{"id":44660,"date":"2025-06-23T23:39:10","date_gmt":"2025-06-23T23:39:10","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=44660"},"modified":"2025-07-01T10:06:17","modified_gmt":"2025-07-01T10:06:17","slug":"breitt-bak","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2025\/06\/23\/breitt-bak\/","title":{"rendered":"Breitt bak"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"44660\" class=\"elementor elementor-44660\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-7bd2ccad elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"7bd2ccad\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-1647ae0a\" data-id=\"1647ae0a\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-7932b07e elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"7932b07e\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p>K\u00f3pavogsfundurinn var haldinn sumari\u00f0 1662 \u00e1 \u00feeim sl\u00f3\u00f0um \u00fear sem vestari v\u00edtateigur K\u00f3pavogsvallar er \u00ed dag. \u00dear l\u00e9t har\u00f0dr\u00e6gur hir\u00f0stj\u00f3ri danska konungsvaldsins \u00edslenska \u00feingmenn undirgangast einveldi konungs. Gamall ma\u00f0ur felldi t\u00e1r, ef marka m\u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0ernissinna\u00f0ar kennslub\u00e6kur sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isbar\u00e1ttunnar. Endursko\u00f0unarsinna\u00f0ir sagnfr\u00e6\u00f0ingar bentu \u00fe\u00f3 s\u00ed\u00f0ar \u00e1 a\u00f0 heimildir fyrir t\u00e1rfellingum og vol\u00e6\u00f0i \u00e1 K\u00f3pavogsfundi st\u00e6\u00f0u \u00e1 veikum sagnfr\u00e6\u00f0ilegum grunni. \u00devert \u00e1 m\u00f3ti hafi flugeldum veri\u00f0 skoti\u00f0 \u00e1 loft af \u00feessu tilefni. Hva\u00f0 sem \u00feessum meiningarmun l\u00ed\u00f0ur eru flestir samm\u00e1la um \u00fe\u00e1 ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u a\u00f0 K\u00f3pavogsfundurinn hafi s\u00f6kka\u00f0 feitt. Hann hafi jafnvel s\u00f6kka\u00f0 feitast af \u00f6llum atbur\u00f0um \u00e1 st\u00f3r-K\u00e1rsnessv\u00e6\u00f0inu \u00fear til a\u00f0 \u00f3d\u00fdr v\u00edtaspyrna r\u00e6ndi Framara tveimur af \u00feremur stigum \u00e1 dramat\u00edsku j\u00fan\u00edkv\u00f6ldi \u00e1ri\u00f0 2025. \u00deetta er fr\u00e1s\u00f6gnin af \u00fev\u00ed.<\/p><p>\u00dea\u00f0 var mikill spenningur fyrir leik \u00cdslandsmeistara sumarsins 2024 og Evr\u00f3pumeistara bikarhafa 2026 \u00ed K\u00f3pavoginum \u00ed kv\u00f6ld. Fr\u00e9ttaritarinn, h\u00e1lfsteiktur \u00ed kollinum eftir mara\u00feonfundi \u00ed allan dag, \u00fe\u00e1\u00f0i far fr\u00e1 Skjaldsveininum \u00e1 v\u00f6llinn. Hann kom \u00e1 bens\u00ednskr\u00edmslinu sem br\u00e6\u00f0ir heilu j\u00f6klana vi\u00f0 \u00fea\u00f0 eitt a\u00f0 kveikt s\u00e9 \u00e1 \u00fatvapinu. \u00deeir fundu st\u00e6\u00f0i \u00e1 v\u00edsum sta\u00f0 vi\u00f0 F\u00edfuhvammsveginn og r\u00f6ltu \u00fea\u00f0an \u00e1 v\u00f6llinn til fundar vi\u00f0 Rabba trymbil sem var m\u00e6ttur \u00e1 hj\u00f3li.<\/p><p>Blikar eru h\u00f6f\u00f0ingjar heim a\u00f0 s\u00e6kja. A\u00f0sta\u00f0an bak vi\u00f0 st\u00fakuna er til fyrirmyndar og veitingasalan pr\u00fd\u00f0ileg. \u00dea\u00f0 var hugur \u00ed Fr\u00f6murum enda gengur \u00e1g\u00e6tlega \u00fati \u00e1 vellinum um \u00feessar mundir. Fram hefur gott tak \u00e1 Blikum og hefur oft \u00fejarma\u00f0 vel a\u00f0 \u00feeim s\u00ed\u00f0ustu misserin.<\/p><p>Byrjunarli\u00f0i\u00f0 var svipa\u00f0 og \u00ed bikarsigrinum \u00ed Mos\u00f3 me\u00f0 \u00feeirri undantekningu a\u00f0 Freyr byrja\u00f0i inn\u00e1 fyrir M\u00e1 og \u00deorri fyrir Israel. Li\u00f0suppstillingin var \u00fev\u00ed \u00e1 \u00feessa lei\u00f0: Viktor \u00ed marki. \u00deorry, Kyle og Sigurj\u00f3n \u00ed \u00f6ftustu varnarl\u00ednu. Halli og Kennie \u00ed bakv\u00f6r\u00f0um. Freyr, Simon og Fred \u00e1 mi\u00f0junni. R\u00f3bert og Vuk frammi.<\/p><p>Skytturnar \u00ferj\u00e1r fengu s\u00e9r s\u00e6ti Frammegin \u00ed st\u00fakunni. Blikinn Gylfi Steinn, \u00fej\u00e1ningarbr\u00f3\u00f0ir fr\u00e9ttaritarans \u00ed Luton-stu\u00f0ningi, \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 sv\u00edkja lit og sitja me\u00f0 h\u00f3pnum. \u00cdvar Gu\u00f0j\u00f3nsson kom \u00feegar nokku\u00f0 var li\u00f0i\u00f0 \u00e1 leik og sat milli h\u00f3psins og m\u00f6mmu sinnar. \u00cd r\u00f6\u00f0inni fyrir aftan var bland \u00ed poka af \u00edslensku b\u00f3kmenntael\u00edtunni og Coventry-stu\u00f0ningingsm\u00f6nnum. Haukur, pabbi R\u00f3berts, sat tveimur bekkjum framar og l\u00e9t \u00f3fri\u00f0lega.<\/p><p>Gr\u00e6nkl\u00e6ddir komu \u00e1kve\u00f0nari til leiks og pressu\u00f0u talsvert fyrsta kort\u00e9ri\u00f0. Framv\u00f6rnin kvika\u00f0i hins vegar hvergi og strax \u00ed upphafi kom \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 \u00feeir Sigurj\u00f3n og \u00deorri \u00e6tlu\u00f0u hvergi a\u00f0 l\u00e1ta sig. \u00deeir voru b\u00e1\u00f0ir fr\u00e1b\u00e6rir \u00ed leiknum og sl\u00e1st um titilinn ma\u00f0ur leiksins. Eftir nokkra \u00e1gj\u00f6f \u00ed byrjun f\u00f3ru okkar menn a\u00f0 fikra sig framar. Fyrsta alv\u00f6ru s\u00f3knarlotan kom \u00e1 fimmt\u00e1ndu m\u00edn\u00fatu \u00feegar Fred komst \u00ed \u00e1litlegt f\u00e6ri en langskot hans f\u00f3r beint \u00e1 markv\u00f6r\u00f0 UBK. (Skammst\u00f6funin UBK er einungis notu\u00f0 \u00ed \u00feessum pistli h\u00e9r og s\u00ed\u00f0ar \u00ed lj\u00f3si \u00feess a\u00f0 h\u00fan fer einhverra hluta vegna \u00f3stj\u00f3rnlega \u00ed taugarnar \u00e1 Blikum).<\/p><p>Um mi\u00f0bik h\u00e1lfleiksins komu nokkrar g\u00f3\u00f0ar s\u00f3knarlotur Fram \u00ed r\u00f6\u00f0. R\u00f3bert sauma\u00f0i a\u00f0 markver\u00f0i UBK (Hah! \u00c9g ger\u00f0i \u00fea\u00f0 aftur!) og var n\u00e6rri \u00fev\u00ed a\u00f0 vinna boltann \u00ed dau\u00f0af\u00e6ri. Kennie og \u00deorri l\u00e9ku saman og s\u00e1 fyrrnefndi skaut naumlega framhj\u00e1 og efnileg s\u00f3knarlota \u00feeirra Freys, Vuk og Halla fjara\u00f0i a\u00f0 lokum \u00fat. Langbesta f\u00e6ri\u00f0 leit \u00fe\u00f3 dagsins lj\u00f3s \u00e1 27. m\u00edn\u00fatu \u00feegar Freyr skaut h\u00e1tt yfir \u00far gullnu f\u00e6ri eftir f\u00ednan undirb\u00faning Halla og Vuk. \u00c1 lokam\u00edn\u00fatu fyrri h\u00e1lfleiks \u00e1tti UBK-markv\u00f6r\u00f0urinn (\u00feetta h\u00e6ttir ekki a\u00f0 vera fyndi\u00f0!) st\u00f3rkostlega v\u00f6rslu \u00feegar Kennie skalla\u00f0i alveg \u00fati vi\u00f0 st\u00f6ng.<\/p><p>Flauta\u00f0 var til h\u00e1lfleiks og Framarar g\u00e1tu me\u00f0 nokkrum r\u00e9tti tali\u00f0 sig betra li\u00f0i\u00f0 fyrir hl\u00e9. J\u00faj\u00fa, au\u00f0vita\u00f0 h\u00f6f\u00f0u Blikar \u00e1tt s\u00edn f\u00e6ri \u00fe\u00f3tt \u00feau hafi ekki rata\u00f0 inn \u00ed \u00feessa sk\u00fdrslu. \u00deau sem kynnu a\u00f0 hafa \u00e1huga \u00e1 a\u00f0 lesa um sl\u00edkt geta bara fari\u00f0 inn \u00e1 heimas\u00ed\u00f0u Brei\u00f0abliks og lesi\u00f0 greinarger\u00f0 P\u00e9turs M\u00e1s \u2013 erkikeppinauts Fr\u00e9ttaritarans \u00e1 svi\u00f0i f\u00f3tboltal\u00fdsinga \u00e1 heimas\u00ed\u00f0um knattspyrnuf\u00e9laga me\u00f0 n\u00f6rdalegum b\u00f3kmennta- og sagnfr\u00e6\u00f0iv\u00edsunum.<\/p><p>Seinni h\u00e1lfleikur h\u00f3fst me\u00f0 s\u00f6mu l\u00e1tum og s\u00e1 fyrri haf\u00f0i enda\u00f0. Framarar voru einbeittari og eftir fj\u00f6gurra m\u00edn\u00fatna leik l\u00e1 boltinn \u00ed Blikamarkinu eftir fr\u00e1b\u00e6ra skyndis\u00f3kn. Freyr \u00e1tti g\u00f3\u00f0a sendingu \u00e1 Kennie sem geystist af sta\u00f0 \u2013 sendi s\u00ed\u00f0an \u00e1 Vuk sem renndi boltanum \u00ed neti\u00f0 \u2013 enn eitt marki\u00f0 fr\u00e1 okkar upp\u00e1halds manni \u00far H\u00f3la- og Fellahverfi!<\/p><p>Tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar kom f\u00e6ri aldarinnar \u2013 \u00fear sem Halli sendi inn \u00e1 Frey sem slapp einn \u00ed gegn en \u00feruma\u00f0i \u00ed \u00feversl\u00e1na \u2013 \u00fear hr\u00f6kk boltinn til R\u00f3berts sem n\u00e1\u00f0i einhvern veginn a\u00f0 s\u00f3pa honum yfir marki\u00f0 \u00far opnu f\u00e6ri. \u00cd fyrsta sinn \u00ed s\u00f6gunni hefur ein og sama s\u00f3knin m\u00e6lst me\u00f0 2 \u00ed xG&#8230;<\/p><p>\u201eN\u00e1kv\u00e6mlega hva\u00f0a st\u00f6\u00f0u er Kennie a\u00f0 spila n\u00fana?\u201c\u00a0\u2013 spur\u00f0i undrandi Fr\u00e9ttaritarinn sessunauta s\u00edna. Enginn gat svara\u00f0 spurningunni. L\u00edklega v\u00e6ri hann Messi Framli\u00f0sins \u2013 l\u00e9ki \u00fear sem honum \u00fe\u00f3kna\u00f0ist: bakv\u00f6r\u00f0ur \u00e1n varnarskyldna? Af hverju ekki?<\/p><p>Simon og \u00deorri ger\u00f0u g\u00f3\u00f0a atl\u00f6gu a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 tv\u00f6falda forystuna eftir r\u00e9tt t\u00e6plega klukkut\u00edma leik, en skot \u00feess s\u00ed\u00f0arnefnda var vari\u00f0. Vi\u00f0 \u00feetta ur\u00f0u \u00fe\u00f3 \u00e1kve\u00f0in skil \u00ed leiknum. Blikarnir n\u00e1\u00f0u\u00a0 sl\u00e1arskoti strax \u00e1 n\u00e6stu m\u00edn\u00fatu (utanver\u00f0 sl\u00e1in \u2013 \u00fe\u00f3 vel a\u00f0 merkja!) og upp \u00far \u00fev\u00ed t\u00f3ku Framarar a\u00f0 draga sig verulega aftur \u00e1 v\u00f6llinn.<\/p><p>M\u00e1r kom inn\u00e1 fyrir R\u00f3bert \u00e1 70 m\u00edn\u00fatu, en verulega var \u00fe\u00e1 fari\u00f0 a\u00f0 draga af framherjanum. \u00dea\u00f0 voru \u00fe\u00f3 fleiri \u00fereyttir og fur\u00f0u snemma \u00ed leiknum voru menn farnir a\u00f0 leggjast me\u00f0 krampa \u2013 til marks um \u00f6ll hlaupin og h\u00e1tt temp\u00f3. \u00c1 82. m\u00edn\u00fatu lag\u00f0ist Freyr, sem var gr\u00ed\u00f0arlega mikilv\u00e6gur \u00ed kv\u00f6ld og st\u00f3\u00f0 sig eins og hetja. Israel kom inn\u00e1 fyrir hann og Mingi fyrir Vuk. Fred var kominn a\u00f0 f\u00f3tum fram en \u00feurfti \u00fe\u00f3 a\u00f0 berjast til loka.<\/p><p>T\u00edminn lei\u00f0 og Blikar virtust aldrei s\u00e9rstaklega l\u00edklegir til a\u00f0 jafna metin \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 vera me\u00f0 boltann megni\u00f0 af t\u00edmanum. En \u00e1 88. m\u00edn\u00fatu rei\u00f0 \u00f3g\u00e6fan yfir. Eftir mikinn darra\u00f0ardans vi\u00f0 Frammarki\u00f0, \u00fear sem skoti\u00f0 var \u00ed st\u00f6ng og bjarga\u00f0 \u00e1 l\u00ednu barst boltinn \u00fat \u00ed teiginn \u00fear sem s\u00f3knarma\u00f0ur Blika sparka\u00f0i \u00ed sj\u00e1lfan sig og f\u00e9ll til jar\u00f0ar. D\u00f3marinn flauta\u00f0i v\u00edti \u2013 sem var auglj\u00f3st rugl. \u00dar \u00fev\u00ed kom j\u00f6fnunarmark, sem bl\u00e9s markaskorara UBK (hah!) sl\u00edkt kapp \u00ed kinn a\u00f0 hann \u00e1kva\u00f0 \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 a\u00f0 hrinda Viktori markver\u00f0i og uppskar fyrir viki\u00f0 rautt spjald. \u00cd kj\u00f6lfari\u00f0 hrinti hann skapstillingarmanninum Kyle sem var rekinn \u00fataf fyrir viki\u00f0. R\u00e9ttarmor\u00f0 er hugtak sem n\u00e6r engan veginn yfir atbur\u00f0i \u00feessara m\u00edn\u00fatna.<\/p><p>\u00cd uppb\u00f3tart\u00edmanum kom Arnar Dan\u00edel A\u00f0alsteinsson inn\u00e1 \u00ed s\u00ednum fyrsta leik fyrir Fram og er honum \u00f3ska\u00f0 til hamingju me\u00f0 \u00fea\u00f0. Lokat\u00f6lurnar ur\u00f0u hins vegar 1:1 jafntefli, sem hef\u00f0i kannski \u00fe\u00f3tt \u00e1s\u00e6ttanlegt fyrir leik en er afar fr\u00fastrerandi \u00ed lj\u00f3si \u00feess sem \u00e1 undan var gengi\u00f0. Framli\u00f0i\u00f0 m\u00e1 hins vegar bera h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 h\u00e1tt. Flestir \u00e1ttu g\u00f3\u00f0an leik. Vi\u00f0 erum li\u00f0 sem allir eru smeykir vi\u00f0 a\u00f0 m\u00e6ta og erum alltaf \u00f3gnandi \u00ed skyndis\u00f3knum. N\u00fa er bara a\u00f0 landa sigri gegn Eyjam\u00f6nnum \u00e1 sunnudag. Sj\u00e1umst \u00ed Dal draumanna!<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>K\u00f3pavogsfundurinn var haldinn sumari\u00f0 1662 \u00e1 \u00feeim sl\u00f3\u00f0um \u00fear sem vestari v\u00edtateigur K\u00f3pavogsvallar er \u00ed dag. \u00dear l\u00e9t har\u00f0dr\u00e6gur hir\u00f0stj\u00f3ri danska konungsvaldsins \u00edslenska \u00feingmenn undirgangast einveldi konungs. Gamall ma\u00f0ur felldi [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":44693,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-44660","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/06\/Freyr-vefur.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/44660","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=44660"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/44660\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":44666,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/44660\/revisions\/44666"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/44693"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=44660"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=44660"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=44660"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}