{"id":34221,"date":"2023-04-16T22:59:39","date_gmt":"2023-04-16T22:59:39","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=34221"},"modified":"2023-04-16T23:00:53","modified_gmt":"2023-04-16T23:00:53","slug":"heimshornaflakk","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2023\/04\/16\/heimshornaflakk\/","title":{"rendered":"Heimshornaflakk"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"34221\" class=\"elementor elementor-34221\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-38140529 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"38140529\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-13efd3a3\" data-id=\"13efd3a3\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-58857ee1 elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"58857ee1\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-34224 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Hlynur-magg-1-1-240x300.jpg\" alt=\"\" width=\"240\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Hlynur-magg-1-1-240x300.jpg 240w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Hlynur-magg-1-1-819x1024.jpg 819w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Hlynur-magg-1-1-768x960.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Hlynur-magg-1-1-1229x1536.jpg 1229w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Hlynur-magg-1-1-1639x2048.jpg 1639w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Hlynur-magg-1-1-10x12.jpg 10w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Hlynur-magg-1-1-800x1000.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Hlynur-magg-1-1.jpg 1922w\" sizes=\"(max-width: 240px) 100vw, 240px\" \/>Hvar \u00ed ver\u00f6ldinni er Carmen Sandiego? Um \u00feessa lykilspurningu hverf\u00f0ust ep\u00edskir t\u00f6lvuleikir fr\u00e1 n\u00edunda \u00e1ratugnum sem f\u00f3lust \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 keppendur reyndu a\u00f0 elta t\u00e1lkvendi\u00f0 fr\u00f6ken Sandiego um heimsbygg\u00f0ina og gisku\u00f0u \u00e1 n\u00e6sta \u00e1fangasta\u00f0 hennar \u00fat fr\u00e1 almennum l\u00fd\u00f0fr\u00e6\u00f0ilegum uppl\u00fdsingum, n\u00f6fnum h\u00f6fu\u00f0borga, f\u00e1nalitum e\u00f0a myndum fr\u00e1 vettvangi. Carmen Sandiego var kona hinna m\u00f6rgu flugpunkta.<\/p><p>Svar samt\u00edmans vi\u00f0 femme fatale s\u00ed\u00f0-\u00e1ttunnar er sj\u00e1lfur skjaldsveinninn Valur Nor\u00f0ri, sem er raunveruleg pers\u00f3na \u00fe\u00f3tt s\u00edfellt fleiri lesendur \u00feessara pistla s\u00e9u farnir a\u00f0 hallast a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann s\u00e9 \u00edmynda\u00f0ur vinur eins og Mangi \u00ed Einars \u00c1skells-b\u00f3kunum. Matv\u00e6lav\u00edsindaf\u00e1lkinn er um \u00feessar mundir a\u00f0 sp\u00edgspora. \u00cd fyrstu umfer\u00f0inni var hann \u00ed Mi\u00f0austurl\u00f6ndum en n\u00fana er hann kominn til Brasil\u00edu og \u00fea\u00f0 me\u00f0 markafleyginn. \u00deetta er go\u00f0g\u00e1 og glata\u00f0, einkum \u00feegar st\u00e6rsta leik vorsins bar a\u00f0 gar\u00f0i \u00fear sem Reykjav\u00edkurmeistararnir m\u00e6ttu n\u00fdb\u00f6ku\u00f0um K\u00f3pavogsmeisturum \u00ed K\u00f3rnum \u00ed kv\u00f6ld.<\/p><p>\u00deetta var dagur inni\u00ed\u00fer\u00f3tta. Fyrst m\u00e6tti fr\u00e9ttaritarinn \u00ed \u00dalfars\u00e1rdal og s\u00e1 handboltali\u00f0i\u00f0 okkar tapa gr\u00e1tlega fyrir Mosfellingum. \u00dev\u00ed n\u00e6st l\u00e1 lei\u00f0in upp \u00ed Hvarfak\u00f3r e\u00f0a hva\u00f0 \u00feetta n\u00fa heitir allt saman til a\u00f0 horfa \u00e1 a\u00f0ra umfer\u00f0 \u00cdslandsm\u00f3tsins. Eftir a\u00f0 hafa sent fer\u00f0aplani\u00f0 b\u00e6\u00f0i til Landsbjargar og Fl\u00f6ffana t\u00f3k fr\u00e9ttaritarinn striki\u00f0 upp fyrir snj\u00f3l\u00ednu og kom alltof snemma \u00e1 sv\u00e6\u00f0i\u00f0. Baldur M\u00e1r, sem \u00f6llu r\u00e6\u00f0ur hj\u00e1 HK, reyndist h\u00f6f\u00f0ingi heim a\u00f0 s\u00e6kja. Skrafa\u00f0i um f\u00f3tbolta og sagnfr\u00e6\u00f0i milli \u00feess sem hann d\u00e6ldi fro\u00f0ur\u00edkum Heineken \u00ed plastgl\u00f6s og st\u00fdr\u00f0i \u00fev\u00ed har\u00f0ri hendi hva\u00f0a ungvi\u00f0i f\u00e9kk a\u00f0 smjatta \u00e1 pizzusnei\u00f0um. HK er skemmtilegt f\u00e9lag og fj\u00f6lskyldulegur bragur \u00e1 \u00f6llu utanumhaldi.<\/p><p>Byrjunarli\u00f0i\u00f0 birtist \u00e1 KS\u00cd-vefnum. \u00dea\u00f0 var \u00ed flestum meginatri\u00f0um eins og \u00e1 m\u00f3ti FH. \u00d3li \u00ed markinu, Delph og Brynjar mi\u00f0ver\u00f0ir. M\u00e1r \u00ed \u00f6\u00f0rum bakver\u00f0inum en \u00d3skar kom inn \u00ed hina st\u00f6\u00f0una fyrir Adam sem hefur veri\u00f0 e-\u00f0 lasinn \u00ed vikunni. Hlynur Atli kom inn fyrir Jannik sem er illu heilli meiddur eftir markmannsb\u00f6\u00f0ulinn s\u00ed\u00f0ast og f\u00f3r fyrirli\u00f0inn aftast \u00e1 mi\u00f0juna me\u00f0 Grindav\u00edkur-Aron s\u00e9r til halds og trausts, Albert fyrir framan, Magga og Fred hvorn \u00e1 s\u00ednum kanti og Gumma uppi \u00e1 toppi. Eins og okkur finnst gaman a\u00f0 spila 4-4-2 \u00fe\u00e1 hefur \u00fea\u00f0 kl\u00e1rlega s\u00edna kosti a\u00f0 hafa \u00fe\u00e9ttskipa\u00f0ri mi\u00f0ju.<\/p><p>Fr\u00e9ttaritarinn tillti s\u00e9r \u00ed n\u00e6stfremstu r\u00f6\u00f0 \u00fati \u00ed enda Frammegin, umkringdur str\u00e1kp\u00f6ttum og \u00feekkti f\u00e1a nema Oddberg sagnfr\u00e6\u00f0ing og fj\u00f6lskyldu og Da\u00f0 Gu\u00f0munds f\u00e1einum s\u00e6tum fr\u00e1. Leikurinn byrja\u00f0i r\u00f3lega og \u00fea\u00f0 fyrsta sem rata\u00f0i \u00ed minnisb\u00f3kina var bylmingssskot Arons \u00ed hli\u00f0arneti\u00f0 eftir f\u00edna sendingu fr\u00e1 Alberti. Vinnusemi Alberts var til mikillar fyrirmyndar og hann okkar besti ma\u00f0ur \u00ed fyrri h\u00e1lfleik. Nokkrum m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar rauk \u00d3skar upp kantinn og \u00e1tti \u00feokkalega sendingu fyrir marki\u00f0 en Gummi n\u00e1\u00f0i ekki a\u00f0 setja t\u00e1nna \u00ed boltann.<\/p><p>Eftir a\u00f0 hafa veri\u00f0 sterkari fyrsta korteri\u00f0 misstu Framarar sm\u00e1m saman dampinn og \u00fe\u00f3tt \u00feeir \u00e6ttu betri samleik \u00fati \u00e1 velli komu f\u00e6rin \u00ed hlut heimamanna. Oftar en ekki ur\u00f0u \u00feessi f\u00e6ri til upp \u00far k\u00e6ruleysislegum varnarleik okkar manna sem misstu boltann \u00e1 versta sta\u00f0. Eitt sl\u00edkt var \u00e1 25. m\u00edn\u00fatu og virtist h\u00e6ttan a\u00f0 mestu afsta\u00f0in \u00feegar \u00f3v\u00e6nt skot eins HK-mannsins s\u00f6ng \u00ed marksl\u00e1nni. Tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar \u00e1ttu K\u00f3pavogsmeistararnir svo fast skot r\u00e9tt framhj\u00e1.<\/p><p>Eftir hornsyrnu hinu megin t\u00f3kst Hlyni einhvern veginn a\u00f0 skalla boltann alveg ni\u00f0ri vi\u00f0 j\u00f6r\u00f0 og var n\u00e1nast b\u00fai\u00f0 a\u00f0 takast a\u00f0 lyfta honum yfir markv\u00f6r\u00f0inn og \u00ed bl\u00e1horni\u00f0 fj\u00e6r. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar var Fred a\u00f0gangshar\u00f0ur vi\u00f0 HK-marki\u00f0. HK menn vildu v\u00edti \u00e1 M\u00e1, en \u00fea\u00f0 virtist \u00fe\u00f3 tilefnislaust og beint \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 \u00feurfti \u00d3li a\u00f0 verja vel \u00ed markinu. \u00c1 St\u00f6\u00f0 2 Sport var hann valinn ma\u00f0ur leiksins sem var alls ekki \u00far lausu lofti gripi\u00f0.<\/p><p>Markalaust \u00ed leikhl\u00e9i eftir fyrri h\u00e1lfleik \u00fear sem HK \u00e1tti kl\u00e1rlega betri f\u00e6rin. Fr\u00e9ttaritarinn br\u00e1 s\u00e9r \u00fatfyrir til a\u00f0 planta nokkrum \u00f6spum \u00ed m\u00e1ttl\u00edtilli tilraun til a\u00f0 kolefnisjafna heimsreisu skjaldsveinsins. Gr\u00e9ta Thunberg gr\u00e6tur \u00ed n\u00f3ttinni.<\/p><p>\u00cd seinni h\u00e1lfleik haf\u00f0i fr\u00e9ttaritarinn fengi\u00f0 n\u00f3g af gr\u00edslingunum vi\u00f0 hli\u00f0arl\u00ednuna og tyllti s\u00e9r frekar \u00ed tr\u00f6ppurnar vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 f\u00e9laga Rabba sem sat \u00fear vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 m\u00f6mmu \u00feeirra Gu\u00f0j\u00f3nssona (\u00fea\u00f0 er happa a\u00f0 sitja n\u00e1l\u00e6gt m\u00e6r\u00f0um n\u00faverandi og fyrrverandi leikmanna \u00e1 vellinum). Tryggingas\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingurinn Rafn var frekar imp\u00f3nera\u00f0ur yfir HK-li\u00f0inu sem l\u00edtur alls ekki \u00fat eins og fallkand\u00eddatar.<\/p><p><img decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-34225 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Gummi-Magg-gegn-Fh-300x200.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"200\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Gummi-Magg-gegn-Fh-300x200.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Gummi-Magg-gegn-Fh-768x512.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Gummi-Magg-gegn-Fh-18x12.jpg 18w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Gummi-Magg-gegn-Fh.jpg 799w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/>Seinni h\u00e1lfleikurinn byrja\u00f0i eins og s\u00e1 fyrri enda\u00f0i. Framarar \u00e1ttu \u00e1 \u00e1g\u00e6tis leikkafla \u00fati \u00e1 velli en f\u00e6rin komu \u00ed hlut HK-inga. \u00deegar fimm m\u00edn\u00fatur voru li\u00f0nar komst einn hinna r\u00f6nd\u00f3ttu \u00ed dau\u00f0af\u00e6ri en var\u00f0 mest hissa sj\u00e1lfur og \u00fea\u00f0 f\u00f3r \u00ed s\u00faginn. \u00deetta virtist vekja Framara a\u00f0eins til l\u00edfsins. M\u00e1r braust \u00ed gegnum HK-v\u00f6rnina og skapa\u00f0i mikinn usla nokkrum m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar og \u00e1 55. m\u00edn\u00fatu hlj\u00f3p Fred upp kantinn og \u00e1tti svo gullfallega sendingu fyrir \u00fear sem Gummi Magg st\u00f6kk f\u00e1r\u00e1nlega h\u00e1tt og h\u00e1rn\u00e1kv\u00e6mt upp og stanga\u00f0i boltann \u00ed neti\u00f0, 0:1 og okkar ma\u00f0ur me\u00f0 mark \u00ed leik. 27 m\u00f6rk \u00e6ttu a\u00f0 gefa gullsk\u00f3inn \u00ed haust!<\/p><p>\u00dev\u00ed mi\u00f0ur li\u00f0u ekki nema tv\u00e6r m\u00edn\u00fatur \u00fear til heimamenn n\u00e1\u00f0u a\u00f0 jafna \u00far \u00fev\u00ed sem virtist vera mesta rangst\u00f6\u00f0umark \u00ed heimi, 1:1.Sj\u00f3nvarpsuppt\u00f6kur eru \u00fe\u00f3 ekki afgerandi og \u00fev\u00ed m\u00e1 ekki \u00fatiloka \u00feann m\u00f6guleika a\u00f0 ormag\u00f6ng hafi opnast \u00e1 vellinum og gert framherja HK f\u00e6rt a\u00f0 skora l\u00f6glega og mun fr\u00e9ttaritarinn sem \u00e1hugama\u00f0ur um tilg\u00e1tuv\u00edsindi tengd almennu afst\u00e6\u00f0iskenningunni \u00fev\u00ed l\u00e1ta HK-inginn nj\u00f3ta vafans.<\/p><p>HK-ingar m\u00e1tti pr\u00edsa sig s\u00e6la a\u00f0 hanga ellefu inn\u00e1 um mi\u00f0bik h\u00e1lfleiksins \u00feegar leikma\u00f0ur \u00e1 gulu ger\u00f0i hei\u00f0arlega tilraun til a\u00f0 n\u00e6la s\u00e9r \u00ed a.m.k. bleikt spjald. S\u00ed\u00f0ustu tuttugu m\u00edn\u00faturnar virtist mj\u00f6g fari\u00f0 a\u00f0 draga af heimam\u00f6nnum og Framarar t\u00f3ku v\u00f6ldin h\u00e6gt og b\u00edtandi. Hlynur f\u00f3r af velli fyrir Tiago sem er h\u00e6gt og b\u00edtandi a\u00f0 komast \u00ed leikform og s\u00ed\u00f0ar \u00ed leiknum f\u00f3r \u00d3skar af velli fyrir Adam.<\/p><p>Albert \u00e1tti h\u00f6rkuskot vel fyrir utan teig sem f\u00f3r r\u00e9tt yfir \u00feversl\u00e1 HK-marksins \u00feegar \u00ferj\u00e1r m\u00edn\u00fatur voru eftir af leiknum. Gummi f\u00f3r \u00fataf fyri \u00de\u00f3ri en lokam\u00edn\u00faturnar ur\u00f0u t\u00ed\u00f0indalitlar, \u00fe\u00f3 var\u00f0i \u00d3li gl\u00e6silega undir lokin og beint \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 f\u00e9kk Delphin h\u00f6fu\u00f0h\u00f6gg og var pakka\u00f0 inn \u00ed s\u00e1rabindi en einhverra hluta vegna kom hann hvorki inn\u00e1 aftur n\u00e9 n\u00fdjum manni v\u00e6ri skipt inn\u00e1 \u2013 sem hef\u00f0i \u00fe\u00f3 v\u00e6ntanlega m\u00e1tt \u00fear sem um h\u00f6fu\u00f0\u00e1verka var a\u00f0 r\u00e6\u00f0a.<\/p><p>1:1 jafntefli \u00ed K\u00f3rnum voru varla \u00f3ska\u00farslit eins e\u00f0a neins, en vi\u00f0 vir\u00f0um stigi\u00f0 og m\u00f6rg li\u00f0 munu lenda \u00ed klandri \u00e1 \u00feessum velli. N\u00fa tekur vi\u00f0 bikarkeppnin. N\u00e6sti leikur \u00e1 mi\u00f0vikudagskv\u00f6ldi\u00f0\u00a0 og \u00fev\u00ed er n\u00fa fjandans verr a\u00f0 fr\u00e9ttaritarinn er bundinn \u00ed vinnu \u00fea\u00f0 kv\u00f6ldi\u00f0. Spurning um a\u00f0 hringja inn sprengjuh\u00f3tun \u2013 e\u00f0a virkar \u00fea\u00f0 bara \u00feegar ma\u00f0ur er a\u00f0 missa af flugi?<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hvar \u00ed ver\u00f6ldinni er Carmen Sandiego? Um \u00feessa lykilspurningu hverf\u00f0ust ep\u00edskir t\u00f6lvuleikir fr\u00e1 n\u00edunda \u00e1ratugnum sem f\u00f3lust \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 keppendur reyndu a\u00f0 elta t\u00e1lkvendi\u00f0 fr\u00f6ken Sandiego um heimsbygg\u00f0ina og [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":34222,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[11,9],"tags":[],"class_list":["post-34221","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-mflkarla","category-fotbolti"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/04\/Ferd-gegn-FH.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/34221","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=34221"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/34221\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":34228,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/34221\/revisions\/34228"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/34222"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=34221"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=34221"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=34221"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}