{"id":40259,"date":"2024-07-01T09:13:00","date_gmt":"2024-07-01T09:13:00","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=40259"},"modified":"2024-07-01T09:18:54","modified_gmt":"2024-07-01T09:18:54","slug":"blendingsbraudid","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2024\/07\/01\/blendingsbraudid\/","title":{"rendered":"Blendingsbrau\u00f0i\u00f0"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"40259\" class=\"elementor elementor-40259\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-3e936af0 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"3e936af0\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-24326fab\" data-id=\"24326fab\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-21dc7080 elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"21dc7080\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-40261 alignright\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/07\/mfl.-ka.-gegn-vestra-II-300x200.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"200\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/07\/mfl.-ka.-gegn-vestra-II-300x200.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/07\/mfl.-ka.-gegn-vestra-II-1024x683.jpg 1024w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/07\/mfl.-ka.-gegn-vestra-II-768x512.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/07\/mfl.-ka.-gegn-vestra-II-1536x1024.jpg 1536w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/07\/mfl.-ka.-gegn-vestra-II-18x12.jpg 18w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/07\/mfl.-ka.-gegn-vestra-II-800x533.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/07\/mfl.-ka.-gegn-vestra-II.jpg 2048w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/>J\u00fal\u00ed er grimmastur m\u00e1nu\u00f0a, hva\u00f0 svo sem breska sk\u00e1ldi\u00f0 haf\u00f0i um m\u00e1li\u00f0 a\u00f0 segja. Eftir leik kv\u00f6ldsins \u00feurfa Framarar a\u00f0 b\u00ed\u00f0a til ellefta j\u00fal\u00ed eftir n\u00e6sta leik hj\u00e1 karlali\u00f0inu. \u00dea\u00f0 er glata\u00f0 og \u00f6murlegt. Vill \u00fe\u00f3 til a\u00f0 \u00fea\u00f0 gefur okkur g\u00f3\u00f0an t\u00edma til a\u00f0 sleikja s\u00e1rin og leita svara vi\u00f0 spurningunni: hvernig \u00ed \u00f3sk\u00f6punum gat \u00feetta V\u00edkingsli\u00f0 fengi\u00f0 sex stig gegn okkur \u00fea\u00f0 sem af er m\u00f3ti??!!<\/p><p>Skjaldsveinninn, Valur Nor\u00f0ri, b\u00fdr \u00ed f\u00ednaf\u00f3lkshverfinu \u00ed Fossvoginum, sem gerir heimili hans a\u00f0 tilv\u00f6ldum vettvangi fyrirpart\u00fda \u00e1 undan leikjum \u00ed V\u00edkinni. Fr\u00e9ttaritarinn l\u00e9t konuna skutla s\u00e9r \u00e1 sta\u00f0inn, \u00fear sem bei\u00f0 EM-leikur \u00e1 risaskj\u00e1 og hvers kyns g\u00f3\u00f0g\u00e6ti. \u00deanga\u00f0 m\u00e6ttu l\u00edka Rabbi trymbill og konferenzr\u00e1\u00f0i\u00f0 Ragnar Kristinsson , hei\u00f0ursforseti krikketsambandsins og V\u00edkingur \u2013 en hann getur ekkert gert af \u00fev\u00ed. \u00deegar Evr\u00f3puboltinn var b\u00fainn henti Skjaldsveinninn pylsum \u00e1 grilli\u00f0. \u00de\u00e6r voru framreiddar \u00ed st\u00f3rmerkilegu blendingsbrau\u00f0i: sem er a\u00f0 h\u00e1lfu pylsubrau\u00f0 og a\u00f0 h\u00e1lfu pretzel-kringla! \u00deetta er djarfasti samruni \u00f3l\u00edkra matv\u00e6lategunda s\u00ed\u00f0an einhver bens\u00ednst\u00f6\u00f0in kynnti til s\u00f6gunnar hamborgarapylsuna, s\u00e6llar minningar. A\u00f0 sumu leyti m\u00e1 l\u00edta \u00e1 blendingsbrau\u00f0i\u00f0 sem sp\u00e1s\u00f6gn e\u00f0a kannski frekar metaf\u00f3ru fyrir leikinn sem fylgdi \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 og frammist\u00f6\u00f0u Framara \u00ed honum. \u00dear var fyrri helmingurinn svampkennt franskbrau\u00f0 e\u00f0a s\u00e1 s\u00ed\u00f0ari st\u00f6kk pretzel-kringla. Svona hermir l\u00edfi\u00f0 stundum eftir matarger\u00f0arlistinni.<\/p><p>Li\u00f0in voru kynnt \u00e1 netinu og strax var tvennt sem vakti athygli. \u00cd fyrsta lagi a\u00f0 Kennie Chopart var kominn aftur \u00ed v\u00f6rnina eftir fjarveru \u00ed s\u00ed\u00f0asta leik og \u00ed \u00f6\u00f0ru lagi Jannik Pohl var kominn \u00e1 bekkinn. Voru \u00feetta ekki \u00f6rugglega danskar pyslur sem Skjaldsveinninn haf\u00f0i grilla\u00f0? Gott ef ekki!<\/p><p>Auk Kennie \u00e1ttu \u00feeir Kyle og Brynjar Gauti a\u00f0 standa \u00ed \u00f6\u00f0ftustu varnarl\u00ednu fyrir framan \u00d3la \u00cdsh\u00f3lm. \u00cd upphitun meiddist Brynjar og h\u00f3f \u00deorri leik \u00ed hans sta\u00f0. Halli og M\u00e1r voru bakver\u00f0ir. Tiago aftastur \u00e1 mi\u00f0junni me\u00f0 Tryggva og Fred fyrir framan sig. Magn\u00fas Ingi og Gummi Magg frammi. F\u00ednasta li\u00f0 sem bj\u00f3 sig undir a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 \u00cdslandsmeistarana \u00ed rigningu og st\u00edfum vindi.<\/p><p>Jafnr\u00e6\u00f0i var me\u00f0 li\u00f0unum fyrsta kort\u00e9ri\u00f0 og l\u00edti\u00f0 um alv\u00f6ru f\u00e6ri. Eftir \u00fea\u00f0 t\u00f3ku heimamenn v\u00f6ldin \u00ed leiknum. Varnarmenn Framara virtust n\u00e1nast gera s\u00e9r a\u00f0 leik a\u00f0 gefa V\u00edkingum fr\u00eda skalla eftir hornspyrnur, a\u00f0 \u00fev\u00ed er virtist til \u00feess a\u00f0 \u00d3li g\u00e6ti s\u00fdnt listir s\u00ednar sem hann ger\u00f0i \u00ed tv\u00edgang me\u00f0 tveggja m\u00edn\u00fatna millibili \u00e1 16. og 18. m\u00edn\u00fatu. Beint \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 t\u00f3kst Fr\u00f6murum a\u00f0 koma s\u00e9r \u00ed sitt fyrsta alv\u00f6ru f\u00e6ri \u00feegar Tiago \u00e1tti fr\u00e1b\u00e6ra sendingu innfyrir \u00e1 Minga sem n\u00e1\u00f0i bara m\u00e1ttlitlu skoti a\u00f0 marki \u00far \u00fer\u00f6ngu f\u00e6ri. Framarar fengu mark \u00ed andliti\u00f0 strax \u00ed n\u00e6stu s\u00f3kn, v\u00f6rnin galopna\u00f0ist og heimamenn komnir \u00ed 1:0.<\/p><p>F\u00e1tt markvert bar til t\u00ed\u00f0inda n\u00e6stu t\u00edu m\u00edn\u00faturnar en \u00e1 32. m\u00edn\u00fatu kom Mingi boltanum \u00ed neti\u00f0 eftir flotta fyrirgj\u00f6f fr\u00e1 Halla \u2013 sem var mj\u00f6g \u00f6flugur \u00ed leiknum \u2013 en rangst\u00f6\u00f0uflaggi\u00f0 var komi\u00f0 \u00e1 loft. \u00deetta var \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta afar t\u00e6pt ef ekki hreinlega rangur d\u00f3mur \u2013 en kampak\u00e1tir V\u00edkingar s\u00f6g\u00f0u \u00ed hl\u00e9i a\u00f0 rangsta\u00f0an hef\u00f0i \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta veri\u00f0 \u201eupps\u00f6fnu\u00f0\u201c \u00fear sem l\u00ednuv\u00f6r\u00f0urinn hef\u00f0i sleppt \u00fev\u00ed a\u00f0 flagga \u00ed nokkur skipti \u00fear \u00e1 undan. Tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar f\u00e9ll Mingi vi\u00f0 \u00ed teignum, aftur eftir fyrirgj\u00f6f fr\u00e1 Halla og taldi a\u00f0 \u00e1 s\u00e9r hef\u00f0i veri\u00f0 broti\u00f0 en ekkert d\u00e6mt.<\/p><p>\u00deegar fimm m\u00edn\u00fatur voru til leikhl\u00e9s kom seinna kjaftsh\u00f6ggi\u00f0. M\u00e1r n\u00e1\u00f0i ekki a\u00f0 fylgja eftir einum V\u00edkingnum sem hlj\u00f3p upp a\u00f0 endam\u00f6rkum, sendi svo \u00fat \u00ed mi\u00f0jan teiginn \u00fear sem einn og \u00f3valda\u00f0ur V\u00edkingur skora\u00f0i au\u00f0veldlega. Sta\u00f0an or\u00f0in 2:0 fyrir \u00fe\u00e1 svartkl\u00e6ddu og \u00fea\u00f0 sannast sagna \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 gang leiksins.<\/p><p>L\u00fapulegir Framarar s\u00f6fnu\u00f0ust saman vi\u00f0 veitingas\u00f6lu V\u00edkinga undir st\u00fakunni og bjuggu sig undir \u00fea\u00f0 versta eftir hl\u00e9. \u00deunnur Lite-bj\u00f3rinn \u00ed plastgl\u00f6sunum ger\u00f0i l\u00edti\u00f0 til a\u00f0 lappa upp \u00e1 s\u00e1lartetri\u00f0 og til a\u00f0 b\u00e6ta gr\u00e1u on\u00e1 svart st\u00f3\u00f0 vatnsbuna ni\u00f0ur \u00far \u00feaki st\u00fakunnar og beint ni\u00f0ur \u00e1 s\u00e6tin \u00ed r\u00f6\u00f0inni fyrir framan skytturnar \u00ferj\u00e1r. \u00deetta myndi aldrei gerast \u00ed Dal draumanna.<\/p><p>M\u00e1vur sem haf\u00f0i haldi\u00f0 sig fjarri vellinum \u00ed fyrri h\u00e1lfleik t\u00f3k a\u00f0 gera sig mj\u00f6g gildandi \u00ed \u00feeim seinni. \u00deetta var auglj\u00f3slega t\u00e1knr\u00e6nt og hann m\u00e6ttur til a\u00f0 fylgjast me\u00f0 M\u00e1 nafna s\u00ednum, sem haf\u00f0i einmitt \u00e1tt mj\u00f6g erfitt uppdr\u00e1ttar fyrir hl\u00e9 en \u00f3x mj\u00f6g af kr\u00f6ftum \u00ed seinni h\u00e1lfleik. Hann var reyndar ekki einn um \u00fea\u00f0. Mestallt Framli\u00f0i\u00f0 breyttist \u00far franskbrau\u00f0i \u00ed pretzel \u00e1 sama t\u00edma og heimamenn n\u00e1nast stimplu\u00f0u sig \u00fat. V\u00edkingar sk\u00f6pu\u00f0u s\u00e9r varla f\u00e6ri ef undan er skili\u00f0 eitt h\u00f6rkuskot \u00ed hli\u00f0arneti\u00f0 eftir t\u00edu m\u00edn\u00fatna leik.<\/p><p>Spil Framara var\u00f0 betra en f\u00e6rin l\u00e9tu \u00fe\u00f3 b\u00ed\u00f0a eftir s\u00e9r. Eftir t\u00e6plega klukkut\u00edma leik haf\u00f0i \u00fej\u00e1lfarateymi\u00f0 l\u00edklega komist a\u00f0 \u00feeirri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u a\u00f0 Gummi v\u00e6ri or\u00f0inn \u00fereyttur og a\u00f0 auki \u00e1 gulu spjaldi og Viktor Bjarki var kominn \u00far gallanum og alb\u00fainn a\u00f0 koma inn\u00e1. En \u00e1\u00f0ur en til \u00feess kom \u00e1tti Mingi sendingu fyrir V\u00edkingsmarki\u00f0 eftir har\u00f0a s\u00f3knarlotu Framara, \u00fear sem Gummi st\u00f6kk upp og skalla\u00f0i \u00ed marki\u00f0 af har\u00f0fylgi. \u00dej\u00e1lfararnir voru flj\u00f3tir a\u00f0 senda Viktor aftur \u00ed upphitunina&#8230; sta\u00f0an 1:2.<\/p><p>Eftir \u00feetta komu Frams\u00f3knirnar \u00e1 f\u00e6ribandi. M\u00e1r \u00e1tti gott markskot \u00e1 61. m\u00edn\u00fatu og m\u00edn\u00fatu seinna greip V\u00edkingsmarkv\u00f6r\u00f0urinn boltann \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu stundu \u00e1\u00f0ur en sending fr\u00e1 Fred rata\u00f0i fyrir f\u00e6tur Gumma. \u00c1 n\u00e6stu m\u00edn\u00fatum \u00e1tti Kennie f\u00ednasta skot eftir undib\u00faning M\u00e1s og Gummi var n\u00e6rri \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00e1 sendingu fr\u00e1 Fred. V\u00edkings\u00fej\u00e1lfaranum var ekki um sel sem s\u00e1st \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feegar h\u00e1lfleikurinn var h\u00e1lfna\u00f0ur ger\u00f0i hann \u00ferefalda skiptingu. H\u00fan breytti \u00fe\u00f3 litlu um gang leiksins, Framarar h\u00f6f\u00f0u undirt\u00f6kin og marki\u00f0 virtist liggja \u00ed loftinu.<\/p><p>Viktor Bjarki kom a\u00f0 lokum inn\u00e1 \u00feegar kort\u00e9r var eftir, \u00fe\u00e1 fyrir Minga. Halli t\u00f3k aukaspyrnu r\u00e9tt fyrir utan v\u00edtateig beint \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 og vildi meina a\u00f0 boltinn hef\u00f0i fari\u00f0 \u00ed h\u00f6nd eins V\u00edkingsins \u00ed varnarveggnum, en ekkert d\u00e6mt. \u00deegar fimm m\u00edn\u00fatur voru eftir t\u00f3k hjarta\u00f0 gle\u00f0ikipp vi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 Jannik aftur \u00e1 leikvelli, \u00feegar hann kom inn\u00e1 fyrir Tryggva. \u00d3, hva\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum sakna\u00f0 hans \u00ed sumar!<\/p><p>\u00c1 lokam\u00edn\u00fatunum \u00e1tti Gummi b\u00e6\u00f0i skot og skalla yfir marki\u00f0 og \u00ed bl\u00e1lokin negldi Tiago yfir sl\u00e1na \u00far pr\u00fd\u00f0isf\u00e6ri. Lokat\u00f6lur 2:1 og Framarar misstu af uppl\u00f6g\u00f0u t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 bl\u00e1sa n\u00fdju l\u00edfi \u00ed \u00feetta \u00cdslandsm\u00f3t sem vir\u00f0ist eiginlega vera b\u00fai\u00f0 hva\u00f0 toppbar\u00e1ttuna var\u00f0ar. Fram hefur n\u00fa yfirspila\u00f0 V\u00edkinga \u00ed \u00ferj\u00e1 h\u00e1lfleiki af fj\u00f3rum en ekki uppskori\u00f0 neitt a\u00f0 launum. L\u00edfi\u00f0 er t\u00e1radalur og blendingsbrau\u00f0 \u00far B\u00f3nus.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>J\u00fal\u00ed er grimmastur m\u00e1nu\u00f0a, hva\u00f0 svo sem breska sk\u00e1ldi\u00f0 haf\u00f0i um m\u00e1li\u00f0 a\u00f0 segja. Eftir leik kv\u00f6ldsins \u00feurfa Framarar a\u00f0 b\u00ed\u00f0a til ellefta j\u00fal\u00ed eftir n\u00e6sta leik hj\u00e1 karlali\u00f0inu. \u00dea\u00f0 [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":40260,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-40259","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/07\/Gummi-Magg-vefur.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/40259","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=40259"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/40259\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":40264,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/40259\/revisions\/40264"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/40260"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=40259"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=40259"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=40259"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}