{"id":40480,"date":"2024-07-28T23:36:05","date_gmt":"2024-07-28T23:36:05","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=40480"},"modified":"2024-07-28T23:46:27","modified_gmt":"2024-07-28T23:46:27","slug":"hetjur","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2024\/07\/28\/hetjur\/","title":{"rendered":"Hetjur"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"40480\" class=\"elementor elementor-40480\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-30733346 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"30733346\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-2c085d90\" data-id=\"2c085d90\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-5547a49a elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"5547a49a\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\">\n\t\t\t\t\t\t\t\t\t<p><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er ekki au\u00f0velt fyrir Fr\u00e9ttaritara Frams\u00ed\u00f0unnar a\u00f0 skrifa um f\u00f3tboltaleiki Fram og Vals, \u00fear sem hann er fa\u00f0ir fimmt\u00e1n \u00e1ra Valsara. \u00dea\u00f0 er einkum erfitt vegna \u00feess a\u00f0 eiginkona Fr\u00e9ttaritarans tekur \u00fev\u00ed yfirleitt frekar illa \u00feegar fa\u00f0irinn h\u00e6\u00f0ist a\u00f0 t\u00e1ningnum eftir fr\u00e6ga sigra Fram. \u00dea\u00f0 er \u00fe\u00f3 mikilv\u00e6gt til a\u00f0 styrkja karakter barnsins og kenna \u00fev\u00ed a\u00f0 heimurinn er t\u00e1radalur. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur sofi\u00f0 \u00e1 s\u00f3fanum \u00ed n\u00f3tt.<br \/><br \/><\/p>\n<p><\/p>\n<p><\/p>\n<p>Eftir a\u00f0 hafa rignt ni\u00f0ur \u00e1 tveimur leikjum \u00e1 Rey Cup og tekist \u00e1 vi\u00f0 \u00f6rlitla \u00feynnku eftir s\u00e9rlega velheppna\u00f0 kv\u00f6ldver\u00f0arbo\u00f0 me\u00f0 g\u00f3\u00f0um vinum daginn \u00e1\u00f0ur, var \u00fea\u00f0 \u00f6rl\u00edti\u00f0 framl\u00e1gur Fr\u00e9ttaritari sem t\u00f3k lei\u00f0 18 upp \u00ed Dal draumanna t\u00e6pum tveimur t\u00edmum fyrir leik. \u00deegar \u00feanga\u00f0 var komi\u00f0 var gesti fari\u00f0 a\u00f0 dr\u00edfa a\u00f0 \u00ed f\u00ednumannabo\u00f0i\u00f0 \u00fear sem fram var bori\u00f0 lasagne me\u00f0 hv\u00edtlauksbrau\u00f0i. Siggi Tomm og Gar\u00f0ar sendir\u00e1\u00f0sb\u00edlstj\u00f3ri l\u00e9ku \u00e1 als oddi og Gullbaukarnir runnu lj\u00faflega ni\u00f0ur. Helgi a\u00f0sto\u00f0ar\u00fej\u00e1lfari m\u00e6tti og kynnti li\u00f0suppstillingu sem marka\u00f0ist af mei\u00f0slum og leikb\u00f6nnum. Jannik og Brynjar Gauti voru b\u00e1\u00f0ir meiddir og Tryggvi \u00ed leikbanni. Varamannabekkurinn var kornungur.<\/p>\n<p><\/p>\n<p><\/p>\n<p>\u00d3li st\u00f3\u00f0 au\u00f0vita\u00f0 \u00e1 milli stanganna. Kennie, Kyle og \u00deorri myndu\u00f0u illv\u00edga mi\u00f0var\u00f0al\u00ednu me\u00f0 Alex og Halla \u00ed bakvar\u00f0arst\u00f6\u00f0unum. M\u00e1r var f\u00e6r\u00f0ur \u00e1 mi\u00f0juna, en sagan segir a\u00f0 hann munu ekki n\u00e1 meira en n\u00e6stu tveimur leikum \u00e1\u00f0ur en hann heldur til n\u00e1ms \u00ed Bandar\u00edkjunum. Alltaf sorglegt a\u00f0 sj\u00e1 \u00e1 eftir ungum m\u00f6nnum \u00ed gin menntunardj\u00f6fulsins! Fred og Tiago voru me\u00f0 honum \u00e1 mi\u00f0junni. Mingi og Gummi Magg frammi. Or\u00f0i\u00f0 \u00e1 g\u00f6tunni er a\u00f0 Framli\u00f0i\u00f0 s\u00e9 b\u00fai\u00f0 a\u00f0 tryggja s\u00e9r krafta st\u00f3rs og st\u00e6\u00f0ilegs hollensks framherja. Er hinn n\u00fdi Oerleamans me\u00f0al vor?<\/p>\n<p><\/p>\n<p><\/p>\n<p>Eftir a\u00f0 hafa fengi\u00f0 li\u00f0suppstillinguna r\u00f6lti Fr\u00e9ttaritarinn ni\u00f0ur til skr\u00edlsins \u00ed Bar-\u00e1ttunni, \u00fear sem Kristj\u00e1n Freyr Hn\u00edfsdalstrymill var m\u00e6ttur me\u00f0 sneriltrommuna. Skjaldsveinninn er \u00e1 Sp\u00e1ni eins og f\u00ednn ma\u00f0ur \u00ed \u00edb\u00fa\u00f0askiptum (einhver er n\u00fa innkoman) en f\u00e9lagi Rabbi var m\u00e6ttur. Markafleygslausir settust hann og Fr\u00e9ttaritarinn vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 m\u00f6mmu Gu\u00f0j\u00f3nssona og r\u00e9tt fyrir ofan Geiramenn.<\/p>\n<p><\/p>\n<p><\/p>\n<p>Fyrir leik var hjartn\u00e6m stund \u00fear sem Hlynur Atli var hei\u00f0ra\u00f0ur, en hann lag\u00f0i \u00e1 d\u00f6gunum sk\u00f3na \u00e1 hilluna. Hlynur Atli hefur lengi veri\u00f0 einn eftirl\u00e6tisleikma\u00f0ur Fr\u00e9ttaritarans og \u00fe\u00e1 einkum fyrir lei\u00f0togahlutverk sitt. \u00deegar Fram komst upp \u00far Lengjudeildinni um \u00e1ri\u00f0, \u00fe\u00e1 skal \u00fea\u00f0 f\u00faslega vi\u00f0urkennt a\u00f0 s\u00e1 sem h\u00e9r st\u00fdrir penna \u00e1tti ekki von \u00e1 a\u00f0 Hlynur Atli \u00e6tti erindi \u00ed li\u00f0i\u00f0, en flj\u00f3tlega var\u00f0 hann fyrsti ma\u00f0ur \u00e1 bla\u00f0 og s\u00e1rlega sakna\u00f0 \u00feegar hans naut ekki vi\u00f0. Eitthva\u00f0 segir manni a\u00f0 vi\u00f0 eigum eftir a\u00f0 nj\u00f3ta krafta hans \u00e1fram \u00ed framt\u00ed\u00f0inni \u00ed gegnum stj\u00f3rnir og tr\u00fana\u00f0arst\u00f6rf.<\/p>\n<p><\/p>\n<p><\/p>\n<p>Leikurinn h\u00f3fst me\u00f0 l\u00e1tum. Fram l\u00e9k undan sterkum vindi og rigningu og Fred klippti boltann framhj\u00e1 me\u00f0 h\u00e1lfger\u00f0ri bakfallsspyrnu eftir sendingu fr\u00e1 Gumma strax \u00e1 annarri m\u00edn\u00fatu. \u00deremur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar leit fyrsta dau\u00f0af\u00e6ri\u00f0 dagsins lj\u00f3s \u00feegar M\u00e1si lyfti boltanum fyrir marki\u00f0 \u00fear sem Alex kom a\u00f0v\u00edfandi en s\u00f3pa\u00f0i yfir marki\u00f0 af \u00f6rstuttu f\u00e6ri. M\u00edn\u00fatu s\u00ed\u00f0ar var Mingi n\u00e1nast sloppinn \u00ed gegnum Valsv\u00f6rnina. Framarar \u00e6tlu\u00f0u greinilega a\u00f0 byrja af krafti!<\/p>\n<p><\/p>\n<p><\/p>\n<p>Fyrsta marki\u00f0 kom \u00e1 t\u00edundu m\u00edn\u00fatu og var nokku\u00f0 \u00f3v\u00e6nt. M\u00e1r var me\u00f0 boltann vi\u00f0 v\u00edtateigsbogann og l\u00e9t va\u00f0a, skoti\u00f0 virtist h\u00e6ttul\u00edti\u00f0 en varnarma\u00f0ur Vals st\u00f6kk fyrir \u00fea\u00f0 og af honum hr\u00f6kk boltinn \u00ed fallegum boga yfir markv\u00f6r\u00f0inn sem \u00e1tti aldrei m\u00f6guleika, 1:0.<\/p>\n<p><\/p>\n<p><\/p>\n<p>Valsv\u00f6rnin virtist sundru\u00f0 og \u00f3skipul\u00f6g\u00f0 og Framarar s\u00f3ttu a\u00f0 vild me\u00f0 sterkan vindinn \u00ed baki\u00f0. Eftir tuttugu m\u00edn\u00fatna leik \u00e1tti Fred f\u00edna sendingu \u00e1 Minga sem n\u00e1\u00f0i f\u00f6stu skoti en beint \u00e1 Valsmarkv\u00f6r\u00f0inn. \u00deremur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar settu Valsmenn boltann \u00ed neti\u00f0 \u00far sinni fyrstu almennilegu s\u00f3kn, en rangst\u00f6\u00f0uflaggi\u00f0 var l\u00f6ngu komi\u00f0 \u00e1 loft.<\/p>\n<p><\/p>\n<p><\/p>\n<p>\u00deegar foreldrar Fr\u00e9ttaritarans voru grunnsk\u00f3lab\u00f6rn, var \u00feeim kennt a\u00f0 m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingurinn Rasmus Kristj\u00e1n Rask, hef\u00f0i veri\u00f0i eini g\u00f3\u00f0i Daninn \u00ed s\u00f6gu \u00cdslands. N\u00fana eru \u00feeir or\u00f0nir tveir \u2013 og hinn heitir Kennie Chopart. \u00c1 25. m\u00edn\u00fatu \u00e1kva\u00f0 danski mi\u00f0v\u00f6r\u00f0urinn a\u00f0 stinga af alla Valsv\u00f6rnina, leika upp a\u00f0 endam\u00f6rkum og krossa fyrir \u00e1 M\u00e1 sem sendi inn \u00ed teiginn, \u00fear var Gummi Magg keyr\u00f0ur ni\u00f0ur og v\u00edtaspyrna r\u00e9ttilega d\u00e6md. Athygli vakti a\u00f0 Fred f\u00f3r \u00e1 punktinn og \u00feruma\u00f0i \u00ed marki\u00f0, \u00f3verjandi fyrir markv\u00f6r\u00f0inn sem \u00fe\u00f3 valdi r\u00e9tt horn, 2:0.<\/p>\n<p><\/p>\n<p><\/p>\n<p>Fj\u00f3rum m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar hef\u00f0i st\u00f0an h\u00e6glega geta\u00f0 or\u00f0i\u00f0 3:0 \u00feegar Kennie \u00feruma\u00f0i r\u00e9tt yfir \u00far g\u00f3\u00f0u f\u00e6ri. Uppgj\u00f6f gestanna var algj\u00f6r. \u00c1 32. m\u00edn\u00fatu var ni\u00f0url\u00e6ging \u00feeirra n\u00e1nast fullkomnu\u00f0 \u00feegar Kennie pr\u00f3na\u00f0i sig \u00ed gegnum steinsofandi v\u00f6rnina og enda\u00f0i \u00e1 a\u00f0 setja boltann \u00ed fj\u00e6rhorni\u00f0 me\u00f0 hnitmi\u00f0u\u00f0u skoti sem s\u00e9rhver framherji hef\u00f0i veri\u00f0 fulls\u00e6mdur af, 3:0.<\/p>\n<p><\/p>\n<p><\/p>\n<p>Stu\u00f0ningsmenn Vals, allir fj\u00f6rut\u00edu, voru slegnir \u00fat af laginu og \u00fea\u00f0 sama gildir um leikmennina. \u00c1 39. m\u00edn\u00fatu n\u00e1\u00f0u rau\u00f0kl\u00e6ddir \u00fe\u00f3 a\u00f0eins a\u00f0 kl\u00f3ra \u00ed bakkann \u00feegar Framv\u00f6rnin opna\u00f0ist nokku\u00f0 \u00f3v\u00e6nt, 3:1. Tiago f\u00e9kk aukaspyrnu \u00e1 besta sta\u00f0 m\u00edn\u00fatu s\u00ed\u00f0ar en skaut r\u00e9tt yfir. Sama ger\u00f0u \u00feeir Mingi og Fred beint \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 og \u00e1 lokam\u00edn\u00fatinni skaut Kennie r\u00e9tt framhj\u00e1 eftir flottan einleik.<\/p>\n<p><\/p>\n<p><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var l\u00e9tt yfir mannskapnum \u00ed Bar-\u00e1ttunni \u00ed hl\u00e9i. \u00dea\u00f0 a\u00f0 vinna KR er alltaf skemmtilegt, en \u00ed seinni t\u00ed\u00f0 geta allir gert \u00fea\u00f0. A\u00f0 vinna Val er hins vegar j\u00f3lin, p\u00e1skarnir og afm\u00e6li\u00f0 manns! \u00dea\u00f0 vakti \u00fe\u00f3 \u00e1kve\u00f0inn ugg a\u00f0 Gummi Magg var haltrandi fr\u00e1 35. m\u00edn\u00fatu og f\u00e6stir ger\u00f0u r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 hann myndi hefja leik eftir hl\u00e9 \u2013 og \u00fe\u00e1 yr\u00f0i f\u00e1tt um f\u00edna dr\u00e6tti af bekknum.<\/p>\n<p><\/p>\n<p><\/p>\n<p>Seinni h\u00e1lfleikur h\u00f3fst og \u00f3h\u00e6tt er a\u00f0 segja a\u00f0 Valmenn hafi byrja\u00f0 me\u00f0 st\u00f3rs\u00f3kn. Fyrsta kort\u00e9ri\u00f0 buldu s\u00f3knirnar \u00e1 Framv\u00f6rninni, sem dr\u00f3 sig jafnt og \u00fe\u00e9tt aftar \u00e1 v\u00f6llinn. Vi\u00f0 n\u00e1\u00f0um aldrei a\u00f0 halda boltanum \u00e1 mi\u00f0junni og andst\u00e6\u00f0ingarnir h\u00f3fu n\u00fdja s\u00f3knarlotu f\u00e1einum sek\u00fandum eftir a\u00f0 \u00feeirri fyrri slota\u00f0i. Strax \u00e1 fyrstu m\u00edn\u00fatunum n\u00f6tra\u00f0i Framst\u00f6ngin eftir bylmingsskot.<\/p>\n<p><\/p>\n<p><\/p>\n<p>Kyle baut kl\u00f3kindalega \u00e1 Valsmanni r\u00e9tt fyrir utan v\u00edtateig \u00e1 52. m\u00edn\u00fatu og Valsma\u00f0urinn sem spila\u00f0i lengi \u00e1 Bretlandseyjum en ver\u00f0ur ekki nafngreindur h\u00e9r \u00ed pistlinum \u00fev\u00ed ma\u00f0ur ver\u00f0ur a\u00f0 halda \u00ed einhver prinsip skaut r\u00e9tt framhj\u00e1 \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0. Tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar var\u00f0i \u00d3li fr\u00e1b\u00e6rlega skot fr\u00e1 t\u00e9\u00f0um Bretlandsfara.\u00a0 Enn og aftur \u00e1tti \u00d3li st\u00f3rkostlega v\u00f6rslu eftir skot fr\u00e1 sama leikmanni \u00e1 56. m\u00edn\u00fatu og \u00e1 n\u00e6stu fimm m\u00edn\u00fatum s\u00e1 Fr\u00e9ttaritarinn \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 hripa ni\u00f0ur \u00ferj\u00e1r g\u00f3\u00f0ar v\u00f6rslur fr\u00e1 okkar allra besta markver\u00f0i. \u00d3li \u00cdsh\u00f3lm \u00e1tti erfitt uppdr\u00e1ttar \u00e1 s\u00ed\u00f0asta t\u00edmabili og var oft l\u00edtill \u00ed s\u00e9r, en \u00fea\u00f0 hefur veri\u00f0 allt anna\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 til hans \u00ed \u00e1r \u00fear sem hann er kl\u00e1rlega einn af betri markv\u00f6r\u00f0um deildarinnar. R\u00f6kr\u00e9tt er a\u00f0 tengja \u00fea\u00f0 beint vi\u00f0 Gareth Owen, markmanns\u00fej\u00e1lfarann sem R\u00fanar kom me\u00f0 s\u00e9r og sem kunnugir segja a\u00f0 hafi rifi\u00f0 upp markv\u00f6rsluna \u00ed f\u00e9laginu.<\/p>\n<p><\/p>\n<p><\/p>\n<p>\u00c1 \u00feessum t\u00edmapunkti var \u00fea\u00f0 or\u00f0i\u00f0 nokku\u00f0 \u00e1hyggjuefni hversu mikil einstefna leikurinn var or\u00f0inn. Valsmenn s\u00f3ttu og s\u00f3ttu en okkar menn l\u00f6g\u00f0u r\u00fatunni fyrir framan marki\u00f0. Me\u00f0 sterkan m\u00f3tvind var bara spurning hversu lengi \u00feetta g\u00e6ti vara\u00f0. Valsmenn vildu v\u00edti \u00e1 65. m\u00edn\u00fatu og s\u00e9\u00f0 \u00far fjarska virtist \u00fea\u00f0 ekki alveg fr\u00e1leit hugmynd. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar settist Gummi Magg ni\u00f0ur og haf\u00f0i loki\u00f0 leik eftir magna\u00f0a bar\u00e1ttu. Adam kom inn\u00e1 \u00ed hans sta\u00f0, \u00ed skiptingu sem ver\u00f0ur seint talin mj\u00f6g s\u00f3knarsinnu\u00f0&#8230;<\/p>\n<p><\/p>\n<p><\/p>\n<p>Valsmenn \u00e1ttu skot framhj\u00e1 \u00e1 70. m\u00edn\u00fatu en mesti s\u00f3knar\u00fer\u00f3tturinn virtist \u00far \u00feem. S\u00f3knarleikur \u00feeirra \u00fe\u00fdddi l\u00edka a\u00f0 Fram gat alltaf \u00f3gna\u00f0 me\u00f0 skyndis\u00f3knum og \u00e1 73. m\u00edn\u00fatu vann Fred boltann \u00e1 mi\u00f0junni, t\u00f3k \u00e1 r\u00e1s, sendi til hli\u00f0ar \u00e1 M\u00e1 sem skila\u00f0i boltanum aftur \u00e1 upp\u00e1halds Brasil\u00edumanninn okkar sem setti hann \u00ed bl\u00e1hornu\u00f0, 4:1 og leikurinn n\u00e1lega b\u00fainn.<\/p>\n<p><\/p>\n<p><\/p>\n<p>Til a\u00f0 fagna fj\u00f3r\u00f0a markinu f\u00f3r Fr\u00e9ttaritarinn \u00e1 salerni\u00f0 og missti \u00fev\u00ed af skiptingunni \u00fear sem Mingi f\u00f3r \u00fataf fyrir Frey, sem hlj\u00f3p um stuttur og rau\u00f0birkinn allt til loka, n\u00e1kv\u00e6mlega eins og vi\u00f0 viljum. Valur reyndi a\u00f0 s\u00e6kja af litlum m\u00e6tti en \u00d3li og v\u00f6rnin s\u00e1u vi\u00f0 \u00f6llu sem a\u00f0 \u00feeim var r\u00e9tt. \u00cd Uppb\u00f3tart\u00edma ger\u00f0u R\u00fanar og f\u00e9lagar tv\u00f6falda skiptingu \u00fear sem Alex og M\u00e1r f\u00f3ru af velli en Sigf\u00fas \u00c1rni og Mark\u00fas P\u00e1ll komu inn\u00e1, s\u00e1 s\u00ed\u00f0arnefndi \u00ed s\u00ednum fyrsta meistaraflokksleik og \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 \u00f3ska honum til hamingju me\u00f0 \u00fea\u00f0. S\u00ed\u00f0ustu m\u00edn\u00faturnar voru Framarar mun n\u00e6r \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00e6ta vi\u00f0 fimmta markinu en Hl\u00ed\u00f0arendapiltar a\u00f0 kl\u00f3ra \u00ed bakkann og Fred \u00feruma\u00f0i yfir \u00far flottu f\u00e6ri \u00e1 lokasek\u00fandunum.<br \/><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"alignnone size-large wp-image-40486\" src=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/07\/Mar-gegn-Val-mark-1024x683.jpg\" alt=\"\" width=\"800\" height=\"534\" srcset=\"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/07\/Mar-gegn-Val-mark-1024x683.jpg 1024w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/07\/Mar-gegn-Val-mark-300x200.jpg 300w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/07\/Mar-gegn-Val-mark-768x512.jpg 768w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/07\/Mar-gegn-Val-mark-1536x1024.jpg 1536w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/07\/Mar-gegn-Val-mark-18x12.jpg 18w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/07\/Mar-gegn-Val-mark-800x533.jpg 800w, https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/07\/Mar-gegn-Val-mark.jpg 2048w\" sizes=\"(max-width: 800px) 100vw, 800px\" \/><\/p>\n<p><\/p>\n<p><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 voru k\u00faguppgefnir Framarar sem f\u00f6gnu\u00f0u fr\u00e6gum sigri me\u00f0 siggasagga \u00ed leikslok. M\u00e1r \u00c6gisson var ver\u00f0skulda\u00f0 valinn ma\u00f0ur leiksins. Hann var fr\u00e1b\u00e6r \u00e1 mi\u00f0junni, en Kennie og \u00d3li hef\u00f0u b\u00e1\u00f0ir komi\u00f0 til greina. Fred var l\u00edka fr\u00e1b\u00e6r og \u00ed raun var frammista\u00f0a alls li\u00f0sins til fyrirmyndar. Fr\u00e9ttaritarinn missir illu heilli af n\u00e6sta leik, gegn Fylki \u00ed \u00c1rb\u00e6, en treystir \u00fev\u00ed a\u00f0 Framarar fj\u00f6lmenni og vi\u00f0 h\u00f6ldum sigurg\u00f6ngunni \u00e1fram gegn reykv\u00edskum li\u00f0um.<br \/><br \/>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p>\n<p><\/p>\t\t\t\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 er ekki au\u00f0velt fyrir Fr\u00e9ttaritara Frams\u00ed\u00f0unnar a\u00f0 skrifa um f\u00f3tboltaleiki Fram og Vals, \u00fear sem hann er fa\u00f0ir fimmt\u00e1n \u00e1ra Valsara. \u00dea\u00f0 er einkum erfitt vegna \u00feess a\u00f0 eiginkona [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":40485,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-40480","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/07\/FRED-gegn-Val.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/40480","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=40480"}],"version-history":[{"count":7,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/40480\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":40489,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/40480\/revisions\/40489"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/40485"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=40480"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=40480"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=40480"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}