\u00e1b\u00e6r, 3-400 manns sem hl\u00fdtur a\u00f0 vera met.<\/p>\n<p><\/p>\n<p>Eftir tv\u00e6r m\u00edn\u00fatur l\u00e1 boltinn \u00ed neti Framkvenna eftir skyndis\u00f3kn gestanna, sem kunna greinilega ekki mannasi\u00f0i og finnst bara sj\u00e1lfsagt a\u00f0 skora fyrsta marki\u00f0 \u00e1 annarra manna v\u00f6llum! (Allar \u00e1bendingar um a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum gert sl\u00edkt hi\u00f0 sama \u00e1 Akureyri um daginn eru vinsamlega af\u00feakka\u00f0ar.)<\/p>\n<p><\/p>\n<p>\u00deetta \u00f6rlitla og \u00f3v\u00e6nta m\u00f3tl\u00e6ti sl\u00f3 okkar li\u00f0 ekki \u00fat af laginu. Framarar bl\u00e9su til s\u00f3knar og Jessica Ray, h\u00f6rkug\u00f3\u00f0ur bandar\u00edskur framherji okkar, jafna\u00f0i eftir t\u00e6plega tuttugu m\u00edn\u00fatna leik, 1:1. \u00dea\u00f0 var sta\u00f0an \u00ed h\u00e1lfleik en Framarar \u00ed f\u00ednumannastofunni h\u00f6f\u00f0u litlar \u00e1hyggjur \u00ed hl\u00e9i, en l\u00e9tu n\u00e6gja a\u00f0 sn\u00faast \u00ed hringi og d\u00e1st a\u00f0 d\u00fdr\u00f0inni. Hva\u00f0 er f\u00f3lk a\u00f0 heimta \u00fej\u00f3\u00f0arhallir og -leikvanga \u00feegar \u00feetta er allt fyrir hendi r\u00e9tt fyrir innan Bauhaus?<\/p>\n<p><\/p>\n<p>Framli\u00f0i\u00f0 byrja\u00f0i ekki af alveg sama krafti eftir hl\u00e9 og fyrir og KH f\u00f3r a\u00f0 f\u00e6ra sig a\u00f0eins framar \u00e1 v\u00f6llinn. Eftir klukkut\u00edma leik t\u00f3k Ana Da Costa Brai, \u00f6nnur bandar\u00edsk st\u00falka, forystuna fyrir Fram me\u00f0 skoti af stuttu f\u00e6ri eftir g\u00f3\u00f0a s\u00f3knarlotu. T\u00edu m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar virtist Jessica Ray hafa gert \u00fat um leikinn me\u00f0 \u00feri\u00f0ja markinu \u2013 kv\u00f3ti dagsins fullur: Framkonur hafa skora\u00f0 \u00ferj\u00fa m\u00f6rk \u00ed \u00f6llum fj\u00f3rum leikjum s\u00ednum \u00ed sumar! Beint \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 n\u00e1\u00f0u hins vegar gestirnir a\u00f0 minnka muninn me\u00f0 frekar slysalegu marki og \u00fe\u00f3tt Hl\u00ed\u00f0arendali\u00f0i\u00f0 n\u00e6\u00f0i l\u00edti\u00f0 a\u00f0 \u00f3gna \u00fea\u00f0 sem eftir var v\u00f6rpu\u00f0u Framarar \u00ed st\u00fakunni \u00f6ndinni l\u00e9ttar \u00feegar flautar var til leiksloka. N\u00e6stu tveir leikir stelpnanna \u00e6ttu a\u00f0 vinnast og \u00fe\u00e1 v\u00e6ri sta\u00f0an \u00ed deildinni or\u00f0in mj\u00f6g v\u00e6nleg!<\/p>\n<p><\/p>\n<p>Sunnudagurinn var annar dagur veislunnar miklu. \u00d6rl\u00edti\u00f0 ryka\u00f0ur fr\u00e9ttaritari, sem haf\u00f0i veri\u00f0 \u00ed afm\u00e6li borgarstj\u00f3rans kv\u00f6ldi\u00f0 \u00e1\u00f0ur, m\u00e6tti \u00fer\u00e1tt fyrir \u00fea\u00f0 og g\u00faffa\u00f0i samviskusamlega \u00ed sig pylsum sem meistaraflokksmenn \u00far handbolta og f\u00f3tbolta framreiddu af vindvirkni og al\u00fa\u00f0. Borgarstj\u00f3rinn sj\u00e1lfur var fur\u00f0ubrattur mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0st\u00e6\u00f0ur og flutti eina af fj\u00f6lm\u00f6rgum r\u00e6\u00f0um v\u00edgsluh\u00e1t\u00ed\u00f0arinnar, \u00e1\u00f0ur en kom a\u00f0 tr\u00fa\u00f0aleikjum og frumflutningi n\u00fdja Framlagsins sem Hreimur hefur rigga\u00f0 upp og er me\u00f0 miklum \u00fej\u00f3\u00f0h\u00e1t\u00ed\u00f0arbl\u00e6.Hlj\u00f3mbur\u00f0urinn er fr\u00e1b\u00e6r og gott a\u00f0 vita til \u00feess a\u00f0 \u00cdslendingar \u00feurfi ekki lengur a\u00f0 \u00f3ttast \u00fea\u00f0 a\u00f0 vinna J\u00far\u00f3visj\u00f3n. Vi\u00f0 munum bara halda keppnina \u00ed \u00dalfars\u00e1rdal og \u00deorgr\u00edmur Sm\u00e1ri ver\u00f0ur kynnir.<\/p>\n<p><\/p>\n<p>Lokahnykkur veislunnar miklu f\u00f3r svo fram um kv\u00f6ldmatarleyti\u00f0 \u00ed kv\u00f6ld. \u00c1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00feessum \u00f3l\u00e1nlega leikt\u00edma 18:00 var s\u00fa a\u00f0 m\u00f3therjarnir, Eyjamenn, \u00feurftu a\u00f0 komast heim me\u00f0 s\u00ed\u00f0ustu v\u00e9l e\u00f0a b\u00e1ti. Ekki \u00fea\u00f0 a\u00f0 t\u00edmasetningin hafi spillt fyrir m\u00e6tingunni. V\u00f6llurinn var smekkfullur og sta\u00f0i\u00f0 \u00fat um allt. Fr\u00e9ttaritarinn, sem var seinn fyrir, haf\u00f0i \u00fe\u00e1 fyrirhyggju a\u00f0 fela skjaldsveininum a\u00f0 taka fr\u00e1 s\u00e6ti \u2013 sem hann ger\u00f0i svikalaust vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 Hilmari \u00far handboltanum og str\u00e1kgutta \u00e1 hans vegum. Framar \u00ed s\u00f6mu r\u00f6\u00f0 sat mamma \u00de\u00f3ris. Fleiri n\u00f6fn ver\u00f0a ekki talin upp h\u00e9r, n\u00f3gu fj\u00e1ri er \u00feessi pistill a\u00f0 fara a\u00f0 ver\u00f0a langur hvort sem er.<\/p>\n<p><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 voru \u00e1tta m\u00edn\u00fatur \u00e1 vallarklukkunni \u00feegar fr\u00e9ttaritarinn m\u00e6tti m\u00f3\u00f0ur og m\u00e1sandi, b\u00fainn a\u00f0 leggja \u00ed s\u00ed\u00f0asta lausa b\u00edlast\u00e6\u00f0i\u00f0 \u00ed p\u00f3stn\u00fameri 113. Var \u00e9g b\u00fainn a\u00f0 tala n\u00e6gilega um vallarklukkuna? \u00dea\u00f0 er t\u00f3mt rugl a\u00f0 halda \u00feessa Evr\u00f3psku kvikmyndah\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed H\u00f6rpu, vi\u00f0 breytum \u00feessu bara \u00ed b\u00edlab\u00ed\u00f3 \u00ed dalnum me\u00f0 geggju\u00f0u \u00fats\u00fdni yfir Akr\u00f3p\u00f3lis nor\u00f0ursins eins og s\u00edfellt fleiri kalla Grafarholti\u00f0 \u00ed dag.<\/p>\n<p><\/p>\n<p>En \u00fe\u00f3tt m\u00edn\u00faturnar v\u00e6ru bara \u00e1tta, voru \u00feegar komin tv\u00f6 m\u00f6rk og f\u00e9lagi Valur Nor\u00f0ri endursag\u00f0i \u00feau eftir minni \u00e1 me\u00f0an fr\u00e9ttaritarinn saup \u00e1 ta\u00f0volgu visk\u00edinu. Hitabeltisloftslagi\u00f0 \u00e1 \u00feessum velli er sl\u00edkt a\u00f0 l\u00edklega g\u00e6ti \u00feurft a\u00f0 skipta markafleygnum \u00fat fyrir k\u00e6lifl\u00f6sku. \u00dea\u00f0 er skilgreiningin \u00e1 l\u00faxusvandam\u00e1li&#8230;<\/p>\n<p><\/p>\n<p>Eyjamenn h\u00f6f\u00f0u sem sagt af frekju og d\u00f3naskap \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 skora fyrsta marki\u00f0 \u00far v\u00edtaspyrnu eftir tv\u00e6r m\u00edn\u00fatur. A\u00f0dragandi v\u00edtisins var v\u00edst fullkomin endurtekning \u00e1 v\u00edtinu fyrir nor\u00f0an \u00ed seinustu umfer\u00f0. \u00dea\u00f0 \u00fearf n\u00fa meira en svona gle\u00f0ispilla til a\u00f0 sl\u00e1 Framara \u00fat af laginu. Strax \u00e1 n\u00e6stu m\u00edn\u00fatu \u00e1tti \u00de\u00f3rir langa sendingu fram, markv\u00f6r\u00f0ur Eyjamanna br\u00e1 s\u00e9r \u00ed sk\u00f3garfer\u00f0 og Gu\u00f0mundur Magn\u00fasson, sem skorar alltaf um \u00feessar mundir, \u00e1tti ekki \u00ed minnstu vandr\u00e6\u00f0um me\u00f0 a\u00f0 pota honum \u00ed neti\u00f0. Svona l\u00fdsti f\u00e9lagi Valur \u00feessu og ekki f\u00e6ri hann a\u00f0 lj\u00faga, verandi hjartahreinn og fr\u00e1 K\u00f3paskeri. Valur haf\u00f0i annars dregi\u00f0 me\u00f0 s\u00e9r vinnuf\u00e9laga \u00e1 v\u00f6llinn, s\u00e1 er \u00far Eyjum en getur ekkert gert a\u00f0 \u00fev\u00ed og t\u00f3k a\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 bera \u00ed b\u00e6tifl\u00e1ka fyrir d\u00f3maratr\u00ed\u00f3i\u00f0 me\u00f0an \u00e1 leik st\u00f3\u00f0. \u00dea\u00f0 var ekki l\u00edti\u00f0 verk.<\/p>\n<p><\/p>\n<p>Spur\u00f0i einhver um byrjunarli\u00f0? J\u00fa: \u00d3li \u00ed markinu. Hlynur og \u00de\u00f3rir mi\u00f0ver\u00f0ir. Alex og M\u00e1r bakver\u00f0ir. Indri\u00f0i \u00c1ki aftast \u00e1 mi\u00f0junni me\u00f0 Albert og Tiago fyrir framan, Fred og Jannik \u00e1 k\u00f6ntunum og Gumma frammi. Allt mj\u00f6g beisik.<\/p>\n<p><\/p>\n<p>Leikurinn var me\u00f0 gr\u00ed\u00f0arlega h\u00e1u temp\u00f3i \u00feessar fyrstu m\u00edn\u00fatur. Gummi \u00e1tti gott skot framhj\u00e1 \u00e1 t\u00edundu m\u00edn\u00fatu og \u00feremur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar kom hann boltanum \u00ed neti\u00f0 eftir sendingu fr\u00e1 Alberti en var flagga\u00f0ur rangst\u00e6\u00f0ur. \u00dea\u00f0 hefur sta\u00f0i\u00f0 t\u00e6pt.<\/p>\n<p><\/p>\n<p>\u00deegar fyrri h\u00e1lfleikur var n\u00e1kv\u00e6mlega h\u00e1lfna\u00f0ur komust gestirnir yfir \u00e1 n\u00fdjan leik. Stungusending barst inn fyrir Framv\u00f6rnina \u00fear sem fremsti ma\u00f0ur \u00cdBV virtist auglj\u00f3slega rangst\u00e6\u00f0ur en upp f\u00f3r flaggi\u00f0 ekki. \u00cd kaffispjallinu \u00ed hl\u00e9i var \u00feeirri kenningu varpa\u00f0 fram a\u00f0 \u00de\u00f3rir sem haf\u00f0i togna\u00f0 og l\u00e1 vi\u00f0 hli\u00f0arl\u00ednuna hef\u00f0i veri\u00f0 talinn hafa \u00e1hrif \u00e1 leikinn og gert a\u00f0ra r\u00e9ttst\u00e6\u00f0a. Hva\u00f0 sem \u00fev\u00ed l\u00ed\u00f0ur \u00feurfti \u00de\u00f3rir a\u00f0 yfirgefa v\u00f6llinn vegna \u00feessara mei\u00f0sla sem er h\u00e1b\u00f6lva\u00f0 \u00fev\u00ed hann er br\u00e1\u00f0nau\u00f0synlegur \u00ed hjarta varnarinnar. Gunnar leysti hann af h\u00f3lmi.<\/p>\n<p><\/p>\n<p>Vi\u00f0 t\u00f3k t\u00edmabil \u00fear sem Eyjamenn notu\u00f0u hvert t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 leggjast \u00ed v\u00f6llinn vi\u00f0 minnsta hnjask. Merkilegt hva\u00f0 s\u00e1rsauka\u00fer\u00f6skuldurinn l\u00e6kkar vi\u00f0 a\u00f0 komast yfir \u00ed f\u00f3tboltaleikjum. \u00deess \u00e1 milli n\u00e6ldu \u00feeir s\u00e9r \u00ed st\u00f6ku hornspyrnur sem sk\u00f6pu\u00f0u allar st\u00f3rh\u00e6ttu \u00fear sem \u00fe\u00e6r endu\u00f0u \u00ed fr\u00edum sk\u00f6llum, sem r\u00f6tu\u00f0u \u00fe\u00f3 aldrei \u00e1 marki\u00f0. \u00cd tv\u00f6 skiptin virtist sem svo a\u00f0 \u00feeir hv\u00edtkl\u00e6ddu hafi me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 reka hausinn \u00ed boltann komi\u00f0 \u00ed veg fyrir a\u00f0 hann flygi rakleitt \u00ed neti\u00f0.<\/p>\n<p><\/p>\n<p>Framarar \u00e1ttu \u00fe\u00f3 f\u00e6ri \u00e1 m\u00f3ti. Jannik kom vi\u00f0 s\u00f6gu \u00ed tveimur h\u00e1lff\u00e6rum en \u00ed hvorugt skipti\u00f0 t\u00f3kst a\u00f0 \u00f3gna Eyjamarkinu a\u00f0 r\u00e1\u00f0i. Betur t\u00f3kst til \u00e1 38. m\u00edn\u00fatu \u00feegar Jannik hlj\u00f3p upp a\u00f0 endam\u00f6rkum og virtist vera b\u00fainn a\u00f0 missa boltann aftur fyrir, en n\u00e1\u00f0i \u00fe\u00f3 \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu stundu a\u00f0 pota fyrir marki\u00f0 \u00fear sem varnarmanni \u00cdBV fannst skynsamlegt a\u00f0 hlaupa utan \u00ed Gumma og fella hann. V\u00edti og okkar ma\u00f0ur skora\u00f0i me\u00f0 stuttu tilhlaupi og f\u00f6stu skoti sem markv\u00f6r\u00f0urinn var \u00fe\u00f3 n\u00e1nast me\u00f0 hendur \u00e1, 2:2.<\/p>\n<p><\/p>\n<p>F\u00ednumannastofan var tro\u00f0in \u00ed hl\u00e9i. R\u00e1\u00f0herrar og fyrrum borgarstj\u00f3rar voru \u00ed h\u00f3pnum og kr\u00e1sirnar upp \u00e1 tv\u00e6r Michelinstj\u00f6rnur \u2013 m\u00e1tti svo sem ekki minna vera, enda leikurinn kosta\u00f0ur af s\u00e6lkerab\u00fa\u00f0. Ekki skil \u00e9g hva\u00f0 f\u00f3lk er a\u00f0 v\u00e6la yfir a\u00f0 missa Grilli\u00f0 \u00e1 H\u00f3tel S\u00f6gu undir \u00fafna st\u00fadenta \u00feegar h\u00e6gt er a\u00f0 f\u00e1 miklu betri mat \u00e1 Framleikjum. Almenn samsta\u00f0a var um a\u00f0 m\u00f6rkin yr\u00f0u fleiri og l\u00edklega f\u00e6ri \u00feetta 5:3. Gummi Torfa l\u00e9k \u00e1 als oddi og \u00fe\u00f3ttist ekkert stressa\u00f0ur yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 nafni hans s\u00e9 a\u00f0 gera atl\u00f6gu a\u00f0 markametinu fr\u00e1 1986.<\/p>\n<p><\/p>\n<p>Seinni h\u00e1lfleikur byrja\u00f0i me\u00f0 s\u00f6mu l\u00e1tum. Tiago og Fred voru n\u00e6stum b\u00fanir a\u00f0 prj\u00f3na sig \u00ed gegn eftir tv\u00e6r m\u00edn\u00fatur. Tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar \u00e1tti M\u00e1r fr\u00e1b\u00e6ra sendingu \u00e1 Tiago sem f\u00f3r upp a\u00f0 endam\u00f6rkum og sendi fyrir \u00fear sem Gummi \u00feurfti r\u00e9tt a\u00f0 st\u00edga fram og setja bringuna \u00ed boltann, 3:2 og okkar ma\u00f0ur b\u00fainn a\u00f0 tryggja s\u00e9r boltann \u00ed leikslok! T\u00edu m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar virtist Tiago \u00e6tla a\u00f0 n\u00e1 annarri sto\u00f0sendingu en Jannik n\u00e1\u00f0i ekki teygja sig n\u00e6gilega til a\u00f0 n\u00e1 g\u00f3\u00f0um skalla \u00far dau\u00f0af\u00e6ri.<\/p>\n<p><\/p>\n<p>\u00deegar h\u00e1lft\u00edmi var eftir fengu Eyjamenn aukaspyrnu r\u00e9tt fyrir utan v\u00edtateig Framara. \u00d3li var\u00f0i spyrnuna gl\u00e6silega \u00ed sl\u00e1, \u00fea\u00f0an skoppa\u00f0i boltinn \u00ed mi\u00f0jan teiginn \u00fear sem Framarar voru of seinir a\u00f0 \u00e1tta sig og einn gesturinn n\u00e1\u00f0i a\u00f0 jafna metin. Skrambinn! Sj\u00f6 m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar skall svo huir\u00f0 n\u00e6rri h\u00e6lum vi\u00f0 Frammarki\u00f0 \u00feegar gestirnir n\u00e1\u00f0u skoti upp \u00far engu sem small \u00ed st\u00f6nginni.<\/p>\n<p><\/p>\n<p>\u00deegar lei\u00f0 \u00e1 h\u00e1lfleikinn t\u00f3k a\u00f0 draga allverulega af Alberti og hann yfirgaf v\u00f6llinn eftir eitthva\u00f0 hnjask. Tryggvi kom inn \u00ed sta\u00f0inn og var n\u00e6rri b\u00fainn a\u00f0 skora sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar eftir sendingu fr\u00e1 Fred. \u00deegar t\u00edu m\u00edn\u00fatur voru eftir af venjulegum leikt\u00edma virtist Tiago \u00fdtt ni\u00f0ur r\u00e9tt fyrir utan v\u00edtateigsl\u00ednu en d\u00f3marinn var \u00e1 \u00f6\u00f0ru m\u00e1li.<\/p>\n<p><\/p>\n<p>Tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar virtist broti\u00f0 \u00e1 Jannik innan teigs. Ekkert d\u00e6mt og \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 sau\u00f0 upp\u00far. Gummi Magg t\u00f3k hraustlega t\u00e6klingu og \u00ed hamagangnum \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 n\u00e6ldi hinn dagfarspr\u00fa\u00f0i varamarkv\u00f6r\u00f0ur Stef\u00e1n \u00de\u00f3r s\u00e9r \u00ed rautt spjald fyrir uppbyggilegar r\u00e1\u00f0leggingar s\u00ednar til emb\u00e6ttismanna leiksins. Rau\u00f0a spjali\u00f0 var hins vegar hvergi n\u00e6rri \u00feegar Fred var sparka\u00f0ur ni\u00f0ur r\u00e9tt fyrir utan v\u00edtateig Eyjamanna \u00f6rsk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar \u2013 d\u00f3marinn v\u00e6ntanlega meti\u00f0 \u00fea\u00f0 sem svo a\u00f0 annar varnarma\u00f0ur Eyjamanna hafi sta\u00f0i\u00f0 fyrir innan atviki\u00f0.<\/p>\n<p><\/p>\n<p>Enn \u00e1ttu nokkur f\u00e6ri og h\u00e1lff\u00e6ri eftir a\u00f0 l\u00edta dagsins lj\u00f3s. Skot fr\u00e1 Fred sleikti sl\u00e1nna \u00feegar \u00ferj\u00e1r m\u00edn\u00fatur voru eftir. Jes\u00fas kom inn \u00e1 fyrir Alex \u00ed uppb\u00f3tart\u00edma og undir bl\u00e1lokin fengu Eyjamenn enn einn fr\u00eda skallann upp \u00far hornspyrnu. \u00dea\u00f0 er alveg spurning a\u00f0 fara a\u00f0 \u00e6fa \u00feessi atri\u00f0i eitthva\u00f0!<\/p>\n<p><\/p>\n<p>\u00deegar lokaflauti\u00f0 gall l\u00f6g\u00f0ust leikmenn unnv\u00f6rpum \u00ed grasi\u00f0 enda gj\u00f6rsamlega b\u00fanir \u00e1 \u00fev\u00ed eftir \u00f3tr\u00falega hra\u00f0an og l\u00edflegan leik \u2013 \u00fe\u00f3tt mist\u00f6kin hafi veri\u00f0 \u00f3\u00fearflega m\u00f6rg \u00e1 b\u00e1\u00f0a b\u00f3ga. Fr\u00e9ttaritarinn \u00e6tlar ekkert a\u00f0 tj\u00e1 sig um d\u00f3mg\u00e6sluna, enda hvort sem er \u00ed h\u00e1lfger\u00f0u hitam\u00f3ki \u00ed kv\u00f6lds\u00f3linni og telst \u00fe\u00f3 ekki til heitfengari manna. \u00dea\u00f0 er l\u00edka erfitt a\u00f0 einbeita s\u00e9r a\u00f0 sm\u00e1atri\u00f0um \u00ed f\u00f3tboltaleikjum me\u00f0 n\u00e1tt\u00farufegur\u00f0 og arkitekt\u00far sem \u00feennan fyrir augunum sem fanga athyglina.<\/p>\n<p><\/p>\n<p>Jafntefli \u00ed sex marka leik voru ekki \u00f3ska\u00farslitin sem lokahnykkur \u00ed \u00feriggja daga veislu, en \u00feau eru fullkomlega \u00ed okkar anda. Vi\u00f0 erum li\u00f0 sem f\u00e6r \u00ferj\u00fa m\u00f6rk \u00e1 sig og bregst vi\u00f0 \u00fev\u00ed me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 reyna a\u00f0 skora fj\u00f6gur. N\u00e6sta verkefni er bikarkeppnin \u00e1 Akureyri, \u00fear sem vi\u00f0 munum v\u00e6ntanlega senda 3ja flokkinn til leiks ef \u00e9g \u00feekki \u00fej\u00e1lfarateymi\u00f0 r\u00e9tt. Vi\u00f0 munum samt vinna.<\/p>\n<p><\/p>\n<p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><p>Mynd F\u00f3tbolti.net<\/p>\n<p><\/p>\t\t\t\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd \u00cdslendingas\u00f6gunum nennti enginn a\u00f0 bl\u00e1sa til veislu fyrir minna en viku e\u00f0a t\u00edu daga. Veisluh\u00f6ld st\u00f3\u00f0u uns hver deigur dropi var drukkinn e\u00f0a veislugestir b\u00fanir a\u00f0 brenna ofan af [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":30770,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-30775","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/Gummi-magg-THrenna.webp","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/30775","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=30775"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/30775\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":30779,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/30775\/revisions\/30779"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/30770"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=30775"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=30775"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=30775"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}