{"id":41564,"date":"2024-10-20T22:49:57","date_gmt":"2024-10-20T22:49:57","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=41564"},"modified":"2024-10-20T22:51:39","modified_gmt":"2024-10-20T22:51:39","slug":"i-alvoru-talad","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2024\/10\/20\/i-alvoru-talad\/","title":{"rendered":"\u00cd alv\u00f6ru tala\u00f0?"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"41564\" class=\"elementor elementor-41564\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-7e21baa elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"7e21baa\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-62506948\" data-id=\"62506948\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-5c12765c elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"5c12765c\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p>S\u00fa var t\u00ed\u00f0in a\u00f0 \u00edslenska \u00fej\u00f3\u00f0in sameina\u00f0ist um hatur \u00e1 \u00feremur m\u00f6nnum. \u00dea\u00f0 voru \u00feeir Halim Al sem gaf \u00edslensku r\u00e9ttarkerfi langt nef \u00ed har\u00f0v\u00edtugri forr\u00e6\u00f0isdeilu; Florencio Camopomanes, filippseyskum forseta al\u00fej\u00f3\u00f0ask\u00e1ksambandsins sem var vondur vi\u00f0 pr\u00fa\u00f0menni\u00f0 Fri\u00f0rik \u00d3lafsson og hinn s\u00e6nska Staffan \u201eFaxe\u201c Olsson sem var svo \u00f6murlegur a\u00f0 vinna okkur alltaf \u00ed handbolta. Faxi var a\u00f0alma\u00f0urinn \u00ed s\u00e6nska landsli\u00f0inu sem undantekningarlaust vann \u00fea\u00f0 \u00edslenska, \u00f3h\u00e1\u00f0 vonum og v\u00e6ntingum okkar hverju sinni. Fyrir viki\u00f0 var\u00f0 til hugtaki\u00f0 \u201eSv\u00edagr\u00fdlan\u201c, sem bygg\u00f0ist \u00e1 \u00feeirri undirliggjandi hugmynd a\u00f0 s\u00e9rst\u00f6k \u00fe\u00f6rf v\u00e6ri \u00e1 a\u00f0 sk\u00fdra \u00edtreku\u00f0 t\u00f6p okkar fyrir Sv\u00edum \u2013 a\u00f0 Sv\u00edar v\u00e6ru ekki einfaldlega betri en vi\u00f0 \u00ed handbolta.<\/p><p>Ef Sv\u00edagr\u00fdlan var hvimleitt fyrirb\u00e6ri \u2013 hva\u00f0 m\u00e1 \u00fe\u00e1 segja um HK-gr\u00fdluna? \u00dea\u00f0 sem af er \u00feessu \u00f3gnarlanga keppnist\u00edmabili \u00ed f\u00f3tboltanum hefur Handknattleiksf\u00e9lagi K\u00f3pavogs tekist a\u00f0 vinna sj\u00f6 deildarleiki. \u00der\u00edr \u00feeirra eru gegn Fram. Ef einhver ver\u00f0skuldar s\u00e9rstaka vi\u00f0urkenningu \u00e6skul\u00fd\u00f0s- og \u00ed\u00fer\u00f3ttar\u00e1\u00f0s K\u00f3pavogsb\u00e6jar fyrir almanaks\u00e1ri\u00f0, \u00fe\u00e1 erum \u00fea\u00f0 vi\u00f0 Framarar fyrir f\u00e1d\u00e6ma rausnarskap og gjafmildi. Og til a\u00f0 b\u00edta h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 af sk\u00f6mminni: \u00fe\u00e1 voru \u00f6ll t\u00f6pin skelfileg. \u00deetta var samt verst.<\/p><p>Fr\u00e9ttaritarinn lag\u00f0i gla\u00f0ur og reifur af sta\u00f0 fr\u00e1 heimili s\u00ednu \u00ed Hl\u00ed\u00f0unum s\u00ed\u00f0degis. Skjaldsveinninn og Rabbi trymbill voru \u00fdmist \u00ed vei\u00f0i e\u00f0a \u00ed straffi eftir of velheppna\u00f0an gle\u00f0skap helgarinnar, en einf\u00f6ld leit \u00e1 vef bygg\u00f0asamlagsins Str\u00e6t\u00f3 leiddi \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 bein lei\u00f0 liggur fr\u00e1 Borgarleikh\u00fasinu og upp \u00ed K\u00f3rinn. Fr\u00e9ttaritarinn vanmat st\u00f3rkostlega skilvirkni str\u00e6t\u00f3kerfisins og var kominn alltof, alltof snemma upp \u00ed K\u00f3r. \u00dear bei\u00f0 hans talsver\u00f0 bi\u00f0 eftir a\u00f0 alltof f\u00e1li\u00f0u\u00f0 sj\u00e1lfbo\u00f0ali\u00f0asveit K\u00f3pavogsf\u00f3lks n\u00e6\u00f0i a\u00f0 rigga upp \u00f6llu \u00fev\u00ed sem rigga \u00feurfti. Flj\u00f3tlega f\u00f3r bj\u00f3rinn \u00fe\u00f3 a\u00f0 fl\u00e6\u00f0a \u00far d\u00e6lunni og landi\u00f0 a\u00f0 r\u00edsa.<\/p><p>V\u00ed\u00f0ir Sigur\u00f0sson, HK-ma\u00f0ur n\u00famer eitt og hei\u00f0ursframari sem h\u00f6fundur 80 \u00e1ra s\u00f6gu Fram, var m\u00e6ttur og eftir gott spjall vi\u00f0 hann f\u00f3r fr\u00e9ttaritarinn a\u00f0 f\u00e1 \u00f6rl\u00edtinn m\u00f3ral yfir a\u00f0 hafa hafa \u00f3ska\u00f0 K\u00f3rahverfisli\u00f0inu falls ni\u00f0ur um deild. Innanh\u00fasf\u00f3tbolti er a\u00f0 s\u00f6nnu glata\u00f0ur, en a\u00f0 kv\u00f6ldi 20. okt\u00f3ber m\u00e1tti vissulega sj\u00e1 kostina vi\u00f0 a\u00f0 spila innandyra. \u00dev\u00ed n\u00e6st bar a\u00f0 helminginn af Steve dagskr\u00e1-hla\u00f0varpsteyminu, sem er n\u00e6stmesti eftirl\u00e6tistengdasonur Nor\u00f0fjar\u00f0ar, fast \u00e1 h\u00e6la fr\u00e9ttaritarans og ur\u00f0u skiljanlega fagna\u00f0arfundir.<\/p><p>Li\u00f0in voru kynnt og Fram tefldi fram l\u00edtt e\u00f0a ekkert breyttu li\u00f0i. \u00d3li \u00ed marki. \u00deorri, Adam og Kennie \u00ed mi\u00f0v\u00f6r\u00f0um. Halli og Alex bakver\u00f0ir. Tiago, Tryggvi og Fred \u00e1 mi\u00f0junni. Gummi og Mark\u00fas P\u00e1ll frammi. Framli\u00f0i\u00f0 hefur veri\u00f0 saka\u00f0 um a\u00f0 hafa h\u00e6tt keppni en HK var me\u00f0 baki\u00f0 upp a\u00f0 veggnum. Hvernig f\u00e6ri \u00feetta?<\/p><p>Skemmst er fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 segja a\u00f0 Framarar m\u00e6ttu \u00e1kve\u00f0nir til leiks og s\u00f3knirnar buldu \u00e1 HK-v\u00f6rninni. Fred \u00e1tti g\u00f3\u00f0a sendingu fyrir strax eftir tv\u00e6r m\u00edn\u00fatur sem hvorki Tryggvi n\u00e9 Gummi n\u00e1\u00f0u til \u00e1\u00f0ur en HK var\u00f0i \u00ed horn. M\u00edn\u00fatu s\u00ed\u00f0ar kom Kennie boltanum \u00e1 Tryggva sem skaut r\u00e9tt franhj\u00e1 \u00far g\u00f3\u00f0u f\u00e6ri. Fimm m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar \u00e1tti Alex sendingu \u00e1 Fred, sem t\u00f3kst a\u00f0 drepa boltann gl\u00e6silega \u00ed teignum en n\u00e1\u00f0i ekki almennilegu skoti. Besta f\u00e6ri\u00f0 kom \u00fe\u00f3 eftir kort\u00e9r \u00feegar Gummi f\u00e9kk boltann \u00ed v\u00edtateig HK-li\u00f0sins, sendi \u00fat \u00e1 Alex sem \u00feruma\u00f0i \u00ed hli\u00f0arneti\u00f0.<\/p><p>Alex ger\u00f0i hins vegar engin mist\u00f6k \u00e1 tuttugustu m\u00edn\u00fatu \u00feegar Fred komst upp a\u00f0 endam\u00f6rkum, sendi fyrir \u00fear sem Alex kom a\u00f0v\u00edfandi utarlega \u00ed teignum og \u00feruma\u00f0i a\u00f0 marki. Bakv\u00f6r\u00f0urinn er or\u00f0inn einn okkar mesti markahr\u00f3kur, 0:1.<\/p><p>Fram a\u00f0 markinu haf\u00f0i HK ekki s\u00e9\u00f0 til s\u00f3lar \u2013 dj\u00f3k, \u00feeir spila inni \u00ed bragga og geta \u00fev\u00ed smkv. skilgreiningu aldrei s\u00e9\u00f0 til s\u00f3lar\u2026 En \u00feetta mark virtist a\u00f0eins vekja \u00fe\u00e1 til l\u00edfsins. Tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar var sta\u00f0an aftur or\u00f0in j\u00f6fn eftir a\u00f0 \u00feversending splundra\u00f0i Framv\u00f6rninni og a\u00f0v\u00edfandi HK-ma\u00f0ur skora\u00f0i, 1:1.<\/p><p>Fred var n\u00e6rri \u00fev\u00ed a\u00f0 taka forystuna \u00e1 n\u00fd eftir a\u00f0 hafa fengi\u00f0 boltann \u00ed kj\u00f6lfar varnarmistaka HK, en skoti\u00f0 var m\u00e1ttlaust. \u00c1 25. m\u00edn\u00fatu skei\u00f0a\u00f0i Kennie upp v\u00f6llinn mi\u00f0jann, HK-ma\u00f0ur ger\u00f0i enga tilraun til a\u00f0 st\u00f6\u00f0va hann l\u00f6glega, heldur \u00fereif \u00ed treyjukragann hans og kippti ni\u00f0ur \u00e1 j\u00f6r\u00f0ina, h\u00e1skalegt brot sem hef\u00f0i geta\u00f0 fari\u00f0 mj\u00f6g illa og ver\u00f0skulda\u00f0i m\u00f6gulega rautt spjald. D\u00f3marinn \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 beita hagna\u00f0i og l\u00e9t leikinn halda \u00e1fram \u00fe\u00f3tt Kennie l\u00e6gi \u00e1 vellinum, eftir a\u00f0 Fram missti boltann og Kennie var enn\u00fe\u00e1 \u00f3v\u00edgur m\u00e1tti sj\u00e1 d\u00f3marann horfa fram og til baka, \u00f3viss um hvort hann \u00e6tti a\u00f0 stoppa leikinn \u2013 lyfti flautunni upp en stakk henni svo aftur \u00ed vasann \u2013 \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 komst HK \u00ed dau\u00f0af\u00e6ri og bara gl\u00e6simarkvarsla \u00d3la kom \u00ed veg fyrir a\u00f0 \u00feeir n\u00e6\u00f0u forystunni.<\/p><p>Eftir \u00feetta n\u00e1\u00f0u HK-menn undirt\u00f6kunum \u00ed leiknum og h\u00e9ldu til loka fyrri h\u00e1lfleiks. Ekki b\u00e6tti \u00far sk\u00e1k hversu duglegir okkar menn voru vi\u00f0 a\u00f0 hlaupa saman og skella saman hausum. Um t\u00edma leit \u00fat fyrir a\u00f0 vi\u00f0 misstum tvo menn af velli vegna sl\u00edkra atvika, en b\u00e1\u00f0ir luku \u00fe\u00f3 leiknum.<\/p><p>Jafnt \u00ed h\u00e1lfleik og Framarar og HK-menn s\u00f6fnu\u00f0ust saman \u00e1 barnum. Hamborgararnir voru loksins tilb\u00fanir og reyndust einhverjir \u00feeir brag\u00f0bestu sem fr\u00e9ttaritarinn hefur g\u00e6tt s\u00e9r \u00e1 \u00ed sumar \u00e1 \u00fatleikjum Framli\u00f0sins. Eftir hl\u00e9 \u00e1kva\u00f0 fr\u00e9ttaritarinn a\u00f0 standa til a\u00f0 teygja \u00far l\u00f6ppunum. \u00cd takt vi\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feema sumarsins a\u00f0 blanda ge\u00f0i vi\u00f0 foreldra leikmanna var st\u00e6rstum hluta seinni h\u00e1lfleiks vari\u00f0 vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 pabba Mikaels Ellerts (sem er \u00fer\u00e1tt fyrir l\u00edkamsh\u00e6\u00f0 afkv\u00e6misins, mun n\u00e6r fr\u00e9ttaritaranum \u00ed sentimetrum tali\u00f0) og s\u00ed\u00f0ustu m\u00edn\u00fatunum me\u00f0 Skonrokksbr\u00e6\u00f0runum Snorra M\u00e1 og Sk\u00fala Helga.<\/p><p>Seinni h\u00e1lfleikur byrja\u00f0i \u00feokkalega. Fram f\u00e9kk aukaspyrnu \u00e1 besta sta\u00f0 en skot Halla f\u00f3r beint \u00ed l\u00fakur markvar\u00f0arins. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar \u00e1tti \u00e1 Alex sendingu fyrir sem Gummi n\u00e1\u00f0i ekki a\u00f0 reka t\u00e6rnar \u00ed. HK f\u00e9kk s\u00edn f\u00e6ri \u00e1 m\u00f3ti og \u00feruma\u00f0i t.a.m. \u00ed st\u00f6ngina \u00e1 57. m\u00edn\u00fatu en rangst\u00f6\u00f0uflaggi\u00f0 var komi\u00f0 \u00e1 loft.<\/p><p>Fyrsta skiptingin kom eftir t\u00e6plega klukkut\u00edma leik \u00feegar Mark\u00fas f\u00f3r \u00fataf fyrir Daniels. Hann reyndist \u00e1g\u00e6tlega kr\u00f6ftugur, einkum fyrst um sinn. Hann var h\u00e1rsbreidd fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 skora f\u00e1einum m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar, en HK-markv\u00f6r\u00f0urinn var\u00f0i me\u00f0 f\u00f3tunum. Beint \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 \u00e1tti s\u00e1 hollenski \u00e1g\u00e6tan skalla a\u00f0 marki. Framarar voru auglj\u00f3slega sterkara li\u00f0i\u00f0<\/p><p>\u00deegar r\u00famt kort\u00e9r var eftir var eins og heimamenn r\u00f6nku\u00f0u vi\u00f0 s\u00e9r \u2013 tap v\u00e6ri n\u00e1nst \u00e1v\u00edsun \u00e1 fall. \u00d3li var\u00f0i fr\u00e1b\u00e6rlega skalla af stuttu f\u00e6ri. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar var komi\u00f0 a\u00f0 n\u00e6stu skiptingu Framara \u00fear sem Freyr kom inn \u00e1 fyrir Fred. \u00c1 86. m\u00edn\u00fatu f\u00e9kk Framli\u00f0i\u00f0 svo sitt besta f\u00e6ri \u00feegar \u00deorri skalla\u00f0i eftir sendingu fr\u00e1 Kennie en markv\u00f6r\u00f0ur HK n\u00e1\u00f0i a\u00f0 sl\u00e1 boltann \u00ed \u00feversl\u00e1na og yfir.<\/p><p>\u00deegar komi\u00f0 var fram \u00ed sex m\u00edn\u00fatna uppb\u00f3tart\u00edmann kom \u00feri\u00f0ja og s\u00ed\u00f0asta skiptingin. Tryggvi f\u00f3r \u00fat af fyrir Dahl hinn danska. \u00d3lj\u00f3st var hverju hann \u00e1tti a\u00f0 n\u00e1 a\u00f0 breyta \u00e1 \u00feessum f\u00e1einu m\u00edn\u00fatum sem eftir voru og eins m\u00e1 spyrja sig hvort miki\u00f0 s\u00e9 unni\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa \u00fatlendingum sem auglj\u00f3slega munu ekki vera me\u00f0 okkur \u00e1 n\u00e6sta \u00e1ri m\u00edn\u00fatur \u00ed sta\u00f0 uppalinna Framara \u00e1 bekknum \u2013 en l\u00e1tum \u00fea\u00f0 liggja \u00e1 milli hluta. \u00c1 95. m\u00edn\u00fatu trygg\u00f0u HK-menn s\u00e9r \u00deorm\u00f3\u00f0ar Egilssonarver\u00f0launin fyrir \u00e1ri\u00f0 2024 \u00feegar \u00d3li spyrnti boltanum \u00fataf svo unnt v\u00e6ri a\u00f0 stumra yfir Gumma Magg sem l\u00e1 \u00e1 vellinum me\u00f0 krampa. Allir ger\u00f0u r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 HK-menn k\u00f6stu\u00f0u boltanum aftur til Framara en \u00ed s\u00f6nnum vesturb\u00e6jaranda \u00e1kv\u00e1\u00f0u heimamenn a\u00f0 halda honum og s\u00e6kja. \u00deetta er geymt en ekki gleymt.<\/p><p>\u00dea\u00f0 var skrifa\u00f0 \u00ed sk\u00fdin a\u00f0 HK-gr\u00fdlan myndi l\u00e1ta til skarar skr\u00ed\u00f0a \u00feegar komi\u00f0\u00a0 var vel framyfir vi\u00f0b\u00e6ttu sex m\u00edn\u00faturnar. St\u00f3rs\u00f3kn HK enda\u00f0i \u00e1 billegu marki og sta\u00f0an 2:1. Vi\u00f0 Framarar getum ekki anna\u00f0 en be\u00f0i\u00f0 vini okkar \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i innilega afs\u00f6kunar. Vonandi \u00feurfum vi\u00f0 aldrei aftur a\u00f0 m\u00e6ta \u00ed K\u00f3rinn\u2026 \u00fe\u00f3tt str\u00e6t\u00f3lei\u00f0in s\u00e9 vissulega mj\u00f6g hentug.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><p>\u00a0<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>S\u00fa var t\u00ed\u00f0in a\u00f0 \u00edslenska \u00fej\u00f3\u00f0in sameina\u00f0ist um hatur \u00e1 \u00feremur m\u00f6nnum. \u00dea\u00f0 voru \u00feeir Halim Al sem gaf \u00edslensku r\u00e9ttarkerfi langt nef \u00ed har\u00f0v\u00edtugri forr\u00e6\u00f0isdeilu; Florencio Camopomanes, filippseyskum forseta [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":41172,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-41564","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2024\/09\/Alex-gegn-FH.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/41564","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=41564"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/41564\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":41568,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/41564\/revisions\/41568"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/41172"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=41564"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=41564"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=41564"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}