{"id":39355,"date":"2024-04-29T21:54:43","date_gmt":"2024-04-29T21:54:43","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=39355"},"modified":"2024-04-29T21:55:55","modified_gmt":"2024-04-29T21:55:55","slug":"samraemdu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2024\/04\/29\/samraemdu\/","title":{"rendered":"Samr\u00e6mdu"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"39355\" class=\"elementor elementor-39355\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-60a8f4e7 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"60a8f4e7\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-2342c668\" data-id=\"2342c668\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-55393a13 elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"55393a13\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p>\u00cd l\u00edfinu gildir s\u00fa einfalda regla a\u00f0 anna\u00f0 hvort ertu hluti af lausninni e\u00f0a vandam\u00e1linu. \u00dea\u00f0 er enginn millivegur. N\u00fa um stundir stendur mannkyni\u00f0 til a\u00f0 mynda frammi fyrir mestu \u00f3gn sem af henni hefur ste\u00f0ja\u00f0: loftslagsbreytingar af mannav\u00f6ldum munu, ef ekkert ver\u00f0ur a\u00f0 gert, gera heimkynni millj\u00f3na \u00f3byggileg og valda \u00f3l\u00fdsanlegum h\u00f6rmungum fyrir l\u00edfskj\u00f6r f\u00f3lks og vistkerfi jar\u00f0ar. Me\u00f0al \u00feess sem vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 gera til a\u00f0 sn\u00faa \u00fer\u00f3uninni vi\u00f0 er a\u00f0 breyta l\u00edfsh\u00e1ttum okkar og matar\u00e6\u00f0i \u2013 h\u00e6tta a\u00f0 brenna ol\u00edu og bor\u00f0a meira \u00far pl\u00f6ntur\u00edkinu en d\u00fdrar\u00edkinu.<\/p><p>\u00cd Reykjav\u00edk er \u00ed\u00fer\u00f3ttaf\u00e9lag sem er me\u00f0vita\u00f0 um \u00feessar sta\u00f0reyndir. Fyrir viki\u00f0 hefur \u00fea\u00f0 gert samning \u00feess efnis a\u00f0 heimav\u00f6llur \u00feess ber nafn gr\u00f3\u00f0rarst\u00f6\u00f0var sem r\u00e6ktar lj\u00faffengt salat og sp\u00ednatk\u00e1l. \u00deetta f\u00f3lk er hluti af lausninni. Vestar \u00ed borginni er anna\u00f0 \u00ed\u00fer\u00f3ttaf\u00e9lag. \u00dea\u00f0 kennir heimav\u00f6llinn sinn vi\u00f0 bens\u00ednst\u00f6\u00f0&#8230;<\/p><p><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-39361 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/04\/THorri-gegn-KR-II-300x200.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"200\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/04\/THorri-gegn-KR-II-300x200.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/04\/THorri-gegn-KR-II-768x512.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/04\/THorri-gegn-KR-II-18x12.jpg 18w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/04\/THorri-gegn-KR-II.jpg 799w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/>Lausnin s\u00f3tti vandam\u00e1li\u00f0 heim \u00ed kv\u00f6ld \u00ed fj\u00f3r\u00f0u umfer\u00f0 Bestu deildarinnar. Fr\u00e9ttaritarinn m\u00e6tti t\u00edmanlega enda dubba\u00f0ur upp af heimam\u00f6nnum til a\u00f0 st\u00fdra p\u00f6bbkvissi stu\u00f0ningsmanna beggja li\u00f0a. Eins og fram hefur komi\u00f0 oftar en einu sinni og oftar en tvisvar \u00e1 \u00feessum vettvangi \u00e1 Fr\u00e9ttaritarinn t\u00e1ning sem er gallhar\u00f0ur Valsari og hefur undirrita\u00f0ur \u00fev\u00ed vari\u00f0 fleiri klukkustundum \u00e1 Hl\u00ed\u00f0arenda en hollt er og \u00e6skilegt og broti\u00f0 brau\u00f0 me\u00f0 f\u00f3lki sem er \u00fer\u00e1tt fyrir allt \u00e1g\u00e6tis manneskjur.<\/p><p>Kvissi\u00f0 gekk vel og au\u00f0vita\u00f0 unnu li\u00f0smenn \u00dalfanna \u00e1 fullu h\u00fasi stiga. Bj\u00f3r var \u00f3t\u00e6pilega kneyfa\u00f0ur \u00ed a\u00f0dragandanum en keppnist\u00edminn var skr\u00edtinn, 18:00 \u00e1 m\u00e1nudegi, til a\u00f0 laga sig a\u00f0 k\u00f6rfukastleik heimamanna gegn Njar\u00f0v\u00edkingum. Framarar l\u00e9tu \u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3 ekki trufla sig og fj\u00f6lmenntu \u00ed st\u00fakuna \u00ed sallaf\u00ednu ve\u00f0ri, \u00fe\u00f3tt nokkur vindstrekkingur hafi veri\u00f0 \u00e1 vellinum.<\/p><p>Framli\u00f0i\u00f0 var \u00f3breytt fr\u00e1 sigrinum \u00e1 KR um daginn. \u00d3li \u00ed markinu, Kyle, Kennie og \u00deorri \u00ed \u00f6ftustu varnarl\u00ednu. Alex og M\u00e1r \u00ed bakv\u00f6r\u00f0um. Fred Tiago og Freyr \u00e1 mi\u00f0junni. Gummi Magg og M\u00e1si frammi. Jannik er enn fjarri g\u00f3\u00f0u gamni me\u00f0 bakmei\u00f0sli, en vonir standa til a\u00f0 hann sn\u00fai aftur innan ekki of langs t\u00edma.<\/p><p>Skjaldsveinninn skr\u00f3pa\u00f0i enn eina fer\u00f0ina, a\u00f0 s\u00f6gn staddur \u00e1 e-u h\u00f3pefli matv\u00e6lafr\u00e6\u00f0inga \u00fati \u00e1 landi. \u00cd fjarveru hans og markapelans g\u00f3\u00f0a planta\u00f0i Fr\u00e9ttaritarinn (\u00ed gr\u00e1u ullarpeysunni og \u00feunnum jakka \u2013 vi\u00f0 erum ekki enn komin \u00e1 \u00feann t\u00edmapunkt a\u00f0 gula vesti\u00f0 s\u00e9 verjandi) s\u00e9r vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 Adda \u00far bankanum og \u00cdvari Gu\u00f0j\u00f3ns, standandi efst \u00ed st\u00fakunni.<\/p><p>Framarar byrju\u00f0u me\u00f0 l\u00e1tum og strax \u00e1 fyrstu m\u00edn\u00fatu var M\u00e1r n\u00e6rri b\u00fainn a\u00f0 labba \u00ed gegnum sta\u00f0a Valsv\u00f6rnina. R\u00e9tt r\u00famum fimm m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar \u00e1tti \u00e1 Freyr snilldarsendingu \u00e1 Minga sem \u00e1tti skot sem var vari\u00f0, fr\u00e1kasti\u00f0 barst til M\u00e1sa og var s\u00f6mulei\u00f0is vari\u00f0. Framarar voru mun \u00e1kve\u00f0nari \u00e1 upphafsm\u00edn\u00fatunum og heimamenn \u00e1 bens\u00ednd\u00e6lunni virtust b\u00e6\u00f0i andlausir og hugmyndasnau\u00f0ir.<\/p><p>Fyrsta alv\u00f6ru f\u00e6ri Valsmanna kom eftir t\u00e6par tuttugu m\u00edn\u00fatur \u00feegar Tiago missti boltann me\u00f0 \u00f3venjulega slakri sendingu \u00e1 mi\u00f0jum velli en hlj\u00f3p til bara og n\u00e1\u00f0i a\u00f0 st\u00f6\u00f0va skot Gylfa Sigur\u00f0ssonar (sem f\u00e6r a\u00f0 vera nafngreindur, \u00fevert \u00e1 reglur \u00feessa bloggs um nafnbirtingar m\u00f3therja). Einar K\u00e1rason og f\u00e9lagar voru flj\u00f3tir a\u00f0 breg\u00f0ast vi\u00f0 me\u00f0 hinu skemmtilega kalli: \u201e\u00dea\u00f0 er a\u00f0eins einn Gylfi \u00c6gis!\u201c<\/p><p>Um mi\u00f0bik h\u00e1lfleiksins m\u00e1tti litlu muna a\u00f0 Framarar k\u00e6must yfir eftir snjallt leikkerfi \u00fear sem Mingi og Gummi l\u00e9ku saman og sendu svo \u00e1 Fred, en Valsmarkv\u00f6r\u00f0urinn blaka\u00f0i \u00ed horn. Beint \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 komst Kennie \u00ed dau\u00f0af\u00e6ri en skot hans var naumlega vari\u00f0 framhj\u00e1.<\/p><p>S\u00ed\u00f0ustu t\u00edu m\u00edn\u00fatur fyrri h\u00e1lfleiks f\u00f3r a\u00f0 fjara undan yfirbur\u00f0um Framara og heimamenn mj\u00f6ku\u00f0u s\u00e9r framar \u00e1 v\u00f6llinn. Enn var \u00fe\u00f3 markalaust \u00feegar flauta\u00f0 var til leikhl\u00e9s og allir Valsmenn sem spur\u00f0ir voru \u00ed f\u00ednumannah\u00f3lfinu \u00ed h\u00e1lfleik vi\u00f0urkenndu f\u00faslega a\u00f0 Framli\u00f0i\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 umtalsvert betra og ver\u00f0skulda\u00f0i forystu.<\/p><p>Fram ger\u00f0i tv\u00f6falda skiptingu \u00ed byrjun seinni h\u00e1lfleiks. Tryggvi kom inn fyrir Frey og Adam fyrir Kennie, sem haf\u00f0i fengi\u00f0 h\u00f6fu\u00f0h\u00f6gg snemma leiks. Adam kom sterkur inn \u00ed bikarleiknum um daginn og \u00fea\u00f0 sama gilti \u00ed dag. Breiddin \u00ed Framli\u00f0inu er mikil og allar skiptingar af bekknum eru g\u00f3\u00f0ar.<\/p><p>Heimamenn komu mun sterkari til leiks \u00ed seinni h\u00e1lfleik og t\u00f3ku n\u00e1nast \u00f6ll v\u00f6ld \u00e1 mi\u00f0junni. Framv\u00f6rnin, me\u00f0 Kyle \u00ed mi\u00f0junni sem \u00f3sigrandi brimbrj\u00f3t, gaf \u00fe\u00f3 engin f\u00e6ri \u00e1 s\u00e9r. Einu markt\u00e6kif\u00e6ri Vals voru \u00far f\u00f6stum leikatri\u00f0um, hornspyrnum og aukaspyrnum, \u00fear sem Gylfi (\u00fe\u00f3 ekki \u00c6gisson) f\u00e9kk a\u00f0 spreyta sig. \u00c1 52. m\u00edn\u00fatu bar s\u00fa uppskrift \u00e1rangur \u00fear sem einf\u00f6ld hornspyrna Valsmanna rata\u00f0i \u00e1 kollinn \u00e1 einum \u00feeirra manna og sta\u00f0an var\u00f0 1:0.<\/p><p>Framli\u00f0i\u00f0 virtist ekki l\u00edklegt til a\u00f0 svara fyrir sig og leikurinn h\u00e1lfdrabba\u00f0ist ni\u00f0ur. Valsmenn dr\u00f3gu sig jafnt og \u00fe\u00e9tt aftar \u00e1 vellinum, en Framara virtist skorta snerpu og hra\u00f0a til a\u00f0 sauma a\u00f0 \u00feeim og freista \u00feess a\u00f0 jafna. M\u00e1r og Tyrggvi n\u00e1\u00f0u a\u00f0eins a\u00f0 \u00f3gna markinu um mi\u00f0jan h\u00e1lfleikinn en varnarmenn Vals hreinsu\u00f0u \u00e1 markl\u00ednu.<\/p><p>\u00deegar r\u00e9tt r\u00famur stundarfj\u00f3r\u00f0ungur var eftir af leiknum f\u00f3r Gummi Magg af velli fyrir t\u00e1ninginn Viktor Bjarka. \u00dea\u00f0 \u00e1tti eftir a\u00f0 reynast afdrifar\u00edkt.<\/p><p>S\u00ed\u00f0ustu t\u00edu m\u00edn\u00faturnar b\u00f6kku\u00f0u Valsmenn enn meira og Framli\u00f0i\u00f0, sem haf\u00f0i ekki veri\u00f0 n\u00e1l\u00e6gt \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00f3gna byrja\u00f0i a\u00f0 f\u00e1 t\u00e6kif\u00e6ri. \u00c1 83ju m\u00edn\u00fatu kom Halli inn fyrir Alex og Aron Sn\u00e6r fyrir Minga. B\u00e1\u00f0ir \u00e1ttu eftir a\u00f0 setja r\u00e6kilega mark sitt \u00e1 leikinn. &#8211; Plani\u00f0 var auglj\u00f3slega a\u00f0 bl\u00e1sa til s\u00f3knar s\u00ed\u00f0ustu m\u00edn\u00faturnar&#8230;<\/p><p>\u00c1 lokam\u00edn\u00fatu venjulegs leikt\u00edma var broti\u00f0 \u00e1 Tiago r\u00e9tt utan vi\u00f0 v\u00edtateig og Framli\u00f0i\u00f0 stillti upp \u00ed lokas\u00f3kn. Fred skr\u00fafa\u00f0i boltann beint \u00e1 kollinn \u00e1 \u00deorra sem lag\u00f0i hann fyrir Viktor Bjarka sem pota\u00f0i boltanum \u00ed neti\u00f0. Viktor, sem a\u00f0 \u00f6llu j\u00f6fnu hef\u00f0i \u00e1tt a\u00f0 vera heima hj\u00e1 s\u00e9r a\u00f0 l\u00e6ra fyrir samr\u00e6mdu pr\u00f3fin, er n\u00fdi upp\u00e1haldsma\u00f0ur okkar Framara! Lokam\u00edn\u00faturnar runnu \u00fat og fagna\u00f0arl\u00e6tin \u00ed st\u00fakunni voru \u00f3svikin. \u00c1 lei\u00f0inni heim \u00ed Eskihl\u00ed\u00f0ina gekk Fr\u00e9ttaritarinn kotroskinn \u00e1samt Einari K\u00e1rasyni og d\u00e6trum, auk \u00feess a\u00f0 va\u00f0a \u00ed flasi\u00f0 \u00e1 trymblinum Kristj\u00e1ni Frey. L\u00edfi\u00f0 er lj\u00faft og Fram \u00f3sigrandi. N\u00e6sti leikur er gegn Fylki \u00e1 k\u00e1lbla\u00f0inu m\u00e6ti\u00f0 \u00feanga\u00f0 e\u00f0a veri\u00f0 ferhyrnd!<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd l\u00edfinu gildir s\u00fa einfalda regla a\u00f0 anna\u00f0 hvort ertu hluti af lausninni e\u00f0a vandam\u00e1linu. \u00dea\u00f0 er enginn millivegur. N\u00fa um stundir stendur mannkyni\u00f0 til a\u00f0 mynda frammi fyrir mestu [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":39356,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[11,9],"tags":[],"class_list":["post-39355","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-mflkarla","category-fotbolti"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/04\/Kyle-gegn-KR.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/39355","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=39355"}],"version-history":[{"count":7,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/39355\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":39364,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/39355\/revisions\/39364"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/39356"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=39355"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=39355"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=39355"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}