{"id":35294,"date":"2023-08-02T22:55:21","date_gmt":"2023-08-02T22:55:21","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=35294"},"modified":"2023-08-02T23:00:04","modified_gmt":"2023-08-02T23:00:04","slug":"blablabla","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2023\/08\/02\/blablabla\/","title":{"rendered":"\u00a0blablabla"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"35294\" class=\"elementor elementor-35294\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-1357c4c5 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"1357c4c5\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-7184cc70\" data-id=\"7184cc70\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-5a55848c elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"5a55848c\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-35031 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Olina-gegn-UMFA-240x300.jpg\" alt=\"\" width=\"240\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Olina-gegn-UMFA-240x300.jpg 240w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Olina-gegn-UMFA-819x1024.jpg 819w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Olina-gegn-UMFA-768x961.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Olina-gegn-UMFA-1228x1536.jpg 1228w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Olina-gegn-UMFA-10x12.jpg 10w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Olina-gegn-UMFA-800x1001.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/06\/Olina-gegn-UMFA.jpg 1440w\" sizes=\"(max-width: 240px) 100vw, 240px\" \/>\u00cd raun hef\u00f0i fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar \u00e1tt a\u00f0 skrifa fyrir vef Augnabliks. Pistillinn hef\u00f0i skrifa\u00f0 sig sj\u00e1lfur, enda \u00ferautreynd b\u00f3kmenntagrein: blablabla&#8230; eitthva\u00f0 um kornungt li\u00f0&#8230; blablabla&#8230; erfitt a\u00f0 keppa vi\u00f0 \u00ferautreynda andst\u00e6\u00f0inga&#8230; blablabla&#8230; fer allt \u00ed reynslubankann &#8230; blablabla&#8230; sigurinn kannski \u00f3\u00fearflega st\u00f3r \u2013 en vi\u00f0 getum \u00f6ll veri\u00f0 stolt af okkar li\u00f0i. \u00deetta v\u00e6ri h\u00e6g\u00f0arleikur og fengi fullt af skyldur\u00e6knis-l\u00e6kum \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum. Vandr\u00e6\u00f0in aukast hins vegar \u00feegar skrifa \u00fearf \u00fat fr\u00e1 hinu sj\u00f3narhorninu: sterkara li\u00f0sins sem innbyrti st\u00f3ran skyldusigur \u00e1 botnl\u00f0inu.<\/p><p>Augnablik er bori\u00f0 uppi af 16-17 \u00e1ra st\u00falkum \u00far risav\u00f6xnu unglingastarfi Brei\u00f0abliks. \u00dear eru unglingalandsli\u00f0smenn \u00e1 hverju str\u00e1i og \u00ed li\u00f0inu eru leikmenn sem eiga eftir a\u00f0 n\u00e1 langt, \u00fe\u00f3tt li\u00f0i\u00f0 sj\u00e1lft s\u00e9 fullmikil l\u00e9ttvigt til a\u00f0 eiga erindi \u00ed Lengjudeildina. (A\u00f0 \u00fev\u00ed s\u00f6g\u00f0u er \u00fe\u00f3 r\u00e9tt a\u00f0 halda \u00fev\u00ed til haga a\u00f0 eini sigur Augnabliks n\u00fa \u00ed sumar kom einmitt \u00e1 m\u00f3ti Fram \u2013 reyndar mei\u00f0sla\u00fej\u00f6ku\u00f0u Framli\u00f0i og \u00ed \u00fev\u00ed afleita knatth\u00fasi F\u00edfunni).<\/p><p>Fr\u00e9ttaritarinn \u00f3k einn upp \u00ed Dal draumanna og sat einsamall \u00ed st\u00fakunni fyrir hl\u00e9. Flestir fastagestirnir l\u00edklega lagstir \u00ed fer\u00f0al\u00f6g og meirihluti \u00feeirra 107 \u00e1horfenda sem taldir voru vi\u00f0 innganginn l\u00edklega fj\u00f6lskyldume\u00f0limir leikmanna. \u00dea\u00f0 var \u00fe\u00f3 ekkert a\u00f0 ve\u00f0rinu, amk \u00feegar ekki var sta\u00f0i\u00f0 \u00ed skugga.<\/p><p>Fram hefur veri\u00f0 duglegt vi\u00f0 a\u00f0 sanka a\u00f0 s\u00e9r leikm\u00f6nnum fyrir lok f\u00e9lagaskiptagluggans, sem mun v\u00edst sk\u00fdrast af \u00fev\u00ed a\u00f0 mikilv\u00e6gir p\u00f3star \u00ed li\u00f0inu eru n\u00fa a\u00f0 hverfa \u00e1 braut til n\u00e1ms erlendis. Elaina var vitaskuld \u00ed markinu. Eyd\u00eds Arna og J\u00f3hanna Melkorka aftastar \u00ed v\u00f6rninni me\u00f0 Sylv\u00edu og Katr\u00ednu hvora \u00e1 s\u00edna hli\u00f0. \u00deyr\u00ed og Lilja \u00e1 mi\u00f0junni, me\u00f0 Breuk fyrir framan sig. Sylv\u00eda og \u00d3l\u00edna Sif \u00e1 k\u00f6ntuum og Alexa uppi \u00e1 toppi. (\u00deessi li\u00f0suppstilling er sett fram me\u00f0 hef\u00f0bundnum fyrirv\u00f6rum um a\u00f0 fr\u00e9ttaritarinn er f\u00e1r\u00e1\u00f0ur og sneyddur \u00f6llum skilningi \u00e1 leikkerfum.)<\/p><p>Leikurinn byrja\u00f0i r\u00f3lega og einkenndist af st\u00f6\u00f0ubar\u00e1ttu \u00e1 mi\u00f0junni. K\u00f3pavogsli\u00f0i\u00f0 hefur \u00e1 a\u00f0 skipa spretth\u00f6r\u00f0um leikm\u00f6nnum sem geta s\u00f3tt hratt fram \u00e1 vi\u00f0. \u00deetta virtist koma okkar konum \u00f6rl\u00edti\u00f0 \u00e1 \u00f3vart og \u00ed nokkur skipti skapa\u00f0ist talsver\u00f0 h\u00e6tta, aldrei \u00fe\u00f3 jafnmikil og \u00e1 t\u00f3lftu m\u00edn\u00fatu \u00feegar steinsofandi v\u00f6rnin missti framherja Augnabliks aleina \u00ed gegn en Elaina n\u00e1\u00f0i a\u00f0 gera sig brei\u00f0a og loka markinu \u00e1 st\u00f3rkostlegan h\u00e1tt. Beint \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 m\u00e1tti h\u00fan hafa sig alla vi\u00f0 a\u00f0 gr\u00edpa boltann \u00e1 markl\u00ednu eftir hornspyrnuna.<\/p><p>Sannast sagna voru gestirnir miklu betra li\u00f0i\u00f0 fyrsta h\u00e1lft\u00edmann. \u00deetta var ekki alveg \u00fea\u00f0 sem fr\u00e9ttaritarinn \u00ed gula vestinu haf\u00f0i m\u00e6tt til a\u00f0 horfa \u00e1! Fyrsta markver\u00f0a f\u00e6ri Fram kom ekki fyrr en eftir 27 m\u00edn\u00fatna leik og bygg\u00f0ist algj\u00f6rlega \u00e1 einkaframtaki hj\u00e1 Breuk sem prj\u00f3na\u00f0i sig \u00ed gegnum Augnabliksv\u00f6rnina en sending hennar fyrir marki\u00f0 rata\u00f0i ekki til samherja. Eftir sl\u00e9ttar \u00ferj\u00e1t\u00edu m\u00edn\u00fatur fengu hv\u00edtkl\u00e6ddir K\u00f3pavogsb\u00faar anna\u00f0 dau\u00f0af\u00e6ri eftir a\u00f0 kantma\u00f0ur sem virtist grunsamlega rangst\u00e6\u00f0ur slapp ein \u00ed gegn en neyddist til a\u00f0 taka skot \u00far \u00fer\u00f6ngri st\u00f6\u00f0u eftir a\u00f0 J\u00f3hanna n\u00e1\u00f0i a\u00f0 renna s\u00e9r fyrir hana og h\u00e6ttunni afst\u00fdrt. J\u00f3hanna \u00feurfti aftur a\u00f0 verjast vel tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar.<\/p><p>En f\u00f3tboltinn er stundum grimmur. \u00cd sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 Augnablik skora\u00f0i 2-3 m\u00f6rk, n\u00e1\u00f0i Fram forystunni \u00e1 35. m\u00edn\u00fatu n\u00e1nast upp \u00far engu. Alexa f\u00e9kk boltann \u00e1 mi\u00f0jum vallarhelmingi Augnabliks, sendi hratt fram \u00e1 \u00de\u00f3reyju sem l\u00e9k vel upp a\u00f0 endam\u00f6rkum og sendi fyrir marki\u00f0, \u00d3l\u00edna Sif virtist \u00e6tla a\u00f0 skj\u00f3ta en sleppti boltanum skynsamlega framhj\u00e1 s\u00e9r og beint fyrir t\u00e6rnar \u00e1 Breuk sem var \u00f3v\u00f6ldu\u00f0 og \u00e1tti ekki \u00ed vandr\u00e6\u00f0um me\u00f0 a\u00f0 koma honum \u00ed neti\u00f0, 1:0.<\/p><p>Gestirnir l\u00e9tu marki\u00f0 ekki sl\u00e1 sig \u00fat af laginu og reyndu a\u00f0 bl\u00e1sa til s\u00f3knar \u00e1 n\u00fd en Framkonur voru flj\u00f3tar a\u00f0 refsa. Eftir h\u00e6ttulega skyndis\u00f3kn fengu \u00fe\u00e6r hornspyrnu \u00e1 sj\u00e1lfri markam\u00edn\u00fatunni (sem er 43. m\u00edn\u00fatan, fyrir \u00feau ykkar sem voru\u00f0 ekki uppi \u00e1 n\u00edunda \u00e1ratgunum). Hornspyrnan sj\u00e1lf var ekkert s\u00e9rst\u00f6k en varnarleikur K\u00f3pavogsli\u00f0sins afleitur og boltinn enda\u00f0i \u00ed netinu, fr\u00e9ttaritarinn halla\u00f0ist a\u00f0 sj\u00e1lfsmarki en vallar\u00feulur eigna\u00f0i \u00deyr\u00ed marki\u00f0, 2:0. \u00dear me\u00f0 var bj\u00f6rninn unninn og litlu m\u00e1tti muna a\u00f0 \u00feri\u00f0ja marki\u00f0 k\u00e6mi fyrir lok h\u00e1lfleiksins.<\/p><p>\u00cd \u00a0leikhl\u00e9nu hnippti fr\u00e9ttaritarinn \u00ed L\u00e1rus Gr\u00e9tarsson, menningarr\u00e1\u00f0unaut F\u00e6reyja \u00e1 \u00cdslandi og fr\u00e6ddi hann \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Klaksv\u00edkingar hef\u00f0u unni\u00f0 \u00ed Meistaradeildinni og v\u00e6ru n\u00fa or\u00f0nir r\u00edkari en J\u00f3akim a\u00f0al\u00f6nd. \u00deetta \u00fe\u00f3ttu Lalla mikil t\u00ed\u00f0indi og undir \u00fea\u00f0 t\u00f3ku f\u00e9lagi Valt\u00fdr Bj\u00f6rn og heilbrig\u00f0isr\u00e1\u00f0herra. Var ekki r\u00e6tt um anna\u00f0 en f\u00e6reyska fr\u00e6ndur okkar \u00fear til flauta\u00f0 var til seinni h\u00e1lfleiks.<\/p><p>\u00dej\u00e1lfarad\u00faettinn ger\u00f0i \u00ferefalda breytingu \u00e1\u00f0ur en byrja\u00f0 var \u00e1 n\u00fd. \u00deyr\u00ed, Eyd\u00eds og \u00d3l\u00edna Sif f\u00f3ru af velli fyrir Eriku, Grace og \u00d3l\u00ednu \u00c1g\u00fastu. S\u00fa s\u00ed\u00f0astnefnda kom vi\u00f0 s\u00f6gu t\u00edu m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar \u00feegar h\u00fan \u00e1tti l\u00famskt skot sem markv\u00f6r\u00f0ur Augnabliks m\u00e1tti hafa sig alla vi\u00f0 a\u00f0 verja. \u00dea\u00f0 segir s\u00edna s\u00f6gu um hva\u00f0 h\u00e6g\u00f0ist \u00e1 leiknum \u00ed seinni h\u00e1lfleik a\u00f0 \u00feetta var \u00fea\u00f0 fyrsta sem fr\u00e9ttaritarinn haf\u00f0i s\u00e9\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 p\u00e1ra ni\u00f0ur \u00ed minnis\u00f6rkina. T\u00edu m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar komst \u00de\u00f3rey ein inn fyrir en vippa\u00f0i yfir markv\u00f6r\u00f0inn og framhj\u00e1 markinu \u00far uppl\u00f6g\u00f0u f\u00e6ri.<\/p><p>\u00deegar tuttugu m\u00edn\u00fatur voru eftir kom n\u00e6sta skipting. Alexa og \u00de\u00f3rey f\u00f3ru af velli en Ylfa og Telma komu inn\u00e1. Skiptingin var fr\u00e1b\u00e6rlega t\u00edmasett \u00fev\u00ed um lei\u00f0 og h\u00fan var b\u00fain t\u00f3k Breuk \u00e1 r\u00e1s, s\u00f3la\u00f0i sig \u00ed gegnum nokkrar Augnabliksst\u00falkur og sendi svo Ylfu sem skora\u00f0i \u00ed fyrstu snertingu eftir a\u00f0 hafa bara veri\u00f0 inn\u00e1 \u00ed f\u00e1einar sek\u00fandur, 3:0.<\/p><p>Hinn varama\u00f0urinn vildi ekki vera eftirb\u00e1tur og Telma ger\u00f0i tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar tilraun til a\u00f0 vippa boltanum \u00ed Augnabliksmarki\u00f0. A\u00f0v\u00edfandi varnarma\u00f0ur ger\u00f0i tilraun til a\u00f0 skora gl\u00e6silegt sj\u00e1lfsmark en \u00fea\u00f0 enda\u00f0i \u00ed hornspyrnu sem hr\u00f6kk beint fyrir f\u00e6tur Telmu sem kl\u00edndi boltanum \u00ed \u00feakneti\u00f0, 4:0 og enn stundarfj\u00f3r\u00f0ungur eftir.<\/p><p>S\u00ed\u00f0ustu m\u00edn\u00faturnar voru brag\u00f0daufar \u00fear til komi\u00f0 var fram \u00ed uppb\u00f3tart\u00edma. K\u00e6ruleysi hj\u00e1 Breuk og Ylfu komu \u00ed veg fyrir a\u00f0 fimmta marki\u00f0 k\u00e6mi \u00far dau\u00f0af\u00e6ri \u00fear sem \u00fe\u00e6r sluppu b\u00e1\u00f0ar innfyrir, en s\u00fa fyrrnefnda b\u00e6tti um betur \u00ed \u00feri\u00f0ju m\u00edn\u00fatu uppb\u00f3tarinnar \u00fear sem tekin var aukaspyrna \u00fati \u00e1 mi\u00f0jum velli, sem sveif inn \u00ed teiginn og beint \u00e1 okkar konu sem var vandr\u00e6\u00f0alega \u00f3v\u00f6ldu\u00f0 og skora\u00f0i fimmta og s\u00ed\u00f0asta marki\u00f0. Vallar\u00feulurinn kynnti um vali\u00f0 \u00e1 konu leiksins, sem var Elaina \u2013 og hl\u00fdtur a\u00f0 vera upp\u00f6rvandi fyrir li\u00f0 sem tapar 5:0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi \u00fe\u00f3 veri\u00f0 markv\u00f6r\u00f0ur hins li\u00f0sins sem l\u00e9k best. En \u00fea\u00f0 er erfitt a\u00f0 deila vi\u00f0 \u00feetta val. Elaina er ekki bara besti markv\u00f6r\u00f0urinn \u00ed \u00feessari deild. H\u00fan er l\u00edka betri en allar \u00ed deildinni fyrir ofan. N\u00e6sti \u00e1fangasta\u00f0ur er Gr\u00f3ttuv\u00f6llurinn \u00fear sem vi\u00f0 \u00e6tlum a\u00f0 spilla fyrir toppbar\u00e1ttudraumum Seltirninga.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd raun hef\u00f0i fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar \u00e1tt a\u00f0 skrifa fyrir vef Augnabliks. Pistillinn hef\u00f0i skrifa\u00f0 sig sj\u00e1lfur, enda \u00ferautreynd b\u00f3kmenntagrein: blablabla&#8230; eitthva\u00f0 um kornungt li\u00f0&#8230; blablabla&#8230; erfitt a\u00f0 keppa vi\u00f0 \u00ferautreynda [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":35295,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,12],"tags":[],"class_list":["post-35294","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkvenna"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/08\/FRAM-stelpur.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/35294","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=35294"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/35294\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":35299,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/35294\/revisions\/35299"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/35295"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=35294"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=35294"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=35294"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}