{"id":43736,"date":"2025-04-21T23:05:16","date_gmt":"2025-04-21T23:05:16","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=43736"},"modified":"2025-04-21T23:05:36","modified_gmt":"2025-04-21T23:05:36","slug":"papalangi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2025\/04\/21\/papalangi\/","title":{"rendered":"Papalangi"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"43736\" class=\"elementor elementor-43736\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-4de4680c elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"4de4680c\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-35e712\" data-id=\"35e712\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-258fe63d elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"258fe63d\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p>\u201eHvernig v\u00e6ri a\u00f0 Fr\u00e9ttaritarinn f\u00e6ri n\u00fa einu sinni a\u00f0 l\u00e1ta sj\u00e1 sig \u00e1 handboltaleik?\u201c \u2013 spur\u00f0i afar \u00e1kve\u00f0inn Haraldur \u00deorvar\u00f0arson fyrir bikarleikinn milli Fram og FH um helgina. \u00deetta var skiljanleg athugasemd og ekki au\u00f0velt a\u00f0 v\u00edkja s\u00e9r undan henni af m\u00f6rgum \u00e1st\u00e6\u00f0um. \u00cd fyrsta lagi hefur Fr\u00e9ttaritarinn kannast vi\u00f0 Harald fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00e1\u00f0ir voru a\u00f0 alast upp \u00ed Vesturb\u00e6num \u00ed gamla daga, \u00ed \u00f6\u00f0ru lagi er \u00fea\u00f0 ekki \u00f3sanngj\u00f6rn bei\u00f0ni a\u00f0 hir\u00f0sagnfr\u00e6\u00f0ingur f\u00e9lagsins drullist til a\u00f0 skrifa um st\u00f6ku handboltaleiki \u2013 einkum \u00feegar miki\u00f0 er \u00ed h\u00fafi og \u00ed \u00feri\u00f0ja og s\u00ed\u00f0asta lagi er ekki alveg \u00fatiloka\u00f0 a\u00f0 \u00feessu hafi veri\u00f0 lofa\u00f0 \u00e1 fj\u00f3r\u00f0a e\u00f0a fj\u00f3rt\u00e1nda bj\u00f3r \u00ed sigurpart\u00fdinu eftir bikarmeistaratitilinn\/\u00e1ttr\u00e6\u00f0isafm\u00e6li\u00f0 hans Sigga Tomm \u00e1 d\u00f6gunum.<\/p><p>En \u00fe\u00e1 t\u00f3k vi\u00f0 st\u00e6rri spurning: hvernig \u00ed \u00f3sk\u00f6punum \u00e1 fr\u00e9ttaritari sem hefur alla s\u00edna hunds og kattart\u00ed\u00f0 fjalla\u00f0 um f\u00f3tbolta eiginlega a\u00f0 fara a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 skrifa um parketgl\u00edmu? Hef\u00f0bundin leiksk\u00fdrsla gengur \u00fat \u00e1 a\u00f0 m\u00e6ra ve\u00f0ri\u00f0 \u00ed \u00dalfars\u00e1rdal, neimdroppa allt li\u00f0i\u00f0 \u00ed st\u00fakunni og f\u00ednumannabo\u00f0inu, reyna svo a\u00f0 finna \u00fat \u00far li\u00f0suppstillingunni og endursegja svo helstu atri\u00f0i kappleiksins, \u00fear sem \u00f6ll f\u00e6ri okkar manna eru t\u00f6lu\u00f0 upp en skot m\u00f3therjanna afgreidd sem f\u00e1lmkennt klafs \u2013 auk \u00feess sem fr\u00e6jum efasemda er s\u00e1\u00f0 var\u00f0andi helstu vafaatri\u00f0i \u00ed d\u00f3mg\u00e6slunni. Hvernig \u00e1 a\u00f0 vera h\u00e6gt a\u00f0 yfirf\u00e6ra \u00feetta \u00e1 handbolta? Fr\u00e9ttarinn veit ekki einu sinni hva\u00f0 \u00feetta Ka\u00edr\u00f3 er sem handbolta\u00fej\u00e1lfarar eru alltaf a\u00f0 tala um og finnst alltaf a\u00f0 allir s\u00e9u lentir \u00ed teignum. Og hva\u00f0 er eiginlega m\u00e1li\u00f0 me\u00f0 \u00feessu gulu spj\u00f6ld sem eru gefin eftir fimm m\u00edn\u00fatur og svo aldrei aftur?<\/p><p>\u00c1ri\u00f0 1920 sendi \u00dej\u00f3\u00f0verjinn Erich Scheurmann fr\u00e1 s\u00e9r b\u00f3kina Papalangi, sem er mannfr\u00e6\u00f0ileg st\u00fad\u00eda \u00e1 l\u00edfi og h\u00e1ttum Vesturlandab\u00faa, s\u00e9\u00f0 me\u00f0 augum \u00e6ttb\u00e1lkah\u00f6f\u00f0ingja fr\u00e1 Sam\u00f3aeyjum. B\u00f3kin \u00fe\u00f3tti snjallt innlegg \u00e1 t\u00edmum \u00fear sem mannfr\u00e6\u00f0ilegar l\u00fdsingar Evr\u00f3pumanna \u00e1 fjarl\u00e6gum samf\u00e9l\u00f6gum nutu mikilla vins\u00e6lda. L\u00edtum \u00e1 \u00feessa sk\u00fdrslu sem mannfr\u00e6\u00f0ilega hugsanatilraun.<\/p><p>Addi \u00ed bankanum sendi skilabo\u00f0: \u201e\u00c1 a\u00f0 skella s\u00e9r \u00e1 leikinn?\u201c Fr\u00e9ttaritarinn h\u00e9lt \u00fea\u00f0 n\u00fa, meira a\u00f0 segja b\u00fainn a\u00f0 kaupa mi\u00f0a \u00e1 Stubbnum. T\u00edu m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar brunu\u00f0u \u00feeir f\u00e9lagarnir eftir Miklubrautinni til m\u00f3ts vi\u00f0 Dal draumanna. Addi er hj\u00e1tr\u00faarfullur ma\u00f0ur \u00feegar kemur a\u00f0 \u00ed\u00fer\u00f3ttaleikjum. Hann var \u00e1 happab\u00edlnum og vildi helst bara leggja \u00ed happab\u00edlast\u00e6\u00f0inu. \u00dea\u00f0 gekk eftir og m\u00e1 \u00ed raun f\u00e6ra r\u00f6k fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 eftir \u00fea\u00f0 hafi sigurinn aldrei veri\u00f0 \u00ed h\u00e6ttu.<\/p><p>\u00dea\u00f0 var gaman a\u00f0 st\u00edga inn \u00ed \u00ed\u00fer\u00f3ttah\u00fasi\u00f0 i\u00f0andi af l\u00edfi. Framarar s\u00e1tu \u00f6\u00f0ru megin vi\u00f0 v\u00f6llinn en gestirnir \u00far Hafnarfir\u00f0i hinu megin. Gaman var a\u00f0 sj\u00e1 allt karlali\u00f0 Framara \u00far f\u00f3tboltanum sitja saman og klappa fyrir s\u00ednum m\u00f6nnum. Annars sl\u00e6r \u00fea\u00f0 mann alltaf hva\u00f0 samsetning \u00e1horfendah\u00f3psins er \u00f6nnur \u00e1 f\u00f3tboltanum og handboltanum. Sumir hoppa vandr\u00e6\u00f0alaust \u00e1 milli, en a\u00f0rir eru meira utang\u00e1tta \u00feegar \u00feeir m\u00e6ta \u00e1 leiki hj\u00e1 \u201ehinni\u201c greininni.<\/p><p>Leikurinn \u00ed Hafnarfir\u00f0i \u00e1 d\u00f6gunum var har\u00f0ur, eins og s\u00e1st greinilega \u00ed sj\u00f3nvarps\u00fatsendingunni (bara svo \u00fev\u00ed s\u00e9 haldi\u00f0 til haga, \u00fe\u00e1 horfir Fr\u00e9ttaritarinn alveg \u00e1 Framli\u00f0in \u00ed handbolta \u2013 hann gerir \u00fea\u00f0 hins vegar bara mj\u00f6g oft \u00ed gegnum t\u00f6lvuna). \u00dea\u00f0 var enn grunnt \u00e1 \u00fev\u00ed g\u00f3\u00f0a milli li\u00f0anna og l\u00edti\u00f0 \u00feurfti til a\u00f0 hleypa m\u00f6nnum upp. Varnirnar voru kr\u00f6ftugar og \u00fear byrju\u00f0u okkar menn betur. FH-ingar skoru\u00f0u a\u00f0eins fj\u00f6gur m\u00f6rk \u00e1 fyrsta stundarfj\u00f3r\u00f0ungnum og Fram komst mest \u00ed 9:5. \u00c1 \u00feessum fyrsta kafla muna\u00f0i mest um Marel Baldvinsson sem skora\u00f0i fj\u00f6gur af fyrstu sex m\u00f6rkum Framara.<\/p><p>Slagsm\u00e1lin \u00ed leiknum h\u00e9ldu \u00e1fram og \u00e1 einum t\u00edmapunkti \u00feurftu d\u00f3mararnir a\u00f0 senda \u00ferj\u00e1 menn \u00fataf eftir eitt og sama atvki\u00f0i\u00f0. \u00dea\u00f0 var \u00e1kve\u00f0inn \u00edshokk\u00edstemning \u00ed gangi og leikmenn alveg til \u00ed a\u00f0 mynda k\u00f6s og hrinda hver \u00f6\u00f0rum ef \u00feeir m\u00e1tu eitthvert broti\u00f0 a\u00f0eins of harkalegt. Hv\u00edtkl\u00e6ddir n\u00e1\u00f0u a\u00f0 mjatla muninn ni\u00f0ur og komust meira a\u00f0 segja \u00ed f\u00e6ri til a\u00f0 n\u00e1 forystunni undir lok fyrri h\u00e1lfleiks en sta\u00f0an \u00ed hl\u00e9i var j\u00f6fn, 11:11.<\/p><p>\u00dea\u00f0 var opi\u00f0 \u00fat \u00ed f\u00f3tboltast\u00fakuna og \u00feanga\u00f0 gengu margir til a\u00f0 hv\u00edla eyrun. Handboltaleikjum fylgir j\u00fa \u00e6randi h\u00e1va\u00f0i og \u00ed hvert sinn sem skr\u00fabba \u00fearf upp svita er hlj\u00f3\u00f0kerfi\u00f0 \u00feani\u00f0 af handboltarokki, sem er safnheiti allrar hvimlei\u00f0ustu t\u00f3nlistar sem saman hefur veri\u00f0 og h\u00e6gt er a\u00f0 blasta \u00ed t\u00edu sek\u00fandna b\u00fatum. \u00dat um alla ganga m\u00e1tti sj\u00e1 Hafnfir\u00f0inga opinmynnta d\u00e1st a\u00f0 hinum gl\u00e6silegu h\u00fasakynnum og m\u00e1tti sj\u00e1 \u00fe\u00e1 reikna \u00ed kollinum hva\u00f0 \u00feeir g\u00e6tu selt b\u00e6jarstj\u00f3rninni sinni \u00feau fyrir mikinn pening og hversu oft. \u00cd Bar-8unni (sem heitir \u00f6rugglega eitthva\u00f0 anna\u00f0 \u00e1 handboltaleikjum) var \u00deorgr\u00edmur Sm\u00e1ri \u00e1 d\u00e6lunum me\u00f0 s\u00ednu f\u00f3lki. Fr\u00e9ttaritarinn fann loks kunnugleg andlit, \u00fear sem Valt\u00fdr Bj\u00f6rn, Snorri M\u00e1r og mamma Gu\u00f0j\u00f3nssona s\u00e1tu vi\u00f0 bor\u00f0. \u00deeim var enn hl\u00e1tur \u00ed hug eftir sigurinn \u00e1 FH-ingum \u00ed bikarnum.<\/p><p>Seinni h\u00e1lfleikur byrja\u00f0i og allt var \u00e1fram \u00ed j\u00e1rnum. Jafnt var \u00e1 flestum t\u00f6lum og li\u00f0in skiptust \u00e1 a\u00f0 hafa forystuna. Markver\u00f0irnir voru \u00ed a\u00f0alhlutverkum, Breki okkar megin og einhver \u00ed gulri peysu hinu megin. \u00cd f\u00f3tboltask\u00fdrslunum er \u00fea\u00f0 me\u00f0vita\u00f0 st\u00edlbrag\u00f0 a\u00f0 nafngreina aldrei leikmenn andst\u00e6\u00f0inganna. \u00dea\u00f0 er ekki raunin \u00ed \u00feessu tilviki \u2013 \u00e9g \u00feekki einfaldlega enga FH-handboltamenn og hef eiginlega ekki gert s\u00ed\u00f0an \u00deorgils \u00d3ttar og Gunnar Beinteinsson h\u00e6ttu a\u00f0 spila&#8230;<\/p><p>Gestirnir komust s\u00ed\u00f0ast yfir \u00ed leiknum \u00ed st\u00f6\u00f0unni 18:19 \u00feegar fimm m\u00edn\u00fatur voru eftir. \u00deeir virtust vera a\u00f0 n\u00e1 undirt\u00f6kunum og \u00fea\u00f0 \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 vi\u00f0 hef\u00f0um komi\u00f0 \u00e1 happab\u00edlnum hans Adda og lagt \u00ed lukkust\u00e6\u00f0inu? \u00cd st\u00f6\u00f0unni 19:19 var\u00f0i Breki gl\u00e6silega \u00far dau\u00f0af\u00e6ri og t\u00e6par \u00ferj\u00e1r m\u00edn\u00fatur eftir. FH-stu\u00f0ningsmannasveitin haf\u00f0i greinilega unni\u00f0 undirb\u00faningsvinnu s\u00edna vel og spurt sig: hva\u00f0 \u00ed ver\u00f6ldinni g\u00e6ti veri\u00f0 hvimlei\u00f0ara en ma\u00f0ur a\u00f0 garga \u00ed gjallarhorn fr\u00e1 fyrstu m\u00edn\u00fatu? Og svari\u00f0 var au\u00f0vita\u00f0: tveir menn a\u00f0 garga \u00ed tv\u00f6 gjallarhorn allan t\u00edmann. Stu\u00f0ningsk\u00f6llin voru ansi m\u00f6rg \u00e1 neikv\u00e6\u00f0um n\u00f3tum, \u00fear sem a\u00f0alorkan f\u00f3r \u00ed a\u00f0 baula \u00e1 m\u00f3therja sem l\u00e1gu meiddir \u00e1 g\u00f3lfinu og svo haf\u00f0i li\u00f0i\u00f0 s\u00e9rstaklega gaman af \u00fev\u00ed a\u00f0 syngja: \u201eR\u00fanar K\u00e1rason \u2013 \u00fe\u00fa getur ekki neitt!\u201c<\/p><p>\u00dea\u00f0 \u00fearf varla l\u00e1gmarkskunn\u00e1ttu \u00e1 fyrirb\u00e6rinu jinxi til a\u00f0 vita a\u00f0 svona k\u00f6ll enda alltaf \u00ed t\u00e1rum. Og \u00e1 58. m\u00edn\u00fatu, \u00feegar s\u00f3kn Fram virtist \u00e1 lei\u00f0inni \u00ed \u00f3g\u00f6ngur \u00feruma\u00f0i R\u00fanar K\u00e1rason a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u \u2013 n\u00fdkominn inn\u00e1 \u2013 og skora\u00f0i 20:19. N\u00e6r komust gestirnir ekki og a\u00f0 lokum var\u00f0 munurinn \u00ferj\u00fa m\u00f6rk, 22:19. Sta\u00f0an \u00ed einv\u00edginu er 2:0 og okkar menn geta kl\u00e1ra\u00f0 d\u00e6mi\u00f0 \u00e1 sumardaginn fyrsta. Tveir sigrar \u00e1 FH \u00e1 \u00feremur d\u00f6gum eru alveg n\u00e6s, en viti\u00f0i hva\u00f0 v\u00e6ri jafnvel enn meira n\u00e6s? \u00der\u00edr sigrar \u00e1 fj\u00f3rum d\u00f6gum! M\u00e6tum \u00f6ll og sty\u00f0jum f\u00f3tboltastelpurnar \u00ed s\u00ednum fyrsta heimaleik \u00e1 \u00feri\u00f0judag kl. 18.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u201eHvernig v\u00e6ri a\u00f0 Fr\u00e9ttaritarinn f\u00e6ri n\u00fa einu sinni a\u00f0 l\u00e1ta sj\u00e1 sig \u00e1 handboltaleik?\u201c \u2013 spur\u00f0i afar \u00e1kve\u00f0inn Haraldur \u00deorvar\u00f0arson fyrir bikarleikinn milli Fram og FH um helgina. \u00deetta var [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":43737,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[6,19],"tags":[],"class_list":["post-43736","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-handbolti","category-mfl-karla"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/04\/Ahorfendur-i-Dalnum.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/43736","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=43736"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/43736\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":43741,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/43736\/revisions\/43741"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/43737"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=43736"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=43736"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=43736"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}