{"id":41363,"date":"2024-10-05T17:29:50","date_gmt":"2024-10-05T17:29:50","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=41363"},"modified":"2024-10-05T17:30:05","modified_gmt":"2024-10-05T17:30:05","slug":"milli-funda","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2024\/10\/05\/milli-funda\/","title":{"rendered":"Milli funda"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"41363\" class=\"elementor elementor-41363\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-6c06cbc3 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"6c06cbc3\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-1f1a6fdd\" data-id=\"1f1a6fdd\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-20ba634f elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"20ba634f\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p>\u00deann 9. n\u00f3vember 1932 brutust \u00fat einhverjar st\u00e6rstu g\u00f6tu\u00f3eir\u00f0ir \u00cdslandss\u00f6gunnar \u00ed mi\u00f0b\u00e6 Reykjav\u00edkur. Verkamenn m\u00f3tm\u00e6ltu \u00fear fantabr\u00f6g\u00f0um borgarstj\u00f3rnar. Einn ma\u00f0ur var \u00fe\u00f3 fjarri g\u00f3\u00f0u gamni, Brynj\u00f3lfur Bjarnason, einn \u00f6flugasti lei\u00f0togi komm\u00fanista var upptekinn vi\u00f0 kennslu \u00ed Kvennask\u00f3lanum. Haft var a\u00f0 or\u00f0i a\u00f0 l\u00edklega myndi Brynj\u00f3lfur missa af sj\u00e1lfri byltingunni ef h\u00fan yr\u00f0i \u00e1 sk\u00f3lat\u00edma&#8230;<\/p><p>Fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar er sj\u00e1lfur a\u00f0 bur\u00f0ast vi\u00f0 a\u00f0 vera atvinnustj\u00f3rnm\u00e1lama\u00f0ur milli \u00feess sem hann skr\u00e1setur Framleiki. \u00de\u00f3tt ekki s\u00e9 \u00e6tlunin a\u00f0 leggja hann a\u00f0 j\u00f6fnu vi\u00f0 Brynj\u00f3lf Bjarnason er h\u00e6tt vi\u00f0 a\u00f0 \u00f6rl\u00f6g hans ver\u00f0i \u00feau s\u00f6mu. \u00deegar hi\u00f0 \u00f3umfl\u00fdjanlega skippbrot au\u00f0valdsfyrirkomulagsins og borgarast\u00e9ttarinnar mun eiga s\u00e9r sta\u00f0, ver\u00f0ur fr\u00e9ttaritarinn l\u00edklega fastur \u00ed K\u00f3rnum e\u00f0a \u00ed k\u00e6liklefanum \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6 a\u00f0 horfa \u00e1 f\u00f3tboltaleik me\u00f0 Knattspyrnuf\u00e9laginu Fram.<\/p><p>Fr\u00e9ttaritarinn \u00e1tti a\u00f0 vera \u00e1 landsfundi flokksins s\u00edns, en stalst \u00ed burtu til a\u00f0 n\u00e1 st\u00f3rleik Fram og Vestra \u00ed Dal draumanna s\u00ed\u00f0degis, samherjum s\u00ednum og eiginkonu til l\u00edtillar \u00e1n\u00e6gju. Hann haf\u00f0i um morguninn b\u00fai\u00f0 sig undir leikinn me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 pakka ni\u00f0ur peysu \u2013 sem reyndist \u00f3\u00fe\u00f6rf \u2013 en gleymdi s\u00f3lgleraugum og s\u00f3larv\u00f6rn. Ve\u00f0r\u00e1ttan \u00e1 Lambhagavellinum h\u00e6ttir ekki a\u00f0 koma \u00e1 \u00f3vart. Engar D-v\u00edtam\u00ednt\u00f6flur \u00ed kv\u00f6ld.<\/p><p>Framv\u00f6llurinn skarta\u00f0i s\u00ednu fegursta en hrakfarirnar gegn st\u00f3rveldinu \u00ed s\u00ed\u00f0asta leik skilu\u00f0u s\u00e9r \u00fe\u00f3 \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e6rri voru \u00ed st\u00fakunni en alla jafna. Gestirnir voru \u00fe\u00f3 fj\u00f6lmennir og h\u00e1v\u00e6rir, enda me\u00f0 baki\u00f0 uppi a\u00f0 veggnum.<\/p><p>Byrjunarli\u00f0i\u00f0 var nokku\u00f0 breytt fr\u00e1 s\u00ed\u00f0asta leik. \u00d3li \u00cdsh\u00f3lm \u00ed markinu. Adam, Kennie og \u00deorri \u00ed mi\u00f0v\u00f6r\u00f0um en Alex og Halli bakver\u00f0ir. Tiago aftastur \u00e1 mi\u00f0junni me\u00f0 Fred og Tryggva, sem sneri aftur eftir langt hl\u00e9, fyrir framan sig. Gummi Magg og unglingurinn Mark\u00fas P\u00e1ll frammi.<\/p><p>Hefur komi\u00f0 n\u00e6gilega sk\u00fdrt fram a\u00f0 \u00fea\u00f0 var bong\u00f3 \u00e1 vellinum? Fr\u00e9ttaritarinn, frekar einn s\u00edns li\u00f0s \u00fear sem Skjaldsveinninn og Rabbi trymbill \u00e1kv\u00e1\u00f0u b\u00e1\u00f0ir a\u00f0 skr\u00f3pa, reif sig \u00far \u00falpunni og st\u00f3\u00f0 \u00e1 bolnum vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 nafna s\u00ednum, \u00deorbirni Atla og \u00cdvari Gu\u00f0j\u00f3ns r\u00e9tt vi\u00f0 mi\u00f0l\u00ednuna. \u00dea\u00f0 \u00feurfti fleiri en einn og fleiri en tvo bj\u00f3ra \u00far Bar8-unni til a\u00f0 vinna \u00e1 hitasv\u00e6kjunni.<\/p><p>Leikurinn byrja\u00f0i r\u00f3lega en Fram f\u00e9kk \u00fe\u00f3 fyrsta f\u00e6ri\u00f0 \u00feegar Halli sendi fyrir strax \u00e1 fimmtu m\u00edn\u00fatu en hvorki Mark\u00fas n\u00e9 Gummi n\u00e1\u00f0u a\u00f0 koma f\u00f3tunum \u00ed boltann. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar heimtu\u00f0u Vestramenn v\u00edtaspyrnu \u00feegar boltinn hr\u00f6kk \u00ed h\u00f6ndina \u00e1 Tiago en d\u00f3marinn l\u00e9t \u00fea\u00f0 r\u00e9ttilega \u00f3\u00e1tali\u00f0. Fyrsta dau\u00f0af\u00e6ri\u00f0, \u00ed frekar dauflegum leik, kom svo \u00e1 tuttugustu m\u00edn\u00fatu \u00feegar Fred skalla\u00f0i \u00e1 Tryggva sem aftur nikka\u00f0i boltanum \u00e1 fj\u00e6rst\u00f6ng \u00fear sem Alex kom a\u00f0v\u00edfandi en skot hans enda\u00f0i \u00ed fanginu \u00e1 markver\u00f0i Vestanmanna.<\/p><p>M\u00edn\u00fatu s\u00ed\u00f0ar og \u00f6rl\u00edti\u00f0 gegn gangi leiksins voru gestirnir komnir \u00ed 0:1. Stungusending n\u00e1\u00f0i a\u00f0 sprengja upp rangst\u00f6\u00f0ugildru Framara og boltinn enda\u00f0i \u00ed netinu. Framarar virtust \u00f6rl\u00edti\u00f0 slegnir \u00fat af laginu vi\u00f0 marki\u00f0 en unnu sig \u00fe\u00f3 aftur inn \u00ed leikinn. Mark\u00fas, sem var mj\u00f6g l\u00edflegur \u00ed leiknum, \u00e1tti f\u00ednustu sendingu \u00e1 Tryggva sem skaut \u00far \u00farvalsf\u00e6ri en markv\u00f6r\u00f0urinn var\u00f0i vel. \u00c1 33. m\u00edn\u00fatu m\u00e1tti minnstu muna a\u00f0 gestirnir skoru\u00f0u sj\u00e1lfsmark \u00feegar einn Vestrama\u00f0urinn skalla\u00f0i yfir eigi\u00f0 mark. \u00dar hornspyrnunni n\u00e1\u00f0i Gummi g\u00f3\u00f0um skalla, sem var naumlega varinn. Upp \u00far \u00fev\u00ed barst boltinn \u00fatfyrir teig \u00fear sem Fred lyfti honum aftur inn\u00ed og Alex kom a\u00f0v\u00edfandi og jafna\u00f0i metin, 1:1.<\/p><p>Framarar t\u00f3ku \u00f6ll v\u00f6ld \u00e1 mi\u00f0junni eftir j\u00f6fnunarmarki\u00f0 og Mark\u00fas var n\u00e1lega sloppinn einn \u00ed gegn nokkrum m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar. \u00deegar m\u00edn\u00fata var eftir a\u00f0 venjulegum leikt\u00edma f\u00f3r hins vegar allt \u00ed skr\u00fafuna. Fyrst misstu okkar menn boltann klaufalega \u00e1 mi\u00f0junni og \u00cdsfir\u00f0ingar skoru\u00f0u vandr\u00e6\u00f0al\u00edti\u00f0 \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0. Tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar var sta\u00f0an or\u00f0in 1:3. Fr\u00e9ttaritarinn var svo sannf\u00e6r\u00f0ur um auglj\u00f3sa rangst\u00f6\u00f0u a\u00f0 hann var farinn a\u00f0 semja \u00ed huganum \u00e1fr\u00fdjunina til \u00cd\u00fer\u00f3ttad\u00f3mst\u00f3lsins \u00ed Lausanne. \u00cd hl\u00e9i reyndust sko\u00f0anir hins vegar mj\u00f6g skiptar milli \u00feeirra sem t\u00f6ldu marki\u00f0 f\u00e1r\u00e1nlega \u00f3l\u00f6glegt og hinna sem h\u00f6llu\u00f0ustu a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00edklega hef\u00f0i s\u00f3knarma\u00f0urinn veri\u00f0 r\u00e9tt fyrir aftan s\u00ed\u00f0asta varnarmann. M\u00e1lefnalegri pistlah\u00f6fundur en Fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar myndi kannski b\u00ed\u00f0a eftir st\u00f3rad\u00f3mi sj\u00f3nvarpsins, en \u00fea\u00f0 er ekki \u00ed bo\u00f0i \u00e1 landsfundard\u00f6gum.<\/p><p>Freyr kom inn\u00e1 fyrir Tiago \u00ed byrjun seinni h\u00e1lfleiks, v\u00e6ntanlega \u00ed \u00feeirri von a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0eins meiri hra\u00f0a og h\u00f6rku inn \u00e1 mi\u00f0juna. Engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur voru gestirnir n\u00e6r \u00fev\u00ed a\u00f0 auka forystuna enn frekar \u00feegar Kennie \u00feurfti a\u00f0 skalla fr\u00e1 \u00e1 markl\u00ednu \u00feegar \u00e1 upphafsm\u00edn\u00fatunum. T\u00edu m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar var sta\u00f0an svo or\u00f0in 1:4 eftir enn eina skyndis\u00f3kn Vestra sem setti allt \u00ed uppn\u00e1m eins og venjulega (varnarl\u00ednan okkar hefur \u00e1tt betri daga).<\/p><p>Stu\u00f0ningmenn Vestra vissu eiginlega ekki \u00ed hvorn f\u00f3tinn \u00feeir \u00e6ttu a\u00f0 st\u00edga, \u00f3vanir sl\u00edkri markas\u00fapu. Leikmennirnir \u00e1kv\u00e1\u00f0u hins vegar a\u00f0 draga sig til baka og verja fenginn hlut. Gummi Magg komst \u00ed kj\u00f6rf\u00e6ri til a\u00f0 minnka muninn \u00e1 56. m\u00edn\u00fatu \u00feegar hann f\u00e9kk boltann \u00ed teignum eftir \u00fev\u00f6gu, n\u00e1\u00f0i a\u00f0 setja hann fyrir s\u00e9r og skj\u00f3ta, en Vestramenn v\u00f6r\u00f0u \u00e1 l\u00ednu. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar \u00e1tti Mark\u00fas skot \u00ed \u00feversl\u00e1na.<\/p><p>\u00deegar seinni h\u00e1lfleikur var t\u00e6plega h\u00e1lfna\u00f0ur Mingi og Dahl hinn danski komu inn\u00e1 fyrir Gumma og Tryggva. Fram h\u00e9lt \u00e1fram a\u00f0 s\u00e6kja og 67. m\u00edn\u00fatu f\u00e9kk Fram aukaspyrnu r\u00e9tt vi\u00f0 v\u00edtateigsl\u00ednu. Kennie stillti henni upp og skora\u00f0i af f\u00e1d\u00e6ma \u00f6ryggi \u00ed horni\u00f0, 2:4 og skyndilega var \u00feetta or\u00f0i\u00f0 leikur \u00e1 n\u00fd!<\/p><p>G\u00f3\u00f0 markvarsla Vestramarkvar\u00f0arins kom \u00ed veg fyrir a\u00f0 \u00deorri minnka\u00f0i muninn enn frekar me\u00f0 bylmingsskoti sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar. \u00deegar kort\u00e9r var eftir var\u00f0 svo undarleg upp\u00e1koma \u00feegar Fram f\u00e9kk aukaspyrnu vi\u00f0 v\u00edtateigshorni\u00f0 en um lei\u00f0 og skoti\u00f0 rei\u00f0 af gall flautan. Vestrama\u00f0ur haf\u00f0i sl\u00e6mt hendi til Minga \u2013 sem er til marks um s\u00e9rlega f\u00falmennsku, enda Mingi hvers manns huglj\u00fafi \u2013 og rau\u00f0a spjaldi\u00f0 f\u00f3r \u00e1 loft. Hvers vegna ekki var d\u00e6mt v\u00edti er svo \u00f6nnur og betri spurning.<\/p><p>Mingi f\u00f3r af velli nokkrum m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar fyrir Daniels (H\u00f6skuldarvi\u00f0v\u00f6run) sem var n\u00e6rri \u00fev\u00ed a\u00f0 skora f\u00e1einum sek\u00fandum s\u00ed\u00f0ar. \u00dea\u00f0 a\u00f0 missa manninn af velli var\u00f0 hins vegar til a\u00f0 \u00fejappa gestunum saman og s\u00ed\u00f0ustu m\u00edn\u00faturnar bar f\u00e1tt til t\u00ed\u00f0inda. Vestri landa\u00f0i d\u00fdrm\u00e6tum 2:4 sigri, sem gladdi vissulega Fr\u00e9ttaritarann \u00f6rl\u00edti\u00f0, enda barnabarn \u00cdsafjar\u00f0ar og s\u00e9rstakur \u00e1hugama\u00f0ur um a\u00f0 f\u00e1 HK og Fylki ni\u00f0ur um deild \u2013 en \u00feetta var samt alveg \u00f3\u00fearfa grei\u00f0asemi vi\u00f0 hinar dreif\u00f0u bygg\u00f0ir. Vi\u00f0 v\u00e6ntum betri frammist\u00f6\u00f0u gegn HK \u00ed K\u00f3rnum \u00ed n\u00e6sta leik \u2013 \u00fear ver\u00f0ur \u00fe\u00f3 amk ekki h\u00e6gt a\u00f0 nota \u00fe\u00e1 afs\u00f6kun a\u00f0 brennandi s\u00f3lin hafi veri\u00f0 of heit.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deann 9. n\u00f3vember 1932 brutust \u00fat einhverjar st\u00e6rstu g\u00f6tu\u00f3eir\u00f0ir \u00cdslandss\u00f6gunnar \u00ed mi\u00f0b\u00e6 Reykjav\u00edkur. Verkamenn m\u00f3tm\u00e6ltu \u00fear fantabr\u00f6g\u00f0um borgarstj\u00f3rnar. Einn ma\u00f0ur var \u00fe\u00f3 fjarri g\u00f3\u00f0u gamni, Brynj\u00f3lfur Bjarnason, einn \u00f6flugasti lei\u00f0togi [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":39158,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-41363","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/04\/kenny-gegn-KR.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/41363","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=41363"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/41363\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":41367,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/41363\/revisions\/41367"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/39158"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=41363"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=41363"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=41363"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}