{"id":47832,"date":"2026-05-03T22:37:48","date_gmt":"2026-05-03T22:37:48","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=47832"},"modified":"2026-05-03T22:38:57","modified_gmt":"2026-05-03T22:38:57","slug":"tekinn","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2026\/05\/03\/tekinn\/","title":{"rendered":"Tekinn!"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"47832\" class=\"elementor elementor-47832\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-704493c4 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"704493c4\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-2e294e04\" data-id=\"2e294e04\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-2eb2aa8c elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"2eb2aa8c\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p>Eil\u00edf\u00f0art\u00e1ningurinn Auddi Bl\u00f6 st\u00f3\u00f0 fyrir sj\u00f3nvarps\u00fe\u00e1ttum a\u00f0 erlendri fyrirmynd fyrir allm\u00f6rgum \u00e1rum \u00fear sem falinni myndav\u00e9l var beitt til a\u00f0 hrella saklausa borgara. \u00deegar glensi\u00f0 var fari\u00f0 a\u00f0 hlaupa yfir \u00f6ll m\u00f6rk og f\u00f3rnarlamb hrekksins fari\u00f0 a\u00f0 r\u00edfa h\u00e1r sitt og skegg, st\u00f6kk H\u00favetningurinn ge\u00f0\u00feekki fram og hr\u00f3pa\u00f0i \u201eTekinn!\u201c \u2013 til a\u00f0 \u00e1r\u00e9tta a\u00f0 allt v\u00e6ri \u00ed plati. Megni\u00f0 af t\u00edmanum \u00ed vi\u00f0ureign FH og Fram bi\u00f0u stu\u00f0ningsmenn bl\u00e1kl\u00e6ddra eftir a\u00f0 Auddi Bl\u00f6 stykki fram og hr\u00f3pa\u00f0i \u201eTekinn!\u201c\u00a0\u2013 \u00fea\u00f0 hef\u00f0i \u00fatsk\u00fdrt allt rugli\u00f0 og vitleysuna.<\/p><p>Leikir FH og Fram \u00ed Kaplakrika s\u00ed\u00f0ustu \u00e1r hafa veri\u00f0 \u00f3l\u00edkindaleikir. \u00dear hefur veri\u00f0 miki\u00f0 skora\u00f0 og l\u00edti\u00f0 fari\u00f0 fyrir \u00f6gu\u00f0um varnarleik. \u00deessir leikir hafa oft veri\u00f0 s\u00ed\u00f0sumars en ekki \u00ed vorbyrjun \u00feegar v\u00f6llur Hafnfir\u00f0inga hefur veri\u00f0 karga\u00fe\u00fdfi, betur falli\u00f0 til kart\u00f6flur\u00e6ktar en f\u00f3tbolta. En vori\u00f0 er t\u00edminn \u00e1 \u00cdslandi.<\/p><p>Skjaldsveinninn Valur Nor\u00f0ri haf\u00f0i fengi\u00f0 fr\u00edmi\u00f0a \u00e1 leikinn \u00ed gegnum eitthva\u00f0 hark \u00ed vinnunni. N\u00e1nar tilteki\u00f0 fj\u00f3ra fr\u00edmi\u00f0a! \u00dea\u00f0 dug\u00f0i fyrir hann sj\u00e1lfan, fr\u00e9ttaritara Frams\u00ed\u00f0unnar og trymblana tvo: Rabba og Kristj\u00e1n Hn\u00edfsd\u00e6ling. S\u00e1 s\u00ed\u00f0arnefndi var\u00f0 svo \u00feakkl\u00e1tur a\u00f0 hann redda\u00f0i kjarnafj\u00f6lskyldunni \u00ed a\u00f0 skutla til og fr\u00e1 vellinum, sem \u00fdtti enn frekar undir hed\u00f3nisma fr\u00e9ttaritarans. \u00dea\u00f0 var skri\u00f0i\u00f0 inn \u00e1 Kaplakrika tuttugu m\u00edn\u00fatum fyrir leik og sest \u00ed bj\u00f3rtjaldinu vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 Botnle\u00f0juli\u00f0um \u00far Fimleikaf\u00e9laginu. Kaplakriki er einhver allra skemmtilegasti v\u00f6llur landsins fyrir \u00e1horfendur og sj\u00e1lfsagt a\u00f0 hr\u00f3sa \u00fev\u00ed.<\/p><p>\u00dea\u00f0 haf\u00f0i veri\u00f0 bong\u00f3 \u00ed Hl\u00ed\u00f0unum \u00ed Reykjav\u00edk og fr\u00e9ttaritarinn m\u00e6tti \u00fev\u00ed l\u00e9ttkl\u00e6ddur \u00ed k\u00e6likistuna Kaplakrika. \u00dea\u00f0 bl\u00e9s og s\u00f3lin var sterk og l\u00e1gt \u00e1 lofti. \u00c1horfendur \u00feurftu hl\u00edf\u00f0arkl\u00e6\u00f0na\u00f0 og markver\u00f0ir derh\u00fafur. Viktor st\u00f3\u00f0 \u00ed Frammarkinu sem \u00fe\u00e1 \u00deorra, Sigurj\u00f3n og Kyle fyrir framan sig \u2013 Kennie og Halla \u00ed bakv\u00f6r\u00f0um, \u00c6gi Jarl aftastan \u00e1 mi\u00f0junni og Fred og Simon \u00fear fyrir framan. Vuk og Atla frammi. Sama uppskrift og \u00ed sigrinum g\u00f3\u00f0a \u00ed s\u00ed\u00f0asta leik.<\/p><p>V\u00f6llurinn var glata\u00f0ur \u2013 verum me\u00f0 \u00fea\u00f0 alveg \u00e1 hreinu! \u00deungur grasv\u00f6llur, 2-3 vikum of snemma, var aldrei a\u00f0 fara a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 fallegan f\u00f3tbolta. Okkar m\u00f6nnum var \u00fe\u00f3 \u00f3\u00fearflega brug\u00f0i\u00f0 yfir vallara\u00f0st\u00e6\u00f0unum.<\/p><p>\u00cd fyrstu s\u00f3kn leiksins lentu Framarar \u00ed t\u00f3mu klandri vi\u00f0 a\u00f0 hreinsa fr\u00e1 marki og eftir nokkrar sendingar og fr\u00e1kost \u00ed teignum lak boltinn inn \u00ed Frammarki\u00f0, 1:0 og bara fimm m\u00edn\u00fatur \u00e1 klukkunni. Tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar j\u00f6fnu\u00f0u Framarar metin. Vuk bruna\u00f0i upp kantinn og sendi svo h\u00e1rn\u00e1kv\u00e6mt fyrir \u00fear sem \u00c6gir Jarl kom a\u00f0v\u00edfandi og jafna\u00f0i metin, 1:1.<\/p><p>Tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar \u00feurfti Viktor sj\u00f3nvarpsmarkv\u00f6rslu til a\u00f0 halda st\u00f6\u00f0unni \u00f3breyttri og m\u00edn\u00fatu s\u00ed\u00f0ar var\u00f0 sta\u00f0an 2:1 eftir snarpa skyndis\u00f3kn heimamanna. \u00derj\u00fa m\u00f6rk\u00a0 \u00e1 ellefu m\u00edn\u00fatum og leikurinn varla byrja\u00f0ur!<\/p><p>Eftir marki\u00f0 t\u00f3ku Framarar \u00f6ll v\u00f6ld \u00e1 vellinum. L\u00e9legt grasi\u00f0 ger\u00f0i \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 snertingarnar ur\u00f0u stundum fleiri en ella og sendingarnar \u00f3n\u00e1kv\u00e6mari, en heimamenn virtust ekki hafa neitt anna\u00f0 plan en a\u00f0 falla til baka og verjast. Vi\u00f0 t\u00f3k t\u00edmabil f\u00e1heyr\u00f0ra yfirbu\u00f0ra Framli\u00f0sins. Atli var h\u00e1rsbreidd fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 prj\u00f3na sig \u00ed gegn \u00e1 19. m\u00edn\u00fatu. Tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar \u00e1tti Kennie skot yfir og aftur \u00ed n\u00e6stu s\u00f3kn. \u00c1 25. m\u00edn\u00fatu var\u00f0 svo darra\u00f0ardans inni \u00ed FH-teignum sem enda\u00f0i \u00e1 a\u00f0 \u00c6gir Jarl skaut framhj\u00e1.<\/p><p>Frams\u00f3knirnar komu \u00e1 f\u00e6ribandi og bara \u00fe\u00e6r markver\u00f0ustu eru taldar til: \u00deorri prj\u00f3na\u00f0i sig \u00ed gegnum Hafnarfjar\u00f0arv\u00f6rnina \u00e1 30. m\u00edn. og sendi \u00e1 Vuk sem skaut r\u00e9tt framhj\u00e1 \u00fat dau\u00f0aff\u00e6ri. H\u00f6rkus\u00f3kn Framarara r\u00e9tt \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 enda\u00f0i \u00e1 a\u00f0 \u00c6gir Jarl negldi yfir af sk\u00f6mmu f\u00e6ri. R\u00e9tt \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 var Vuk n\u00e1nast sloppinn \u00ed gegn. Framarar \u00e1 p\u00f6llunum h\u00e9ldu \u00e1fram a\u00f0 sty\u00f0ja s\u00edna menn og t\u00f6ldu sig illa svikna a\u00f0 f\u00e1 ekki 1-2 v\u00edti \u00ed lei\u00f0inni. \u00derumuskot fr\u00e1 Kyle s\u00f6ng sv\u00f6 \u00ed hli\u00f0arnetinu \u00e1 35. m\u00edn\u00fatu eftir a\u00f0 hafa hroti\u00f0 af varnarmanni. Bylmingsskot fr\u00e1 Fred var gl\u00e6silega vari\u00f0 \u00e1 37. m\u00edn\u00fatu \u2013 hvernig vorum vi\u00f0 ekki b\u00fanir a\u00f0 skora 4-5 m\u00f6rk?<\/p><p>En \u00f3vinurinn kunni l\u00edka a\u00f0 s\u00e6kja. FH haf\u00f0i varla \u00e1tt s\u00f3kn a\u00f0 marki Framara en \u00e1 43. m\u00edn\u00fatu n\u00e1\u00f0u \u00feeir \u00f3v\u00e6ntum skalla sem small \u00ed st\u00f6nginni. \u00c1 lokam\u00edn\u00fatu fyrri h\u00e1lfleiksins f\u00e9kk FH svo f\u00e1g\u00e6ta hornspyrnu sem enda\u00f0i \u00ed marknetinu eftir fur\u00f0ulega dapran varnarleik okkar manna \u2013 3:1 og Fram allt \u00ed einu or\u00f0i\u00f0 tveimur m\u00f6rkum \u00e1 eftir gegn li\u00f0i sem varla haf\u00f0i h\u00e6tt s\u00e9r yfir mi\u00f0ju allan leikinn. Hven\u00e6r myndi Auddi Bl\u00f6 st\u00f6kkva fram og uppl\u00fdsa a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri allt eitt st\u00f3rt gr\u00edn?<\/p><p>Eftir hl\u00e9 t\u00f3k \u00fea\u00f0 sama vi\u00f0. FH l\u00e1 langt til baka og s\u00fdndi litla tilbur\u00f0i til a\u00f0 verjast. Fred var allt \u00ed \u00f6llu \u00e1 mi\u00f0junni \u2013 (hven\u00e6r munu menn almennt vi\u00f0urkenna a\u00f0 hann er besti leikma\u00f0ur deildarinnar \u00ed dag?) \u2013 og vi\u00f0 h\u00e9ldum \u00e1fram a\u00f0 \u00fejarma a\u00f0 \u00feeim. \u00deorri minnka\u00f0i muninn \u00ed 3:2 ma\u00f0 au\u00f0veldum skalla eftir hornspyrnu \u00e1 51. m\u00edn. Fjarvera \u00deorbj\u00f6rns Atla og fr\u00fa Ragnhei\u00f0ar var\u00f0 enn vandr\u00e6\u00f0alegri \u00ed lj\u00f3si \u00feessa f\u00edna marks frumbur\u00f0arins. Vuk \u00feruma\u00f0i a\u00f0 marki \u00e1 54. m\u00edn. en svo datt leikurinn a\u00f0eins ni\u00f0ur \u00fear til a\u00f0 okkar allra besti Fred skei\u00f0a\u00f0i upp kantinn, \u00e1tti fr\u00e1b\u00e6ra \u00feversendingu sem f\u00f3r beint \u00ed t\u00e6rnar \u00e1 Kennie sem steig af s\u00e9r varnarmann og skora\u00f0i me\u00f0 bylmingsskoti, 3:3 og allt komi\u00f0 \u00e1 byrjunarreit.<\/p><p>Eftir marki\u00f0 t\u00f3k Fram \u00f6ll v\u00f6l \u00e1 n\u00fdjan leik \u00e1 me\u00f0an FH var \u00fati \u00e1 \u00feekju. \u00c1 73. m\u00edn\u00fatu endurt\u00f3k sagan sig \u2013 Fred sp\u00e6ndi sig \u00ed gegnum slappa FH-v\u00f6rnina, sendi fyrir og aftur kom Kennie a\u00f0v\u00edfandi og setti boltann \u00ed neti\u00f0. Fram var allt \u00ed einu komi\u00f0 me\u00f0 forystuna! \u00d3, hva\u00f0 vi\u00f0 sungum!<\/p><p>\u00dej\u00e1lfarateymi\u00f0 \u00e1 varamannabekknum var fur\u00f0u\u00edhaldssamt vi\u00f0 \u00feessar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur. Sj\u00e1 m\u00e1tti \u00far flugv\u00e9l a\u00f0 Atli var \u00fatkeyr\u00f0ur en Bystr\u00f6m og Freyr voru auglj\u00f3sir menn \u00ed a\u00f0 st\u00edga inn vi\u00f0 \u00feessar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur. Engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur var\u00f0 fyrsta skiptingin ekki fyrr en \u00e1 83. m\u00edn \u00feegar Fred f\u00f3r af velli fyrir Badda. Framarar dr\u00f3gu sig aftur \u00e1 v\u00f6llinn \u2013 fullkomlega a\u00f0 \u00f3\u00fe\u00f6rfu \u2013 og \u00f3n\u00fdtt FH-li\u00f0 f\u00e9kk f\u00e6ri til a\u00f0 bl\u00e1sa til s\u00f3knar. \u00dea\u00f0 var ekki fyrr en \u00e1 lokam\u00edn\u00fatu venjulegs leikt\u00edma a\u00f0 Bystr\u00f6m f\u00e9kk a\u00f0 koma inn\u00e1 fyrir Vuk og Freyr n\u00e1\u00f0i s\u00ed\u00f0ustu sek\u00fandunum fyrir Atla. FH f\u00e9kk nokkur h\u00e1lff\u00e6ri en f\u00f3r aldrei n\u00e1l\u00e6gt \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00f3gna okkar fr\u00e6ga sigri. 3:4 \u00e1 \u00fativelli er alltaf fr\u00e1b\u00e6rt og skiptir \u00fear engu \u00fe\u00f3tt m\u00f3therjinn s\u00e9 fallbyssuf\u00f3\u00f0ur \u00e1 lei\u00f0 \u00ed Lengjuna eins og FH \u00f3neitanlega er \u2013 Framarar styrkja st\u00f6\u00f0u s\u00edna \u00ed efri hlutanum og n\u00e6st er skyldusigur gegn Val \u00ed Dal draumanna. <br \/>\u00dear ver\u00f0ur fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar fjarri g\u00f3\u00f0u gamni enda \u00e1 kafi \u00ed kosningabar\u00e1ttu fyrir kommana \u00ed Vinstrinu. Sj\u00e1umst s\u00ed\u00f0ar!<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<br \/><br \/>Kristinn Steinn Traustason t\u00f3k myndir sem h\u00e6gt er a\u00f0 sko\u00f0a h\u00e9rna:\u00a0<a href=\"https:\/\/www.flickr.com\/photos\/99255499@N07\/albums\/72177720333459023\/\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">https:\/\/www.flickr.com\/photos\/99255499@N07\/albums\/72177720333459023\/<\/a><\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Eil\u00edf\u00f0art\u00e1ningurinn Auddi Bl\u00f6 st\u00f3\u00f0 fyrir sj\u00f3nvarps\u00fe\u00e1ttum a\u00f0 erlendri fyrirmynd fyrir allm\u00f6rgum \u00e1rum \u00fear sem falinni myndav\u00e9l var beitt til a\u00f0 hrella saklausa borgara. \u00deegar glensi\u00f0 var fari\u00f0 a\u00f0 hlaupa yfir [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":47833,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-47832","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2026\/05\/FRED-gegn-FH-I-.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/47832","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=47832"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/47832\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":47837,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/47832\/revisions\/47837"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/47833"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=47832"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=47832"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=47832"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}