{"id":34967,"date":"2023-06-10T18:22:17","date_gmt":"2023-06-10T18:22:17","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=34967"},"modified":"2023-06-10T18:26:10","modified_gmt":"2023-06-10T18:26:10","slug":"isinn-brotinn","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2023\/06\/10\/isinn-brotinn\/","title":{"rendered":"\u00cdsinn brotinn"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"34967\" class=\"elementor elementor-34967\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-73d2ff1e elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"73d2ff1e\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-4f0ebcdf\" data-id=\"4f0ebcdf\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-5d1791be elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"5d1791be\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-34970 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Mfl.-kv.-240x300.jpg\" alt=\"\" width=\"240\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Mfl.-kv.-240x300.jpg 240w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Mfl.-kv.-819x1024.jpg 819w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Mfl.-kv.-768x960.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Mfl.-kv.-1229x1536.jpg 1229w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Mfl.-kv.-10x12.jpg 10w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Mfl.-kv.-800x1000.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Mfl.-kv..jpg 1440w\" sizes=\"(max-width: 240px) 100vw, 240px\" \/>\u00c1 \u00cdslandi eru vetrarm\u00e1nu\u00f0irnir t\u00edmi fyrir inni\u00ed\u00fer\u00f3ttir eins og bridds, fluguhn\u00fdtingar og harpixballett. Sumrin eru hins vegar t\u00edmi f\u00f3tboltans. \u00deetta vita stelpurnar \u00ed meistaraflokki Fram og um lei\u00f0 og sumari\u00f0 rann formlega upp \u00ed dag, t\u00edunda j\u00fan\u00ed, \u00e1kv\u00e1\u00f0u \u00fe\u00e6r a\u00f0 hefja \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku s\u00edna \u00ed Lengjudeildinni \u00ed \u00e1r. Svo heppilega vildi til a\u00f0 \u00fea\u00f0 var leikdagur.<\/p><p>Fr\u00e9ttaritarinn var m\u00e6ttur t\u00edmanlega upp \u00ed Dal draumanna. Ve\u00f0ri\u00f0 var gullfallegt. \u00c1g\u00e6tur lofthiti og l\u00e9ttsk\u00fdja\u00f0. Hins vegar var nokku\u00f0 sterkur vindur, sem beit ekki \u00e1 \u00e1horfendum \u00ed st\u00fakunni en \u00e1tti \u00fe\u00f3 eftir a\u00f0 setja talsvert mark \u00e1 leikinn. \u00c1horfendur voru f\u00e1ir \u00ed upphafi leiks, \u00fe\u00f3tt \u00feeim fj\u00f6lga\u00f0i nokku\u00f0 \u00feegar \u00e1 lei\u00f0. Greinilegt a\u00f0 skellurinn gegn Gr\u00f3ttu \u00ed s\u00ed\u00f0asta heimaleik hefur seti\u00f0 eitthva\u00f0 \u00ed stu\u00f0ningsf\u00f3lkinu, en \u00e1 \u00fea\u00f0 ber a\u00f0 l\u00edta a\u00f0 \u00fe\u00e1 vanta\u00f0i h\u00e1lft li\u00f0i\u00f0 vegna mei\u00f0sla.<\/p><p>Sj\u00fakra\u00fej\u00e1lfunarteymi\u00f0 hefur sta\u00f0i\u00f0 sig vel, \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta var Fram mun n\u00e6r \u00fev\u00ed a\u00f0 geta stillt upp sterkasta li\u00f0i en \u00ed s\u00ed\u00f0ustu leikjum. Elaina var komin aftur \u00e1 milli stanganna og munar um minna. Kar\u00edtas og J\u00f3hanna Melkorka voru \u00ed mi\u00f0v\u00f6r\u00f0unum og Sylv\u00eda og Irena hvor \u00ed sinni bakvar\u00f0arst\u00f6\u00f0unni. Fyrirli\u00f0inn Erika aftast \u00e1 mi\u00f0junni. \u00deyr\u00ed Lj\u00f3sbj\u00f6rg og Alexa fyrir framan hana. \u00de\u00f3rey og Ylfa \u00e1 k\u00f6ntunum og \u00d3l\u00edna fremst. E\u00f0a nokkurn veginn svona s\u00fdndist fr\u00e9ttaritaranum uppstillingin l\u00edta \u00fat, sem er birt me\u00f0 fyrirv\u00f6rum um a\u00f0 hann er f\u00e1r\u00e1\u00f0ur og var \u00feess utan \u00ed hr\u00f3kasamr\u00e6\u00f0um vi\u00f0 sendir\u00e1\u00f0sb\u00edlstj\u00f3rann Gar\u00f0ar, J\u00f3n \u00far Bolungarv\u00edkinni og T\u00f3ta \u00ed\u00fer\u00f3ttastj\u00f3ra sem gaf s\u00e9r t\u00edma til a\u00f0 horfa \u00e1 slitrur af leiknum \u00feegar hann var ekki a\u00f0 gera og gr\u00e6ja. \u00deetta var f\u00e1d\u00e6ma mannval og enginn t\u00f3k eftir \u00fev\u00ed \u00fe\u00f3tt skjaldsveinninn Valur Nor\u00f0ri v\u00ed\u00f0s fjarri, l\u00edklega a\u00f0 undirb\u00faa r\u00e6\u00f0una fyrir fimmtugsafm\u00e6li\u00f0 sem vi\u00f0 erum b\u00e1\u00f0ir a\u00f0 fara a\u00f0 m\u00e6ta \u00ed \u00ed kv\u00f6ld.<\/p><p>Til marks um breyttar \u00e1herslur Framli\u00f0sins \u00ed \u00feessum leik m\u00e1 nefa a\u00f0 vi\u00f0 lentum ekki undir \u00e1 fyrstu tveimur m\u00edn\u00fatunum sem var skemmtileg n\u00fdbreytni og l\u00edklega skynsamleg. M\u00f3therjarnir FHL byrju\u00f0u me\u00f0 vindinn \u00ed baki\u00f0. \u00der\u00e1tt fyrir nafni\u00f0 er FHL hvorki p\u00f3st\u00fej\u00f3nustufyrirt\u00e6ki e\u00f0a nafn \u00e1 pers\u00f3nuleikar\u00f6skun e\u00f0a taugasj\u00fakd\u00f3mi heldur mun \u00fea\u00f0 vera br\u00e6\u00f0ingsli\u00f0 H\u00e9ra\u00f0sb\u00faa \u00far Hetti fr\u00e1 Egilsst\u00f6\u00f0um og f\u00f3lksins ni\u00f0ri \u00e1 fj\u00f6r\u00f0unum \u00ed Fjar\u00f0abygg\u00f0 og Leikni F\u00e1skr\u00fa\u00f0sfir\u00f0i. H\u00e9r eftir ver\u00f0ur v\u00edsa\u00f0 til \u00feeirra sem Austlendinga e\u00f0a e-\u00f0 \u00e1l\u00edka.<\/p><p>Austurlandsli\u00f0i\u00f0 me\u00f0 \u00f3gagns\u00e6ju skammst\u00f6funina hefur veri\u00f0 \u00e1rinu lengur \u00ed Lengjunni en okkar konur. \u00cd li\u00f0inu eru nokkrir mj\u00f6g fliknir leikmenn sem geta refsa\u00f0 hratt fyrir mist\u00f6k og \u00fe\u00e6r kunna greinilega a\u00f0 n\u00fdta s\u00e9r a\u00f0 leika \u00ed me\u00f0vindi.<\/p><p>\u00cd fyrri h\u00e1lfleiknum gekk \u00a0st\u00falkunum hans Sm\u00e1ra Geirssonar l\u00edka betur a\u00f0 leika boltanum s\u00edn \u00e1 milli en Framli\u00f0inu. Okkar leikmenn eru hins vegar l\u00edkamlega sterkari en flestir m\u00f3therjar (sem gildir s\u00e9rstaklega um Alexu sem vir\u00f0ist bry\u00f0ja ste\u00f0ja \u00ed morgunmat) og me\u00f0 kraftinum ur\u00f0u okkar s\u00f3knir mun h\u00e6ttulegri \u00fe\u00f3tt spili\u00f0 v\u00e6ri kannski ekki svo lipur\u00f0. A fyrstu tuttugu m\u00edn\u00fatunum punkta\u00f0i fr\u00e9ttaritarinn ni\u00f0ur \u00ferj\u00fa h\u00e1lff\u00e6ri og komu \u00feau \u00f6ll \u00ed hlut Fram. Fjar\u00f0a\u00e1lsp\u00edurnar fengu \u00fe\u00f3 s\u00edn f\u00e6ri og \u00feegar fyrri h\u00e1lfleikurinn var n\u00e1kv\u00e6mlega h\u00e1lfna\u00f0ur n\u00e1\u00f0i Kar\u00edtas me\u00f0 gl\u00e6silegri t\u00e6klingu a\u00f0 koma \u00ed veg fyrir a\u00f0 ein austfirsk slyppi ein \u00ed gegn.<\/p><p>Strax \u00ed n\u00e6stu s\u00f3kn n\u00e1\u00f0u Framarar forystunni. H\u00e1 sending kom \u00e1 kollinn \u00e1 Alexu sem st\u00f3\u00f0 vel fyrir utan v\u00edtateig og \u00e1tti erfitt me\u00f0 a\u00f0 n\u00e1 valdi \u00e1 knettinum sem skoppa\u00f0i fyrir f\u00e6tur \u00d3l\u00ednu sem l\u00e9t umsvifalaust va\u00f0a \u00e1 marki\u00f0. Boltinn sleikti samskeytin innanver\u00f0 og Fram komi\u00f0 yfir me\u00f0 gl\u00e6silegu marki. Hvort okkar konu t\u00e6kist a\u00f0 endurtaka leikinn \u00ed t\u00edu tilraunum \u00ed r\u00f6\u00f0 skulum vi\u00f0 l\u00e1ta liggja milli hluta \u2013 \u00feetta taldi og Fram komi\u00f0 yfir.<\/p><p>Marki\u00f0 virtist vekja valkyrjur Lagarflj\u00f3tsins til l\u00edfsins. S\u00f3knar\u00feungi \u00feeirra j\u00f3kst jafnt og \u00fe\u00e9tt \u00fea\u00f0 sem eftir var h\u00e1lfleiks. Tv\u00f6 skot \u00ed r\u00f6\u00f0 f\u00f3ru n\u00e6rri Frammarkinu og eftir h\u00e1lft\u00edma leik rei\u00f0 \u00f3g\u00e6fan yfir. Ein Gerpisgr\u00fdlan (austfirskar \u00f6rnefnav\u00edsanir ver\u00f0a bl\u00f3\u00f0mj\u00f3lka\u00f0ar \u00ed \u00feessum pistli og \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur ekki allt fagurt) komst upp a\u00f0 endam\u00f6rkum og sendi fyrir \u00fear sem v\u00f6rn Fram svaf \u00e1 ver\u00f0inum. Framherji Ei\u00f0a\u00feingh\u00e1r skaut af \u00f6rstuttu f\u00e6ri, Elaina var\u00f0i vel en boltinn hr\u00f6kk \u00ed varnarmann og \u00fea\u00f0an \u00ed neti\u00f0, 1:1 og hundf\u00falt j\u00f6fnunarmark.<\/p><p>Lei\u00f0indin \u00e1ttu eftir a\u00f0 tv\u00f6faldast sex m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar \u00feegar hreind\u00fdrab\u00e6ndurnir fengu horn (pun intended) sem Framv\u00f6rninni virtist takast a\u00f0 b\u00e6gja fr\u00e1, en boltinn hr\u00f6kk fyrir eina Hallormssta\u00f0ahr\u00edsluna sem smellhitti hann \u00ed gegnum \u00fev\u00f6guna og \u00ed neti\u00f0. \u00d3\u00fearflega snoturt skot og gestirnir komnir \u00ed 1:2. \u00c1 \u00feessum t\u00edmapunkti leit li\u00f0 okkar sannast sagna ekkert s\u00e9rstaklega vel \u00fat og m\u00e1tti heita vel sloppi\u00f0 a\u00f0 vera bara markinu undir \u00feegar T\u00f3mas Mayer, g\u00f3\u00f0ur d\u00f3mari leiksins, flauta\u00f0i til leikhl\u00e9s.<\/p><p>Stemningin var \u00f6rl\u00edti\u00f0 bl\u00fasu\u00f0 inni \u00ed \u00ed\u00fer\u00f3ttah\u00fasinu \u00ed hl\u00e9i en kaffi\u00f0 n\u00e6r\u00f0i \u00fe\u00f3 s\u00e1lartetri\u00f0 og vissan um a\u00f0 spila me\u00f0 vindinn \u00ed baki\u00f0 \u00ed seinni h\u00e1lfleik hughreysti mannskapinn.<\/p><p>\u00dea\u00f0 var enginn \u00d3skar Sm\u00e1ri til a\u00f0 halda h\u00e1lfleiksr\u00e6\u00f0una. Hann er staddur su\u00f0ur \u00ed s\u00f3linni me\u00f0 unglingali\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00e6fingafer\u00f0. En An\u00edta, hinn a\u00f0al\u00fej\u00e1lfarinn, var \u00e1 s\u00ednum sta\u00f0 og me\u00f0 sj\u00e1lfan Gumma Magg s\u00e9r til halds og trausts. Hvernig svo sem r\u00e6\u00f0an var \u00fe\u00e1 virka\u00f0i h\u00fan. \u00dea\u00f0 var allt anna\u00f0 Framli\u00f0 sem kom \u00fat eftir hl\u00e9 og t\u00f3k flj\u00f3tlega \u00f6ll v\u00f6ldin \u00ed leiknum.<\/p><p>\u00deegar seinni h\u00e1lfleikur var fj\u00f6gurra m\u00edn\u00fatna gamall \u00e1tti Alexa bylmingsskot framhj\u00e1. Tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar kom l\u00f6ng sending af mi\u00f0junni inn fyrir v\u00f6rn Litlu Moskvu. Markv\u00f6r\u00f0ur gestanna og \u00de\u00f3rey f\u00f3ru \u00ed \u00e6\u00f0isgengi\u00f0 kapphlaup um hvor yr\u00f0i \u00e1 undan \u00ed boltann. \u00de\u00f3rey vann, hlj\u00f3p \u00ed fallegum boga framhj\u00e1 markver\u00f0inum og lyfti knettinum svo yfir a\u00f0v\u00edfandi varnarmann og upp \u00ed \u00feakneti\u00f0, 2:2. Fr\u00e9ttaritarinn og b\u00edlstj\u00f3ri norska sendiherrans h\u00e6-f\u00e6vu\u00f0u hvor annan. Landi\u00f0 var allt fari\u00f0 a\u00f0 r\u00edsa.<\/p><p>Leikurinn r\u00f3a\u00f0ist a\u00f0eins eftir marki\u00f0. Drottningar Drekasv\u00e6\u00f0isins virtust s\u00e1ttar vi\u00f0 stigi\u00f0 og \u00fe\u00f3tt Framarar st\u00fdr\u00f0u leiknum var\u00f0 lengra \u00e1 milli h\u00e6ttulegra s\u00f3kna. H\u00e9ra\u00f0sstubbarnir h\u00f3tu\u00f0u a\u00f0 n\u00e1 forystunni \u00e1 n\u00fd \u00feegar 25 m\u00edn\u00fatur voru eftir, en \u00f3ttalaust \u00fathlaup hj\u00e1 Elainu kom \u00ed veg fyrir \u00fea\u00f0. \u00deetta er fr\u00e1b\u00e6r markv\u00f6r\u00f0ur sem vi\u00f0 h\u00f6fum n\u00e6lt okkur \u00ed.<\/p><p>Um mi\u00f0jan h\u00e1lfleikinn hef\u00f0i Fram \u00e1tt a\u00f0 n\u00e1 forystunni \u00feegar \u00d3l\u00edna \u00e1tti g\u00f3\u00f0a sendingu utan af kanti \u00e1 Alexu sem negldi \u00e1 marki\u00f0 \u00far dau\u00f0af\u00e6ri en \u00fev\u00ed mi\u00f0ur \u00fer\u00e1\u00f0beint \u00e1 markv\u00f6r\u00f0inn. \u00deetta var s\u00ed\u00f0asta snerting \u00d3l\u00ednu \u00ed leiknum \u00fev\u00ed h\u00fan f\u00f3r af velli fyrir Fanneyju Birnu.<\/p><p>\u00deegar kort\u00e9r var eftir af venjulegum leikt\u00edma f\u00e9kk Fram aukaspyrnu \u00fati \u00e1 mi\u00f0jum velli. \u00cdrena, sem t\u00f3k flestar sl\u00edkar spyrnur, \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 n\u00fdta vindinn og l\u00e1ta bara va\u00f0a \u00e1 marki\u00f0. G\u00f3\u00f0ur markv\u00f6r\u00f0ur n\u00e1msmeyja Hj\u00f6rleifs Guttormssonar (\u00f3key, \u00e9g fer a\u00f0 h\u00e6tta br\u00e1\u00f0um) var vel vakandi og n\u00e1\u00f0i a\u00f0 blaka honum \u00ed \u00feversl\u00e1na og \u00fat.<\/p><p>Thelma leysti Ylfu af h\u00f3lmi sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar og f\u00e1einum sek\u00fandum s\u00ed\u00f0ar n\u00e1\u00f0i Helgusta\u00f0asilfurbergsmolinn \u00ed marki Austlendinga a\u00f0 bjarga \u00e1 markl\u00ednu eftir horn. S\u00f3knin var a\u00f0 \u00feyngjast og eitthva\u00f0 hlaut undan a\u00f0 l\u00e1ta!<\/p><p>Timinn vann ekki me\u00f0 Framli\u00f0inu og eftir \u00fev\u00ed sem m\u00edn\u00faturnar li\u00f0u virtist l\u00edklegra a\u00f0 svekkjandi 2:2 jafntefli yr\u00f0i rauninn. Vi\u00f0 vir\u00f0um stigi\u00f0 en jafntefli gefa ekki miki\u00f0 \u00feegar ma\u00f0ur er \u00ed botns\u00e6tinu. En \u00e1 fyrst m\u00edn\u00fatu fj\u00f6gurra m\u00edn\u00fatna uppb\u00f3tart\u00edma t\u00f3kst a\u00f0 h\u00f6ggva \u00e1 hn\u00fatinn. Framarar s\u00f3ttu upp kantinn og n\u00e1\u00f0u sendingu fyrir \u00fear sem Fanney Birna var \u00f3v\u00f6ldu\u00f0 og afgreiddi fr\u00e1b\u00e6ra fyrirgj\u00f6f au\u00f0veldlega \u00ed neti\u00f0, 3:2 og almenn k\u00e1t\u00edna braust \u00fat \u00ed st\u00fakunni.<\/p><p>En \u00fea\u00f0 er ekki b\u00fai\u00f0 fyrr en \u00fea\u00f0 er b\u00fai\u00f0! Enn voru \u00ferj\u00e1r m\u00edn\u00fatur eftir af leiknum og \u00fe\u00f3tt Framarar ver\u00f0u honum a\u00f0 mestu leyti \u00ed s\u00f3kn, t\u00f3kst okkur a\u00f0 missa eina Oddskar\u00f0sfrenjuna eina \u00ed gegn \u00e1 lokaandart\u00f6kum leiksins. Allir \u00e1 vellinum s\u00e1u fyrir s\u00e9r j\u00f6fnunarmark en Elaina rauk \u00fat \u00far markinu me\u00f0 hetjuv\u00f6rslu \u00ed s\u00ed\u00f0ustu snertingu leiksins. Vonbrig\u00f0i FHL-st\u00falkna voru s\u00e1r og skiljanleg. \u00deetta er gott li\u00f0 og eftirl\u00e6tistengdasonur Nor\u00f0fjar\u00f0ar mun klappa fyrir \u00fev\u00ed \u00ed \u00f6llum \u00f6\u00f0rum leikjum en \u00ed dag. Fram vann d\u00fdrm\u00e6tan sigur sem \u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0 vi\u00f0 erum ekki lengur \u00ed falls\u00e6ti og KR komi\u00f0 \u00e1 botninn (\u00f6rstutt hl\u00e9 \u00e1 sk\u00fdrsluritun vegna ekkasoga). Koktelberi\u00f0 \u00e1 k\u00f6kunni var svo ziggi-zaggi vi\u00f0 hli\u00f0arl\u00ednuna. \u00deetta er besta lag \u00ed heimi og virkar meira a\u00f0 segja \u00ed s\u00f3pran.<\/p><p>N\u00e6sti leikur er Fylkir \u00e1 \u00fativelli. M\u00e6ti\u00f0 \u00feanga\u00f0 e\u00f0a veri\u00f0 ferningar ella.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c1 \u00cdslandi eru vetrarm\u00e1nu\u00f0irnir t\u00edmi fyrir inni\u00ed\u00fer\u00f3ttir eins og bridds, fluguhn\u00fdtingar og harpixballett. Sumrin eru hins vegar t\u00edmi f\u00f3tboltans. \u00deetta vita stelpurnar \u00ed meistaraflokki Fram og um lei\u00f0 og sumari\u00f0 [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":34968,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,12],"tags":[],"class_list":["post-34967","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkvenna"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/FRAM-stelpur.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/34967","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=34967"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/34967\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":34973,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/34967\/revisions\/34973"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/34968"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=34967"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=34967"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=34967"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}