{"id":31378,"date":"2022-08-16T10:54:35","date_gmt":"2022-08-16T10:54:35","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=31378"},"modified":"2022-08-16T10:55:42","modified_gmt":"2022-08-16T10:55:42","slug":"langir-skuggar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2022\/08\/16\/langir-skuggar\/","title":{"rendered":"Langir skuggar"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"31378\" class=\"elementor elementor-31378\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-5d4a67bf elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"5d4a67bf\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-5738b676\" data-id=\"5738b676\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-681cf3bb elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"681cf3bb\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-31383 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/08\/Ahorfendur-gegn-Leikni--300x200.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"200\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/08\/Ahorfendur-gegn-Leikni--300x200.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/08\/Ahorfendur-gegn-Leikni--768x512.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/08\/Ahorfendur-gegn-Leikni-.jpg 799w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/>\u201eErtu kominn me\u00f0 fyrirs\u00f6gn \u00e1 pistil kv\u00f6ldsins?\u201c \u2013 spur\u00f0i \u00deorsteinn Jo\u00f0 sem sat vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 skjaldsveininum Val Nor\u00f0ra um mi\u00f0jan seinni h\u00e1lfleikinn. \u00deegar ma\u00f0urinn sem f\u00e6r\u00f0i okkur \u201e\u00deetta l\u00edf, \u00feetta l\u00edf\u201c\u00a0og kenndi \u00fej\u00f3\u00f0inni a\u00f0 meta Blondie \u00ed tengslum vi\u00f0 einhverja heimsmeistarakeppnina \u00ed f\u00f3tbolta kemur me\u00f0 upp\u00e1stungur, \u00fe\u00e1 leggja r\u00e9ttir og sl\u00e9ttir fr\u00e9ttaritarar vi\u00f0 hlustir. &#8211; \u201eNei, svo sem ekki. Ert \u00fe\u00fa kominn me\u00f0 eitthva\u00f0?\u201c \u2013 \u201eLangir skuggar!\u201c<\/p><p>\u00cd eitt augnablik h\u00e9lt fr\u00e9ttaritarinn a\u00f0 h\u00e9r v\u00e6ri komin f\u00e1r\u00e1nlega dj\u00fap v\u00edsun \u00ed Langa Sela og Skuggana, hi\u00f0 ep\u00edska rokkabill\u00edband sem fr\u00e6gast var fyrir hittarann \u201eBrei\u00f0holtsb\u00fag\u00ed\u201c. M\u00f3therjar okkar \u00ed kv\u00f6ld, Leiknismenn koma j\u00fa \u00far Brei\u00f0holtinu (hnyttin tenging) en bu\u00f0u ekki upp \u00e1 neitt b\u00fag\u00ed&#8230; \u2013 \u00deetta var samt ekkert svona dj\u00fapt. F\u00e9lagi Jo\u00f0 haf\u00f0i einfaldlega veitt \u00fev\u00ed athygli hva\u00f0 skuggar leikmanna voru f\u00e1r\u00e1nlega langir \u00e1 grasinu \u00ed Dal draumanna. Meira a\u00f0 segja s\u00f3lin er me\u00f0 Fram \u00ed li\u00f0i \u00feessi d\u00e6grin. Meira um \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0ar.<\/p><p>Fr\u00e9ttaritarinn t\u00f3k str\u00e6t\u00f3 \u00e1 v\u00f6llinn eins og eiginlega alltaf eftir a\u00f0 hann uppg\u00f6tva\u00f0i hva\u00f0 lei\u00f0 18 er mikil snilld. Eftir a\u00f0 hafa \u00edtreka\u00f0 m\u00e6tt eins og f\u00e1r\u00e1\u00f0ur kappkl\u00e6ddur \u00e1 v\u00f6llinn, var stuttermabolurinn l\u00e1tinn n\u00e6gja a\u00f0 \u00feessu sinni. \u00dea\u00f0 er alltaf d\u00fdr\u00f0arver\u00f0ur \u00ed \u00dalfars\u00e1rdal. Ma\u00f0urinn sem laug \u00fev\u00ed a\u00f0 ver\u00f6ldinni a\u00f0 \u00fearna uppfr\u00e1 v\u00e6ri stundum n\u00e6\u00f0ingur hefur v\u00e6ntanlega veri\u00f0 \u00fatsendari einhvers \u00f6murlegs fasteignaf\u00e9lags sem reynir a\u00f0 pranga skuggavarps\u00edb\u00fa\u00f0arholum inn \u00e1 f\u00f3lk \u00e1 \u00fe\u00e9ttingarreitum \u00ed vesturborginni til a\u00f0 kaupa gamla f\u00f3tboltadani og afl\u00f3ga k\u00f6rfuboltakringa. Lj\u00f3tt, lj\u00f3tt sag\u00f0i fuglinn.<\/p><p>H\u00fasi\u00f0 i\u00f0a\u00f0i af l\u00edfi klukkut\u00edma fyrir leik. Geiramenn s\u00f6fnu\u00f0ust saman \u00ed sinni \u00e1lmu. Kvennali\u00f0i\u00f0 okkar \u00ed parketgl\u00edmu var vi\u00f0 \u00e6fingar \u00ed \u00ed\u00fer\u00f3ttasalnum og \u00ed f\u00ednumannabo\u00f0inu \u00ed vippinu voru samlokur skornar \u00ed \u00fer\u00edhyrninga \u00e1 \u00feann h\u00e1tt sem breytir bens\u00ednst\u00f6\u00f0vaf\u00e6\u00f0i \u00ed hanast\u00e9lsbita \u00e1 augabrag\u00f0i. Stemningin var p\u00ednkul\u00edti\u00f0 skr\u00edtin. Allir ger\u00f0u kr\u00f6fu um sigur, en um lei\u00f0 virka\u00f0i \u00feetta einmitt eins og leikur \u00fear sem vi\u00f0 myndum misst\u00edga okkur.<\/p><p>Fr\u00e9ttaritarinn stoppa\u00f0i hj\u00e1 Skonrokkbr\u00e6\u00f0runum Snorra M\u00e1 og Sk\u00fala Helga. \u00deeir voru d\u00e1l\u00edti\u00f0 st\u00farnir yfir a\u00f0 vera \u00edtreka\u00f0 kenndir \u00ed \u00feessum pistlum vi\u00f0 t\u00f3nlistar\u00fe\u00e1tt sem \u00feeir st\u00fdr\u00f0u aldrei. \u00dev\u00ed mi\u00f0ur er alltof seint a\u00f0 breyta \u00feessu. \u00deegar svona vi\u00f0urnefni eru komin \u00e1 flot \u00ed jafnv\u00ed\u00f0lesnum pistlum er \u00fatiloka\u00f0 a\u00f0 koma vi\u00f0 nokkrum lei\u00f0r\u00e9ttingum. Athugasemdirnar voru \u00fev\u00ed vegnar og l\u00e9ttv\u00e6gar fundnar. N\u00e6st var l\u00edka komi\u00f0 a\u00f0 Nonna \u00fej\u00e1lfara a\u00f0 kynna li\u00f0i\u00f0.<\/p><p><img decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-31382 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/08\/Alex-gegn-leikni--300x200.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"200\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/08\/Alex-gegn-leikni--300x200.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/08\/Alex-gegn-leikni--768x512.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/08\/Alex-gegn-leikni-.jpg 799w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/>Mei\u00f0sli hafa sett J\u00f3ni og A\u00f0alsteini nokkrar skor\u00f0ur upp \u00e1 s\u00ed\u00f0kasti\u00f0. Fred hefur veri\u00f0 a\u00f0 klj\u00e1st vi\u00f0 hn\u00e9mei\u00f0sli allt fr\u00e1 vi\u00f0ureigninni vi\u00f0 KR-b\u00f6\u00f0lanna (ath: t\u00falkun fr\u00e9ttaritara, ekki \u00fej\u00e1lfarateymis Fram) og Jannik hefur veri\u00f0 lengur a\u00f0 jafna sig af \u00f6kklamei\u00f0slum en vonir st\u00f3\u00f0u til. Vi\u00f0 h\u00f6fum virkilega sakna\u00f0 Danans okkar \u00ed s\u00f3knarleiknum, en \u00feeir Gu\u00f0mundur hafa n\u00e1\u00f0 fr\u00e1b\u00e6rlega saman.<\/p><p>\u00d3li var \u00ed markinu. Brynjar Gauti \u00ed annarri mi\u00f0var\u00f0arst\u00f6\u00f0unni og Delphin \u00ed hinni, fyrir Hlyn fr\u00e1 s\u00ed\u00f0asta leik. M\u00e1r kom aftur inn \u00ed bakv\u00f6r\u00f0inn fyrir Jes\u00fas og Alex var hinu megin. Almarr og Indri\u00f0i \u00c1ki \u00e1 mi\u00f0junni me\u00f0 Tiago og Magn\u00fas \u00e1 k\u00f6ntunum. Albert og Gummi Magg frammi. Flj\u00f3tlega \u00e1 eftir J\u00f3ni var hei\u00f0ursgestur demantakl\u00fabbsins \u00ed leiknum kynntur \u00e1 svi\u00f0, Hannes \u00de\u00f3r Halld\u00f3rsson \u2013 okkar eftirl\u00e6tis Brei\u00f0hyltingur \u2013 rifja\u00f0i upp g\u00f3\u00f0 \u00e1r \u00ed Framtreyjunni. Be\u00f0inn um a\u00f0 sp\u00e1 fyrir um \u00farslitin svara\u00f0i hann: \u201eVinni\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00feetta ekki l\u00e9tt? 3:1?\u201c (\u00deessir markmenn vita ekki neitt.)<\/p><p>Ni\u00f0ri \u00ed st\u00faku \u00e1ttu fr\u00e9ttaritarinn, skjaldsveininn og Rabbi \u00e1samt sonum \u00ed mestu vandr\u00e6\u00f0um me\u00f0 a\u00f0 finna s\u00e6ti \u00e1 s\u00ednum kj\u00f6rsl\u00f3\u00f0um vi\u00f0 mi\u00f0l\u00ednuna. \u00dea\u00f0 heldur \u00e1fram a\u00f0 vera sama mannmerg\u00f0in \u00e1 Framleikjum \u2013 \u00ed kv\u00f6ld m\u00e6ttu 844 \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 afar f\u00e1li\u00f0a\u00f0 v\u00e6ri gestamegin. \u00dea\u00f0 er l\u00edka alltaf skora\u00f0 \u00e1 Framleikjum. Og \u00e1horfendur l\u00e1ta \u00ed s\u00e9r heyra. B\u00f6rnin \u00e1 trommunum voru meira a\u00f0 segja me\u00f0 taktvissara m\u00f3ti \u00fe\u00f3tt hn\u00edfsd\u00e6lska trymbilsins v\u00e6ri a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u s\u00e1rt sakna\u00f0.<\/p><p><img decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-31381 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/08\/Magnus-gegn-Leikni--300x200.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"200\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/08\/Magnus-gegn-Leikni--300x200.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/08\/Magnus-gegn-Leikni--768x512.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/08\/Magnus-gegn-Leikni-.jpg 799w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/>Framarar virtust ekki sj\u00e1lfum s\u00e9r l\u00edkir fr\u00e1 fyrstu sek\u00fandu og eftir r\u00e9tt r\u00famlega h\u00e1lfa m\u00edn\u00fatu voru Leiknismenn n\u00e6rri komnir yfir eftir fr\u00edan skalla utarlega \u00ed markteignum. Gestirnir voru m\u00e6ttir til a\u00f0 s\u00e6kja stig, eitt e\u00f0a fleiri, en Framli\u00f0i\u00f0 var varf\u00e6ri\u00f0 og virtist alltaf taka aukasnertinguna \u00e1 hvern einasta bolta.<\/p><p>Eftir t\u00e6par t\u00edu m\u00edn\u00fatur s\u00f3ttu Framarar hratt upp v\u00f6llinn. Gummi nikka\u00f0i boltanum me\u00f0 kollinum fyrir f\u00e6turnar \u00e1 Magga sem virtist anna\u00f0 hvort reyna fullkomlega k\u00e6ruleysislegt skot \u00far sl\u00f6ku f\u00e6ri e\u00f0a algj\u00f6rlega misheppna\u00f0a sendingu \u2013 hvort svo sem \u00fea\u00f0 var lak boltinn \u00e1 fur\u00f0ulegan h\u00e1tt framhj\u00e1 Leiknismarkver\u00f0inum. Vandr\u00e6\u00f0aleg mist\u00f6k, en Framarar komnir yfir.<\/p><p>Brei\u00f0hyltingar virtust sta\u00f0r\u00e1\u00f0nir \u00ed a\u00f0 svara strax fyrir sig og \u00e1 n\u00e6stu m\u00edn\u00fatum \u00feurfti \u00d3li \u00ed tv\u00edgang a\u00f0 verja vel fr\u00e1 \u00feeim. \u00dea\u00f0 er gle\u00f0ilegt a\u00f0 sj\u00e1 hva\u00f0 markv\u00f6r\u00f0urinn okkar hefur n\u00e1\u00f0 vel a\u00f0 hrista af s\u00e9r vonda kaflann um mitt m\u00f3t og er aftur kominn \u00e1 \u00feann sta\u00f0 sem vi\u00f0 \u00e1ttum a\u00f0 venjast \u00ed Lengjudeildinni \u00ed fyrra \u2013 sem vir\u00f0ist \u00fe\u00f3 einhvern veginn vera fyrir hundra\u00f0 \u00e1rum s\u00ed\u00f0an.<\/p><p>Flj\u00f3tlega misstu gestirnir aftur m\u00f3\u00f0inn og Framarar unnu sig aftur inn \u00ed leikinn. Okkar menn virtust hafa boltann drj\u00fagan meirihlutann af leiknum en \u00f3gnu\u00f0u l\u00edti\u00f0, spili\u00f0 var ekki n\u00f3gu hratt og allt of oft leitu\u00f0u sendingar aftar \u00e1 v\u00f6llinn \u00ed sta\u00f0inn fyrir a\u00f0 fara fram \u00e1 vi\u00f0. F\u00e1ein h\u00e1lff\u00e6ri litu dagsins lj\u00f3s og fimm m\u00edn\u00fatum fyrir hl\u00e9 vildi Alex f\u00e1 v\u00edtaspyrnu, eftir a\u00f0 hafa tali\u00f0 andst\u00e6\u00f0ing hafa k\u00fdlt sig \u00e1 versta sta\u00f0. \u00c1horfendur bi\u00f0u spenntir eftir hefndarbrotinu en \u00fea\u00f0 kom aldrei og Alex lauk leik \u00e1n \u00feess a\u00f0 n\u00e6la s\u00e9r \u00ed gult spjald. (M\u00e1 \u00fea\u00f0?)<\/p><p>Umr\u00e6\u00f0an \u00ed h\u00e1lfleikskaffinu var \u00f6ll \u00e1 einn veg: engum fannst frammista\u00f0an g\u00f3\u00f0 og ef Leiknismenn myndu a\u00f0eins ranka vi\u00f0 s\u00e9r \u00ed seinni h\u00e1lfleik \u00fe\u00e1 g\u00e6ti fari\u00f0 illa.<\/p><p>Leikur h\u00f3fst a\u00f0 n\u00fdju og einhverjar s\u00e6taskiptingar h\u00f6f\u00f0u \u00e1tt s\u00e9r sta\u00f0 \u00ed st\u00fakunni og fr\u00e9ttaritarinn sat n\u00fa vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 m\u00f6mmu Gu\u00f0j\u00f3nssona \u2013 en enginn \u00feeirra var \u00fe\u00f3 sj\u00e1anlegur \u00e1 vellinum. Svo breg\u00f0ast krosstr\u00e9&#8230; Hins vegar var J\u00f3n Bergvinsson, gamli yfirma\u00f0ur fr\u00e9ttaritarans \u00ed b\u00e6jarvinnunni m\u00e6ttur. Hann er eini stu\u00f0ningsma\u00f0ur Burton Albion \u00e1 \u00cdslandi \u00e1 allan hei\u00f0ur skili\u00f0 fyrir \u00fea\u00f0, auk \u00feess a\u00f0 vera \u00f6ndvegis Framari.<\/p><p>Framarar byrju\u00f0u betur og Albert og Tiago s\u00f3ttu a\u00f0 Leiknismarkinu. Port\u00fagalinn, sem var eins og venjulega okkar besti ma\u00f0ur, var eitthva\u00f0 lengi a\u00f0 gaufa og \u00fatkoman var horn. M\u00edn\u00fatu fyrr haf\u00f0i skjaldsveinninn Valur Nor\u00f0ri haft or\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed hva\u00f0 s\u00f3lin v\u00e6ri l\u00e1gt \u00e1 lofti og hlyti a\u00f0 sk\u00edna sk\u00e6rt \u00ed augu markvar\u00f0arins, sem haf\u00f0i dregi\u00f0 fram derh\u00fafu sem greinilega haf\u00f0i ekkert a\u00f0 segja. \u201eEr ekki bara m\u00e1li\u00f0 a\u00f0 l\u00e1ta va\u00f0a eins n\u00e1l\u00e6gt markinu og m\u00f6gulegt er \u2013 hann er aldrei a\u00f0 fara a\u00f0 verja \u00feetta?\u201c \u2013 Tiago t\u00f3k skjaldsveininn \u00e1 or\u00f0inu og fleytti boltanum snyrtilega fyrir marki\u00f0 \u00ed seilingarfjarl\u00e6g\u00f0 fyrir s\u00f3larblinda\u00f0an markv\u00f6r\u00f0inn og beint \u00e1 kollinn \u00e1 Brynjari Gauta sem stanga\u00f0i \u00ed neti\u00f0, 2:0.<\/p><p>N\u00e1kv\u00e6mlega hvers vegna Stj\u00f6rnumenn leyf\u00f0u Fram a\u00f0 hir\u00f0a mi\u00f0var\u00f0artr\u00f6lli\u00f0 mun enginn skilja. S\u00ed\u00f0ast \u00ed g\u00e6r sat fr\u00e9ttaritarinn \u00ed Fj\u00f3si Valsmanna og horf\u00f0i \u00e1 Gar\u00f0b\u00e6inga kj\u00f6ldregna og spjalla\u00f0i vi\u00f0 kunningja \u00far Gar\u00f0ab\u00e6num&#8230; \u201eIss, Brynjar Gauti getur ekki neitt\u201c, sag\u00f0i kunninginn, \u201enema a\u00f0 skalla fr\u00e1. Og a\u00f0 sparka \u00ed burtu&#8230;. og j\u00fa, hann er reyndar rosalega g\u00f3\u00f0ur ma\u00f0ur \u00e1 m\u00f3ti manni.\u201c\u00a0\u2013 N\u00e1kv\u00e6mlega hva\u00f0 anna\u00f0 viltu f\u00e1 fr\u00e1 mi\u00f0ver\u00f0inum \u00fe\u00ednum?<\/p><p>\u00cd st\u00f6\u00f0unni 2:0 virtist allur vindur \u00far Brei\u00f0hyltingum. Brei\u00f0holtsb\u00fag\u00ed me\u00f0 Langa Sela? Niii&#8230; meira Killer Boogie me\u00f0 Q4U&#8230;. Og \u00fe\u00f3! Eftir t\u00e6plega klukkut\u00edma leik fengu \u00feeir v\u00edtaspyrnu upp \u00far n\u00e1kv\u00e6mlega engu \u00fear sem Alex var \u00f6rl\u00edti\u00f0 klaufalegur \u00ed v\u00f6rninni, snertingin l\u00edtil en v\u00edti d\u00e6mt. 2:1. Var leikurinn a\u00f0 fara a\u00f0 ver\u00f0a spennandi \u00e1 n\u00fd?<\/p><p>Neinei&#8230; \u00feetta var bara t\u00edmabundi\u00f0 stress. F\u00e1einum m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar f\u00e9kk Tiago aukaspyrnu fyrir kj\u00e1nalegt peysutog. (Mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 bakhrindingarnar og peysutogi\u00f0 \u00ed leiknum m\u00e6tti \u00e6tla a\u00f0 Leiknismenn v\u00e6ru handboltali\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00feessari vi\u00f0ureing en ekki vi\u00f0.) Hann sendi fyrir \u00fear sem Delphin kom \u00f3valda\u00f0ur en n\u00e1\u00f0i ekki til boltans. \u00dea\u00f0 ger\u00f0i hins vegar Gummi Magg sem var jafn\u00f3valda\u00f0ur og skalla\u00f0i \u00ed neti\u00f0. 3:1 og vondur dagur \u00e1 skrifstofu varnarm\u00e1lasvi\u00f0s Leiknis.<\/p><p>Eftir \u00feetta voru \u00farslitin aldrei spurning. Vi\u00f0 hef\u00f0um geta\u00f0 skora\u00f0 7-8 m\u00f6rk, en \u00fea\u00f0 hef\u00f0i ekki veri\u00f0 sanngjarnt \u2013 \u00fev\u00ed \u00ed raun var frammista\u00f0a Framara \u00ed dag ekkert til a\u00f0 hr\u00f3pa h\u00farra fyrir, \u00fer\u00e1tt fyrir alla lofrulluna \u00ed St\u00fakunni \u00e1 St\u00f6\u00f0 2 Sport, \u00fear sem \u00ed\u00fer\u00f3ttafr\u00e9ttamannast\u00e9ttin er enn a\u00f0 reyna a\u00f0 bjarga andlitinu eftir a\u00f0 hafa sp\u00e1\u00f0 okkur hrakf\u00f6rum \u00ed byrjun m\u00f3ts. Fj\u00f3r\u00f0a marki\u00f0 leit \u00fe\u00f3 dagsins lj\u00f3s. Magn\u00fas \u00e1tti flotta sendingu \u00e1 Almarr sem framlengdi \u00e1 Albert sem skora\u00f0i snyrtilega, 4:1.<\/p><p>Flj\u00f3tlega eftir lokamarki\u00f0 f\u00f3r Magn\u00fas af velli eftir sm\u00e1p\u00fastra og Tryggvi kom inn. Orri kom inn\u00e1 fyrir Albert (og var f\u00e1r\u00e1nlega n\u00e1l\u00e6gt \u00fev\u00ed a\u00f0 skora \u00far fyrsti snertingu og Arn\u00f3r Da\u00f0i kom inn\u00e1 fyrir Almarr. S\u00ed\u00f0ar leystu \u00feeir Jes\u00fas og Hlynur \u00fe\u00e1 M\u00e1 og Indri\u00f0a \u00c1ka af h\u00f3lmi. \u00dea\u00f0 ramma\u00f0i l\u00edklega leikinn fullkomlega inn \u00feegar Hlynur var undir lokin sprottinn \u00ed gegnum Leiknisv\u00f6rnina sem fremsti ma\u00f0ur og n\u00e6rri b\u00fainn a\u00f0 skora.<\/p><p>\u00deriggja marka sigur \u00ed Dal draumanna er au\u00f0vita\u00f0 fr\u00e1b\u00e6r \u00farslit. \u00dej\u00e1lfarateymi\u00f0 sem sag\u00f0i fyrir fyrsta leik a\u00f0 markmi\u00f0i\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0 komast \u00ed \u00farslitakeppnina er \u00e1 g\u00f3\u00f0ri lei\u00f0 me\u00f0 a\u00f0 standa vi\u00f0 st\u00f3ru or\u00f0in. Hamborgararnir \u00ed \u00dalfars\u00e1rdal eru betri en annars sta\u00f0ar og stu\u00f0ningsmannal\u00f6gin okkar fyndnari og svalari. Ekkert klappli\u00f0 \u00e1 landinu \u00e1 betra hr\u00f3p en \u201eVi\u00f0 erum Geiramenn!\u201c \u2013 G\u00e6ti l\u00edfi\u00f0 veri\u00f0 lj\u00fafara? Varla. N\u00e6sta stopp: 5:3 sigur \u00e1 Blikum.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u201eErtu kominn me\u00f0 fyrirs\u00f6gn \u00e1 pistil kv\u00f6ldsins?\u201c \u2013 spur\u00f0i \u00deorsteinn Jo\u00f0 sem sat vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 skjaldsveininum Val Nor\u00f0ra um mi\u00f0jan seinni h\u00e1lfleikinn. \u00deegar ma\u00f0urinn sem f\u00e6r\u00f0i okkur \u201e\u00deetta l\u00edf, [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":31379,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-31378","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/08\/Gummi-gegn-Leikni-vefur.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/31378","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=31378"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/31378\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":31386,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/31378\/revisions\/31386"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/31379"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=31378"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=31378"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=31378"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}