{"id":35930,"date":"2023-10-01T21:40:37","date_gmt":"2023-10-01T21:40:37","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=35930"},"modified":"2023-10-01T21:41:27","modified_gmt":"2023-10-01T21:41:27","slug":"a-skilordi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2023\/10\/01\/a-skilordi\/","title":{"rendered":"\u00c1 skilor\u00f0i"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"35930\" class=\"elementor elementor-35930\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-7909f762 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"7909f762\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-fa96e4c\" data-id=\"fa96e4c\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-4c9ea2ca elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"4c9ea2ca\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-35933 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/10\/Sigfus-gegn-keflavik-240x300.jpg\" alt=\"\" width=\"240\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/10\/Sigfus-gegn-keflavik-240x300.jpg 240w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/10\/Sigfus-gegn-keflavik-820x1024.jpg 820w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/10\/Sigfus-gegn-keflavik-768x959.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/10\/Sigfus-gegn-keflavik-1229x1536.jpg 1229w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/10\/Sigfus-gegn-keflavik-10x12.jpg 10w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/10\/Sigfus-gegn-keflavik-800x999.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/10\/Sigfus-gegn-keflavik.jpg 1440w\" sizes=\"(max-width: 240px) 100vw, 240px\" \/>Stj\u00f3rn knattspyrnudeildar Fram kom saman til ney\u00f0arfundar \u00e1 laugardaginn. Tilefni\u00f0 var a\u00f0 r\u00e6\u00f0a st\u00f6\u00f0u fr\u00e9ttaritara Frams\u00ed\u00f0unnar, sem haf\u00f0i skila\u00f0 vandr\u00e6\u00f0alega snubb\u00f3ttri sk\u00fdrslu um f\u00e1g\u00e6tan sigurleik \u00e1 m\u00f3ti Keflav\u00edk \u2013 auglj\u00f3slega skrifa\u00f0an me\u00f0 alltof m\u00f6rg pr\u00f3mill \u00ed bl\u00f3\u00f0inu, birtist seint og illa og ekki einu sinni heldur tvisvar voru Keflv\u00edkingar kalla\u00f0ir Eyjamenn eins og \u00feetta v\u00e6ri eitthva\u00f0 andskotans ap\u00f3teks\/bakar\u00eds-ruglingsm\u00e1l. Eftir langan fund var sam\u00feykkt yfirl\u00fdsing \u00fear sem stj\u00f3rnin l\u00fdsti fullum stu\u00f0ningi vi\u00f0 fr\u00e9ttaritarann \u00ed st\u00f6rfum s\u00ednum. Vi\u00f0 vitum \u00f6ll hva\u00f0 sl\u00edk stu\u00f0ningsyfirl\u00fdsing merkir. H\u00e9r er \u00fea\u00f0 feigur ma\u00f0ur sem st\u00fdrir lyklabor\u00f0i.<\/p><p>\u00dea\u00f0 var fr\u00e9ttaritari me\u00f0 \u00f6rl\u00edti\u00f0 s\u00e6rt s\u00e1lartetur sem l\u00e9t fj\u00f6lskylduna skutla s\u00e9r beint \u00far barnafm\u00e6li R\u00f3berts P\u00e1ls, sex \u00e1ra gamals systursonar og upp \u00ed Dal draumanna. \u00dear var \u00fe\u00e9ttseti\u00f0 f\u00ednumannabo\u00f0 me\u00f0 snittum og veigum. Fr\u00e9ttaritarinn leita\u00f0i samviskusamlega uppi alla Evertonmenn \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu \u2013 til a\u00f0 n\u00faa hn\u00edfnum \u00ed s\u00e1rinu \u2013 en hlusta\u00f0i svo \u00e1 Ragnar \u00fej\u00e1lfara kynna byrjunarli\u00f0i\u00f0. \u00dear var ein veigamikil breyting. Jannik er meiddur og ekki \u00ed h\u00f3pi en a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti var uppstillingin s\u00fa sama og veri\u00f0 hefur \u00ed \u00farslitakeppninni, nema skipt var \u00far 4-4-2 \u00ed 4-5-1.<\/p><p>\u00d3li var vitaskuld \u00ed markinu. \u00deengill og Delphin \u00ed mi\u00f0v\u00f6r\u00f0unum. Delph hefur leiki\u00f0 eins og hugur manns upp \u00e1 s\u00ed\u00f0kasti\u00f0 og frammista\u00f0an \u00ed kv\u00f6ld var \u00ed takti vi\u00f0 \u00fea\u00f0, \u00fear sem hann var einn af \u00feremur bestu Fr\u00f6murunum. \u00deengill er a\u00f0 hratt og \u00f6rugglega a\u00f0 verla k\u00f6lt-hetja eins og bara gerist me\u00f0 t\u00e1ninga sem \u00f3v\u00e6nt detta inn \u00ed byrjunarli\u00f0 sem \u00f6ftustu varnarmenn og virtast skora mikilv\u00e6g m\u00f6rk a\u00f0 vild (H\u00f6skuldarvi\u00f0v\u00f6run). Adam og Sigf\u00fas voru bakver\u00f0ir. Breki aftastur \u00e1 mi\u00f0junni me\u00f0 Tiago og Aron J\u00f3 fyrir framan sig. Fred og Aron Sn\u00e6r \u00e1 k\u00f6ntunum og Gummi einn frammi.<\/p><p>\u00darslit annars sta\u00f0ar g\u00e1fu ekki tilefni til bjarts\u00fdni. Fylkismenn h\u00f6f\u00f0u unni\u00f0 \u00ed Keflav\u00edk og \u00fev\u00ed engin \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 \u00e6tla anna\u00f0 en a\u00f0 Framarar yr\u00f0u a\u00f0 hir\u00f0a \u00ferj\u00fa stig \u00ed dag. Magas\u00e1r og stress ger\u00f0u \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 fr\u00e9ttaritarinn lag\u00f0i ekki \u00ed a\u00f0 setjast \u00ed st\u00fakunni, heldur st\u00f3\u00f0 aftast \u00ed transfitureykjark\u00f3fi hamborgaragrillanna \u00e1samt f\u00e9laga Rabba. Skjaldsveinninn Valur Nor\u00f0ri var hvergi n\u00e1l\u00e6gur og sama gilti um markafleyginn g\u00f3\u00f0a sem leiki\u00f0 haf\u00f0i fr\u00e9ttaritarann svo gr\u00e1tt. \u00dea\u00f0 er ekki eins og \u00feetta t\u00edmabil hafi b\u00fai\u00f0 menn undir \u00feriggja sj\u00fassa leik!<\/p><p>Strax \u00e1 fyrstu m\u00edn\u00fatum leiksins var lj\u00f3st hvort li\u00f0i\u00f0 var a\u00f0 berjast fyrir l\u00edfi s\u00ednu og hvort sigldi lygnan sj\u00f3 \u00ed topps\u00e6ti ne\u00f0rihlutans. Akureyringar l\u00e1gu til baka og einsettu s\u00e9r a\u00f0 verjast s\u00f3knarlotum okkar manna. \u00c1 n\u00edundu m\u00edn\u00fatu fengu Framarar fyrstu markver\u00f0u f\u00e6rin. \u00dear sem Aronarnir tveir \u00e1ttu hvor sitt skoti\u00f0 a\u00f0 marki me\u00f0 sk\u00f6mmu millibili, en \u00ed b\u00e6\u00f0i skiptin n\u00e1\u00f0u Akureyringar a\u00f0 komast fyrir. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar t\u00f3k Adam \u00e1 r\u00e1s eftir kantinum og sendi fyrir \u00fear sem Fred kom a\u00f0v\u00edfandi og negldi h\u00e1tt og fast yfir.<\/p><p>\u00deegar fyrri h\u00e1lfleikur var n\u00e1kv\u00e6mlega h\u00e1lfna\u00f0ur leit besta f\u00e6ri\u00f0 dagsins lj\u00f3s. Fred var me\u00f0 boltann \u00fati \u00e1 kanti og fr\u00e9ttaritarinn byrja\u00f0ur a\u00f0 m\u00f6gla yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 hann v\u00e6ri alltof lengi a\u00f0 koma honum fr\u00e1 s\u00e9r, \u00feegar okkar ma\u00f0ur t\u00f3k fr\u00e1b\u00e6ra stungu inn \u00e1 Tiago sem lyfti boltanum \u00fat \u00e1 fjarst\u00f6ng \u00fear sem Gummi st\u00f6kk h\u00e6st allra (hann vann \u00f6ll skallaeinv\u00edgin \u00ed kv\u00f6ld) og n\u00e1\u00f0i a\u00f0 beina boltanum a\u00f0 marki \u00far \u00fer\u00f6ngu f\u00e6ri \u2013 b\u00fas\u00e6ldarlegur KA-markv\u00f6r\u00f0urinn var\u00f0i en boltinn hraut til Arons J\u00f3 sem n\u00e1\u00f0i a\u00f0 lokum skoti \u00e1 marki\u00f0 sem var gl\u00e6silega vari\u00f0. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar var Tiago n\u00e6rri \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00e1 fr\u00e1b\u00e6rri sendingu inn \u00e1 Aron Sn\u00e6 sem rata\u00f0i ekki alla lei\u00f0.<\/p><p>\u00deegar um fimm m\u00edn\u00fatur li\u00f0u af fyrri h\u00e1lfleik \u00e1tti Gummi enn einn g\u00f3\u00f0a skallann sem barst \u00e1 Breka (sem hl\u00fdtur a\u00f0 vera til ranns\u00f3knar hj\u00e1 heilbrig\u00f0isv\u00edsindasvi\u00f0i H\u00e1sk\u00f3lans, gruna\u00f0ur um \u00feindarleysi) sem lyfti boltanum \u00ed \u00e1tt a\u00f0 Aroni Sn\u00e6 en markv\u00f6r\u00f0ur KA sl\u00f3 boltann fr\u00e1 \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu stundu. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar skalla\u00f0i Gummi boltann \u00ed \u00f6xl eins Eyjamannsins (nei, dj\u00f3k) og kalla\u00f0i eftir v\u00edti \u2013 sem virtist \u00fe\u00f3 tilefnisl\u00edti\u00f0. \u00c1 markam\u00edn\u00fatunni var\u00f0 \u00fevaga \u00ed v\u00edtateig KA-manna sem enda\u00f0i a\u00f0 lokum \u00e1 m\u00e1ttlitlu skoti fr\u00e1 Sigf\u00fasi \u2013 sem var valinn ma\u00f0ur leiksins \u00e1 Framvellinum \u00ed kv\u00f6ld og pr\u00fd\u00f0ilega a\u00f0 \u00fev\u00ed kominn \u00fe\u00f3tt fleiri leikmenn hafi l\u00edka \u00e1tt stj\u00f6rnuleik.<\/p><p>Af upptalningunni h\u00e9r a\u00f0 framan m\u00e6tti \u00e6tla a\u00f0 h\u00e1lfleikurinn hef\u00f0i veri\u00f0 eign Framara me\u00f0 h\u00fa\u00f0 og h\u00e1ri en s\u00fa var \u00fe\u00f3 ekki raunin. KA reyndi vissulega oft a\u00f0 s\u00e6kja en \u00fe\u00e6r s\u00f3knarlotur brotnu\u00f0u n\u00e6r alltaf \u00e1 \u00deengli og Delph \u00fe\u00f3 s\u00e9rstaklega.<\/p><p>\u00dea\u00f0 var markalaust \u00ed h\u00e1lfleik og sta\u00f0an \u00ed K\u00f3rnum, \u00fear sem \u00cdBV haf\u00f0i forystu, gaf ekki tilefni til bjarts\u00fdni. Framarar yr\u00f0u einfaldlega a\u00f0 vinna sinn leik! \u00cd sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 halda upp \u00ed f\u00ednumannabo\u00f0i\u00f0 h\u00e9ldu fr\u00e9ttaritarinn og Rabbi sig innan um sau\u00f0svartan alm\u00fagann \u00ed Bar-8, l\u00f6ptu Classic af krana og r\u00e6ddu st\u00f6\u00f0u m\u00e1la vi\u00f0 fulltr\u00faa Esperantisahreyfingarinnar \u00e1 \u00cdslandi, Gylfa Orrason og Gumma fr\u00e6nda \u00far efnahagsbrotadeildinni, auk \u00feess a\u00f0 kaupa asnalega marga mi\u00f0a \u00ed treyjulotter\u00edinu. Myndi Fram n\u00e1 a\u00f0 skora eftir hl\u00e9?<\/p><p>Seinni h\u00e1lfleikur byrja\u00f0i mun r\u00f3legar en s\u00e1 fyrri. Fr\u00e9ttaritarinn og f\u00e9lagi Rafn st\u00f3\u00f0u enn \u00e1 sama sta\u00f0 og \u00deorbj\u00f6rn Atli sl\u00f3st \u00ed h\u00f3pinn \u2013 \u00fea\u00f0 eru ekki til stressa\u00f0ri menn en Bj\u00f6ssi \u00e1 Framleikjum.<\/p><p>KA f\u00e9kk fyrsta f\u00e6ri\u00f0 \u00ed seinni h\u00e1lfleiknum sem n\u00e1\u00f0i m\u00e1li, \u00feegar einn gulkl\u00e6ddur skaut framhj\u00e1 upp \u00far engu og \u00d3li sessunautur st\u00f3\u00f0 frosinn \u00e1 l\u00ednunni. \u00c1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 stressast? Njah, \u00feremur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar kom marki\u00f0. Tiago lyfti boltanum snyrtilega inn \u00ed teig KA-manna \u00fear sem Gummi Magg st\u00f6kk enn eina fer\u00f0ina h\u00e6st allra, skalla\u00f0i ni\u00f0ur \u00ed teiginn \u00fear sem \u00deengill kom a\u00f0v\u00edfandi \u2013 teyg\u00f0i fram l\u00f6ppina og setti boltann \u00ed markhorni\u00f0, 1:0 og hafsentinn kominn me\u00f0 sitt anna\u00f0 mark \u00ed \u00f6rf\u00e1um leikjum. Unglingastarfi\u00f0 hj\u00e1 Fram heldur \u00e1fram a\u00f0 gefa. Af hverju er svona miklu skemmtilegra og meira fulln\u00e6gjandi a\u00f0 horfa \u00e1 f\u00f3tboltaleiki me\u00f0 uppalda str\u00e1ka \u00ed li\u00f0inu en m\u00e1lali\u00f0a?<\/p><p>Fimm m\u00edn\u00fatum eftir marki\u00f0 komu fyrstu skiptingarnar. Aronarnir tveir f\u00f3ru af velli, eftir f\u00edna frammist\u00f6\u00f0u en Magn\u00fas Ingi og hinn fimmt\u00e1n \u00e1ra Viktor Bjarki leystu \u00fe\u00e1 af h\u00f3lmi. \u00deessi \u00e1kv\u00f6r\u00f0un virtist dj\u00f6rf \u00ed lj\u00f3si \u00feess hversu vel \u00feeir Sn\u00e6r og J\u00f3 h\u00f6f\u00f0u sta\u00f0i\u00f0 sig fram a\u00f0 \u00feessu, en reyndist skynsamleg.<\/p><p>Eftir klukkut\u00edma leik kom Viktor Bjarki s\u00e9r \u00ed fr\u00e1b\u00e6rt f\u00e6ri \u00fear sem hann stakk s\u00e9r \u00ed gegnum KA-v\u00f6rnina, hef\u00f0i l\u00edklega \u00e1tt a\u00f0 senda boltann til hli\u00f0ar \u00e1 li\u00f0sf\u00e9laga \u00ed opnu f\u00e6ri en l\u00e9t frekar va\u00f0a \u00ed belginn \u00e1 KA-markver\u00f0inum (sem var m\u00f6gulega ma\u00f0ur leiksins og for\u00f0a\u00f0i KA fr\u00e1 lj\u00f3tum skelli). M\u00edn\u00fatu s\u00ed\u00f0ar \u00e1tti Fred g\u00f3\u00f0a sendingu fyrir marki\u00f0 sem Gummi skalla\u00f0i fyrir Viktor sem var dau\u00f0afr\u00edr \u00e1 markteig en aftur reyndist skrokkurinn \u00e1 markver\u00f0i andst\u00e6\u00f0inganna of st\u00f3r. Langbesta f\u00e6ri leiksins en sta\u00f0an enn\u00fe\u00e1 bara 1:0.<\/p><p>Um mi\u00f0jan seinni h\u00e1lfleikinn var kr\u00e6kt \u00ed f\u00f3tinn \u00e1 Magga inni \u00ed v\u00edtateig KA-manna, en ekkert d\u00e6mt \u2013 kannski\u00a0 vegna \u00feess a\u00f0 hann gleymdi a\u00f0 heimta v\u00edti\u00f0. R\u00e9tt m\u00edn\u00fatu s\u00ed\u00f0ar fengu gestirnir hins vegar dau\u00f0af\u00e6ri til a\u00f0 jafna metin en skutu framhj\u00e1.<\/p><p>Viktor Bjarki f\u00e9kk \u00feri\u00f0ja upplag\u00f0a markt\u00e6kif\u00e6ri\u00f0 \u00feegar kort\u00e9r var eftir af leiknum eftir g\u00f3\u00f0an undirb\u00faning Magga. Hann t\u00f3k s\u00e9r g\u00f3\u00f0an t\u00edma en setti svo boltinn utanf\u00f3tar r\u00e9tt framhj\u00e1 markst\u00f6nginni. Vissulega ekki til fyrirmyndar hj\u00e1 okkar allra efnilegasta unga leikmanni a\u00f0 misnota svona hvert t\u00e6kif\u00e6ri\u00f0 \u00e1 f\u00e6tur \u00f6\u00f0ru, en um lei\u00f0 a\u00f0d\u00e1unarvert hversu r\u00f3legur og afslappa\u00f0ur hann var me\u00f0an \u00e1 \u00feessu \u00f6llu st\u00f3\u00f0 og h\u00e6tti ekki a\u00f0 reyna. \u00deessi str\u00e1kur er a\u00f0 fara a\u00f0 n\u00e1 f\u00e1r\u00e1nlega langt.<\/p><p>\u00deegar t\u00edu m\u00edn\u00fatur voru eftir n\u00e1\u00f0u KA-menn \u00f3v\u00e6ntu langskoti upp \u00far engu sem \u00d3li var\u00f0i vel \u00ed horn. \u00cd kj\u00f6lfari\u00f0 kom T\u00f3ti inn\u00e1 fyrir Gumma sem ver b\u00fainn a\u00f0 hlaupa \u00far s\u00e9r lungu og lifur. Framarar einbeittu s\u00e9r a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 drepa leikinn og n\u00e1 \u00fear me\u00f0 s\u00ednu \u00f6\u00f0ru hreina neti \u00ed sumar. KA skapa\u00f0i s\u00e9r l\u00edti\u00f0 og raunar \u00e1ttu Framararnir bestu f\u00e6rin \u00e1 lokam\u00edn\u00fatunum \u00fear sem Tiago hef\u00f0i m\u00e1tt gera mun betur \u00ed uppb\u00f3tart\u00edma \u00feegar vi\u00f0 fengum f\u00e6ri \u00e1 a\u00f0 geirnegla sigurinn \u2013 en hverjum var ekki sama \u00feegar flauta\u00f0 var til leiksloka. Fram hefur n\u00fa fengi\u00f0 \u00e1tta stig \u00ed fj\u00f3rum leikjum \u00farslitakeppninnar. Li\u00f0i\u00f0 leikur fr\u00e1b\u00e6rlega en f\u00e1ir eins vel og Fred sem var gr\u00ed\u00f0arlega duglegur \u00ed v\u00f6rninni ofan \u00e1 snilldarsendingar s\u00ednar frammi \u00e1 vellinum. Fram er ekki sloppi\u00f0 \u2013 bara alls ekki \u2013 \u00cdBV getur au\u00f0veldlega sl\u00e1tra\u00f0 Keflav\u00edk \u00e1 heimavelli \u00ed lokaumfer\u00f0inni og \u00fev\u00ed \u00feurfum vi\u00f0 a\u00f0 s\u00e6kja stig \u00ed \u00c1rb\u00e6inn \u2013 en helst \u00f6ll \u00ferj\u00fa. \u00dea\u00f0 skal enginn segja m\u00e9r anna\u00f0 en a\u00f0 Ragnar Sigur\u00f0sson hafi einhverja pervert\u00edska \u00fer\u00e1 um a\u00f0 senda uppeldisli\u00f0i\u00f0 sitt ni\u00f0ur \u00ed s\u00ed\u00f0ustu umfer\u00f0 \u2013 \u00fev\u00ed \u00feannig gerir ma\u00f0ur bara.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Stj\u00f3rn knattspyrnudeildar Fram kom saman til ney\u00f0arfundar \u00e1 laugardaginn. Tilefni\u00f0 var a\u00f0 r\u00e6\u00f0a st\u00f6\u00f0u fr\u00e9ttaritara Frams\u00ed\u00f0unnar, sem haf\u00f0i skila\u00f0 vandr\u00e6\u00f0alega snubb\u00f3ttri sk\u00fdrslu um f\u00e1g\u00e6tan sigurleik \u00e1 m\u00f3ti Keflav\u00edk \u2013 auglj\u00f3slega [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":35895,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-35930","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2023\/09\/THengill-2-scaled.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/35930","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=35930"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/35930\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":35936,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/35930\/revisions\/35936"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/35895"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=35930"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=35930"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=35930"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}