{"id":31090,"date":"2022-07-26T10:44:59","date_gmt":"2022-07-26T10:44:59","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=31090"},"modified":"2022-07-26T10:45:25","modified_gmt":"2022-07-26T10:45:25","slug":"bilridan","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2022\/07\/26\/bilridan\/","title":{"rendered":"B\u00edlri\u00f0an"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"31090\" class=\"elementor elementor-31090\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-5650efa4 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"5650efa4\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-2047c243\" data-id=\"2047c243\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-2666fb35 elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"2666fb35\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-31093 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Mar-gegn-IBV-240x300.jpg\" alt=\"\" width=\"240\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Mar-gegn-IBV-240x300.jpg 240w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Mar-gegn-IBV-scaled-800x1000.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Mar-gegn-IBV-819x1024.jpg 819w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Mar-gegn-IBV-768x960.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Mar-gegn-IBV-1229x1536.jpg 1229w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Mar-gegn-IBV-1639x2048.jpg 1639w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Mar-gegn-IBV-scaled.jpg 2048w\" sizes=\"(max-width: 240px) 100vw, 240px\" \/>Klukkan 8:05 r\u00e6sti fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar b\u00edl sinn fyrir framan heimili tengdaf\u00f6\u00f0ur s\u00edns \u00ed Neskaupsta\u00f0 eftir t\u00edu daga sumarfr\u00ed \u00ed Austfjar\u00f0a\u00feokunni. Hann kvaddi g\u00edrkassinn \u00e1 b\u00edlnum er t\u00e6pur og \u00feolir illa brattar brekkur ni\u00f0ur\u00edm\u00f3t.\u00a0 Hann var \u00f6rl\u00edti\u00f0 svekktur \u00fat \u00ed sj\u00e1lfan sig fyrir misheppna\u00f0a fer\u00f0ah\u00f6nnun sem \u00fe\u00fdddi a\u00f0 lesendur Frams\u00ed\u00f0unnar myndu annan leikinn \u00ed r\u00f6\u00f0 missa af sk\u00fdrslu.<\/p><p>Klukkan 14:28 rennir fr\u00e9ttaritarinn inn \u00e1 plani\u00f0 hj\u00e1 N1 \u00e1 Kirkjub\u00e6jarklaustri og hugsar: \u201e\u00c9g g\u00e6ti n\u00e1\u00f0 \u00feessu!\u201c Hann hringir \u00f3\u00f0ara \u00ed Val No\u00f0ra og bi\u00f0ur hann um a\u00f0 vera \u00ed startholunum. Valur er tilb\u00fainn.<\/p><p>Klukkan 17:15 ekur fr\u00e9ttarinn framhj\u00e1 Hverager\u00f0i og tilkynnir skjaldsveininum a\u00f0 plani\u00f0 s\u00e9 \u00ed gangi! Fimmt\u00edu m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar m\u00e6tir Valur \u00e1 velmegunarjeppanum, fullum af bj\u00f3r og s\u00e6kir fr\u00e9ttaritarann \u00ed Eskihl\u00ed\u00f0ina. B\u00edlri\u00f0an eftir t\u00edu t\u00edma af n\u00e1lega samfelldum akstri er a\u00f0eins farin a\u00f0 b\u00edta, en fr\u00e9ttaritarinn er har\u00f0ur af s\u00e9r. Saman bruna \u00feeir \u00ed f\u00ednumannahlutann \u00ed Seljahverfi og s\u00e6kja Rabba. T\u00edundi \u00e1ratugurinn er kominn aftur! Stef\u00e1n, Valur og Rafn eru komnir saman \u00e1 r\u00f3dtripp \u2013 \u00f6llu eldri en engu v\u00edsari!<\/p><p><img decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-31091 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Maggi-gegn-FH-1-300x200.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"200\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Maggi-gegn-FH-1-300x200.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Maggi-gegn-FH-1-800x533.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Maggi-gegn-FH-1-1024x682.jpg 1024w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Maggi-gegn-FH-1-768x512.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Maggi-gegn-FH-1-1536x1023.jpg 1536w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Maggi-gegn-FH-1.jpg 2048w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/>Eftir a\u00f0 hafa villst l\u00edtilega \u00e1 hringtorgum Akranesskaupsta\u00f0ar fundu \u00feremenningarnir loks \u00ed\u00fer\u00f3ttasv\u00e6\u00f0i\u00f0 og parkeru\u00f0u fyrir ne\u00f0an f\u00f3tboltah\u00f6llina. T\u00e6knime\u00f0vita\u00f0ir eins og \u00feeir eru fundu f\u00e9lagarnir \u00fat \u00far Stubbs-appinu og komu s\u00e9r fyrir \u00e1 besta sta\u00f0 vi\u00f0 mi\u00f0bik vallarins. \u00cd s\u00e6tar\u00f6\u00f0unum fyrir framan var \u00farvalssveit Framkvenna: \u00fe\u00e6r El\u00edn \u00de\u00f3ra, Svanhv\u00edt og Hulda Bj\u00f6rk. \u00dear var sko ekki t\u00f6lu\u00f0 vitleysan! \u00c1 n\u00e6stu gr\u00f6sum voru gamlir jaxlar eins og Steinar Berg og sj\u00e1lfur Marteinn Geirsson, sem var verulega gle\u00f0ilegt a\u00f0 sj\u00e1 \u00e1 vellinum.<\/p><p>Li\u00f0suppstillingin var svipu\u00f0 og s\u00ed\u00f0ast. \u00d3li \u00ed markinu, Brynjar Gauti og Dephin sem mi\u00f0ver\u00f0ir. M\u00e1r og Alex bakver\u00f0ir. Almarr og Indri\u00f0i \u00c1ki aftarlega \u00e1 mi\u00f0junni me\u00f0 Albert \u00fear fyrir framan \u00e1 m\u00f3ti s\u00ednu gamla f\u00e9lagi. Albert hefur veri\u00f0 gr\u00e1tt leikinn af mei\u00f0slum \u00ed sumar og ekki skugginn af sj\u00e1lfum s\u00e9r og \u00fev\u00ed gaman a\u00f0 sj\u00e1 hann loksins \u00ed byrjunarli\u00f0i! Maggi \u00de\u00f3r\u00f0ar var \u00e1 \u00f6\u00f0rum kantinum og Tiago \u00e1 hinum \u2013 a\u00f0 nafninu til \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta. Gummi fremstur. (Fred er meiddur og \u00fev\u00ed hvorki \u00ed li\u00f0inu n\u00e9 \u00e1 bekknum.)<\/p><p><img decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-31094 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Alex-gegn-IBV-240x300.jpg\" alt=\"\" width=\"240\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Alex-gegn-IBV-240x300.jpg 240w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Alex-gegn-IBV-800x1000.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Alex-gegn-IBV-819x1024.jpg 819w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Alex-gegn-IBV-768x960.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Alex-gegn-IBV-1229x1536.jpg 1229w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Alex-gegn-IBV.jpg 1330w\" sizes=\"(max-width: 240px) 100vw, 240px\" \/>\u00c1\u00f0ur en lengra er haldi\u00f0, er l\u00edklega r\u00e9tt a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 fram a\u00f0 vallara\u00f0st\u00e6\u00f0ur voru mj\u00f6g \u00f3hagst\u00e6\u00f0ar heimali\u00f0inu \u2013 jafnvel svo mj\u00f6g a\u00f0 velta m\u00e1 \u00fev\u00ed fyrir s\u00e9r hvort sanngjarnt hafi veri\u00f0 a\u00f0 spila vi\u00f0 \u00feessar kringumst\u00e6\u00f0ur. Hl\u00fdtt var \u00e1 vellinum og n\u00e1nast enginn vindur. Allir lesendur Opinberunarb\u00f3karinnar vita a\u00f0 logn \u00e1 Skaganum er fj\u00f3r\u00f0a innsigli\u00f0 \u2013 \u00e1 milli engisprettupl\u00e1gunnar og dau\u00f0a frumbur\u00f0anna!<\/p><p>Leikurinn h\u00f3fst me\u00f0 l\u00e1tum \u00fear sem b\u00e6\u00f0i li\u00f0 sk\u00f6pu\u00f0u s\u00e9r t\u00e6kif\u00e6ri. Framarar voru \u00fe\u00f3 betri og Gu\u00f0mundur og Magn\u00fas ger\u00f0u b\u00e1\u00f0ir atl\u00f6gu a\u00f0 Skagamarkinu \u00e1 fyrstu t\u00edu m\u00edn\u00fatum \u00e1 me\u00f0an heimamenn \u00f3gnu\u00f0u ekki a\u00f0 marki. R\u00e9tt \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 \u00e1tti svo Indiri\u00f0i g\u00f3\u00f0an skalla a\u00f0 marki eftir sendingu Almars sem var varinn. Hinu megin \u00e1 vellinum \u00feurfti \u00d3li a\u00f0 taka \u00e1 honum st\u00f3ra s\u00ednum \u00ed f\u00e1ein skipti. Gle\u00f0ilegt var annars a\u00f0 sj\u00e1 hva\u00f0 markv\u00f6r\u00f0urinn okkar var grimmur \u00ed \u00fathlaupum \u00ed teiginn \u00ed leiknum, sem hefur veri\u00f0 kalla\u00f0 d\u00e1l\u00edt\u00f0 eftir upp \u00e1 s\u00ed\u00f0kasti\u00f0. Fr\u00e1b\u00e6r frammista\u00f0a og h\u00e6sta einkunn \u00ed kv\u00f6ld!<\/p><p>Nonni \u00fej\u00e1lfari er meistari \u00ed a\u00f0 greina veiku blettina \u00ed varnarleik andst\u00e6\u00f0inganna og l\u00e1ta s\u00e6kja \u00ed \u00fe\u00e1 \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0. \u00cd dag var \u00fea\u00f0 h\u00e6gri kanturinn hj\u00e1 Skaganum sem bau\u00f0 til veislu og Framarar l\u00e9tu ekki segja s\u00e9r \u00fea\u00f0 tvisvar. Eftir n\u00edtj\u00e1n m\u00edn\u00fatna leik l\u00e9k Albert \u00fat \u00e1 kant, sendi boltann inn \u00e1 v\u00edtateig \u00fear sem Magn\u00fas kom a\u00f0v\u00edfandi, drap boltann ni\u00f0ur, t\u00f3k \u00e1 a\u00f0v\u00edfandi m\u00f3therja og skaut svo beint \u00ed bl\u00e1horni\u00f0, 0:1 fyrir Fram!<\/p><p>Fr\u00e9ttaritarinn f\u00e9ll einu sinni \u00ed \u00fe\u00e1 gryfju a\u00f0 rugla saman Magga \u00de\u00f3r\u00f0ar og M\u00e1 \u00c6gissyni. Honum til afs\u00f6kunar m\u00e1 benda \u00e1 a\u00f0 allir mj\u00f3slegnir, burstaklipptir menn um tv\u00edtugt l\u00edta eins \u00fat. \u00dea\u00f0 sanna\u00f0ist tveimur m\u00edn\u00fatum eftir marki\u00f0, \u00fear sem Albert f\u00e9kk boltann \u00e1 n\u00fd, \u00e1 n\u00e1kv\u00e6mlega sama sta\u00f0 og fyrr, sendi hann inn \u00ed v\u00edtateiginn \u00fear sem M\u00e1r kom a\u00f0v\u00edfandi \u00e1 sama sta\u00f0 og lyfti boltanum yfir Skagav\u00f6rnina og markv\u00f6r\u00f0inn \u00ed bl\u00e1horni\u00f0 fj\u00e6r. Frekar vandr\u00e6\u00f0alegt mark fyrir heimamenn, en fl\u00f3ki\u00f0 fyrir Framara \u00fear sem M\u00e1r fagna\u00f0i \u00e1 n\u00e1kv\u00e6mlega sama h\u00e1tt og f\u00e9lagi Magn\u00fas. Er til of mikils m\u00e6lst a\u00f0 annar \u00feeirra liti h\u00e1ri\u00f0 \u00e1 s\u00e9r gr\u00e6nt til a\u00f0greiningar?<\/p><p>\u00cd s\u00ed\u00f0asta Framleik \u00e1 Skaganum t\u00f6pu\u00f0um vi\u00f0 3:0 me\u00f0 b-li\u00f0i\u00f0 inn\u00e1. \u00cd lj\u00f3si \u00feess var h\u00e1lffur\u00f0ulegt a\u00f0 fara \u00ed hl\u00e9i\u00f0 me\u00f0 tveggja marka forystu. Gestgjafarnir voru aumir og enginn haf\u00f0i tr\u00fa \u00e1 verulegum vi\u00f0sn\u00faningi.<\/p><p>Seinni h\u00e1lfleikur var n\u00fdbyrja\u00f0ur \u00feegar Alex t\u00f3k \u00e1 r\u00e1s upp kantinn, l\u00e9k \u00ed gegnum v\u00f6rn Skagamanna og eftir a\u00f0 hafa s\u00f3la\u00f0 einn af \u00f6\u00f0rum hr\u00f6kk boltinn til hans \u00e1 n\u00fd og hann setti hann \u00ed neti\u00f0, kostulegt mark en verulega vandr\u00e6\u00f0alegt fyrir Skagav\u00f6rnina! 3:0!<\/p><p>Albert f\u00f3r af velli fyrir Tryggva eftir klukkut\u00edma. Hann var greinilega r\u00e6kilega b\u00fainn \u00e1 \u00fev\u00ed, en verulega gle\u00f0ilegt a\u00f0 sj\u00e1 hann eiga tv\u00e6r sto\u00f0sendingar gegn s\u00ednu gamla li\u00f0i. \u00cd raun er magna\u00f0 hva\u00f0 Framli\u00f0i\u00f0 hefur skila\u00f0 g\u00f3\u00f0urm \u00e1rangri \u00e1n Alberts, okkar langbesta manns \u00ed fyrra, \u00e1 \u00feessu sumri. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar \u00e1tti Tiago flotta sendingu \u00e1 Magga sem sendi fyrir \u00e1 Gumma Magg sem stanga\u00f0i hann inn, 4:0 og markahr\u00f3kurinn okkar f\u00e6rist enn n\u00e6r topps\u00e6tinu.<\/p><p>\u00deegar um stundarfj\u00f3r\u00f0ungur var eftir f\u00f3ru Alex og Almarr af velli fyrir Orra og Jes\u00fas. Undir lokin komu svo Aron K\u00e1ri og \u00d3skar inn fyrir Tiago og Magn\u00fas. \u00dea\u00f0 haf\u00f0i \u00fe\u00f3 engin alv\u00f6ru \u00e1hrif \u00e1 \u00farslit leiksins og sigur Framara!<\/p><p>Fj\u00f6gur n\u00fall \u00e1 Akranesi eru \u00farslit sem Fram hefur ekki n\u00e1\u00f0 \u00ed \u00e1ratugi. Lengi megi \u00fea\u00f0 lifa!<\/p><p>A\u00f0 taka \u00fat frammist\u00f6\u00f0u einstakra leikmanna v\u00e6ri ekki fyllilega sanngjarnt. Varnarl\u00ednan ver\u00f0skuldar \u00fe\u00f3 s\u00e9rstakt hr\u00f3s enda h\u00e9lt h\u00fan hreinu. Almarr \u00f3gna\u00f0i vel, Magn\u00fas og M\u00e1r s\u00f6mulei\u00f0is. Tiago ger\u00f0i allt sem h\u00e6gt var a\u00f0 \u00f3ska fr\u00e1 honum.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Klukkan 8:05 r\u00e6sti fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar b\u00edl sinn fyrir framan heimili tengdaf\u00f6\u00f0ur s\u00edns \u00ed Neskaupsta\u00f0 eftir t\u00edu daga sumarfr\u00ed \u00ed Austfjar\u00f0a\u00feokunni. Hann kvaddi g\u00edrkassinn \u00e1 b\u00edlnum er t\u00e6pur og \u00feolir illa [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":31021,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-31090","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/Almar-gegn-Fh.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/31090","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=31090"}],"version-history":[{"count":8,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/31090\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":31101,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/31090\/revisions\/31101"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/31021"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=31090"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=31090"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=31090"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}