{"id":34157,"date":"2023-04-10T23:27:41","date_gmt":"2023-04-10T23:27:41","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=34157"},"modified":"2023-04-10T23:28:32","modified_gmt":"2023-04-10T23:28:32","slug":"og-tha-er-thad-byrjad-3","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2023\/04\/10\/og-tha-er-thad-byrjad-3\/","title":{"rendered":"Og \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 byrja\u00f0&#8230;"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"34157\" class=\"elementor elementor-34157\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-70c6510b elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"70c6510b\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-6319c3eb\" data-id=\"6319c3eb\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-8b583ca elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"8b583ca\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-34160 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Hlynur-magg--240x300.jpg\" alt=\"\" width=\"240\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Hlynur-magg--240x300.jpg 240w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Hlynur-magg--819x1024.jpg 819w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Hlynur-magg--768x960.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Hlynur-magg--1229x1536.jpg 1229w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Hlynur-magg--1639x2048.jpg 1639w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Hlynur-magg--10x12.jpg 10w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Hlynur-magg--800x1000.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Hlynur-magg-.jpg 1922w\" sizes=\"(max-width: 240px) 100vw, 240px\" \/>\u00dea\u00f0 er aldrei skemmtilegra a\u00f0 horfa \u00e1 f\u00f3tbolta en utandyra \u00e1 \u00cdslandi \u00e1 hl\u00fdju vorkv\u00f6ldi. F\u00f3lki\u00f0 sem lengdi \u00cdslandsm\u00f3ti\u00f0 \u00ed fyrra og h\u00e9lt a\u00f0 einhver v\u00e6ri a\u00f0 kalla eftir haustl\u00e6g\u00f0aleikjum \u00ed lok okt\u00f3ber var \u00ed ruglinu en s\u00e1 \u00fe\u00f3 villur s\u00edns vegar. \u00cdslandsm\u00f3ti\u00f0 hefur aldrei byrja\u00f0 fyrr og \u00fea\u00f0 er fr\u00e1b\u00e6rt.<\/p><p>F\u00f3tbolta\u00e1hugaf\u00f3lk f\u00e9kk l\u00edka veislu strax \u00ed fyrstu umfer\u00f0inni \u00fear sem Reykjav\u00edkurmeistararnir t\u00f3ku \u00e1 m\u00f3ti \u00f6\u00f0ru af tveimur bestu li\u00f0um Hafnarfjar\u00f0ar, \u00feri\u00f0ja st\u00e6rsta sveitarf\u00e9lagsins. Allar l\u00edkur eru \u00e1 s\u00f6mu li\u00f0 muni m\u00e6tast \u00ed \u00farslitaeinv\u00edginu um \u00cdslandsmeistaratitilinn \u00ed parketgl\u00edmu karla og stu\u00f0ningsmennirnir hitu\u00f0u upp me\u00f0 lokumfer\u00f0inni. Fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar st\u00f6kk \u00fat \u00far str\u00e6tisvagni n\u00famer \u00e1tj\u00e1n r\u00e9tt \u00ed t\u00edma til a\u00f0 sj\u00e1 Framstr\u00e1ka vinna \u00cdR-inga. Fagna \u00fev\u00ed allir g\u00f3\u00f0ir menn. H\u00fasi\u00f0 var fullt af f\u00f3lki og me\u00f0 g\u00f3\u00f0um vilja gat fr\u00e9ttaritarinn tali\u00f0 s\u00e9r tr\u00fa um a\u00f0 hann skildi nokkurn veginn reglurnar \u00ed \u00feessari skr\u00edtnu \u00fej\u00f3\u00f0ar\u00ed\u00fer\u00f3tt. \u00c1fram vi\u00f0!<\/p><p>Eftir handboltaleikinn settist fr\u00e9ttaritarinn ni\u00f0ur \u00e1samt Gar\u00f0ari sendir\u00e1\u00f0sb\u00edlstj\u00f3rna og Liverpoolmanni \u00ed Bar-\u00e1ttunni sem er p\u00ednkul\u00edti\u00f0 uppskr\u00fafa\u00f0 nafn \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu umhverfis n\u00fdju og f\u00ednu bj\u00f3rd\u00e6luna okkar \u00fear sem Geiram\u00f6nnum var \u00e1\u00f0ur bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 kaffi og \u00f6rl\u00edti\u00f0 har\u00f0ar tebollur. \u00deetta er fr\u00e1b\u00e6r bar og Gar\u00f0ar og fr\u00e9ttaritarinn skemmtu s\u00e9r konunglega vi\u00f0 a\u00f0 horfa \u00e1 m\u00fdgr\u00fat sj\u00e1lfbo\u00f0ali\u00f0a undirb\u00faa leikinn. \u00c1 barnum er h\u00e6gt a\u00f0 kaupa bj\u00f3r-klippikort sem er m\u00f6gulega skynsamlegasti fj\u00e1rfestingarkostur \u00e1 \u00cdslandi \u00ed 9,8% ver\u00f0b\u00f3lgu og miklu skynsamlegri en flestir almennir sparisj\u00f3\u00f0sreikningar me\u00f0 e\u00f0a \u00e1n bindiskyldu \u2013 hva\u00f0 allir athugi. Gar\u00f0ar er fastagestur \u00ed getraunakaffi Fram en tipparah\u00f3purinn spila\u00f0i v\u00edst \u00e1 fj\u00f3rum se\u00f0lum \u00e1 laugardaginn var og f\u00e9kk \u00ferett\u00e1n r\u00e9tta(!), sem er fr\u00e1b\u00e6rt! Reyndar samanlagt, sem er frekar glata\u00f0.<\/p><p>\u00deegar klukkut\u00edmi var \u00ed leik var t\u00edmab\u00e6rt a\u00f0 mjaka s\u00e9r upp \u00ed f\u00ednumannast\u00fakuna \u00e1 efri h\u00e6\u00f0inni \u00fear sem bo\u00f0i\u00f0 var upp \u00e1 sta\u00f0g\u00f3\u00f0an kv\u00f6ldver\u00f0 \u00far \u00f6llum mikilv\u00e6gustu f\u00e6\u00f0uflokkunum: salti, fitu og bindiefni. Nonni \u00fej\u00e1lfari kom svo og lj\u00f3stra\u00f0i upp um byrjunarli\u00f0i\u00f0. \u00dea\u00f0 var stranghei\u00f0arlegt 4-4-2 eins og vi\u00f0 gerum svo vel. \u00d3li \u00ed markinu og me\u00f0 fyrirli\u00f0abandi\u00f0 \u00e1 me\u00f0an Hlynur var utan vallar, Delphin og Brynjar \u00ed mi\u00f0v\u00f6r\u00f0unum, M\u00e1r og Adam sem kom \u00far Leikni \u00ed bakv\u00f6r\u00f0unbum. Aron J\u00f3hannsson sem kom \u00far Grindav\u00edk og Albert \u00e1 mi\u00f0junni, Fred og Magn\u00fas hvor \u00e1 s\u00ednum kanti og Gummi og Jannik frammi. Tiago er enn t\u00e6pur og byrja\u00f0i \u00e1 bekknum.<\/p><p>Fr\u00e9ttaritarinn r\u00f6lti ni\u00f0ur \u00ed st\u00fakuna einn s\u00edns li\u00f0s. Skjaldsveinninn Valur Nor\u00f0ri var hvergi sj\u00e1anlegur enda staddur vi\u00f0 botn Persafl\u00f3a \u00ed Bahrein, einhver er n\u00fa innkoman! Rabbi trymbill var veikur heima me\u00f0 einhverja sk\u00edtapest. Einn og umkomulaus hlamma\u00f0i fr\u00e9ttaritarinn s\u00e9r ni\u00f0ur fyrir aftan Geiramenn sem skarta n\u00fdjum trymbli \u00ed \u00e1r, \u00c1sa boxara sem er mj\u00f6g hress og peppa\u00f0ur. R\u00e9tt \u00ed \u00fe\u00e1 mund sem flauta\u00f0 var til leiks hlamma\u00f0i G\u00fasti kokkur, sonur fyrrnefnds Gar\u00f0ars s\u00e9r ni\u00f0ur \u00ed n\u00e6sta s\u00e6ti og ur\u00f0u fagna\u00f0arfundir. Mamma \u00de\u00f3ris sat einhvers sta\u00f0ar annars sta\u00f0ar \u00ed st\u00fakunni en \u00e1 n\u00e6sta bekk fyrir aftan var mamma Arons J\u00f3. sem er greinilega grj\u00f3th\u00f6r\u00f0 og hr\u00f3pa\u00f0i bara einu sinni \u201e\u00c1fram Grindav\u00edk!\u201c<\/p><p>\u00dea\u00f0 er annars h\u00e1lf kj\u00e1nalegt a\u00f0 reyna a\u00f0 skrifa einhverja neimdroppupptalningu \u00e1 \u00fev\u00ed hverjir voru hvar. \u00dea\u00f0 voru nefnilega allir og amma \u00feeirra \u00e1 vellinum. St\u00fakan var smekkfull og opinbera talningin segir 1.327 manns. V\u00f6llurinn \u00ed \u00dalfars\u00e1rdal er alltaf g\u00f3\u00f0ur en smekkfullur \u00ed blankalogni er hann s\u00e1 langskemmtilegasti \u00e1 landinu.<\/p><p>\u00dea\u00f0 var ekki h\u00e6gt anna\u00f0 en a\u00f0 vorkenna \u00f6rl\u00edti\u00f0 leikm\u00f6nnum FH \u00feegar flauta\u00f0 var til leiks. \u00deeir komnir \u00e1 flottasta v\u00f6ll landsins og \u00e1 m\u00f3ti bestkl\u00e6dda li\u00f0i landsins, FH-b\u00faningurinn verandi \u00f3venjulega lj\u00f3tur og asnalegur \u00feetta \u00e1ri\u00f0. \u00dea\u00f0 geta bara ekki allir veri\u00f0 gordj\u00f6ss.<\/p><p>Nonni l\u00fdsti \u00fev\u00ed \u00ed f\u00ednumannabo\u00f0inu hvernig plani\u00f0 yr\u00f0i a\u00f0 liggja til baka og reyna a\u00f0 stinga hratt \u00ed gegnum FH-v\u00f6rnina og eftir \u00feeirri \u00e1\u00e6tlun var unni\u00f0. Gummi \u00e1tti flotta stungu \u00e1 Jannik sem var flagga\u00f0ur rangst\u00e6\u00f0ur strax \u00e1 annarri m\u00edn\u00fatu og fimm m\u00edn\u00farum s\u00ed\u00f0ar \u00e1tti Fred gott skot sem FH-markv\u00f6r\u00f0urinn var\u00f0i vel, Gummi skora\u00f0i \u00far fra\u00e1kastinu en aftur var flaggi\u00f0 komi\u00f0 \u00e1 loft.<\/p><p>Eftir t\u00e6par tuttugu m\u00edn\u00fatur var Jannik n\u00e1lega sloppinn \u00ed gegn eftir g\u00f3\u00f0a skallasendingu fr\u00e1 Gumma. Framararnir \u00e1ttu f\u00e6rin \u00e1 \u00feessum upphafskafla, en \u00fea\u00f0 gefu \u00fe\u00f3 ekki fyllilega r\u00e9tta mynd af leiknum. FH-ingarnir, v\u00e6ntanlega trylltir af b\u00faninga\u00f6fund, voru almennt fastari fyrir og l\u00e9ku eins fast og d\u00f3marinn leyf\u00f0i \u2013 sem var talsvert \u00e1 sumum k\u00f6flum leiksins en minna \u00e1 \u00f6\u00f0rum.<\/p><p>Okkur hefur fari\u00f0 talsvert fram \u00ed varnarleik fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed fyrra og \u00fea\u00f0 er allt anna\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 til Delphins heldur en \u00e1 st\u00f3rum k\u00f6flum s\u00ed\u00f0asta t\u00edmabils. Hann \u00e1tti nokkrar fr\u00e1b\u00e6rar t\u00e6klingar og var alv\u00f6ru kand\u00eddat \u00ed mann leiksins hj\u00e1 Fram \u2013 \u00f6\u00f0ruv\u00edsi m\u00e9r \u00e1\u00f0ur br\u00e1!<\/p><p>FH n\u00e1\u00f0i a\u00f0 setja boltann \u00ed Frammarki\u00f0 eftir t\u00e6plega h\u00e1lft\u00edma leik upp \u00far aukaspyrnu en \u00fea\u00f0 var d\u00e6mt af vegna auglj\u00f3srar rangst\u00f6\u00f0u. Almennt s\u00e9\u00f0 virtist leikurinn vera \u00ed jafnv\u00e6gi \u00e1 \u00feessum t\u00edma og \u00fe\u00f3tt FH-ingar v\u00e6ri meira me\u00f0 boltann \u00fati \u00e1 vellinum virtust Frams\u00f3knirnar ekki s\u00ed\u00f0ur l\u00edklegar til \u00e1rangurs. \u00dea\u00f0 var \u00fev\u00ed fremur gegn gangi leiksins \u00feegar d\u00f3marinn d\u00e6mdi v\u00edtaspyrnu \u00e1 Adam \u00ed Framli\u00f0inu \u00e1 37. m\u00edn\u00fatu. D\u00f3murinn virtist gr\u00ed\u00f0arlega har\u00f0ur og kurr \u00ed st\u00fakunni en FH skora\u00f0i af \u00f6ryggi.<\/p><p>\u00dea\u00f0 f\u00f3r \u00f6rl\u00edti\u00f0 um fr\u00e9ttaritarann og G\u00fasta kokk. Hvernig myndu okkar menn breg\u00f0ast vi\u00f0 \u00feessu m\u00f3tl\u00e6ti? Stutta svari\u00f0 var: mj\u00f6g vel! R\u00e9tt eftir mark FH-inga \u00e1tti Gummi fr\u00e1b\u00e6ra stungusendingu inn \u00e1 Jannik sem stakk af s\u00e9r hafnfirsku silakeppina \u00ed v\u00f6rninni og hlj\u00f3p \u00ed \u00e1tt a\u00f0 marki \u00fear sem FH-markv\u00f6r\u00f0urinn hlj\u00f3p langt \u00fat fyrir markteiginn og strauja\u00f0i okkar allra besta danska framherja og m\u00e1tti teljast lj\u00f3nheppinn a\u00f0 f\u00e1 ekki allavega litu\u00f0 spj\u00f6ld a\u00f0 launum. Jannik \u00feurfti a\u00f0 yfirgefa v\u00f6llinn eftir fantat\u00f6kin en Gummi Magg skora\u00f0i af \u00f6ryggi. Hann \u00e6tlar ekki a\u00f0 missa aftur af gullsk\u00f3num!<\/p><p>Litlu m\u00e1tti muna a\u00f0 Fram f\u00e6ri inn \u00ed hl\u00e9i\u00f0 me\u00f0 forystu \u00fear sem Albert \u00e1tti flotta sendingu sem n\u00e1nast rata\u00f0i \u00e1 kollinn \u00e1 Gumma en Hafnfir\u00f0ingar sluppu me\u00f0 skrekkinn.<\/p><p>\u00dea\u00f0 var stappa\u00f0 \u00e1 \u00f6llum g\u00f6ngum og kl\u00f3settum svo fr\u00e9ttaritarinn for\u00f0a\u00f0i s\u00e9r inn \u00ed f\u00ednumannakaffi. \u00dear var almennt g\u00f3\u00f0ur r\u00f3mur ger\u00f0ur a\u00f0 frammist\u00f6\u00f0u okkar manna en \u00feess \u00fe\u00f3 \u00f3ska\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0 v\u00e6rum \u00f6rl\u00edti\u00f0 aggress\u00edvari. Algengasta spurningin var \u00fe\u00f3: hva\u00f0an kemur allt \u00feetta f\u00f3lk? Er Fram or\u00f0i\u00f0 best studda f\u00f3tboltali\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi? Hvar er stu\u00f0ningsh\u00f3purinn fyrir okkur sem m\u00e1ttum venjast 300 manns \u00e1 Laugardalsvelli \u00fear sem hvert einasta or\u00f0 sem Kristbj\u00f6rn og Einar H\u00e1konarson l\u00e9tu falla heyr\u00f0ist sk\u00fdrt og greinilega? Er nema von a\u00f0 sum okkar s\u00e9um a\u00f0 greinast me\u00f0 breytingastreitur\u00f6skun?<\/p><p>Seinni h\u00e1lfleikur var byrja\u00f0ur \u00feegar fr\u00e9ttaritarinn rata\u00f0i aftur \u00ed s\u00e6ti\u00f0. Geiramenn t\u00f3ku \u201eVi\u00f0 erum Geiramenn!\u201c \u2013 sem sannast sagna er eitt af bara 3-4 g\u00f3\u00f0um stu\u00f0ningsmannahr\u00f3pum \u00edslenskra f\u00f3tboltali\u00f0a. Hl\u00fdtur a\u00f0 vera svekkjandi fyrir alla hina a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e9um b\u00e6\u00f0i \u00ed flottasta b\u00faningnum OG me\u00f0 bestu hr\u00f3pin. En svona er \u00feetta bara.<\/p><p>Hva\u00f0 svo sem Nonni og Raggi s\u00f6g\u00f0u vi\u00f0 li\u00f0i\u00f0 \u00ed hl\u00e9nu \u00fe\u00e1 sv\u00ednvirka\u00f0i \u00fea\u00f0. Framarar m\u00e6ttu mun \u00e1kve\u00f0nari til leiks eftir hl\u00e9. Delphin \u00e1tti t\u00e6klingu \u00e1rsins og Fred var beittur fram \u00e1 vi\u00f0. Alveg er \u00fea\u00f0 magna\u00f0 hva\u00f0 \u00feessi litli og netti ma\u00f0ur gefst aldrei upp \u00e1 a\u00f0 atast \u00ed st\u00f3rum lurkum og vinnur oftar af \u00feeim boltann me\u00f0 kl\u00f3kindum frekar en l\u00edkamsbur\u00f0um. \u00c1 52. m\u00edn\u00fatu skei\u00f0a\u00f0i okkar allra besti Brassi upp kantinn og a\u00f0 endam\u00f6rkum, sendi fyrir \u00fear sem Albert st\u00f6kk yfir boltann e\u00f0a \u00fdtti honum \u00e1fram \u00fear sem Hlynur Atli (sem komi\u00f0 haf\u00f0i inn\u00e1 fyrir Jannik og teki\u00f0 st\u00f6\u00f0u Alberts \u00e1 mi\u00f0junni) kom a\u00f0v\u00edfandi og skaut boltanum ekki \u00ed neti\u00f0 heldur hreinlega skri\u00f0t\u00e6kla\u00f0i hann, 2:1 fyrir Fram!<\/p><p>\u00c1 \u00feessum t\u00edmapunkti hef\u00f0i veri\u00f0 gott a\u00f0 geta gripi\u00f0 til markapelans, en sem fyrr sag\u00f0i var skjaldsveinninn \u00ed Barein og \u00fea\u00f0 \u00e1 Ramadan og hef\u00f0i l\u00edklega fengi\u00f0 tuttugu vandarh\u00f6gg fyrir a\u00f0 draga pyttlu \u00far rassvasanum.<\/p><p>\u00deegar seinni h\u00e1lfleikur var h\u00e1lfna\u00f0ur neyddust Nonni og \u00fej\u00e1lfarateymi\u00f0 til a\u00f0 gera a\u00f0ra breytingu \u00e1 li\u00f0inu. Adam sem haf\u00f0i haltra\u00f0 um allnokkurt skei\u00f0 f\u00f3r af velli fyrir \u00d3skar. Fj\u00f3rum m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar ri\u00f0u \u00f3sk\u00f6pin yfir. Maggi og Fred stormu\u00f0u \u00ed s\u00f3kn sem engu skila\u00f0i, gestirnir voru flj\u00f3tir a\u00f0 negla fram og j\u00f6fnu\u00f0u eftir snyrtilegan samleik.<\/p><p>\u00deegar kort\u00e9r var eftir f\u00e9kk Tiago a\u00f0 spreyta sig. Hann kom inn\u00e1 fyrir Magn\u00fas og Orri sem kom fr\u00e1 \u00de\u00f3r leysti Albert af h\u00f3lmi. Um lei\u00f0 var leika\u00f0fer\u00f0inni breytt og vi\u00f0 skiptum yfir \u00ed fj\u00f6lmennari en marks\u00e6knari mi\u00f0ju \u00fear sem Aron J\u00f3 var sendur fram \u00e1 vi\u00f0. N\u00e6stu m\u00edn\u00faturnar bar f\u00e1tt til t\u00ed\u00f0inda anna\u00f0 en fur\u00f0ulegt misr\u00e6mi \u00ed d\u00f3mum \u00fear sem FH-ingur n\u00famar 26 (fr\u00e9ttaritarinn veit hva\u00f0 FH-ingur n\u00famer 26 heitir en andst\u00e6\u00f0ingar eru ekki nafngreindir \u00ed \u00feessum pistlum nema \u00ed algj\u00f6rum undantekningartilfellum) var lj\u00f3nheppinn a\u00f0 f\u00e1 ekki sitt seinna gula spjald. \u00cd uppb\u00f3tart\u00edma \u00e1tti Fred st\u00f3rkostlega sendingu \u00e1 Aron en FH-markv\u00f6r\u00f0urinn var\u00f0i vel.<\/p><p>Fj\u00f6gurra marka jafntefli \u00ed \u00dalfars\u00e1rdalnum og Framleikir halda \u00e1fram a\u00f0 vera \u00feeir skemmtilegustu \u00ed boltanum. Jafntefli var sanngjarnt og margt j\u00e1kv\u00e6tt \u00ed leik okkar manna. Delphin hefur \u00feegar veri\u00f0 hr\u00f3sa\u00f0 og sj\u00e1lfsagt a\u00f0 skella hr\u00f3si l\u00edka \u00e1 M\u00e1, Jannik me\u00f0an hans naut vi\u00f0 og Gumma. N\u00e6sti leikur ver\u00f0ur \u00ed K\u00f3rahverfi \u00fear sem voru rj\u00fapnavei\u00f0il\u00f6nd \u00feegar fr\u00e9ttaritarinn var ungur drengur. Auk \u00feess legg \u00e9g til a\u00f0 Fram ver\u00f0i bikarmeistari \u00ed \u00e1r.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 er aldrei skemmtilegra a\u00f0 horfa \u00e1 f\u00f3tbolta en utandyra \u00e1 \u00cdslandi \u00e1 hl\u00fdju vorkv\u00f6ldi. F\u00f3lki\u00f0 sem lengdi \u00cdslandsm\u00f3ti\u00f0 \u00ed fyrra og h\u00e9lt a\u00f0 einhver v\u00e6ri a\u00f0 kalla eftir haustl\u00e6g\u00f0aleikjum [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":34158,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[11],"tags":[],"class_list":["post-34157","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-mflkarla"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Gummi-magg-scaled.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/34157","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=34157"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/34157\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":34163,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/34157\/revisions\/34163"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/34158"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=34157"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=34157"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=34157"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}