{"id":35028,"date":"2023-06-21T23:24:04","date_gmt":"2023-06-21T23:24:04","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=35028"},"modified":"2023-06-21T23:25:00","modified_gmt":"2023-06-21T23:25:00","slug":"blikktromman","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2023\/06\/21\/blikktromman\/","title":{"rendered":"Blikktromman"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"35028\" class=\"elementor elementor-35028\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-16e400ea elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"16e400ea\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-760516d6\" data-id=\"760516d6\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-790810d4 elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"790810d4\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-35031 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Olina-gegn-UMFA-240x300.jpg\" alt=\"\" width=\"240\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Olina-gegn-UMFA-240x300.jpg 240w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Olina-gegn-UMFA-819x1024.jpg 819w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Olina-gegn-UMFA-768x961.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Olina-gegn-UMFA-1228x1536.jpg 1228w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Olina-gegn-UMFA-10x12.jpg 10w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Olina-gegn-UMFA-800x1001.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Olina-gegn-UMFA.jpg 1440w\" sizes=\"(max-width: 240px) 100vw, 240px\" \/>\u00deegar fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar var t\u00e1ningur vann hann \u00ed byggingarvinnu \u00e1 Sau\u00f0\u00e1rkr\u00f3ki. \u00dear var hann \u00ed f\u00e6\u00f0i \u00e1 H\u00f3tel Tindast\u00f3li og \u00e1t rau\u00f0sprettu \u00ed hvert m\u00e1l \u00ed minningunni. Og \u00fear l\u00e6r\u00f0i hann l\u00edka a\u00f0 drekka bj\u00f3r. Eftir eina sl\u00edka \u00e6fingat\u00f6rn vakna\u00f0i hann heldur framl\u00e1gur \u00e1 f\u00e1g\u00e6tum s\u00f3lardegi og var settur \u00e1 brotv\u00e9l, til a\u00f0 brj\u00f3ta ni\u00f0ur \u00feakskyggni. Andstyggileg h\u00f6ggin \u00ed bitlitlum fleygnum sem hama\u00f0ist \u00e1 gr\u00f3fri steypunni og h\u00e1lfry\u00f0ga\u00f0ri j\u00e1rnabindingunni n\u00edsti inn a\u00f0 beini. H\u00f6gg eftir h\u00f6gg eftir h\u00f6gg. \u00dea\u00f0 var samt fegurri t\u00f3nlist en trumbusl\u00e1tturinn \u00e1 leik kv\u00f6ldsins \u00ed \u00dalfars\u00e1rdal.<\/p><p>\u00c1kafur stu\u00f0ningsma\u00f0ur \u00e1sts\u00e6llra n\u00e1granna okkar \u00far Mosfellsb\u00e6 var m\u00e6ttur me\u00f0 eina trommu sem hann bar\u00f0i n\u00e1lega linnulaust, oftast n\u00e6r syngjandi h\u00e1st\u00f6fum: \u201eAftu Relding\u201c sem var fyrst \u00f6rl\u00edti\u00f0 ruglandi, vandist svo me\u00f0 t\u00edmanum en var\u00f0 aftur \u00f3\u00fe\u00e6gilegt \u00feegar \u00fea\u00f0 rann upp fyrir fr\u00e9ttaritaranum a\u00f0 \u201eAfturelding\u201c r\u00edmar fullkomlega vi\u00f0 \u201eL\u00e1rus Welding\u201c og \u00fea\u00f0 sem eftir var leiks h\u00e9ldu martra\u00f0arkennd leiftur fr\u00e1 fr\u00e9ttat\u00edmum hrun\u00e1ranna \u00e1fram a\u00f0 birtast fyrir hugskotssj\u00f3num. Nokkrir barnungir Framarar \u00e1kv\u00e1\u00f0u a\u00f0 gjalda l\u00edku l\u00edkt \u00ed h\u00e1lfleik og s\u00f3ttu s\u00e9r heljarmiki\u00f0 trommusett sem \u00feeir b\u00f6r\u00f0u af kappi frekar en forsj\u00e1. \u00datkoman minnti \u00e1 Einst\u00fcrzende Neubauten \u00e1 \u00feri\u00f0ja degi \u00dej\u00f3\u00f0h\u00e1t\u00ed\u00f0ar. En \u00fea\u00f0 er enginn a\u00f0 kvarta! Framkonur l\u00f6ndu\u00f0u s\u00ednum \u00f6\u00f0rum deildarsigri \u00ed sumar og lyftu s\u00e9r aftur \u00far falls\u00e6ti. Slagurinn um tengivirki\u00f0 Korpu var unninn!<\/p><p>\u00dea\u00f0 var menningarreisa \u00ed p\u00f3stn\u00famer 113 hj\u00e1 fr\u00e9ttaritaranum \u00ed kv\u00f6ld. Vinnudeginum lauk \u00e1 fundi \u00ed menningarmi\u00f0st\u00f6\u00f0inni vi\u00f0 Dalsk\u00f3la og \u00fear sem stutt var \u00ed leik var \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 sl\u00e1 \u00feessu bara upp \u00ed k\u00e6ruleysi og nj\u00f3ta \u00feess besta sem hverfi\u00f0 hefur upp \u00e1 a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a \u00ed mat og drykk. Fyrir valinu var\u00f0 sta\u00f0ur vi\u00f0 \u00dej\u00f3\u00f0hildarst\u00edg sem s\u00e9rh\u00e6fir sig matse\u00f0lum fr\u00e1 su\u00f0austurr\u00edkjum Bandar\u00edkjanna me\u00f0 s\u00e9rstakri \u00e1herslu \u00e1 transfitu og salt. \u00dev\u00ed n\u00e6st var bruna\u00f0 aftur \u00ed Dal draumanna \u00fear sem franskt gangsterarapp var blasta\u00f0 \u00ed hlj\u00f3\u00f0kerfinu okkar f\u00edna. Meira a\u00f0 segja pl\u00f6tusn\u00fa\u00f0arnir okkar eru svalari en \u00e1 hinum v\u00f6llunum!<\/p><p>St\u00fakan var t\u00f3m a\u00f0 kalla fj\u00f3rum m\u00edn\u00fatum fyrir leik og hjarta\u00f0 s\u00f6kk l\u00edti\u00f0 eitt. Hva\u00f0 var or\u00f0i\u00f0 um alla f\u00ednu m\u00e6tinguna sem hefur einkennt okkur fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed fyrra sumar? \u00c1hyggjurnar voru \u00f3\u00fearfar. Eftir a\u00f0 flauta\u00f0 haf\u00f0i veri\u00f0 til leiks dreif mannskapinn a\u00f0 og \u00ed lokin var \u00feetta or\u00f0inn hinn myndarlegasti s\u00f6fnu\u00f0ur.<\/p><p>Elaina st\u00f3\u00f0 \u00ed markinu, sem voru miklar gle\u00f0ifr\u00e9ttir \u00ed lj\u00f3si \u00feess a\u00f0 h\u00fan var borin af velli gegn Fylki \u00ed s\u00ed\u00f0asta leik og mun hafa \u00feurft ellefu spor \u00e1 slys\u00f3 (\u00e9g neita a\u00f0 l\u00edtilsvir\u00f0a g\u00e1fur lesenda minna me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 setja h\u00e9r brandara um 12 spora kerfi\u00f0). Varnarl\u00ednan virtist amk til a\u00f0 byrja me\u00f0 vera \u00feriggja manna me\u00f0 J\u00f3h\u00f6nnu, Kar\u00edtas og Sylv\u00edu. \u00cdrena, \u00deyr\u00ed og Erika inni \u00e1 mi\u00f0junni \u2013 s\u00fa s\u00ed\u00f0astnefnda er eins og n\u00fdr leikma\u00f0ur \u00ed mi\u00f0juhlutverkinu eftir a\u00f0 hafa miki\u00f0 til veri\u00f0 \u00ed mi\u00f0ver\u00f0inum \u00ed fyrra. \u00de\u00f3rey og \u00d3l\u00edna hvor \u00e1 s\u00ednum kanti og bandar\u00edska tv\u00edeyki\u00f0 Breuk og Alexa frammi. Mei\u00f0slin hafa teki\u00f0 sinn toll \u00ed sumar en n\u00fa erum vi\u00f0 loksins a\u00f0 n\u00e1 a\u00f0 tefla fram besta li\u00f0i.<\/p><p>Fram byrja\u00f0i betur og \u00e1tti nokkur h\u00e1lff\u00e6ri fyrsta stundarfj\u00f3r\u00f0unginn en f\u00e1tt \u00fe\u00f3 svo markvert a\u00f0 \u00fea\u00f0 rata\u00f0i \u00ed minnisb\u00f3kina g\u00f3\u00f0u. Framli\u00f0i\u00f0 pressa\u00f0i h\u00e1tt og olli \u00fea\u00f0 talsver\u00f0ri taugaveiklun \u00ed li\u00f0i Aftureldingar, sem er v\u00e6ntanlega enn\u00fe\u00e1 s\u00e6rt eftir a\u00f0 vi\u00f0 sl\u00f3gum \u00fe\u00e6r \u00fat \u00far bikarkeppninni \u00ed vor. \u00c1 sext\u00e1ndu m\u00edn\u00fatu kom flott s\u00f3kn \u00fear sem Breuk og Alexa voru me\u00f0 stuttan samleik \u00ed gegnum mi\u00f0juna, stungu \u00fat \u00ed horni\u00f0 \u00e1 \u00d3l\u00ednu sem kom a\u00f0v\u00edfandi og sendi boltann fyrir, eftir klafs \u00ed teignum barst boltinn \u00ed \u00feversl\u00e1nna og \u00fea\u00f0an fyrir f\u00e6tur Alexu sem skora\u00f0i, en d\u00f3mari leiksins d\u00e6mdi marki\u00f0 af \u00e1n s\u00fdnilegs tilefnis annars en \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 frekar slysalegt og \u00f3vir\u00f0ulegt.<\/p><p>Tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar sleikti boltinn sl\u00e1nna hinu megin eftir a\u00f0 Elaina haf\u00f0i n\u00e1\u00f0 a\u00f0 reka fingurnar \u00ed hann. Fimm m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar m\u00e1tti h\u00fan hafa sig alla vi\u00f0 a\u00f0 verja l\u00famskan skalla fr\u00e1 leikmanni Aftureldingar. Framli\u00f0i\u00f0 h\u00e9lt undirt\u00f6kunum, \u00fe\u00f3tt gestunum t\u00e6kist a\u00f0 vinna sig betur inn \u00ed leikinn seinni hluta h\u00e1lfleiksins. H\u00e1skaleg sending aftur \u00e1 markv\u00f6r\u00f0inn var n\u00e6rri b\u00fain a\u00f0 enda me\u00f0 \u00f3sk\u00f6pum en gott \u00fathlaup kom \u00ed veg fyrir a\u00f0 framherjinn Joseph sem var potturinn og pannan \u00ed leik li\u00f0sins n\u00e6\u00f0i a\u00f0 komast \u00e1 milli.<\/p><p>\u00deegar t\u00edu m\u00edn\u00fatur voru eftir \u00e1tti Breuk aukaspyrnu r\u00e9tt framhj\u00e1 marki rau\u00f0kl\u00e6ddra eftir a\u00f0 broti\u00f0 haf\u00f0i veri\u00f0 \u00e1 henni \u00e1 v\u00edtateigshorni. Strax \u00ed n\u00e6stu s\u00f3kn setti Joseph boltann \u00ed net Framara en var kolrangst\u00e6\u00f0 svo \u00fea\u00f0 st\u00f3\u00f0 ekki. H\u00fan virtist aftur auglj\u00f3slega rangst\u00e6\u00f0 nokkrum m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar en flaggi\u00f0 f\u00f3r ekki \u00e1 loft og Elaina \u00feurfti a\u00f0 bjarga me\u00f0 g\u00f3\u00f0u \u00fathlaupi. \u00deetta er langbesti markv\u00f6r\u00f0ur deildarinnar og halla\u00f0ist \u00f3nefndur r\u00e1\u00f0herra \u00ed h\u00f3pi \u00e1horfenda a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan eigi s\u00e9r f\u00e1a jafningja \u00ed Bestu deildinni l\u00edka! Ekki deilum vi\u00f0 vi\u00f0 fulltr\u00faa framkv\u00e6mdavaldsins.<\/p><p>Breuk var heppin a\u00f0 komast upp me\u00f0 har\u00f0a t\u00e6klingu \u00e1 hli\u00f0arl\u00ednunni alveg vi\u00f0 mi\u00f0ju og var svo \u00f6rsk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar komin \u00ed fremstu s\u00f3knarl\u00ednu \u00fear sem \u00fe\u00e6r Alexa ger\u00f0u har\u00f0a hr\u00ed\u00f0 a\u00f0 marki Aftureldingar. \u00deegar Mosfellskonur virtust hafa n\u00e1\u00f0 a\u00f0 afst\u00fdra h\u00e6ttunni misstu \u00fe\u00e6r boltann \u00ed hornspyrnu \u00e1 \u00e1kaflega klaufalegan h\u00e1tt. Hornspyrna Sylv\u00edu rata\u00f0i beint \u00e1 kollinn \u00e1 Breuk sem st\u00f6kk h\u00e6st allra \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 vera fr\u00e1leitt s\u00fa h\u00e1vaxnasta og \u00fea\u00f0an \u00ed neti\u00f0, 1:0 \u00feegar a\u00f0eins m\u00edn\u00fata var eftir \u00ed leikhl\u00e9.<\/p><p>Pizzusnei\u00f0arnar \u00far sjoppunni virtust g\u00f3ms\u00e6tar en fr\u00e9ttaritarinn \u00e1kva\u00f0 \u00fe\u00f3 a\u00f0 leggja ekki meira \u00e1 krans\u00e6\u00f0arnar, heldur l\u00e9t n\u00e6gja a\u00f0 spjalla vi\u00f0 T\u00f3ta \u00ed\u00fer\u00f3ttafulltr\u00faa. \u00c1 n\u00e6stu gr\u00f6sum m\u00e1tti sj\u00e1 d\u00f6nsku \u00fatlendingahersveitina \u00far karlaboltanum, Jannik og Delph. \u00d3, hva\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri gaman a\u00f0 sj\u00e1 Jannik komast aftur \u00e1 r\u00f3l!<\/p><p>Afturelding byrja\u00f0i seinni h\u00e1lfleik me\u00f0 l\u00e1tum og Joseph kom s\u00e9r \u00ed gott f\u00e6ri \u00e1 fyrstu m\u00edn\u00fatu en Elaina var\u00f0i vel \u00ed horn. Eftir nokkrar m\u00edn\u00fatur hvarf skj\u00e1lftinn og Framkonur t\u00f3ku v\u00f6ldin \u00e1 n\u00fd. \u00de\u00f3rey \u00e1tti stungu inn \u00ed teig \u00fear sem \u00deyr\u00ed var \u00f3v\u00f6ldu\u00f0 en skot hennar var vari\u00f0. Breuk \u00e1tti svo gullsendingu \u00e1 \u00de\u00f3reyju sem hef\u00f0i geta\u00f0 sent \u00e1fram \u00e1 samherja \u00ed opnu f\u00e6ri en reyndi \u00ed sta\u00f0inn frekar misheppna\u00f0 skot a\u00f0 marki.<\/p><p>\u00deegar seinni h\u00e1lfleikur var r\u00e9tt h\u00e1lfna\u00f0ur eyg\u00f0i \u00d3l\u00edna f\u00e6ri \u00e1 a\u00f0 vippa yfir markv\u00f6r\u00f0 gestanna sem var l\u00edka flj\u00f3t a\u00f0 hugsa og n\u00e1\u00f0i a\u00f0 blaka boltanum \u00ed horn \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu stundu. Framli\u00f0i\u00f0 haf\u00f0i talsver\u00f0a yfirbur\u00f0i \u00e1 \u00feessum leikkafla en s\u00e1 grunur l\u00e6ddist \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00e1horfendum a\u00f0 \u00feeim yr\u00f0i refsa\u00f0 ef \u00fe\u00e6r skoru\u00f0u ekki anna\u00f0 mark til vi\u00f0b\u00f3tar. Slegi\u00f0 var \u00e1 \u00fe\u00e6r \u00e1hyggjur \u00e1 70. m\u00edn\u00fatu \u00feegar Breuk st\u00f6kk upp me\u00f0 baki\u00f0 \u00ed marki\u00f0 og flikka\u00f0i boltanum inn fyrir v\u00f6rnina \u00fear sem \u00d3l\u00edna var flj\u00f3tust a\u00f0 hugsa, stakk varnarmennina af og afgreiddi boltann \u00ed neti\u00f0 af miklu \u00f6ryggi, 2:0.<\/p><p>Fimm m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar f\u00e9kk \u00de\u00f3rey olnbogaskot \u00ed h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 sem f\u00f3r \u00fe\u00f3 algj\u00f6rlega fram hj\u00e1 starfsm\u00f6nnum leiksins. \u00dea\u00f0 var meira en r\u00e9ttl\u00e6tiskennd markvar\u00f0ar\u00fej\u00e1lfarans Hermanns Valssonar \u00feoldi. Hann n\u00e6ldi s\u00e9r \u00ed tv\u00f6 gul spj\u00f6ld \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0, anna\u00f0 v\u00e6ntanlega fyrir a\u00f0 vera \u00ed Arsenal-jakka en ekki Fram\u00falpu. \u00de\u00f3rey \u00feurfti a\u00f0 yfirgefa v\u00f6llinn eftir h\u00f6ggi\u00f0 og kom Ylfa Margr\u00e9t inn \u00ed hennar sta\u00f0.<\/p><p>\u00d3l\u00edna hef\u00f0i geta\u00f0 kl\u00e1ra\u00f0 leikinn endanlega \u00feegar t\u00edu m\u00edn\u00fatur voru eftir, en skot fr\u00e1 henni var vari\u00f0 gl\u00e6silega. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar f\u00f3ru \u00d3l\u00edna og Alexa k\u00e6ruleysislega me\u00f0 \u00e1g\u00e6tt f\u00e6ri.<\/p><p>Fur\u00f0uleg upp\u00e1koma \u00e1tti s\u00e9r sta\u00f0 \u00e1 84. m\u00edn\u00fatu. Framarar \u00e1ttu sendingu \u00ed gegnum Aftureldingarv\u00f6rnina \u00fear sem markv\u00f6r\u00f0ur Mosfellinga renndi s\u00e9r \u00fat en skall \u00e1 samherja og h\u00e9lt um h\u00f6fu\u00f0 s\u00e9r. Boltinn barst til leikmanns Fram sem var \u00ed sm\u00e1 t\u00edma a\u00f0 n\u00e1 valdi \u00e1 honum og hlj\u00f3p svo \u00ed \u00e1tt a\u00f0 marki, alb\u00fain a\u00f0 senda fyrir marki\u00f0. \u00de\u00e1 st\u00f6\u00f0va\u00f0i d\u00f3marinn loksins leikinn eins og vera ber \u00feegar um h\u00f6fu\u00f0mei\u00f0sli er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. \u00deegar b\u00fai\u00f0 var a\u00f0 stumra yfir markver\u00f0inum l\u00fdsti hann \u00fev\u00ed yfir a\u00f0 Afturelding \u00e6tti boltann og rak Framara burtu \u00fer\u00e1tt fyrir m\u00f3tm\u00e6li \u00feeirra. D\u00f3marakast var framkv\u00e6mt og Mosfellingar h\u00e9ldu knettinum. S\u00e9rkennilegt!<\/p><p>Fanney Birna kom inn\u00e1 \u00ed lokin fyrir \u00d3l\u00ednu og markmi\u00f0i\u00f0 virtist vera a\u00f0 sv\u00e6fa leikinn. \u00dea\u00f0 mist\u00f3kst hrapalega. \u00deegar m\u00edn\u00fata var eftir \u00feurfti Framv\u00f6rnin a\u00f0 bjarga \u00ed horn. Afturelding snarfj\u00f6lga\u00f0i \u00ed s\u00f3kninni og sm\u00e1 f\u00e1t virtist gr\u00edpa um sig. Eftir klaufagang \u00ed Framv\u00f6rninni t\u00f3kst Mosfellingum a\u00f0 minnka muninn \u00feegar ein m\u00edn\u00fata var li\u00f0in af fj\u00f3rum \u00ed vi\u00f0b\u00f3tart\u00edma. Tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar fipa\u00f0ist einum varnarmanna Fram svo a\u00f0 Afturelding f\u00e9kk f\u00e6ri \u00e1 a\u00f0 stela stigi \u00ed bl\u00e1lokin en skoti\u00f0 reyndist slakt. \u00der\u00e1tt fyrir mark \u00ed uppb\u00f3tart\u00edma b\u00e6tti d\u00f3marinn ekki nema t\u00edu sek\u00fandum vi\u00f0 og l\u00e9tu Framarar s\u00e9r \u00fea\u00f0 vel l\u00edka. Sj\u00f6unda stigi\u00f0 er komi\u00f0 \u00e1 t\u00f6fluna og vi\u00f0 tekur risaslagur \u00ed n\u00e6stu umfer\u00f0 milli KR og Fram. A\u00f0eins fl\u00f3n missa af \u00feeirri rimmu!<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deegar fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar var t\u00e1ningur vann hann \u00ed byggingarvinnu \u00e1 Sau\u00f0\u00e1rkr\u00f3ki. \u00dear var hann \u00ed f\u00e6\u00f0i \u00e1 H\u00f3tel Tindast\u00f3li og \u00e1t rau\u00f0sprettu \u00ed hvert m\u00e1l \u00ed minningunni. Og \u00fear l\u00e6r\u00f0i [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":35029,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,12],"tags":[],"class_list":["post-35028","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkvenna"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/fram-gegn-Fylki.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/35028","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=35028"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/35028\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":35034,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/35028\/revisions\/35034"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/35029"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=35028"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=35028"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=35028"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}