{"id":31772,"date":"2022-09-12T10:23:30","date_gmt":"2022-09-12T10:23:30","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=31772"},"modified":"2022-09-12T11:16:03","modified_gmt":"2022-09-12T11:16:03","slug":"virus-vestmannaeyjum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2022\/09\/12\/virus-vestmannaeyjum\/","title":{"rendered":"V\u00cdRUS \u00cd VESTMANNAEYJUM"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"31772\" class=\"elementor elementor-31772\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-72acad73 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"72acad73\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-4483c7d\" data-id=\"4483c7d\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-70a4a1ff elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"70a4a1ff\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\">\n\t\t\t\t\t\t\t\t\t<p><\/p>\n<p><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-31775 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/Jannik-gegn-IBV--240x300.jpg\" alt=\"\" width=\"240\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/Jannik-gegn-IBV--240x300.jpg 240w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/Jannik-gegn-IBV--scaled-800x1000.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/Jannik-gegn-IBV--819x1024.jpg 819w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/Jannik-gegn-IBV--768x960.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/Jannik-gegn-IBV--1229x1536.jpg 1229w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/Jannik-gegn-IBV--1639x2048.jpg 1639w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/Jannik-gegn-IBV--scaled.jpg 2048w\" sizes=\"(max-width: 240px) 100vw, 240px\" \/>Konunni minni leist mj\u00f6g vel \u00e1 \u00fe\u00e1 sj\u00e1lfsprottnu hugmynd m\u00edna a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a henni \u00ed r\u00f3mant\u00edska helgarfer\u00f0 til Vestmannaeyja um n\u00fdli\u00f0na helgi. \u00deetta kom henni skemmtilega \u00e1 \u00f3vart \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er ekki oft sem vi\u00f0 heims\u00e6kjum Eyjar. Ekki a\u00f0 vi\u00f0 hef\u00f0um endilega \u00feurft eitthvert s\u00e9rstakt tilefni til, vi\u00f0 erum b\u00e6\u00f0i mj\u00f6g hrifin af \u00feessaum fallega b\u00e6, en \u00fe\u00e1 vildi svo skemmtilega til a\u00f0 \u00fea\u00f0 var h\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed eyjunni. Matarh\u00e1t\u00ed\u00f0, \u00fear sem sj\u00e1varfang var \u00ed forgrunni. Al\u00fej\u00f3\u00f0legir gestakokkar voru \u00ed heims\u00f3kn \u00e1 nokkrum vel v\u00f6ldum mats\u00f6lust\u00f6\u00f0um eyjunnar og vi\u00f0 p\u00f6ntu\u00f0um bor\u00f0 \u00e1 laugardagskv\u00f6ldinu. Vi\u00f0 hj\u00f3nin erum b\u00e6\u00f0i a\u00f0 vestan og hreinlega alin upp \u00e1 k\u00falu\u00f0um steinb\u00edt, signum b\u00fatungi, k\u00e6stu og mignu g\u00f3\u00f0g\u00e6ti \u00far hafi. \u00dev\u00ed \u00f3kum vi\u00f0 full tilhl\u00f6kkunar \u00far borginni \u00e1 f\u00f6studaginn eftir vinnu og m\u00e6ttum til Eyja um kl. 19.00. <br \/><br \/>S\u00f6kum einhverrar me\u00f0virkni konunnar \u00fe\u00e1 hefur h\u00fan fylgst \u00f3venju miki\u00f0 me\u00f0 vefs\u00ed\u00f0unni Fotbolti.net. Af eint\u00f3mri umhyggju hefur h\u00fan vilja\u00f0 fylgjast me\u00f0 st\u00f6\u00f0u m\u00e1la \u00feegar \u00e9g er sj\u00e1lfur staddur uppi \u00ed Dal draumanna e\u00f0a einhvers sta\u00f0ar \u00e1 \u00fativ\u00f6llum a\u00f0 fylgjast me\u00f0 drengjunum e\u00f0a st\u00falkunum \u00ed Fram. Kannski vill h\u00fan vita hvort \u00e9g komi hundf\u00fall heim eftir leik e\u00f0a \u00ed gle\u00f0iv\u00edmu. \u00c9g er n\u00fa samt duglegur a\u00f0 skilja eftir st\u00e6rstu tilfinningarnar \u00e1\u00f0ur en \u00e9g kem heim og \u00f6skra gjarnan yfir bl\u00f3\u00f0ugum jafnteflum \u00ed b\u00edlnum e\u00f0a str\u00e6t\u00f3inum \u00e1 lei\u00f0inni heim. \u00dea\u00f0 enda\u00f0i \u00fev\u00ed au\u00f0vita\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan fatta\u00f0i a\u00f0 svo heppilega vildi til a\u00f0 Fram k\u00e6mi \u00ed heims\u00f3kn \u00fat \u00ed Heimaey \u00e1 sunnudeginum. Mitt leikplan haf\u00f0i gengi\u00f0 upp; \u00e9g gat fengi\u00f0 m\u00e9r bj\u00f3r yfir leiknum \u00e1 sunnudeginum, hitt v\u00edgreifa Geiramenn &#8211; og \u00e9g var me\u00f0 b\u00edlstj\u00f3ra og far heim.<br \/><br \/>Leikdagurinn leit ekki vel \u00fat \u00ed m\u00ednu tilfelli til a\u00f0 byrja me\u00f0. \u00c9g \u00e1tti nefnilega p\u00ednu erfitt me\u00f0 a\u00f0 jafna mig eftir fyrirframpanta\u00f0 fiskhla\u00f0bor\u00f0i\u00f0 \u00e1 laugardagskv\u00f6ldinu. Vi\u00f0 fengum kola, karfa, \u00feorsk og einhvern saltfisk. Allt var \u00feetta heldur brag\u00f0laust og broddl\u00edti\u00f0, me\u00f0l\u00e6ti\u00f0 \u00e1g\u00e6tt en \u00fea\u00f0 var einhver s\u00f3sa \u00fearna sem f\u00f3r illa \u00ed mig og \u00e9g l\u00e1 \u00f3v\u00edgur eftir. \u00deetta var eitthva\u00f0 anna\u00f0 en vestfirskur hno\u00f0m\u00f6r. V\u00edrus \u00ed Vestmannaeyjum! (\u00fea\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 \u00f3not \u00ed maga og hausverk er \u00fe\u00f3 kannski ekki efni \u00ed barnab\u00f3k \u00ed \u00e1tt vi\u00f0 b\u00e6kur Gunnars Helgasonar) \u00dea\u00f0 skal \u00fe\u00f3 alveg vi\u00f0urkennast a\u00f0 vi\u00f0 hj\u00f3nin erum ofdekru\u00f0 eftir uppeldi\u00f0 \u00e1 Tj\u00f6ruh\u00fasinu \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i, sem er besti veitingasta\u00f0ur landsins. \u00c9g veit ekki hva\u00f0 \u00fea\u00f0 var sem olli \u00feessari \u00f3gle\u00f0i en \u00e9g hugsa a\u00f0 \u00e9g bendi \u00feessum erlendu gestakokkum \u00e1 undraheima hamborgarans e\u00f0a pizzunnar. \u00deeir kunna alla vega ekkert a\u00f0 hantera \u00edslenskt fiskmeti.<br \/><br \/><strong>Schawarma sig \u00ed gang<\/strong><br \/>Vi\u00f0 hresstumst a\u00f0eins l\u00edtillega eftir vefju \u00e1 kebabsta\u00f0num \u00e1 n\u00e6sta horni um h\u00e1degisbili. \u00de\u00e6r voru reyndar alls ekki sp\u00e6s\u00ed eins og \u00e9g \u00f3ska\u00f0i eftir og ekki mikill karakter \u00ed \u00feeim. Hver setur g\u00farkusnei\u00f0ar \u00ed kebab? \u00deessi matarupplifun helgarinnar var \u00fev\u00ed ekki til a\u00f0 hr\u00f3pa h\u00farra fyrir, \u00e1 f\u00f6studagskv\u00f6ldinu fengum vi\u00f0 nefnilega indverskan mat sem \u00e9g n\u00e1\u00f0i a\u00f0 subba \u00ed hv\u00edtr\u00f6nd\u00f3ttan bolinn minn (Jeminn, hva\u00f0 \u00e9g er farinn a\u00f0 hlj\u00f3ma lei\u00f0inlega. Eins og J\u00f3n Vi\u00f0ar me\u00f0 veitingah\u00fasar\u00fdni). J\u00e6ja, eftir a\u00f0 hafa schawarma\u00f0 okkur \u00ed gang \u00e1 sunnudagsmorgni var skunda\u00f0 \u00e1 H\u00e1steinsv\u00f6ll. \u00dear m\u00e6tti okkur fr\u00e1b\u00e6r stemning hj\u00e1 stu\u00f0ningsf\u00f3lki Fram, geggju\u00f0 m\u00e6ting og f\u00f3lk a\u00f0 \u00fejappa sig saman \u00ed st\u00fakunni. Vi\u00f0 hj\u00f3nin hittum g\u00f3\u00f0a Geiramenn \u00e1 laugardeginum og f\u00f3rum me\u00f0 \u00feeim \u00ed gegnum undraheima vins\u00e6llar bruggstofu br\u00e6\u00f0ra \u00ed Eyjum. \u00dea\u00f0 var reyndar \u00e1g\u00e6tis matarupplifun. \u00c1 leikdegi barst okkur svo heilmikill li\u00f0sauki og \u00f6llum skal hr\u00f3sa\u00f0 h\u00e9r fyrir eljusemina og stemninguna \u00ed Eyjum. <br \/><br \/>Li\u00f0suppstilling kom ekki miki\u00f0 \u00e1 \u00f3vart og \u00e1n\u00e6gjulegt a\u00f0 sj\u00e1 Brynjar Gauta byrja inn \u00e1, eitthva\u00f0 var nefnilega sl\u00fa\u00f0ra\u00f0 um a\u00f0 hann v\u00e6ri meiddur. Annars var \u00d3li \u00ed markinu, Delphin, Hlynur Atli, M\u00e1si, Alex, Almarr, Tiago, Fred og Jannik og Gummi frammi. Vindurinn var \u00fe\u00f3 \u00ed a\u00f0alhlutverki \u00ed dag. Eyjamenn \u00feekkja vindinn vel og gott ef ekki a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 br\u00f3\u00f0ir vindsins sem ma\u00f0ur hefur hitt \u00e1 Grindav\u00edkurvelli. B\u00e1\u00f0ir alveg h\u00edfandi hressir. Roki\u00f0 setti svip \u00e1 leikinn og \u00fea\u00f0 t\u00f3k Framara sm\u00e1 t\u00edma til a\u00f0 finna taktinn fram \u00e1 vi\u00f0. Jannik var sk\u00e6\u00f0ur fram \u00e1 vi\u00f0 og engu m\u00e1tti muna a\u00f0 \u00feeir skoru\u00f0u \u00feegar r\u00famar t\u00edu m\u00edn\u00fatur voru li\u00f0nar en eftir kort\u00e9rsleik kom \u00f6nnur s\u00f3kn \u00fear sem vel var spila\u00f0 fram og endar me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 Jannik sp\u00f3la\u00f0i sig fram og gaf fyrir \u00fear sem Gummi var m\u00e6ttur \u00ed poti\u00f0. Fram komi\u00f0 yfir.<br \/><br \/>Eyjamenn n\u00e1\u00f0u a\u00f0 jafna t\u00edu m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar eftir b\u00f6lva\u00f0 tafs \u00ed teignum. Heimamenn \u00e1ttu f\u00e1einar tilraunir a\u00f0 markinu og hending a\u00f0 \u00feeir skuli ekki hafa n\u00fdtt vindinn frekar \u00ed fyrri h\u00e1lfleik. \u00c9g hef\u00f0i haldi\u00f0 a\u00f0 \u00feeir \u00feekktu vindinn talsvert. Flestir heimamenn eflaust me\u00f0 St\u00f3rh\u00f6f\u00f0asv\u00edtu Johnsen enn \u00e1 heilanum eftir frumflutninginn \u00b497. \u00dea\u00f0 var ekki bara vindurinn sem bl\u00e9s, heldur var d\u00f3marinn duglegur a\u00f0 bl\u00e1sa l\u00edka og bl\u00e9s n\u00fa til h\u00e1lfleikhl\u00e9s. \u00dea\u00f0 var ekki miki\u00f0 markvert sem ger\u00f0ist \u00ed hl\u00e9inu. \u00c9g s\u00e1 a\u00f0 Eyjamenn voru me\u00f0 sitt f\u00ednumannabo\u00f0 \u00e1 efri h\u00e6\u00f0 s\u00edns h\u00fass og \u00fea\u00f0an s\u00e1 \u00e9g ganga \u00fat fyrrverandi fyndnasta mann \u00cdslands, man ekki hva\u00f0 hann heitir. S\u00f6mulei\u00f0is heyr\u00f0i ma\u00f0ur til fyrrverandi \u00feingmanns sem var einnig fyrrum yfirma\u00f0ur \u00ed Efstaleiti. Man ekki heldur hva\u00f0 hann heitir. Sem sagt miki\u00f0 um einhverja fyrrverandi hitt og \u00feetta. Engin sk\u00f6mm \u00ed \u00fev\u00ed svo sem.<br \/><br \/><strong>Sautj\u00e1nhundru\u00f0 vindstig<br \/><\/strong>Okkar menn l\u00e9ku me\u00f0 vindi \u00ed seinni h\u00e1lfleik og \u00feeim \u00f3x \u00e1smegin. Vi\u00f0 Framarar t\u00f3kum n\u00fa eftir einum leikmanni \u00cdBV sem var einna hressastur og til alls l\u00edklegur. \u00dea\u00f0 er ekki til si\u00f0s a\u00f0 nefna n\u00f6fn andst\u00e6\u00f0inganna en \u00feessi leikma\u00f0ur ber einmitt svo glettilega \u00ferj\u00fa eiginn\u00f6fn. Og er uppalinn \u00ed Fram. Hann \u00fearf a\u00f0 fara a\u00f0 sn\u00faa aftur heim \u00ed hei\u00f0ardalinn sem fyrst. \u00c1 64 m\u00edn\u00fatu dr\u00f3 svo til t\u00ed\u00f0inda \u00feegar boltinn barst til Gumma Magg fyrir utan v\u00edtateig, hann sn\u00fdr \u00e1 leikmenn \u00cdBV og mundar skotf\u00f3tinn. \u00dar var\u00f0 eitt gl\u00e6silegasta mark sumarsins! Fram komi\u00f0 yfir aftur, 2-1. Restin af leiknum einkenndist a\u00f0 klafsi og bar\u00e1ttu og nokkrum \u00e1hugaver\u00f0um \u00e1kv\u00f6r\u00f0unum d\u00f3marans. Fur\u00f0ulegt a\u00f0 d\u00f3marinn skuli ekki hafa lei\u00f0r\u00e9tt s\u00ednar misfellur, vi\u00f0 sem vorum svo dugleg \u00ed st\u00fakunni a\u00f0 benda honum kurteisislega \u00e1 \u00fea\u00f0 sem betur m\u00e6tti fara \u00ed d\u00f3mg\u00e6slunni. <br \/><br \/>\u00c1n \u00feess a\u00f0 falla \u00ed \u00fe\u00e1 klisju a\u00f0 kenna d\u00f3maranum um \u00fe\u00e1 var\u00f0 \u00fea\u00f0 n\u00fa svo a\u00f0 j\u00f6fnunarmark Eyjamanna kom upp \u00far kl\u00fa\u00f0ri vi\u00f0 v\u00edtateig okkar manna \u00fear sem vi\u00f0 s\u00e1um ekki betur en broti\u00f0 hafi veri\u00f0 \u00e1 Alex. \u00dea\u00f0 var eins og allir bl\u00e1ir \u00e1 vellinum hef\u00f0u gengi\u00f0 \u00fat fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 d\u00f3marinn myndi flauta og \u00e1 me\u00f0an n\u00e1\u00f0u \u00feeir skoti og 2-2 var\u00f0 sta\u00f0reyndin. \u00darslit sem vi\u00f0 Framarar \u00feekkjum \u00f3\u00fe\u00e6gilega vel og \u00fear vi\u00f0 sat. Enn einn jafnteflisleikurinn \u00fear sem vi\u00f0 n\u00e1um ekki a\u00f0 loka fyrir \u00e1 lokametrum. J\u00e6ja, 2-2 er sk\u00e1rra en 14-2 eins og vi\u00f0 segjum gjarnan. \u00dea\u00f0 var gaman a\u00f0 f\u00e1 Gumma aftur \u00ed v\u00edgahug, s\u00f6mulei\u00f0is hann Jannik. \u00deeir tveir eru h\u00e6ttulegir saman fram \u00e1 vi\u00f0. Annars fannst m\u00e9r margir okkar manna spila undir getu, eflaust a\u00f0 spara sig fyrir leikinn \u00e1 laugardaginn en vindurinn sag\u00f0i n\u00fa sitt. Tryggvi kom inn \u00e1 undir lok, \u00e1samt Indri\u00f0a og svo \u00feeir Albert og \u00de\u00f3rir. Vi\u00f0 eigum sannarlega g\u00f3\u00f0a breidd og \u00e9g hef\u00f0i gjarnan vija\u00f0 sj\u00e1 Magn\u00fas Inga koma inn\u00e1. S\u00f6mulei\u00f0is hef\u00f0i \u00e9g ekki skipt Gumma \u00fat af. En \u00fea\u00f0 er \u00e1st\u00e6\u00f0a fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er ekki \u00fej\u00e1lfari, \u00e9g veit ekkert um f\u00f3tbolta. Kannski best geymdur \u00e1 trommunum bara.<br \/><br \/>\u00deetta var \u00e1 endanum kannski bara sanngj\u00f6rn \u00farslit, Eyjamenn hafa veri\u00f0 \u00e1 siglingu og langt \u00ed fr\u00e1 sj\u00e1lfgefi\u00f0 fyrir gesti a\u00f0 s\u00e6kja m\u00f6rg stig \u00e1 \u00feennan v\u00f6ll. \u00c9g \u00feurfti \u00fev\u00ed ekki miki\u00f0 a\u00f0 \u00f6skra eftir leik, f\u00f3rum beint \u00ed n\u00e6sta Herj\u00f3lf \u00fear sem vi\u00f0 hj\u00f3nin s\u00e1tum me\u00f0 \u00feeim g\u00f3\u00f0u Skonrokk-br\u00e6\u00f0rum, \u00fear sem vi\u00f0 rifju\u00f0um upp s\u00f6gur af fyrri ferjusiglingum. Ms. Edda, ferjan milli Helsinki og Tallinn og Fagranesi\u00f0 komu \u00fear vi\u00f0 s\u00f6gu. Heilt yfir var \u00feetta d\u00e1samleg helgi og enn og aftur skemmti \u00e9g m\u00e9r vel vi\u00f0 a\u00f0 fylgjast me\u00f0 okkar f\u00f3lki \u00ed Fram. Skemmtilegasti boltinn sem \u00ed bo\u00f0i er. Fram undan er s\u00ed\u00f0asta leikur fyrir \u00farslitakeppni, \u00e1 n\u00e6sta laugardag og \u00fear m\u00e6tum vi\u00f0 \u00f6ll \u00ed geggju\u00f0um f\u00edling og f\u00e1um okkur Framborgara. Enginn v\u00edrus \u00ed bo\u00f0i \u00fear! \u00c1 sunnudeginum m\u00e6ta stelpurnar upp \u00ed Brei\u00f0holt, sigur \u00fear \u00e1 m\u00f3ti \u00cdR tryggir okkur upp um deild! Helgin fram undan ver\u00f0ur fr\u00e1b\u00e6r, \u00e1kve\u00f0um \u00fea\u00f0 h\u00e9r og n\u00fa!<br \/><br \/>&#8211; Kristj\u00e1n Freyr<br \/><br \/><br \/><\/p>\n<p><\/p>\t\t\t\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Konunni minni leist mj\u00f6g vel \u00e1 \u00fe\u00e1 sj\u00e1lfsprottnu hugmynd m\u00edna a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a henni \u00ed r\u00f3mant\u00edska helgarfer\u00f0 til Vestmannaeyja um n\u00fdli\u00f0na helgi. \u00deetta kom henni skemmtilega \u00e1 \u00f3vart \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":31773,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-31772","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/Gummi-mark-vefur.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/31772","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=31772"}],"version-history":[{"count":10,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/31772\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":31784,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/31772\/revisions\/31784"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/31773"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=31772"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=31772"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=31772"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}