{"id":43896,"date":"2025-04-28T23:13:47","date_gmt":"2025-04-28T23:13:47","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=43896"},"modified":"2025-04-28T23:14:20","modified_gmt":"2025-04-28T23:14:20","slug":"kitty-kitty-bang-bang","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2025\/04\/28\/kitty-kitty-bang-bang\/","title":{"rendered":"Kitt\u00fd-Kitt\u00fd-Bang-Bang"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"43896\" class=\"elementor elementor-43896\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-78034981 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"78034981\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-38f8215\" data-id=\"38f8215\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-ceac9be elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"ceac9be\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p>Menningarsagan hefur a\u00f0 geyma margar fr\u00e6gar bifrei\u00f0ar. Breski spennusagnah\u00f6fundurinn rita\u00f0i eftirminnilega b\u00f3k um Kitt\u00fd-Kitt\u00fd-Bang-Bang sem s\u00ed\u00f0ar var kvikmyndu\u00f0 me\u00f0 Dick Van Dyke \u00ed a\u00f0alhlutverki. A\u00f0rir muna eftir f\u00f3lksvagen bj\u00f6llunni Herbie, sem stal hj\u00f6rtum \u00e1horfenda \u00ed hverri myndinni \u00e1 f\u00e6tur annarri. Og svo fari\u00f0 s\u00e9 n\u00e6r okkur \u00ed t\u00edma m\u00e6tti rifja upp Heimas\u00e6tu \u00c1rna K\u00f3pssonar sem sp\u00e6ndi upp allar torf\u00e6rubrekkurnar. N\u00fa er kominn fj\u00f3r\u00f0i ten\u00f3rinn \u00ed kvartettinn: happab\u00edllinn hans Adda \u00ed bankanum. Meira um \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0ar.<\/p><p>Fr\u00e9ttaritarinn var seinn \u00ed \u00dalfars\u00e1rdalinn \u00ed kv\u00f6ld, eftir a\u00f0 hafa veri\u00f0 fastur \u00e1 p\u00f3lit\u00edskum plottfundum \u00ed R\u00e1\u00f0h\u00fasinum mestallan daginn. \u00c1 lei\u00f0inni uppeftir komst a\u00f0eins ein hugsun a\u00f0: Framstr\u00e1kar eru komnir \u00ed \u00farslitaeinv\u00edgi\u00f0 um \u00cdslandsmeistaratitilinn \u00ed handboltanum! Hah!<\/p><p>\u00dea\u00f0 var enn kort\u00e9r \u00ed leik \u00feegar lafm\u00f3\u00f0ur Fr\u00e9ttaritarinn m\u00e6tti \u00e1 Lambhagav\u00f6llinn. Skjaldsveinninn Valur Nor\u00f0ri var \u00feegar m\u00e6ttur \u00ed Bar8una og Rabbi trymbill kom sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar me\u00f0 annan soninn, \u00feeir fe\u00f0gar stunda \u00fea\u00f0 oft a\u00f0 skella s\u00e9r \u00ed sund \u00ed Dalslauginni fyrir leiki. Hersingin f\u00e9kk s\u00edn hef\u00f0bundnu s\u00e6ti, alveg vi\u00f0 mi\u00f0l\u00ednuna \u00ed \u00feri\u00f0ju efstu r\u00f6\u00f0. P\u00e9tur Ormslev var \u00f6rl\u00edti\u00f0 innar og Geiramenn skammt undan me\u00f0 gjallarhorn. \u00dea\u00f0 er r\u00e9tt m\u00f6gulegt a\u00f0 Fr\u00e9ttaritarinn hafi l\u00e1ti\u00f0 lj\u00f3t or\u00f0 falla um gjallarhorn \u00ed n\u00fdlegum handboltapistli, en vi\u00f0 skulum l\u00e1ta \u00fea\u00f0 liggja \u00e1 milli hluta.<\/p><p>Framli\u00f0i\u00f0 var svipa\u00f0 og \u00ed \u00f3ve\u00f0ursleiknum \u00ed Eyjum. Viktor Freyr byrja\u00f0i \u00ed markinu \u00feri\u00f0ja leikinn \u00ed r\u00f6\u00f0. Eins og fram hefur komi\u00f0 \u00ed fr\u00e9ttum hefur \u00d3li \u00cdsh\u00f3lm \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 r\u00f3a \u00e1 \u00f6nnur mi\u00f0. Honum eru k\u00e6rlega \u00fe\u00f6kku\u00f0 g\u00f3\u00f0 st\u00f6rf. \u00d3li \u00e1tti gl\u00e6silegan feril hj\u00e1 okkur og var til a\u00f0 mynda valinn \u00cd\u00fer\u00f3ttama\u00f0ur Fram eitt \u00e1ri\u00f0, sem \u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0 hann mun alltaf eiga sess \u00ed hj\u00f6rtum okkar. Hvert var \u00e9g kominn? J\u00e1 \u2013 Israel, Sigurj\u00f3n og Kyle voru \u00ed hjarta varnarinnar. Halli og M\u00e1r s\u00f3knarbakver\u00f0ir. Kennie, Fred og Simon \u00e1 mi\u00f0junni. Vuk og Mingi frammi. Ve\u00f0ri\u00f0 au\u00f0vita\u00f0 fr\u00e1b\u00e6rt eins og alltaf \u00e1 k\u00e1lbe\u00f0inu, sm\u00e1 strekkingur \u00fati \u00e1 velli en ekkert sem fannst \u00ed st\u00fakunni. V\u00f6llurinn var bleyttur r\u00e6kilega fyrir leikinn og jafnvel um of, \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta voru leikmenn unnv\u00f6rpum a\u00f0 flj\u00faga \u00e1 hausinn \u00ed \u00f6\u00f0ru horninu.<\/p><p>Leikurinn byrja\u00f0i me\u00f0 l\u00e1tum og strax \u00e1 fyrstu m\u00edn\u00fatu var Magn\u00fas Ingi skyndilega kominn einn \u00e1 m\u00f3ti Aftureldingarmarkver\u00f0inum en var\u00f0 l\u00edklega jafn undrandi og allir a\u00f0rir og skaut beint \u00e1 hann. Fimm m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar enda\u00f0i boltinn \u00ed Aftureldingarmarkinu eftir f\u00ednasta skalla fr\u00e1 Kyle eftir sendingu fr\u00e1 Kennie, en rangst\u00f6\u00f0uflaggi\u00f0 var komi\u00f0 \u00e1 loft. Framarar byrju\u00f0u miklu \u00e1kve\u00f0nar og s\u00f3ttu \u00ed s\u00edfellu. Viti\u00f0i hverjir a\u00f0rir eru mj\u00f6g \u00e1kve\u00f0nir? J\u00fa, handboltastr\u00e1karnir okkar sem eru komnir \u00ed \u00farslitaeinv\u00edgi\u00f0 um \u00cdslandsmeistaratitilinn!<\/p><p>\u00c1 t\u00edundu m\u00edn\u00fatu t\u00f3k Halli eina af t\u00f3lfhundru\u00f0 horsnspyrnum okkar \u00ed leiknum. Boltinn hr\u00f6kk aftur til hans og hann l\u00e9k lengst inn \u00ed teig Mosfellinga \u00e1\u00f0ur en hann l\u00e9t va\u00f0a en r\u00e9tt yfir. Eitthva\u00f0 hlaut flj\u00f3tlega undan a\u00f0 l\u00e1ta.<\/p><p>Eftir tuttugu m\u00edn\u00fatna leik brotnu\u00f0u gestirnir loksins. Vuk l\u00e9k upp a\u00f0 endam\u00f6rkum og \u00e1tti fallega sendingu fyrir marki\u00f0 sem Kennie skalla\u00f0i au\u00f0veldlega framhj\u00e1 Aftureldingarmarkver\u00f0inum, sta\u00f0an 1:0. Loksins, loksins f\u00f3r allt \u00ferennt saman: Frammark, Fr\u00e9ttaritarinn og skjaldsveinninn me\u00f0 markafleyginn \u00ed st\u00fakunni. Einm\u00f6ltungurinn \u00ed fleygnum, sem upphaflega var t\u00f3lf \u00e1ra Eyjavisk\u00fd, er \u00f6rugglega or\u00f0i\u00f0 \u00ferett\u00e1n n\u00fana&#8230;<\/p><p>\u00der\u00e1tt fyrir a\u00f0 vera \u00ed t\u00f3mu basli varnarlega \u00e1ttu gestirnir eina og eina s\u00f3kn. \u00deegar fyrri h\u00e1lfleikur var r\u00e9tt h\u00e1lfna\u00f0ur var\u00f0i Viktor me\u00f0 til\u00ferifum fr\u00e1 einum rau\u00f0kl\u00e6ddum, en flaggi\u00f0 var reyndar komi\u00f0 \u00e1 loft. \u00dea\u00f0 sama ger\u00f0ist hinu megin \u00e1 vellinum \u00fear sem Vuk \u00e1tti bylmingsskot sem var vari\u00f0 en rangsta\u00f0a fl\u00f6ggu\u00f0 \u00e1 samherja hans.<\/p><p>Viktor og Framv\u00f6rnin lentu \u00ed t\u00f3mu brasi \u00ed kringum 31. m\u00edn\u00fatu \u00feegar gestirnir fengu hvert dau\u00f0af\u00e6ri\u00f0 \u00e1 f\u00e6tur \u00f6\u00f0ru en v\u00f6rslur og hetjulegur varnarleikur for\u00f0u\u00f0u marki trekk \u00ed trekk? Voru Mosfellingar a\u00f0 komast inn \u00ed leikinn og h\u00f3ta a\u00f0 jafna gegn Fr\u00f6murum \u2013 li\u00f0inu sem er komi\u00f0 \u00ed \u00farslitaeinv\u00edgi\u00f0 um \u00cdslandsmeistaratitilinn \u00ed handbolta? Melirnir? \u2013 Onei, kjaftsh\u00f6gg n\u00famer tv\u00f6 kom \u00e1 35 m\u00edn\u00fatu eftir fr\u00e1b\u00e6ran samleik hj\u00e1 Halla og Vuk sem splundru\u00f0u v\u00f6rninni. Vuk, sem Fr\u00e9ttaritarinn vill kr\u00fdna sem mann leiksins, sendi boltann \u00e1 Kyle sem skora\u00f0i aldrei \u00feessu vant me\u00f0 f\u00f3tunum \u00ed autt markhorni\u00f0, 2:0.<\/p><p>Okkar allra besti Fred f\u00f3r \u00ed smi\u00f0ju Maradona \u00e1 40. m\u00edn\u00fatu \u00feegar hann s\u00f3la\u00f0i hvern Aftureldingarmanninn \u00e1 f\u00e6tur \u00f6\u00f0rum og l\u00e9t svo va\u00f0a en markv\u00f6r\u00f0ur gestanna \u00e1tti enn eina fr\u00e1b\u00e6ra v\u00f6rsluna. Beint \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 n\u00e1\u00f0i sami markv\u00f6r\u00f0ur a\u00f0 blaka framhj\u00e1 skalla fr\u00e1 Minga \u00ed gullfallegri s\u00f3kn sem Kennie byrja\u00f0i me\u00f0 meistaralegri h\u00e6lspyrnu \u00fati vi\u00f0 hli\u00f0arl\u00ednu. \u00c1 markam\u00edn\u00fatunni var skot fr\u00e1 Fred vari\u00f0, boltinn hr\u00f6kk til M\u00e1s sem n\u00e1\u00f0i ekki skoti \u00far uppl\u00f6g\u00f0u t\u00e6kif\u00e6ri. H\u00e1lfleikssta\u00f0an hef\u00f0i sem best geta\u00f0 veri\u00f0 7:0.<\/p><p>\u00cd hl\u00e9i var aftur haldi\u00f0 \u00ed Bar8una. \u00dear var Halli \u00deorvar\u00f0ar, enn\u00fe\u00e1 dasa\u00f0ur eftir g\u00e6rkv\u00f6ldi\u00f0. Mundi \u00e9g eftir a\u00f0 segja ykkur fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 li\u00f0i\u00f0 hans var a\u00f0 s\u00f3pa FH-ingum \u00fat \u00far \u00farslitakeppninni \u00ed handboltanum? Af \u00f6\u00f0rum fr\u00e6gum m\u00e6tti nefna Kristj\u00e1n Frey rokkstj\u00f3ra og sj\u00e1lfan \u00d3skar me\u00f0 hattinn (reyndar me\u00f0 h\u00fafu en ekki hatt a\u00f0 \u00feessu sinni) \u00ed f\u00e1g\u00e6tri heims\u00f3kn fr\u00e1 Amer\u00edkuhreppi. \u00d3skar var \u00ed sk\u00fdjunum me\u00f0 leik okkar manna. Vi\u00f0 samm\u00e6ltumst um a\u00f0 Vuk v\u00e6ri fr\u00e1b\u00e6r og a\u00f0 finna \u00feyrfti sta\u00f0 fyrir styttuna af Fred.<\/p><p>\u00dea\u00f0 var l\u00edtil von til a\u00f0 seinni h\u00e1lfleikurinn yr\u00f0i jafnfj\u00f6rugur og s\u00e1 fyrra, \u00fear sem Framarar hlytu a\u00f0 reyna a\u00f0 drepa leikinn ni\u00f0ur. Gestirnir neyddust til a\u00f0 gera breytingu, \u00fear sem markv\u00f6r\u00f0ur \u00feeirra haf\u00f0i mei\u00f0st og annar og \u00f6llu l\u00e1gvaxnari kom \u00ed sta\u00f0inn \u00e1 milli stanganna. \u00dea\u00f0 fyrsta markver\u00f0a \u00e1tti s\u00e9r \u00fe\u00f3 ekki sta\u00f0 fyrr en \u00e1 53. m\u00edn\u00fatu \u00feegar M\u00e1si virtist sloppinn einn \u00ed gegn, var rifinn ni\u00f0ur en d\u00f3marinn \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 l\u00e1ta gult spjald n\u00e6gja. Upp \u00far aukaspyrnunni f\u00e9kk Kyle boltann einhvern veginn \u00e1 au\u00f0um sj\u00f3 einn \u00e1 m\u00f3ti markmanni, en \u00e1kva\u00f0 greinilega a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri of mikil sp\u00e6ling ef mi\u00f0v\u00f6r\u00f0urinn myndi skora tvisvar me\u00f0 l\u00f6ppunum \u00ed sama leiknum og setti hann au\u00f0veldlega \u00ed belginn \u00e1 \u00feeim stutta.<\/p><p>\u00deegar \u00ferett\u00e1n m\u00edn\u00fatur voru li\u00f0nar af seinni h\u00e1lfleik virtust gestirnir \u00e6tla a\u00f0 minnka muninn \u00feegar Kennie n\u00e1\u00f0i a\u00f0 bjarga \u00e1 l\u00ednu me\u00f0 svokalla\u00f0ri Alexander Pettersons-v\u00f6rslu (Hver er hann, hva\u00f0an er hann a\u00f0 koma o.s.frv&#8230;) \u2013 og \u00far horninu \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 var Afturelding n\u00e6rri b\u00fai\u00f0 a\u00f0 skora. Eftir \u00feetta h\u00e6g\u00f0ist verulega \u00e1 leiknum og s\u00edfellt fleiri leikmenn s\u00fdndu merki \u00f6rm\u00f6gnunnar. Fred virtist gj\u00f6rsamlega b\u00fainn \u00e1 \u00fev\u00ed, n\u00fdstiginn upp \u00far mei\u00f0slum og \u00fev\u00ed n\u00e1nast vinnuverndarm\u00e1l a\u00f0 kippa honum \u00fataf. \u00dej\u00e1lfarateymi\u00f0 var hins vegar ekki \u00e1 \u00feeim buxunum. Fyrsta skipting okkar kom \u00e1 72. m\u00edn\u00fatu og \u00fe\u00e1 var \u00fea\u00f0 Mingi sem f\u00f3r \u00fat af fyrir upp\u00e1haldsskaftfelling okkar allra: Frey.<\/p><p>Freyr haf\u00f0i veri\u00f0 inn\u00e1 \u00ed tv\u00e6r m\u00edn\u00fatur \u00feegar Aftureldingarmenn misstu fr\u00e1 s\u00e9r boltann \u00e1 st\u00f3rh\u00e6ttulegum sta\u00f0. Freyr, sem virtist hreinlega hafa teki\u00f0 st\u00f6\u00f0u Minga frammi, skaust einn \u00ed gegn og s\u00fdndi svo mikla \u00f3eigingirni me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 renna boltanum til hli\u00f0ar \u00e1 Vuk sem skora\u00f0i au\u00f0veldlega \u00ed t\u00f3mt marki\u00f0, 3:0. \u00d3, hva\u00f0 vi\u00f0 sungum og d\u00f6nsu\u00f0um. \u00c9g man hreinlega ekki hven\u00e6r \u00fea\u00f0 ger\u00f0ist s\u00ed\u00f0ast \u2013 nema \u00fe\u00e1 kannski \u00ed g\u00e6rkv\u00f6ldi \u00feegar handboltastr\u00e1karnir okkar trygg\u00f0u s\u00e9r s\u00e6ti \u00ed \u00farslitaeinv\u00edginu um \u00cdslandsmeistaratitilinn. (S\u00fdni\u00f0 \u00feessu umbur\u00f0arlyndi \u2013 \u00fea\u00f0 er endurtekningin sem gerir \u00feetta a\u00f0 lokum sni\u00f0ugt.)<\/p><p>Gestirnir komust \u00ed dau\u00f0af\u00e6ri fimm m\u00edn\u00fatum eftir \u00feri\u00f0ja marki\u00f0 en Viktor sl\u00f3 boltann \u00ed st\u00f6ngina og \u00fataf. \u00c1 \u00feessum t\u00edmapunkti virtist nokku\u00f0 lj\u00f3st a\u00f0 Mosfellingar g\u00e6tu spila\u00f0 til fimmt\u00e1nda ma\u00ed \u00e1n \u00feess a\u00f0 skora. Hvers vegna fimmt\u00e1nda ma\u00ed? J\u00fa, vegna \u00feess a\u00f0 \u00feann dag munu Framstr\u00e1karnir hefja leik \u00ed \u00farslitaeinv\u00edginu um \u00cdslandsmeistaratitilinn \u2013 d\u00f6h!<\/p><p>R\u00fanar f\u00f3r \u00ed \u00ferefalda skiptingu eftir \u00feessa snilldarmarkv\u00f6rslu. Krist\u00f3fer, Gummi Magg og \u00deorri komu allir inn\u00e1 fyrir M\u00e1sa, Vuk og Israel. Aumingja Fred f\u00e9kk a\u00f0 \u00fej\u00e1st \u00e1fram inn\u00e1, en hann var l\u00edka farinn a\u00f0 breg\u00f0a s\u00e9r \u00ed hlutverk aftasta varnarmanns inn\u00e1 milli. Hv\u00edl\u00edkur \u00ed\u00fer\u00f3ttama\u00f0ur! \u00deegar fj\u00f3rar m\u00edn\u00fatur voru eftir af hef\u00f0bundnum leikt\u00edma var skrokkurinn \u00e1 okkar manni endanlega b\u00fainn a\u00f0 f\u00e1 n\u00f3g og hann skipti vi\u00f0 Tryggva, sem gaman var a\u00f0 sj\u00e1 aftur eftir langt hl\u00e9. Einhver f\u00e6ri komu \u00e1 b\u00e1\u00f0a b\u00f3ga en \u00feau skipta ekki m\u00e1li \u00ed st\u00f3ra samhenginu. Afskaplega sannf\u00e6randi Framsigur var sta\u00f0reynd. Kennie var valinn ma\u00f0ur leiksins af vallar\u00feul \u2013 og vissulega var hann fr\u00e1b\u00e6r, einkum \u00ed fyrri h\u00e1lfleik. Fr\u00e9ttaritarinn tilnefnir l\u00edka Fred, Sigurj\u00f3n, Halla og Viktor markmann \u2013 \u00fe\u00f3tt Vuk hafi vinninginn.<\/p><p>Ziggi-zaggi var samviskusamlega sunginn og \u00e1 lei\u00f0inni \u00fat m\u00e1tti Fr\u00e9ttaritarinn hafa sig allan vi\u00f0 a\u00f0 h\u00e6-f\u00e6va mann og annan \u2013 \u00fear me\u00f0 tali\u00f0 Adda \u00ed bankanum, sem m\u00e6tti a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u \u00e1 happab\u00edlnum \u00ed kv\u00f6ld og \u00ed g\u00e6r. B\u00edddu \u2013 af hverju \u00ed g\u00e6r? J\u00fa, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 var \u00fe\u00e1 sem handboltastr\u00e1karnir \u00ed Fram trygg\u00f0u s\u00e9r s\u00e6ti \u00ed \u00farslitaeinv\u00edginu um \u00cdslandsmeistaratitilinn. \u00dea\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 tapa me\u00f0 svona b\u00edl \u00e1 planinu.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Menningarsagan hefur a\u00f0 geyma margar fr\u00e6gar bifrei\u00f0ar. Breski spennusagnah\u00f6fundurinn rita\u00f0i eftirminnilega b\u00f3k um Kitt\u00fd-Kitt\u00fd-Bang-Bang sem s\u00ed\u00f0ar var kvikmyndu\u00f0 me\u00f0 Dick Van Dyke \u00ed a\u00f0alhlutverki. A\u00f0rir muna eftir f\u00f3lksvagen bj\u00f6llunni Herbie, [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":43897,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-43896","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/04\/Fred-gegn-IA-.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/43896","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=43896"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/43896\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":43901,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/43896\/revisions\/43901"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/43897"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=43896"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=43896"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=43896"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}