{"id":47780,"date":"2026-04-27T22:46:02","date_gmt":"2026-04-27T22:46:02","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=47780"},"modified":"2026-04-27T22:46:16","modified_gmt":"2026-04-27T22:46:16","slug":"adkomuvindur","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2026\/04\/27\/adkomuvindur\/","title":{"rendered":"A\u00f0komuvindur"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"47780\" class=\"elementor elementor-47780\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-3727db62 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"3727db62\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-c36be96\" data-id=\"c36be96\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-54577242 elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"54577242\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p>Um \u00e1ri\u00f0 841 stofnsettu norr\u00e6nir v\u00edkingar borgina Dyflinni e\u00f0a Dublin \u00e1 \u00cdrlandi. Ranns\u00f3knir fornleifafr\u00e6\u00f0inga hafa \u00fe\u00f3 leitt \u00ed lj\u00f3s eldri samfellda bygg\u00f0 \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu. Engilsaxar vir\u00f0ast hafa reist \u00fear b\u00e6 sem gaf sv\u00e6\u00f0inu nafn sitt og mannvistarleifar \u00ed Dyflinnarfl\u00f3a n\u00e1 \u00e1r\u00fe\u00fasundir aftur \u00ed t\u00edmann. Fyrir \u00feennan pistil, sem fjallar a\u00f0 mestu \u00ed leik \u00ed Bestu deild karla, ver\u00f0ur \u00fe\u00f3 mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00e1ri\u00f0 841. Fr\u00e1 Dyflinni komu \u00e6ttir sem s\u00ed\u00f0ar \u00e1ttu eftir a\u00f0 l\u00e1ta miki\u00f0 til s\u00edn taka vi\u00f0 landn\u00e1m \u00cdslands. Um \u00feremur \u00e1ratugum s\u00ed\u00f0ar koma Vestmannaeyjar fyrst vi\u00f0 s\u00f6gu \u00cdslands, \u00feanga\u00f0 sem h\u00f3pur \u00fer\u00e6la me\u00f0 veika tilfinningu fyrir eignar\u00e9tti h\u00f6f\u00f0ingja fl\u00fa\u00f0i eftir a\u00f0 hafa drepi\u00f0 Hj\u00f6rleif, f\u00f3stbr\u00f3\u00f0ur Ing\u00f3lfs Arnarsonar sem fylltist r\u00e9ttl\u00e6tiskennd og og h\u00e9lt \u00fat \u00ed eyjarnar og drap \u00fe\u00e1 alla. Af \u00feessu s\u00e9st a\u00f0 samskiptasaga \u00cdslendinga vi\u00f0 Dublin er mannsaldri lengri vi\u00f0 Vestmannaeyjar \u2013 hva\u00f0 allir athugi!<\/p><p>\u00cd lj\u00f3si \u00feessarar fors\u00f6gu m\u00e1 \u00fea\u00f0 teljast verulega \u00f3sanngjarnt og \u00f3m\u00e1lefnalegt a\u00f0 fl\u00fdta leik Fram og \u00cdBV um h\u00e1lft\u00edma til a\u00f0 eltast vi\u00f0 stopular ferjusiglingar \u00far \u00deorl\u00e1ksh\u00f6fn \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 stilla hann af vi\u00f0 s\u00ed\u00f0degisflug Icelandair fr\u00e1 Dublin. Fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar haf\u00f0i sp\u00f3ka\u00f0 sig \u00e1 eyjunni gr\u00e6nu um helgina (sem er \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 kom engin sk\u00fdrsla um fyrsta leik stelpnanna \u00ed sumar) og s\u00e1 fram \u00e1 a\u00f0 geta l\u00e1ti\u00f0 s\u00edna ektakvinnu skutla s\u00e9r beint \u00far Leifsst\u00f6\u00f0 \u00ed Dal draumanna r\u00e9tt \u00e1\u00f0ur en flauta\u00f0 yr\u00f0i til leiks. En nei \u2013 eigingirni eyjaskeggja, sem voru of f\u00ednir til a\u00f0 b\u00f3ka s\u00e9r h\u00f3telgistingu \u00ed borg \u00f3ttans, f\u00e9kk a\u00f0 r\u00e1\u00f0a f\u00f6r og fr\u00e9ttaritarinn m\u00e6tti \u00fev\u00ed tuttugu m\u00edn\u00fatum of seint til leiks. Sta\u00f0an var strax or\u00f0in 1:0 og tuttugu m\u00edn\u00fatur \u00e1 klukkunni&#8230;<\/p><p>Ve\u00f0raparad\u00edsin Lambhagav\u00f6llur var ekki sj\u00e1lfum s\u00e9r l\u00edkur. Hitinn var kannski 6-7 gr\u00e1\u00f0ur, sk\u00fdja\u00f0 og \u00fea\u00f0 sem skringilegra var: hv\u00ednandi rok. \u00deetta var auglj\u00f3slega a\u00f0komuve\u00f0ur, m\u00f6gulega e-\u00f0 sem fylgt hefur gestunum \u00ed b\u00e6inn. \u00deetta vill enginn sj\u00e1 \u00ed Dal D-v\u00edtam\u00ednsins \u00fear sem annars er alltaf bong\u00f3bl\u00ed\u00f0a.<\/p><p>Eyjanepjan ger\u00f0i \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 hef\u00f0bundnir sessunautar Fr\u00e9ttaritarans s\u00e1tu ekki \u00ed st\u00fakunni, heldur st\u00f3\u00f0u \u00ed efstu r\u00f6\u00f0. \u00dear var valinkunnur skr\u00edllinn: \u00cdvar og S\u00e6var Gu\u00f0j\u00f3nssynir, Addi \u00ed bankanum, nafni, Lexi b\u00edlabraskari, \u00deorbj\u00f6rn Atli og fr\u00fa Ragnhei\u00f0ur, Skjaldsveinninn og Rabbi trymbill. \u00d6ll \u00feessi hersing tr\u00f3\u00f0 s\u00e9r \u00e1 \u00f6rl\u00edti\u00f0 fr\u00edmerki gegnt mi\u00f0l\u00ednunni, st\u00f3\u00f0 \u00ed hnapp og \u00e1ttu \u00feeir l\u00e1gvaxnari fullt \u00ed fangi vi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 \u00e1 v\u00f6llinn.<\/p><p>Hvernig var marki\u00f0? \u2013 spur\u00f0i fr\u00e9ttaritarinn&#8230; og allar l\u00fdsingar voru \u00e1 sama veg: \u201eHann reif marki\u00f0!\u201c \u2013 Eftir um t\u00edmu m\u00edn\u00fatna leik haf\u00f0i Eyjav\u00f6rnin lent \u00ed klandri, ekki komi\u00f0 fr\u00e1 s\u00e9r boltanum og Atli \u00de\u00f3r \u2013 n\u00fdi upp\u00e1halds T\u00edvol\u00edlurkurinn okkar \u2013 neglt \u00ed marki\u00f0 af sl\u00edkum bylmingskrafti a\u00f0 vallarstarfsmenn hafi \u00feurft a\u00f0 laga neti\u00f0. 1:0 og h\u00farra fyrir markaskorun, b\u00fa\u00fa fyrir eignaspj\u00f6llum!<\/p><p>En \u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 sta\u00f0an var or\u00f0in 1:0, hvernig var \u00fe\u00e1 li\u00f0i\u00f0 skipa\u00f0? J\u00fa: Viktor \u00ed markinu, \u00deorri, Sigurj\u00f3n og Kyle \u00ed \u00f6ftustu varnarl\u00ednu. Kennie og Halli \u00ed marks\u00e6knum bakv\u00f6r\u00f0um. \u00c6gir Jarl og Tibbling skiptust \u00e1 a\u00f0 vera aftastir \u00e1 mi\u00f0junni me\u00f0 Fred og Vuk \u00ed frj\u00e1lsu spili fram\u00e1vi\u00f0 og k\u00f6ntunum og Atli uppi \u00e1 toppi. \u00d6ll \u00feessi li\u00f0suppstilling er birt me\u00f0 fyrirvara um a\u00f0 fr\u00e9ttaritarinn er leikkerfisblindur.<\/p><p>N\u00e6stu m\u00edn\u00fatur eftir a\u00f0 fr\u00e9ttaritarinn var loksins m\u00e6ttur og b\u00fainn a\u00f0 n\u00e1 \u00e1ttum h\u00e9ldu Framarar \u00e1fram a\u00f0 s\u00e6kja. \u00deorri \u00e1tti g\u00f3\u00f0an skalla framhj\u00e1 eftir horn \u00e1 23. m\u00edn. og \u00c6gir Jarl, sem var virkilega g\u00f3\u00f0ur og vinnusamur \u00e1 mi\u00f0junni \u00ed kv\u00f6ld, \u00feruma\u00f0i yfir \u00e1 26. m\u00edn. Tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar m\u00e1tti litlu muna a\u00f0 gestirnir j\u00f6fnu\u00f0u metin, \u00fear sem \u00feeir heimtu\u00f0u v\u00edti fyrir hendi og eftir darr\u00f0ardans v\u00f6r\u00f0u varnarmenn Fram af markl\u00ednu. \u00c1 32. m\u00edn\u00fatu reiddu Framarar hins vegar \u00feungt h\u00f6gg \u00feegar Fred skei\u00f0a\u00f0i upp kantinn fj\u00e6r st\u00fakunni, \u00e1tti svo gullfallega sendingu fyrir marki\u00f0 \u00fear sem Atli pota\u00f0i inn af stuttu f\u00e6ri, 2:0.<\/p><p>\u00cd kj\u00f6lfar marksins \u00e1tti Fram tv\u00f6 g\u00f3\u00f0 f\u00e6ri gegn sterkum m\u00f3tvindinum, \u00fear sem Vuk kom vi\u00f0 s\u00f6gu \u00ed b\u00e6\u00f0i skiptin. Meira bar \u00fe\u00f3 ekki til t\u00ed\u00f0inda og s\u00e1rsvangur fr\u00e9ttaritarinn var b\u00fainn a\u00f0 valhoppa upp \u00ed Bar8u til a\u00f0 tryggja s\u00e9r Framborgara \u2013 eina Michelin-stj\u00f6rnuborgarann \u00ed \u00edslensku deildarkeppninni og lap\u00feunnan l\u00e6t \u00ed plastglasi fyrir hl\u00e9i\u00f0.<\/p><p>Seinni h\u00e1lfleikur h\u00f3fst og aftur var tr\u00edtla\u00f0 ni\u00f0ur \u00ed st\u00faku og norpast fyrir ofan s\u00e6tin \u00e1 \u00f6rlitlum ble\u00f0li. Framarar m\u00e6ttu \u00e1kafir til seinni h\u00e1lfleiks. \u00deeir h\u00f6f\u00f0u reyndar l\u00edka veri\u00f0 peppa\u00f0ir fyrir hl\u00e9 og til \u00feess var teki\u00f0 hversu miki\u00f0 hey\u00f0rist af bekknum \u00fear sem Helgi Sig var \u00ed essinu s\u00ednu gegn g\u00f6mlu l\u00e6risveinunum. \u00c1 49. m\u00edn\u00fatu uppsk\u00e1rum vi\u00f0 hamaganginn \u00fear sem hornspyrna fr\u00e1 vinstriv\u00e6ngnum barst \u00fat \u00ed teiginn og f\u00e9ll d\u00e1samlega fyrir f\u00e6turnar \u00e1 \u00deorra sem \u00feruma\u00f0i upp \u00ed \u00feakneti\u00f0, 3:0. Almenn gla\u00f0v\u00e6r\u00f0 \u00e1 p\u00f6llunum og markafleygnum ger\u00f0 g\u00f3\u00f0 skil af \u00f6llum nema \u00deorbirni Atla sem er \u00ed fr\u00e1haldi!<\/p><p>\u00dear me\u00f0 m\u00e1tti leikurinn heita b\u00fainn. Vonlitlir Eyjamenn dr\u00f3gu sig inn \u00ed skelina og l\u00edti\u00f0 ger\u00f0ist n\u00e6stu m\u00edn\u00fatur. Vuk f\u00f3r af velli eftir t\u00e6plega klukkustundar leik fyrir Bystr\u00f6m. Roki\u00f0 henta\u00f0i hvorgum \u00feeirra s\u00e9rstaklega vel. \u00deegar seinni h\u00e1lfleikur var h\u00e1lfna\u00f0ur fengu Eyjamenn aukaspyrnu \u00e1 h\u00e1skalegum sta\u00f0 og komust \u00ed dau\u00f0af\u00e6ri n\u00e1lega upp \u00far engu en Viktor var\u00f0i st\u00f3rkostlega. \u00dea\u00f0 er s\u00e9rstakur h\u00e6fileiki hj\u00e1 markv\u00f6r\u00f0um a\u00f0 geta gripi\u00f0 til svona varslna upp \u00far \u00feurru eftir a\u00f0 hafa varla \u00feurft a\u00f0 hreyfa sig heilu og h\u00e1lfu leikina! S\u00ed\u00f0ar \u00ed leiknum \u00e1tti hann eftir a\u00f0 verja jafnvel af \u00f6rstuttu f\u00e6ri og ver\u00f0a \u00feannig einn af m\u00f6nnum leiksins \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 hafa n\u00e1nast ekkert \u00feurft a\u00f0 gera.<\/p><p>Fr\u00e9ttaritarinn \u00feurti a\u00f0 breg\u00f0a s\u00e9r \u00e1 salerni\u00f0 og \u00e1kva\u00f0 \u00ed lei\u00f0inni a\u00f0 l\u00edta \u00e1 kuldaskr\u00e6furnar \u00ed f\u00ednumannast\u00fakunni sem nenntu ekki \u00fat og horf\u00f0u \u00ed sta\u00f0inn \u00ed gegnum glerr\u00fa\u00f0ur. Af handah\u00f3fi m\u00e6tti nefna Sigga Tomm, Valt\u00fd Bj\u00f6rn, P\u00e9tur Ormslev og Gumma Torfa. Mannau\u00f0ur hinna kulv\u00edsu er \u00f3t\u00e6mandi! Me\u00f0an \u00e1 \u00fev\u00ed st\u00ed\u00f0 fengu Eyjamenn billega aukaspyrnu \u00e1 besta sta\u00f0 og skoru\u00f0u snyrtilega: 3:1, var allt a\u00f0 fara \u00ed skr\u00fafuna? H\u00f6skuldarvi\u00f0v\u00f6run: \u00fea\u00f0 var ekki allt a\u00f0 fara \u00ed skr\u00fafuna!<\/p><p>Fj\u00f3rum m\u00edn\u00fatum eftir slysalega Eyjamarki\u00f0 fengu Framarar aukaspyrnu vi\u00f0 v\u00edtateigshorn gestanna. Halli lyfit boltanum snyrtilega inn\u00e1 markteig \u00fear sem Kyle \u2013 (sem \u00e1tti sinn allra besta leik lengi) \u2013 reif sig lausan og skallai\u00f0 \u00ed neti\u00f0, 4:1. Beint \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 ger\u00f0i \u00fej\u00e1lfarateymi\u00f0 tv\u00f6falda skiptingu. Kennie og Atli f\u00f3ru \u00fataf fyrir M\u00e1sa og Badda \u2013 n\u00fdja upp\u00e1haldsleikmann fr\u00e9ttaritarans.<\/p><p>Eftir stutt stopp hj\u00e1 \u00feotuli\u00f0inu f\u00f3r fr\u00e9ttaritarinn aftur ni\u00f0ur \u00ed almennininginn. Leikurinn var a\u00f0 leysast upp \u00ed vitleysu vegna vinds og almenns h\u00e6fileikaleysis gestanna. Halli og Tibbling f\u00f3ru \u00fataf \u00e1 82. m\u00edn. fyrir Krist\u00f3fer og Israel. Tibbling var kl\u00e1rlega besti ma\u00f0ur fyrri h\u00e1lfeiks \u00ed \u00f3venjulega varnarsinna\u00f0ri mi\u00f0just\u00f6\u00f0u, en var farinn a\u00f0 \u00fereytast allnokkurt. M\u00e1r var n\u00e6rri \u00fev\u00ed a\u00f0 skora tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar eftir a\u00f0 skot hans var naumlega vari\u00f0 \u00ed horn eftir darra\u00f0ardans \u00ed teignum. Tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar kom hins vegar fimmta marki\u00f0 n\u00e1nast upp \u00far engu \u00fear sem bylmingsskot Kirst\u00f3fers rata\u00f0i \u00ed markhorni\u00f0, 5:1. Lausleg athugun lei\u00f0ir \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 \u00ed \u00feri\u00f0ja sinn \u00e1 \u00f6ldinni sem Fram skorar fimm m\u00f6rk \u00ed leik \u00ed efstu deild. \u00c1\u00f0ur voru \u00fea\u00f0 5:4 sigur \u00e1 FH 2002 og 5:0 sigur \u00e1 Keflv\u00edkingum 2009.<\/p><p>Menn leiksins? Tjah, \u00deorri f\u00e9kk vi\u00f0urkenninguna \u00e1 vellinum og \u00fea\u00f0 m\u00e1tti svo sem alveg til sanns vegar f\u00e6ra. \u00cd raun voru flestir e\u00f0a allir okkar manna mj\u00f6g g\u00f3\u00f0ir \u00ed kv\u00f6ld. Viktor me\u00f0 tv\u00e6r st\u00f3rkostlegar v\u00f6rslur, Sigurj\u00f3n traustur, \u00c6gir Jarl flottur \u2013 svona m\u00e6tti lengi halda \u00e1fram. Fr\u00e9ttaritarinn myndi \u00fe\u00f3 vilja gefa Fred stimpilinn \u2013 \u00fea\u00f0 er fr\u00e1b\u00e6rt a\u00f0 geta fengi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 hann svona framarlega \u00ed sumar mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 fyrra \u00e1r. <br>N\u00e6sta stopp: FH \u00e1 \u00fativelli n\u00e6stu helgi.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Um \u00e1ri\u00f0 841 stofnsettu norr\u00e6nir v\u00edkingar borgina Dyflinni e\u00f0a Dublin \u00e1 \u00cdrlandi. Ranns\u00f3knir fornleifafr\u00e6\u00f0inga hafa \u00fe\u00f3 leitt \u00ed lj\u00f3s eldri samfellda bygg\u00f0 \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu. Engilsaxar vir\u00f0ast hafa reist \u00fear b\u00e6 [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":47781,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-47780","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2026\/04\/Atli-gegn-IBV-.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/47780","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=47780"}],"version-history":[{"count":5,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/47780\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":47786,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/47780\/revisions\/47786"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/47781"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=47780"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=47780"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=47780"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}