{"id":35888,"date":"2023-09-23T23:34:47","date_gmt":"2023-09-23T23:34:47","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=35888"},"modified":"2023-09-23T23:39:31","modified_gmt":"2023-09-23T23:39:31","slug":"fidurfe","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2023\/09\/23\/fidurfe\/","title":{"rendered":"Fi\u00f0urf\u00e9"},"content":{"rendered":"<p>\u201eEr \u00feetta pysja \u00fearna inni \u00ed markinu?\u201c \u2013 Spur\u00f0i f\u00f3lki\u00f0 \u00ed r\u00f6\u00f0inni fyrir aftan fr\u00e9ttaritara Frams\u00ed\u00f0unnar \u00e1 H\u00e1steinsvelli \u00ed dag. Vi\u00f0 n\u00e1nari athugun reyndist \u00feetta vera nau\u00f0a\u00f3merkileg d\u00fafa og athyglin beindist aftur a\u00f0 frekar st\u00f3rkarlalegum f\u00f3tboltaleiknum. L\u00edfi\u00f0 \u00ed Vestmannaeyjum \u00feessi d\u00e6grin sn\u00fdst um lundapysjur. Uppl\u00fdsingaskj\u00e1rnir \u00ed b\u00e1tnum voru fullir af t\u00f6lfr\u00e6\u00f0i um st\u00f6\u00f0u lundastofnsins og me\u00f0 prakt\u00edskum lei\u00f0beiningum fyrir fer\u00f0alanga sem g\u00e6tu hugsa\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 bjarga f\u00e1v\u00edsum fuglsungunum sem flj\u00faga \u00ed \u00e1tt a\u00f0 lj\u00f3sinu \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 halda til hafs. Litli sonur Da\u00f0a Gu\u00f0mundssonar var\u00f0 allur peppa\u00f0ur og vildi \u00f3lmur fara \u00ed fuglabj\u00f6rgun strax eftir leik. Meira a\u00f0 segja \u00ed upphituninni komu vallarver\u00f0ir hlaupandi me\u00f0 pysju og f\u00f3ru a\u00f0 ota henni a\u00f0 leikm\u00f6nnum Fram, sem stukku vitaskuld flestir \u00e1 fl\u00f3tta \u2013 borgarb\u00f6rnin sem \u00feeir eru!<\/p><div class=\"wp-block-image\"><figure class=\"alignright size-large is-resized\"><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/Lundinn-689x1024.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-35889\" width=\"345\" height=\"512\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/Lundinn-689x1024.jpg 689w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/Lundinn-202x300.jpg 202w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/Lundinn-768x1142.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/Lundinn-1033x1536.jpg 1033w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/Lundinn-8x12.jpg 8w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/Lundinn-800x1190.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/Lundinn.jpg 1080w\" sizes=\"(max-width: 345px) 100vw, 345px\" \/><\/figure><\/div><p>\u00c6tli \u00fea\u00f0 hafi veri\u00f0 nema 15-20 Framarar \u00ed st\u00fakunni \u00ed dag. R\u00fatufer\u00f0 stu\u00f0ningsmanna sem b\u00fai\u00f0 var a\u00f0 skipuleggja f\u00f3r \u00ed skr\u00fafuna \u00feegar fari\u00f0 var a\u00f0 hringla til me\u00f0 leikt\u00edmann \u00ed eltingaleik vi\u00f0 s\u00edbreytilega ve\u00f0ursp\u00e1. Da\u00f0i sj\u00e1lfur, sem ber titilinn rekstrarstj\u00f3ri knattspyrnunnar \u00ed skipuriti, en er \u00ed raun ungapabbi og alhli\u00f0a reddari alls sem \u00fearf a\u00f0 redda hnippti \u00ed fr\u00e9ttaritarann og bau\u00f0 honum a\u00f0 flj\u00f3ta me\u00f0 \u00ed li\u00f0sr\u00fatunni \u2013 sem eru f\u00e1g\u00e6t fr\u00ed\u00f0indi. Fr\u00e9ttaritarinn og \u00d3li \u00cdsh\u00f3lm l\u00f6g\u00f0u undir sig \u00f6ftustu s\u00e6tar\u00f6\u00f0ina \u2013 part\u00fds\u00e6tin svok\u00f6llu\u00f0u. Allir vita a\u00f0 sv\u00f6lu krakkarnir sitja aftast.<\/p><p>Eftir brottf\u00f6r eldsnemma \u00far \u00dalfars\u00e1rdalnum var rennt \u00ed hla\u00f0 vi\u00f0 Landeyjah\u00f6fn \u00ed g\u00f3\u00f0um t\u00edma fyrir brottf\u00f6r. Ferjumi\u00f0st\u00f6\u00f0in var full af starfsf\u00f3lki verkfr\u00e6\u00f0istofu \u00far b\u00e6num \u00e1 lei\u00f0 \u00e1 \u00e1rsh\u00e1t\u00ed\u00f0 og \u00feegar farin a\u00f0 hafa \u00e1hyggjur af manndr\u00e1psslagve\u00f0ri morgundagsins og m\u00f6gulegri \u00deorl\u00e1kshafnarfer\u00f0 \u00ed dallinum e\u00f0a \u00fea\u00f0 sem verra er.<\/p><p>Fr\u00e9ttaritarinn dr\u00f3 sig \u00ed hl\u00e9 me\u00f0 b\u00f3kina s\u00edna. \u00cd Vestmannaeyjum er enn\u00fe\u00e1 rekinn Pizza 67-sta\u00f0ur sem vir\u00f0ist hafa veri\u00f0 skyndifri\u00f0a\u00f0ur af yfirv\u00f6ldum fornleifav\u00f6rslu \u00ed landinu. S\u00f6mu mublur, Crazy Bananas enn \u00e1 matse\u00f0linum \u2013 \u00fea\u00f0 eina sem vanta\u00f0i var Bubbleflies \u00ed hlj\u00f3\u00f0kerfinu. \u00dearna var seldur bj\u00f3r. Hann kosta\u00f0i hins vegar ekki \u00fea\u00f0 sama og 1993. Klukkan h\u00e1lftv\u00f6 var t\u00edmab\u00e6rt a\u00f0 r\u00f6lta \u00e1 H\u00e1steinsv\u00f6ll \u00fear sem mi\u00f0av\u00f6rslukona bei\u00f0 \u00feolinm\u00f3\u00f0 eftir a\u00f0 mi\u00f0aldra sagnfr\u00e6\u00f0ingur me\u00f0 feita putta n\u00e6\u00f0i \u00ed sj\u00f6ttu tilraun a\u00f0 virkja mi\u00f0ann sinn \u00ed Stubbi.<\/p><p>Afst\u00e6\u00f0iskenningin er gagnleg til a\u00f0 skilja \u00fdmsa hluti \u00ed efnisheiminum \u2013 \u00fear \u00e1 me\u00f0al ve\u00f0ur. H\u00fan kennir okkur m.a. a\u00f0 \u00fea\u00f0 sem heitir rok \u00ed Reykjav\u00edk telst hraustlegur bl\u00e6r \u00ed Vestmannaeyjum. \u00dea\u00f0 var nokku\u00f0 sterkur vindur en svo sem ekkert verra en ma\u00f0ur m\u00e1 venjast \u00fearna \u00e1 Nor\u00f0ur-Azoreyjum. \u00dea\u00f0 komu nokkrir rigningarkaflar og greinilega haf\u00f0i rignt vel um n\u00f3ttina og fyrr um daginn \u00fev\u00ed v\u00f6llurinn var blautur og h\u00e1ll. \u00cd r\u00fatunni \u00e1 bakalei\u00f0inni l\u00fdsti Aron J\u00f3 \u00feeirri sko\u00f0un sinni a\u00f0 v\u00f6llurinn hef\u00f0i bara alls ekki veri\u00f0 svo sl\u00e6mur \u2013 \u00feetta snerist bara um a\u00f0 vera \u00ed r\u00e9ttum sk\u00f3m. \u00deetta er gott d\u00e6mi um \u00fe\u00e6r ranghugmyndir sem menn geta \u00f6\u00f0last vi\u00f0 a\u00f0 verja st\u00f3rum hluta ferils s\u00edns \u00ed Grindav\u00edk. R\u00e9ttum sk\u00f3m? \u00deetta var ekki spurning um a\u00f0 vera \u00e1 n\u00f6glum heldur ke\u00f0jum!<\/p><p>Byrjunarli\u00f0 Framara var \u00fea\u00f0 sama og K\u00f3rnum \u00ed s\u00ed\u00f0ustu umfer\u00f0. \u00d3lafur \u00cdsh\u00f3lm \u2013 e\u00f0a \u00d3li sessunautur \u2013 eins og hann ver\u00f0ur m\u00f6gulega kalla\u00f0ur h\u00e9r eftir var a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u \u00ed markinu. Delph og \u00deengill \u00ed mi\u00f0v\u00f6r\u00f0unum. Adam og Sigf\u00fas \u00c1rni bakver\u00f0ir. Breki aftastur \u00e1 mi\u00f0junni me\u00f0 Tiago fyrir framan sig. Fred og Aron Sn\u00e6r \u00e1 k\u00f6ntunum. Jannik og Gummi frammi.<\/p><p>Mei\u00f0sla- og veikindafargani\u00f0 fr\u00e1 s\u00ed\u00f0usta leik haf\u00f0i a\u00f0eins sk\u00e1na\u00f0 og n\u00f6fnin \u00e1 varamannabekknum or\u00f0in \u00f6rl\u00edti\u00f0 kunnuglegri. Fr\u00e9ttaritarinn hef\u00f0i l\u00edklega ekki \u00feurft a\u00f0 taka me\u00f0 s\u00e9r takkask\u00f3na til \u00f6ryggis.<\/p><p>Reyndar leit \u00fat fyrir a\u00f0 gera \u00feyrfti breytingar \u00e1 \u00feessari vinningsuppskrift strax eftir tveggja m\u00edn\u00fatna leik \u00feegar Delph f\u00e9kk kjaftsh\u00f6gg \u00ed hornspyrnu \u00ed eigin v\u00edtateig og l\u00e1 flatur. B\u00e6\u00f0i li\u00f0 \u00e1ttu b\u00e1gt me\u00f0 a\u00f0 f\u00f3ta sig \u00e1 blautum og h\u00e1lum vellinum og \u00f6ll spilamennska t\u00f3k mi\u00f0 af \u00fev\u00ed. Li\u00f0in reyndu h\u00e1ar og langar sendingar \u00ed \u00feeirri von a\u00f0 vindurinn og f\u00e6r\u00f0in myndi einhvern veginn gagnast s\u00ednum manni betur en m\u00f3therjanum. \u00d3li \u00e1tti \u00ed nokkrum vandr\u00e6\u00f0um \u00ed 2-3 skipti vi\u00f0 a\u00f0 koma boltanum fram \u00e1 vi\u00f0 upp \u00ed vindinn og jafn\u00f3\u00f0um reyndu heimamenn a\u00f0 refsa me\u00f0 langskotum a\u00f0 marki sem sk\u00f6pu\u00f0u \u00fe\u00f3 aldrei teljandi h\u00e6ttu. Eftir t\u00f3lf m\u00edn\u00fatna leik fengu Eyjamenn svo aukaspyrnu r\u00e9tt fyrir utan teig sem sessunauturinn sl\u00f3 yfir me\u00f0 til\u00ferifum.<\/p><p>Eyjamenn fengu \u00edvi\u00f0 betri f\u00e6rin \u00ed fyrri h\u00e1lfleiknum en Framarar h\u00e9ldu boltanum betur en sk\u00f6pu\u00f0u f\u00e1tt st\u00f3rh\u00e6ttulegt. Aron Sn\u00e6r, sem var mj\u00f6g fr\u00edskur \u00ed dag, komst \u00fe\u00f3 \u00ed \u00f3v\u00e6nt f\u00e6ri \u00feegar h\u00e1lfleikurinn var akk\u00farat h\u00e1lfna\u00f0ur en skot hans var vari\u00f0 \u00fati vi\u00f0 st\u00f6ng. Fimm m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar skalla\u00f0i Jannik framhj\u00e1 \u00ed \u00feokkalegu f\u00e6ri. Eftir t\u00e6pan h\u00e1lft\u00edma var\u00f0 Sigf\u00fas \u00c1rni fyrstur til a\u00f0 komast \u00ed b\u00f3kina hj\u00e1 P\u00e9tri d\u00f3mara \u00fear sem hann braut skynsamlega af s\u00e9r til a\u00f0 st\u00f6\u00f0va efnilega s\u00f3kn. \u00der\u00e1tt fyrir a\u00f0 vera \u00e1 gulu spjaldi dr\u00f3 hann ekki af s\u00e9r \u00ed t\u00e6klingunum \u00e1 me\u00f0an hann var inn\u00e1.<\/p><p>Eyjamenn fengu \u00ferj\u00fa s\u00ed\u00f0ustu f\u00e6rin fyrir hl\u00e9 \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu fimm m\u00edn\u00fatunum. Fyrst kom skalli r\u00e9tt framhj\u00e1 marki. \u00cd anna\u00f0 skipti\u00f0 stukku 4-5 leikmenn beggja li\u00f0a upp \u00ed sama boltann, skullu allir saman og endu\u00f0u flestir \u00ed j\u00f6r\u00f0inni en boltinn skoppa\u00f0i aftur fyrir endam\u00f6rk. \u00deri\u00f0ja og besta f\u00e6ri\u00f0 kom \u00e1 lokasek\u00fandunum \u00fear sem kn\u00f6turinn small \u00ed st\u00f6ng Frammarksins. \u00deegar flauta\u00f0 var til leikhl\u00e9s m\u00e1ttu Framarar \u00feakka fyrir a\u00f0 vera ekki komnir undir, en g\u00e1tu \u00fe\u00f3 hugga\u00f0 sig vi\u00f0 a\u00f0 hafa vindinn \u00ed baki\u00f0 eftir hl\u00e9 auk \u00feess sem ve\u00f0ri\u00f0 virtist vera a\u00f0 \u00feykkna upp.<\/p><p>Fyrir leik haf\u00f0i Nor\u00f0fir\u00f0ingurinn gla\u00f0beitti, Dan\u00edel Moritz, bo\u00f0i\u00f0 Fr\u00f6murum a\u00f0 m\u00e6ta \u00ed stu\u00f0ningsmannakaffi\u00f0 \u00ed hl\u00e9i. Gl\u00f6ggir lesendur \u00feessara pistla muna kannski eftir or\u00f0ahnippingum t\u00e9\u00f0s Dan\u00edels og \u00d3skars me\u00f0 hattinn \u00feegar b\u00e6\u00f0i li\u00f0 voru \u00ed Lengjudeildinni \u00ed gamla daga. \u00dea\u00f0 er allt gleymt og grafi\u00f0! \u2013 Me\u00f0 bo\u00f0 austfirska kennarans a\u00f0 vopni n\u00e1\u00f0i fr\u00e9ttaritarinn a\u00f0 kjafta ekki bara sj\u00e1lfan sig heldur l\u00edka Hallgr\u00edm Helgason \u00ed kaffi og ostaslaufur. Hallgr\u00edmur hefur l\u00edti\u00f0 s\u00e9st \u00e1 vellinum \u00ed sumar sem gerir \u00fea\u00f0 enn vir\u00f0ingarver\u00f0ara a\u00f0 hann skelli s\u00e9r \u00fat \u00ed Eyjar \u00e1 leik! Vi\u00f0 t\u00f3ku miklar umr\u00e6\u00f0ur vi\u00f0 heimamenn um a\u00f0st\u00f6\u00f0um\u00e1l og hven\u00e6r \u00cdBV \u00e6tli a\u00f0 fara a\u00f0 spila \u00e1 gervigrasi?<\/p><p>Seinni h\u00e1lfleikur var n\u00fdhafinn \u00feegar fr\u00e9ttaritarinn n\u00e1\u00f0i a\u00f0 koma s\u00e9r aftur \u00ed st\u00fakuna eftir a\u00f0 hafa klofa\u00f0 yfir dau\u00f0an m\u00e1v. (M\u00e1f? M\u00e1v? &#8230; hmh&#8230; segjum m\u00e1v.) Engar breytingar h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 ger\u00f0ar \u00e1 Framli\u00f0inu og merkilegt nokk haf\u00f0i l\u00e9tt til \u00ed ve\u00f0rinu, rigningarsk\u00farunum f\u00e6kka\u00f0i og a\u00f0eins dr\u00f3 \u00far vindi. Leikurinn f\u00f3r r\u00f3lega af sta\u00f0 og l\u00edti\u00f0 virtist vera a\u00f0 gerast \u00feegar Fred vann boltann fyrir framan v\u00edtateig \u00cdBV eftir klaufaskap heimamanna, t\u00f3k 2-3 skref \u00e1\u00f0ur en hann renndi til hli\u00f0ar \u00e1 Tiago sem t\u00f3k \u00e1 m\u00f3ti og l\u00e9t svo va\u00f0a af l\u00f6ngu f\u00e6ri \u00ed markhorni\u00f0, 0:1! \u00d3 hva\u00f0 \u00fea\u00f0 er alltaf notalegt a\u00f0 sj\u00e1 svona Lennon\/McCartney \u2013 Fred\/Tiago m\u00f6rk.<\/p><figure class=\"wp-block-image size-large\"><img decoding=\"async\" width=\"1024\" height=\"683\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/Tiago-vs-HK-1024x683.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-35893\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/Tiago-vs-HK-1024x683.jpg 1024w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/Tiago-vs-HK-300x200.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/Tiago-vs-HK-768x512.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/Tiago-vs-HK-1536x1024.jpg 1536w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/Tiago-vs-HK-2048x1365.jpg 2048w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/Tiago-vs-HK-18x12.jpg 18w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/Tiago-vs-HK-800x533.jpg 800w\" sizes=\"(max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/><\/figure><p>Marki\u00f0 neyddi Eyjamenn framar \u00e1 v\u00f6llinn. \u00deegar vallarklukkan s\u00fdndi 60 m\u00edn\u00fatur vildu stu\u00f0ningsmenn \u00feeirra f\u00e1 v\u00edti fyrir hendi alveg \u00ed bl\u00e1horni v\u00edtateigsins. Annars virtist li\u00f0i\u00f0 \u00e1 p\u00f6llunum a\u00f0allega ver\u00f0a brj\u00e1la\u00f0 yfir fullkomnum sm\u00e1atri\u00f0um \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 \u00fea\u00f0 hvort innkast v\u00e6ri teki\u00f0 \u00e1 r\u00e9ttum sta\u00f0 e\u00f0a bolta sparka\u00f0 of seint \u00ed burtu frekar en raunverulegum \u00e1litam\u00e1lum \u2013 og n\u00f3g var af \u00feeim. \u00dea\u00f0 var l\u00edka p\u00ednkul\u00edti\u00f0 svekkjandi a\u00f0 missa af alr\u00e6mdum strigakj\u00f6ftum \u00far Eyjasveitinni sem ekkert heyr\u00f0ist \u00ed \u2013 en kannski voru \u00feeir einhvers sta\u00f0ar annars sta\u00f0ar, s.s. \u00ed n\u00e1munda vi\u00f0 hlj\u00f3\u00f0nema St\u00f6\u00f0var 2 sports?<\/p><p>Aron Sn\u00e6r \u00e1tti g\u00f3\u00f0a sendingu sem stefndi \u00e1 kollinn \u00e1 Gumma og Jannik en markv\u00f6r\u00f0ur \u00cdBV n\u00e1\u00f0i \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu stundu a\u00f0 sl\u00e1 hana fr\u00e1. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar f\u00f3r Aron Sn\u00e6r af velli \u00e1samt Sigf\u00fasi \u00c1rna en M\u00e1r og \u00d3skar komu inn \u00ed sta\u00f0inn. Ekki veitti af fr\u00edskum l\u00f6ppum \u00e1 \u00feungum vellinum og Sigf\u00fas \u00e1 gulu spjaldi eins og fram hefur komi\u00f0. Sex m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar ger\u00f0i \u00fej\u00e1lfarateymi\u00f0 \u00ferefalda skiptingu. Gummi Magg haf\u00f0i fengi\u00f0 h\u00f6gg \u00e1 hnakkann og \u00feurfti a\u00f0 yfirgefa v\u00f6llinn. \u00de\u00f3rir var snarlega settur inn\u00e1 og \u00ed lei\u00f0inni voru \u00feeir Jannik og Tiago teknir \u00fataf fyrir Tryggva Sn\u00e6 og Aron J\u00f3.<\/p><p>Eftir \u00e1 a\u00f0 hyggja m\u00e1 velta \u00fev\u00ed fyrir s\u00e9r hvort fimm skiptingar \u00e1 sex m\u00edn\u00fatum hafi ri\u00f0la\u00f0 of miklu \u00ed leik okkar manna \u2013 e\u00f0a hvort krafturinn \u00ed Eyjali\u00f0inu sem var a\u00f0 berjast fyrir l\u00edfi s\u00ednu hafi haft meira a\u00f0 segja. \u00cd \u00fea\u00f0 minnsta er lj\u00f3st a\u00f0 \u00cdBV m\u00e1tti alls ekki vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 tapa \u00feessum leik \u00ed fallbar\u00e1ttunni.<\/p><p>\u00deegar t\u00edu m\u00edn\u00fatur voru eftir af venjulegum leikt\u00edma komst Eyjama\u00f0ur upp a\u00f0 endam\u00f6rkum, sneri \u00e1 v\u00f6rnina og lyfti fyrir marki\u00f0 \u00fear sem einn hv\u00edtkl\u00e6ddur n\u00e1\u00f0i a\u00f0 skalla \u00ed neti\u00f0, sta\u00f0an or\u00f0in 1:1. Stemningin s\u00farna\u00f0i enn hra\u00f0ar fimm m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar \u00feegar \u00fathlaup hj\u00e1 \u00d3la misheppna\u00f0ist \u00feegar hann skall \u00e1 m\u00f3therja og boltinn datt fyrir f\u00e6tur Eyjamanns sem \u00e1tti ekki \u00ed vandr\u00e6\u00f0um me\u00f0 a\u00f0 skora. Heimamenn voru komnir \u00ed 2:1 og \u00fea\u00f0 var n\u00e1kv\u00e6mlega \u00fea\u00f0 eina sem ekki m\u00e1tti gerast.<\/p><p>Tilhugsunin um \u00feunglyndislegustu r\u00fatufer\u00f0 s\u00f6gunnar aftur til Reykjav\u00edkur steyptist yfir fr\u00e9ttaritarann. Ekki voru fleiri skiptingar \u00ed bo\u00f0i og \u00fev\u00ed lj\u00f3st a\u00f0 Framararnir ellefu inni \u00e1 vellinum yr\u00f0u a\u00f0 reyna a\u00f0 herja eitthva\u00f0 \u00fat \u00far leiknum. \u00c1 89. m\u00edn\u00fatu fengum vi\u00f0 horn \u00fear sem \u00deengill st\u00f6kk h\u00e6st allra til a\u00f0 reyna a\u00f0 n\u00e1 skalla, en var d\u00e6mdur brotlegur. Tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar, eftir m\u00edn\u00fatu af fimm m\u00edn\u00fatna uppb\u00f3tart\u00edma, fengu Framarar aukaspyrnu lengst \u00fati \u00e1 velli. Aron J\u00f3 stillti henni upp og sendi svo flottan bolta inn \u00ed mi\u00f0jan v\u00edtateig andst\u00e6\u00f0inganna sem h\u00f6f\u00f0u enga l\u00e6rd\u00f3ma dregi\u00f0 af atvikinu \u00f6rsk\u00f6mmu \u00e1\u00f0ur \u2013 \u00deengill f\u00e9kk a\u00f0 st\u00f6kkva fram \u00f3valda\u00f0ur og stanga\u00f0i boltann \u00ed neti\u00f0. Enda\u00f0i svo \u00e1 tr\u00fdninu og var albl\u00f3\u00f0ugur og st\u00f3rgl\u00e6silegur \u00ed vi\u00f0tali vi\u00f0 F\u00f3tbolta.net \u00ed leikslok. S\u00f6gum um bor\u00f0 \u00ed Herj\u00f3lfi bar ekki saman um hvort hann v\u00e6ri or\u00f0inn t\u00f6nninni f\u00e1t\u00e6kari e\u00f0a ekki! \u00d3h\u00e1\u00f0 tannheilsu \u00deengils var sta\u00f0an or\u00f0in 2:2 og vi\u00f0 t\u00f3ku \u00e6\u00f0isgengnar lokam\u00edn\u00fatur. \u00cdBV s\u00f3tti st\u00edft en varnarmenn Fram hentu s\u00e9r fyrir alla a\u00f0v\u00edfandi bolta. \u00c1 94. m\u00edn\u00fatu f\u00e9kk \u00cdBV dau\u00f0af\u00e6ri en \u00d3li var\u00f0i fr\u00e1b\u00e6rlega. \u00c6tla\u00f0i okkar m\u00f6nnum a\u00f0 takast a\u00f0 missa \u00feetta ni\u00f0ur?<\/p><figure class=\"wp-block-image size-large\"><img decoding=\"async\" width=\"1024\" height=\"683\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/THengill-2-1024x683.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-35895\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/THengill-2-1024x683.jpg 1024w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/THengill-2-300x200.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/THengill-2-768x512.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/THengill-2-1536x1024.jpg 1536w\" sizes=\"(max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/><\/figure><p>En s\u00f3knirnar voru \u00e1 b\u00e1\u00f0a b\u00f3ga. \u00c1 s\u00ed\u00f0ustu m\u00edn\u00fatunni n\u00e1\u00f0i Framv\u00f6rnin a\u00f0 spyrna fram \u00fear sem M\u00e1r n\u00e1\u00f0i a\u00f0 stinga varnarmennina af \u00e1 mi\u00f0l\u00ednu og virtist vera a\u00f0 brj\u00f3tast einn \u00ed gegn, \u00feegar einn hv\u00edtkl\u00e6ddur reif einfaldlega \u00ed handlegginn \u00e1 honum og kippti \u00ed j\u00f6r\u00f0ina. Rautt spjald virtist auglj\u00f3sasti kosturinn en d\u00f3marinn \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 flauta frekar til leiksloka.<\/p><p>Annan leikinn \u00ed r\u00f6\u00f0 ver\u00f0a Framarar a\u00f0 s\u00e6tta sig vi\u00f0 eitt stig \u00feegar \u00ferj\u00fa hef\u00f0u komi\u00f0 s\u00e9r \u00f3l\u00edkt betur. En stig \u00e1 \u00fativelli er \u00fe\u00f3 alltaf stig \u00e1 \u00fativelli. A\u00f0alm\u00e1li\u00f0 er a\u00f0 \u00fe\u00f3tt leikurinn \u00ed dag hafi ekki veri\u00f0 miki\u00f0 fyrir auga\u00f0 og frammista\u00f0an ekki fr\u00e1b\u00e6r, \u00fe\u00e1 eru \u00f6rl\u00f6gin enn \u00ed okkar eigin h\u00f6ndum og \u00fea\u00f0 er mikilv\u00e6gt. Sj\u00e1umst \u00ed Dal draumanna \u00e1 fimmtudag \u00feegar Keflv\u00edkingar m\u00e6ta.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u201eEr \u00feetta pysja \u00fearna inni \u00ed markinu?\u201c \u2013 Spur\u00f0i f\u00f3lki\u00f0 \u00ed r\u00f6\u00f0inni fyrir aftan fr\u00e9ttaritara Frams\u00ed\u00f0unnar \u00e1 H\u00e1steinsvelli \u00ed dag. Vi\u00f0 n\u00e1nari athugun reyndist \u00feetta vera nau\u00f0a\u00f3merkileg d\u00fafa og athyglin [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":35891,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-35888","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/Lundinn-2.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/35888","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=35888"}],"version-history":[{"count":7,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/35888\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":35901,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/35888\/revisions\/35901"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/35891"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=35888"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=35888"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=35888"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}