{"id":40221,"date":"2024-06-28T13:40:42","date_gmt":"2024-06-28T13:40:42","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=40221"},"modified":"2024-06-28T14:35:40","modified_gmt":"2024-06-28T14:35:40","slug":"namd","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2024\/06\/28\/namd\/","title":{"rendered":"N\u00e1nd"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"40221\" class=\"elementor elementor-40221\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-6295cd23 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"6295cd23\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-4fcb6c10\" data-id=\"4fcb6c10\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-c7de28a elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"c7de28a\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p>\u201eEigum vi\u00f0 ekki a\u00f0 skella okkur \u00ed r\u00f3mant\u00edska fer\u00f0 um Vestfir\u00f0i, aka Dj\u00fapi\u00f0, sko\u00f0a s\u00f6fn, pr\u00f3fa veitingasta\u00f0i og taka \u00fat n\u00fdju D\u00fdrafjar\u00f0arg\u00f6ngin?\u201c \u2013 spur\u00f0i fr\u00e9ttaritarinn eiginkonu s\u00edna snemmsumars, \u00feegar h\u00fan var a\u00f0 drukkna \u00ed endalausum fundarsetum og sk\u00fdrslulestri fram \u00e1 rau\u00f0a n\u00f3tt. \u00dea\u00f0 var au\u00f0velt a\u00f0 selja hugmyndina enda \u00cdsafj\u00f6r\u00f0ur una\u00f0sreitur og tilhugsunin um a\u00f0 gera skili\u00f0 ormana eftir heima, \u00fear sem \u00feeir hef\u00f0u sumarvinnu a\u00f0 sinna, ekki s\u00ed\u00f0ur freistandi. \u00dea\u00f0 var svo heppilegur kaupauki \u00feessu verkefni \u00f6llu a\u00f0 fer\u00f0in f\u00e9lli saman vi\u00f0 leik Vestra og Fram \u00ed Bestu deildinni.<\/p><p>\u00dea\u00f0 var k\u00e1tur fr\u00e9ttaritari sem r\u00f6lti \u2013 reyndar d\u00e1l\u00edti\u00f0 haltur eftir bumbubolta \u00feri\u00f0judagsins \u2013 \u00e1 n\u00fdjan og st\u00f3rgl\u00e6sisilegan heimav\u00f6ll Vestra me\u00f0 vi\u00f0komu \u00e1 kn\u00e6pu \u00fear sem m\u00e1lin voru krufin me\u00f0 v\u00f6skum heimam\u00f6nnum. \u00dats\u00fdni\u00f0 \u00far st\u00fakunni er fr\u00e1b\u00e6rt og au\u00f0vita\u00f0 kom togari til hafnar \u00feegar leikurinn st\u00f3\u00f0 sem h\u00e6st. \u00cdsfir\u00f0ingar eru ge\u00f0gott f\u00f3lk og kl\u00f6ppu\u00f0u fyrir s\u00ednum m\u00f6nnum fr\u00e1 upphafi til enda \u2013 \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 hafi eflaust ekki veri\u00f0 au\u00f0elt \u00e1 k\u00f6flum.<\/p><p>\u201eStef\u00e1n, h\u00e9rna er Framsv\u00e6\u00f0i\u00f0!\u201c \u2013 k\u00f6llu\u00f0u tveir ungir piltar: Hnikar og Otri, sem \u00fer\u00e6ttu fyrir a\u00f0 vera a\u00f0 vestan \u00fer\u00e1tt fyrir \u00feessi hlj\u00f3mmiklu n\u00f6fn. \u00dea\u00f0 var nokku\u00f0 n\u00e6rri lagi, fr\u00e9ttaritarinn hlamma\u00f0i s\u00e9r \u00ed r\u00f6\u00f0ina fyrir ofan \u00fe\u00e1 og saman mynda\u00f0i h\u00f3purinn um \u00feri\u00f0jung Framara \u00e1 vellinum. S\u00e6tin voru \u00ed annarri og \u00feri\u00f0ju r\u00f6\u00f0, n\u00e1nast inni \u00ed varamannask\u00fdlinu, \u00fe\u00e9tt vi\u00f0 hli\u00f0arl\u00ednuna. \u00dea\u00f0 eru m\u00f6rg \u00e1r s\u00ed\u00f0an fr\u00e9ttaritarinn hefur seti\u00f0 svona n\u00e1l\u00e6gt f\u00f3tboltaleik \u00ed efstu deild. \u00dea\u00f0 breytir leikupplifuninni talsvert a\u00f0 heyra samskipti manna inni \u00e1 vellinum og m\u00f6gulega hef\u00f0u svitaperlur geta\u00f0 slest \u00e1 n\u00e6stu \u00e1horfendur&#8230; en \u00fea\u00f0 vildi til a\u00f0 okkar menn \u00feurftu varla a\u00f0 svitna \u00ed leiknum.<\/p><p>Mei\u00f0sli og leikb\u00f6nn hjuggu sk\u00f6r\u00f0 \u00ed varnarl\u00ednu Fram, me\u00f0 Alex og Kyle \u00ed banni og Kennie enn a\u00f0 klj\u00e1st vi\u00f0 einhver mei\u00f0sli. \u00d3li st\u00f3\u00f0 \u00ed markinu me\u00f0 \u00deorra, Brynjar og Adam \u00ed mi\u00f0v\u00f6r\u00f0um, M\u00e1sa og Halla \u00ed bakv\u00f6r\u00f0unum. Tiago aftastur \u00e1 mi\u00f0junni me\u00f0 Tryggva og Fred \u00fat til kantanna. Gummi og Mingi frammi. Bekkurinn var kornungur og heimaalinn, sem vera ber. Fyrir leik hei\u00f0ra\u00f0i Gu\u00f0mundur Torfason gamla kempu \u00far \u00cdB\u00cd-li\u00f0inu og Fram, Birni Helgasyni, vi\u00f0urkenningu og f\u00e9ll \u00fea\u00f0 vel \u00ed krami\u00f0 hj\u00e1 heimaf\u00f3lki. Gummi haf\u00f0i bruna\u00f0 vestur um morguninn \u00e1samt Alexander Le\u00f3 \u00far meistaraflokksr\u00e1\u00f0inu \u2013 og \u00fe\u00e1 vorum vi\u00f0 or\u00f0nir fimm!<\/p><p>Leikurinn byrja\u00f0i fj\u00f6rlega af h\u00e1lfu beggja li\u00f0a og m\u00e1 raunar segja a\u00f0 Vestramenn hafi veri\u00f0 betri fyrsta kort\u00e9ri\u00f0, \u00fe\u00f3tt Framv\u00f6rnin hafi alltaf reynst vandanum vaxin. En m\u00f6rk breyta leikjum. \u00c1 17. m\u00edn\u00fatu brunu\u00f0u Framarar upp v\u00f6llinn eftir a\u00f0 hornspyrna heimamanna f\u00f3r \u00ed s\u00faginn. Tiago skei\u00f0a\u00f0i af sta\u00f0 en stakk svo fram \u00e1 Fred sem hlj\u00f3p af s\u00e9r alla varnarmenn, komst einn \u00e1 m\u00f3ti Sv\u00edanum \u00ed marki \u00cdsfir\u00f0inga en \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 freista \u00feess a\u00f0 lyfta yfir hann, renndi hann til hli\u00f0ar \u00e1 Minga sem fylgdi me\u00f0 \u00e1 miklum hra\u00f0a og skora\u00f0i \u00ed t\u00f3mt marki\u00f0, 0:1.<\/p><p>Vi\u00f0 \u00feetta duttu ll hj\u00f3lin af vagni Vestra og \u00fea\u00f0 m\u00e1tti sj\u00e1 sj\u00e1lfstrausti\u00f0 gufa upp af andlitum heimamanna. \u00c1horfendur umb\u00e1ru fr\u00e9ttaritarann, Hnikar og Otra sem hoppu\u00f0u upp og ni\u00f0ur \u00ed st\u00fakunni, rifjandi upp helstu Geiramannaslagarana. Vi\u00f0 hef\u00f0um pott\u00fe\u00e9tt veri\u00f0 lamdir ef vi\u00f0 v\u00e6rum Bolv\u00edkingar.<\/p><p>M\u00edn\u00fatu eftir marki\u00f0 f\u00e9kk einn Vestrama\u00f0urinn boltann \u00ed \u00fatr\u00e9tta h\u00f6ndina \u00ed v\u00edtateignum eftir sl\u00e1rskot fr\u00e1 Fred, beint fyrir framan d\u00f3marann sem \u00e1kva\u00f0 (svo sem skynsamlega) a\u00f0 \u00f3\u00fearft v\u00e6ri a\u00f0 sl\u00e1tra leiknum algj\u00f6rlega \u00feegar svona l\u00edti\u00f0 v\u00e6ri li\u00f0i\u00f0. Enn hef\u00f0i Fram geta\u00f0 auki\u00f0 forystuna eftir t\u00e6plega h\u00e1lft\u00edma leik \u00feegar Adam s\u00f3pa\u00f0i boltanum yfir eftir f\u00ednan undirb\u00faning M\u00e1sa. Brynjar Gauti var greinilega sta\u00f0r\u00e1\u00f0inn \u00ed a\u00f0 l\u00e1ta f\u00e9laga sinn \u00far \u00f6ftustu l\u00ednu ekki f\u00e1 \u00f6ll f\u00e6rin og sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar reyndi hann bakfallsspyrnu eftir sendingu fr\u00e1 Gumma. \u00c1 35. m\u00edn\u00fatu \u00e6tla\u00f0i einn Vestrama\u00f0urinn a\u00f0 taka boltann ni\u00f0ur me\u00f0 kassanum, en \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu stundu t\u00f3k hans innri blakspilari v\u00f6ldin og hann sl\u00f3 boltann klaufalega \u00ed mi\u00f0jum eigin teig. Aulalegasta v\u00edti sumarsins hef\u00f0i \u00e1tt a\u00f0 ver\u00f0a sta\u00f0reynd, en g\u00f3\u00f0ur d\u00f3mari leiksins v\u00e6ntanlega a\u00f0 d\u00e1st a\u00f0 n\u00e1tt\u00farufegur\u00f0inni og a\u00f0 velta fyrir s\u00e9r aflabr\u00f6g\u00f0um a\u00f0v\u00edfandi togara.<\/p><p>\u00d3li haf\u00f0i l\u00edti\u00f0 a\u00f0 gera \u00ed markinu \u00feegar h\u00e9r var komi\u00f0 s\u00f6gu en f\u00e9kk \u00fe\u00f3 t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 sparka langt fram \u00e1 38. m\u00edn\u00fatu \u00fear sem ekki vildi betur til en svo a\u00f0 einn Vestrama\u00f0urinn nikka\u00f0i boltanum lengra \u00ed \u00e1tt a\u00f0 eigin marki og beint fyrir t\u00e6rnar \u00e1 M\u00e1 \u00c6gissyni sem \u00e1tti ekki \u00ed vandr\u00e6\u00f0um me\u00f0 a\u00f0 skora, 0:2 og sigurinn langlei\u00f0ina kominn \u00ed h\u00f6fn. Fars\u00edmi fr\u00e9ttaritarans p\u00edpti \u00ed gr\u00ed\u00f0 og erg, \u00fear sem fjarstaddir Skjaldsveinn og Hn\u00edfsdalstrymbill skiptust \u00e1 a\u00f0 tj\u00e1 sig um gang m\u00e1la. Litlu m\u00e1tti muna a\u00f0 \u00feri\u00f0ja marki\u00f0 k\u00e6mi fyrir hl\u00e9 \u00fear sem Tryggvi og Fred d\u00f6nsu\u00f0u \u00ed gegnum v\u00f6rnina en Halli n\u00e1\u00f0i ekki n\u00e6gilega g\u00f3\u00f0u skoti \u00e1 marki\u00f0.<\/p><p>\u00cd leikhl\u00e9i voru salerni og pylsusala \u00cdsfir\u00f0inga tekin \u00fat og \u00ed lj\u00f3s kom a\u00f0 \u00fea\u00f0 voru tveir Framarar til vi\u00f0b\u00f3tar \u00e1 vellinum: hir\u00f0t\u00f6lfr\u00e6\u00f0ingur f\u00e9lagsins og alhli\u00f0a spes\u00edalisti \u00ed fuglum haf\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 telja sk\u00fama e\u00f0a m\u00fasarrindla e\u00f0a eitthva\u00f0 \u00e1l\u00edka \u00e1 Bar\u00f0astr\u00f6ndinni og skellti s\u00e9r yfir hei\u00f0ina \u00ed fullum Fram-skr\u00fa\u00f0a. Og \u00fearna var l\u00edka sagnfr\u00e6\u00f0ingurinn Snorri Bergsson sem rifja\u00f0i upp hetjud\u00e1\u00f0ir s\u00ednar \u00e1 Framvellinum \u00e1 unglings\u00e1rum, sem f\u00f3lust einkum \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 sparka ni\u00f0ur R\u00fanar Kristinsson \u2013 en \u00fea\u00f0 var l\u00edka \u00e1 me\u00f0an hann var \u00e1 hinum sta\u00f0num og \u00fev\u00ed r\u00e9ttsparkt\u00e6kur.<\/p><p>Seinni h\u00e1lfleikur byrja\u00f0i og Vestri ger\u00f0i tv\u00f6falda skiptingu. \u00dea\u00f0 breytti n\u00e1kv\u00e6mlega engu. Tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar l\u00e1 boltinn \u00ed netinu, Brynjar Gauti skora\u00f0i 0:3 a\u00f0 \u00fev\u00ed er virtist eftir sendingu fr\u00e1 Tryggva eftir eitthva\u00f0 klafs. Leikurinn \u00ed raun b\u00fainn og n\u00fana var ekkert eftir nema a\u00f0 leika s\u00e9r \u00ed 40 m\u00edn\u00fatur auk vi\u00f0b\u00f3tart\u00edma.<\/p><p>\u00c1 50. m\u00edn\u00fatu hirti Fred boltann af aftasta Vestramanna n\u00e6rri mi\u00f0l\u00ednu, t\u00f3k \u00e1 r\u00e1s og komst einn \u00e1 m\u00f3ti markver\u00f0inum sem var\u00f0i fr\u00e1b\u00e6rlega \u2013 en \u00fearna \u00e1tti n\u00fa a\u00f0 skora. \u00deorri hef\u00f0i geta\u00f0 b\u00e6tt s\u00e9r \u00e1 markaskoraralistann \u00feegar um tuttugu m\u00edn\u00fatur voru eftir og fimm m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar \u00e1tti Halli flotta sendingu \u00e1 Minga sem komst einn \u00e1 m\u00f3ti \u00feeim s\u00e6nska sem var\u00f0i aftur fr\u00e1b\u00e6rlega. \u00dea\u00f0 segir sitt um l\u00e1nleysi heimamanna \u00ed leiknum a\u00f0 markma\u00f0urinn var \u00feeirra lang-langbesti ma\u00f0ur.<\/p><p>Fyrstu skiptingar okkar komu ekki fyrr en \u00e1 83. m\u00edn\u00fatu, sem kom nokku\u00f0 \u00e1 \u00f3vart \u00ed lj\u00f3si \u00feess a\u00f0 n\u00e6sti leikur er \u00e1 sunnudag. Freyr og Viktor Bjarki komu \u00fe\u00e1 inn\u00e1 fyrir Fred og Gumma Magg. S\u00ed\u00f0ar kom Breki inn\u00e1 fyrir Tryggva Sn\u00e6 og \u00ed uppb\u00f3tart\u00edma f\u00e9kk Aron Sn\u00e6r a\u00f0 spreyta sig \u00ed sta\u00f0 Magn\u00fasar. Ve\u00f0urbl\u00ed\u00f0an var sl\u00edk a\u00f0 d\u00f3marinn b\u00e6tti vi\u00f0 sex m\u00edn\u00fatum sem enginn var a\u00f0 bi\u00f0ja um. \u00de\u00f3 t\u00f3kst Aroni a\u00f0 koma s\u00e9r \u00ed gott f\u00e6ri og undir bl\u00e1lokin kl\u00f3ru\u00f0u \u00cdsfir\u00f0ingar a\u00f0eins \u00ed bakkann og minnku\u00f0u muninn \u00ed 1:3. E\u00f0lilegri t\u00f6lur hef\u00f0u \u00fe\u00f3 veri\u00f0 sex marka sigur Framara sem loksins fundu fj\u00f6lina s\u00edna aftur eftir ey\u00f0imerkurg\u00f6ngu s\u00ed\u00f0ustu vikna. \u00dea\u00f0 voru allir g\u00f3\u00f0ir \u00ed dag. Tryggvi \u00fe\u00f3 bestur. Og n\u00e6st er a\u00f0 vinna eftirl\u00e6tis litlubr\u00e6\u00f0ur okkar \u00ed V\u00edkinni. Hver veit nema fr\u00e9ttaritarinn ver\u00f0i kominn heim \u00ed t\u00e6ka t\u00ed\u00f0 \u2013 \u00fea\u00f0 veltur \u00fe\u00f3 d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u00e1 skringilega aukahlj\u00f3\u00f0inu undan v\u00e9larhl\u00edfinni. Er e\u00f0lilegt a\u00f0 Volkswagen Golf telji s\u00e9r tr\u00fa um a\u00f0 hann s\u00e9 trilla?<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<br \/><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"alignnone size-full wp-image-40224\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/06\/Mfl.ka_.-.jpg\" alt=\"\" width=\"799\" height=\"533\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/06\/Mfl.ka_.-.jpg 799w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/06\/Mfl.ka_.--300x200.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/06\/Mfl.ka_.--768x512.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/06\/Mfl.ka_.--18x12.jpg 18w\" sizes=\"(max-width: 799px) 100vw, 799px\" \/><\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u201eEigum vi\u00f0 ekki a\u00f0 skella okkur \u00ed r\u00f3mant\u00edska fer\u00f0 um Vestfir\u00f0i, aka Dj\u00fapi\u00f0, sko\u00f0a s\u00f6fn, pr\u00f3fa veitingasta\u00f0i og taka \u00fat n\u00fdju D\u00fdrafjar\u00f0arg\u00f6ngin?\u201c \u2013 spur\u00f0i fr\u00e9ttaritarinn eiginkonu s\u00edna snemmsumars, \u00feegar h\u00fan [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":40222,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-40221","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/06\/FRAM-vestri-mynd.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/40221","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=40221"}],"version-history":[{"count":5,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/40221\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":40235,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/40221\/revisions\/40235"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/40222"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=40221"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=40221"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=40221"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}