{"id":39736,"date":"2024-05-26T21:32:53","date_gmt":"2024-05-26T21:32:53","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=39736"},"modified":"2024-05-26T21:41:32","modified_gmt":"2024-05-26T21:41:32","slug":"gjafmildi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2024\/05\/26\/gjafmildi\/","title":{"rendered":"Gjafmildi"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"39736\" class=\"elementor elementor-39736\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-167fdfa2 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"167fdfa2\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-881c4b\" data-id=\"881c4b\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-39ad6b5b elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"39ad6b5b\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p>\u201e\u00deessir pistlar \u00fe\u00ednir eru komnir \u00fat \u00ed t\u00f3mt rugl\u201c, sag\u00f0i m\u00e1lsmetandi ma\u00f0ur vi\u00f0 fr\u00e9ttaritara Frams\u00ed\u00f0unnar \u00e1 d\u00f6gunum. \u201e\u00dea\u00f0 er hreinasta hending ef \u00fe\u00fa nennir a\u00f0 skrifa um sj\u00e1lfan f\u00f3tbolta, heldur er \u00feetta endalaus hed\u00f3n\u00edsk lofgj\u00f6r\u00f0 og rant um hversu marga bj\u00f3ra \u00fe\u00fa drakkst me\u00f0 hinum og \u00feessum e\u00f0a hverju \u00fe\u00fa ra\u00f0a\u00f0ir \u00ed v\u00f6mbina \u00ed f\u00ednumannaherberginu. \u00de\u00fa liggur einhvern veginn mitt \u00e1 milli \u00feess a\u00f0 vera Henry Birgir f\u00e1t\u00e6ka mannsins e\u00f0a Shane MacGowan f\u00f3tboltaskr\u00edbentanna!\u201c \u2013 H\u00f6r\u00f0 or\u00f0 en ekki vissulega ekki alveg \u00far lausu lofti gripin.<\/p><p>\u00cd lj\u00f3si \u00feessarar \u00e1drepu \u00e1kva\u00f0 fr\u00e9ttaritarinn a\u00f0 vera bara \u00e1 b\u00edlnum \u00feegar Framarar t\u00f3ku \u00e1 m\u00f3ti Brei\u00f0abliksm\u00f6nnum \u00e1 Lambhagavelli \u00ed dag. \u00dea\u00f0 kom s\u00e9r vel \u00fear sem Hn\u00edfsd\u00e6lingurinn lj\u00fafi gat \u00fear me\u00f0 fengi\u00f0 far og komi\u00f0 trommusettinu \u00ed skotti\u00f0. \u00deetta er station-b\u00edll me\u00f0 mj\u00f6g gott skott sem v\u00e6ri \u00f6rugglega h\u00e6gt a\u00f0 nota til a\u00f0 flytja l\u00edk. Ekki \u00fea\u00f0 a\u00f0 fr\u00e9ttaritarinn \u00e1formi sl\u00edkt \u2013 en m\u00f6guleikinn er amk fyrir hendi. F\u00e9lagi Valur Nor\u00f0ri var s\u00f3ttur \u00ed Fossvoginn. Eftir s\u00ed\u00f0asta leik birtist mynd af \u00feessu v\u00edgalega \u00fer\u00edeyki \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum, sem olli v\u00edst nokkrum f\u00f6stum lesendum \u00feessara pistla s\u00e1rum vonbrig\u00f0um \u00fear sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u \u00edmynda\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 Valur Nor\u00f0ri v\u00e6ri uppsk\u00e1ldu\u00f0 pers\u00f3na.<\/p><p>\u00deegar \u00e1 v\u00f6llinn var komi\u00f0 fann Kristj\u00e1n Freyr s\u00e9r s\u00e6ti me\u00f0 trommurnar \u00ed fr\u00ed\u00f0um flokki Geiramanna en fr\u00e9ttaritarinn, skjaldsveinninn, Rabbi trymbill (sem heitir trymbill \u00ed \u00feessum pistlum af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann tromma\u00f0i \u00feegar hann var \u00ed Versl\u00f3 \u00ed gamla daga \u2013 ekki vegna \u00feess a\u00f0 hann berji h\u00fa\u00f0ir \u00e1 Framleikjum) og Au\u00f0un Georg fundu s\u00e9r s\u00e6ti a\u00f0eins sunnar \u00ed st\u00fakunni. Au\u00f0un Georg, Framarinn me\u00f0 \u00cdK-hjarta\u00f0, haf\u00f0i au\u00f0vita\u00f0 tv\u00f6falda \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 m\u00e6ta og vonast eftir sigri \u00e1 Blikum. Gamlir \u00cdK-menn eru enn\u00fe\u00e1 s\u00e1rir yfir a\u00f0 Brei\u00f0abliksmaf\u00edan hafi leyft \u00feeim gr\u00e6noghv\u00edtr\u00f6nd\u00f3ttu a\u00f0 ver\u00f0a gjald\u00ferota \u00fataf sm\u00e1skitnum reikningi fr\u00e1 augl\u00fdsingadeild R\u00daV.<\/p><p>Hinn n\u00fdr\u00fa\u00f0ustrika\u00f0i fr\u00e9ttaritari h\u00e9lt sig v\u00ed\u00f0sfjarri f\u00ednumannaherberginu og f\u00e9kk \u00fev\u00ed fregnir af uppstillingu li\u00f0sins bara \u00ed gegnum F\u00f3tbolta-p\u00fankt-net. \u00d3li \u00ed markinu. Adam, Kyle og \u00deorri mi\u00f0ver\u00f0ir. M\u00e1r og Alex bakver\u00f0ir \u2013 s\u00e1 s\u00ed\u00f0arnefndi kominn \u00ed byrjunarli\u00f0i\u00f0 \u00ed sta\u00f0 Halla. Tiago, Fred og Tryggvi \u00e1 mi\u00f0junni. Gummi Magg frammi og svo ungstirni\u00f0 Viktor Bjarki sem byrja\u00f0i a\u00f0 \u00feessu sinni \u00ed sta\u00f0 Minga. Vi\u00f0 s\u00f6knum enn Dananna okkar tveggja sem b\u00e1\u00f0ir eru meiddir \u2013 l\u00edklega af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir eru aldir upp \u00ed Danm\u00f6rku og fengu \u00fev\u00ed hvorki l\u00fdsi n\u00e9 k\u00f3k\u00f3p\u00f6ffs \u00ed barn\u00e6sku, en hvort tveggja mun vera banna\u00f0 \u00ed Evr\u00f3pusambandinu.<\/p><p>\u00dea\u00f0 var hl\u00fdtt \u00ed ve\u00f0ri og \u00e1 me\u00f0an s\u00f3larinnar naut vi\u00f0 var hreinlega of heitt og fr\u00e9ttaritarinn reif sig \u00far jakkanum. Stj\u00f3rnendur f\u00e9lagsins eru kl\u00f3kir og moka \u00fat Fram-s\u00f3lgleraugum \u00e1 leikjum, en hvar er Fram-s\u00f3larv\u00f6rnin? \u00dati \u00e1 velli var samt nokkur vindur sem Framarar byrju\u00f0u me\u00f0 \u00ed baki\u00f0 \u00ed fyrri h\u00e1lfleik.<\/p><p>Framarar fengu tv\u00f6 h\u00e1lff\u00e6ri \u00e1 fyrstu m\u00edn\u00fatunum, b\u00e6\u00f0i upp \u00far hornspyrnum. \u00dea\u00f0 var hins vegar hinu megin \u00e1 vellinum sem fyrst dr\u00f3 verulega til t\u00ed\u00f0inda strax \u00e1 sj\u00f6undu m\u00edn\u00fatu. H\u00e1r bolti barst inn \u00ed Framteiginn \u00fear sem einn Blikinn f\u00e9kk fr\u00edan skalla sem \u00d3li var\u00f0i fr\u00e1b\u00e6rlega, fr\u00e1kasti\u00f0 barst fyrir f\u00e6tur annars K\u00f3pavogsb\u00faa sem skaut \u00feegar a\u00f0 marki \u00e1 tveggja metra f\u00e6ri en \u00d3li n\u00e1\u00f0i einhvern veginn a\u00f0 sl\u00e6ma h\u00f6ndinni fyrir og verja. Algj\u00f6rlega st\u00f3rkostlegar v\u00f6rslur og kraftaverk a\u00f0 gestirnir v\u00e6ru ekki komnir me\u00f0 forystu.<\/p><p>Eftir stundarfj\u00f3r\u00f0ungsleik n\u00e1\u00f0u Framarar forystunni. Fred og Tiago t\u00f3ku stutt horn af \u00feeirri ger\u00f0inni sem ma\u00f0ur veit a\u00f0 aldrei kemur neitt \u00fat \u00far&#8230; nema a\u00f0 n\u00fana virka\u00f0i \u00fea\u00f0! Fred setti boltann h\u00e1rn\u00e1kv\u00e6mt \u00e1 kollinn \u00e1 Gumma sem st\u00f6kk upp \u00e1 n\u00e6rst\u00f6nginni og skalla\u00f0i h\u00e1rn\u00e1kv\u00e6mt upp \u00ed horni\u00f0 og fagna\u00f0i me\u00f0 k\u00farekadansi a\u00f0 h\u00e6tti h\u00fassins, 1:0.<\/p><p>Forystan entist ekki nema \u00ed fimm m\u00edn\u00fatur. Varnarmenn Framara voru fur\u00f0ulega gjafmildir \u2013 og ekki \u00ed s\u00ed\u00f0asta sinn \u00ed leiknum \u2013 og g\u00e1fu einum Blikanum alltof miki\u00f0 pl\u00e1ss \u00ed teignum til a\u00f0 sn\u00faa s\u00e9r vi\u00f0 me\u00f0 Kyle \u00e1 bakinu og renna knettinum \u00ed neti\u00f0, 1:1.<\/p><p>Eftir j\u00f6fnunarmarki\u00f0 f\u00f3ru Framarar aftur a\u00f0 gera sig l\u00edklega. Fred \u00e1tti langskot \u00far f\u00ednu f\u00e6ri en beint \u00e1 markv\u00f6r\u00f0 andst\u00e6\u00f0inganna \u00e1 24. m\u00edn\u00fatu. \u00deremur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar kom gullfalleg sending \u00ed gegnum Blikav\u00f6rnina \u00e1 Tryggva sem hlj\u00f3p upp a\u00f0 endam\u00f6rkum og \u00fev\u00edn\u00e6st til hli\u00f0ar \u00ed v\u00edtateignum. Hann virtist \u00e6tla a\u00f0 b\u00ed\u00f0a of lengi me\u00f0 a\u00f0 n\u00e1 skoti e\u00f0a sendingu, en sendi loks \u00e1 M\u00e1 sem var \u00ed gullnu f\u00e6ri en skaut fast en yfir marki\u00f0.<\/p><p>\u00deegar t\u00edu m\u00edn\u00fatur voru eftir af fyrri h\u00e1lfleik \u00e1ttur Viktor og Tryggvi f\u00ednasta samleik og voru n\u00e6rri b\u00fanir a\u00f0 prj\u00f3na sig alla lei\u00f0 \u00ed gegnum Blikav\u00f6rnina er s\u00ed\u00f0asta snertingin sveik. \u00c1 lokam\u00edn\u00fatu fyrri h\u00e1lfleiksins var Gummi aflita\u00f0ri h\u00e1rsbreidd fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00e1 a\u00f0 skalla inn \u00e1 Viktor Bjarka sem hef\u00f0i veri\u00f0 sloppinn einn \u00ed gegn. \u2013 Af upptalningunni h\u00e9r a\u00f0 framan m\u00e6tti \u00e6tla a\u00f0 Framarar hafi \u00e1tt h\u00e1lfeikinn me\u00f0 h\u00fa\u00f0 og h\u00e1ri. Svo var ekki. Blikar fengu l\u00edka s\u00edn f\u00e6ri en \u00feau eru f\u00e6st rakin h\u00e9r, enda er \u00feetta okkar leiksk\u00fdrsla \u00e1 okkar vefsv\u00e6\u00f0i, ef \u00fei\u00f0 vilji\u00f0 lesa eitthvar Blikamont geti\u00f0 \u00fei\u00f0 bara fari\u00f0 \u00e1 Blikar-p\u00fanktur-is \u00fear sem P\u00e9tur M\u00e1r \u00d3lafsson skrifar yfirleitt fr\u00e1b\u00e6rar leiksk\u00fdrslur me\u00f0 h\u00e1timbru\u00f0um b\u00f3kmenntav\u00edsunum.<\/p><p>\u00dea\u00f0 var l\u00e9tt yfir fr\u00e9ttaritaranum, skjaldsveininum og trymblunum tveimur \u00ed gildask\u00e1la al\u00fe\u00fd\u00f0unnar, Bar-\u00e1ttunni. \u00dear voru l\u00edka fulltr\u00faar \u00f3vinarins, s.s. Gylfi Steinn Gunnarsson Luton-stu\u00f0ningsma\u00f0ur og p\u00edlukastari, sem er gr\u00e6nn \u00ed hjarta en var l\u00edka gr\u00e6nn af \u00f6fund yfir \u00fev\u00ed hva\u00f0 a\u00f0sta\u00f0an er flott hj\u00e1 okkur \u00ed Dal draumanna. Almennur samhlj\u00f3mur var um a\u00f0 leikurinn v\u00e6ri tv\u00eds\u00fdnn og a\u00f0 r\u00e9tt v\u00e6ri a\u00f0 gefa \u00d3la \u00cdsh\u00f3lm strax ver\u00f0launin fyrir v\u00f6rslur \u00e1rsins.<\/p><p>Eftir hl\u00e9 k\u00f3lna\u00f0i talsvert eftir a\u00f0 s\u00f3lin hvarf \u00e1 bak vi\u00f0 sk\u00fd. Um lei\u00f0 var\u00f0 vindurinn \u00e1 vellinum \u00e1berandi, sem gestirnir h\u00f6f\u00f0u n\u00fa \u00ed baki\u00f0. Fram ger\u00f0i engar breytingar \u00ed hl\u00e9i og leikurinn h\u00e9lt \u00e1fram eins og veri\u00f0 haf\u00f0i me\u00f0 s\u00f3knum \u00e1 b\u00e1\u00f0a b\u00f3ga. Adam missti boltann illa eftir tveggja m\u00edn\u00fatna leik en Bliki skaut framhj\u00e1 \u00far pr\u00fd\u00f0isf\u00e6ri. Hinu megin voru Tryggvi og M\u00e1r (\u00feeir n\u00e1 lygilega vel saman) me\u00f0 f\u00ednt samspil sem enda\u00f0i \u00e1 a\u00f0 Fred t\u00f3k skoti\u00f0 en hitti bara a\u00f0v\u00edfandi varnarmann. Blikar heimtu\u00f0u v\u00edti strax \u00ed n\u00e6stu s\u00f3kn en d\u00f3marinn l\u00e9t s\u00e9r f\u00e1tt um finnast \u2013 l\u00edna hans \u00ed d\u00f3mg\u00e6slunni var a\u00f0 flauta sem minnst og n\u00e1nast hvetja li\u00f0in til bakhrindinga hven\u00e6r sem f\u00e6ri gafst. S\u00e9rkennileg l\u00edna en \u00fea\u00f0 var \u00fe\u00f3 samkv\u00e6mni \u00ed henni.<\/p><p>Beint eftir v\u00edtakalli\u00f0 \u00feurfti Kyle a\u00f0 koma til bjargar \u00feegar s\u00f3knarma\u00f0ur Blika var sloppinn \u00ed gegn. Eftir hetjut\u00e6klingu settist hann \u00e1 v\u00f6llinn og \u00feurfti a\u00f0hlynningu. Kalt vatn rann milli skinns og h\u00f6runds allra bl\u00e1kl\u00e6ddra \u00ed st\u00fakunni. Hjarta\u00f0 og \u00ed s\u00e1lin \u00ed v\u00f6rninni m\u00e1 ekki mei\u00f0ast. Sem betur fer hafa sj\u00fakra\u00fej\u00e1lfarar \u00ed\u00fer\u00f3ttahreyfingarinnar fullkomna\u00f0 l\u00e6knav\u00edsindin me\u00f0 uppskriftinni: k\u00e6lisprey n\u00fana og Voltaren forte \u00ed kv\u00f6ld og okkar allra besti Bandar\u00edkjama\u00f0ur var kominn \u00e1 fullt skri\u00f0 sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar. Um mi\u00f0jan h\u00e1lfleikinn kom M\u00e1si boltanum \u00e1 Fred sem virtist \u00ed pr\u00fd\u00f0ilegu f\u00e6ri en skaut enn \u00ed varnarmann. Besta \u00fatflutningsafur\u00f0 Brasil\u00edu \u00e1samt kaffi hefur \u00e1tt betri daga en \u00ed kv\u00f6ld.<\/p><p>Handboltamenn eru meistarar tungum\u00e1lsins og hafa \u00fer\u00f3a\u00f0 hugtaki\u00f0 \u201et\u00e6knifeill\u201c um \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 hin k\u00f6llum einfaldlega \u201ea\u00f0 missa boltann klaufalega\u201c. \u00deetta var leikur t\u00e6knifeilanna. Raunar ur\u00f0u flest helstu f\u00e6ri beggja li\u00f0a til \u00ed kj\u00f6lfar \u00feess a\u00f0 hitt li\u00f0i\u00f0 missti boltann fr\u00e1 s\u00e9r upp \u00far engu.<\/p><p>\u00c1 73. m\u00edn\u00fatu rei\u00f0 \u00f3g\u00e6fan yfir. Framarar misstu boltann \u00ed \u00e1litlegri s\u00f3kn og gestirnir brunu\u00f0u upp v\u00f6llinn, stungu Framv\u00f6rnina af og skoru\u00f0u snyrtilega framhj\u00e1 \u00d3la, sta\u00f0an or\u00f0in 1:2. Framarar j\u00f6fnu\u00f0u sig ekki \u00e1 \u00feessu kjaftsh\u00f6ggi og greinilegt var a\u00f0 mj\u00f6g var af m\u00f6rgum leikm\u00f6nnum dregi\u00f0. \u00dej\u00e1lfarateymi\u00f0 hj\u00e1 Fram er l\u00edti\u00f0 gefi\u00f0 fyrir a\u00f0 skipta inn\u00e1 varam\u00f6nnum, en vi\u00f0 erum me\u00f0 \u00f6flugan bekk og m\u00e6ttum a\u00f0 \u00f3sekju vera duglegri vi\u00f0 a\u00f0 hleypa ferskum f\u00f3tum inn\u00e1.<\/p><p>\u00dea\u00f0 segir s\u00edna s\u00f6gu um hva\u00f0 Framli\u00f0i\u00f0 var slegi\u00f0 \u00fat af laginu a\u00f0 \u00e1 79. m\u00edn\u00fatu fengu gestirnir hornspyrnu og hver einn og einasti leikma\u00f0ur Fram dr\u00f3 sig aftur \u00ed v\u00edtateiginn. Fr\u00e9ttaritarinn hefur aldrei skili\u00f0 hvers vegna \u00fej\u00e1lfarar halda ekki amk einum manni frammi \u00ed hornum \u2013 \u00fe\u00f3 ekki v\u00e6ri nema til a\u00f0 binda \u00fear m\u00f3therja \u2013 en marki undir er \u00fea\u00f0 \u00f3skiljanlegt. S\u00f6mulei\u00f0is var hvimleitt a\u00f0 sj\u00e1 leikmenn Fram \u00edtreka\u00f0 senda boltann alla lei\u00f0 aftur \u00e1 markv\u00f6r\u00f0inn og l\u00e1ta \u00d3la sparka upp \u00ed vindinn \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 s\u00e6kja fram \u00e1 vi\u00f0.<\/p><p>Fyrstu skiptingarnar komu \u00feegar t\u00edu m\u00edn\u00fatur voru eftir. Halli og Freyr komu inn\u00e1 fyrir Viktor Bjarka og Alex, sem haf\u00f0i l\u00e1ti\u00f0 s\u00edna fyrrum f\u00e9laga finna vel fyrir s\u00e9r.<\/p><p>Framarar litu aldrei \u00fat fyrir a\u00f0 vera l\u00edklegir til a\u00f0 jafna og n\u00e1\u00f0arskotin komu svo me\u00f0 tveggja m\u00edn\u00fatna millibili \u00e1 83. og 85.<\/p><p>m\u00edn\u00fatu \u00feegar Blikar skoru\u00f0u tv\u00edvegis \u00ed b\u00e6\u00f0i skiptin eftir tr\u00fa\u00f0sl\u00e6ti \u00ed v\u00f6rn og markv\u00f6rslu Fram. Fyrst lak laflaust skot undir \u00d3la og s\u00ed\u00f0an stensv\u00e1fu varnarmenn okkar me\u00f0an Blikar d\u00f6nsu\u00f0u \u00ed gegn og breyttu st\u00f6\u00f0unni \u00ed 1:4. Afhro\u00f0i\u00f0 hef\u00f0i geta\u00f0 veri\u00f0 fullkomna\u00f0 \u00e1 lokasek\u00fandunum \u00feegar einn K\u00f3pavogsk\u00f3ninn \u00e1tti skot af \u00f6rstuttu f\u00e6ri sem small \u00ed bringunni \u00e1 \u00d3la og \u00fea\u00f0an \u00fataf.<\/p><p>Fyrsta tap sumarsins er sta\u00f0reynd (nei \u2013 vi\u00f0 vi\u00f0urkennum ekki V\u00edkingsleikinn sem tap, \u00fea\u00f0 var r\u00e9ttarmor\u00f0!) Brei\u00f0ablik er besta li\u00f0 sem vi\u00f0 h\u00f6fum m\u00e6tt \u00ed \u00e1r og \u00fea\u00f0 s\u00e1st \u00ed kv\u00f6ld. Lokat\u00f6lurnar gefa \u00fe\u00f3 villandi mynd af leiknum. Engir \u00ed Framli\u00f0inu brilleru\u00f0u \u00ed kv\u00f6ld en engir \u00e1ttu heldur afleitan leik. Upp me\u00f0 h\u00f6kuna. N\u00e6sta verkefni er a\u00f0 vinna FH \u00ed Kaplakrika kv\u00f6ldi\u00f0 fyrir kj\u00f6rdag.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u201e\u00deessir pistlar \u00fe\u00ednir eru komnir \u00fat \u00ed t\u00f3mt rugl\u201c, sag\u00f0i m\u00e1lsmetandi ma\u00f0ur vi\u00f0 fr\u00e9ttaritara Frams\u00ed\u00f0unnar \u00e1 d\u00f6gunum. \u201e\u00dea\u00f0 er hreinasta hending ef \u00fe\u00fa nennir a\u00f0 skrifa um sj\u00e1lfan f\u00f3tbolta, heldur [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":39737,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-39736","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/05\/Tryggvi-.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/39736","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=39736"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/39736\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":39741,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/39736\/revisions\/39741"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/39737"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=39736"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=39736"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=39736"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}