{"id":41236,"date":"2024-09-22T23:09:01","date_gmt":"2024-09-22T23:09:01","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=41236"},"modified":"2024-09-22T23:10:38","modified_gmt":"2024-09-22T23:10:38","slug":"gaefuleysid-fell-ad-sidum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2024\/09\/22\/gaefuleysid-fell-ad-sidum\/","title":{"rendered":"G\u00e6fuleysi\u00f0 f\u00e9ll a\u00f0 s\u00ed\u00f0um"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"41236\" class=\"elementor elementor-41236\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-306262df elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"306262df\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-402a0792\" data-id=\"402a0792\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-15480583 elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"15480583\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p>\u00d3, hva\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum oft veri\u00f0 \u00ed \u00feessari st\u00f6\u00f0u. A\u00f0 vera \u00ed falls\u00e6ti a\u00f0 berjast fyrir l\u00edfi s\u00ednu \u00e1 m\u00f3ti tilt\u00f6lulega \u00e1hugalausum m\u00f3therjum, sem einhvern veginn vinna samt. \u00deeirra skot voru st\u00f6ngin inn, okkar st\u00f6ngin \u00fat. \u00deetta er saga jafng\u00f6mul og s\u00f3lin sj\u00e1lf. S\u00f3lin sem settist svo fallega \u00ed kv\u00f6ld \u00ed Dal draumanna. Appels\u00ednugult s\u00f3larlagi\u00f0 var f\u00e1r\u00e1nlega t\u00e1knr\u00e6nt. Og aldrei \u00feessu vant vorum \u00fea\u00f0 ekki vi\u00f0, heldur gestirnir, sem voru \u00ed hlutverki \u00feolandans.<\/p><p>Vi\u00f0 Framarar erum enn a\u00f0 sleikja s\u00e1rin eftir a\u00f0 hafa enda\u00f0 \u00ed ne\u00f0ri hluta \u00cdslandsm\u00f3tsins og veri\u00f0 \u00feannig svikin um a\u00f0 tapa enn eina fer\u00f0ina \u00f3maklega fyrir V\u00edkingum. Sorgarferli\u00f0 er dj\u00fapt, enginn knattspyrnuunnandi \u00e6tti a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 fylgja li\u00f0inu s\u00ednu tvisvar sinnum \u00ed K\u00f3rinn \u00e1 einu og sama t\u00edmabilinu. \u00dea\u00f0 er l\u00edka ekki a\u00f0 miklu a\u00f0 keppa, \u00fe\u00f3tt t\u00e6knilega s\u00e9\u00f0 s\u00e9 bikar \u00ed bo\u00f0i fyrir sj\u00f6unda s\u00e6ti\u00f0. N\u00e6stu fj\u00f3rar helgar \u00fearf \u00fev\u00ed a\u00f0 afpl\u00e1na leiki til a\u00f0 kl\u00e1ra m\u00f3ti\u00f0 sem flestir vilja n\u00fa \u00feegar gleyma.<\/p><p>Fr\u00e9ttaritarinn t\u00f3k lei\u00f0 18 \u00far Hl\u00ed\u00f0unum og k\u00e6ttist \u00feegar \u00ed lj\u00f3s kom a\u00f0 fr\u00edtt var \u00ed str\u00e6t\u00f3 \u00ed tilefni b\u00edllausa dagsins. \u00cd f\u00ednumannabo\u00f0inu \u00e1 efstu h\u00e6\u00f0 var bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 hamborgara en minna f\u00f3r fyrir formlegri li\u00f0skynningu, enda allir b\u00fanir a\u00f0 sj\u00e1 byrjunarli\u00f0i\u00f0 \u00e1 netinu. Freyr og Brynjar voru b\u00e1\u00f0ir utan h\u00f3ps vegna veikinda. \u00d3li kom aftur inn \u00ed marki\u00f0. \u00deorri, Kennie og Adam voru \u00ed bakv\u00f6r\u00f0unum. Halli og Alex \u00ed bakv\u00f6r\u00f0um, Tiago aftastur \u00e1 mi\u00f0junni me\u00f0 Fred og Minga fyrir framan sig. Gummi og Djenairo frammi.<\/p><p>\u00deegar l\u00ed\u00f0a f\u00f3r a\u00f0 leiknum tr\u00edtla\u00f0i fr\u00e9ttaritarinn ni\u00f0ur \u00ed almenninginn \u00ed Bar-\u00e1ttunni. \u00dear gat a\u00f0 l\u00edta KR- og Manchester City-go\u00f0s\u00f6gnina Sigga Helga, sem m\u00e6ttur var s\u00e9rstaklega til a\u00f0 sty\u00f0ja Framara \u00ed \u00feeirri von a\u00f0 \u00fea\u00f0 gagna\u00f0ist Vesturb\u00e6ingum \u00ed fallbar\u00e1ttunni. \u00dea\u00f0 hlj\u00f3ta a\u00f0 vera \u00feung skref. Hn\u00edfsdalstrymbillinn var m\u00e6ttur me\u00f0 h\u00fa\u00f0irnar og kju\u00f0ana, Biskupinn var kominn til a\u00f0 f\u00e1 \u00e1bendingar um una\u00f0sreiti til a\u00f0 heims\u00e6kja \u00ed heimsborginni Luton s\u00ed\u00f0ar \u00e1 misserinu og skjaldsveinninn rak inn nefi\u00f0 r\u00e9tt \u00e1\u00f0ur en flauta\u00f0 var til leiks. \u00de\u00f3tt l\u00edti\u00f0 v\u00e6ri undir og ve\u00f0ri\u00f0 frekar suddalegt var m\u00e6tingin me\u00f0 \u00e1g\u00e6tum, muna\u00f0i \u00fear miki\u00f0 um \u00c1rb\u00e6inga sem m\u00e6ttu \u00ed st\u00f3rum st\u00edl.<\/p><p>Framarar byrju\u00f0u \u00edvi\u00f0 betur fyrstu m\u00edn\u00faturnar en sk\u00f6pu\u00f0u s\u00e9r \u00fe\u00f3 l\u00edti\u00f0 anna\u00f0 en h\u00e1lff\u00e6ri. \u00dea\u00f0 voru hins vegar Fylkismenn sem fengu fyrstu h\u00e1skalegu s\u00f3knina \u00e1 t\u00edundu m\u00edn\u00fatu \u00feegar \u00d3li sl\u00f3 fr\u00e1 aukaspyrnu, en boltinn hr\u00f6kk beint \u00e1 kollinn \u00e1 einum appels\u00ednugulum sem skalla\u00f0i \u00ed st\u00f6ngina. T\u00edu m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar n\u00f6tra\u00f0i st\u00f6ng Fram-marksins aftur \u00feegar einn Fylkisma\u00f0urinn l\u00e9t va\u00f0a af l\u00f6ngu f\u00e6ri, en boltinn hr\u00f6kk af innanver\u00f0ri st\u00f6nginni og skoppa\u00f0i eftir markl\u00ednunni.<\/p><p>\u00d6ll v\u00f6tn virtust falla til D\u00fdrafjar\u00f0ar. Gestirnir voru miklu betri og Framarar sk\u00f6pu\u00f0u s\u00e9r l\u00edti\u00f0 sem ekkert. En enginn skyldi vanmeta hversu feig\u00f0arleg li\u00f0 \u00ed botns\u00e6tum geta veri\u00f0. \u00deegar fyrri h\u00e1lfleikur var um \u00fea\u00f0 bil h\u00e1lfna\u00f0ur f\u00e9kk Fred boltann \u00e1 mi\u00f0jum vallarhelmingi Fylkis, l\u00e9k \u00e1 2-3 m\u00f3therja og lag\u00f0i boltann svo \u00fat \u00e1 kantinn \u00fear sem Alex kom a\u00f0v\u00edfandi og l\u00e9t va\u00f0a a\u00f0 marki. Kn\u00f6tturinn s\u00f6ng \u00ed innanver\u00f0ri st\u00f6nginni og \u00fea\u00f0an \u00ed markinu, 1:0. Fram var komi\u00f0 yfir, \u00fevert \u00e1 gang leiksins og appels\u00ednugular axlir s\u00e1ust falla \u00fat um allan v\u00f6ll.<\/p><p>Framarar l\u00e9tu ekki kn\u00e9 fylgja kvi\u00f0i heldur dr\u00f3gu sig aftar \u00e1 v\u00f6llinn. Fylkismenn fengu hverja hornspyrnuna \u00e1 f\u00e6tur annarri, sem allar reyndust h\u00e1skalegar og Framarar s\u00f6nku\u00f0u a\u00f0 s\u00e9r gulum spj\u00f6ldum, flest fremur tilgangslaus. Stu\u00f0ningsmenn \u00e1 p\u00f6llunum g\u00e1tu varla be\u00f0i\u00f0 eftir a\u00f0 flauta\u00f0 yr\u00f0i til h\u00e1lfleiks svo f\u00e6ri g\u00e6fist \u00e1 a\u00f0 endurskipuleggja li\u00f0i\u00f0. En \u00e1\u00f0ur en til \u00feess kom n\u00e1\u00f0u okkar menn a\u00f0 tv\u00f6falda forystuna, gj\u00f6rsamlega upp \u00far engu. \u00deorri l\u00fa\u00f0ra\u00f0i boltanum fram\u00e1vi\u00f0 og Gummi nokka\u00f0i boltanum \u00e1fram \u00e1 Minga sem virtist ekki \u00ed neinu f\u00e6ri, en allt \u00ed einu missti Fylkisma\u00f0urinn gj\u00f6rsamlega af honum og markv\u00f6r\u00f0urinn \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 hlaupa fr\u00e1 n\u00e6rhorninu og bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 au\u00f0veldustu afgrei\u00f0slu \u00ed heimi, sta\u00f0an or\u00f0in 2:0 og Fram varla b\u00fai\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 nema eitt f\u00e6ri \u00ed leiknum.<\/p><p>\u00dea\u00f0 var h\u00e1lffur\u00f0uleg stemning \u00ed f\u00ednumannabo\u00f0inu \u00fear sem fr\u00e9ttaritarinn og skjaldsveinninn m\u00e6ttu til a\u00f0 b\u00e6ta \u00e1 Gullbaukast\u00f6\u00f0una. Framli\u00f0i\u00f0 haf\u00f0i s\u00e1ral\u00edti\u00f0 s\u00fdnt en var me\u00f0 g\u00f3\u00f0a forystu. Hven\u00e6r ger\u00f0ist \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0ast?<\/p><p>Vi\u00f0 h\u00f6fum \u00f3tal oft s\u00e9\u00f0 Framara henda fr\u00e1 s\u00e9r forystu af \u00feessu tagi, en n\u00fana erum vi\u00f0 li\u00f0i\u00f0 hans R\u00fanars Kristinssonar og f\u00f6rum ekki \u00ed flottar s\u00f3knar\u00e6fingar \u00ed st\u00f6\u00f0u sem \u00feessari, heldur drepum leikinn ni\u00f0ur af bestu getu. Og \u00fea\u00f0 var\u00f0 svo sannarlega raunin. Allan seinni h\u00e1lfleikinn h\u00e6g\u00f0um vi\u00f0 \u00e1 leiknum \u00ed hvert sinn sem f\u00e6ri gafst. \u00deau f\u00e6ri voru raunar m\u00f6rg enda gestirnir afar duglegir vi\u00f0 peysutog og hrindingar. \u00cd h\u00e1lft\u00edma ger\u00f0ist l\u00edti\u00f0 anna\u00f0 en st\u00f6\u00f0ubar\u00e1tta \u00e1 mi\u00f0junni. Fylkismenn h\u00e9ldu boltanum lengst af en \u00f3gnu\u00f0u l\u00edti\u00f0.<\/p><p>\u00d3li \u00feurfti fyrst a\u00f0 taka \u00e1 honum st\u00f3ra s\u00ednum me\u00f0 sj\u00f3nvarpsv\u00f6rslu \u00feegar um kort\u00e9r var eftir af leiknum og \u00e1tta m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar \u00e1ttu gestirnir skalla framhj\u00e1. \u00dea\u00f0 var n\u00e1nast ekkert a\u00f0 gerast og \u00fea\u00f0 var bara f\u00ednt. Ekki datt stj\u00f3rnendateyminu \u00ed hug a\u00f0 gera breytingar \u00e1 li\u00f0inu fyrr en komi\u00f0 var fram \u00ed uppb\u00f3tart\u00edma, \u00fe\u00e1 fengur Sigf\u00fas og Orri f\u00e1einar sek\u00fandur til a\u00f0 sprikla \u00ed sta\u00f0inn fyrir Tiago og Magn\u00fas Inga. \u00cdhaldssemin \u00ed inn\u00e1skiptingum heldur \u00e1fram a\u00f0 vekja undrun. Hef\u00f0i ekki veri\u00f0 tilvali\u00f0 a\u00f0 gefa m\u00f6nnum af bekknum \u00f6rl\u00edti\u00f0 lengri t\u00edma me\u00f0 tveggja marka forystu \u00e1 heimavelli gegn l\u00e1nlitlu botnli\u00f0i.<\/p><p>\u00dea\u00f0 var flauta\u00f0 til leiksloka og vallar\u00feulurinn tilkynnti a\u00f0 Fred hef\u00f0i veri\u00f0 valinn ma\u00f0ur leiksins. Fr\u00e9ttaritarinn hef\u00f0i sj\u00e1lfur vali\u00f0 Kennie e\u00f0a Djanairo, sem var l\u00edklega vinnusamasti ma\u00f0ur vallarins. Ziggi-zaggi var samviskusamlega sunginn, en stemningin samt d\u00e1l\u00edti\u00f0 skr\u00edtin. G\u00e6fuleysi Fylkismanna var svo algj\u00f6rt a\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 vinna \u00fe\u00e1 virka\u00f0i eins og h\u00e1lfgert svindl. Ekkert getur bjarga\u00f0 \u00c1rb\u00e6ingum fr\u00e1 falli, sem er samt d\u00e1l\u00edti\u00f0 skr\u00edti\u00f0 \u00fev\u00ed \u00feetta er ekkert algali\u00f0 f\u00f3tboltali\u00f0 og spilar um margt skemmtilegri bolta en hin li\u00f0in \u00fearna ni\u00f0ri, en vi\u00f0 h\u00f6fum svo sem veri\u00f0 \u00ed n\u00e1kv\u00e6mlega s\u00f6mu sporum sj\u00e1lf svo \u00f3tal oft \u00e1\u00f0ur. N\u00e6sti leikur er KR \u00e1 \u00fativelli, hvort sem \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur \u00ed Frostaskj\u00f3li e\u00f0a \u00ed Laugardalnum. Vonandi ver\u00f0ur s\u00e1 sigur jafn lj\u00f3tur og \u00feessi.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d3, hva\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum oft veri\u00f0 \u00ed \u00feessari st\u00f6\u00f0u. A\u00f0 vera \u00ed falls\u00e6ti a\u00f0 berjast fyrir l\u00edfi s\u00ednu \u00e1 m\u00f3ti tilt\u00f6lulega \u00e1hugalausum m\u00f3therjum, sem einhvern veginn vinna samt. \u00deeirra skot [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":39476,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[11,9],"tags":[],"class_list":["post-41236","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-mflkarla","category-fotbolti"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/05\/magnus-Ingi-.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/41236","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=41236"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/41236\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":41240,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/41236\/revisions\/41240"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/39476"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=41236"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=41236"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=41236"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}